Skip to main content

Tígull 16.tbl 04 árg.

Page 1

16. tbl. 04. árg. 4. - 10. maí 2022

Svona breytist lífið í Vestmannaeyjum

Við höldum fram á réttri leið

Samgöngumál á réttri leið!

Eyþór Harðarson Oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Njáll Ragnarsson Oddviti E-lista, Eyjalistans, og formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar

Páll Magnússon Oddviti H-lista Fyrir Heimaey

X

20 22

OPINN FRAMBOÐSFUNDUR Í ELDHEIMUM MIÐVIKUDAGINN 11. MAÍ KL 18:00

Á fundinum fá framboðin tækifæri á að kynna málefnin sín ásamt því að spyrja spurninga sín á milli og einnig gefst bæjarbúum kostur á að spyrja framboðslistana spurninga. Nánar auglýst síðar.


VIÐBURÐIR FRAMUNDAN MIÐ

04 MAÍ

LAU

07 MAÍ

LAU

07 MAÍ

LAU

07 MAÍ

LAU

07 MAÍ

LAU

07 MAÍ

LAU

07 MAÍ

MÁN

09 MAÍ

07

ÍBV - HAUKAR Olísdeild karla | úrslit Íþróttamiðstöðin kl. 18:00

Laugardagur

í Eldheimum

MAÍ

THE PUFFIN RUN Fyrsti hópur ræstur við bæjarbryggju kl. 12:15 KFS - ÍH 3. deild karla Týsvöllur kl. 14:00

HLJÓMSVEITIN BREK

KEFLAVÍK -ÍBV Besta deild karla

HS Orku völlurinn kl. 16:00

Hljómsveitin Brek heimsækir Eyjar um helgina og heldur tónleika í Eldheimum. „Við í hljómsveitinni Brek hlökkum gríðarlega mikið til að koma til í Eyja til að hlaupa í Puffin Run og halda svo tónleika í Eldheimum um kvöldið!,“ sagði Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari sveitarinnar í samtali við Tígul.

KFS - ÍH 3. deild karla Týsvöllur kl. 14:00 Tónleikar HLJÓMSVEITIN BREK

í Eldheimum kl. 20.00 PUFFIN PARTY í Höllinni

Hljómsveitin Brek var stofnuð haustið 2018. Sveitin leikur aðallega frumsamda, alþýðu skotna, tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, en meðlimir sveitarinnar leggja mikla áherslu á að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóðfæraleik sínum. Auk þess er lögð áhersla á fjölskrúðuga notkun íslenskrar tungu í textagerð.

Dagur & Fannar kl. 21.00 DJ Hjalti Enok kl. 23.59 KR - ÍBV Besta deild kvenna

Meistaravellir kl. 18.00

Hljómsveitina skipa Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari og Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari. Síðastliðin tvö ár hafa verið viðburðarík hjá Brek þrátt fyrir heimsfaraldur. Þann 30. mars síðastliðinn hlaut Brek t.a.m. Íslensku tónlistarverðlaunin 2021 fyrir plötu ársins í flokki þjóðlaga- og heimstónlistar.

Tónleikarnir fara fram í Eldheimum á laugardaginn og hefjast kl. 20.00. Miðaverð er kr. 3.500.

