16. tbl. 03. árg. 19. - 25. maí 2021
Fallegt fyrir heimilið www.heimadecor.is Strandvegur 39
GÖNGUHÓPURINN ÁLFARNIR
Gönguhópurinn Álfarnir er hópur eldri borgara sem ganga að meðaltali 8 km tvisvar í viku. Bjarni Sighvatsson er einn af gönguhópnum Álfarnir sem var á göngu upp á Stórhöfða þegar Tígull átti leið hjá. Við að sjálfsögðu tókum tal á Bjarna og þá kom í ljós að hann er fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur. Hann bjó í Vestmannaeyjum í 55 ár, en þá ákvað hann að skrifa nýjan kafla í lífinu og flutti á Kjalarnesið en það eru komin um 17 ár síðan. Það þekkja nú flestir þetta nafn, Bjarni Sighvatsson en Bjarni útskýrir
TÍGULL
að það voru nú tvær ættir á hans tíma hér. Sighvatur Bjarnason sem var Vinnslustöðvarættin í útgerðinni og Bjarni Sighvatsson sem var í Útvegsbankanum. Oftar en ekki var þeim ruglað saman og hann fékk oft jólakortin sem Bjarni í Ási átti að fá og öfugt sem þeir hlógu nú bara af. Gönguhópurinn Álfarnir eru eldri borgarar úr Reykjavík sem ganga saman tvisvar í viku og um það bil átta kílómetra í senn. Það var hugmynd frá Jónasi Sigurðssyni að koma til eyja. Jónas er einn stofnenda pæju- og pollamótanna hér í Eyjum. Þau eru að njóta eyjanna í tvo daga en þetta er seinni dagurinn. Daginn
áður gengu þau upp á og í kringum Eldfell, kíktu í Eldheima og skoðuðu nýju vatnsstöðina. Í dag röltu þau inn í dal og kíktu á Kaplagjótu og gengu svo upp með Hamrinum upp á Stórhöfða þar sem Tígull hitti á hópinn. En þau voru þá á leið út að borða á GOTT svo kíktu þau í Sagnheima. Það er ekki að sjá að hópurinn sé eldri borgarar en alls eru þau 19 saman í þessari ferð. Í hópnum eru fjórir Vestmannaeyingar, þeir Jónas Sigurðsson, Eiríkur Þór Einarsson, Bjarni Sighvatsson og Guðjón Scheving.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina á Tói Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi 29. maí 2021
VERIÐ VELKOMIN Á KOSNINGASKRIFSTOFU MÍNA AÐ STRANDVEGI 51 HEITT Á KÖNNUNNI OG ALLIR VELKOMNIR. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 09:00 - 10:00 OG 17:00 - 19:00 UM HELGAR KL. 14:00 - 16:00
Munið prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi 29. maí. Ég sækist eftir 4. sæti. Komum Eyjamanni á þing Jarl Sigurgeirsson
Nú stendur yfir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin og kjördagur er 29. maí. Það flokkakerfi, sem við búum við í dag, er byggt upp af þeirri hugmynd að fólk með líkar skoðanir hópi sig saman og afli skoðunum sínum fylgis. Ég hef út frá þessari hugmynd valið að fylgja Sjálfstæðisflokknum þar sem mér finnst ég geta samsamað mig með þeim grunngildum og hugmyndum sem þar ríkja.
uppruna, búsetu og mörgu fleiru. Í því samhengi hefur skapast töluverð umræða um kynjahlutföll lista og leiðir til að stuðla að blönduðum listum hvað það varðar. Einnig er ungt fólk oftar en ekki hvatt til að taka þátt í stjórnmálum svo að þeirra raddir megi heyrast. Við Eyjamenn höfum síðan verið samstíga um að styðja okkar heimamenn í prófkjörum. Við vitum sem er að það skilar árangri að eiga heimamenn í tengslum við ríkisvaldið.
Pólitískt flokkakerfi er ekki eina flokkunaraðferðin sem við notum þegar við veljum okkur fulltrúa. Mannskepnan á ótal flokkunarkerfi og við flokkum fólk nánast óafvitandi þegar við mætum því. Við getum flokkað fólk eftir kyni, aldri,
Ég stend fyrir grunngildi sjálfstæðisstefnunnar um frelsi einstaklingsins og að virða eignaréttinn. Ég er andvígur miðstýringu og vil líta til nýrra leiða í heilbrigðis-
málum og víðar þar sem litið er til einkaframtaksins. Ég tel að frumkraftur og framþróun einkageirans ætti að nýtast okkur í meiri mæli í þeim stofnunum sem eru reknar af ríkinu. En umfram allt þá er ég landsbyggðarmaður og Eyjamaður. Mitt hjarta slær í Eyjum, hefur alltaf gert og mun alltaf gera. Ég bið um stuðning ykkar til að ná 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Með Eyjamann í baráttusætinu ætlum við svo í framhaldinu að sigla að lágmarki fjórum mönnum inn á þing í næstu kosningum. Jarl Sigurgeirsson
Verkefnastjóri Vinnslustöðin hf. óskar eftir að ráða öflugan aðila í stöðu verkefnastjóra. Verkefnastjóri starfar á skrifstofu Vinnslustöðvarinnar og er hlutverk hans m.a. að hafa umsjón með nýframkvæmdum og stærri viðhaldsverkum, þar á meðal hönnun og framkvæmd þeirra. Meginverkefni verkefnastjóra: • • • • • • •
Ráðgjöf og hönnun vegna nýframkvæmda og stærri viðhaldsverka. Skipulagning, áætlanagerð og kostnaðareftirlit. Yfirstjórn og daglegt eftirlit við framkvæmdir. Eftirfylgni með tíma- og kostnaðaráætlunum og með undirverktökum. Eftirlit með að unnið sé samkvæmt verksamningum, verklýsingum og teikningum. Annast samskipti við hönnuði og yfirvöld. Skjalfestir framvindu verka og utanumhald gagna.
