Tígull 16. tbl 05. árg.

Page 1

16.
tbl. 05. árg. 17. - 23. maí 2023

Á FERÐALAGI UM NÆSTA NÁGRENNI

Nú þegar aðeins nokkir hefðbundnir kennsludagar eru eftir í Grunnskóla Vestmannaeyja, fram að sumarfríi, er reynt að brjóta upp hversdagsleikan á ýmsan hátt. Í síðustu viku var hjóladagur í GRV þar sem yngstu börnin mættu á hjóli og Kiwanismenn færðu nemendum í fyrsta bekk reiðhjólahjálm að gjöf.

Í upphafi núlíðandi viku skelltu nemendur í 5. bekk sér í dagsferð á fastalandið þar sem þeir skoðuð eitt og annað hjá nágrönnum okkar í Rangárþingi Eystra. Farið var á Lava Center, eldfjallasafnið á Hvolsvelli. Þar var einnig slegið upp heljarinnar pítsuveislu à Gallery Pizza. Að því loknu lá leiðin að Seljalandsfossi og Gljúfrabúa áður Herjólfur flutti hópinn heim að nýju. Myndir úr ferðinni má sjá hér á síðunni sem og á forsíðu Tíguls vikunnar.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

ÚTGÁFA:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Una & Sara Halli Melló Magni ErnaHrönn Hebert Á móti sól Sjómannadagsball Vestmannaeyja 3. júní í Höllinni! Sjómannadagsball 2023 2023 Miðaverð í forsölu er 5.900 kr. og forsölu lýkur kl. 18 á tónleikadegi. Miðaverð við hurð er 6.900 kr. Tryggðu þér miða á tix.is/hollin og rokkaðu inn í sjómannadaginn! Tryggðu þér miða í tíma á TIX.IS/HOLLIN GLÆSILEGUR MATSEÐILL FRÁ EINSA KALDA ++ Föstudaginn 2. júní í Höllinni! Birgir Haralds / Stebbi Jak / Dagur Sig / Sigga Gudna

GRILLUÐ NAUTALUND

MEÐ KARTÖFLUSALATI OG VILLISVEPPASÓSU

Grilluð nautalund

• 800 g nautalund • ólífuolía

• salt og pipar • steinselja

Skerið nautalundina í jafn stóra bita, ca. 200 – 250 g á mann. Veltið kjötinu upp úr ólífuolíu, salti, pipar og smátt saxaðari steinselju. Grillið kjötið í ca. 4 mínútur á hvorri hlið en steikingartíminn fer vissulega eftir smekk. Leyfið kjötinu að hvíla í nokkrar mínútur áður en þið berið það fram.

Sveppasósa

• 10 sveppir • Smjör • ½ villisveppaostur

• 250 ml rjómi • ½ – 1 teningur nautakraftur salt og pipar

Skerið sveppi og steikið upp úr smjöri, kryddið til með salti og pipar. Hellið rjómanum saman við ásamt smátt skornum villisveppaosti, lækkið hitann og leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum í rjómanum á

meðan þið hrærið í. Bætið nautakraftstening út í og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Þegar sósan er orðin þykk er hún tilbúin og er bæði hægt að bera hana fram heita og kalda.

Ljúffengt kartöflusalat – fullkomið með grillmat

• 20 stk soðnar kartöflur • 2 dl majónes – eða meira, fer eftir smekk • 1 msk franskt sinnep • 1 laukur

• 2 soðin egg • ½ msk steinselja • ½ msk graslaukur

• 1 tsk hunang • 1 tsk sítrónupipar • Salt, eftir smekk

Skerið forsoðnar kartöflur í bita, skerið eggin smátt og saxið lauk afar fínt. Bætið öllum hráefnum saman í skál og hrærið varlega, saxið niður ferska steinselja og graslauk og bætið við í lokin. Best er að kæla salatið í ca. 30 mínútur í kæli áður en það er borið fram.

