18. tbl. 05. árg. 31. maí - 6. júní 2023 Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur! Í VESTMANNAEYJUM 1.-4. JÚNÍ 2023 SJÓMANNA DAGSHELGIN DAGSKRÁIN ER Í BLAÐINU
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
TÍGULL
óskar sjómönnum & fjölskyldum til hamingju með daginn!
Ljósmynd/Tói Vídó TÍGULL
Páll elskar endurgreiðslur.
Á hverju ári fá þúsundir tjónlausra viðskiptavina Sjóvá Stofnendurgreiðslu. Þannig hefur það verið í rúm 25 ár.
Sjóvá | Bárustíg 15 | 440 2000 | sudurland@sjova.is
Stofn
Þess vegna er hann hjá Sjóvá.
HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM SJÓMENNSKUNA?
Nafn & aldur: Christian Leó Gunnarsson, 7 ára.
Þekkir þú einhverja sjómenn?
Já, Hallur og Valdi afi.
Hefur þú farið á sjó? Já, Ystaklett.
Borðar þú fisk? Já ég elska fisk.
Hvað gera sjómenn? Stýra bátnum og æla.
Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Fótboltamaður.
Þekkir þú einhverja fiska?
Plokkfiskur, ýsa, loðna, síli, hákarl og hvalur.
Nafn & aldur: Erik Þorvarður Gautason, 9 ára.
Þekkir þú einhverja sjómenn?
Já afa og Andra.
Hefur þú farið á sjó? nei bara Herjólf.
Borðar þú fisk? ekki mjög mikið
Hvað gera sjómenn? afhverju á ég að vita það
Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Fótboltamaður.
Þekkir þú einhverja fiska?
Ýsa, Síli og Afafiskur.
MEÐ DAGINN, HAFSINS HETJUR
... og munið að fleiri eiga skilið að fara í slipp en dallurinn!
Hágæða tannlækningar í Búdapest á einni best búnu tannlæknastofu í Evrópu
Íslenskt starfsfólk tekur á móti þér á vellinum
Íslenskir ráðgjafar eru með þér í gegnum allt ferlið Upplýsingar og kvittanir allar á íslensku
Íslenskar sjúkratryggingar gilda
Gist er á fjögurra stjörnu hóteli, Aquaworld Resort
Ráðgjafar okkar taka vel á móti þér!
TIL HAMINGJU
Hefjum samtalið í síma 851 9800 eða sendu okkur línu á tennur@islenskaklinikin.eu Oddný Hrafnhildur Haukur Thelma
UFSI ÞORSKUR ÝSA KARFI LÚÐA SKÖTUSELUR LAX MAKRÍLL SILUNGUR TÚNFISKUR ORÐAÞRAUTIN SUDOKU
9.990 GPS Krakkaúr Verð frá 31.494 32” Lenovo skjár 44.990 2.994 Þráðlaus frá Trust 1.495 Leikjaheyrnartól 2.990 39.990 Thomson fartölvur 8.495 Bluetooth útihátalarar 16.990 14.990 Krakka spjaldtölva 30% AFSLÁTTUR 50% AFSLÁTTUR 7.495 Lenovo ferðahátalari 14.990 50% AFSLÁTTUR 50% AFSLÁTTUR Verð frá 40% AFSLÁTTUR
Frábær sumartilboð á hljóðbúnaði dagana 30. maí til 18. júni, allt að 50% afsláttur 31. maí 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l
GRÆJU SUMAR
YFIRHEYRSLA SJÓMANNA
Fullt nafn: Guðmundur Ingi Guðmundsson
Aldur: 43
Fjölskylda: Aníta Óðinsdóttir eiginkona, synirnir okkar þrír, Huginn, Gabríel og Óðinn.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: 1997 á Huginn og hef alltaf verið á Huginn.
Hvað heillaði við sjómennskuna: Sjómennskan hefuru verið í fjölskyldunni alla mína tíð og því hægt að segja að það sé bara í blóðinu. Maður var alltaf að sniglast á bryggjunum sem peyi.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Grímur á Felli og Palli kokkur ásamt mörgum öðrum.
Eftirminnilegasti túrinn? Siglarnar, þegar ég var 10-11 ára gamall peyi fór maður í siglingu til Hool.
Hvað finnst þér um orðið fiskari? Bara hvorki né, ég er sjómaður og mun halda mig við það orð.
Fullt nafn: Ríkharður Zoega Stefánsson
Fæðingarár: 1959
Fjölskylda: Matta, Guðbjörg og Fjóla Sif.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: 1978 á Vestmannaey.
Hvað heillaði við sjómennskuna: Félagsskapurinn fyrst og fremst. Svo siglingarnar þegar þær komu þarna inn í þetta í kringum 1980 í um 10 ár.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Gunnar í Svanhól og Svenni Valgeirs. Annar laug til þrjú og svo kom hin á vakt og tók við og laug til miðnættis. Skemmtilegir og harðduglegir menn. Gaman að vera með þeim. Ásamt þeim skipstjórum sem ég hef verið með.