leturstofan@leturstofan.is

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


X22 20

SVONA BREYTIST LÍFIÐ Í VESTMANNAEYJUM

EYÞÓR HARÐARSON

Oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar geta verið Bestmannaeyjar og pólitík getur verið ólgutík. Ég man þá tíð í mínu lífi þar sem ég skildi ekki af hverju fólk gaf kost á sér til stjórnmálaþátttöku. Er þetta bara fólk sem finnst gaman að rífast eða er einhver flottheitaháttur í gangi? Eftir því sem árunum fjölgaði og ég tók þátt í félagsstarfi eins og handboltanum hjá ÍBV og Akóges, ásamt útgerðarstjórastarfinu sem ég hef alltaf verið svo þakklátur fyrir í okkar helstu atvinnugrein, fór ég að sjá að Eyjamenn búa yfir einhverju alveg sérstöku. Okkar stærstu lífsgæðastökk koma oft þegar við ákveðum að sækja sjálf tækifærin, hvort sem það var nútímavæðing sjávarútvegsins, uppbygging framúrskarandi íþróttastarfs eða að byggja upp langbestu tónlistarhátíð landsins, þá hefur orkan og frumkvæðið komið frá okkur. Mér varð sérstaklega hugsi til þessa alls þegar ég sat einn í eldhúsinu heima fyrr á þessu ári með bláa kaffibollann minn í hendinni og góður vinur var nýbúinn í heimsókn þar sem hann þurfti að pústa all hressilega. Þessi góði vinur sem ég held að hafi aldrei setið á skoðun sinni, burtséð frá gæðum hennar, listaði upp með lítilli fyrirhöfn: „af hverju í ósköpunum eru öll okkar stærstu mál komin í hálfgerðan lamasess, flugsamgöngur eru ekki tíðar, aðstæður fyrir eldra fólk eru ekki í lagi og núna ráðum við ekki lengur yfir þeim málum, sjúkraflugið hefur færst lengra í burtu, það er ekki hægt að fá mannsæmandi háhraðanet, ef vatnsleiðslan okkar fer í sundur gætum við hreinlega þurft að rýma eyjuna og síðast en ekki síst, þá erum að senda allt unga fólkið okkar upp á land í óvissu með tíma og aðstæður ef það vill eignast börn.“

Ég hugsaði að þetta væri nú kannski að sjá glasið hálftómt, það væri nú alls ekki alslæmt hér í Eyjum heldur. En stuttu seinna kom þessi ræða hans kröftuglega aftur í huga mér þegar ég var áminntur um þá miklu óvissu sem við vorum að ganga í gegnum með orkuna sem við þurfum til að geta klárað okkar stærstu gjaldeyris innspýtingu flest ár, sem er loðnuvertíðin. Eyjamenn lifa við mikið óöryggi í rafmagnsmálum þar sem við þurfum að treysta á einn sæstreng og annar sæstrengur virðist ekki vera í augsýn. Það er hreinlega ekki sanngjarnt að leggja á nokkurn mann sem ætlast til grundvalla lífsgæða að lifa við slíkt óöryggi varðandi þjónustu sem hið opinbera á að tryggja. Það var í þessum jarðvegi sem hugur minn var að hreyfast þegar kallið kom með að skoða þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ef að maður ætti einhvern tímann að gefa kost á sér að fullu í slíkan slag þá væri svo sannarlega af nógu að taka þessi misserin til að geta bætt lífsgæðin okkar í Vestmannaeyjum. Eftir vel heppnað prófkjör okkar Sjálfstæðismanna þar sem ég endaði sem oddviti settumst við frambjóðendurnir niður og ræddum þessi mál og komumst að því að við vorum öll sammála um að nú þyrfti stórsókn í málum okkar Eyjamanna gagnvart stjórnvöldum. Við ákváðum því að bíða ekki frekar með þá sókn og höfðum beint samband við þingmenn og ráðherra okkar og buðum þeim í heimsókn til Vestmannaeyja. Við kynntum þeim málefni okkar, tókum þau í rútuferð

um Vestmannaeyjar og sýndum þeim Hraunbúðir, flugvöllinn, stöðuna á tengimálum okkar í rafmagni og vatni, sjúkrahúsið og Herjólf og fræddum þau um áskoranirnar. Samtal hófst og áður en heimsókn var lokið lá fyrir grundvöllur að samtali í okkar lykilmálum. Fleira lá fyrir, sókn í málefnum sýslumanns- og lögregluembættisins. Eftir þriggja tíma fund með dómsmálaráðherra og okkur í Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum, lá fyrir skýr vilji til þess að færa aukin verkefni til Vestmannaeyja með tilheyrandi störfum og aukinni sérþekkingu. Mun ballið byrja með því að færa rannsókn fiskveiðilagabrota til lögreglu og rammi utan um fleiri verkefni til sýslumannsembættisins á sama tíma og staða sýslumanns hér yrði tryggð. Ég og við í Sjálfstæðisflokknum erum geysilega stolt af þessu og ég sé að það er hægt að ná stórauknum árangri í málefnum okkar Eyjamanna næstu árin með skipulagðri stórsókn í okkar hagsmunamálum, á okkar forsendum. Ég vil geta sagt við barnabörnin mín: Ég lagði mitt lóð fram af öllum þunga svo að þið getið vonandi stolt sagt: „því hér á ég heima afi“. Ráðumst í stórsókn í okkar lífsgæðum og hagsmunagæslu kæru Vestmannaeyingar. Því hér eigum við heima. Upp með sokkana.


