Tígull 17. tbl 05. árg.

Page 1

17. tbl. 05. árg. 24. - 30. maí 2023

Þann 7. júlí næstkomandi, sem er föstudagur 50 ára goslokahelgar, mun Lúðrasveit Vestmannaeyja standa fyrir stórtónleikum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Tónleikarnir hafa hlotið nafnið Lúðrasveitaball sem er kannski lýsandi fyrir þá gesti sem fram koma og þá tónlist sem á dagskrá verður. Má jafnvel búast við því að gestir taki nokkur spor undir flutningunum.

Tónleikarnir eru hluti af hátíðahöldum í tilefni af 50 ára goslokaafmæli og eins eru þeir haldnir til að minnast þess að 10 ár eru frá því að Lúðrasveitin reið á vaðið og hélt ógleymanlega tónleika í Íþróttamiðstöðinni ásamt Fjallabræðrum árið 2013. Þeir tónleikar eru stærsti viðburður sem haldinn hefur verið innandyra í Vestmannaeyjum frá landnámi og komust þó færri að en vildu.

Tónleikarnir í ár verða með svipuðu sniði og árið 2013. Ásamt Lúðrasveitinni verður hljómsveit

TÍGULL

DREIFING:

hússins, sem að þessu sinni verður skipuð eingöngu heimamönnum og er þar valinn maður í hverju rúmi. Gestir Lúðrasveitarinnar verða kynntir á næstunni og kennir þar ýmissa grasa. Verða þar í aðalhlutverki kórar og einstaklingar ýmist heimafólk eða lengra að komnir.

Á næstu dögum og vikum verða kynntir til leiks flytjendur á tónleikunum og hvetjum við fólk til að fylgjast með á miðlum og samfélagsmiðlum.

Þó svo salur íþróttamiðstöðvarinnar sé stór, þá takmarkast gestafjöldi við öryggi gesta og því er takmarkað framboð á miðum. Það má því búast við að sagan frá því 2013 endurtaki sig og færri komist að en vilja. Við viljum því benda fólki á að tryggja sér miða í tíma.

Miðasala fer fram á midix.is

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

VIÐ VERÐUM Í LITLU SKVÍSUBÚÐINNI FIMMTUDAGINN 8. JÚNÍ FRÁ 10:00-18:00 ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ PANTA TÍMA STRAX Í SJÓNMÆLINGU Í SÍMA 511-6699 EÐA 899-8801 VESTMANNAEYJAR SJÓN ER AÐ KOMA 35% AFSLÁTTUR FYRIR ALDRAÐA OG ÖRYRKJA 2 FYRIR 1 AF GLERAUGUM ALLT NÁMSFÓLK FÆR 30% AFSLÁTT

FRÁBÆR GOLFFERÐ

GOLFKLÚBBS VESTMANNAEYJA TIL SPÁNAR

Ungmenni frá GV skelltu sér í vel heppnaða æfingaferð til Spánar í apríl sl. Tígull fékk Óskar Haraldsson sem var einn af fararstjórum ferðarinnar til að segja sér aðeins betur frá ferðalaginu og undirbúningnum. Óskar ásamt Rúnari Karlssyni fóru með 11 krakka fædda 2007-2009 í þessa frábæru ferð. Kalli Haraldsson goflkennari krakkana tók svo á móti þeim á flugvellinum og var með þeim alla ferðina. Ferðinni var heitið til Costa Ballena golfsvæðið sem er staðsett á suður Spáni og segir Óskar að þetta svæði sé alveg frábært fyrir svona hópa í æfingaferð. Þetta er í annað skipti sem GV skipuleggur ferð á þetta svæði og allir alltaf jafn ánægðir. Ferðin stóð yfir í viku og voru krakkarnir búnir að vera mjög dugleg að safna fyrir þessari ferð, örugglega í rúmlega ár. Ferðin var frá 12.-19. apríl og flaug hópurinn í beinu flugi til Jerez sem er um 30 mínúta fjarlægð frá golfsvæðinu. Ferðalagið út gekk eins og í sögu og eins og fyrr segir tók Kalli á móti þeim á vellinum. Næstu dagar fóru í æfingar, spila golf og aðra skemmtun. Það fór ekki illa um hópinn á þessu frábæra golfsvæði, en á svæðinu var dásamlegt hótel með sundlaugagarði, þrír 9 holu golfvellir og líka 9 holu par 3 völlur. Æfingasvæðið er risa stórt og flott þannig að allir gátu notið sín í botn. Veðrið var eins og best var á kosið, enda sól og blíða allan tímann. Óskar sagði að ferðin hafi verið ótrúlega vel heppnuð og vildi þakka þessum frábæra hóp fyrir samveruna og tók það fram að allir hefðu verið algjörlega til fyrirmyndar í einu og öllu og GV til mikilla sóma.

