

5. MAÍ 2024 KL. 13:00 - 16:00 Krabbavörn Vestmannaeyjum

5. MAÍ 2024 KL. 13:00 - 16:00 Krabbavörn Vestmannaeyjum
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
FJALLAHJÓL 26" MOUNTAIN
Sterkbyggt fjallahjól með 21 gíra skiptingu og dempara að framan og aftan. Auðvelt er að stilla sætið.
FACADE RESIST
ÚTIMÁLNING Á STEIN
Facade Resist er algjörlega einstök vara, sem í meira mæli gerir það mögulegt að mála utandyra þrátt fyrir veðuráskoranir eins og rigningu og kulda.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
(Baddý frá Ólafshúsum)
lést á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra, miðvikudaginn 24. apríl. Útför verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 11. maí nk. kl. 14:00
Erla Ó. Gísladóttir
Grímur Gíslason
Kristinn Ó. Grímsson
Guðrún Hjörleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara Sólhlíð. Íbúðin er 53,2 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknarfrestur er til 24. maí nk.
Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst. Eldri umsóknir óskast staðfestar.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.
MAÍ PUFFIN RUN
Opið hús í Kírópraktorstöðinni í Vestmannaeyjum Kírópraktorstöðin býður í létta vorgleði milli kl. 17-19 í tilefni af Puffin Run, 4 . maí næstkomandi. Hlökkum til að taka á móti gestum og gangandi í húsakynnum stöðvarinnar í Eyjum við Strandveg 26. Léttar veitingar í boði og almenn gleði.
Höllin kl.
í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku alla virka daga milli klukkan13:00 - 14:00
Haldinn miðvikudaginn 8. maí kl. 17:00-18:30 í AKÓGES salnum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
formaður Miðflokksins fer nokkrum léttum orðum um stjórnmálin þessa dagana. Allir velkomnir
The Puffin Run hlaupið hefur stækkað frá ári til árs og er nú haldið í sjöunda sinn. Og er orðinn stærsti íþróttaviðburður í Vestmannaeyjum.
Hlaupið er krefjandi en jafnframt gefandi bæði andlega og líkamlega.
Enn eitt þátttökumetið er slegið í ár með tæplega 1400 manns skráðum í hlaupið, og flestir í heilt hlaup eða 20 km.
Eyjaskokk, sem stendur fyrir hlaupinu, leggur mikinn metnað í viðburðinn, enda er um að ræða einstakt náttúruhlaup með stórbrotinni hlaupaleið. Með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að hlaupinu hefur þetta gengið ótrúlega
vel hingað til. Margir bæjarbúar eru virkir þátttakendur ýmist með því að aðstoða við framkvæmdina eða hlaupa sjálfir. Brautarverðir hafa alltaf fengið 10 í einkunn frá hlaupurum enda eintómir gleðipinnar sem peppa áfram alla hlaupara.
Hlaupið er ræst út klukkan 12:15 á laugardaginn og hvetjum við
bæjarbúa sem eru á lausu til að fara á hliðarlínuna með potta og sleifar og láta í sér heyra. Það er skemmtileg sjón að horfa á langa röð hlaupara skokka upp Hamarinn eins er gaman að fara hjá hundasvæðinu, en hlauparar hlaupa þar fyrir neðan og koma að Eldfelli.
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir Varnarmaður
Guðný Geirsdóttir Markmaður
Emilíana Erla Ágústsdóttir Sóknarmaður
Sandra Voitane Varnarmaður
Erna Sólveig Davíðsdóttir Varnarmaður
Ásdís Halla Hjarðar Varnarmaður
Viktorija Zaychikova Miðjumaður Valentína Quinones Markmaður
Elísabet Rut Sigurjónsdóttir Sóknarmaður
Olga Sevcova Sóknarmaður
Ísey María Örvarsdóttir Markmaður
Embla Harðardóttir Varnarmaður
Rakel Perla Gústafsdóttir Miðjumaður
Alexus Knox Varnarmaður
Ragna Sara Magnúsdóttir Varnarmaður
Magdalena Jónasdóttir Varnarmaður
Selma Björt
Sigursveinsdóttir Sóknarmaður
Helena Hekla Hlynsdóttir Sóknarmaður
Kristín Klara Óskarsdóttir Varnarmaður
Jón Ólafur Daníelsson Þjálfari
Natalie Viggiano Miðjumaður
Thelma Sól Óðinsdóttir Miðjumaður
Lilja Kristín Svansdóttir Sóknarmaður
Telusila Vunipola Sóknarmaður
Helena Jónsdóttir Varnarmaður
Edda Dögg Sindradóttir Varnarmaður