ALLT AÐ

45% AFSLÁTTUR FYRIR KLÚBBFÉLAGA

4 ára

afmælisveisla Skanva.is Pantaðu glugga og hurðir á netinu Skanva hefur yfir 10 ára reynslu í Skandinavíu, þar sem gott og vandað gæðahandverk einkennir alla glugga og hurðir Skanva. Þar að auki eru Skanva gluggar og hurðir vottaðir og slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður. Skanva framleiðir glugga og hurðir í margvíslegum útfærslum, þar sem er lögð áhersla á efnisgæði, öryggi og fagurfræði.

Netklúbbur Skanva.is Skanva ehf. - Fiskislóð 73 - 101 Reykjavík - S: 558 8400


BETRI EYJAR EYJAR -- FYRIR FYRIRALLA! ALLA! BETRI Vestmannaeyjabær er er stærsta stærsta þjónustufyrirtækið þjónustufyrirtækið í í Vestmannaeyjabær sveitarfélaginu með með fjölþætta, fjölþætta, lögbundna, lögbundna, ólögbundna ólögbundnaog og sveitarfélaginu mikilvæga þjónustu þjónustu sem sem nær nær tiltil allra allra íbúa. íbúa. Markmið Markmið mikilvæga

bæjarins ætti ætti bæjarins best og hægt best og hægt

ávallt að að ávallt er hverju er hverju

vera að að þjónusta þjónusta alla alla íbúa íbúaeins eins vera sinni og horfa til framtíðar með sinni og horfa til framtíðar með

heildarhagsmuni að að leiðarljósi. leiðarljósi. heildarhagsmuni Bæjarmálafélagið Fyrir Fyrir Heimaey Heimaey Bæjarmálafélagið

var stofnað stofnað fyrir fyrir var háleitog og sveitarstjórnarkosningarnar 2018 2018 og og var var þá þámeð meðháleit sveitarstjórnarkosningarnar góð markmið til að bæta þjónustu við íbúa sama á hvaða góð markmið til að bæta þjónustu við íbúa sama á hvaða aldri þeir þeir voru. voru. Það Það hefur hefur tekist. tekist. aldri

Vinnan hjá hjá Fyrir Fyrir Heimaey Heimaey er er ekki ekki búin búin heldur heldurererhún húnrétt réttað aðbyrja! byrja!Á Ásíðustu síðustu4 4árum árum Vinnan hefur margt margt gengið gengið áá hjá hjá okkur okkur Eyjamönnum Eyjamönnumeins einsog ogmörgum mörgumöðrum, öðrum,meðal meðalannars annars hefur heimsfaraldur og og loðnubrestur loðnubrestur sem semhöfðu höfðuþar þarhvað hvaðmestu mestuáhrif. áhrif.Þrátt Þráttfyrir fyrirþað það verið heimsfaraldur erer verið skila styrkja skila af af sér sér góðu góðu búi búi í í lok lok þessa þessa kjörtímabils. kjörtímabils.Búi Búisem semvið viðviljum viljumhalda haldaáfram áframaðað styrkja og gera gera enn enn betur betur við við íbúa íbúa en envið viðhöfum höfumgert. gert. má þar Á síðustu er búið búið að að auka aukaþjónustu þjónustuvið viðíbúa íbúaá ámörgum mörgumsviðum sviðumogog má þar síðustu fjórum fjórum árum árum er nefna, nefna, tvöföldun tvöföldun áá frístundastyrk, frístundastyrk, snemmtæka snemmtæka íhlutun íhlutuní íleikskólum, leikskólum,1212mánaða mánaðabörn börn

geta geta fengið fengið leikskólapláss, leikskólapláss, heilsuefling heilsuefling eldri eldri borgara, borgara, úthlutun úthlutunlóða lóðaererí ísögulegu sögulegu hámarki, nýir hverfis leikvellir, uppbygging á skólalóðum, stofnaður var þróunarsjóður hámarki, nýir hverfis leikvellir, uppbygging á skólalóðum, stofnaður var þróunarsjóður leikleik- og og grunnskóla, grunnskóla, umhverfisstefna umhverfisstefna mótuð, mótuð, endurnýjaður endurnýjaður samningur samningurum umrekstur rekstur Herjólfs felur í í sér sér minni minni áhættu áhættu fyrir fyrir sveitarfélagið, sveitarfélagið,nýnýslökkvistöð slökkvistöðbyggð, byggð,nýný Herjólfs sem sem felur heimasíða tekin í notkun, íbúagáttin komin í fulla virkni og ég gæti haldið endalaust heimasíða tekin í notkun, íbúagáttin komin í fulla virkni og ég gæti haldið endalaust áfram áfram því því listinn listinn er er langur. langur.

