Skip to main content

Tígull 18.tbl 02árg.

Page 1

18. tbl. 02. árg. 20. - 27. maí 2020


VIÐBRÖGÐIN BETRI HELDUR EN HÚN BJÓST VIÐ

SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Sara Renee Griffin gaf út sitt fyrsta lag í síðustu viku ásamt Fannari Frey Magnússyni. Lagið heitir Misst af þér og var það Fannar sem samdi lag og texta. Sara hefur fyrir löngu sannað sig sem framúrskarandi söngkona enda röddin hennar undurfögur. Við heyrðum í Söru í vikunni sem

TÍGULL

var afar ánægð með lagið og viðtökurnar. „Tilfiningin að gefa út nýtt lag er bara geggjuð, þar sem það hefur verið markmið mitt og draumur síðan ég veit ekki hvenær, að gefa út mitt eigið lag,“ sagði Sara. Aðspurð um viðbrögðin sagði Sara að þær væru afar góðar, „viðbrögðin við laginu eru búnar að vera miklu meiri og betri en ég bjóst við. Ég er ekkert eðlilega þakklát fyrir alla sem gáfu sér tíma í að hlusta á lagið og hrósa því,“ sagði Sara sem segist

vera rétt að byrja, „það sem er næst á dagskrá hjá mér er bara að fara semja og gefa út fleiri lög sem allra fyrst, ég er vonandi bara rétt að byrja og spennandi tímar framundan,“ sagði Sara að endingu.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina á Sara Sjöfn Grettisdóttir en módelið er Emil Aron Bergsson.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


ER KOMINN TÍMI TIL AÐ MÁLA?

STEINVARI

Útimálning fyrir íslenskt veðurfar Steinvari er öflug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

BRÚNAVÍK KJÓLSVÍK

DYRFJÖLL FAGRIHÓLL LINDARBAKKI STAPAVÍK

GEITAVÍK HVÍTSERKUR STÓRURÐ ÁLFABORG


Laus sumarstörf fyrir námsmenn á háskólastigi Vestmannaeyjabær auglýsir eftir námsmönnum í grunn- og meistaranámi á háskólastigi til sumarvinnu við nokkur tiltekin verkefni í bæjarfélaginu. Um er að ræða ný og tímabundin verkefni sem taka mið af vinnu frá byrjun júní til ágústloka 2020 og byggja á samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og sveitarfélaga um störf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Námsmenn þurfa að vera á milli anna, þ.e. eru að koma úr námi og eru skráðir í nám í haust. Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar. Alls eru fjögur störf sem óskað er eftir að námsmennirnir sinni, þ.e: 1. Nútímavæðing stjórnsýslu bæjarins þar sem óskað er eftir námsmanni til að ráðast í átak í ferlum við birtingu auglýsinga og reglna í Stjórnartíðindum og á vef bæjarins. Jafnramt að yfirfara reglur Vestmannaeyjabæjar um starfsmannamál og uppfæra eftir þörfum. Einnig að leggja grunn að hönnun og miðlun upplýsinga til handa starfsmönnum bæjarins í gegnum innri upplýsingakerfi. Markmiðið að auka upplýsingaflæði og auðvelda dagleg störf og stuðning við fjölbreytta starfsemi bæjarins. 2. Skipulag og stækkun hafnarsvæðis þar sem óskað er eftir námsmanni til að huga að skipulagi hafnarsvæðisins og stækkunarmöguleikum, þ.m.t. söfnun upplýsinga um stórskipahöfn. Jafnframt felst í verkefninu greining á stöðu Vestmannaeyjahafnar í samanburði við aðrar hafnir á landinu. Verkefnið er unnið í samráði við hafnarstjóra Vestmannaeyjabæjar og felst í upplýsingaöflun, mati á umfangi og gerð kostnaðaráætlunar. 3. Skráning örnefna í samvinnu við Landmælingar Íslands og skráning safnkosts Náttúrugripasafns. Hópur áhugamanna hefur undanfarin ár unnið að söfnun örnefna í Vestmannaeyjum. Óskað er eftir nemanda til að færa helstu örnefni inn í kortasjá Landmælinga Íslands og QPR merkja þau. Skráning fer fram í gagnagrunni Landmælinga og verður einnig aðgengileg á vefsvæði Vestmannaeyjabæjar. Jafnframt heldur nemandinn utan um vinnu 5-7 manna áhugahóps sem hittist reglulega til að

