Skip to main content

Tígull 17.tbl 04 árg.

Page 1

17. tbl. 04. árg. 11. - 17. maí 2022

Aðgengi - aðstaða - atvinnutækifæri

Framtíðarsýn í öldrunarmálum

Áætlunarflug fer að heyra sögunni til

Helga Jóhanna Harðardóttir 2. sæti Eyjalistans í Vestmannaeyjum.

Íris Róbertsdóttir 3. sæti bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey og bæjarstýra Vestmannaeyja.

Sæunn Magnúsdóttir 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.


ÞRAUTIR

TASKA BLÓM SPÝTA LJÓS PRENTARI VIFTA PENNI DÓS BÆKLINGUR MATSEÐILL

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


i l æ m f a s i . r o c 2 ade Á RA

m i e h . www

% 20 AF ÖLLU! Afmælispartý frá 11. maí - 14. maí Léttar veitingar í boði.

/heimadecor


ÁÆTLUNARFLUG FER AÐ HEYRA SÖGUNNI TIL

Því miður mun áætlunarflug leggjast af nú í enda mánaðar en komið hefur skýrt svar frá Innviðaráðuneyti til núverandi flugrekanda, Flugfélagsins Ernir, um að ekki séu forsendur til að halda úti áframhaldandi lágmarks flugsamgöngum og er því síðasti séns að nýta sér þessa þjónustu mánudaginn 30. maí 2022. Flugið er í sögulegu lágmarki Hin sögulega hnignun á sér langan aðdraganda en náði hámarki í september 2020 þegar áætlunarflug lagðist hér af með öllu eftir erfitt ár í rekstri sökum faraldurs kórónuveirunnar. Þáverandi flugrekandi hafði þá séð um áætlunarflug frá árinu 2010 af miklum sóma fyrir okkur Vestmannaeyinga. Það var ekki fyrr en í desember sama ár sem nýr flugrekandi, Icelandair, tók til starfa með tvær ferðir í viku á sérstökum styrk vegna þess faraldurs sem gekk yfir heiminn. Icelandair hafði stuttu áður gefið út að þeir hygðust gera tilraun á áætlunarflugi yfir sumartímann eða frá maí og út september. Það reyndist ganga illa þar sem faraldurinn var enn í miklum hæðum og ferðamenn ekki að koma í miklum mæli. Sumaráætlun félagsins var stytt og stóð ekki yfir nema í um þrjá mánuði. Áætlunarflug lagðist því aftur af í september 2021 og við það stóð þar til Innviðaráðuneytið veitti aftur sérstakan styrk vegna kórónuveirufaraldurs til að hefja aftur lágmarksflugsamgöngur milli lands og Eyja sem nú heyra brátt sögunni til.

Ríkisstyrkt flug 2006-2010 og flug á markaðslegum forsendum 2010-2020 Á árum áður var ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja, eða á þeim tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn var við völd og gekk það vel. Þegar Landsflug sem þá var og hét hætti áætlunarflugi til Eyja tók ekki nema 2-4 vikur að fá það í gegn að koma áætlunarflugi aftur á koppinn. Við tók Flugfélagið Ernir sem með miklum sóma sá um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Svo gott var það að við minnstu tilefni voru farnar upp undir 4-5 ferðir á dag og gekk vel. Farþegatölur voru jákvæðar og aukning milli ára góð. Það var ekki fyrr en 2019 sem verulega fór að halla á flugið enda flugmiðinn orðinn dýr sökum gjalda sem leggjast á flugið og var bæjaryfirvöldum gerð grein fyrir þessari neikvæðu þróun í flugmálum. Í kjölfarið brast á með kórónuveirufaraldri snemma árs 2020. Þrátt fyrir hremmingarnar tókst að halda úti flugi alla daga fram í september 2020 þegar áætunarflugi var hætt. Það má því segja að áætlunarflug hafi verið í lausu lofti í á annað ár og því nauðsynlegt að leita allra mögulegra leiða til að ná því aftur á flug. Hannes Kr. Sigurðsson, 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins Sæunn Magnúsdóttir, 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninganna 14. maí 2022 Það er opið hjá sýslumanni vegna kosninganna til klukkan 17:00 alla daga síðustu vikuna fyrir kosningar. Opið verður á kjördag frá klukkan 11:00-17:00.

SÝSLUMAÐURINN Í VESTMANNAEYJUM

Þeir sem ekki geta sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar geta sótt um að greiða atkvæði í heimahúsi. Eyðublað má finna á kosning.is en því þarf að skila til sýslumanns fyrir klukkan 10:00 fimmtudaginn 12. maí n.k.


Áhættustjóri Lífeyrissjóður Vestmannaeyja óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf áhættustjóra á skrifstofu sjóðsins í Vestmannaeyjum. Í starfinu felast einnig önnur verkefni sem stjórn og framkvæmdastjóri fela honum. Áhættustjóri er lykilstarfsmaður hjá sjóðnum.