Það stefna Fyrir Það eru eru mörg mörg spennandi spennandi verkefni verkefniframundan framundanog ogafafnægu næguað aðtaka takaogogererþað það stefna Fyrir Heimaey að hér verði fjölskylduparadís þar sem Vestmannaeyjar verður Heimaey að hér verði fjölskylduparadís þar sem Vestmannaeyjar verður margra þátta og mætti þar samkeppnishæfur valkostur til búsetu fyrir alla með tilliti til þar samkeppnishæfur valkostur til búsetu fyrir alla með tilliti til margra þátta og mætti nefna húsnæði, atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu, frístunda og menningar. nefna húsnæði, atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu, frístunda og menningar. Í stefnuskrá listans er farið yfir hvernig við náum þessum markmiðum á næstu árum. Í stefnuskrá listans er farið yfir hvernig við náum þessum markmiðum á næstu árum. Stóra markmiðið er að hér verði Betri Eyjar - fyrir alla! Stóra markmiðið er að hér verði Betri Eyjar - fyrir alla!

Rannveig Ísfjörð, formaður Bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey og varamaður í Rannveig Ísfjörð, formaður Bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey og varamaður í fræðsluráði fræðsluráði - Höfundur skipar 8. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum - Höfundur skipar 8. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum

HJARTANS HJARTANSHEIMAHÖFN HEIMAHÖFN


MINNA ÞRAS - MEIRI GLEÐI


X22 20 VIÐ HÖLDUM ÁFRAM Á RÉTTRI LEIÐ Sveitarstjórnarkosningar nálgast – það vita allir. Þá gefst okkur öllum kostur á því að velja þá einstaklinga og þá stefnu sem okkur hugnast best og við teljum til hagsbóta fyrir bæinn okkar. Við viljum öll að bærinn okkar blómstri og íbúar séu ánægðir með það hvaða stefnu bærinn tekur.

keflinu þegar ríkið tryggir þær greiðslur sem því ber að greiða með rekstrinum samkvæmt lögum. Þá er ein af stærstu kosninga­ áhersl­­­um Eyjalistans fyrir komandi kosningar uppbygging þjónustuíbúða fyrir eldra fólk og höfum við sett okkur það markmið að byggja 20 íbúðir á næstu fjórum árum. Þetta viljum við gera þar sem biðlisti er í þær íbúðir sem þegar eru til staðar og þörf vex jafnt og þétt. Okkar besta fólk sem byggði samfélagið okkar upp á skilið góða þjónustu og að geta notið ævikvöldsins með reisn.

Í mínum huga á bærinn að veita öllum íbúum góða þjónustu á sama tíma og gjöldum sé stillt í hóf. Það er staðreynd að fjárhagsleg staða bæjarsjóðs er sterk og svigrúm til staðar fyrir fjárfestingu í innviðum samfélagsins. Þetta verður verk­ efnið næstu árin. Betri skólar – öflugara samfélag Það á að vera hverju sveitarfélagi keppikefli að efla skóla og auka þjónustu við nemendur, hvar í skólakerfinu sem þeir eru. Fyrir fjórum árum var það aðalkosningaáhersla Eyjalistans að efla stoðþjónustu grunnskólans og búa svo um hnútana að allir nemendur fái notið sín í skólunum. Undanfarin fjögur ár hefur mikill árangur náðst í þessum efnum og höfum við meðal annars hafið snemmtæka íhlutun í leik- og grunnskólum, sem miðar að því að veita nemendum þann stuðning sem þeir þurfa þannig að þeir njóti sín og nái tökum á námsefninu. Við vildum sömuleiðis tæknivæða grunnskólann og innleiða nútíma­ lega kennsluhætti. Þetta hefur gengið eftir og er staðan í dag þannig að eitt tæki er á hvern nemenda í GRV. Að auki var ráðist í stórmerkilega menntarannsókn í breiðu samstarfi m.a. háskóla og atvinnulífs með það fyrir augum að auka árangur nemenda í grunnskólanum. Næst á dagskrá Eyjalistans er að byggja upp leikskóla til framtíðar. Leikskólarnir eru fyrsta skólastigið þar sem börn fá forsmekkinn af því sem koma skal í skólakerfinu og því hlýtur það að vera okkur