Sigríður Lára Garðarsdóttir Aðstoðarþjálfari
Myndir vanta af eftirfarandi leikmönnum: Bertu Sigursteinsdóttur
Elísu Hlynsdóttur
Felix Örn Friðriksson Varnarmaður
Guðjón Ernir Hrafnkelsson Varnarmaður
Jón Ingason Varnarmaður
Sigurður Grétar Benónýsson Varnarmaður
Nökkvi Már Nökkvason Varnarmaður
Arnór Sölvi Harðarsson Varnarmaður
Bjarki Björn Gunnarsson Miðjumaður
Eyþór Orri Ómarsson Sóknarmaður
Víðir Þorvarðarson Sóknarmaður
Alex Freyr Hilmarsson Miðjumaður
Viggó Valgeirsson Miðjumaður
Arnar Breki Gunnarsson Sóknarmaður
Rasmus Steenberg Christiansen Varnarmaður
Tómas Bent Magnússon Miðjumaður
Sverrir Páll Hjaltested Sóknarmaður
Hermann Hreiðarsson Þjálfari
Henrik Máni Hilmarsson Varnarmaður
Jón Kristinn Elíasson Markmaður
Eiður Atli Rúnarsson Varnarmaður
Oliver Heiðarsson Sóknarmaður
Sigurður Arnar Magnússon Varnarmaður
Eyþór Daði Kjartansson Varnarmaður
Vincente Valor Miðjumaður
Hjörvar Daði Arnarsson Markmaður
Hermann Þór Ragnarsson Sóknarmaður
Myndir vanta af eftirfarandi leikmönnum:
Devon Már Griffin
Borgþór Arnsteinsson
Aron Smári Magnússon
Gauti Þorvarðarson
Birkir Snær Albertsson
Dagur Einarsson markmaður
Jóhann Norðfjörð Miðjumaður
Tómas Aron Kjartansson Miðjumaður
Kristján Logi Jónsson markmaður
Daníel Scheving Miðjumaður
Baldvin Freyr Ásmundsson Varnarmaður
Óðinn Sæbjörnsson þjálfari
Daníel Már Sigmarsson Miðjumaður
Halldór Páll Geirsson Markmaður
Kristján Ægir Eyþórsson Varnarmaður
Hjalti Kristjánsson
Alexander Örn Friðriksson varnarmaður
Karl Jóhann Örlygsson Framherji
Gabríel Þór Harðarsson Miðjumaður
Sigurnýjas Magnússon Varnarmaður
Óskar Zoega Óskarsson Varnarmaður
Bjarki Kristinsson Varnarmaður
Róbert Aron Eysteinsson Miðjumaður
Maks Bulga Markmaður
Heiðmar Þór Magnússon Miðjumaður
Sigurður Valur Sigursveinsson Miðjumaður
Björgvin Geir Björgvinsson Varnarmaður Sæbjörn Sævar Jóhannsson Sóknarmaður
Hafsteinn Gísli
Valdimarsson Varnarmaður
Leó Viðarsson
Miðjumaður
Guðlaugur Gísli
Guðmundsson Varnarmaður
Egill Stefánsson Sóknarmaður
Ásgeir Elíasson Miðjumaður
Hallgrímur Þórðarson Varnarmaður
Birkir Björnsson
Miðjumaður
Fjölskyldan
Ég er gift Kristjáni Frey og saman eigum við tvær dætur, Hildi Kristínu og Sögu Friðgerði. Það er líf og fjör í hversdagslífinu, stelpurnar eru á fullu í tómstundum og sem betur fer létta ömmur og afar oft undir með okkur foreldrunum.
Hverjir eru helstu kostir þínir og gallar?
Ég er drífandi, lífsglöð og ákveðin ef á þarf að halda. Gallar? Það er langur listi og spurning hvort við ættum að telja þá alla upp.
Einhver sturluð staðreynd?
Ég vann hæfileikakeppnina í Kvennaskólanum í Reykjavík á sínum tíma með uppistandi sem meðal annars fól í sér að leika ýmis dýr. Kvennaskólaárin í heild voru auðvitað frábær tími og vöktu áhuga minn á kennslu.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Lambahryggur með hvítlauk, sveppasósu að hætti mömmu, fersku grænmeti og stökkum kartöflum um helgar. Á virkum dögum heillar ferskt pasta með hvítlauk, tómötum og mikilli ólífuolíu mest.
Hunda eða kattarmanneskja?
Ég hef átt hvoru tveggja en hundarnir hafa vinninginn. Ég get ekki beðið eftir því að fá mér íslenskan fjárhund en ég fæ einn í pössun af og til sem stelpurnar mínar elska.
Hvaða hreyfingu stundar þú?
Ég elska almenna útivist svo sem fjallgöngur, skíði og hestamennsku, já og svo finnst mér ómissandi að komast á dansgólfið af og til.
Hefurðu komið til Vestmannaeyja?
Já, að sjálfsögðu. Ég á líka svo margar góðar sögur úr Eyjum enda hef ég mætt svo mörgum sinnum á Þjóðhátíð, goslokahátÍð og farið í brúðkaup góðra vina. Það stendur svo upp úr að hafa kynnst eiginmanninum í einni þessara heimsókna í Eyjum.
Hver er ástríðan þín og eldmóður – hvað drífur þig áfram? Ísland.
Ertu sparsöm eða eyðslukló?
Það fer eftir því hvern þú spyrð. Almennt reyni ég þó að fara vel með peninga.
