















Við viljum fyrst byrja á því að þakka öllum þeim sem keyptu miða á Hljómey í ár. Þetta hefur verið viðburðaríkt ferli og er okkur morgunljóst að á hverju ári héðan í frá verður Hljómey haldin, síðasta föstudag í apríl. Við komumst hreinlega ekki hjá því.
Það er ótrúlegt að finna stuðninginn við verkefnið, allir listamenn til í að ferðast til eyja, heimafólk reiðubúið að opna húsin sín og svo hljóðmenn, dyraverð-
ir og allt okkar besta fólk reiðubúið að aðstoða.
Við viljum minna alla á að hér er um tónleika að ræða, ekki partý. Það er mikilvægt að bera virðingu fyrir tónlistarfólkinu sem fram kemur og ekki síður húsráðendum sem opna stofur sínar. Við er nefninlega öll í þessu saman.
Við hvetjum fólk til að gera dag úr þessu, koma á setninguna kl. 16:00 - 17:00 og hlusta á frábært tónlistarfólk og sækja armböndin
sín, fara í fordrykk á Brothers, út að borða á öllum flottu veitingahúsunum og njóta svo kvöldsins í rölti með vinum og vandamönnum og horfa á frábært listafólk sýna listir sínar. Við endum svo á því að koma öll saman fyrir utan Brothers, þar sem við slúttum hátíðinni með því að syngja nokkur lög.
Áfram við, áfram þið og áfram Hljómey!
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Aldur: 25
Starf: tónlistar og leikkona
Menntun: leiklist úr LHÍ
Fjölskylda: miðju barn í systrahópi
Hefuru tekið þátt áður í álíka verkefni og Hljómey og hvernig leggst þetta í þig?
Ég tók þátt í nokkuð svipuðu prógrammi á Airwaves í fyrra sem hluti af svona hliðardagskrá við hátíðina. Svo hefur maður oft spilað í heimahúsum hjá fólki í afmælum eða veislum. Ég kann vel við það. Mér finnst það einlægt og henta minni músík vel.
Áttu þér eftirlætisverkefni sem þú hefur tekið þátt í?
Ég hef alltaf verið mikill Bubba aðdáandi svo að fá að leika hann í 9 Líf í Borgarleikhúsinu er ótrúlegt.
Hvað er framundan hjá þér?
Um þessar mundir er ég að leika Vigdísi Finnbogadóttur í nýjum sjónvarpsþáttum um líf hennar. Eftir það er planið að halda útgáfutónleika og spila eins mikið og ég get í sumar. Hver veit nema maður kíki aftur til Eyja Áttu einhverja tenginu við Vestmannaeyjar?
Heldur betur, kærastinn minn Máni Huginsson er ættaður úr Eyjum. Ég á heila tengdafjölskyldu þar. Svo shout out á Huginn Egilsson og Láru Dögg Margrétardóttur og litlu systkini Mána, Hlín og Jóel. Þau eru best.
Hver er þín helsta fyrirmynd og afhverju?
Amma mín er mín helsta fyrirmynd. Hún er rithöfundur og algjör kjarnorkukona. Hún kenndi mér að sjá sögur í öllu.
Draumaverkið þitt er… ?
Að leika Línu Langsokk!
Eitthvað að lokum?
Hlakka ótrúlega til að koma og spila á Hljómey, sjáumst!
Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna síðari úthlutunar “Viltu hafa áhrif 2024?”
MARKMIÐ
Markmiðið með styrkjunum er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á nærsamfélagið með góðum verkefnum. Fjölmargar góðar umsóknir og ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfu, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.
ÁBENDINGAR OG TILLÖGUR
Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2024, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 2. maí 2024 á netfangið susanna@vestmannaeyjar.is, eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Kirkjuveg 50, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Súsanna Georgsdóttir.
STYRKIR
Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2024, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 2. maí 2024 á sama netfang eða póstfang. Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði.
Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til, sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur.
Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.
Aldur: 37
Starf: Freelance video og hljóð fyrir auglýsingar og tónlistarmaður
Menntun: Ekki mikil
Fjölskylda: Giftur Kolfinnu Kristínardóttur og faðir tveggja drengja sem heita Sæmundur og Ólafur
Hefuru tekið þátt áður í álíka verkefni og Hljómey?