fara yfir verkefnið. Þá er viðkomandi ætlað að skrá safnkost Náttúrugripasafns Vestmannaeyja með nýjum hætti og miðla í gegnum upplýsingakerfi safnsins, snertiskjái. 4. Grænar lausnir í fráveitu og hönnun þeirra. Greina og móta tillögur að grænum ofanvatnslausnum í fráveitukerfi Vestmannaeyjabæjar með því markmiði að minnka dælingu á regnvatni og spara þar með orku og kostnað. Einnig að hanna tvöfalt kerfi í götum þar sem einfalt kerfi er til staðar. Fráveitukerfi Vestmannaeyjabæjar er uppbyggt af tvöföldu kerfi að litlum hluta og finna þarf hagkvæmar lausnir á því sem ekki er tvískipt. Tilvalið fyrir verk- eða tæknifræðinema. Viðkomandi þarf að geta unnið við teikniforrit, t.d. MIcrostation. Óskað er eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingum og eru jafnt konur sem karlar hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eydís Ósk Sigurðardóttir, mannauðsstjóri, í síma 488-2000 eða á netfangið: eydis@vestmannaeyjar.is Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum og merkja „sumarstörf fyrir námsmenn á háskólastigi“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið: postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.


ERTU NÁTTHRAFN EÐA MORGUNHANI? – ER RAUNVERULEGUR MUNUR Á FÓLKI EÐA SNÝST ÞETTA ALLT UM VENJUR?

Líkamsklukka flestra er örlítið lengri en 24 klukkustundir en þó er talsverður einstaklingsmunur hér á, sumir eru með styttri dægursveiflu og aðrir lengri. Þetta hefur áhrif á aðlögunarhæfni þegar kemur að breytilegum vinnu- og svefntíma. Rannsóknir sýna að einstaklingar með stutta dægursveiflu eru yfirleitt kvöldsvæfir og árrisulir (svokallaðar A-týpur eða morgunhanar) einstaklingar með lengri dægursveiflu eiga auðveldara með að vaka lengi á kvöldin og sofa fram eftir á morgnana (B-týpur eða nátthrafnar). Jafnvel þó að lengd dægursveiflunnar sé arfbundin eru kenningar um að hún breytist einnig töluvert með aldri. Þannig gæti hún lengst á unglingsárum en styst þegar aldurinn færist yfir. Þessar hugmyndir gætu skýrt aukna svefnþörf unglinga og þá staðreynd að gamalt fólk fer gjarnan fyrr að sofa og vaknar að sama skapi oft eldsnemma á morgnana.

„A-týpur“ eru þeir sem vakna snemma á morgnana, eru endurnærðir og reiðubúnir að takast á við verkefni dagsins. Þessir einstaklingar eru virkir og afkastamiklir í byrjun dags og fara snemma að sofa á kvöldin.

vinnudagurinn er oft skipulagður frá 8–4 eða 9–5 sem hentar A-týpunni vel. B-týpum myndi líklega henta betur að vinna frá 11–19 en slíkt reynist erfiðara út frá þeim ramma sem samfélagið hefur skapað okkur.

„B-týpur“ vaka hins vegar lengi á kvöldin og eiga gjarnan erfitt með að vakna snemma á morgnana. B-týpan er ekki mjög virk á morgnana en þegar líða tekur á kvöldið eykst virknin og hugmyndir og sköpunargáfa losna úr læðingi. Það er þó ekki svo einfalt að fólk skiptist alfarið í A- eða B-týpur, meirihluti fólks er einhvers staðar mitt á milli og eins og áður sagði breytist þetta gjarnan með aldrinum. Það má því segja að vissulega sé til staðar raunverulegur munur á fólki er kemur að þessu en venjur okkar hafa líka mikil áhrif og flest höfum við góða aðlögunarhæfni og getum vanið okkur á að vakna fyrr eða sofna seinna ef aðstæður kalla á það.