Hverju ertu stoltust af varðandi vinnuferilinn?
Ég er stoltust af því að hafa unnið með frábæru fólki að stofnun Arctic Initiative hjá Harvard Kennedy School sem vinnur að málefnum Norðurslóða á ýmsum sviðum, svo sem málefna hafsins, þróun auðlinda, öryggismál og fleira sem varðar hagsmuni Íslands. Ég er líka mjög stolt af því að hafa fengið viðurkenningu fyrir námskeið sem ég hef kennt við Harvard eftir að nemendur gáfu því hæstu einkunn í kennslumati við skólann. Já, og svo er ég líka þakklát fyrir að hafa verið fyrsta konan til að gegna embætti orkumálastjóra enda jafnréttismál mér hugleikin.
Halla Hrund.Af hverju á fólk að kjósa þig?
Fyrir framtíðina. Ég brenn fyrir Ísland og vil virkja alla Íslendinga til að magna tækifærin okkar, svo sem á sviði nýsköpunar, menningar, lista og matvælaframleiðslu, til sjávar og sveita, á alþjóðavettvangi. Sem forseti mun ég nýta rödd mína til að efla skilning landsmanna á ólíkum þörfum byggða landsins því framtíð okkar og styrkleikar eru um allt land. Ég vil tala fyrir þeim gildum sem helst einkenna íslenskt samfélag, svo sem samheldni og þátttöku. Og Eyjamenn eru svo sannarlega frábært dæmi um samfélag hefur þessi fallegu gildi í heiðri.
Getur þú lýst þér í þremur orðum? Kraftmikil/lífsglöð/ábyrg.
Uppáhaldstónlist?/bíómynd
Flottur jakki með Ragga Bjarna geggjaður slagari á dansgólfinu og uppáhalds bíómyndin er alltaf Love actually um jólin.
Bíó eða leikhús?
Mér þykir vænt um hvort tveggja, en ég hef sérstaka ánægju af því að fara í leikhús, það er svo mikil upplifun að sjá fólk skapa eitthvað saman á sviði sem það hefur lengi unnið saman að.
Helsta áhugamál?
Að vera með fjölskyldunni minni og læra eitthvað nýtt.
Hljómey, hátíð þar sem tónleikar eru haldnir í stofum heimamanna í Vestmannaeyjum . Hljómey heppnaðist virkilega vel í fyrra og var hátíðin haldin í annað sinn síðastliðinn föstudag. Frábær hópur listamanna mætti í ár eins og sjá má á myndunum. Uppselt varð á hátíðina í ár eftir að aðeins þrjú tónlistaratriði voru kynnt. Þeir
Birgir Nielsen og Guðmundur Jóhann Árnason standa fyrir hátíðinni og voru þeir í skýjunum þegar að Tígull náði af þeim tali. Þeir vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem að tóku þátt, gestum, styrktaraðilum, tónlistarfólki, dyravörðum, hljóðmönnum. „Takk allir sem aðstoðuðu okkur á einn eða annan hátt, hvort sem það var með peppi, knúsi eða öðru. Takk allir sem við erum að gleyma, sögðu þeir að lokum.“
Fram koma: Molda /// Júníus Meyvant /// Blítt og létt
Karlakór Vestmannaeyja ásamt meðlimum úr Kvennakór Vestmannaeyja
Hljómsveitin Gosar ásamt Unu Þorvalds , Kristínu Halldórs, Sæþóri Vídó, Tóta Óla , Jarli Sigurgeirs, Hafþóri Hafsteins, Elísabetu Guðna, Guðnýju Emilíu o.fl. Sérstakir gestir Matti Matt og Védís Hervör
Miðasala er hafin á tix.is, í Tvistinum og á Kletti
Miðaverð kr. 5.000,- en hægt er að greiða meira.
Samhliða tónleikunum hefur verið sett af stað styrktarsöfnun. Reikn.nr. 0185-26-270, kt. er 270246-4199.
FORSETAKOSNINGAR
ÍSLANDS 2024
Sem forseti Íslands vil ég fyrst og fremst vera þjónn fólksins. Ég ber virðingu fyrir lýðræðinu og fyrir grunngildum íslenskrar þjóðar. Ég vil vera málsvari hins íslenska drifkrafts, sem gerir okkur að þeirri sterku þjóð sem við erum.
Áherslur mínar eru að styðja við fræðasamfélagið, menninguna og atvinnulífið, sem og okkar gróskumiklu nýsköpun og sköpunarkraft íslenskrar þjóðar.
Ég vil tala fyrir verndun íslenskrar tungu, góðri menntun og fyrir bættum hag aldraðra. Ég hef sérþekkingu á réttindum og öryggi einstaklinga á tækniöld, sem aldrei hefur verið mikilvægari en nú.
Festa, fagmennska og heiðarleiki eru mín einkunnarorð. Ég brenn fyrir hagsmunum íslenskrar þjóðar. Ég bý að reynslu, þekkingu og einlægni til að gegna þessu mikilvæga embætti og býð því fram krafta mína fyrir þjóðina.