Eftirminnilegasti túrinn? Það var þegar ég fékk hjartaáfall. Fyrir um 12 árum síðan. Þá var ekkert símasamband og niðamyrkur. Svo datt símasambandið inn og þá var ég bara að kveðja konuna og stelpurnar mínar. En sem betur fer fór allt á besta veg.
Hvað finnst þér um orðið fiskari? Mér finnst það algjör vitleysa. Þetta á bara við okkur að vera sjómenn.
SJÓMAÐUR ÁRSINS
Í fyrra byrjaði Tígull með þá nýjung að velja sjómann ársins. Í ár auglýstum við eftir tilnefningum og viljum við þakka öllum þeim sem að sendu á okkur. Í ár er sjómaður ársins Georg Eiður Arnarsson. Georg er Eyjamaður, trillukarl og hafnarvörður. Hann er giftur, á fjögur uppkomin börn, níu barnabörn, tvo hunda og einn kött.
Georg er fæddur 1964 en hann byrjaði snemma á sjó. Aðeins 12 ára gamall fór hann á túr í starfskynningu hjá Dala-Rafni VE. Reyndi fyrir sér á togara rúmlega tvítugur en kaupir sér svo sína fyrstu trillu tveimur árum síðar.
Tígull tók Georg Eið léttu spjalli.
Hvað heillaði við sjómennskuna?
Hef alltaf verið spenntur fyrir öllum veiðum og svo er þetta bara í blóðinu.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með og hvers vegna?
Esra heitinn, vegna þess að hann var það góður kokkur að það þótti svolítið sérstakt að við vorum flestir í áhöfninni orðnir akfeitir eftir vertíðina og það á netabát.
Eftirminnilegasti túrinn?
Þeir eru nokkuð margir og þá sérstaklega á eigin bátum, mig minnir að það hafi verið í febrúar 2011 þegar ég fékk 5,3 tonn af stórþorski á aðeins 10 línur, en reyndar fékk ég 6 tonn í febrúar 2014 en þá á 14 línur.
Hefur þú lent í sjóslysi í sjómennskunni? Já, missti trillu í hafið 16. Desember 1989, en hef verið nokkuð heppinn síðan þá þó oft hafi það staðið tæpt.
Besti og versti matur?
Besti matur eiginlega allur fiskur, en er lítið fyrir færeyskan mat.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Fjöllin í Vestmannaeyjum.
Hvað var draumastarfið þitt sem lítill strákur?
Að verða sjómaður á eigin bát, tékk.
Skemmtilegasti árstíminn á sjó?
Allir árstímar ef það er mjög gott sjóveður.
Hvað finnst þér erfiðast við sjómennskuna? Kvótakerfið.
Eftirminnilegasta atvikið á sjónum?
Þegar ég réri eitt sumarið á lúðunlínu og dróg í fyrsta skipti 100 kg lúðu og svo einum krók síðar, aðra 100 kg lúðu, svolítið sérstakt að lúðuveiðar séu bannaðar í dag og allt fullt af lúðu.
Stolt siglir fleygið mitt með Gylfa Ægis eða Ship-o-hoj? Stolt siglir fleygið mitt. Siginn fiskur eða gellur?
Ég verð að sjálfsögðu að segja gellur, enda get ég ekki verið þekktur fyrir minna, en þær eru mjög góðar sérstaklega djúpsteiktar.
Hvað finnst þér um orðið fiskari? Fáránlegt.
Eitthvað að lokum : Þakka kærlega fyrir heiðurinn af þessari tilnefningu og þakka þeim sem sendu inn ábendingu um mig.
Þar sem að ég lauk við það um síðustu áramót að skrifa alla sögu mína sem trillukarl inni á blogginu mínu, þá er að sjálfsögðu öllum velkomið að skoða það inni á georg.blog.is.
Vil svo að lokum óska öllum sjómönnum gleðilegs sjómannadags.
VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Sjómannadagsráð Vestmannaeyja
HELLUGERÐ AGNARS
Litla Skvísubúðin
Finndu hlutina og litaðu þá!
Sundbolur með doppum
Ananas
Krabbar
Hattar
Mávar Krossfiskar
Bátar Boltar
Regnhlífar Sólar
Hvaða aðra hluti getur þú fundið?
STÓR
Í ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA
TAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA
LÚÐRASVEIT VESTMANNAEYJA
ÁSAMT HLJÓMSVEIT OG
ASVEIT VESTMANNAEYJA HL JÓMSVEIT OG GÓÐUM GESTUM
7. JÚLÍ
Á 50 ÁRA GOSLOKAHÁTÍÐ
HELGI BJÖRNS
GoslokaHelgi, ótvíræður konungur sveitaballsins mætir að sjálfsögðu á svæðið.
ATHUGIÐ! TAKMARKAÐ FRAMBOÐ MIÐA
kki allir sexý elgi,GoslokaH ræðu onungur fsö veitaballsins mætir að j ðu á sv ðið
MIÐASALA Á MIDIX.IS
NÝR MINNISVARÐI AFHJÚPAÐUR Á SKANSINUM
Á föstudaginn kl. 18.00 verður afhjúpaður og vígður minnisvarði á Skanssvæðinu. Á minnisvarðann eru rituð nöfn allra þeirra Vestmannaeyinga sem vitað er að hafa farist í hafi sem og annarra er hafa horfið í sjóinn umhverfis Eyjar. Þá eru einnig nefndir einstaklingar sem fallið hafa í höfnina. Samtals eru hinir nafngreindu 503 og eru nöfnin rituð í andlátsröð frá árinu 1251.