NJÁLL RAGNARSSON

Oddviti Eyjalistans og formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar

mikið kappsmál að faglegt starf í leikskólunum geti blómstrað og að kennarar fái tækifæri til þess að efla innra starf skólanna með þarfir nemenda að leiðarljósi. Uppbygging þjónustuíbúða fyrir okkar besta fólk Á fundi bæjarstjórnar þann 7. apríl sl. var samþykkt tillaga meirihluta bæjarstjórnar þess efnis að hefja þá vegferð að byggja upp nýtt hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum - heimilis sem uppfyllir kröfur nútímans gagnvart heimilisfólki, aðstandendum og starfsfólki. Ég þreytist ekki á að segja að rekstur hjúkrunarheimila er nær­ þjónusta sem sveitarfélögin eiga að sinna. Ömurlegt var hvernig ríkið kom fram í málaflokknum sem gerði það að verkum að fjöldi sveitarfélaga sá sér þann kostinn einan að skila rekstrinum aftur til ríkisins. Við verðum þó að vera tilbúin til þess að taka aftur við

Tökum upplýsta ákvörðun Þann 14. maí næstkomandi veljum við fólk til þess að sitja í bæjarstjórn næstu fjögur árin. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það fólk sem velst í bæjarstjórn mun vinna að heilindum í þágu bæjarbúa enda er á öllum listum að finna gott og frambærilegt fólk sem vill vinna bænum sínum gagn. Ég hvet alla sem á mig hlusta til þess að trúa ekki gylliboðum: Ef það hljómar of gott til að vera satt er það sennilega ósatt. Ábyrgir stjórnmálamenn lofa ekki einhverju sem þeir geta ekki staðið við. Það er mjög einfalt að slá fram dýrum kosningaloforðum, lofa öllu fögru sem oftar en ekki leiðir til þess að áhrifin verða þver öfug við það sem lofað var þegar upp er staðið. Það er mikilvægt nú sem aldrei fyrr að hugsa málin til enda og sýna ráðdeild og skynsemi. Það er líka mikilvægt að framboðin séu heiðarleg og hlaupi ekki fram með falskar upplýsingar til þess að fegra eigin málstað. Við þurfum að koma heiðarlega fram. Við eigum að benda á eigið ágæti og þau góðu mál sem við viljum koma á dagskrá í stað þess að níða niður það sem aðrir ætla að gera. Þetta ætlum við í Eyjalistanum að gera. Við ætlum að gera bæinn okkar enn betri.


Stendur til að skipta um gólfefni? Hjá Gólfefnabúðinni Selmúla er að finna mikið úrval af gólfefnum, bæði parketi og vínylparketi. Við bjóðum Vestmannaeyingum að fara inn á golfefnabudin.is og velja þar gólfefni og lit. Að því búnu þarf bara að senda tölvupóst eða hringja og við sendum prufuna heim að dyrum - án endurgjalds. golfefnabudin.is | hallo@golfefnabudin.is | 416 2300

OPIÐ HÚS

laugardaginn 7. maí milli k. 18 og 20 Nú höfum við opnað Kírópraktorstöðina í Vestmannaeyjum og fengið mjög góðar móttökur. Af því tilefni langar okkur að bjóða í opið hús á stöðinni okkar við Strandveg 26, jarðhæð, laugardaginn 7. maí milli klukkan 18-20. Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

VESTMANNAEYJUM


Því hér á ég heima

Ásgarður Kaffi og með því alla virka morgna kl. 09:30 fram að kosningum. Von er á góðu spjalli. Allir velkomnir 7. maí: Laugardagsfundur í Ásgarði kl. 11:00. 9.-13. maí: Súpa í hádeginu alla virka daga kl. 12:00-13:00.