Helstu verkefni og ábyrgð: >> >> >> >> >> >> >> >> >>

Ábyrgð á starfssviði áhættustýringar, skipulagi og innra eftirliti Greining og mæling áhættu, ásamt skýrslugjöf Umsjón og mótun áhættustefnu og áhættustýringarstefnu Eftirlit með markaðsáhættu, fjárfestingarákvörðunum og áreiðanleika gagna Heildaryfirsýn yfir verkferla, áhættumöt, skýrslur innri endurskoðenda, innri úttektir o.fl. Eftirlit með fylgni fjárfestinga við lög og fjárfestingastefnu sjóðsins. Samskipti, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til eftirlitsaðila og stjórnenda Eftirlit með peningaþvætti, öryggisstefnu, verkferlum og stefnum sjóðsins Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri kann að fela honum.

Menntunar- og hæfniskröfur: >> >> >> >> >> >>

Háskólamenntun á sviði fjármála, verk- eða tölfræði. Reynsla af fjármálamarkaði og áhættustýringu er kostur Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði í starfi Hæfni til að greina tölulegar upplýsingar og setja þær fram með skipulögðum hætti Góð færni í íslensku og ensku Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót

Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Jónsson framkvæmdastjóri á tölvupósti haukur@lsv.is eða í síma 481-1008. Umsóknir skulu berast til framkvæmdastjóra og umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2022. Með umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda.

LÍFEYRISSJÓÐUR VESTMANNAEYJA Skólavegur 2 // 900 Vestmannaeyjar // sími 481-1008 // http://www.lsv.is


Ásgarður Alla virka daga fram að kosningum: • Morgunkaffi 09:30 • Hádegissúpa 11:45-13:15 • Síðdegiskaffi 17:00-18:30 Föstudagur kl. 21:00:

Eldhúspartý XD samvera og gleði.

Kaffi Varmó Fimmtudagskvöld á Eyverjaskrifstofunni:

ÞJÓÐHÁTÍÐARPEPP

Magnús Kjartan kemur þér í gírinn.


hér fyrir þig

Akóges Kjördagur: • kl.14:00-17:00

kosningakaffi

• kl.22:00

kosningavaka Sjálfstæðismanna

Því hér á ég heima


VERÐI LJÓS! við um marga í svipuðum störfum en til staðar þarf að vera örugg og góð tenging við netið. Ár og öld finnst manni síðan höfuðborgarbúar voru tengdir við ljósleiðara. Einhverra hluta vegna vorum við Vestmannaeyingar látnir bíða og bíða og þrátt fyrir fögur fyrirheit um að hefja uppbyggingu ljósleiðara í Eyjum gerðist lítið sem ekkert svo árum skipti.

Ef það er eitthvað sem við lærðum af heimsfaraldrinum hlýtur það að vera að hægt er að vinna fjölda starfa án staðsetningar. Það skiptir mig til að mynda ekki máli hvort ég sé í Vestmannaeyjum eða í Reykjavík í þeirri vinnu sem ég er í. Það sama á

Tímabær lagning ljósleiðara Það varð hins vegar breyting á því á síðasta ári þegar Vestmannaeyjabær ákvað að ekki yrði beðið lengur eftir sjálfsögðum og nauðsynlegum innviðum samfélagsins og stofnaði sitt eigið félag um ljósleiðaravæðingu í Vestmannaeyjum. Þar verður öllum heimilum í Vestmannaeyjum boðin tenging við kerfið þeim að kostnaðarlausu þegar framkvæmdir verða í viðkomandi hverfi bæjarins.

Lagning ljósleiðara í Vestmannaeyjum er löngu tímabær framkvæmd og í raun ótrúlegt að ekki hafi verið farið af stað fyrr. Þetta er eitt af þeim fjölmörgu verkum sem ég er stoltur af frá síðustu fjórum árum. Ég trúi því að innan tveggja ára verði öll heimili í Vestmannaeyjum komin með bestu nettengingu sem völ er á. Það var markmiðið í upphafi og þangað eigum við að stefna. Við erum farin af stað Þetta verkefni er hafið – það er ástæðulaust að lofa þessu í einhverri stefnuskrá fyrir kosningar. Það eina sem við þurfum að gera er að halda verkefninu áfram. Halda áfram að gera góðan bæ enn betri. Það ætlum við að gera! Njáll Ragnarsson Formaður bæjarráðs og oddviti Eyjalistans

AÐGENGI - AÐSTAÐA - ATVINNUTÆKIFÆRI einstaklinganna í fyrirrúmi. Einnig fjölgaði íbúðum svo að fleiri komust að.

