16. tbl. 02. árg. 6. - 12. maí 2020
>> Ítarlegar reglur fyrir þátttakendur The Puffin run er inn í blaðinu
VESTMANNAEYJAHLAUPIÐ 2020
Vestmannaeyjahlaupið í ár veður laugardaginn 5. September. Hlaupið var valið götuhlaup ársins enda skemmtilegasta götu hlaup landsins og eitt það mest krefjandi. Í ár verður hlaupið tíu ára og lofar Eyjaskokk sem sér um hlaupið að í ár verða vinningarnir stórglæsilegir. Í ár verða eingöngu tvær hlaupaleiðir 5km og 10km skráning er hafinn inn á hlaup.is Það kostar eingöngu 4.000.- kr. í hlaupið og frítt er með Herjólfi yfir til Eyja fyrir skráða hlaupara. Þú vilt einfaldlega ekki missa af þessu hlaupi því getum við lofað þér.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Jói Myndó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Við erum stoltur styrktaraðili
The puffin run.
Við óskum ykkur góðrar skemmtunar!
GLEÐILEGT GOLFSUMAR
Tígull heyrði í Sigursveini Þórðarsyni formanni Golfklúbbar Vestmannaeyja og spurði út í golfsumarið.
Er búið að aflýsa einhverjum mótum sem eru venjulega hjá ykkur ? Nei, engum mótum hefur verið aflýst.
Hvað verða mörg mót í sumar ? Við reynum að hafa mót um hverja helgi frá miðjum maí og út september. Eins og staðan er núna eru 15 mót á vegum GV verið sett niður en það má búast við að þau verði fleiri. Síðan eru boðsmót á vegum fyrirtækja, þannig að líklega verða mótin á þriðja tug.
Hvað eru margir skráðir í GV í dag og hvert er hlutfall á milli karla og kvenna? GV er með rétt rúmlega 400 félaga skráða í klúbbinn og hefur hlutfall kvenna verið að aukast hægt að bítandi undanfarin ár og nú eru um 20% félaga konur. Við erum þó enn undir landsmeðaltali í þeim efnum en miðað við þann áhuga og það öfluga starf sem Karl Haraldsson golfkennari hefur verið með í kennslu má búast við að það bætist eitthvað í hópinn hjá okkur í sumar.
Eru þau öll komin með dagsetningu? Það er verið að leggja lokahönd á mótaskránna. Hún er nú yfirleitt tilbúin á þessum tíma en vegna þeirra óvissu sem hefur verið í samfélaginu vegna Covid-19 höfum við ekki viljað gefa hana út, þar sem óljóst var hvenær við gætum byrjað. Hvenær er áætlað að fyrsta mót sumarsins verði og hvaða mót er það ? Stefnt er að fyrsta mótinu laugardaginn 16.maí og verður það opið mót á vegum klúbbsins. Nánari upplýsingar um það verða sendar út þegar nær dregur.
Eru einhver sérstök kvennamót eða sérstök karlamót ? Kvennadeildin hefur verið að eflast mikið undanfarin ár og sýnist mér engin breyting ætla að vera á því í ár, frekar bætt í ef eitthvað er. Við höfum hinsvegar ekki verið með sérstök kvenna eða karlamót á vegum GV. Það eru allir velkomnir í mót hjá okkur og vil ég nota tækifærið hér og hvetja félaga til að vera duglega að mæta í mótin hjá okkur í sumar og efla þannig starfið inn í klúbbnum.
Hvað kostar árgjaldið, byrjendur og lengra komnir ? Árgjald er 85.000. Veittur er 30% afsláttur til eldri borgara og nýliða, þannig að gjald þessara hópa er 59.500.- Síðan eru önnur gjöld fyrir börn og unglinga og veitir Elsa Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri nánari upplýsingar um það. Hvað kostar að spila einn hring ? Fullt vallargjald er 9.000 krónur en GSÍ gjald er 6.000. Að lokum: Völlurinn kemur sérstaklega vel undan vetri núna og er komin mikil tilhlökkun í kylfinga að keyra golfsumarið í gang. Ég vil þó minna á þær reglur sem eru í gangi vegna Covid-19 og brýni fyrir kylfingum að fara í einu og öllu eftir þeim fyrirmælum sem í gangi eru. Gleðilegt golfsumar
VORTILBOÐ Á GJAFABRÉFUM Gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi Morgunverður SPA 1. október - 30. apríl gildir það fyrir tvær nætur Verð: 27.000 kr.
