15. tbl. 04. árg. 27. apríl - 3. maí 2022
STEFNAN SETT Á HM
ÞARF AÐ HLAUPA 160 TIL 200 KM
segir Friðrik Benediktsson
VIÐBURÐIR FRAMUNDAN FIM
28 APRÍL
FÖS
29 APRÍL
LAU
30 APRÍL
LAU
30 APRÍL
LAU
30 APRÍL
SUN
01 MAÍ
LAU
03 MAÍ
30
ÍBV - STJARNAN Olísdeild kvenna | Úrslit
Íþróttamiðstöðin kl. 19.40
Laugardagur
APRÍL
TÍU LITLIR EYJAPEYJAR Leikfélag Vestmannaeyja
Kvika kl. 20:30 STJARNAN - ÍBV Olísdeild kvenna | Úrslit
TM Höllin kl. 16:00 TÍU LITLIR EYJAPEYJAR Leikfélag Vestmannaeyja
Kvika kl. 20:30
Ísfélagið býður á ball með Á móti sól í Höllinni. Húsið opnar kl. 23.00
Á MÓTI SÓL Ball í Höllinni
Húsið opnar kl. 23.00
DAGSKRÁ FÉLÓ
ÍBV - LEIKNIR R. Besta deild karla
Hásteinsvöllur kl. 16.00
MIÐ
27 APRÍL
ÍBV - SELFOSS Besta deild kvenna
Hásteinsvöllur kl. 18.00
OPIÐ HÚS
9. & 10. BEKKUR 19:30 - 22:00
FIM
28
FIFA MÓT!
APRÍL
FÖS
29 30
leturstofan@leturstofan.is
TÍGULL
LAU
APRÍL
APRÍL
Er tilefni? Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Þú getur sent okkur grein og við birtum. tigull@tigull.is
LOKAÐ Í FÉLÓ
SAMFESTINGUR 8.-10. BEKKUR
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Hittumst! Opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins verður í Ásgarði laugardaginn 30. apríl kl: 15:00-17:00. Hoppukastalar, grill, tónlist, barnapössun, andlitsmálun ofl. Frá og með 2. maí verður síðan morgunkaffi á virkum dögum í Ásgarði sem hefst kl: 09:30 Komdu og gerðu þér glaðan dag.
Kynnumst! Opin fundur fyrir alla Eyjamenn og gesti í Akóges mánudaginn 2. maí kl: 12:00-13:00. Þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins vilja kynnast samfélaginu frekar og munu þau sitja fyrir svörum, taka umræðu og fá ábendingar frá þér um málefni Eyjanna. Komdu og spjallaðu við þingmennina okkar.
Gleðjumst! Sælkerakvöld Sjálfstæðisflokksins verður haldið í Ásgarði sunnudaginn 1. maí kl: 19:30. Ríkharður sextándi eða Rikki kokkur töfrar fram veislumatseðil. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þátttöku þarf að tilkynna á xdeyjar@gmail.com Komdu og vertu með okkur.