Oft er B-manneskjan litin hornauga og hún jafnvel talin löt. Þetta er ósanngjarnt því að sjálfsögðu er hægt að afkasta alveg jafn miklu þótt vinnudagurinn hefjist seinna. Staðreyndin er hins vegar sú að B-manneskjur verða oft að þröngva sér inn í þennan hefðbundna ramma og því hafa rannsóknir sýnt að þessir einstaklingar fá gjarnan minni svefn (fara seinna að sofa en þurfa þó að vakna snemma til vinnu) enda eru svefnvandamál nokkuð algeng í þessum hópi. Þessir einstaklingar sækja líka frekar í vaktavinnu eða vinnu sem býður upp á sveigjanlegri vinnutíma.

Segja má að nútímasamfélag sé nokkuð sniðið að A-týpunni,

Erla Björnsdóttir Sálfræðingur www.betrisvefn.is


FULL BÚÐ AF GLÆSILEGUM VÖRUM /smarteyjan

#smarteyjan

smarteyjan

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


SJÓVE STÓÐ FYRIR FLOTTU MÓTI UM HELGINA, 28 KEPPENDUR OG RÚMLEGA 10 TONN VEIDD


Viðarvörn

fyrir íslenskar aðstæður Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


KOM EINS OG ÞRUMA ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI

SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Það hafa margir fengið að hlusta á Unu Þorvaldsdóttur syngja enda gerir hún það lista vel. En fyrir stuttu rifjaði hún upp annað áhugamál sem hefur orðið til þess að hún er farin að teikna myndir fyrir fólk. Una er 23 ára gömul og býr með Devon Má Griffin og eiga þau soninn Adrian Henrik. Una er að vinna á Víkinni, 5 ára deildinni í Hamarskólanum en er einnig að syngja og hefur tekið að sér allskonar uppákomur í þeim bransa. Vinnan ýtti undir áhugann Fyrir stuttu byrjaði Una að teikna aftur, en sagði að þetta hafi alltaf blundað í henni þegar hún var yngri en svo komu unglingsárin og hún var ekki mikið að taka upp blýantinn þá. „Þetta kom svolítið eins og þruma úr

heiðskíru lofti en varð til þess að ég er að taka að mér að teikna fyrir fólk. Ég hef alltaf frá því ég man eftir mér verið mikið að teikna, föndra, lita, sérstaklega í grunnskóla. Ég gleymi því aldrei þegar ég var eina í öllum árgangum sem fékk 10 í myndmennt og fékk einnig flotta viðurkenningu frá Finni teiknikennara. En þegar ég byrjaði í menntaskóla þá missti ég svolítið áhugann, sennilega vegna gelgju, en það má segja að vinnan mín hafi svolítið ýtt undir áhugann aftur því ég hef stundum verið að teikna með börnunum og á endanum fór ég í Eymundsson og keypti mér teiknibók og blýanta til að halda áfram. Prófaði þá fyrst að teikna andlit og kom sjálfri mér frekar á óvart,“ sagði Una. Augun heilla Unu finnst skemmtilegast að teikna fólk og þá sérstaklega augun. „Ég myndi segja að ég fái mikinn innblástur frá stelpu sem heitir Helena Reynisdóttir. Hún hefur

einmitt mikið verið að teikna fólk og er mjög dugleg að pósta myndum af listaverkum sínum á netið,“ sagði Una. Söngurinn er númer eitt Aðspurð hvort þetta sé hillan hennar sagði Una að hana langaði að halda áfram að teikna og syngja. „Já þetta er klárlega eitthvað sem mig langar að halda áfram að gera í framtíðinni og hver veit nema að ég hendi mér í eitthvað listnám. En að vera söngkona hefur alltaf verið númer eitt hjá mér þar sem ég byrjaði að syngja áður en ég gat byrjað að tala,“ sagði Una að endingu.


GRILLAÐ FISKISPJÓT & GRÍSKT SALAT - Uppskrift vikunnar -

Fiskispjót

Hráefni: 240g skötuselur, skorinn í átta 30g bita 2 stk. risahörpudiskur 4 stk. humarhalar 4 greinar rósmarín 1 stk. sítróna maldon salt pipar ólífuolía Aðferð: Grilluð fiskispjót er frábær matur á fallegum sumardegi! Hægt er að nota þann fisk sem manni líst best á en athuga þarf að það sé fiskur sem hentar á grill, t.d. skötuselur, steinbítur, hörpudiskur, humar, risarækjur og túnfiskur.