Uppskrift og myndir fengin að láni frá Evu Laufey Kjaran - evalaufeykjaran.is

UPPSKRIFT VIKUNNAR

STRANDVEGI 43A

- Lág söluprósenta

- Allar eignir sýndar af fasteignasala

- Fagljósmyndun

- er með kaupendur af raðhúsi eða eign á jarðhæð

- Legg mikið upp úr persónulegri og vandaðri þjónustu, þar sem kaupendur og seljendur eru vel upplýstir um stöðu mála, góð eftirfylgni, hröð en vönduð vinnubrögð

löggilturfasteigna-ogskipasali

HALLDÓRA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR 861 1105 -viðskiptafræðingurog
dora@husfasteign.is
ALLAR TEGUNDIR EIGNA
SKRÁ VEGNA
Ert
þú að
hugsa um að selja eignina þína?
VANTAR
Á
MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ

AF HVERJU AÐ EIGA NUDDBOLTA OG HVERNIG Á AÐ NOTA HANN?

Í nútíma heimi hefur atvinnuíþróttafólk flest allt aðgang að nuddara sem hjálpar þeim eftir erfiðar æfingar eða keppnir að milda verki og mýkja líkamann. Við hin þurfum ódýrari leiðir til þess að losa um þessa vöðvaspennu og örva blóðflæði líkamans. Það vill svo skemmtilega til að fyrir um það bil 2000 krónur er hægt að kaupa verkfæri í formi nuddbolta til þess að draga úr eymslum í vöðvum og mögulega í kjölfarið bæta árangur í þeirri íþrótt sem stunduð er. Spurningin er þá hvort hægt sé að nota gamlan tennisbolta sem til er heima eða ætti maður að fjárfesta í sérhönnuðum nuddbolta? Í þessari grein ætlum við að fara yfir það hvers vegna gott sé að eiga nuddbolta, hvernig best sé að nota hann og hverju þú ættir að leita eftir í kaupi á slíkum bolta?

Af hverju ættir þú að eiga og nota nuddbolta? Nuddboltar eru frábær leið til þess að virkja vöðva áður en æfing hefst og einnig til að draga úr spennu þegar þú hefur lokið æfingu. Nuddboltar eru sérhannaðir til þess að ná á og miða að ákveðnum trigger punktum (e. trigger points) á líkamanum. Trigger punktar eru punktar, hnútar eða svæði á líkamanum sem eru aumir og geta í kjölfarið valdið sársauka á öðrum skyldum svæðum líkamans. Nuddboltar eru sérhannaðir til þess að ná á svæði sem getur reynst erfitt að ná á með nuddrúllum og eða -keflum.

Hvernig á að nota nuddbolta?

Það virðist vera frekar augljóst hvernig nota eigi nuddbolta en að baki þess liggur þó nokkur hugmyndafræði. Nota á nuddbolta á þröng svæði líkamans (e. tight areas) og vænlegast er að nota líkamsþyngdina með því að liggja á boltanum og færa líkamann yfir hann fram og til baka á þeim svæðum sem nauðsyn er á. Einnig er hægt að þrýsta líkamanum á boltann ef staðið er upp við vegg og boltinn þannig færður fram og til baka yfir það svæði eða þann punkt sem verið er að vinna með. Ef það reynist erfitt að halda nuddboltanum á réttum stað þegar staðið er við vegg, þá er hægt að skella boltanum í stóran sokk og halda í endann á sokknum og þannig hafa betri stjórn á staðsetningu boltans.

Þegar mikil spenna er á ákveðnum stað eða trigger punkti er gott að nudda og/eða teygja í kringum svæðið til að byrja með til að létta þrýsting á því svæði sem er að valda sársauka. Það getur reynst mjög óþægilegt að nudda auma punkta en svo framarlega sem sársaukinn er þolanlegur, ef svo má að orði komast, má kalla það eðlilegt. Gott er að reyna að slaka á vöðvanum sem verið er að nudda og ekki spenna hann á móti þrýstingnum sem myndast. Eftir því sem við erum duglegri að nudda auma punkta, því minni verður sársaukinn. Hér snýst þetta um þolinmæði í verki.