Hvernig leggst þetta í þig?
Við höfum spilað á Heima hátíðinni í Hafnarfirði, Akranesi og Keflavík líka minnir mig. Við elskum að koma fram á "minni" stöðum þar sem meiri tenging næst við tónleikagesti svo þetta leggst hrikalega vel í okkur!
Áttu þér eftirlætisverkefni sem þú hefur tekið þátt í?
Gerð platnanna Tvær Plánetur og Hamfarapopp eru mér alltaf ofarlega í huga. Virkilega skemmtilegur tími. Svo er það líklega að semja tónlist fyrir þættina Stella Blómkvist.
Hvað er framundan hjá þér?
Bara fara fullur tilhlökkunar inní sumarið. Vinna uppí bústað, gigga með Úlfur Úlfur og reyna að ná smá sól.
Áttu einhverja tenginu við Vestmannaeyjar?
Já heldur betur. Amma mín ólst þar upp og ég bjó þar fyrstu tvö ár ævi minnar. Systir mín fæddist þar líka svo manni þykir alltaf vænt um Vestmannaeyjar.
Hver er þín helsta fyrirmynd og afhverju?
Bruce Springsteen. Hann hefur verið nettur síðan 73 og verður það líklega áfram.
Draumaverkið þitt er… ?
Að gera aðra Úlfur Úlfur plötu
Minna Ágústsdóttir.
Mey er kvennaráðstefna sem haldin var í annað sinn í Vestmannaeyjum síðastliðinn laugardag. Markmiðið með Mey er að sameina konur, valdefla þær styrkja og gleðja óháð aldri, menntun eða starfi. Hugmyndin að útfærslu og nafninu Mey kom í upphafi árs 2023 eftir samtal við Berglindi Sigmars hjá ferðamálasamtökunum. Þar sem Viska er fræðslu og símenntunarmiðstöð er eitt af verkefnunum að halda spennandi erindi og ótrúlega skemmtilegt að gera það í samstarfi við ferðamálasamtökin og lengja ferðamannatímabilið með því að fá hingað konur af fastlandinu ásamt öllum okkar dásamlegu eyjakonum. Það er líka ánægjulegt og skiptir okkur miklu máli að fá góðan stuðning frá Vestmannaeyjabæ sem gerði tveggja ára samstarfssamning við verkefnið á dögunum.
Þar sem ráðstefnan gekk mjög vel í fyrsta sinn var ekki spurning um að endurtaka leikinn og seldist upp á nokkrum klukkustundum þó miðafjöldinn hafi verið tvöfaldaður. Skipulagning hófst strax haustið 2023 og eftir vangaveltur og góðar hugmyndir frá vinkonum hafði ég samband við fyrirlesara í september og gerði samning við þær.
Dagsetning var orðin klár þar sem við ákváðum að vera aftur helgina fyrir Hljómey sem gerir skipulagninguna auðveldari.
Það sem stendur upp úr er að allar þær sem við fengum til þess að halda fyrirlestur náðu að heilla okkur með einstaklega fræðandi og skemmtilegum erindum sem öll töluðu saman og tengdust á einhvern hátt. Orkan í þeim sem mættu var einstaklega jákvæð og léttleikinn og gleðin skein úr hverju andliti. Stelpurnar hjá Magna media lyftu svo viðburðinum upp á hærra plan með fallegu logo sem var notuð í auglýsingar og ljósmyndum sem náðu að fanga daginn. Þær tóku yfir samfélagsmiðla Visku og gerðu daginn fyrir okkur ógleymanlegan. „Ég vil þakka öllum þeim góðu konum sem komu á ráðstefnuna fyrir komuna og samveruna þennan dag og vona þær hafi farið út búnar að læra eitthvað nýtt, fundið styrk frá hver annari og síðast en ekki síst glaðar í hjartanu. Einnig á ég góðum vinkonum mínum að þakka fyrir að styðja vel við bakið á mér á einn eða annan hátt“, sagði Minna að lokum. Ljósmyndir/Magna Media.
Tvö rafmagnshjól til sölu
Tvö ónotuð rafmagnshjól til sölu.
26“ á 240.000 kr.
28“ á 260.000 kr.
Ef bæði eru tekin saman kosta þau 450.000 kr.