„Nafnalistinn er því miður langt í frá tæmandi upptalning heldur miklu fremur bautasteinn, reistur þeim sem hafið hefur kallað til sín. Heimildir segja frá að minnsta kosti á annað þúsund einstaklingum er hafa farist í hafi við strendur Vestmannaeyja með íslenskum skipum og eru þá ótaldir allir þeir sem hafa látist af erlendum skipum. Meirihluti þeirra
er orðinn andlitslaus tala sem aldrei verður brugðið nafni yfir. Jafnvel fjöldi látinna í einstökum slysum er oft og tíðum á allmiklu reiki, einkum á fyrri öldum. Í þeim tilvikum þar sem nöfnin eru þekkt ber heimildum heldur ekki ævinlega saman og verður í sumum tilvikum ekki úr skorið,“ segir í formála minnisvarðans.
Hugmyndina og heiðurinn að minnisvarðanum á Ríkharður Zóega Stefánsson, sjómaður. En fjölmargir komu að því að láta hana verða að veruleika. Sjómannadagsráð lætur reisa minnisvarðann með dyggri aðstoð ýmissa fyrirtækja, einkum í sjávarútvegi í Eyjum, stéttarfélaga sjómanna og fleiri aðila.
Þrátt fyrir að ýmis gögn væru til staðar var mikil vinna við að afla nánari upplýsinga til að gera
nafnalistann sem réttastann. Að því verkefni komu m.a. þeir Kári Bjarnason og Torfi Haraldsson. Bjarki Sigurjónsson hannaði minnismerkið og Vélaverkstæðið Þór skar út nöfnin. Þá sá Sæþór Vídó um uppsetningu á nöfnum og texta á plötunum sex sem mynda minnisvarðann.
„Von allra er að ekki þurfi að bæta við öðrum nöfnum á listann en hafa fallið brott af vangá eða síðar hefur verið unnt að nafnsetja. Nöfn þeirra sem kemur í ljós að hefðu átt að vera með verða sett sem viðbót aftan við listann sem kominn er. Þau sem telja sig búa yfir slíkri vitneskju eru vinsamlegast beðin um að koma upplýsingum sínum til Sjómannadagsráðs.
Blessuð sé minning þeirra sem hér eru tilgreind sem og allra hinna ónafngreindu er hvíla þeim við hlið,“ segir í niðurlagi formálans.
Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.
MYND: FANNAR FREYR BJARNASON
ISFELAG.IS
VSV STYRKIR TIL NÁMS Í SKIPSTJÓRN OG VÉLSTJÓRN
Fyrir um 15 árum síðan átti VSV erfitt með að ráða réttindamenn á skipin sín og má segja að þessi staða komi reglulega upp. Árið 2022 var auglýst eftir nemum í skipstjórn og vélstjórn til að styrkja til náms. Fjöldi umsókna barst og er VSV nú að styrkja tvo skipstjórnarnema til náms. Styrktarsamningur felur í sér að Vinnslustöðin styrkir nema um allt að 300.000 kr. á önn miðað við námsframvindu og tryggir nema vinnu með skóla og á sumrin við starf tengt námi. Vinna nemans er ekki bundin við ákveðið skip og getur verið að nemi fari á milli skipa á námstímanum. Að námi loknu skuldbindur nemi sig til að starfa hjá Vinnslustöðinni í allt að þrjú ár að loknu námi. Ef styrkþegi hættir námi eða hættir hjá Vinnslustöðinni þá þarf hann
að endurgreiða styrkinn til baka samkvæmt samningi þar um.
Stefán Ingi Jónsson er einn af þeim sem er á styrktarsamning frá VSV til náms. Við tókum Stefán í smá spjall um námið.
Fullt nafn og fjölskylda? ,,Stefán Ingi Jónsson heiti ég. Fjölskylda mín er Iwona og kettirnir þrír, Tómas, Polly og Katla“.
Segðu okkur aðeins frá náminu þínu og hvað þú stefnir á eftir útskrift? Er sjómennska eitthvað sem þú stefndir alltaf á að vinna við? ,,Veit nú ekki hvað ég á að segja um það annað en það er mjög þægilegt að taka þetta i fjarnámi með vinnu. Maður tekur bara eins mikið og maður vill hverja önn . Ég held áfram á sjó
allavega. Já það eru allir á sjó í kringum mann, pabbi og afar“.
Mælir þú með þessu námi?
,, Já ég geri það“. Hvað finnst þér skemmtilegast við námið og er eitthvað sem kom þér á óvart?
,,Mér finnst skemmtilegast að læra nýja hluti og það sem kom mér helst á óvart að þetta nám er ekki jafn erfitt og ég átti von á“.
Hverju breytti það fyrir þig að fá VSV til að styrkja þig til náms?