Fólkið sem starfar fyrir Eyjalistann hefur fullan hug á að gera vel við fatlað fólk í samfélaginu. Á síðustu fjórum árum gerðust stórkostlegir hlutir í málefnum fatlaðra þegar íbúar sambýlisins fluttu yfir í glænýjar íbúðir sem við köllum Kjarnann í dag. Í þessum íbúðum eru innréttingar hugsaðar með þarfir

Átak í aðgengismálum Það var farið í átak í aðgengismálum en við vitum öll að gott aðgengi í bænum skiptir öllu máli. Við ætlum ekki að slaka á í þeim málum heldur halda áfram að skapa hvata fyrir alla bæjarbúa, íbúa og fyrirtæki, til þess að bæta aðgengi. Síðustu fjögur ár hafa götukantar verið lagaðir, aðgengi við inngang Barnaskólans var lagað, færanlegri stólalyftu var komið fyrir í sundlauginni og sérstakur búningsklefi var settur upp með góðu aðgengi og aðstöðu til þess að hafa með sér fylgdarmann. Við vitum samt sem áður að alltaf má gera betur og þangað stefnum við. Mikilvægi hæfingarstöðvarinnar Heimaey hæfingarstöð öflugur vinnustaður og þar

er er

unnið mikilvægt starf. Starfsfólk hæfingarstöðvarinnar er sífellt að finna spennandi verkefni fyrir notendur og nú viljum við í Eyjalistanum efla starfsemina með bættri aðstöðu. Við viljum einnig stuðla að atvinnutækifærum fyrir fatlaða í sveitarfélaginu í samvinnu við ríkið og einkafyrirtæki. Við vitum hve mikilvægt það er fyrir fatlaða að fá að spreyta sig í hinum ýmsu störfum. Nú þegar er bærinn með nokkur slík störf í boði en það þarf að gera betur og finna fleiri störf og fjölbreyttari atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk. Að lokum má benda á að Eyjalistinn hefur sett upp rampa við kosningaskrifstofu sína að Kirkjuvegi 19 og býður alla bæjarbúa velkomna að líta við í kaffi og spjall. Við viljum, getum, ætlum og þorum! Helga Jóhanna Harðardóttir Skipar 2. sæti Eyjalistans


ALLT AÐ

45% AFSLÁTTUR FYRIR KLÚBBFÉLAGA

4 ára

afmælisveisla Skanva.is Pantaðu glugga og hurðir á netinu Skanva hefur yfir 10 ára reynslu í Skandinavíu, þar sem gott og vandað gæðahandverk einkennir alla glugga og hurðir Skanva. Þar að auki eru Skanva gluggar og hurðir vottaðir og slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður. Skanva framleiðir glugga og hurðir í margvíslegum útfærslum, þar sem er lögð áhersla á efnisgæði, öryggi og fagurfræði.

Netklúbbur Skanva.is Skanva ehf. - Fiskislóð 73 - 101 Reykjavík - S: 558 8400


FRAMTÍÐARSÝN Í ÖLDRUNARMÁLUM

Öldrunarmál varða ekki eingöngu eldri borgara sjálfa heldur okkur öll. Það skiptir alla máli hvernig samfélagi við viljum búa í á efri árum og við hvaða lífsgæði. Góð þjónusta við eldri borgara og góð lífsgæði þeirra eru því allra hagur. Við þurfum að móta okkur sýn og stefnu í öldrunarmálum til framtíðar í takt við breytta aldurssamsetningu. Framþróun er að eiga sér stað í hugmyndafræði, orðræðu og tækninýungum í málaflokknum sem við þurfum að fylgja og leitast við að veita sem besta þjónustu. Forvarnir og heilsuefling Til að stuðla að farsælli öldrun þurfum við að leggja aukna áherslu á forvarnir og heilsueflandi þætti. Líkamleg, andleg og félagsleg heilsa er undirstaða lífsgæða á efri árum. Markmiðið þarf að vera að öllum eldri borgurum sé gert kleift að búa við öryggi, sjálfræði og ástunda heilbrigða lifnaðarhætti og hlúa vel að heilsu og líðan, m.t.t áhuga, heilsufars og færni hvers og eins. Við höfum innleitt fjölþætta heilsueflingu fyrir 65 ára og eldri við mikla ánægju þeirra sem hana stunda og þurfum að halda áfram á þeirri braut ásamt því að huga vel að félagslega þættinum. Við höfum einnig sett upp útiæfingasvæði og gert átak í að merkja gönguleiðir sem nýtast eldri borgurum sem og öðrum bæjarbúum til heilsueflingar. Vestmannaeyjar eru náttúruparadís þar sem tækifæri til að ástunda heilbrigðan lífstíl eru óþrjótandi fyrir alla aldurshópa, við stefnum á að fá viðurkenningu sem heilsueflandi samfélag.