Fullt nafn: Sóley Óskarsdóttir

Aldur: 14 ára.

Hvað ert þú lengi búin að æfa golf?

Ég er búin að æfa golf í 4 ár.

Hvers vegna valdir þú að byrja að æfa golf?

Vegna þess að fjölskyldan mín er öll í golfi.

Hvað er skemmtilegast við þessa íþrótt?

Félagsskapurinn er skemmtilegastur og það er bara allt skemmtilegt við þessa íþrótt.

Hvað ertu með í forgjöf?

Ég er með 35 í forgjöf.

Hver er uppáhalds golfarinn þinn?

Það eru Rory Mcilroy og Justin Thomas.

Hvernig var ferðin ykkar til Spánar?

Ferðin var mjög skemmtileg.

Hvað var skemmtilegast við ferðina?

Að spila golf í góðu veðri og í góðum félagsskap.

Fullt nafn: Guðmundur Huginn Guðmundsson.

Aldur: 14 ára.

Hvað ert þú lengi búin að æfa golf?

Ég er búin að æfa golf í 8 ár.

Hvers vegna valdir þú að byrja að æfa golf?

Ég prufaði golf vegna þess að pabbi var alltaf í golfi.

Hvað er skemmtilegast við þessa íþrótt?

Skemmtilegast við þetta sport er bara að spila holur.

Hvað ertu með í forgjöf?

Ég er með 24 í forgjöf.

Hver er uppáhalds golfarinn þinn?

Það er Tiger Woods.

Hvernig var ferðin ykkar til Spánar?

Ferðin til Spánar var geggjuð!

Hvað var skemmtilegast við ferðina?

Skemmtilegast við ferðina var að spila golf með vinum mínum.

Opnunartímar: Mánudagur - lokað

- 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com PALLASMÍÐI OG VIÐGERÐIR PARTÝ Á PALLINUM? Almennt viðhald & smíði! Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com
Sóley og Huginn voru hluti af þessum frábæra hópi, og við fengum þau til að svara nokkrum spurningum.
Fermingarmyndir
Þriðjudagur
TÓNLEIKAR PARTÝ SKEMMTILEGT VETUR LEIÐINLEGT HAGLÉL PIRRANDI SUMAR STEMNING LOGN ORÐAÞRAUTIN SUDOKU

AÐ SETJA UPP

OG PRENTA SÁLMASKRÁR.

Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is

eða í síma 481-1161.

VIÐ TÖKUM AÐ OKKUR

FÖSTUDAGUR

Hægt er að kaupa miða og velja sæti á eyjabio.is

Samræður um heilbrigðismál

Vigtin bakhús í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 31. maí – kl. 17:00

Öll velkomin!

26. MAÍ LAUGARDAGUR 27. MAÍ KL. 20.00 KL. 15.00 SUNNUDAGUR 21. MAÍ KL. 15.00 KL. 20.00

Útimálning

fyrir íslenskt veðurfar

Steinvari er ö ug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

GERÐU FÍNT FYRIR SUMARIÐ!

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

Viðarvörn fyrir íslenskar aðstæður

Notaðu sumarið til

að verja viðinn!