,,Atvinnuöryggi og fjárhagsleg aðstoð. Styrkurinn borgar gistingu, ferðir í bæinn til að mæta í skóla og rúmlega það“.
Eitthvað sem þú vilt segja að lokum?
,, Já, það vantar göng til Eyja“.
SJÓMANNA DAGSHELGIN
1.-4. JÚNÍ 2023
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2023
16:00 Sjómannadagsblað
Vestmannaeyja
Skátarnir dreifa Sjómannadagsblaði
Vestmannaeyja frítt í öll hús í Eyjum. Yngri flokkar ÍBV sér um merkjasölu, takið vel á móti sölubörnunum.
18:00 Ölstofa The Brothers Brewery
Sjómannabjórinn 2023 kynntur
við átíðlega athöfn.
Opið 12.00 til 23.00.
19:00 Sjómannadagsmeistarinn í pílu
Mótið verður haldið í sal
Snóker- og Pílufélags
Vestmannaeyja (í kjallara Betel/gengið inn sunnan megin).
Þáttökugjald er 3.000kr
og vegleg verðlaun í boði ásamt farandbikar.
Mótið er opið öllum 20 ára og eldri. Hægt er að skrá sig í mótið með því að senda á snookervm@gmail.com eða
í s. 858-8868 (Tóti) / 698-0101 (Júlíus)
Í
VESTMANNAEYJUM
GEYMIÐDAGSKRÁNA
VINSÆLT
08.00 Opið ÍsfélagsSjómannagolfmót Vestmannaeyja
Skráning í síma 481-2363 og golf.is. Vegleg verðlaun í boði. Mótið stækkar og stækkar á milli ára svo við mælum með að þið skráið ykkur snemma.
18.00 Minnisvarði drukknaðra á Skansinum afhjúpaður
Á minnisvarðann eru rituð nöfn allra þeirra Vestmannaeyinga sem vitað er að hafa farist í hafi sem og annarra er hafa horfið í sjóinn umhverfis Eyjar. Eykindilskonur afhjúpa minnisvarðann. Félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika og Karlakór Vestmannaeyja syngur.
21.00 Skonrokk í Höllinni
Endurkomu Skonrokks um sjómannadagshelgina ætti enginn að láta framhjá sér fara! Söngvarar verða: Stebbi Jak, Dagur Sig, Sigga Guðna, Birgir Haralds (Biggi Gildra)
SJÓMANNA
DAGSHELGIN
Í VESTMANNAEYJUM
11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2023
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2023
Á
MIÐASALA
TIX.IS
Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband
DAGSHELGIN
1.-4. JÚNÍ 2023
MATSEÐILL FRÁ EINSA KALDA
[ FORRÉTTIR VIÐ INNKOMU ]
Stökkar anda-vorúllur
með ristuðum hvítlauk og hoisin-sósu
Laxa Ceviche “New style” á klaka
Picklaðir sveppir, chilli og heit wafu dressing
Steinbítur tempura í Eldfell bjórdeigi
Sítrusmarineraður steinbítur, stökkt nori og sweet chilli sósa
Nauta tataki á spjóti
Grillað nautafillet með kryddjurtarpestó, klettasalat, parmesan
Wagyu Brioch smáborgari
Djúsi bjór naut, Rauðlauks sulta og truffle-krem
[ AÐALRÉTTIR // STEIKARBORÐ ]
Heilgrilluð nautalund með garðablóðbergsmjöri
Salvíu og appelsínu marineruð kalkúnabringa
[ meðlæti ]
Middle east salat
- romaine-salat, tómatar, beikon, brauðteningar
Djúpsteikt smælki kartöflur
- með hvítlauksdressingu, vorlauk og ristuðum skarlottlauk
Heitt villisveppa ragú
-með blönduðum sveppum, svörtum hvítlauk og ristuðum sesamfræjum
Hunags gljáðar regnborga gulrætur
-með ristuðum salthnetum, steinselju og yuzu
[ sósur ]
Villisveppasósa
Einsa Kalda bernaise
[ EFTIRRÉTTARHLAÐBORÐ ]
Súkkulaði brownie
með pistasíum og trönuberjum
Bláberja mini muffins
með karamellu
Ávaxta makkarónur
Snickers súkkulaðimús í súkkulaðiskál
Saltkaramellu-hraunmolar
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2023
10.00 Fánar dregnir að húni
13.00 Sjómannamessa í Landakirkju. Séra Guðmundur Örn predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum Guðni Hjálmarsson stjórnar athöfninni.
14-17 Eykindilskaffi í Akóges
15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Heiðraðir aldnir sægarpar. Valmundur Valmundsson stjórnar. Karlakór Vestmannaeyja flytur nokkur lög undir stjórn MatthíasarHarðarsonar. Ræðumaður Sjómannadagsins er Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna. Verðlaunaafhending fyrir keppnir helgarinnar, Fimleikafélagið Rán, hoppukastalar og popp.