Virkni og félagslíf Það skiptir máli að hafa hlutverk og eiga í jákvæðum samskiptum við annað fólk. Eldri aldurshópar búa yfir dýrmætri þekkingu og reynslu og við þurfum að stuðla að því að eyjan okkar verði aldursvæn þar sem fólk hefur hlutverk eftir sínum óskum, óháð aldri. En við megum ekki gleyma mikilvægi þess að hafa gaman og í því samhengi þurfum við að stuðla að eflandi umhverfi og nægjanlegu framboði af tómstundastarfi. Félag eldri borgara hefur með myndarlegum styrk frá Vestmannaeyjabæ haldið úti ómetanlegu félagsstarfi síðustu árin. Síðustu tvö sumur hefur sveitarfélagið í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og eldri borgara staðið fyrir verkefni sem miðar að því að virkja félagslega þáttinn þar sem boðið hefur verið upp á skemmtilegar uppákomur utan húss og innan. Höldum áfram á þeirri braut. Húsnæðismál Nægilegt framboð af húsnæði sem hentar þörfum aldraðra er dæmi um aðgerðir sem gera okkur kleift að lifa sjálfstæðu lífi lengur. Alls hefur Vestmannaeyjabær á að skipa 41 leiguíbúðum og þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara. Við höfum fjölgað þjónustuíbúðum í Eyjahrauni frá því þær fyrstu voru teknar í notkun árið 2019. Þjónustan þar er í stöðugri þróun til að mæta sem best þörfum þeirra sem þar búa. Nauðsynlegt er að fjölga þjónustuíbúðum en byggja einnig upp húsnæði fyrir eldri borgara í samstarfi við einkaaðila. Þjónusta við fólk sem býr heima Stuðningsþjónusta (heimaþjónusta) er ein af grunnstoðunum fyrir því að fólk getið búið heima eftir að færni fer að hraka. Við þurfum að veita persónumiðaða þjónustu í samstarfi við aðra þjónustuaðila. Þjónusta í heimahúsi er fólgin í mörgum þáttum s. s að styðja fólk við athafnir daglegs lífs og efla viðkomandi til sjálfsbjargar. Í dag erum við að veita þessa þjónustu bæði á dagtíma og um kvöld og helgar. Við erum einnig með næringarríkan heimsendan mat í samstarfi við einkaaðila. Við

þurfum að halda áfram að efla þjónustuna og innleiða tæknilausnir til að efla virkni, þátttöku og lífsgæði þjónustuþega enda er þetta þjónusta sem þarf að vera í stöðugri þróun. Dagdvöl er eitt af þeim úrræðum sem við höfum fyrir eldri borgara sem þurfa stuðning til búsetu heima. Eftir mikið strögl við ríkisvaldið náðist í gegn fyrir stuttu að dagdvölin, sem er rekin af Vestmannaeyjabæ, fengi til viðbótar 5 sérhæfð rými sem ætluð eru þeim glíma við heilabilun. Þau eru til viðbótar þeim 10 almennu rýmum sem fyrir voru. Vinna er í gangi við að bæta aðstöðu og halda áfram að efla annars gott innra starf í dagdvölinni, m.a. með aðkomu iðjuþjálfa. Til framtíðar þarf einnig að skoða, í samvinnu við ríkið, möguleika á sveigjanlegum dagþjálfunarrýmum. Hraunbúðir Framtíðarsýn í öldrunarmálum þarf að miða að því að í Vestmannaeyjum rísi nýtt hjúkrunarheimili með aðstöðu sem samræmist kröfum nútímans, en bæjarstjórn hefur nú þegar samþykkt að fara í viðræður við ríkið um að slíkt verði að veruleika. Óskastaðan ætti alltaf að vera að öll þjónusta við eldri borgara, þar á meðal hjúkrunarheimili, sé rekin af nærsamfélaginu og þarf að halda áfram viðræðum við ríkið um nægilegt fjármagn til að svo geti orðið að veruleika á ný. Við þurfum þó áfram að vera á verðinum fyrir því að hagsmunir eldri borgara á Hraunbúðum og annars staðar í sveitarfélaginu séu hafðir í forgrunni við veitingu þjónustu. Það eru því ótal áskoranir framundan í öldrunarþjónustunni og nauðsynlegt að við mótum okkur faglega framtíðarstefnu og aðgerðaráætlun í málaflokknum. En fyrst og síðast þurfum við að huga að sjónarmiðum þeirra sem koma til með að nýta þjónustuna. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri. Höfundur skipar 3. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.


Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,

KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR

frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum sunnudaginn 24. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Hjálmfríður Ingibjörg Hjálmarsdóttir Ólafur Hjálmarsson Þorleifur Dolli Hjálmarsson Soffía Birna Hjálmarsdóttir

Júlíus Valdimar Óskarsson Sigríður Anna Einarsdóttir Sigurdís Harpa Arnarsdóttir Sigurður Steinar Konráðsson

og barnabörn

Beggi Surprise alla vikuna 9.-15.maí á 900 Allar pizzur af matseðli á 1.900kr eða m/3 álegg Allar brauðstangir stórar fyrir litlar Allt 2l gos á 500 kr. Tilboðið gildir í takeawey og í sal Eldhúsið og sendingar opið til 22:00 föstudaga og laugardaga

Pantanir í síma: 482 1000

Gleðilega viku!