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

- það segir sig sjálft - – Í MEISTARA HÖNDUM
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
STEINVARI - það segir sig sjálft -
– Í MEISTARA HÖNDUM 30 afsláttur af Kjörvara & Steinvara %

FRÁBÆRT TÍMABIL HJÁ STELPUNUM OKKAR Í MEISTARAFLOKKI Í HANDBOLTA

Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna í handbolta lutu lægra haldi síðasta laugardag þegar Valur varð Íslandsmeistari eftir 3-0 sigur í viðureign þeirra um Íslandsmeistaratitilinn. Þrátt fyrir svekkjandi tap hafa þær átt stórkostlegt tímabil enda bæði bikar-og deildarmeistarar sem er hreint út sagt frábær árangur. Þess má geta að um stund voru þær taplausar í yfir tuttugu leikjum, sem er einstakt. Það er óhætt að segja að gott sem öll Eyjan sé búin að fylgjast með þeim í allan vetur og einstakt að sjá hversu flottur og samheldin hópurinn er. Við fengum aðalþjálfara liðsins Sigga Braga og einn af lykilleikmönnum liðsins Hrafnhildi Hönnu í smá spjall og gera upp veturinn.

Jæja Siggi eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

Innan vallar, þá verð ég að segja þessar síðustu 10 sek í bikarúrslitaleiknum. Að sjá það raungerast sem maður var búin að stefna að í 3 ár. Vinna bikar, leyfa stelpunum að upplifa heimsiglingu og gera stóra mynd

í íþróttasalinn. Það var ótrúlega sætt móment og sjá okkar fólk gersigra stúkuna líka... frábært.

Nú urðu þið bæði bikar-og deildarmeistarar, kannski erfitt að gera upp á milli en hvor titillinn myndir þú segja að hafi verið sætari?

,,við skulum orða það þannig að hér eftir mun ég líta deildarmeistara allt öðrum augum. Í raun er það sá titill sem sýnir hvað best hvaða lið er best yfir tímabilið, þ.e.a.s. þessa 8 mánuði sem það stendur. En ég verð að segja að bikarinn var sætari, er „stærri“ Laugardalshöllin, mikil umfjöllun o.s.frv“.

Allir leikmenn tala um töfrana við að sigla heim með bikar og fá móttökurnar á bryggjunni, hvernig var það fyrir þig að sigla heima í hlutverki aðalþjálfara?

,,Fyrir mig sem Eyjamann þá var það auðvitað gæsahúð og nokkur gleiðtár. Var alltaf eitt af aðalstefnumáli mínu og að takast það var ótrúlega gott. Fengum líka frábærar móttökur, það að tæplega 2000 manns hafi samglaðst með okkur (í höllinni og svo á bryggjunni) var frábært

og það í miðri loðnuvertíð.... segir allt um þá samstöðu sem hér ríkir“ Hvernig finnst þér liðið þitt hafa þroskast yfir tímabilið? ,,Alveg frábærlega. Mér finnst liðið hafa tekið stórt skref upp á við. Aðallega liggur það í því að núna ætla allar sér stóra hluti og sá skilningur að ef þú vilt eitthvað verulega mikið þá þarf að hafa fyrir því að ná í það. Sú hugsun var komin í allan hópinn en ekki bara einhverjar tvær eða þrjár“.

Eyjamenn eru þekktir fyrir ákveðna geðveiki þegar kemur að því að styðja sitt lið, hvernig fannst þér stuðningur Eyjamanna í vetur? ,,Aftur frábær. Við megum lík a vera ótrúlega stolt sem klúbbur þarna, við erum undantekningarlaust með yfir 150 manns á deildarleikjum og svo fullt hús í úrslitakeppni. Ég fór í öll 7 íþróttahúsin sem áttu lið í efstu deild í vetur. Ég verð að segja að það að spila íþróttaleik í efstu deild með kannski 30 áhorfendur er asnalegt og skammarlegt. Auðvitað er það þannig að leikur Tottenham og Wolves er kannski meira spennandi fyrir suma en leikur í Olísdeild. En að

foreldrar, vinir og þeir sem eru næst leikmönnunum láti ekki sjá sig er hörmung“.En við hér á Eyjunni getum verið hrikalega stolt. Stolt af stuðningi og ekki síst af þessu íþróttafólki okkar. Verðum að hjálpa peyjunum að klára Íslandsmeistaratitilinn... þá mun ÍBV vera handhafi þriggja af 6 titlum vetursins og sannast þá að við erum besti handboltaklúbbur landsins sesonið 2022-2023“.