Því hér á ég heima
STEFNAN SETT Á HM
ÞARF AÐ HLAUPA 160 TIL 200 KM
Friðrik Benediktsson er 39 ára ungur Eyjamaður sem hefur verið að æfa fyrir Ultrahlaup sem heitir Bakgarðurinn. Bakgarðurinn er með þannig fyrirkomulag að hlaupari hleypur 6,74 km hring og hefur eina klukkustund til að klára þá vegalengd. Sá vinnur sem fer flesta hringi. Sex efstu hlaupararnir tryggja sér silfur miða á HM. Það er einmitt það sem Friðrik stefnir á að gera. Til þess að eiga möguleika á því þarf hann að hlaupa 160 til 200 km sem tekur þá 24 til 30 klst. Hlaupið byrjar kl 09:00 á laugardagsmorgun þann 30. apríl næstkomandi. Hlaupinn er hringur í Öskjuhlíðinni, en hlaupararnir verða með aðstöðu í Mjölni ( gömlu Keiluhöllinni ). Við hvetjum alla sem eiga leið hjá til að koma og hvetja Friðrik áfram. Það er alltaf gott að fá stuðning frá hliðarlínunni. Starfsmaður á plani í The Puffin Run Hið árlega Puffin Run er svo helgina þar á eftir, þann 7. maí, en Friðrik stefnir á að hjálpa eingöngu til við hlaupið þar sem hann þarf hvíld eftir Bakgarðinn. Hér eru hans ráð til hlaupara sem eru að fara að taka þátt í Puffin Run. „Ég verð aldrei leiður á að fara þessa leið og nota hana mikið í mínum æfingum, bæði heilan hring og styttri leiðir úr henni, og alltaf sé ég eða upplifi eitthvað nýtt í hverju hlaup. T.d. í fyrra þá fór ég hringinn tvisvar sinnum en hvorugur hringurinn var eins, alltaf eitthvað nýtt poppar upp. Ég veit ekki hvað ég hef hlaupið þessar leiðir oft en þeir eru orðnir mjög margir kílómetrarnir sem ég hef eytt á þessari leið og alltaf heillar hún mann með einhverju nýju. Núna í ár erum við en að ná að fækka malbikuðu köflunum á leiðinni sem mér finnst frábært og fagna því mjög. Núna er ný leið upp á Stórhöfða sem er mjög skemmtileg en á sama tíma mun meira krefjandi og með frábæru útsýni. Það mun vera brjáluð stemning strax frá upphafi og allt að endamarkinu. Mest krefjandi: Mér finnst fjaran erfiðasti kaflinn á leiðinni, hún tekur úr manni allan vind ef maður passar sig ekki, og það á sérstaklega við núna þar sem vil lengdum fjöru kafl-
ann og förum upp á Stórhöfða á öðrum stað. Þá borgar sig að vera aðeins á bremsunni þar. Eins kemur smá brekka upp að Kinn þegar um 11,512 km eru búnir af leiðinni. Ekki brattasta brekkan en ótrúlega lúmsk 1,5 km brekka sem sem getur tekið í ef maður reynir of mikið. Skemmtilegast: Mér finnst Stórhöfðinn alltaf skemmtilegur og finnst fátt skemmtilegra en að láta mig flakka á niðurleiðinni. Eins er hraunið í lokin algjörlega stórbrotin leið en á sama tíma erfið á fótinn og mjög tæknileg. Ráð fyrir byrjendur: Hringurinn er með um 640 m hækkun þannig að leiðin er krefjandi en á sama tíma algjörlega einstök. Fyrstu 5 km eru nokkuð þægilegir 3,5 km á malbiki í byrjun sem hægt er að rúlla bara nokkuð þægilega en samt ekki fara of hratt á stað. 5-10 km kaflinn. Þá er leiðin talsvert upp og niður á sumstaðar tæknilegum stígum sem borgar sig að horfa vel fram fyrir sig. Fjaran kemur eftir um 7,5 km og þá borgar sig eins og ég sagði áðan að vera aðeins á bremsunni og upp Stórhöfðan þar sem 10 km drykkjarstöðin er. 10-15 km kaflinn Þá er þessi brekka sem ég nefndi áðan upp að Kinn sem er lúmsk og mjög langdreginn en samt vel hlaupanleg. 15-20 km kaflinn. Þar kemur skemmtilegur kafli á bakvið Eldfellið sem er hressandi kafli sem getur rifið í, þá sérstaklega ef það er þurrt. Þá getur vikurinn í hrauninu verið laus og þá er hætta á að byrja að spóla sem eyðir óþarfa orku. Þegar um 17,5 km er búnir þá kemur hraunið fyrir alvöru mögnuð leið en ekki hættulaus og borgar sig fyrir reynslu minna fólk að horfa vel fram fyrir sig og passa hvar það stígur niður. Síðasti 1,2 km hlutinn er þegar maður kemur niður í fjöruna þá er bara um að gera að fara all inn og enda hlaupið með stæl, smá fjara til að byrja með og svo malbik að mestu í mark.“
býður á ball
í höllinni
laugardaginn 30. apríl húsið opnar fyrir ballgesti kl 23.00 sjávarréttarsúpa í boði á miðnætti ath! 18 ára aldurstakmark
Á móti sól hljómsveitin Gullöldin hitar upp
10 litlir Eyjapeyjar
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
FÖSTUDAG 29. MAÍ KL 20:30 LAUGARDAG 30. MAÍ KL 20:30 MIÐASALA Í SÍMA: 852-1940
Afmæli vikunnar ÁRA ÁRA
Gísli Foster Hjartarson - 01.05
Geir Jón Þórisson - 24.04
ÁRA
Benóný Friðriksson - 25.04
ÁRA
30 55 70 70
Guðmundur Arnar Alfreðsson - 30.04
40
ÁRA
eftir Agatha Christie
Lind Hrafnsdóttir - 05.04
Til hamingju með stórfmælið! Á að gera eitthvað í tilefni dagsins? Já, ég er að fagna þessum merka áfanga á Tenerife með fjölskyldunni.