PÁLL MAGNÚSSON SVARAR SPURNINGUM TÍGULS Hver er Páll og fyrir hvað stendur hann? Ég er 67 ára gamall Eyjamaður. Hef starfað við og stjórnað stærstu fjölmiðlum á Íslandi mest alla starfsævina - en var þó alþingismaður núna síðast frá 2016-2021. Tók mér líka um 2ja ára hvíld frá fjölmiðlum til að vinna með Kára Stefánssyni hjá Íslenskri erfðagreiningu. Stundaði háskólanám í Lundi í Svíþjóð og tók þar fil.kand. gráðu í stjórnmálasögu og hagsögu. Kvæntur Hildi Hilmarsdóttur og á samtals fjögur börn, sjö barnabörn og einn langafastrák. Núna stend ég stoltur fyrir það að vera í 1. sæti á H-listanum, Fyrir Heimaey, sem býður bæjarbúum upp á Betri Eyjar - fyrir alla! Hvert er brýnasta verkefni nýrrar bæjarstjórnar? Sækja fram á grundvelli þess mikla árangurs sem hefur náðst á nær öllum sviðum síðustu fjögur árin undir styrkri forystu H-listans. Halda áfram að auka og bæta þjónustuna við bæjarbúa; byggja upp innviði til frekari sóknar og halda fast á hagsmunum bæjarfélagsins gagnvart ríkisvaldinu. Áfram verður líka að sýna ábyrgð og öryggi í rekstri en bæjarfélagið hefur verið rekið með afgangi öll fjögur árin á kjörtímabilinu - þrátt fyrir covidfaraldur og loðnubrest í tvö ár.

Okkar áherslur í:

- skólamálum? Gjaldfrjáls leikskóli fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri - fyrsta skrefið tekið strax í haust; heimagreiðslur fyrir forráðamenn 12-16 mánaða barna sem ekki eru á leikskóla; halda áfram með rannsóknar- og þróunarverkefnið Kveikjum Neistann sem miðar að bættri líðan og árangri grunnskólanema; viðhalda snemmtækri íhlutun í leik og grunnskólum; fylgja eftir spjaldtölvuvæðingu GRV; berjast fyrir því að skipstjórnarnám verði flutt til Eyja og hægt verði að stunda stærri hluta vélstjórnarnáms við FÍV; ljúka framkvæmdum í Hamarsskóla og byggja nýjan leikskóla. - skipulagsmálum? Bæta aðgengi og

skipulag

á

- heilbrigðismálum? Ráðist verði í sjúkraþyrluverkefnið og þyrlan staðsett í Eyjum yfir veturinn; tryggt verði að sjúkraflutningavél sé staðsett í Eyjum á meðan þyrla er ekki til staðar; yfirstjórn Heilbrigðisstofnunarinnar í Eyjum flytjist aftur til Eyja; tryggja betur grunnrekstur heilsugæslunnar; rekstur hjúkrunarheimila komi aftur til bæjarins með nægilegri fjármögnun.

PÁLL MAGNÚSSON

Oddviti H-lista Fyrir Heimaey

Básaskersbryggju; íbúakosning um hvort fara eigi í framkvæmdir við nýja hraunið - „Þróunarsvæðið“, skipuleggja lóðir fyrir starfsemi tengda ferðaþjónustu; flýta deiliskipulagi á nýjum svæðum fyrir íbúðabyggð; ljúka við áætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í samvinnu við ÍBV; gera 3ja ára áætlun um viðhald, fegrun og umferðarskipulag í miðbænum. - samgöngumálum? Fylgja eftir nýju og stórbættu fyrirkomulagi á dýpkun Landeyjahafnar; lokið verði við síðari hluta úttektar á Landeyjahöfn og í kjölfarið teknar ákvarðanir um endurbætur; fýsileikakönnun fyrir göng milli lands og Eyja verði lokið; aftur verði tekið upp ríkisstyrkt áætlunarflug sem var fellt niður árið 2010. - atvinnumálum? Leggja höfuðáherslu á áframhaldandi gott samstarf og samtal við þær atvinnugreinar sem þegar eru til staðar, m.a. með áframhaldandi þátttöku í markaðsstarfi ferðaþjónustunnar ásamt því að styðja við og liðka fyrir hverskonar nýsköpun, sprotafyrirtækjum og frumkvöðlum.

- málefnum aldraðra? Vinna heildstæða stefnu í málefnum aldraðra í samráði við þá sjálfa; efla dagdvalar- og heimaþjónustu fyrir eldri borgara og halda áfram Fjölþættri heilsueflingu 65+ (Janusarverkefnið), undirbúa byggingu nýs hjúkrunarheimilis fyrir eldri borgara í samstarfi við ríkið; byggja fleiri þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara. Ef þið náið hreinum meirihluta hver sest í sæti bæjarstjóra? Íris Róbertsdóttir. Getiði hugsað ykkur meirihlutasamstarf með öðru hvoru hinna frambjóðanda ef þið náið ekki hreinum meirihluta? Já. Eitthvað að lokum? Minni bæjarbúa á að eina leiðin til að tryggja að Íris Róbertsdóttir verði áfram bæjarstjóri Vestmannaeyja er að kjósa H-listann. Við vitum vel hvað við höfum - en vitum ekkert hvað við fáum! Að lokum þetta: minna þras - meiri gleði!