Hverju á að leita eftir í góðum nuddbolta? Þegar versla á nuddbolta í dag getur málið þó vandast. Nuddboltar koma í öllum stærðum og gerðum. Sumir boltar ganga meira að segja undir fjölbreyttum nöfnum á borð við: spennulosunarbolti, jóganuddbolti, liðleikabolti og svo framvegis. Til að gera langa sögu stutta er hugmyndin á bakvið flesta þessa bolta sú sama og því óþarfi að prófa þá alla. Hér er einfaldleikinn oft sterkur leikur.

Stærð:

Stærð boltans fer helst eftir því hvar á líkamann ætlast er til að nota hann. Lítill bolti er þó oftar meðfærilegri í notkun ef nýta á boltann á mörg ólík svæði og nær hann vel á flest svæði líkamans. Ef einungis á að nudda stóra vöðva líkamans er mögulegt að kaupa stærri bolta. Litlir nuddboltar eru hentugir til að hafa í íþróttatöskunni eða veskinu enda fer lítið sem ekkert fyrir þeim og hægt að grípa í þá við ólík tilefni.

Styrkleiki:

Líkt og með stærð þá fer styrkleiki boltans einnig eftir því hvar og hvernig á að nota nuddboltann. Mjúkur bolti gæti ef til vill verið þægilegri en á sama tíma gæti hann átt erfiðara með að losa um spennu á stífum svæðum sem krefjast frekari þrýstings. Að sama skapi geta harðir boltar verið sársaukafullir í notkun svo hér þarf að velja skynsamlega. Sumir kjósa að byrja á því að eiga mýkri bolta og með tímanum færa sig yfir í harðari.

Yfirborðsáferð og ending:

Rétt eins og faglærður nuddari notar ólíka hluti handa og handleggja sinna fyrir ólík svæði líkamans, þá koma nuddboltar með ólíka yfirborðsáferð. Boltar með upphleypt yfirborðssvæði eru hannaðir til þess að grafa sig betur inn á svæði líkamans fyrir dýpra nudd á meðan boltar með slétta áferð eiga auðveldara með að létta á svæðum sem geta verið of sársaukafull fyrir meira og dýpra nudd. Nuddboltar þurfa að hafa grip svo þeir haldist betur á sínum stað á veggnum eða gólfinu svo auðveldara sé að hafa stjórn á þeim þegar þeir eru í notkun. Eins með þyngd, ef boltinn vegur meira er líklegra að hann haldist þar sem hann á að vera. Það liggur í augum uppi að við ætlumst til þess að nuddboltinn okkar standist langvarandi notkun og því er mikilvægt að velja bolta úr endingargóðu efni sem þolir mikla notkun án þess að brotna niður.

Ætla má að nuddboltar séu forn tækni þar sem forfeður okkar hafa í gegnum tíðina notast við upphitaða- eða kalda steina sem nuddtækni, því má gera ráð fyrir að nuddboltinn sé nokkura þúsunda ára gömul hugmynd. Nuddbolti kemur sér vel fyrir alla sem vilja bæta árangur sinn. Ef nota á bolta fyrir æfingu er hugsunin til að virkja vöðvana, til dæmis axlir og rass. Eftir æfingu er boltinn notaður til þess að losa um spennu en þá er vænlegt að sameina vinnuna með nuddboltanum með djúpum og góðum teygjum.

Til að svara spurningunni um hvort að kaupa þurfi nuddbolta eða það sé vel hægt að nota gamla tenn isboltann sem til er heima þá er svarið tiltölulega einfalt. Að sjálfsögðu er hægt að nota tennisboltann og mun hann líklega gera eitthvað gagn, en vel hann aður nuddbolti kemur alltaf til með að skila meiri og betri árangri. Ef draga á saman hvernig nuddbolta við á Kírópraktorstöðinni mælum með, þá ætti hann að vera þokkalega þungur, kringlóttur og með góðu gripi. Einnig mælum við með nettum nuddbolta sem fer vel í íþróttatöskuna og þá frekar líklegri til að vera notaður. Rauði nuddboltinn frá RJR hefur reynst okkur mjög vel.

VIÐ TÖKUM AÐ OKKUR

AÐ SETJA UPP

OG PRENTA SÁLMASKRÁR.

Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.

SJÚKRALIÐANÁM Í FÍV

FRÉTTAHORN FÍV

Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum er boðið upp á sjúkraliðanám. Í gegnum árin hafa margir öflugir sjúklaliðar útskrifast frá skólanum og nýtt starfskrafta sína á ýmsum sviðum hér í Eyjum og víðar á landinu.

Nú í haust er stefnt að því að byrja með nýjan hóp í sjúkraliðanámi og er opið fyrir umsóknir á heimasíðu skólans www.fiv.is Bóklegi hluti námsins fer fram í fjarnámi og því hægt að stunda það með vinnu en verklegt nám fer fram í skólanum og á heilbrigðisstofnunum. Námið er 200 eininga nám á Sjúkraliðabraut sem er öllum opin og einnig er hægt að sækja um á Sjúkraliðabrú ef umsækjendur eru orðnir 23 ára og hafa starfað í umönnun a.m.k. 5 ár og tekið námskeið tengd starfinu, er þá námið styttra.

Sjúkraliði er lögverndað starfsheiti og gefur réttindi til að starfa á fjölbreyttum vettvangi heilbrigðisþjónustu. Nýlega tilkynnti heilbrigðisráðherra um aukið fjármagn til heimahjúkrunar, stefnan er að aldraðir geti búið lengur heima með því að efla þjónustu í heimahúsi. Þörf fyrir sjúkraliða í heimahjúkrun á því eftir að aukast til muna með þessari breytingu og áfram verður nóg af starfstækifærum á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum.

Sjúkraliðanámið er fjölbreytt nám sem líka er góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísinum. Nú er einnig í boði framhaldsnám í Háskólanum á Akureyri fyrir sjúkraliða og eru þar nokkur kjörsvið eins og í öldrun og heimahjúkrun.

Við hvetjum áhugasama til að hafa samband og einnig er hægt að kynna sér námið á heimasíðu skólans www.fiv.is

Lilja Óskarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og kennari við FÍV Verklegar æfingar á HSU
Nemi í verknámi. Í verknámi á Landspítalanum við Hringbraut Í verknámi á A-4 í Fossvogi. Verknám á Grensás. s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com Þak- og þakrennuskipti LEKUR? Almennt viðhald & smíði! Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Passamyndir Fasteignaljósmyndun SÍMI 775 9394
KAFFI TÚLÍPANAR TASKA SNALLSÍMI MÚSAMOTTA MÁLVERK PLÖTUSPILARI SÓFASETT SJÓNVARP LAMPI ORÐAÞRAUTIN Created with TheTeachersCorner net Word S KAFFI TúLíPANAR TASKA SNALLSíMI MúSAMOTTA MáLVERK PLöTUSPILARI SóFASETT SJóNVARP LAMPI Name: M I S I M Z N C T K W B V T Z X W B F K V A R G V F W T I N N S N A L L S Í M I L D M A S H I H D M A M Ú S A M O T T A S T M N L H F Z I T Q G K O F S W L B S W V O V J I A K A F F I S Q D Ó N R G F P J U I X M P S H N Y J L P Z F Z A D R G L Z Y T V K S C C Ó J Q Z E A P N C A U N R J Z A K K U N K T W A Q S D A R H P Y L D X V L K V T K Q Q X M E V P G M U T F K M K D A X I Ö D Y F X T J Í A C V J Y W Z B R Z M U S L W P O T T L U G V H A I G P M G F P U G P C D V P Ú N G V O J M Á L V E R K I F F V G Q V T H G Z G R Y F Q C K W L J S E E I M D R I T V K O O H I U W H Q T E G E H T Z Z D J SUDOKU 9 3 8 3 6 9 2 4 7 4 1 6 8 3 4 5 8 4 6 2 6 2 5 1 9 4 8 9 2 1 6 7 5 8 4 3 5 1 6 2 9 3 7 1 1 2 3 6 5 7 8 1 1 8 6 3 5 9 7 5 9 8 4 6 9 4 8 5 3 1 4 2 6 4 5 7 2 3 2 3 9 7 9 4 5 3 8 7 3 5 1 8 6 4 4 8 1 5 4 3 7 8 1 2 6 4 3 7 5 4 6 2 2 6 3 1 9 1 8 4 7 3 2 2 6 7 1 9 7 6 3 6 2 8 4 3 8 2 8 5 9 2 7 2 4 6 8 7 1 2 1 9 7 5 3 2 4 1 1 8 7 6 3 2 9 3 8 3 6 9 2 4 7 4 1 6 8 3 4 5 8 4 6 2 6 2 5 1 9 4 8 9 2 1 6 7 5 8 4 3 5 1 6 2 9 3 7 1 1 2 3 6 5 7 8 1 1 8 6 3 5 9 7 5 9 8 4 6 9 4 8 5 3 1 4 2 6 4 5 7 2 3 2 3 9 7 9 4 5 3 8 7 3 5 1 8 6 4 4 8 1 5 4 3 7 8 1 2 6 4 3 7 5 4 6 2 2 6 3 1 9 1 8 4 7 3 2 2 6 7 1 9 7 6 3 6 2 8 4 3 8 2 8 5 9 2 7 2 4 6 8 7 1 2 1 9 7 5 3 2 4 1 1 8 7 6 3 2