„Unless you’re a pizza the answer is yes, I can live without you” - Bill Murray
PIZZUTILBOÐ
sent sótt
12” PIZZA með 3 áleggjum
+ 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.990 kr. ]
9” PIZZA
með 3 áleggjum [ 1.990 kr. ]
12” PIZZA
með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.590 kr. ]
Sjáumst á OPIÐ
Mán-fim 17-21 Fös og lau 12-22 Sun 12-21
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.490 kr. ]
12” PIZZA
með 3 áleggjum [ 2.390 kr. ]
16” PIZZA
með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.090 kr. ]
16” PIZZA
með 3 áleggjum [ 2.890 kr. ]
TVENNUTILBOÐ
Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir
[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]
Sendum heim alla daga ( 481-1567
STEFANÍA LÉT DRAUMINN RÆTAST
Stefanía Ósk Bjarnadóttir er nítján ára Eyjamær sem átti sér draum um að ferðast um heiminn. Hún ákvað að láta draumin sinn rætast og skellti sér til Bandaríkjanna sem aupair síðasta haust og sér svo sannarlega ekki eftir því. Hvernig kom það til að þú ákvaðst að gerast au pair? Ég sá auglýsingu á Facebook um að fjölskyldunni vantaði Au Pair, ég hugsaði um þetta í max klukkutíma og sagði svo bara fokk it og tveimur mánuðum seinna var ég flutt. Var Bandaríkin fyrsta val? Já, þar sem ég var nú þegar komin með fjölskyldu hugsaði ég ekki um annað.
Var ferlið erfitt eða flókið að sækja um? Myndi nú ekki segja erfitt eða flókið þetta var meira frekar langt ferli en svo þess virði og þar sem ég var nú þegar komin með fjölskyldu þá gekk það betur fyrir sig. Hvernig er fjölskyldan sem þú ert hjá? Fjölskyldan sem ég er hjá er æðisleg og við náum virkilega vel saman. Ég bý hjá hjónunum Ásdísi Finnsdóttur, hún er barna læknir á spítalanum hérna úti (Children’s mercy´s hospital) og Nolyn James Wagner sem rekur sitt eigið fyrirtæki ásamt fjölskyldu meðlimum (MP360) og er það fyrirtæki sem gerir upp hús fyrir fólk og svo eru þau einnig að kaupa fasteignir og gera þær upp og selja þær.