„Kaffi Varmó“ 6. maí: Opnun kosningaskrifstofu Eyverja að Strandvegi 51. Grillaðar pulsur, Partners og stemmning. Eyverjapartý með Sprite Zero Klan og DJ kl. 21:00-24:00. Ýmsir popup viðburðir í vikunni fyrir kosningar. 12. maí: Þjóðhátíðarpepp á fimmtudagskvöldi. Magnús Kjartan Eyjólfsson brekkusöngvari kemur þér í gírinn.


X22 20

SAMGÖNGUMÁL Á RÉTTRI LEIÐ!

Samgöngumálin. Þetta eina orð er langoftast svarið þegar Eyjamenn eru spurðir hvaða mál það er sem er efst á baugi í samfélaginu – hvort sem það eru kosningar framundan eða ekki. Svona hefur þetta verið frá því að ég man eftir mér - og mun sjálfsagt verða líka þegar ég verð hættur að muna eftir mér! Þegar koma erfiðir mánuðir í samgöngunum - eins og voru núna í febrúar og mars þegar þurfti að fella niður fjölmargar ferðir í Landeyjahöfn – hættir okkur til að gleyma hversu mikið hefur áunnist í þessum málum bara á allra síðustu árum. (Og ágætt að muna líka, að ef þessi ótíð hefði ekki komið til núna hefði þetta verið þriðji veturinn í röð sem ekki hefði þurft að fella niður siglingar í Landeyjahöfn vegna dýpis). Lítum á nokkur atriði: Dýpkunartímabil felld niður Fyrstu samningarnir um dýpkun Landeyjahafnar fólu það í sér að engin skuldbinding var um viðhaldsdýpkun hafnarinnar í desember, janúar og febrúar. Þetta sýndi í raun það viðhorf samgönguyfirvalda að Landeyjahöfn gæti ekki/þyrfti ekki að vera opin allt árið. Horfið var frá þessum skilningi 2019; dýpkunarskip gert tiltækt allan veturinn og þannig viðurkennt að freista ætti þess að halda höfninni opinni allan veturinn líka. Nýr samningur um rekstur Herjólfs Upphaflegi samningurinn milli Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar fól í sér mikla fjárhagslega áhættu bæjarins af rekstrinum. Með nýjum samningi 2020 var þessi fjárhagsáhætta bæjarins, og þar með allra Eyjamanna, minnkuð og henni skipt með réttlátari hætti á milli eiganda skipsins, Vegagerðarinnar, og rekstraraðila. Úttekt á Landeyjahöfn Haustið 2020 var lokið fyrri hluta óháðrar úttektar á Landeyjahöfn. Ráðist var í þessa úttekt á grundvelli tillögu sem ég var

Lengi vel var því haldið fram að það myndi ekki samræmast Evrópureglum að ríkið styrkti flug til Eyja vegna þess að fyrir væru ríkisstyrktar siglingar, en nú hafa samgönguyfirvöld komist að þeirri niðurstöðu að svo er ekki. Og nú er Vegagerðin að ljúka undirbúningi fyrir útboð á flugi milli lands og Eyja, þótt vissulega eigi síðan eftir að tryggja fjármagnið. PÁLL MAGNÚSSON

Oddviti H-lista Fyrir Heimaey

fyrsti flutningsmaður að og fékk samþykkta á Alþingi. Síðari hluti úttektarinnar fer í útboð núna í maí og að henni lokinni verður hægt að taka ákvarðanir um þær endurbætur á Landeyjahöfn sem gera hana að þeirri heilsárshöfn sem heitið var í upphafi. Stóraukin dýpkunargeta framundan Núgildandi samningur Vegagerðar­innar við Björgun um viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn rennur út innan skamms. Ég benti á það í ræðu á Alþingi á sínum tíma, þegar þessi samningur var í burðarliðnum, að þar væru gerðar alltof litlar kröfur um afkastagetu þess búnaðar, sem notaður yrði við dýpkunina, og tæknilega hæfni til athafna við vondar aðstæður í vindi og öldu. Í nýju útboði á dýpkun, sem auglýst verður á næstu vikum, verða sem betur fer gerðar stórauknar kröfur um margföld afköst og tæknilega getu þess dýpkunarskips sem verður notað. Ríkisstyrkt áætlunarflug Með tilkomu Landeyjahafnar 2010 hætti ríkið, illu heilli, að styrkja áætlunarflug milli lands og Eyja. Síðan hefur gengið á ýmsu með áætlunarflug á markaðsforsendum og það hætti síðan alveg síðasta haust. Ástæðan er einföld segja flugfélögin: það eru ekki nógu margir sem nota flugið til að það borgi sig. Bæjaryfirvöldum tókst þó að koma því til leiðar að ríkið styrkti ákveðnar lágmarksflugsamgöngur.