Hægt er að kaupa miða og velja sæti á eyjabio.is

FIMMTUDAGUR 18. MAÍ

KL. 20.00

FÖSTUDAGUR 19. MAÍ

KL. 20.00

LAUGARDAGUR 20. MAÍ

KL. 15.00

SUNNUDAGUR 21. MAÍ

KL. 15.00

KL. 20.00

JEEP® WRANGLER RUBICON

GOÐSÖGNIN RAFMÖGNUÐ HLÖÐUM Í HAGKVÆM FJÖLSKYLDUÆVINTÝRI

GOÐSÖGNIN RAFMÖGNUÐ

RAFMAGNAÐUR OG VATNSHELDUR JEEP® Konungur fjallaævintýranna. Jeep® Wrangler Rubicon býr yfir rafmögnuðum krafti sem skilar þér þangað sem þig langar. Plug-in Hybrid með mestu drifgetuna – náttúran hefur aldrei verið jafn heillandi.

RAFMAGNAÐUR OG VATNSHELDUR JEEP® Konungur fjallaævintýranna. Jeep® Wrangler Rubicon sem þig langar. Plug-in Hybrid með mestu drifgetuna

HLÖÐUM Í HAGKVÆM

FJÖLSKYLDUÆVINTÝRI

GLÆSILEGUR 455.000 KR. SUMARKAUPAUKI FYLGIR MEÐ

JEEP® COMPASS HENTAR ÞÉR FULLKOMLEGA

JEEP® COMPASS HENTAR ÞÉR FULLKOMLEGA

Rafmagnaður, fjórhjóladrifinn Jeep® Compass skilar þér hvert á land sem er. Pláss fyrir allt, alla og öll þín ævintýri út í búð eða upp á næsta fjall. Sumarkaupauki fylgir öllum Jeep® Compass og Jeep® Renegade. Dráttarbeisli, aurhlífar, hleðslukapall og þjónustuskoðanir að verðmæti 455.000 kr.

Rafmagnaður, fjórhjóladrifinn Jeep® Compass skilar þér hvert á land sem er. Pláss fyrir allt, alla og öll þín ævintýri út í búð eða upp á næsta fjall. Sumarkaupauki fylgir öllum Jeep® Compass og Jeep® Renegade. Dráttarbeisli, aurhlífar, hleðslukapall og þjónustuskoðanir að verðmæti 455.000 kr.

Rafmagnaður, fjórhjóladrifinn Jeep® Compass skilar ævintýri út í búð eða upp á næsta fjall. Sumarkaupauki Dráttarbeisli, aurhlífar, hleðslukapall og þjónustuskoðanir

ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
JEEP® WRANGLER RUBICON
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 • ISBAND.IS • JEEP.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 • ISBAND.IS • JEEP.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35”,
37” OG 40” BREYTINGAPAKKAR Í BOÐI

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.