VESTMANNAEYJUM
samband á Facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í síma ráðsins: 869-4449, 697-9695 eða 898-7567
Una & Sara Halli Melló Magni ErnaHrönn Hebert Á móti sól Sjómannadagsball Vestmannaeyja 3. júní í Höllinni! Sjómannadagsball 2023 2023 Miðaverð í forsölu er 5.900 kr. og forsölu lýkur kl. 18 á tónleikadegi. Miðaverð við hurð er 6.900 kr. Tryggðu þér miða á tix.is/hollin og rokkaðu inn í sjómannadaginn! Tryggðu þér miða í tíma á TIX.IS/HOLLIN GLÆSILEGUR MATSEÐILL FRÁ EINSA KALDA ++ Föstudaginn 2. júní í Höllinni! Birgir Haralds / Stebbi Jak / Dagur Sig / Sigga Gudna
VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Ljósmynd/Tói Vídó
LILJA BJÖRG ARNGRÍMSDÓTTIR STARFSMANNASTJÓRI VSV
Lilja Björg Arngrímsdóttir er starfsmannastjóri VSV og sér m.a. um öryggismál fyrirtækisins bæði á landi og sjó. Við fengum Lilju Björg í smá spjall til að ræða það hvað það er nákvæmlega sem öryggisfulltrúi gerir.
Segðu okkur aðeins betur frá sjálfri þér.
,,Ég heiti Lilja Björg Arngrímsdóttir, gift Gísla Geir Tómassyni og eigum við þrjú börn sem öll eru í Grunnskóla Vestmannaeyja. Við Gísli erum bæði fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og eigum þar sterkar rætur. Ég er stúdent frá FÍV og svo lá leið mín í lögfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2002 og lauk ég þar masternámi árið 2007“.
Hvað gerir þú nákvæmlega hjá VSV og hvernig kom það til að þú fórst að vinna sem öryggisstjóri og hvað ertu búin að vinna við það lengi?
,, Í byrjun árs 2012 tókum við hjónin ákvörðun um að flytja aftur til Vestmannaeyja eftir að hafa búið í höfuðborginni í 10 ár. Gísli hafði þá fengið vinnu sem vélvirki hjá Vinnslustöðinni en ég var í lausu lofti þar til Binni framkvæmdastjóri í Vinnslustöðinni hafði samband við mig og bauð mér að koma til reynslu en aldrei hafði verið starfandi lögfræðingur hjá fyrirtækinu. Hlutirnir þróuðust mjög hratt og það sem átti að vera hlutastarf varð að fullu starfi og ég tók að mér fleiri verkefni innan fyrirtækisins. Í dag sit ég í framkvæmdaráði félagsins, starfa sem starfsmannastjóri og lögfræðingur og sit í stjórnum félaga sem öll tengjast Vinnslustöðinni. Eitt af þeim verkefnum sem starfsmannastjóri fer með eru öryggismál fyrirtækisins. Það á bæði við um öryggismál í landi og á sjó“.
Í hverju felst þessi vinna?
,,Hlutverk starfsmannastjóra í fyrirtækinu er mjög fjölbreytt, áhugavert og skemmtilegt. Það má segja að enginn dagur sé eins þegar kemur að því. Hjá Vinnslustöðinni og dótturfélögum starfa nú hátt í 500 starfsmenn. Hlutverk mitt er að styðja við starfsmenn og aðstoða stjórnendur við að tryggja að faglega sé staðið að ákvörðunum sem lúta að starfsmönnum bæði hjá Vinnslustöðinni og dótturfélögum.
Þá fylgist ég með því að starfsfólk fari eftir þeim skráðu og óskráðu reglum sem gilda í fyrirtækinu og að háttsemi og hegðun starfsmanna samræmist gildum fyrirtækisins. Þá fer dágóður tími hjá mér í að áætla mannaflaþörf sem er síbreytileg í þessu umhverfi. Miklar áskoranir geta falist í því að samræma þessa þætti innan fyrirtækisins en hjá fyrirtækinu starfa starfsmenn innan ólíkra
stétta. Fiskvinnslustarfsmenn og sjómenn eru þar langfjölmennust hjá okkur en þar á eftir koma iðnaðarmenn“.
Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa vinnu og hvað kom þér helst á óvart í þessu starfi? ,,Dagarnir geta verið alls konar og lang oftast eru þetta fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Það sem mér þykir skemmtilegast er að ég hef kynnst fullt af frábæru fólki. Starfsmenn koma og fara en við höfum verið lánsöm að hjá okkur starfar bæði reynslumikið fólk með áratuga starfsaldur hjá Vinnslustöðinni en einnig ungt og metnaðarfullt fólk sem hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með þróast í starfi. Verkefni mín eru eins og áður segir fjölbreytt og ég nærist á nýjum áskorunum og að læra nýja hluti og jafnvel þó
ég hafi nú starfað í yfir 10 ár hjá fyrirtækinu þá er ég enn að læra eitthvað nýtt. Hjá Vinnslustöðinni er lögð áhersla á að vera sífellt að þróa og leita leiða til að auka öryggi sjómanna. Fyrst og fremst er það sjómannanna sjálfra að huga að eigin öryggi. Hlutverk mitt í öryggismálum sjómanna er að huga að framgangi öryggismála
á sjó og að fylgja því eftir og að sjá til þess að viðhlítandi stuðningur úr landi sé ætíð fyrir hendi. Ég sit í öryggisráði á vegum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, og þar sem öryggismál eru ekki samkeppnismál þá deila þeir sem í hópnum sitja reynslu sinni með öðrum og við leggjum metnað okkar í að vera stöðugt að leita leiða til að bæta öryggi og öryggismenningu á sjó. Markmið okkar allra er að fækka slysum og óhöppum í atvinnugreininni“.