Göngin! Þegar horft er til lengri framtíðar í samgöngumálum endurvaknar auðvitað alltaf hugmyndin um göng milli lands og Eyja. Tækni­ framfarir hafa orðið miklar á þessu sviði frá því að umræðan um þessi mál stóð sem hæst, m.a. í gerð „ofanáliggjandi“ gangna þannig að ekki þurfi að bora sig í gegnum hafsbotninn. Nú liggur fyrir loforð samgönguyfirvalda um að ljúka rannsóknum og fýsileikakönnun á þessu verkefni. Gjörbreyting á samskiptum við samgönguyfirvöld Síðustu fimm ár fylgdist ég sem þingmaður býsna vel með samskiptum bæjaryfirvalda við ríkisvaldið um samgöngumál. Tók reyndar þátt í ýmsum þeirra og reyndi að leggja mitt af mörkum. Sum málin tók ég upp á Alþingi til að tryggja framgang þeirra. Það er skemmst frá því að segja að á nokkrum síðustu árum hefur orðið algjör viðhorfsbreyting hjá samgönguyfirvöldum varðandi þessi málefni okkar Vestmanna­ eyinga. Þetta gildir bæði um Vegagerð­ ina og Samgöngu­ ráðuneytið. Þar sem okkur var áður mætt með talsverðri stífni og tortryggni hefur nú tekið við vilji til samstarfs um að leysa úr vandamálum og viðfangsefnum. Upptalningin hér fyrir ofan er til vitnis um það hversu miklu hefur verið áorkað á síðustu 3-4 árum. Á þessu eru líklega nokkrar skýringar en ein þeirra er örugglega sú ákveðna og þétta – en jafnframt kurteislega – hagsmunagæsla sem bæjaryfirvöld hafa staðið fyrir. Höldum henni áfram!


UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA VEGNA SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 14. MAÍ 2022 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninganna er hafin hjá sýslumanni. Hægt er að kjósa á opnunartíma embættisins en lengdur opnunartími vegna kosninganna verður sem hér segir: - Mánudaginn 9. maí til föstudagsins 13. maí verður opið frá klukkan 09:15-17:00. - Laugardaginn 14. maí (kjördag) verður opið frá klukkan 11:00-17:00. Kosning í heimahúsi Kjósandi sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi, nema hann eigi þess kost að greiða atkvæði á sjúkrastofnun. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg. Umsóknareyðublað má finna á vefnum kosning.is. Skal umsóknin hafa borist sýslumanni eigi síðar en klukkan 10:00 fimmtudaginn 12. maí n.k.

Kosning á sjúkrastofnun Kosning fer fram á Hraunbúðum mánudaginn 9. maí klukkan 14:00 og á HSU þriðjudaginn 10. maí klukkan 14:00. Kosning á þessum stöðum er ætluð fyrir vistmenn eða heimilisfólk.

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum

Auglýsing á deiliskipulagi miðbæjar

STRANDVEGUR 51 (TÖLVUN)

1490 m2. Grunnflötur byggingarinnar er einnig stækkaður er nú 334,6 m2 og í 467 m2. Hámarksfjöldi íbúða verður 8 íbúðir. Hámarkshæð vegghæð hússins hækkar frá 9 m í 14,5 m, en hámarkshæð helst óbreytt, 14,5 m. Krafa um atvinnustarfsemi á jarðhæð helst óbreytt en á hluta hæðarinnar er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir 4 bíla. Gert er ráð fyrir 2 bílastæðum með innkeyrslu frá Miðstræti.