Vestmannabraut 28 Sími: 481 2900 hotelvestmannaeyjar.is
VERTU KLÁR Í FJALLAHLAUP SUMARSINS
Margir hafa það sem sameiginlega markmið að geta hlaupið langar vegalengdir og keppt í krefjandi fjallahlaupum jafnvel víðsvegar um heiminn. En hvað þarf til þegar kemur að því að hlaupa langar og krefjandi vegalengdir í margar klukkustundir í senn? Þar sem ég er að fara í mitt stærsta fjallahlaup til þessa 6. mars (128 km TransGranCanaria með 7.500m hækkun) þá langar mig að deila með ykkur þeim punktum hvað mér þykir hvað mikilvægastir þegar kemur að undirbúningi og öðrum mikilvægum atriðum fyrir hin ýmsu fjallahlaupum. - Æfingaráætlun: Hér þarf fyrst og fremst að huga að því að byrja snemma að æfa, hafa góðan og réttan stíganda í æfingunum og hlaupa alltaf löngu æfingahlaupin fyrir langar keppnir (mikilvægast í áætluninni). Hlauptu í fjöllum, taktu brekkuspretti og reyndu líka að stunda aðrar æfingar líkt og hjól og styrktarþjálfun. Því lengri sem áskorunin er því mikilvægara er að næra sig og drekka reglulega í
gegnum hlaupið. * Mikilvægast er að fá vegalengdina í fætur og æfa næringu + huga að fjölbreyttri styrktarþjálfun. - Búnaður: Góðir hlaupaskór, compression hlaupafatnaður sem veitir góðan stuðning, löglegur hlaupajakki, álteppi, höfuðljós, rautt blikkljós, hlaupabakpoki (næring í bakpokann + smá vara næring). Sjálfur nota ég On hlaupaskó, 2XU Compression fatnað og stuðningsvörur frá Sportvörum til að halda mér góðum í æfingum og keppnum. Þessir hlutir sem ég taldi upp hér að ofan þurfa alltaf að vera til staðar í hlaupunum og mikilvægt er að vera búinn að prófa að hlaupa í öllum búnaðinum oftar en einu sinni fyrir keppni. * Veldu fatnað/búnað sem þér líður vel í, heldur öllu sem þú þarft að hlaupa með og veitir þér góðan stuðning. - Næring: Næring fyrir, yfir og eftir hlaup getur skipt sköpun þegar kemur að löngum og krefjandi fjallahlaupum. Sjálfur nota ég Foodspring hlaupagelin og er einnig hrifin af Power balls frá Heilsu
ehf (hnetusmjörs kúlur) í hlaupunum. Ég einblína alltaf á holla og góða fæðu og tek samhliða hollum mat vítamín frá Terranova Health. Þú verður að næra þig vel fyrir hlaupið, taka gel og aðra næringu sem fer vel í magann yfir hlaupið sjálft og reyna að koma einhverju niður sem fyrst eftir hlaup (en það getur oft verið erfitt þar sem maginn getur verið viðkvæmur). Mér þykir gott að drekka í mig smá næringu strax eftir hlaup og þykir mér t.d. próteinbætt hleðsla virka vel svona fyrst eftir hlaup + svo fljótlega banani eða orkustykki. * Næring kringum og yfir hlaupið er lykillatriði að velgengni og vellíðan í hlaupinu sjálfu. - Heimavinnan fyrir hlaupið: Þegar ég tala um heimavinnu fyrir hlaup þá er ég að tala um að skoða vel brautina og sjá hvernig þú getur hagað orkunni í takt við drykkjarstöðvar og erfiða kafla (brekkur og grítta slóða) í hlaupinu. Skoða veðurspánna, passaðu uppá að þú sért með allan nauðsynlegan búnað og jafnvel varabúnað, vertu búinn að hlaupa öll löngu hlaupin minnst 3-4 vikun fyrir áskoruninna og
EINSI KALDI FRÁ & MEÐ 7.MAÍ ER OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KLUKKAN 17:00
ALLT UNNIÐ FRÁ GRUNNI ÚR HÁGÆÐA HRÁEFNI VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR & ÞÍNUM
BORÐPANTANIR Á FACEBOOK EÐA Í SÍMA 481-1415 EINSIKALDI.IS
VERTU KLÁR Í FJALLAHLAUP SUMARSINS FRH. sigurjonernir sigurjon1352