Hvað eru börnin gömul? Það eru þær Sólveig Lóa Wagner (5 ára) og Bryndís Magnea Wagner (verður 3 ára í Maí) og eru þær alveg æðislegar og báðar með svaka mikinn húmor og er svo gaman að sjá þær þroskast og vaxa. Hvernig er dagurinn ca hjá þér? Þrjá daga vikunnar fara þær í skólann en hina tvo eru þær heima hjá mér, þetta er svona til að Íslenskan þeirra þroskist. En dagana sem þær fara í skólann þá byrja ég um 7 leytið og græja fötin og allt sem þarf fyrir skólann. Svo vakna þær um klukkan hálf átta, átta, þá græja ég þær og kem þeim í skólann. Svo kem ég heim og er þá með frítíma þar til um hálf fimm þegar ég sæki
þær en þennan frítíma nýti ég í að læra, þvo þvottinn minn og einstöku sinnum er ég beðin um að ganga frá hlutum fyrir stelpurnar. Ég er farin við að dunda mér mikið við að endurraða í hillur og þrífa á daginn. Dagarnir sem þær eru heima eru mjög mismunandi, ég byrja hálf átta, átta græja þær svo förum við oftast út að leika eða á þriðjudögum fara þær á fimleikaæfingu svo seinni partinn set ég þær í bað og er þá búin um 6 leytið. Ertu í námi? Já, er í fjarnámi frá FÍV og svo er ég í au pair tímum hérna úti, þeir eru allir mismunandi en ég er í tíma sem heitir Combo class, make a difference and discover the US. Ertu búin að ferðast mikið um USA? Já, svona eitthvað, hef farið núna tvisvar á bretti í Colorado með fjölskyldunni og svo fór ég í lok febrúar til LA með vinkonu minni sem var klikkað gaman fórum í Warner bros studio tour, Disney, universal og meira skemmtilegt, mætti segja að við höfum tekið allan LA pakkann. Svo í lok apríl erum ég og vinkona mín að fara til St.louis á söngleikinn Hamilton og í Six flags. Svo er það heimsókn til Íslands í maí, annars er ekkert bókað eins og staðan er núna, en mikið af hugmyndum um næsta ferðalag komið Hvers saknaður mest frá Íslandi? SS pulsum og kókómjólk. Og auðvitað fjölskyldunni minni og vinum. Líka Svenna í Klettinum, sakna Klettsins mikið. Ég ætla ekki einu sinni að minnast á það að ég missi af Þjóðhátið. Fjölskyldan mín hérna úti er búin að lofa svaka skemmtun yfir verslunnamannahelgina. Gætir þú hugsað þér að búa í USA? Já, svo sem, Kansas er mjög fínn staður og ég væri alveg til í að upplifa háskólalífið hérna en það jafnast samt ekkert á við það að vera í kringum fjölskyldu og vini í Eyjum. Þannig að ég held ég myndi alltaf kjósa það að búa heima. Hvenær kemur þú heim aftur? Spyr mig þessarar spurningu á hverjum degi. En ég kem í heimsókn í maí en er ekki viss hvort ég klári árið fram í september og komi heim þá eða taki annað ár hérna.
Hvað er það eftirminnalegasta sem þú hefur gert í Kansas? Held ég verði að segja Chiefs leikur, það er ein besta upplifun sem ég hef upplifað. Það er mjög mikil þjóðhátiðarstemming fyrir leik, fólk tjaldar tjöldum og er að spila leiki og allskonar, get ekki beðið eftir því að næsta tímabil byrji! Mælirðu með því að kýla bara á það og fara út sem Au Pair? Ég mæli 100 prósent með þessu ef þig langar að ferðast um heiminn og kynnast nýju fólki. Ef við hafið einhverjar spurningar þá er alltaf
hægt að heyra í mér. Svo þegar ég klára árið mitt hér þá vantar þeim íslenskan Au Pair. Bara um að gera að kýla á það, hvað er það versta sem gæti gerst?? Hvernig er félagslífið þarna úti? Það er mjög gott, aðeins erfiðara en á Íslandi en það er vel haldið utan um Au Pair hópinn hér og hittumst við einu sinni í mánuði. Ég reyndar kynntist bestu vinkonu minni í gegnum annan au pair þar sem við erum ekki í sama agency, en svo förum við mikið í ræktina og höfum kynnst þar töluvert mikið af fólki.