Kröfur til umsækjenda: • • • • • • • •
Þyngst vegur reynsla á sviði verkefnastjórnunar stórra nýframkvæmda og viðhaldsverka. Þekking og reynsla af framleiðsluferlum í fiskvinnslu er kostur. Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála. Háskólamenntun á sviði byggingamála eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði eða tæknifræði. Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu í teikniforritum. Nákvæmni í vinnubrögðum. Frumkvæði, ábyrgð og samskiptalipurð. Búseta í Vestmannaeyjum er skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Björg Arngrímsdóttir (lilja@vsv.is) í síma 488 8000. Umsóknir óskast sendar á lilja@vsv.is. Kynningarbréf ásamt ferilskrá þar sem fram koma ítarlegar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf fylgi umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2021. Vinnslustöðin hf. er í hópi stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Vinnslustöðin á og gerir út alls 7 skip til uppsjávarveiða, togveiða og netaveiða. Fyrirtækið stundar botnfiskvinnslu, saltfiskverkun, humarvinnslu og vinnslu á uppsjávarfiski og rekur fiskimjölsverksmiðju auk söluskrifstofa á helstu mörkuðum erlendis. Nánari upplýsingar má finna á vsv.is.
HAFA HIST Í KAFFI Í YFIR TUT TUGU ÁR Á MORGNANA
Birkir Hlynsson Það var glatt á hjalla þegar blaðamaður Tíguls kíkti við í Skipalyftuna síðasta miðvikudag. Þar var að finna hóp manna sem hafa hist reglulega á morgnana í yfir tuttugu ár en þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa fæðst og vera uppaldir í Vestmannaeyjum en hafa flutt í höfuðborgina í seinni tíð.
Eiríkur Þór Einarsson, Guðlaugur Sigurðsson og Loftur Harðarsson
Þeir taka alltaf saman göngu í Fífunni fyrst á morgnana, fara svo í kaffisopa og með því í Reynisbakarí á Dalvegi í Kópavogi. En þeir byrjuðu á þessum hitting á sprautuverkstæði inn í Hafnarfirði hjá Heimi Þorvarðarsyni heitnum. Eftir hans dag fluttu þeir sig í Reynisbakarí. Tóti og Stebbi tóku vel á móti félögum sínum
með hádegismat í Skipalyftunni, Íris bæjarstjóri hitti á peyjana og fór yfir það helsta í bæjarmálunum. Svo var Tóti búin að skipuleggja allan daginn og var farið um allan bæinn og rifjuð upp gömul prakkarastrik.
Steinn Guðmundsson og Valur í Dal Bjarni Ólafur Guðmundsson
Tóti og Friðrik á Látrum.
Svanur Barnarstenarsson (Þorsteinsson) og Gunnar Sigursson
HVAÐ GETURU FUNDIÐ MARGAR VILLUR?