Eru konur jafnt sem karlar sem vinna þessa vinnu? ,,Í öryggisráði SFS sitja konur jafnt sem karlar. Í sumum tilvikum hafa útgerðir starfandi öryggisstjóra í fullu starfi sem eingöngu sinnir öryggismálum en hjá öðrum eru öryggismál á hendi starfsmannastjóra, útgerðarstjóra eða gæðastjóra“.
Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? ,,Góður árangur hefur náðst í að fækka slysum á sjó. Þennan góða árangur má að miklu leyti þakka betri skipum og búnaði. En þegar upp er staðið snýst þetta um betri þekkingu sjómannanna sjálfra og bættri öryggisvitun þeirra. Ég óska sjómönnum öllum til hamingju með sjómannadaginn“.
BIRGITTA ÓSK VALDIMARSDÓTTIR GÆÐASTJÓRI VINNSLUSTÖÐVARINNAR
Hver er Birgitta Ósk?
,Ég heiti Birgitta Ósk Valdimarsdóttir 31 árs og er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Maki er Sigurbergur Sveinsson og eigum við tvo syni, Svein 6 ára og Gest Dan 3 ára, síðan er væntanleg prinsessa í sumar. Ég
fór í Háskólann á Akureyri haustið 2019 og kláraði þar Bsc gráðu í sjávarútvegsfræði vorið 2022. Byrjaði 27 ára í náminu og sé svo sannarlega ekki eftir því í dag að hafa skellt mér í HA. Virkilega skemmtilegt og krefjandi nám og algjör plús að það er allt kennt í fjarnámi sem gerði mér kleift að stunda námið frá eyjum“.
Hvernig kom það til að þú fórst að vinna sem gæðastjóri hjá VSV og hvað ertu búin að vinna við það lengi?
,,Ég hef alltaf haft áhuga á þessu sviði og þegar ég var rúmlega hálfnuð með námið sótti ég um
vinnu hjá Vinnslustöðinni til að hafa samhliða náminu. Ég fékk 50% stöðugildi með síðasta árinu í skólanum og vann í ýmsum verkefnum tengdum gæðastjórnun í VSV og dótturfélögum. Þegar ég lýk svo námi vorið 2022 er mér boðin full staða og titilinn gæðastjóri Vinnslustöðvarinnar og dótturfyrirtækja. Ég hef því starfað í ár við það og líkar það mjög vel“.
Í hverju felst þessi vinna?
,,Það er erfitt er að lýsa starfinu í stuttum orðum þar sem mér finnst enginn dagur eins hjá mér og það er líklegast það sem mér líkar best við vinnuna. En ég er með yfirumsjón yfir gæðastörfum og snýr það fyrst og fremst að því að framleiða góða og örugga vöru fyrir viðskiptavini okkar, viðhalda stöðlum og taka á móti úttektaraðilum. Í öllu þessu felst mikil vinna sem unnið er markvisst að allt árið.
Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa vinnu og hvað kom þér helst á óvart í þessu starfi?
,, Það sem mér líkar best við starfið er hversu fjölbreytt það er. Það kom mér ekkert rosalega mikið á óvart þegar ég byrjaði þar sem ég hef áður unnið sem gæðastjóri og þekki vel til. En það er samt alltaf að koma upp nýjar og krefjandi áskoranir sem gaman er að takast á við. Samstarfsfólkið mitt í VSV er líka ótrúlega skemmtilegt.
Eru konur jafnt sem karlar sem við vinna við þessa vinnu?
,,Já ég veit alveg um karla sem starfa við gæðamál, en ég hugsa það séu fleiri konur sem starfa við þetta samt sem áður“.
Eitthvað að lokum?
,,Hvet alla til að skella sér í nám sem eru að hugsa um það því það er aldrei of seint að mennta sig“.
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
PIZZUTILBOÐ
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.590 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 6.290 kr. ]
9” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.290 kr. ]
12” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.790 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum [ 3.390 kr. ]
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.090 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.790 kr. ] OPIÐ Sun-fim 12-21 Fös og lau 12-22
TVENNUTILBOÐ Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir [ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]
Sendum
alla daga
sent
sótt
Sjáumst á
481-1567 ( heim
frá kl. 17.00
Þóra Björg Stefánsdóttir útskrifaðist síðastaliðinn laugardag sem stúdent en hún hlaut viðurkenningu fyrir frábæran heildarárangur á útskriftarpróf eða 9,2 í meðaleinkunn. Hún hlaut einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði, dönsku og raungreinum.
Birkir Freyr Ólafsson hlaut viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi.
Fullt nafn: Þóra Björg Stefánsdóttir
Foreldrar: Þjóðhildur og Stefán
Systkini: Þórður Örn, Kristín Auður, Egill og Brynjar Þór
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?