ADHD - Eyjar stendur fyrir yfirgripsmiklu námskeiði 3. og 4. maí næstkomandi fyrir alla þá sem starfa í kringum íþróttir og tómstundir barna. Námskeiðið er einnig ætlað þeim sem vinna með og umgangast börn í þeirra tómstundum og frítíma (skólaliðar, stuðningsfulltrúar, starfsfólk íþróttahúsins). Við höfum unnið að því að koma þessu námskeiði hingað til eyja í rúmlega ár og virkilega ánægjulegt að loks hafi allt gengið upp. Skipulag á svona námskeiði kallar á góða samvinnu margra. Við erum svo lánsöm að Vestmannaeyjabær styrkir verkefnið myndarlega ásamt því að við höfum fengið frábæran styrk frá saumakonunum Sigurlaugu og Erlu sem saumuðu grímur í Covid,seldu og gáfu allan ágóðann til okkar ásamt að Oddfellow stúkan Vilborg styrkti okkur líka. Við höfum unnið þetta í samvinnu við ÍBV ásamt því að vera í sambandi við alla sem vinna með börnum í skipulögðu tómstundastarfi. Leiðbeinendur í námskeiðinu eru Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem starfar sem sálfræðingur við MH og Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, og sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Almennt er þetta námskeið haldið í tvennu lagi þar sem 2-3 vikur líða milli námskeiðslota. Í samráði við Bóas teljum við að okkar hópi gagnist betur að þetta sé eitt skipti þar sem farið verður yfir öll helstu atriðin. Hvað er TÍA TÍA er hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD fyrir alla þá sem starfa við íþrótta - og tómstundastarf sem og aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD. Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt. Þjálfarar, leiðbeinendur og starfsfólk sem vinnur með börnum fá aðgengi að praktískum aðferðum við að vinna með krökkum með ADHD frá sérfræðingum á sviðinu. Þrátt fyrir að námskeiðið sé skipulagt út frá krökkum með ADHD þá gagnast það að sjálfsögðu öllum börnum. Fyrirkomulag námskeiðsins. Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 3. maí 14-17 og miðvikudaginn 4. maí og geta þátttakendur því valið hvor dagurinn hentar þeim betur. Spjallfundur Í tengslum við þetta námskeið verðum við svo með spjallfund þriðjudagskvöldið 3. maí sem er þá ætlað foreldrum og öðrum aðstandendum barna. Með þeim hætti teljum við að við gætum náð mjög góðum árangri í fræðslu og samræmingu milli heimilis, skóla og tómstunda. Staðsetning námskeiðs og spjallfundar verður í Kiwanis Markmið Tíunnar er að gera leiðbeinendur í íþrótta- og tómstundastarfi hæfari til að vinna með börnum og unglingum með ADHD. Fræða þá um mismunandi birtingarmyndir röskunarinnar og kenna aðferðir og benda á leiðir til þess að styrkja einstaklinga með ADHD. Með hæfari leiðbeinendur eru meiri líkur til þess að allir iðkendur njóti sín betur í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Aukinn skilningur og þekking leiðbeinenda íþrótta- og tómstundastarfi á ADHD dregur bæði úr fordómum og gerir börnum og unglingum með ADHD kleift að stunda íþróttir og tómstundir til jafns við aðra. Börnum og unglingum með ADHD er margfalt hættara við að sýna andfélagslega hegðun, neyta vímuefna og stunda afbrot. Forvarnargildi verkefnisins er því ótvírætt og mikilvægt fyrir samfélagið að börn og unglingar með ADHD séu í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
TÍMI KONA
AUGNABLIK
SANDUR
BRÉF
SPEGILL
GRÍMA
SÖNGUR
NÓT T
GLAS
Vilt þú vinna á líflegum vinnustað?
umN1 verslun Vestmannaeyjum leitar að kraftmiklum rstarfa. og þjónustulunduðum starfsmanni til framtíðarstarfa.
Helstu verkefni: gu starfi er kostur • Almenn afgreiðsla í verslun ónustulund • Önnur tilfallandi verkefni a skilyrði ísi áskilin
Hæfniskröfur: • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur • Samskiptafærni og þjónustulund • Góð íslenskukunnátta skilyrði • Reglusemi og stundvísi áskilin
Leitum einnig að starfsmanni í sumarafleysingar Fríðindi í starfi: Fríðindi í starfi: í almenna afgreiðslu. fá • Afsláttur hjáSumarstarfsmenn N1, Krónunni og • Afsláttur ELKO hjá N1, Krónunni og ELKO glaðning í lok sumars. • Styrkur til heilsueflingar • Styrkur til heilsueflingar • Aðgangur að velferðarþjónustu • Aðgangur N1 að velferðarþjónustu N1 Nánari upplýsingar veitir Ágúst Halldórsson, verslunarstjóri í síma 481 1127 eða hjá agusth@n1.is.