Guðrún Marý Ólafsdóttir
PÓLEY
VERSLUNIN PÓLEY 14 ÁRA Hvernig byrjaði þetta allt saman og hvernig kom hugmyndin af því að opna gjafavöruverslun? Vorið 2007 höfðu systurnar Hafdís og Berglind Kristjánsdætur frænkur mínar samband við mig. En þær áttu og ráku Póley og voru að flytja inn vörur frá Póllandi, kristal, keramik og stell og ætluðu að selja, og vildu ath hvort ég hefði áhuga á að kaupa af þeim. En ég var alveg búin að vera með smá fiðring í maganum um að fara í einhvern verslunarrekstur. En ég vann í nokkur ár í Miðbæ hjá Dúddý og fann að þetta átti vel við mig og mér fannst þetta mjög skemmtilegt. Ég hafði samband við Kristný mágkonu mína hvort hún væri ekki til í þetta með mér og þannig hófst búðarreksturinn hjá okkur mágkonunum og opnuðum við 18. maí 2007 Gjafavöruverslunina Póley á Strandvegi 45. Hefur verslunin breyst mikið frá því þú byrjaðir, þá vörur og þessháttar? Vöruúrvalið hjá okkur var til að byrja
með áfram vörur sem við fluttum inn frá Póllandi. En áður en við vissum af voru þessar vörur orðnar í minnihluta hjá okkur, því við vorum ekki í vandræðum með að versla inn þar sem við erum báðar mjög kaupglaðar. Ári seinna fluttum við okkur yfir á Heiðarveg 9 í stærra og betra húsnæði og ekki vorum við lengi að fylla það. Við vorum líka duglegar að fara út á sýningar og fluttum sjálfar inn allskonar vörur sem enginn annar var með. í byrjun júní 2010 þá færðum við okkur í húsnæðið sem Póley er í í dag, Bárustíg 8. Það er frábær staðsetning og svo miklu skemmtilegra að vera í miðbænum, miklu meira líf. Þá tökum við t.d. inn Skartgripina frá Inga í Sign sem hafa verið mjög vinsælir enda ótrúlega fallegir. Vorið 2014 hættir Kristný og við Gylfi kaupum hana út úr rekstrinum og erum búin að reka Póley síðan með aðstoð frábærra starfskvenna í gegnum árin og ekki má gleyma að
hrósa strákunum mínum fyrir alla hjálpina. Ertu að taka mikið af nýjum vörum inn yfir allt árið? Ég hef reynt að hafa vöruúrvalið sem fjölbreyttast t.d. þá erum við með vörurnar frá IIttala, matarstellið frá Bitz, Design letters, Kartell, skartgripi frá Sign, By Lovisa og Vera Design. Sængurfatnað og fatnað frá Snurk, íslenska hönnun t.d. Fuzzy, As We Grow, Hekla Íslandi, ihanna og Sveinbjörgu. Sælkeravörur frá Stonewall Kitchen og Lakrids By Johan Bulow, húðvörur frá Volare og Eco By Sonya . Kaffi og kaffívélina frá Sjöstrand, allskonar fyrir barnið t.d. Lulla Doll, Heico lampa, dúkkuvagna og rúm frá Sebra. Svo er ég að flytja inn vörur frá Hollandi, Snurk og Present Time, Lene Bjerre frá Danmörku og Voluspa kertin frá Ameríku.
Erna og Kristný á opnunardegi Póley fyrir 14 árum á Strandvegi 45.
Hvernig hefur síðasta ár verið hjá ykkur svona í miðjum heimsfaraldri? Hvernig gekk að fá vörur erlendis frá? Þetta Covid ár er búið að vera mjög skrítið. Fyrst hélt maður að það yrði ekkert að gera en þá tók heimasíðan svaka kipp, höfum aldrei sent eins mikið og út um allt land eins og síðasta ár. Einnig var meira af
íslendingum á ferðinni og þeir versla miklu meira en þeir erlendu. Einnig eru Vestamannaeyjingar mjög duglegir að versla hjá okkur og í eyjum almennt, enda væri þetta ekki að ganga upp án þeirra og erum við þakklát fyrir það. Á síðast árgangsmóti hjá mér, en ég er í eðal árganginum 67, þá komu
nokkrar með minnisbækur síðan úr barnaskóla og í þeim svaraði maður allskonar spurningum og t.d. var ein, hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór, og í öllum bókunum hafði ég svarað húsmóðir og búðarkona. Þannig að ég náði mínum markmiðum.
GETUR ÞÚ HJÁLPAÐ HVOLPINUM AÐ FINNA KOFANN SINN?
ÞRAUTIR
ORÐAÞRAUT
KAFBÁTUR LEIKVÖLLUR
REIKNIVÉL TÖLVUSKJÁR GEIMFARI APPELSÍNA KLUKKUTÍMI FLÍSAR
HEIMANÁM BLÓMAVASI
Fiskur á grillið Þorskhnakkar Lönguhnakkar Fiskvinnsla VE Eiði 12
Sími 4813600 eða 8951965 (Viðar) narfive@simnet.is
Frumherji verður í Eyjum vikuna 25. - 28. maí Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.
Frumherji Faxastígur / 570 9231
Tannlæknar 19. - 21. maí Hjalti Þórðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?
OPIÐ ALLA DAGA 16:00 - 22:00 PÍLUKAST | BILLIARD
Wood burning oven &
beer from local brewery
Pítsugerðin er þriggja ára OG ÞVÍ VERÐUR VEISLA ALLA HELGINA ! !
Á FIMMTUDAGINN HVETJUM VIÐ AÐ SJÁLFSÖGÐU DAÐA OG GAGNAMAGNIÐ ÁFRAM. VIÐ SJÁUM UM PÍTSUNA OG 2LTR GOS FYLGIR MEÐ Í PARTÝIÐ.
PÍTSA FESTA & PÍTSA MADNESS
FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG VERÐUR PÍTSA FESTA Í HÁDEGINU OG ÞÚ FÆRÐ ÞÉR EINS OG ÞÚ VILT. PITSA MADNESS VERÐUR UM KVÖLDIÐ, ALLAR PÍTSUR Á MATSEÐLI 1.990 KR.
pantanir í síma 551 0055
#PITSUGERDIN /PÍTSUGERÐIN
PÍTSUGERÐIN / BÁRUSTÍG 1 / PITSUGERDIN@GMAIL.COM