Frumherji verður í Eyjum vikuna 16. - 19. maí Skoðunardagur mótorhjóla verður 19. maí

Stendur til að skipta um gólfefni? Hjá okkur finnur þú mikið úrval af gólfefnum, bæði parketi og vínylparketi. Á golfefnabudin.is getur þú valið þér lit og efni og við sendum þér prufuna frítt.

Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins. golfefnabudin.is | hallo@golfefnabudin.is | 416 2300

SUMARSTÖRF VIÐ VEIÐARFÆRAGERÐ Óskum eftir áhugasömum krökkum í sumarstörf við veiðarfæragerð, 15 ára og eldri Um er að ræða tímabundin störf í sumar sem kannski gætu orðið að fastri vinnu síðar Ísfell er eitt öflugasta fyrirtæki á sviði veiðarfæraþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið rekur alhliða netaverkstæði að Kleifarbryggju 4 -6 hér í bæ. Að auki rekur Ísfell veiðarfæragerðir á sex öðrum stöðum á landinu. Allar nánari upplýsingar gefur Birkir í síma 892 0280 eða birkir@isfell.is Nánari upplýsingar um félagið má sjá á www.isfell.is


NJÁLL RAGNARSSON SVARAR SPURNINGUM TÍGULS Hver er Njáll og fyrir hvað stendur hann? Njáll er 38 ára gamall fjölskyldumaður í Vestmannaeyjum sem vill fyrst og fremst leggja sitt af mörkum í þágu fjölskyldufólks með því að efla þjónustu við þessa hópa. Allir nemendur eiga að getað notið sín í skólunum okkar, gjaldskrám þarf að halda í lágmarki og hér þarf að vera til staðar öflugt félags-, íþrótta- og tómstundastarf sem er aðgengilegt öllum börnum óháð efnahag foreldra. Þetta er það sem Njáll stendur fyrir. Hvert er brýnasta verkefni nýrrar bæjarstjórnar? Brýnasta verkefni nýrrar bæjarstjórnar verður vafalaust að halda áfram að fjárfesta í innviðum samfélagsins, halda áfram fyrirhuguðum framkvæmdum við byggingu nýs Hamarsskóla og efla innra starf í leik- og grunnskólum eins og við höfum einsett okkur undanfarin fjögur ár. Þá þarf að bregðast við því að börnum og barnafjölskyldum fer fjölgandi og því er mikilvægt að ráðast í framtíðaruppbyggingu leikskóla í bænum. Ný bæjarstjórn þarf sömuleiðis að huga að okkar elstu íbúum með því að ráðast í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis sem að stærstum hluta er fjármagnað úr ríkissjóði og við þurfum að gera átak í að fjölga þjónustuíbúðum fyrir eldra fólk. Við höfum sett okkur það markmið að byggja 20 slíkar íbúðir á næstu fjórum árum. Þetta eru aðeins nokkur af þeim stóru verkefnum sem bíða nýrrar bæjarstjórnar.

Okkar áherslur í:

- skólamálum? Framtíðaruppbygging á nýjum leikskóla og að halda áfram að efla innra starf bæði í leik- og grunnskólum, efla sérkennsluúrræði á öllum skólastigum og halda áfram að veita nemendum með námsörðuleika aukinn stuðning. -skipulagsmálum? Fara í hugmyndasamkeppni um skipulag í Löngulág þar sem við viljum blanda saman íbúabyggð og grænum svæðum auk þess sem við viljum vinna að því með ýmsu móti að fegra miðbæinn og gera hann aðlaðandi íbúum og gestum okkar.

NJÁLL RAGNARSSON

Oddviti Eyjalistans og formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar

Við viljum halda áfram að byggja upp ferðamannastaði þannig að við og gestir okkar njóti þeirrar yndislegu náttúru sem Eyjarnar okkar hafa uppá að bjóða. -samgöngumálum? Við viljum tryggja áframhaldandi forræði Vestmannaeyinga á siglingaleiðinni milli lands og Eyja og þrýsta á að úttekt á Landeyjahöfn verði kláruð þannig að höfnin þjóni sínu hlutverki sem heilsárshöfn. Við ætlum að standa vörð um flugið sem hluta af almenningssamgöngum og síðast en ekki síst viljum við að rannsóknir á jarðlögum milli lands og Eyja verði kláraðar og að farið verði af krafti í það að undirbúa jarðgöng milli lands og Eyja. - atvinnumálum? Við ætlum að treysta stoðir atvinnulífsins með ráðum og dáð, m.a. með áframhaldandi stuðningi við ferðamálasamtök Vestmannaeyja að því marki að ferðaþjónusta verði atvinnugrein allan ársins hring. Við viljum styrkja atvinnulífið við höfnina með endurbótum á upptökumannvirkjum Skipalyftunnar og við viljum halda áfram uppbyggingu á aðstöðu fyrir störf án staðsetningar. Þá ætlum við að koma á fót styrktarsjóði fyrir uppbyggingu atvinnu og nýsköpunarfyrirtækja í bænum.