settu hlaupaleiðina í úrið fyrir hlaup. (Sjálfur hef ég verið að hlaupa með forerunner 945 frá Garminn búðinni og er virkilega hrifinn af því hversu nákvæmt úrið er þegar kemur að því að rata hlaupaleiðina út frá kortinu í úrinu). Úrið segir hversu langt ég er komin, hversu langt ég á eftir að hlaupa, hækkun og lækkun gegnum hlaupið, púls og svo mætti lengi telja. Þetta þykir þessir þættir mjög mikilvægir og hjálpa mér að haga hraða og næringu rétt í gegnum hlaupið. * Passaðu að allt sé klárt fyrir hlaup og þú vitir hvað þú ert að fara út í. - Sjálfstraustið og rétt hugarfar: Það er afar mikilvægt að þú trúir á sjálfa/sjálfan þig og farir inní áskorunina fullur/full sjálfstrausts. Með því að hlaupa löngu hlaupin og jafnvel keppa í nokkrum hlaupum fyrir stóru áskorunina öðlastu reynslu, betri sýn og sjálfstraust sem getur skipt sköpun þegar þú ert á lokametrunum í undirbúningsferlinu. Mundu að þú ert að gera þetta fyrir þig og að þetta á að vera gaman. En eins skemmtileg og svona hlaup geta verið þá geta þau svo sannarlega verið krefjandi á köflum. Fyrir svona hlaup þá er ég
alltaf meðvitaður um þann tíma sem verkefnið mun ca. taka mig og hversu erfitt hlaupið getur orðið á köflum (búðu þig undir það versta, en vonaðu það besta). * Farðu með opin huga í áskorunina og vertu tilbúinn að tækla allar áskoranir sem koma til að verða á þínum vegi. - Fjölbreytni: Með því að stunda fjölbreytta þjálfun (hlaup, hjól, styrtkarþjálfun, boot camp, crossfit o.fl.) þá drögum við talsvert úr líkum á meiðslum og fyrirbyggjum einnig einhæft æfingarplan sem verður gjarnan til þess að fólk fær leið og gefst upp. Fjölbreytt þjálfun ýtir alltaf undir alhliða styrk, sem getur svo sannarlega fyrirbyggt meiðsli og flýtt fyrir endurheimt eftir krefjandi æfingar og keppnir. * Gerðu reglulega æfingar sem þig langar að gera og ekki vera feiminn við að breyta til í æfingunum. - Hvíld: Athugið að þegar ég tala um hvíld þá er ég ekki einungis að tala um að hvíldardag/daga. Það sem skiptir öllu máli þegar komið er að hvíldinni
eru í raun blanda af mörgum þáttum. Álag í æfingum, álag í vinnu, álag heima fyrir, regluleg næring, svefn og svo mætti lengi telja. Það er lítið mál að æfa tvisvar á dag svo lengi sem svefninn er í toppmálum, hvíldin milli æfinga er góð og þú ert í afslappaður/ afslöppuðu og góðu umhverfi laus við mikið stress og mikið líkamlegt álag kringum æfingar. Þetta snýst alltaf um hið gullna jafnvægi og að þér líði vel líkamlega jafnt sem andlega. * Hugaða ávallt að hinu gullna jafnvægi þegar kemur að líkamlega og andlega álaginu. Þegar öllu er á botnin hvolft eru vissulega nokkrir hlutir sem geta orðið til þess að þú nærð ekki að hlaupa vel, nærist ekki rétt eða getur ekki klárað áskorunina. En þessir hlutir eru oftar en ekki þú, þar sem þú átt að sjá um alla þessa þætti sjálfur. Vissulega getum við lent í meiðslum, veikindum og öðrum aðstæðum sem við ráðum ekki alltaf við. En þegar við horfum á heildar myndina er það ávallt við sjálf sem ráðum ferðinni og hversu langt við getum náð. Sigurjón Ernir
Opið allan daginn, alla daga frá 11:30 - 21:00 Borðapantanir og take away 4813060 #gottveitingastadur Bárustíg 11 900 Vestmannaeyjar
/gottrestautant 481-3060
www.gott.is
gott@gott.is
REGLUR Kæri þátttakandi í The Puffin Run Rásmark er á Skansinum kl 12:30 ( ræst er út í 50 manna hópum ) Gögn verða afhent í Leturstofunni (Strandvegi 47) á föstudeginum kl.17:00 – 20:00. Mikilvægt er að heimamenn sæki gögnin sín þá.