Takið rósmarínnálarnar af greinunum, skiljið toppana eftir og saxið nálarnar fínt. Raðið fiski á rósmaríngreinarnar, leggið pinnana á disk og kryddið með ólífuolíu, salti og pipar. Hitið grillið vel, það þarf að vera mjög heitt. Hafið álbakka við höndina og setjið smá ólífuolíu, salt og pipar í botninn á bakkanum ásamt söxuðu rósmaríni. Setjið bakkann á efri grindina á grillinu. Grillið spjótin í um 2 mín. á hvorri hlið, setjið í álbakkann og kreistið sítrónusafa yfir. Snúið spjótunum, lokið grillinu og eldið í 3 mín.

Grískt salat

Grískt salat er ein af bestu salatsamsetningum sem til eru og getur staðið jafnt eitt og sér eða

sem meðlæti með margvíslegum mat. Hráfefni: Stökkt salat, helst Romaine 1 gúrka, fræhreinsuð og söxuð 2 tómatar, niðursneiddir 1 paprika, söxuð 1 rauðlaukur, saxaður Fetaostur í bitum Kalamati ólífur 1 dl ólívuolía 1/3 dl vínedik 2 msk ferskt oregano eða tæp msk af þurrkuðu. Skerið grænmetið niður og setjið í stóra skál. Hristið olíu og edik saman ásamt 2 msk af fersku oregano. Hellið yfir salatið og blandið saman.


Starfsemi á árinu 2019 Meginniðurstöður ársreiknings. Efnahagsreikningur 31.desember: Eignir: Verðbréf með breytilegum tekjum Verðbréf með föstum tekjum Bankainnstæður Fasteign Kröfur Handbært fé Skuldir: Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok Þar af samtryggingardeild Þar af séreignadeild

Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris: Iðgjöld Lífeyrir Fjárfestingartekjur Fjárfestingargjöld Rekstrarkostnaður Hækkun á hreinni eign á árinu Hrein eign frá fyrra ári Hrein eign til greiðslu lífeyris

Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings:

Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum (%): Í hlutfalli af heildarskuldbindingum (%):

Kennitölur: Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun Hrein raunávöxtun, meðaltal sl. 5 ára Hrein raunávöxtun, meðaltal sl. 10 ára Eignir í ísl. kr. (%) Eignir í erl. mynt (%) Meðalfjöldi greiðandi sjóðfélaga Meðalfjöldi lífeyrisþega Virkir sjóðfélagar á árinu

í milljónum króna

2019

2018

36.522 24.089 0 30 159 320 -8 61.112

29.064 23.710 0 32

60.389 723

52.802 639

2019

2018

1.777 -1.893 7.923 -20 -116 7.671 53.441 61.112

1.641 -1.710 4.221 23 -104

165 478

-8 53.441

4.071 49.370 53.441

Afkoma

Árið 2019 var nafnávöxtun sjóðsins 14,6% m.v. 8,4.% árið 2018. Hrein raunávöxtun sjóðsins var jákvæð um 11,6% samanborið við 4,9% árið 2018.

Lífeyrisgreiðslur

Skipting 2019: Ellilífeyrir 63,8% Örorkulífeyrir 28,2% Makalífeyrir 4,9% Barnalífeyrir 0,4% Séreignalífeyrir 2,6%

Allur lífeyrir sjóðsins er verðtryggður og breytist mánaðarlega skv. neysluvísitölu.

Séreignadeild

Hrein raunávöxtun séreignadeildar í heild varð 9,56% á árinu. Nafnávöxtun Raunávöxtun

Safn I 9,96% 7,10%

Stjórn sjóðsins er þannig skipuð frá 31.12.2019

0,7% -1,7%

31.12.2018

-4.0% -4,4%

2019

2018

14,59% 11,61% 5,83% 4,91% 59% 41% 1.642 1.942 2.235

8,40% 4,98% 5,01% 4,06% 63% 37% 1.643 1.815 2.224

ársfundi í maí 2019 til ársfundar 2020:

Arnar Hjaltalín, formaður Þorvarður Gunnarsson, varaformaður Andrea Atladóttir Guðný Óskarsdóttir Þjóðhildur Þórðardóttir Örn Friðriksson Framkvæmdastjóri: Haukur Jónsson

Skólavegi 2, 900 Vestmannaeyjum Sími 481-1008 og 481-2098 Vefsíða: http://www.lsv.is Fylgstu með okkur á facebook

:

Safn II 14,13% 11,16%


Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV

l

F

L

S

l l

l

Brottf.