Ef þú horfir til baka, er eitthvað sem þú hefðir viljað gera öðruvísi? ,,Eftir úrslitakeppnina og svona stuttu eftir þetta allt saman þá myndi ég segja að ég hefði viljað hafa stærri hóp. Okkur munar rosalega um hvað við erum fáar þegar svona erfitt hraðmót fer í gang, eins og úrslitakeppni er. En það er rosalega erfitt, við erum vissulega ekki mörg hérna og svo vilja íslenskar stelpur bara ekki koma hingað. Persónulega finnst mér ótrúlegt að handboltastelpur vilji ekki koma. Ég er að fara inn í fimmta tímabilið mitt sem aðalþjálfari og ótrúlegt að segja frá því að ég hef ekki fengið eina íslenska stelpu frá íslensku liði til okkar. Þrátt fyrir að bjóða mjög mörgum. Þessar íslensku sem eru hjá okkur Sunna, Birna og Hanna komu allar að utan eftir atvinnumannaferil. Þetta er allt öðruvísi hjá strákunum, þar hafa margir komið til okkar síðustu 10 ár (sem eru árin sem við höfum verið með liðið í toppklassa) “.

Munt þú halda áfram sem þjálfari liðsins?

,,Ég á eitt ár eftir af mínum samningi. Það tímabil verður mitt þrítugasta í röð í ÍBV handball club, fór reyndar eitt tímabil (992000) í Víking þegar ég var í HR. Ég er hrikalega stoltur af þessari staðreynd og mun reyna hvað ég get að hafa það tímabil jafn skemmtilegt og þetta sem var að klárast“.

Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum Siggi minn?

,,Vissulega er orðið bara takk. Takk stjórn, takk Vilmar (sem er að hætta hjá okkur), takk Himmi minn, Elli styrkarþjálfari, Bjartey og Kolbrún sjúkraþjálfarar , Ester

Sandra Dís og Harpa liðsstjórar. Svo að sjálfsögðu allir Eyjamenn og konur, það eru forréttindi að vinna í sporti með svona stuðning eins og hér. En þetta er engin endastöð nú er bara negla sér í smá frí, styðja peyjana til sigurs og svo næsta season“.

titillinn sem ég var að vinna persónulega, en einnig sá fyrsti í nokkuð mörg ár hjá kvennaliði ÍBV. Við lentum í töluverðu mótlæti í aðdraganda leiksins og í leiknum sjálfum sem við létum ekki á okkur fá. Fengum gífurlegan stuðning í stúkunni í Höllinni frá hvítklæddu

Hrafnhildur Hanna nú var árangurinn ykkar á tímabilinu hreint út sagt frábær, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

,,Það var svo margt eftirminnilegt á þessu tímabili sem væri hægt að tala um. En titlarnir tveir eru það sem stendur upp úr. Að sjá vinnu síðustu mánaða og ára vera að skila sér“.

Hvort fannst þér erfiðara að sækja bikar- eða deildarmeistaratitilinn? Og hvor titillinn var sætari? ,,Mér fannst báðir titlarnir hafa sinn sjarma. Við vorum í harðri baráttu við Val um báða þessa titla. Við komumst langt með það að tryggja okkur deildarmeistaratitilinn þegar við unnum Val með flautumarki á heimavelli þegar nokkrir leikir voru eftir. Það var líklega einn dramatískasti leikur sem ég hef spilað, með fulla stúku af okkar fólki og frábær stemming. Það var virkilega sætt. Að vinna deildina er mjög vanmetið að mínu mati, enda mjög erfitt að vinna þann titil. Til þess þarf stöðugleika yfir allt tímabilið og því er ég mjög stolt af liðinu að ná að sækja deildarmeistaratitilinn. Bikarmeistaratitillinn var hins vegar mjög sætur. Þetta var fyrsti

eyjafólki sem hjálpaði okkur við að klára leikinn með sigri og gerði upplifunina enn þá betri með því að fá að sigla með þeim heim til eyja með bikarinn“.

Hvernig var svo upplifunin að sigla heim með bikarinn?