Nei, ekki alveg
Ætlar þú strax í framhaldsnám?
Já ég stefni á það
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám? Ég stefni bara á HR eða HÍ í staðnám
Hvernig er þín upplifun af FÍV? Mjög góð, mikil samheldni og skemmtilegt heilt yfir
Uppáhalds kennari í FÍV? Óli Týr
Hvað var skemmtilegast við námsfagið þitt? Stærðfræðin
Eitthvað að lokum?
Takk fyrir samfylgdina síðustu þrjú ár kennarar og nemendur í FÍV
Fullt nafn: Birkir Freyr Ólafsson.
Foreldrar: Lovísa Inga Ágústsdóttir og Ólafur Jakobsson.
Systkini: Ég á eina systur og heitir hún Elsa Rún Ólafsdóttir.
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?
Ætli maður sé ekki nokkuð búinn að leggja línurnar með þessu námi, eitthvað vélatengt.
Ætlar þú strax í framhaldsnám ?
Já ég ætla að halda áfram í vélstjórninni og taka C stigið og aldrei að vita nema að maður klári bara líka D stigið. Einnig stefni ég á að klára sveinspróf í vélvirkjun á næsta ári.
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám ? Stefni á C stigið í FÍV þar sem skólinn ætlar að byrja á að kenna það í staðarnámi næsta haust.
Hvernig er þín upplifun af FÍV?
Mér er búið að líða vel í FÍV frábært að geta lært það sem manni langar í sinni heimabyggð. Svo er búinn að vera góður mórall í vélstjórnarhópnum og hjá kennurunum.
Uppáhalds kennari í FÍV?
Erfit er að gera upp á milli góða kennara en þeir þrír sem standa uppúr eru vélstjórnarkennaranir Gísli, Matthías og Þröstur.
Hvað var skemmtilegast við námsfagið þitt?
Erfitt að segja, en þegar áhuginn er mikill á efninu þá er eiginlega allt skemmtilegt. En ef ég þyrfti að velja eitthvað eitt þá væri það kælitæknin.
STÚDENTAR
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL 02:00
FÖS OG LAU TIL 04:00
KOMDU OG KÍKTU VIÐ!
TILHAMINGJUMEÐDAGINN
KÆRUSJÓMENNOGFJÖLSKYLDUR!
Fullt nafn: Helena Jónsdóttir
Foreldrar: Jón Atli Gunnarsson og Sigurhanna Friðþórsdóttir
Systkini: Selma, Hákon og Díana
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Nei ekki enn
Ætlar þú strax í framhaldsnám? Nei ég ætla að taka mér árs pásu frá skóla
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám? Þegar ég fer í skóla þá stefni ég á að fara í staðnám
Hvernig er þín upplifun af FÍV? FÍV er góður skóli sem gefur þér möguleika á að stunda nám en á sama tíma getur þú ræktað vináttuna úr grunnskóla
Uppáhalds kennari í FÍV? Óli Týr og Gunnar Friðfinns
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst? Kynjafræði hjá Jónu Heiðu var mjög áhugavert en tölvustærðfræði hjá Gunnari var skemmtilegast
Eitthvað að lokum? Takk fyrir mig FÍV
Fullt nafn: María Fönn Frostadóttir
Foreldrar: Frosti og Ingibjörg
Systkini: Tinna, Bjartey og Sandra
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?
Ég hef ekki ákveðið hvað ég ætla að gera strax, enda liggur ekkert á þar sem lífið er rétt að byrja. Ég mun taka þau tækifæri sem koma en það verður spennandi að sjá hver mín leið verður í lífinu.
Ætlar þú strax í framhaldsnám?
Ég stefni á að taka árs frí til þess að vinna inn pening til þess að fara í nám erlendis. Þetta hlé frá náminu mun gefa mér tækifæri til þess að kanna fleiri staði og þjálfa nýja hæfileika!
Hvernig er þín upplifun af FÍV? Frábærir kennarar og almennt skemmtileg stemmning. Þetta er lítið samfélag og það þekkjast flestir sem er skemmtilegt. Í náminu var mikil áhersla á að læra um umhverfismál og nútíman sem er nauðsynlegt í nútímasamfélagi. Nemendur voru hvattir til að hugsa sjálfstætt og nota gagnrýna hugsun.
Uppáhalds kennari í FÍV? Leyndó
Hvað var skemmtilegast við námið?
Það skemmtilegasta við námið var þegar við fengum að vinna sjálfstætt í verkefnum og fengum að sýna skapandi vinnubrögð. Myndbandaverkefni voru sérstaklega í uppáhaldi hjá mér. Verkefnin voru fjölbreytt og ég var á náttúrufræðibraut. Við unnum alls konar tilraunir og rannsóknir og ég hvet tilvonandi nýnema til þess að velja náttúrufræðibraut!
Eitthvað að lokum? Ég vil bara nota þetta sem tækifæri til að minna fólk á að stíga út fyrir þægindaramman. Einnig vil ég hvetja ungmenni til þess að vera þau sjálf því lífið er of stutt til þess að fá ekki að njóta þess til fulls.
s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com PALLASMÍÐI OG VIÐGERÐIR PARTÝ Á PALLINUM? Almennt viðhald & smíði! Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI Opnunartímar: Mánudagur - lokað Þriðjudagur - 13.00 til 17.30 Miðvikudagur - 13.00 til 17.30
Sunnudagur
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Passamyndir Fasteignaljósmyndun Hægt er að kaupa miða og velja sæti á eyjabio.is LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ
Fimmtudagur - 13.00 til 17.30 Föstudagur - 13.00 til 17.30 Laugardagur - 12.00 til 15.00
- lokað
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ
20.00
KL. 15.00
KL.
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ
15.00
KL. 20.00
KL.
OG VÉLTÆKNIGREINAR, ÞAR SEM HUGUR OG HÖND FARA SAMAN
Framhaldsskólinn hefur að bjóða upp á spennandi námsleiðir á sviði málm og véltæknigreina sem er yfirgripsmiklar og krefjandi. Ein af þeim leiðum er vélstjórnabraut sem hefur á undanförnum árum verið það vinsæl að færri komast að en vilja.
Með vélstjórnanáminu kynnist þú einnig því breiða sviði sem málmtæknin bíður upp á, svo sem málmsmíði, málmsuðu og rennismíði. Einnig er rafmagnsfræði stór hluti af vélstjórnarnáminu sem er góður grunnur fyrir áframhaldandi nám að loknu vélstjórnarnámi.
Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í fjögur námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til
starfa sem vélstjóri. Til sjós er starfssvið vélstjóra að annast rekstur og viðhald vél- og rafbúnaðar og tryggja, í samvinnu við aðra yfirmenn um borð, að rekstur skipsins fullnægi gildandi lögum og reglum, s.s. um öryggi skipa og mengunarvarnir. Vélaog tækjabúnaður skipa er mjög fjölbreyttur þar sem skip eru hönnuð til ólíkra hlutverka. Störf vélstjóra eru því víðtæk og spanna starfssvið margra starfsstétta í landi. Í landi stunda vélstjórar margvísleg störf og nýtist menntun þeirra vel á mörgum sviðum, því hafa þeir á undanförnum áratugum átt greiðan aðgang að störfum í landi, bæði við rekstur og viðhald vélbúnaðar, auk ýmissa stjórnunarstarfa. Fyrirtæki hér á landi jafnt sem erlendis eru öll að kalla eftir tæknimenntuðu fólki til starfa, og í boði eru góð
laun og örugg vinna hvort sem er í frysti-, vatnsveitu-, vökvaog rafveitukerfi. Nemandi sem lýkur fullu vélstjórnarnámi fær réttindi sem vélfræðingur og útskrifast jafnframt sem stúdent. Vélfræðingar geta orðið leiðtogar hjá öllum fyrirtækjum og stofnunum sem eru leiðandi fyrirtæki í iðnaði hér á landi og erlendis. Einnig er nemandi, sem klárar vélstjórnarnámið, kominn með annan fótinn inn í háskólann, þá í tækifræði eða verkfræði.
Þeir sem ljúka Vélstjórnarbraut A öðlast réttindi til að gegna stöðu vélavarða og vélstjóra á skipum með vélarafli allt að 750 kW. Þeir sem ljúka Vélstjórnarbraut B fá réttindi til áframhaldandi vélstjórnarnáms og réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafli
MÁLM
allt að 1500 kW og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW og minna. Sá sem klárar vélstjórnarréttindi B getur tekið sveinspróf í vélvirkjun að lokinni verkstæðisþjálfun. Þeir sem ljúka Vélstjórnarbraut C fá réttindi til áframhaldandi vélstjórnarnáms og réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafli allt að 3000 kW og undirvélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl.
Allt vélstjórnarnámið er alþjóðlegt og því getur menntaður vélstjóri unnið nánast hvar sem er í heiminum.
Ef þú hefur áhuga á einhvers konar iðn en veist ekki hvað, skráðu þig á vélstjórnabraut FÍV.
Fylgstu með eyjaflotanum á rauntíma Við hvetjum sjómenn til þess að senda okkur myndir & fréttir af
TÍGULL tigull@tigull.is
sjónum
Byrjar hér! Endar hér! Getur þú fundið leiðina? ÞRAUTIR
Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn! /midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is
VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Frár VE
Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni dagsins.
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!
BÁRUSTIG 1 | S. 481 3939
Bílaverkstæði HARÐAR MATTA & Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar Heimadecor VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN! Ljósmynd/Tói Vídó
MEÐ DAGINN SJÓMENN
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.
TAKK FYRIR OKKUR!
Við fyrrverandi eigendur Ós ehf. og Leo Seafood ehf. viljum þakka starfsfólki okkar í gegnum tíðina fyrir samstarfið. Það er ómetanlegt að hafa gott starfsfólk.
Einnig viljum við þakka öllum þeim fyrirtækjum sem við höfum átt viðskipti við undanfarna áratugi.
Sigurjón Óskarsson, Sigurlaug Alfreðsdóttir
Viðar Sigurjónsson, Eygló Elíasdóttir
Gylfi Sigurjónsson, Erna Sævaldsdóttir
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, Daði Pálsson
TIL HAMINGJU