Lent

7:15

7:40

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-6766 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.

15:45 16:10

l

Frá VEY

/crispus

l

17:30 17:55

l

16:30 16:55 18:15 18:40

8:00

l l l

8:25

Flugáætlun gildir til 31. maí

Tannlæknar 22. - 24. maí Rakel Ósk Þrastardóttir

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

Bókasafnið er opið v irka daga frá kl 10-17 Bókasafn Vestmannaeyja opnaði aftur mánudaginn 4. maí eftir afléttingu takmarkana á samkomum vegna Covid-19. Allir snertifletir eru þrifnir reglulega og við sótthreinsum allar bókakápur áður en þær fara upp í hillu og aftur þegar þær fara í útlán. Við viljum biðja gesti okkar um að spritta hendur eða setja á sig hanska við komu inn á safnið og passa að halda sig í 2 metra fjarlægð við aðra. Spritt og hanskar eru að sjálfsögðu í boði við inngang Bókasafnsins. Enn er hægt að hringja til að panta bækur, framlengja lánstíma eða leita upplýsinga í síma 488-2040 á opnunartíma eða með því að senda okkur skilaboð á Facebooksíðu Bókasafns Vestmannaeyja. Einnig má biðja starfsmann um að finna til bækur við komu á safnið. Við hlökkum til að sjá ykkur! Starfsfólk Safnahúss


SUNDLAUGIN OPNAÐI Í VIKUNNI

Margir eru orðnir óþreyjufullir að komast í sund en sundlaugin í Vestmannaeyjum hefur verið lokuð síðan 19. mars vegna COVID-19 faraldursins. Tíminn hefur verð vel nýttur til að dytta að og klára þau verk sem voru í gangi þegar COVID-19 skall á og eru öll verkefni langt komin og sum tilbúin til að mynda karla- og kvennaklefarnir eins og sjá má á myndum hér fyrir ofan. Klefi fyrir fatlaða sem þurfa aðstoð verður klár um mánaðarmótin og einnig verður byrjað á kalda pottinum um mánaðarmótin næstu. Þeir sem ætla að stunda laugina á næstunni er þó bent á að fylgja öllum reglum varðandi smitvarnir út í æsar og hlýða Víði í hvívetna. Þá munu helmingi færri fá aðgang að lauginni en starfsleyfi leyfir á meðan enn er smithætta alls geta 82 gestir verið í einu í lauginni. Laugin opnaði kl 06:15 á þriðjudagsmorgun svo er opnunartíminn hér til hægri. Eins og segir í leiðbeiningum sóttvarnalæknis er áhersla lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og minnt er á að við erum öll almannavarnir.

SUMAROPNUN 2020

SUNDLAUG VESTMANNAEYJA Virkir dagar Lau. og sun.

1. júní- 31. ágú. 06.15 - 21.00 1. júní- 31. ágú. 09.00 - 18.00

Uppstigningardagur Hvítasunnudagur Annar í hvítasunnu Miðvikudagur

21. maí 31. maí 1. júní 17. júní

09:00 - 17:00 09:00 - 17:00 09:00 - 17:00 09:00 - 18:00

Nánari upplýsingar í afgreiðslu eða í síma 488-2400.


VIÐ ÞURFUM Á ÞÉR AÐ HALDA! >> Hefur þú tök á að aðstoða okkur? >> Þú getur hjálpað okkur að tryggja útgáfu blaðsins í hverri viku >> Þú velur þá upphæð sem þú hefur tök á að styrkja okkur með mánaðarlegu framlagi eða í eitt skipti.

>> Nánari upplýsingar inn á www.tigull.is >> Einnig er hægt að leggja beint inn á styrktarreikninginn, upplýsingar hér: Kennitala: 650219-0900 Reikningsnúmer: 185-15-20007


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 18.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu