17. tbl. 02. árg. 13. - 20. maí 2020
EIGENDAHÓPURINN STÆKKAÐI & NÝTT NAFN
Hafdís , Ásta Jóna & Ásta Hrönn eigendur hárgreiðslustofunnar Sjampó
SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Þrátt fyrir rekstrarstöðvun og erfiða tíma undanfarnar vikur sátu stelpurnar á hárgreiðslustofunni Dízó ekki auðum höndum Þær réðust í ýmsar betrumbætur, nafnabreytingu og Ásta Hrönn Guðmannsdóttir bættist í eigendahópinn. Það eru því framundan breyttir og bjartir tímar hjá stelpunum.
TÍGULL
Hafdís Ástþórsdóttir opnaði hársnyrtistofuna Dízo árið 2008, en árið 2010 gekk Ásta Jóna Jónsdóttir til liðs við hana sem meðeigandi stofunnar og hafa þær rekið stofuna saman undanfarin 10 ár. Núna hefur Ásta Hrönn Guðmannsdóttir bæst í eigendahópinn, en Ásta Hrönn hefur starfað á stofunni undanfarin 9 ár og er því kunnug staðháttum. „Okkur fannst kominn tími á breytingu því Dízo er upprunalega gamalt IRC nick frá Hafdísi og vísaði þar að leiðandi of mikið í hana eina, sem okkur þótti ekki nógu skemmtilegt
þar sem við erum orðnar þrjár jafnir eigendur,“ sögðu stelpurnar. Þær segja að það séu í raun ekki aðrar breytingar eða áherslur sem hafi fylgt þessu, „það er jú alltaf að verða notalegra og fallegra hjá okkur. En alltaf jafn gaman hjá okkur, örugglega ennþá skemmtilegra núna þar sem við munum líklega skála oftar í sjampó. Annars er yndislegt að vera komnar aftur í vinnu eftir margra vikna frí og gott að hitta kúnnana okkar aftur ,“ sögðu þær að endingu.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumótel: Óttar Steingrímsson / Ljósmynd: Tígull
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
ERT ÞÚ AÐ FARA AÐ SELJA EÐA KAUPA? Býð uppá frábært tilboð fyrir þá sem koma í einkasölu til okkar í sumar Frí ljósmyndun á eigninni hjá atvinnuljósmyndara - myndirnar segja meira en þúsund orð. Sýni allar fasteignir sjálf - persónuleg og góð þjónusta. Svara öllum fyrirspurnum fljótt og vel - auglýsi á Instagram, facebook og öllum netmiðlum landsins.
Arndís Kjartansdóttir Löggiltur fasteignasali 861-8901 disa@allt.is Allt fasteignir, Eldey Vestmannaeyjum
Hafið samband, þið sjáið ekki eftir því.
Sama verð og hjá öðrum fasteignasölum í Eyjum gerið verðsamanburð. Ekkert umsýslugjald er rukkað af seljendum við sölu eignar. Vítt dreifikerfi - allar fasteignir koma fram á 5 fasteignasölum víðsvegar um landið.
Sigrún Arna Gunnarsdóttir, innanhússhönnuður, býður uppá sérstakt tilboð á ráðgjöf fyrir viðskiptavini okkar.
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
BLÓMKÁL LAUKUR
BROKKOLI PAPRIKA
ENGIFERRÓT GULRÓT GÚRKA RADÍSA SELLERY TÓMATUR
Skipulagsmál í kynningarferli Í samræmi við ákvæði Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér til kynningar deiliskipulagsgögn á vinnslustigi tillögunnar.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 30. apríl 2020 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir athafnasvæði AT-1 sbr. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkti Bæjarstjórn að falla frá fyrri tillögu að deiliskipulagi svæðisins dags. 8. júlí 2019. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir austurhluta athafnasvæðis AT-1 og hluta miðsvæðis M-1. Skipulagssvæðið afmarkast af Heiðarvegi til austurs, Norðursundi og aðliggjandi deiliskipulagsmörkum til norðurs, Flötum og lóðamörkum Heiðarvegar 14 og Faxastígs 36 til vesturs og Faxastíg til suðurs. Deiliskipulagssvæðið er um 2,7 ha að stærð. Tillagan er sett fram í greinargerð og á uppdrætti í mkv 1:1000, dags. 20. apríl 2020. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 8. maí 2020 til og með 19. júní 2020.
Tillagan verður einnig birt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjabær.is undir Skipulagsmál. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 19. júní í afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið bygg@vestmannaeyjar.is
Skipulagsfulltrúi Vestmannaeyja
HÚS TIL LEIGU Hús í langtímaleigu, með þremur svefnherbergjum. Nánari upplýsingar í síma 775-3108 ( Sævar)
VISSIR ÞÚ... ? Vissir þú að grasflötin sem er í miðjum Lyngfellisdal heitir Ræningjaflöt? Sagt er að ræningjarnir í Tyrkjaráninu 1627, hefðu kastað mæðinni eftir gönguna frá Ræningjatanga, þar sem þeir komu að landi. Á Ræningjaflöt munu þeir hafa þurrkað púður sitt áður en þeir héldu áfram og frömdu þau mestu níðingsverk sem Eyjamenn hafa nokkru sinni mátt þola.
Bókasafnið er opið v irka daga frá kl 10-17 Bókasafn Vestmannaeyja opnaði aftur mánudaginn 4. maí eftir afléttingu takmarkana á samkomum vegna Covid-19. Allir snertifletir eru þrifnir reglulega og við sótthreinsum allar bókakápur áður en þær fara upp í hillu og aftur þegar þær fara í útlán. Við viljum biðja gesti okkar um að spritta hendur eða setja á sig hanska við komu inn á safnið og passa að halda sig í 2 metra fjarlægð við aðra. Spritt og hanskar eru að sjálfsögðu í boði við inngang Bókasafnsins. Enn er hægt að hringja til að panta bækur, framlengja lánstíma eða leita upplýsinga í síma 488-2040 á opnunartíma eða með því að senda okkur skilaboð á Facebooksíðu Bókasafns Vestmannaeyja. Einnig má biðja starfsmann um að finna til bækur við komu á safnið. Við hlökkum til að sjá ykkur! Starfsfólk Safnahúss
20%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM NANNI JÖKKUM /smarteyjan
#smarteyjan
smarteyjan
www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340
Ristjóri Eyjafrétta ullar á ljósmyndara Tíguls
Sindri Ólafsson ritstjóri Eyjafrétta rúllaði upp heilum hring í The puffin run, 20 km.
THE PUFFIN RUN UM SÍÐUSTU HELGI The Puffin Run fór fram síðastliðinn laugardag og var það virkilega vel heppnað í alla staði, vissulega með öðrum reglum og þurfti sem dæmi að afhenda verðlaunahöfum hlaupsins verðlaunin eins fljótt og hægt var. Biðja þurfti fólk að vera ekki lengi í endamarkinu eftir að hlaupinu lauk hjá keppanda.
Úrslit hlaupsins:
Í flokki einstaklinga voru sigurvegarar karla og kvenna þessir:
Í flokki para kk/kk, kvk/kvk og kk/kvk 1. Gísli Guðmundsson og Jochum Magnússon – tími 1:54:17 ( fæddir 2008 ) 2. Bryndís Hrönn Kristinsdóttir og Hugrún Elvarsdóttir – tími 1:52:58 3. Marteinn Urbancic og Sara Hrund Helgadóttir – tími 1:54:17 Í flokki hópar kk/kk, kk/kvk og kvk/kvk
1. Sigurjón Ernir Sturluson – tími 1:26:02 2. Snorri Björnsson – tími 1:26:18 3. Vignir Már Lýðsson – tími 1:27:49
1. Garðar Heiðar Eyjólfsson, Sindir Viðarsson, Andri Þór Gylfason og Hjálmar Jónsson – tími 1:34:39
1. Thelma Björk Einarsdóttir – tími 1:44:16 2. Mari Jaersk – tími 1:46:02 3. Sóley Guðmundsdóttir – tími 1:47:45
2. Sindri Georgsson, Elín Sandra Þórisdóttir, Sæþór Gunnarsson og Bjartey Gylfadóttir – tími 1:54:33 3, Minna Ágústsdóttir, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir, Tinna Tómasdóttir og Sigríður Lára Andrésdóttir – tími 2:02:59
Viðarvörn
fyrir íslenskar aðstæður Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.
Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga
Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM
- það segir sig sjálft -
GRILLAÐAR QUESADILLAS - Uppskrift vikunnar -
Þessi uppskrift miðast við fjórar bragðgóðar vefjusamlokur sem auðvelt og fljótlegt er að græja á grillið. Hráefni: 2 Kjúklingabringur, grillaðar & vel kryddaðar með kryddi að eigin vali. 8 tortillavefjur Rjómaostur Salsasósa Rifin ostur Ferskur kóríander Einnig er hægt að hafa annað grænmeti að eigin vali. Aðferð: Smyrjið vefjuna með rjómaost og salsasósu. Skerið grillaðan
kjúklinginn í sneiðar og leggið á vefjuna. Sáldrið osti og kóriander yfir. Lokið með annari vefju. Grillið í 1-2 mín á hvorri hlið. Skerið í fjóra bita og berið fram með láperumauk, salsasósu & sýrðum rjóma. Einnig hægt að steikja á pönnu 1-2 mín á hvorri hlið.
Auðveld & gómsæt skyrkaka Hráefni: 150 g LU kanilkex 120 g smjör, brætt (má sleppa) 500 gr vanilluskyr (eða önnur tegund að eigin vali) 250 ml rjómi
Aðferð: Myljið kexið niður og blandið saman við brætt smjörið. (Má sleppa smjörinu og hafa aðeins mulið kex í botninum) Setjið í form. Þeytið rjómann og blandið síðan skyrinu saman við rjómann með sleif. Setjið rjómablönduna ofan á botninn. Frystið í 15-20 mínútur. Takið úr frysti og setjið ber, sultu eða annað gúmmelaði sem ykkur langar í. Fyrir smá extra er hægt að bræða tvö snickers með 2 msk af rjóma í potti og hella yfir skyrkökuna eftir frystingu.
Launafulltrúi á launadeild Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir eftir launafulltrúa á launadeild bæjarins til afleysingar í eitt ár. Um er að ræða 80% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf þann 1. júní nk. Launafulltrúi annast ásamt deildarstjóra launadeildar umsjón launavinnslu og eftirlit með framkvæmd kjarasamninga.
Helstu verkefni: Launavinnsla, útreikningur, skráning og frágangur launa. Upplýsingagjöf til starfsmanna vegna útborgunar launa Umsjón með Vinnustund, viðveru- og fjarveruskráningu starfsfólks Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila. Eftirlit með framkvæmd kjarasamninga. Samráð og ráðgjöf til stjórnenda á sviði kjaramála, þ.m.t. þátttaka í undrbúningi launaáætlana Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi er kostur. Þekking á kerfum sem tengjast launavinnslu er kostur (t.d. Navision, Oracle eða annarra sambærilegra kerfa). Þekking á kjarasamingum er kostur Góð tölvukunnátta Kunnátta og færni í Excel og Word Jákvæðni og lipurð í mannlegum samsktipum
Nánari upplýsingar um starfið: Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Sigurjónsdóttir, deildarstjóri launadeildar í síma 488-2000 eða á netfangið: eyrun@ vestmannaeyjar.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og launanefndar sveitarfélaga. Vestmannaeyjabær hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 3, 900 Vestmannaeyjum og merkja „launafulltrúi á launadeild Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk.
Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV
l
F
L
S
l
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2020. Brottf.
Lent
7:15
7:40
l l
15:45 16:10
l
Frá VEY
Starfslaun bæjarlistamanns 2020
l
17:30 17:55
l
16:30 16:55 18:15 18:40
8:00
l l l
8:25
Flugáætlun gildir til 31. maí
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. - Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2020. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. júní. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000
Tannlæknar 12. -17. maí Hjalti Þórðarson 22. - 24. maí Rakel Ósk Þrastardóttir
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
/crispus
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-3332 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.
Hönnun / umbrot á auglýsingaefni / greinaskrif Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala o.fl. leturstofan@leturstofan.is
Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is
VIÐ ÞURFUM Á ÞÉR AÐ HALDA! Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga stjórnar um að aðalfundurinn staðfesti samruna við Útgerðarfélagið Glófaxa ehf. 3. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfundinn. Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Þau framboð sem þegar hafa borist halda fullu gildi nema viðkomandi dragi framboð sitt til baka. STJÓRN VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF.
>> Hefur þú tök á að aðstoða okkur? >> Þú getur hjálpað okkur að tryggja útgáfu blaðsins í hverri viku >> Nánari upplýsingar inn á www.tigull.is >> Einnig er hægt að leggja beint inn á styrktarreikninginn, upplýsingar hér: Kennitala: 650219-0900 Reikningsnúmer: 185-15-20007 >> Tígull er frjálst og óháð, fyrir allt eyjafólk og gesti.
Innritun lýkur 10.júní Nánari upplýsingar á www.fiv.is Vekjum athygli á fjölbreyttu námi til stúdentsprófs Boðið er upp á stúdentspróf sem viðbót við iðn- og starfsnám.
Félagsvísindalínu
FÍV í 40 ár
Náttúruvísindalínu
Opin lína þar er má velja á milli íþrótta-, lista- og kjörnámssviðs.
/fiv79
/framhaldsskolinnivestmannaeyjum/