Vestmannaeyjabær auglýsir tillögu að breyttu deiliskipulagi Miðbæjarskipulags, 2 áfangi við Strandveg 51 þar sem Tölvun er til húsa (skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010). Helstu breytingar eru að lóðar- og byggingarreitur við Standveg 51 stækkar, og hámarksfjöldi hæða eykst í 4 hæðir. Heildar byggingarmagn var 514,6 m2 og verður

Skipulagsgögn verða til sýnis hjá Umhverfisog framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 28. apríl til 9. júní 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt sveitafélagsins (https:// www.vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/). Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 9. júní 2022 í afgreiðslu Skildingavegi 5, eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is


THE PUFFIN RUN FER FRAM UM HELGINA 1 Herjólfsafgreiðsla. 2 Munavarsla og upplýsingar eru

hjá Rib-Safari. Keppendur fá merkispjöld og skulu merkja farangur sinn með sömu tölu og hlaupanúmeri.

1

3 Stjórnstöð.

2

4 Inngangur fyrir keppendur.

WC

3

5 Rásmark/Endamark verður

á bryggjunni við FES. Svæði þar í kring er lokað og má engin fara inn á svæðið án leyfis.

5 4

Hlauparar mæti við inngang 4 15 mín fyrir rástíma. 150 hlauparar eru í hverjum ráshóp. Rástímar: Kl. 12:15 Keppendur nr. 1-150 Kl. 12:20 Keppendur nr. 151-300 Kl. 12:25 Keppendur nr. 301-450 Kl. 12:30 Kepp nr. 2001-Tvímenning #1 /nr. 4001-Boðhlaup #1 ( í rásmarki ) 5 Kl. 12:35 Keppendur nr. 451-600 Kl. 12:40 Keppendur nr. 601-750 Kl. 12:45 Keppendur nr. 751-999 Kl. 12:45 Kepp nr. 4001-Boðhlaup #2 ( á Hamrinum ) 5 Kl. 13:15 Kepp nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3 ( á Stórhöfða ) 10 Kl. 13:45 Kepp nr. 4001-Boðhlaup #4 ( við Eldfell ) 15 Verðlaunaafhending verður kl. 15:30 við stjórnstöð 3 Keppendum bíðst að nota sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til kl. 18.00 á hlaupadegi án endurgjalds. Sýna þarf keppnis númer í afgreiðslu.

Það er komið sumar! Opið alla daga 11:00 - 22:00

09:00-18:00 11:00-17:00 Vesturvegur 5 / 481-1004


HLAUPALEIÐIN

WC

WC

WC

SKANS

HUNDA SVÆÐI

?

Földi hlaupinna km Drykkjastöðvar. Boðið er uppá vatn og Poweraid

WC

WC

Klósett Tilvalinn staður til að fylgjast með og hvetja áfram hlauparana.


SUDOKU

ATVINNA Óskað er eftir starfsfólki sem getur byrjað fljótlega í maí og helst unnið út september. Um er að ræða fjölbreytt störf við móttöku safngesta, veitinga og minjagripasölu, sem og almenna umhirðu safnahúss og safnmuna. Leitað er að einstaklingum á öllum aldri, þó ekki yngri en 20 ára. Þjónustulund, tungumálakunnátta og áhugi á sögu safnsins og Vestmannaeyja skilyrði. Umsóknir sendist: kristin@vestmannaeyjar.is Upplýsingar í síma 8466497

Orðaþraut ORÐAÞRAUT16

ÁSHAMAR

BIRKIHLÍÐ

KIRKJUVEGUR

BOÐASLÓÐ

BREKASTÍGUR

NJARÐARSTÍGUR

SKÓLAVEGUR

DVERGHAMAR

HEIÐARVEGUR

VESTMANNABRAUT


Fyrstu tónleikar KVENNAKÓRS VESTMANNAEYJA

í Safnaðarheimili Landakirkju 18. maí kl 20:00 Forsala er hafin á Kletti.

( Ekki posi á staðnum en hægt að greiða með millifærslu )

Fullorðnir 2000 kr. í forsölu og 2500 kr. við inngang (ekki posi á staðnum) Börn undir 12 ára 500 kr.

HLAUPARAKVEÐJA FRÁ 900 Höfum lengt opnunartímann til kl. 22 í eldhúsinu og í sendingar fös og lau. Höfum ekki hækkað verðin á take away og heimsendingatilboðunum okkar. Leitum af hressu og skemmtilegu starfsfólki í bæði hluta og full störf fyri sumarið. Umsóknir skilist á 900grillhus@gmail.com og í síma 895 8582.


Þú færð okkar besta verð á tm.is

Hugsum í framtíð


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 16.tbl 04 árg. by Leturstofan - Issuu