,,Frábær! Mikið búið að segja mér frá því að það væri nauðsynlegt að prufa að sigla heim með bikarinn og tala um hvað það sé ólýsanleg tilfinning. Það hefur því verið draumur hjá mér lengi og

stóðst svo sannarlega væntingar. Að ferðast heim með okkar fólki eftir þennan skemmtilega sigur er virkilega dýrmætt, og hvað þá að fá þær móttökur sem við fengum á bryggjunni frá okkar fólki sem stóð vaktina heima. Held ég geti talað fyrir allt liðið þegar ég segi að við höfum svo sannarlega fundið fyrir stuðningum í vetur sem hefur verið ómetanlegur. Fyrir það segi ég bara TAKK!“.

Nú stóðst þú þig hreint út sagt frábærlega á tímabilinu og varst einn af bestu ef ekki besti leikmaður deildarinnar. Myndir þú segja að þetta væri þitt besta tímabil á þínum ferli? ,,Takk fyrir það. Það má alveg segja að þetta sé mögulega besta tímabilið hingað til hjá mér persónulega. Mér hefur heilt yfir bara liðið nokkuð vel á þessu tímabili og náð finna mig ágætlega inni á vellinum. Það er þó ekki hægt nema að vera með frábæra liðsfélaga og vera umkringdur góðu fólki, en þar hef ég verið mjög heppin og á mörgum að þakka. Fyrir þetta tímabil hafði ég ekki verið í liði sem hefur unnið titil í meistaraflokki í handbolta. Það var því klárlega risastór draumur að rætast að ná núna í 2 af 3 bikurum á þessu tímabili og ég er virkilega stolt að hafa fengið að vera partur af þessu einstaka liði“.

Hvernig lítur þú á tíma þinn hjá ÍBV þar sem af er og hvernig hefur þér líkað dvölin í Vestmannaeyjum?

,,Núna var ég að klára mitt þriðja tímabil hjá ÍBV og ég hef verið mjög ánægð með þann tíma sem ég hef verið hér. Mér hefur alltaf þótt vænt um Vestmannaeyjar enda ættuð héðan og kom hingað reglulega áður en ég flutti. Fyrsta árið hér var aðeins litað af Covid, annað árið fór svo mestmegnis í meiðsli hjá mér persónulega, en núna þriðja árið hefur verið virkilega skemmtilegt og við svo sannarlega að uppskera eftir vinnu síðustu ára“.

Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir á nýafstöðnu tímabili? ,,Já ég er alltaf að vinna að ákveðnum markmiðum. Fyrir þetta tímabil var ég búin að vera lengi

frá í meiðslum sem gerðu það að verkum að ég vissi ekkert hversu mikið ég gæti spilað handbolta aftur. Mitt stóra markmið var því bara að geta spilað handbolta aftur, bæði varnar- og sóknarlega. Til þess að styðja undir það stóra markmið var ég að vinna í mörgum öðrum minni markmiðum, t.d. sem tengjast æfingum, mataræði, hugarfari og ýmsu öðru. Mér tókst að ná stóra markmiðinu sem ég er mjög þakklát fyrir“.

Myndir þú segja að stemmingin í liðinu sé betri á þessu tímabili heldur en á undanförnum tímabilum? ,,Stemmingin í liðinu er búin að vera mjög góð á þessu tímabili. Þetta er mjög þéttur og skemmtilegur hópur sem inniheldur marga ólíka karaktera sem fá að njóta sín. Við elskum

að vera saman og það er klárlega liðsheildin sem skilar þeim árangri sem náðst hefur“.

Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? ,,Ég vil bara nýta tækifærið til að þakka enn og aftur fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið í gegnum tímabilið. Það hefur verið einstakt að vera partur af þessu samfélagi sem stendur við bakið á manni sama hvað gengur á“.

Við þökkum Sigga og Hrafnhildi Hönnu kærlega fyrir spjallið og óskum stelpunum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Eyjamenn geta svo sannarlega verið stolir af stelpunum sínum.