Hægt er að skoða hjólin með því að hafa samband í síma 891-8028 eða 897-9675. Með því að skanna inn QR kóðana getur þú séð nánari upplýsingar um hjólin.
Sigga Lára, Þórdís, María Rós og Bergey. Íris Sif, Berglind og Sara Sjöfn. Gunnheiður, Sif, Ragnheiður og Hulda. Vel mætt á fyrirlestrana. Þura, Svava Tara, Sandra og Þórdís. Gjafapokar fyrir þær sem tóku þátt í ráðstefnunni.Sjóðandi heit tilboð 24.-28. apríl
í Húsasmiðjunni og Blómaval um land allt
Aldur: 49 ára
Starf: Skapari
Menntun: Kerfisfræðingur Fjölskylda: Giftur og tveggja barna faðir. Var að verða afi í mars þegar lítil stelpa fæddist í heiminn. Magnað Kraftaverk.
Hefuru tekið þátt áður í álíka verkefni og Hljómey?
Já, þetta er svo skemmtileg fyrirbæri. Þetta “concept” er búið að vera að breiðast út um landið síðustu árin og mjög gaman að fylgjast með því og taka þátt. Ég hef spilað á nokkrum svona hátíðum í Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Akranesi og núna í Eyjum.
Hvernig leggst þetta í þig?
Frábærlega. Hlakka mikið til. Það er svo gaman að koma heim til fólks til að spila og upplifa nándina sem því fylgir.
Áttu þér eftirlætisverkefni sem þú hefur tekið þátt í?
Vá, óteljandi falleg verkefni. Ég er svo heppinn að hafa fengið að upplifa svo margt sturlað á þessu ferðalagi mínu með músíkinni. Tónleikar á þrettándanum fyrir nokkrum árum með Lúðrasveit Vestmannaeyja og Þorlákshafnar fyrir fullu húsí í Höllinni er ofarlega á þessum lista.
Hvað er framundan hjá þér?
Fullt af sköpun. Ný músík. Ný ævintýri. Ég og konan mín erum núna að koma okkur fyrir í Hveragerði þar sem við keyptum sögufrægan blómaskála og verslun; Blómaborg. Það er ævintýri sem ekki sér fyrir endann á.
Áttu einhverja tenginu við Vestmannaeyjar?
Já, svo sannarlega. Föðurfólkið mitt er undan Eyjafjöllum og því mikil tenging til Eyja. Pabbi var sjómaður í Eyjum margar vertíðir
og var duglegur að segja mér sögur af ævintýralegum tímum. Ég ólst náttúrulega upp í Þorlákshöfn með Herjólf eins og “portal” við annan ævintýraheim; Vestmannaeyjar handan við hafið. Ég man fyrir mörgum árum, næstum eins og í öðru sólkerfi þegar ég var um tvítugt og ég og vinur minn gáfum út plötuna Sólstrandargæjarnir. Nokkrum vikum síðar fengum við boð um að spila í Eyjum og ákváðum að skella okkur frekar óöryggir með hvað myndi eiginlega gerast.
Í Vestmannaeyjum hafði greinilega eitthvað mikið gerst því nánast allir sem við hittum frá því við yfirgáfum Herjólf voru að syngja Rangur maður og Sólstrandargæji og fleiri lög af þessari plötu. Þetta var í fyrsta sinn sem ég upplifði að hafa skapað eitthvað sem væri
að öðlast eigið líf. Ég gleymi því ekki meðan ég lifi, móttökunum sem ég upplifði í Eyjum og tilfinningunni.
Hver er þín helsta fyrirmynd og afhverju? Erfitt að segja. Því eldri sem ég verð því betur sé ég hvernig við erum öll mennsk á endanum þó margir geti sett upp flottan “front” og hættulegt að setja fólk á stall. En það er svona góðar erkitýpur sem ágætt að nota sem kompass; Jesús, Búdda, Lenny Kravitz, John Bonham svo einhverjir séu nefndir.
Draumaverkið þitt er… ? Eitthvað sem tjájir sannleika og fegurð; hreint og tært, tilgerðarlaust. Ljótt er líka fallegt í því samhengi. En fyrst og fremst einlægt og ærlegt.
Andlátstilkynning
Minningargrein
Sálmaskrá
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar.
Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.
900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 leturstofan leturstofan
Óskum eftir leiðsögufólki í hlutastörf í sumar.
Frekari upplýsingar og ferilskrá sendist á atv@volcanoatv.is
Sunnudaginn 28. apríl n.k. er Stóri plokkdagurinn og í tilefni dagsins verður hreinsunardagur á Heimaey.
Dagur þessi er fjölskyldudagur þar sem allir – mamma, pabbi, amma, afi, og krakkarnir sameinast um að gera Heimaey enn fallegri. Einnig er skorað á íbúa og fyrirtæki að þeir hreinsi lóðir sínar og nærumhverfi.
Sameinumst um að hreinsa náttúruna um leið og við gerum umhverfið okkar fallegt fyrir viðburði, gesti og útiveru komandi sumars.
Dagurinn byrjar kl. 11.00 á Stakkagerðistúni þar sem pokum og plokktöngum verður úthlutað (fyrir fyrstu sem koma) . Klukkan 12:30 verður svo grillveisla í boði Bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar á sama stað.
Félagasamtök og hópar sem vilja taka þátt og fá úthlutað svæði er bent á að hafa samband á umhverfissvid@vestmannaeyjar.is.
Ólöf Sigurjónsdóttir er kunn meðal vina og ættingja fyrir mikla sköpunarþörf, færni og dugnað. Eflaust kannast margir við kort með eftirprentunum af myndunum hennar. Þau hafa verið til sölu víða og verið vinsæl í verslunum ferðamanna.
Ólöf er nítíu og þriggja ára, vinnur alla daga og er stöðugt að bæta við nýjum verkum. Flest verkin sem hún hefur unnið undanfarin ár eru saumaðar landslagsmyndir unnar með ull og silki á hördúk. Ólöf fæddist árið 1931 og er dóttir hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur frá Seljavöllum undir Eyjafjöllum og Sigurjóns Jónssonar úrsmiðs frá Tjörnum Vestur-Eyjafjallahreppi. Sigurjón var bróðir Eyjólfs j. Eyfells listmálara. Ólöf á ættir að rekja til Vestmannaeyja, en langafi hennar og amma í föðurætt bjuggu þar á bæ sem hét Tún. Móðursystkyni hennar frá Seljavöllum fluttu mörg til Eyja og
settust þar að. Þau voru Guðjón og Vigfús stofnendur Vélsmiðjunnar Magna, Sigurður, Ragnhildur, Ásta, Magnús og Jón Ó.E.
Það var gestkvæmt á æskuheimili hennar í Reykjavík. Þar dvöldust oft á tíðum frændfólk og vinir frá Eyjafjöllum og Vestmannaeyjum. Ólöf naut góðs af því að ferðast mikið um landið með Guðjóni frænda sínum á Chevrolet drossíunni sem útvegsmenn, vélstjórar og formenn í Vestmannaeyjum færðu honum í sextugsafmælisgjöf.
Þegar Ólöf var ungabarn kom hún fyrst með fjölskyldunni í heimsókn undir Fjöllin. Þá komu frændur hennar ríðandi að Markarfljóti, sem var óbrúað og sundriðu þeir með litlu reykvísku frænkuna yfir fljótið. Hún dvaldist á sumrin í Eyvindarhólum og á Seljavöllum. Margar mynda hennar byggja á minningum frá þessum tíma og fallegum sveitunum Eyjafjalla. Ólöf var aðeins sextán ára þegar henni var treyst til þess að sauma altarisdúk í Eyvindarhólakirkju. Þar er hann enn.
Ólöf er ekkja, en eiginmaður hennar var Hákon Heimir lögfræðingur. Þau kynntust á Þjóðhátíð í Eyjum
árið 1950. Hún vann alltaf skrifstofustörf en skellti sér oft í það að hjálpa vinum og ættingjum við að flísaleggja, veggfóðra, bólstra og dytta að þegar vantaði færar hendur.
Ólöf og Hákon Heimir eignuð-
ust tvær dætur, þær Sigrúnu Erlu ljóðskáld og tónlistarkennara og Huldu Margréti myndlistarkonu sem er með vinnustofu í Skvísusundi í Vestmannaeyjum. Ólöf býr nú á Hrafnistu í Reykjavík.