- heilbrigðismálum Við viljum að þjónusta á HSU verði stóraukin þannig að hún sé samfélaginu okkar sæmandi. Við ætlum að beita okkur fyrir uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vestmannaeyjum sem stenst kröfur nútímans um aðbúnað heimilisfólks, starfsfólks og aðstandenda. Við viljum sjúkravélina tafarlaust staðsetta í Eyjum og að farið verði í verkefni um sjúkraþyrlu á Suðurlandi sem staðsett verði í Vestmannaeyjum, að minnsta kosti yfir vetrartímann. - málefnum aldraðra Við ætlum að byggja 20 þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk þar sem veitt verður framúrskarandi þjónusta, vinna markvisst að öflugri öldrunarstefnu með aukinni áherslu á iðjuþjálfun og velferðartækni í öldrunarþjónustu. Við ætlum að halda Janusarverkefninu áfram, veita Félagi eldri borgara áfram öflugan stuðning og vinna með félaginu í málaflokknum. Ef þið náið hreinum meirihluta hver sést í sæti bæjarstjóra? Oddviti listans, Njáll Ragnarsson, er bæjarstjóraefnið okkar Getiði hugsað ykkur meirihlutasamstarf með öðru hvoru hinna frambjóðanda ef þið náið ekki hreinum meirihluta? Að sjálfsögðu getum við það enda höfum við verið í samstarfi undanfarin fjögur ár. Það er mikilvægt að raddir sem flestra heyrist í bæjarstjórn og við erum tilbúin að starfa með öllum sem vilja vinna með okkur að þeim málum sem við viljum setja á oddinn næstu fjögur árin. Eitthvað að lokum Kosningarnar á laugardaginn eru gríðarlega mikilvægar. Við hvetjum alla bæjarbúa til þess að mæta á kjörstað og velja til starfa einstaklinga sem vilja vinna í þágu okkar allra. Eyjalistinn vill halda áfram að gera góðan bæ enn betri, huga að málefnum barna og fjölskyldunnar og byggja upp nauðsynlega innviði þannig að bærinn okkar vaxi og dafni. X-E


AUGLÝSING UM KJÖRSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM Kjörstaður í Vestmannaeyjum við sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022 verður í Barnaskólanum, inngangar eru um norðurog suðurdyr.

Hraunbúðum og húsum er bera bæjarnöfn. Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr. Kjörfundur hefst kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi sama dags.

Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

Talning atkvæða verður í sal Barnaskólans og hefst talning að loknum kjörfundi kl. 22:00.

Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. apríl 2022 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 6. apríl 2022 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa að

Jóhann Pétursson, formaður Ólafur Elísson Þór Ísfeld Vilhjálmsson

Vestmannaeyjum, 5. maí 2022


EYÞÓR HARÐARSSON SVARAR SPURNINGUM TÍGULS Hver er Eyþór og fyrir hvað stendur þú ? Ég er kappsamur Eyjapeyji sem fæddist 1963 í Ráðhúsinu (gamla sjúkrahúsið í Eyjum). Eiginkona mín er Laufey Grétarsdóttir og eigum við tvö börn, Anítu Ýr og Grétar Þór. Hef búið í Eyjum alla mína tíð fyrir utan gosárið og námsárin í Reykjavík og Þýskalandi þar sem ég lærði rafmagnstæknifræði. Ég stend fyrir þeim gildum sem mér voru kennd í æsku. Þ.e. dugnað, aga, kurteisi og tillitssemi við náungann. Með tímanum hef ég þróað með mér baráttuanda fyrir allt sem kemur Eyjunum vel. Hvort sem það það tengist atvinnulífinu, íþróttafélögum í bænum eða félagasamtökum sem hafa það að markmiði að gera lífið í Eyjum betra. Hvert er brýnasta verkefni nýrrar bæjarstjórnar? Fyrstu þrír kaflarnir í stefnuskrá okkar ramma inn okkar þrjú helstu áherslumál. Stórsókn fyrir ungt fólk, við viljum byggja fyrir þau sköpunarhús, fá þau heim með því að byggja húsnæði og tryggja fjarvinnuaðstöðu og síðan tryggja öflugan nýsköpunarstuðning. Hagsmunagæsla okkar gagnvart ríkinu. Erfiðustu baráttumálin heyra undir rekstur og stjórnun ríkisins. Við teljum að fjöldi þingmanna og ráðherra Sjálfstæðisflokksins geti orðið okkur að liða þar. Ábyrgur rekstur.Sjálfstæðisflokkurinn greiddi niður skuldir fyrir fimm og hálfan milljarð og skilaði bæjarsjóði með 3,3 milljörðum í sjóði á sama tíma og þjónustuaukning og framkvæmdir voru með besta móti þegar við vorum með stjórn bæjarins. Því miður hafa þessir sjóðir okkar rýrnað talsvert undanfarin fjögur ár.