NÆGJUSÖMUM STARFSKRAFTI ÓSKUM EFTIR

FRÍÐINDI Í STARFI

Óþægileg stemning á vinnustað

Sumir fá launahækkun, aðrir ekki

Skýr mismunun í ómissandi starfi

SÆKTU UM STRAX Í DAG

sömulaun.is s: 515 4900

Vestmannaeyjabær neitar að leiðrétta augljóst launamisrétti.

Fólk í ómissandi störfum á skilið launahækkun eins og aðrir.

SÖMULAUN.IS SÖMULAUN.IS SÖMULAUN.IS
SÖMULAUN.IS SÖMULAUN.IS
SÖMULAUN.IS

NÁMSFERÐ TIL AUSCHWITZ VARÐ AÐ VERULEIKA FRÉTTAHORN

Eins og Eyjafólk hefur eflaust orðið vart við, hafa nemendur í söguáfanga skólans verið öflugir í fjáröflunum þessa vorönnina. Markmið fjáröflunarinnar var að safna fyrir námsferð til Kraków í lok annar og skoða m.a. hinu alræmdu útrýmingarbúðir nasista n.tt. Auschwitz-Birkenau. Einstaklingar, sem og ýmis fyrirtæki, voru mjög dugleg að styrkja nemendur okkar og þökk sé þessum góðu viðtökum varð ferðin að veruleika.

Sunnudaginn 14. maí flugu 13 nemendur FÍV ásamt tveimur kennurum, Auðbjörgu Höllu Jóhannsdóttur og Tinnu Hauksdóttur, til Kraków í suðurhluta Póllands. Borgin er þekkt fyrir ríka sögu og menningu, en hún var fyrsta borg Póllands til að komast á heimsminjaskrá UNESCO. Eftir langt ferðalag nýttu nemendur restina af deginum í að skoða borgina (þá sérstaklega verslunarmiðstöðina).

Á mánudeginum var hópurinn sóttur snemma upp á hótel og keyrt var af stað til Auschwitz.

Nemendur höfðu verið vel undirbúnir fyrir ferðina og unnið ýmiskonar verkefni tengd seinni heimsstyrjöldinni og enn ítarlegri verkefni tengd helförinni. Þrátt fyrir undirbúninginn og þá mikla þekkingu sem nemendur bjuggu yfir komu útrýmingarbúðirnar samt að óvart. Við byrjuðum á því að skoða fyrstu búðirnar (Auschwitz I) þar sem að skiltið Arbeit macht frei tók á móti okkur. Það var ólýsanleg tilfinning að ganga um svæðið og inn í byggingarnar þar sem slíkur hryllingur hafi átt sér stað. Við fengum að sjá aðstæður fanganna og ýmsa muni sem höfðu fundist eftir að bandamenn tóku yfir búðirnar undir lok stríðsins s.s. gleraugu, og hjálpartæki eins og hækjur og gervifætur sem höfðu verið fjarlægðir af fórnarlömbum nasista, og einnig mikið magn tómra gas hylkja (zyklon b) sem höfðu verið notuð í gasklefana. Það var átakanlegt þegar við gengum fram hjá skópörum fórnarlambanna og rákum augun í smæstu skónna, en yfir 200.000 börn voru tekin af lífi í Auschwitz, og voru ungbarnaföt meðal

safngripanna. Nemendur voru þó flestir sammála um að erfiðast var að labba inn í gasklefann sjálfan og þar á eftir sjá bræðsluofnana.

Eftir að hafa gengið um Auschwitz I í tæpa þrjá klukkutíma fórum við yfir í seinni búðirnar Birkenau en það er sá hluti sem var byggður í þeim tilgangi að útrýma fólki. Þar sáum við hvernig lestarvögnum fólkið var flutt í og gerðum okkur grein fyrir stærð búðanna. Fjölmargar rústir blöstu við innan gaddavírsgirðinga og svo við endann voru rústir tveggja stórra bygginga sem höfðu verið gasklefar og bræðsluofnar – en nasistarnir reyndu að hylma yfir og fela það sem hafði átt sér stað þarna. Við fengum síðan að fara inn í einn gistiskálann, þar sem hundruðum fanga var komið fyrir og það var sláandi að sjá þrengslin„9-18 fangar að sofa á svæði sem kannski rúmar 3“ eins og einn nemandi hafði orð á. Aðrir nemendur töluðu um að eitt af því sem kom á þá var allt hárið á safninu og sjá hvernig hár fórnarlambanna hafði verið notað

FÍV

til þess að búa til vefnaðarvörur. Þetta er í raun einungis brot af því sem að við sáum í þessari átakanlegu heimsókn þar sem 1.3 milljón manns létu lífið, og nær alla leiðina til baka upp á hótel var þögn í bílnum.