440 1000
n1.is
440 1000
n1.is
ALLA ALLA LEIÐ LEIÐ
leturstofan@leturstofan.is
www.ernir.is 481-3300 Mán
Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending
Frá Reykjavík
12:15 12:40 14:00 14:25
Frá Vestm.eyjum
13:00 13:25 14:45 15:10
Leið 52
STRÆTÓ
www.straeto.is 540 -2700
Landeyjarhöfn Virkir dagar:
Frá Mjódd Frá Mjódd Frá Landeyjarhöfn Frá Landeyjarhöfn
08:00 17:45 10:03 20:40
Helgar: Frá Mjódd Frá Mjódd Frá Landeyjarhöfn Frá Landeyjarhöfn
08:10 15:15 10:13 18:00
Þorlákshöfn 09:00 Frá Mjódd 17:30 Frá Mjódd Strætó fer frá Mjódd til Þorlákshafnar kl. 19.00 þegar Herjólfur fer kl. 20.45 frá Þorlákshöfn.
Frá Þorlákshöfn - Það er beðið eftir farþegunum og lagt af stað þegar að það eru allir komnir úr Herjólfi.
www.straeto.is | 540-2700
Hlaupagögn í The puffin Run verða afhent fimmtudaginn 28. apríl og föstudaginn 29. apríl á milli kl. 12:00 og 18:00 í Sportvörum, Kópavogi. Á Leturstofunni, Vestmannabraut 38 í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 3. maí, milli klukkan 15:00 og 21:00.
Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Það kostar 10.000 kr.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 14. maí 2022 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hefst 15. apríl 2022. Unnt verður að kjósa á opnunartíma embættisins en ef kjósanda ber nauðsyn til að nýta kosningarétt sinn yfir páskana er hægt að panta tíma hjá kjörstjóra með því að senda tölvupóst á netfangið vestmannaeyjar@syslumenn.is. Skrifstofa sýslumanns að Heiðarvegi 15 er opin alla virka daga sem hér segir: - Mánudaga-fimmtudaga frá 09:15-15:00. - Föstudaga frá 09:15-14:00. Lengdur opnunartími vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar verður auglýstur síðar.
Sumarstarf í ferðaþjónustu
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Við leitum að jákvæðum og drífandi starfsmönnum í þrif.
Helstu verkefni eru þrif á hótelíbúðum, einbýlishúsum og íbúðum skv. ferlum fyrirtækisins, þrif á sameiginlegum rýmum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Um er að ræða starf hjá nýju fyrirtæki á sviði ferðaþjónustu.
Áhugasamir sendi ferilskrá á jobs@westmanislandsluxury.is.
13. braut á og rekur Westman Islands Villas & Apartments, sem býður upp á úrvals gistingu í einbýlishúsum við Búhamar og íbúðum við höfnina. The New Post Office er íbúðahótel í nýuppgerðu gamla pósthúsinu við Vestmannabraut.
Viltu vita meira? Nánari upplýsingar veitir Linda, rekstrarstjóri í síma 822-4921.
Hringferð SA 2022 → Vestmannaeyjar → 17. maí, Salur Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja
Fyrirtækin okkar og framtíðin Í maí fundum við með félagsfólki SA um allt land. Ræðum efnahags málin, komandi kjaraviðræður og það sem þér finnst skipta máli. DAGSKRÁ HVERS FUNDAR
Fyrri hluti → Sérfræðingar SA kynna stöðu efnahagsmála og eiga vinnufund með félagsmönnum til að fá þeirra innlegg í komandi kjaraviðræður. Síðari hluti → Fræðsla til félagsmanna um starfsmanna- og kjaramál. Sérfræðingar vinnumarkaðssviðs SA fara yfir starfsmanna- og kjaramál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir og skipta fyrirtækin okkar máli.
DAGSKRÁ
5. 11 . 12 . 17 . 18 . 25 . 31 .
maí → maí → maí → maí → maí → maí → maí →
Borgarnes Ísafjörður Akureyri Vestmannaeyjar Selfoss Egilsstaðir Reykjavík
Fleiri fundir auglýstir síðar. Nánari upplýsingar um fundina og skráningu má finna á sa.is.
sa.is