Lokað verður fyrir bílaumferð á fyrsta hluta leiðarinnar þannig að rýmra verði fyrir þátttakendur. ( merkt með rauðri línu )
Þeir sem koma samdægurs fá gögnin sín á Skansinum í húsinu Landlist. Bílastæði eru austan við Fiskiðju.
Þeir sem eru að eru í liðakeppni fá akstur frá Skansinum á sinn rásstað. Gaman væri að þeir sem eru í liðakeppni sameinist við vitan á Skansinum og hlaupi með sínum liðsfélaga síðustu 200 metrana í mark. Ljósmyndarar verða á staðnum. Við biðjum ykkur kæra hlaupfólk að virða #tveggjametraregluna. Við rásmark munum við skipta svæði í hólf þar sem mega vera hámark 50 manns í senn. Við biðjum keppendur að vera með buff og hafa það fyrir vitum í ræsingu. Hólfin verða skipt niður svona: Hólf A og B - Hraðir Hólf C og D - MIðlungs Hólf E - Hægir Hlaupið er frá Skansinum vestur Tangagötu og Skildingaveg, vestur Strandveg frá Skipasandi, niður að Friðarhöfn, upp með Skiphellum, upp Hlíðarveg, vestur Hamarsveg og inn í Herjólfsdal og þaðan frá hamrinum og utan vega í kringum Heimaey.
Bílastæ
Keppendi hafa 3 klst. til að hlaupa hringinn. Ef keppandi lýkur ekki fyrri 10 km. á innan við 90 mín. ber honum að hætta keppni og skila flögunni til brautarvarðar.
ði
Keppandi þarf að fara yfir línu á skiptistöð. Bæði þar sem hann byrjar og endar.
VINNINGAR Einstaklingskeppni karla og kvenna Hótel Vestmannaeyjar gisting fyrir tvo, Ribsafariferð fyrir tvo, Einsi Kaldi 15.000,- gjafabréf Sportvörur 25.000,- gjafabréf Axel Ó 15.000,- gjafabréf
Parakeppni KK/KK, KVK/KVK, KVK/KK Gjafabréf á veitingastaðnum Gott 10.000,og gjafabréf hjá Kayak & puffins fyrir tvo.
Liðakeppni KK, KVK, KK/KVK Volcano ATV fjórhjólaferð fyrir liðsmenn. Allir vinningshafar fá pakka af harðfisk frá Volcano Seafood
Útdráttarverðlaun 4 gjafabréf frá veitingastaðnum Tanganum, 10.000,2 gjafabréf frá Pítsugerðinni, 10.000,2 gjafabréf frá Pizza 67, 10.000,2 gjafabréf frá Kránni, 7.500,Heildarverðmæti vinninga rúmlega 650.000,- kr.
SÍTRÓNUKJÚKLINGUR MEÐ HVÍTLAUKSMAJÓ - Uppskrift vikunnar -
Hráefni: Kjúklingur 2 pk kjúklingaleggir (12-14 stk) 80 ml ólífuolía 1 sítróna 2 tsk hvítlauksduft 2 tsk salt ½ tsk svartur pipar 2 tsk paprikuduft 2 tsk oregano Aðferð: Blandið öllu nema kjúklingaleggjum saman í skál og pískið saman. Þerrið leggina og komið fyrir í stórum zip lock poka. Hellið kryddleginum ofan í pokann og nuddið vel saman, kælið í að minnsta kosti klukkustund, best er að ná nokkrum klukkutímum eða jafnvel yfir nótt. Bakið í ofni við 220°C í um 20 mínútur, snúið einu sinni og bakið í 10 mínútur til viðbótar. Einnig má grilla leggina úti en þá þarf skemmri tíma.