Okkar áherslur í:

- skólamálum? Framúrskarandi skólaumhverfi, aukin tæknivæðing sem aflæsir sköpunarkrafti og persónulegum námsstuðningi. Eflum Kveikjum Neistann verkefnið sem m.a. hjálpar börnum og drengjum sérstaklega að ná góðum tökum á lestri og vellíðan. Aukin stuðningur við vináttumyndun og félagsþroska barna m.a. með betri

EYÞÓR HARÐARSSON

Oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

stoðþjónustu eins og þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. - skipulagsmálum? Við ætlum að byggja spennandi íbúðabyggð við Lönglág (malarvöllinn) m.a. til að fá unga fólkið okkar aftur heim. Við ætlum að gera íbúðarkjarna fyrir okkar bestu borgara 60+ miðsvæðis og við viljum efla miðbæinn og þann ás sem nær frá Vigtartorgi upp að safnahúsi. Miðbærinn okkar getur orðið bæjarprýði og það er mikilvægt að bregðast við þeirri lýðfræðilegu áskorun sem er í Vestmannaeyjum að við höfum hátt hlutfall eldra fólks en lágt hlutfall yngra fólks. - samgöngumálum? Þann 30 maí n.k. leggst áætlunarflug af og hafa flugsamgöngur í Vestmannaeyjum aldrei verið með verra móti sé t.d. litið til tíðni flugerða. Við höfum þegar byrjað samtal við ríkisstjórnina um að efla flugið og teljum að þar sé hægt að ná árangri hratt og erum bjartsýn á það. Síðan þarf að tryggja betra dýpkunarskip í Landeyjarhöfn og tíðni Herjólfsferða sem svarar eftirspurn ásamt aukinni markaðssetningu á Vestmannaeyjabæ sem áfangastað. - atvinnumálum? Markaðssetja ferðaþjónusta, risa sókn í nýsköpun þar sem

t.a.m. tengslamyndun, aðgengi að fjármagni og aðstaða fyrir frumkvöðla er efld. - heilbrigðismálum Tryggja sjúkraþyrlu í Eyjum, við erum langt komin með það samtal með t.a.m. Vilhjálmi Árnasyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins og Guðrúnu Hafsteins tilvonandi dómsmálaráðherra. Svo viljum við sækja sérhæfð verkefni á sjúkrahúsið og heilsugæsluna hér sem gefur okkar sóknarfæri í heilbrigðismálum ásamt því að tryggja yfirmann yfir stofnunina sem verður í Vestmannaeyjum. Við ætlum að ná Hraunbúðum til baka og vinna með þingmönnunum okkar í því að efla fæðingarþjónustuna svo eitthvað sé nefnt. - málefnum aldraðra Ná Hraunbúðum til baka, bjóða upp á dagdvöl alla daga vikunnar, tryggja að aldraðir geti búið við öryggi, sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt og byggja íbúðarkjarna í miðbænum fyrir okkar bestu borgara, 60+ Ef þið náið hreinum meirihluta hver sést í sæti bæjarstjóra? Fram að kosningum sýnum við 18 manna framboðslista sem mun sitja í ráðum og nefndum næsta kjörtímabil og það er fólkið sem mun bera ábyrgð á rekstri bæjarins. Ef við vinnum hreinan meirihluta, þá er fyrsta verk okkar eftir kosningar að leita að framúrskarandi bæjarstjóra og það verður þá einhver sem við teljum að geti framkvæmt framangreind stefnumál okkar af kostgæfni. Ég er fullkomlega heiðarlegur með það að ekkert nafn hefur verið rætt okkar á milli að svo stöddu. Við erum að tefla fram liði, ekki einstakling. Getiði hugsað ykkur meirihlutasamstarf með öðru hvoru hinna frambjóðanda ef þið náið ekki hreinum meirihluta? Við erum að bjóða okkur fram til að gera góðan bæ betri. Við munum gera það með einum eða öðrum hætti – við getum unnið með öllum ef gagnkvæmur áhugi er fyrir hendi. Eitthvað að lokum Því hér á ég heima !


Er tilefni? FIMMTUDAGUR KL. 20:30

SUNNUDAGUR KL. 15:00

Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Þú getur sent okkur grein og við birtum. tigull@tigull.is

SUNNUDAGUR KL. 20:00

MÁNUDAGUR KL. 20:00

Aðalfundur Verkstjórafélags Vestmannaeyja verður haldinn 25. maí kl. 19:00 í Leo Seafood. Almenn fundarstörf Kosning nýrrar stjórnar Léttar veitingar Stjórn Verkstjóra - og stjórnendafélag Vestmannaeyja


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 17.tbl 04 árg. by Leturstofan - Issuu