Ferðin var samt ekki eingöngu átakanleg. Nemendur sáu um að skipuleggja þriðjudaginn og tóku sjálf að sér leiðsögumannahlutverkið. Við byrjuðum snemma á þessum sólríka degi og fórum í miðborg Kraków og skoðuðum konunglega kastalann Zamek Wawel og kirkjuna sem er þar uppi. Við gengum yfir í Remah kirkjugarðinn sem er einna frægastur fyrir að hafa verið nýttur af nasistum, en þeir tóku legsteinana og nýttu í gatnagerð. Kirkjugarðurinn var svo lagaður eftir stríð og þeir legsteinar sem var ekki hægt að púsla saman voru nýttir í veggjagerð umhverfis garðinn. Leiðin lá svo til Plac Bohaterow, torgið við gettó Kraków. Þar standa núna stólar til minningar um þá sem sátu á torginu og biðu eftir að vera fluttir í útrýmingarbúðir. Við gengum fram hjá verksmiðju Oskar’s Schindlers og að lokum var gengið upp Krakus Mound sem er með elstu minjum borgarinnar, og notið útsýnisins. Eftir gönguferðina fengu nemendur frjálsan tíma og hlupu margir hverjir beinustu leið í verslunarmiðstöðina, aðrir upp á hótel herbergi að hvíla sig og nokkrir skelltu sér á Oskar Schindlers safnið (sögukennaranum til mikillar gleði). Við sáum mikið af allri borginni þennan dag, virkilega snyrtileg og falleg borg, glæsilegar byggingar og skemmtileg hverfi. Það er óhætt að segja að allir voru með þreytta fætur eftir þennan mikla göngudag og tilbúnir að fara heim til Íslands næsta dag.

Nemendur töluðu um í byrjun annar að eitt markmið ferðarinnar var að setja sig í spor fortíðarinnar til að auka skilning þeirra á því sem gerðist og hvernig það gat gerst. Þá má halda því fram að þessu markmiði hafi verið náð. Þó að það sé enn erfitt að skilja hvernig þetta gat gerst, þá eru

allir sammála um að heimsóknin undirstrikaði mikilvægi þess að vera meðvitaður um hvað fordómar geta verið hættulegir. Að lokum langar mig að þakka nemendum mínum persónulega, ekki bara fyrir að hafa komið með hugmyndina, heldur fyrir að vera tilbúin að framkvæma hana. Það er auðveldara sagt en gert að setja svona ferð á laggirnar og hún krefst mikillar

vinnu. Þið megið vera stolt af ykkur. Þetta var ógleymanleg ferð með samheldnum og duglegum nemendum FÍV.

Tinna Hauksdóttir Kennari við FÍV

Fleiri myndir munu birtast með greininni inn á tigull.is

HLÖÐUM Í HAGKVÆM

FJÖLSKYLDUÆVINTÝRI

JEEP® COMPASS HENTAR ÞÉR FULLKOMLEGA

Rafmagnaður, fjórhjóladrifinn Jeep® Compass skilar þér hvert á land sem er. Pláss fyrir allt, alla og öll þín ævintýri út í búð eða upp á næsta fjall. Sumarkaupauki fylgir öllum Jeep® Compass og Jeep® Renegade. Dráttarbeisli, aurhlífar, hleðslukapall og þjónustuskoðanir að verðmæti 455.000 kr.

GLÆSILEGUR

455.000 KR. SUMARKAUPAUKI FYLGIR MEÐ

TÖKUM ALLAR

GERÐIR BÍLA UPP Í

HYBRID
PLUG-IN
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 • ISBAND.IS • JEEP.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.