Berið fram eina og sér með hvítlauksmajónesi eða einnig með kartöfluteningum, salati eða öðru (Hér eru leggirnir með hvítlauksmajónesi og kartöfluteningum, sjá uppskrift að neðan). Meðlæti: Hellmann‘s hvítlauksmajónes 3 bökunarkartöflur Ólífuolía, salt, pipar og hvítlauksduft Skrælið og skerið niður bökunarkartöflur í litla teninga (um 1cm í þvermál). Steikið upp úr ólífuolíu á miðlungsháum hita þar til þeir mýkjast og kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti. Gott er að bæta aðeins meiri olíu á pönnuna eftir þörfum og hræra vel í, það tekur um 20-25 mínútur fyrir kartöflurnar að brúnast og mýkjast svo tilvalið er að elda þær á meðan kjúklingurinn er í ofninum.
Ljúfengur grænn drykkur: 2 bollar spínat 1 bolli vatn 2 afhýddar og smátt skornar appelsínur 2 bollar blönduð ber Þeytið saman vatnið og spínatlaufin þar til allt er orðið slétt og mjúkt áferðar. Bætið því næst appelsínum og ferskum / frosnum berjum út í blandarann og þeytið saman aftur. Hægt er að skipta út vatni fyrir kókos- eða möndlumjólk til að gera drykkinn rjómakenndari.
HEIMSENDING MIÐVIKUD. - SUNNUD. MILLI KL. 17:30 - 20:30
pantaðu í síma
551 0055
TILBOÐ 1 Pítsa með 3 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 0,5 L gos
3.790 kr.
TILBOÐ 2 Tvær Pítsur með 2 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 2 L gos
5.190 kr.
TILBOÐ 3 G-special, Sparibrauðstangir & 2 L gos
4.290 kr.
/PÍTSUGERÐIN
#PITSUGERDIN
1. Margaríta með sósu og mozzarella
1.700 kr.
2. Hvítlauksbrauð með mozzarella, hvítlauk, sjávarsalti, og hvítlauksolía
1.690 kr.
3. Brauðstangir með mozzarella og sérvaldri kryddblöndu
1.690 kr.
4. Sparibrauðstangir - hálfmáni með mozzarella, rifnum osti kryddblöndu, hvítlauksolía og piparostur
1.690 kr.
5. Extra pepp með sósu, extra mozzarella og extra pepperoni
2.290 kr.
6. Hawaii með sósu, mozzarella, skinku og ananas
1.990 kr.
7. Pepp og svepp með sósu, mozzarella, pepperoní og sveppum 1.990 kr. 8. Fiesta með sósu, mozzarella, pepperóní, hakki, skinku, hvítlauksolíu
1.990 kr.
9. Trufflað hvítlauksbrauð, með ferskum hvítlauk, mozzarellaosti, sjávarsalti, rjómaosti og truffluolíu
1.890 kr.
10. Döðlupítsa með sósu, mozzarella, döðlum, beikonbitum og kjúkling
2.390 kr.
11. Ostapítsa með sósu, mozzarella, gráðosti, piparosti, rjómaosti, parmesan og sultu til hliðar
2.250 kr.
12. Calzone með sósu, skinku, mozzarella, sveppum, lauk, osti og kryddblöndu
2.190 kr.
13. Vinsæla með sósu, mozzarella, pepperoni, rjómaosti ólífum, jalapeno, svörtum pipar og ananas
2.550 kr.
14. Spæsí með sósu, mozzarella, pepperoní, pikklaður jalapeno, pipar, hunang og ferkst basil
2.390 kr.
15. Parma rocket með sósu, hráskinku, mozzarella, klettasalati, parmesan 16. G - Special með BBQ, pepperoní, osti, rjómaosti, beikon trufflukremi, döðlum, jalapeno, salti og pipar
2.490 kr.
2.790 kr.
VILT ÞÚ ÖÐRUVÍSI SKÓ?
Tígull heyrði af ungum listamanni með skemmtilega nýja list, en hann Sveinn dundar við að mála á skó á þessu skrýtnum tímum covid. Við fengum að senda á hann nokkrar spurningar.
Nafn: Sveinn Josè Rivera Fjölskylda: Kem úr Reykjavík en er hèr í eyjum í sumar hjá fjölskyldu kærustu minnar (Arnar Rikka og Elfa Ágústa) Áhugamál: Handbolti og skór Segðu okkur aðeins frá þér: Èg er háskólanemi sem lærir sálfræði við Háskólann í Reykjavík, einnig spila èg handbolta með Aftureldingu í Olísdeildinni. Hvað ertu að bralla þessa dagana á þessum skrýtnu tímum? Eftir að hafa verið fastur inni í u.þ.b 5vikur, fyrst í sóttkví og síðan einangrun þá hef èg haft nóg tíma á loftinu hjá tengdó að mála skó. Hvernig er hefðbundinn dagur í þínu lífi? Á venjulegum tímum fara flestir dagar í skóla og handbolta æfingar Hvernig kom sú hugmynd upp að fara að mála á skó? Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á skóm yfir höfuð, og á nú orðið mjög efnilegt skósafn þó èg segi sjálfur frá, við mikinn
fögnuð frá kærustunni. Fyrir hálfu ári fann èg Instagram-síðu með svona máluðum skóm, èg skoðaði allskonar skó síður og myndbönd af skóm sem endaði með því að èg ákvað að prófa sjálfur. Sem hefur leitt af því að það sè brjálað að gera og mála skó á hverjum degi. Fyrir þau sem hafa áhuga á að eignast handmálaskó eftir þig, hvernig er best að panta? Fólk getur haft samband bæði í gegnum Instagram-síðuna og gegnum facebook-síðuna. Hefuru alltaf verið svona listrænn? Hef alltaf teiknað mikið, sèrstaklega þegar èg var yngri, hef aldrei lært eða fara á námskeið tengt list. Er nóg að gera í þessu? En já mikið að gera núna, eins og er eru að detta inn pantanir á hverjum degi, sem er bara mjög ánægjulegt. /sriveracustom
Sumaropnun: Sun - fim frá 11:30 - 21:00 Fös og lau frá kl. 11:30 - 22:00 sími: 414 4420
lamba
KÓTILETTUR OREGANO
+
grænmeti + franskar + hrásalat + bernaise
Bárustígur 1 / 481 - 3939
Grænmetisréttur með stökkri osta tortillu Verð: 2.390 kr.
/midstodin
HIÐ FULLKOMNA HDS FESTINGAKERFI FYRIR KLÆÐINGAR OG SÓLPALLA Í þessu nýja HDS kerfi - Hidden Decking System - er sérhönnuðum skrúfunum stýrt í gegnum stýringar á “töng” sem stillir um leið rétt bil á milli borðanna.
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga
Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV
l
F
L
S
l
Brottf.
Lent
7:15
7:40
l l
15:45 16:10
l
Frá VEY
MILWAUKEE BORVÉL NETHAMARS
l
17:30 17:55
l
16:30 16:55 18:15 18:40
8:00
l l l
8:25
Kæri viðskiptavinur sem fékkst vélina okkar lánaða um daginn, okkur ljáðist að skrifa niður nafn þitt og munum ekki hver þú ert. Vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma: 481 1216 Starfsfólk Nethamars
Flugáætlun gildir til 31. maí
Tannlæknar
Á að skipta um glugga í sumar?
12. -17. maí Hjalti Þórðarson
2 laga gler eða
3 laga gler
22. - 24. maí Rakel Ósk Þrastardóttir
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
/crispus
2
ÁRA afmælisveisla
+10% MEÐ KÓÐANUM
Sparaðu 45% í netverslun okkar
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-3332 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.
AFMÆLI45
Gildir aðeins 5-12 maí
Engin bið eftir tilboði - þú sérð verðið strax á netinu!
Ævintýraferð
fjölskyldunnar til Eyja
Tilboð 1
Tilboð 2
Gisting í 1 nótt fyrir 2 fullorðna og 1 barn
Gisting í 2 nætur fyrir 2 fullorðna og 1 barn
Innifalið: 1x máltíð á Tanganum
Innifalið: 2x máltíðir á Tanganum
Verð: 17. 990 kr. Aðstaða fyrir eitt barn í viðbót: 2.000 kr.
Verð: 33. 990 kr. Aðstaða fyrir eitt barn í viðbót: 4.000 kr.
Upplýsingar Pantanir og nánari upplýsingar í síma 846 - 9111 (Hafdís) /glampingogcamping Dýnur og sængur ekki innifalið fyrir börnin. Börn: 12 ára og yngri. Drykkir ekki innifaldir.
sportvorur www.sportvorur.is