Tígull 15. tbl 06. árg.

Page 1

15. tbl. 06. árg. 18. - 24. apríl 2024

VÖKNUÐUM VIÐ SPRENGINGAR

OG HÁVÆRAR SÍRENUR

Natali Osons er frá Kiev Úkraínu en hún býr ásamt manninum sínum Martynovskyi Viacheslav í Vestmannaeyjum. Hún er með meistarapróf í sálfræði en þegar hún var í náminu uppgötvaði hún ljósmyndun og starfar í dag sem ljósmyndari, myndbandshönnuður fyrir auglýsingar og vörumerki og efnishöfundur fyrir samfélagsmiðla.

„Eftir meistaranámið áttaði ég mig á því að ég vildi eyða ævinni í að einbeita mér að ljósmyndun og byrjaði að vinna sem ljós-

TÍGULL

myndari á dagblaði. Eftir nokkurra ára vinnu við ljósmyndun, opnaði ég mína eigin vinnustofu. Á sama tíma var ég líka með mörg verkefni hjátímaritum og stórum vörumerkjum og stór fyrirtæki sem birtu myndirnar mínar eins og Samsung, Apple, Nivea, Nikon, Ray-Ban, Forbes og fleiri. Eftir 5 ára ljósmyndun náði ég tökum á myndbandstöku og byrjaði að taka upp mörg stór verkefni tengd YouTube rásum, viðtölum, viðburðum og sjónvarpi. Við hjónin vorum með lítið framleiðslufyrirtæki í Kyiv þar sem við unn-

um með ýmis myndbandsverkefni og beinar útsendingar fyrir Evrópumeistaramót í íþróttum.“

Hver er sagan þín? Hvenær og hvers vegna komstu til Íslands?

Þann 24. febrúar 2022 vöknuðum við fjölskyldan við sprengingar og háværar sírenur. Það var mikið áfall fyrir fjölskylduna og auðvitað alla í landinu. Samdægurs ákváðum við að yfirgefa landið til að flýja innrás Rússlands í Úkraínu. Á fyrstu dögum stríðsins var mjög erfitt að yfirgefa landið vegna biðraða við landamærin sem voru tugi kílómetra langar. Við komumst yfir landamærin eftir þrjá daga og Þýskaland var fyrsta landið sem við fórum til og dvöldum við þar í nokkurn tíma. Við höfðum tíma til að róa okkur niður og hugsa um hvað við ættum að gera næst þar sem að vissum að við værum ekki að fara að aftur tilbaka á næstunni. Ég heimsótti Ísland fyrir 6 árum síðan og varð þá ástfanginn af fallegri náttúrunni. Við eigum vini sem búa á Íslandi og tókum við þá ákvörðun að fara til Íslands. Í fyrra ferðuðumst við um allt Ísland yfir sumartímann. Ég og vinkonur mínar heimsóttum Vestmannaeyjar og líkaði okkur mjög vel við þessa fallegu eyju. Maðurinn minn fékk vinnu hér og haustið 2023 fluttum við til Vestmannaeyja.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Forsíðumynd: Natali Osons.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða

blaðið
okkar: www.tigull.is DREIFING: Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM: Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
á vefsíðunni
Fæst á chitocare.is ChitoCare Iceland @chitocare

Hvernig líkar þér í Vestmannaeyjum og hvað finnst þér skemmtilegast?

Mér finnst mikilvægt að vera nálægt náttúrunni og er hún innblástur fyrir sköpunarkrafta mína. Um helgar förum við saman og fljúgum dróna og tökum myndir og myndbönd af hvölum, lundum og loðselum. Eyjan hefur sína eigin töfra og andlega dýpt, hún er okkur svo sannarlega sérstök.

Hefur þú ferðast mikið og hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?

Ég eyddi miklum tíma í Suðaustur-Asíu. Ég hef búið í Tælandi, Balí, Malasíu og Víetnam. Þar er mjög fallegt en Ísland er sérstakur staður fyrir mér. Falleg náttúra Íslands er líklega ein af megin ástæðum þess að ég sneri hingað aftur til Íslands. Það er meiri andleg dýpt hér en í nokkru búdda fjallamusteri í Tælandi og Balí. Við höfum heimsótt marga staði á Íslandi en það eru enn margir staðir eftir til að heimsækja. Uppáhaldsstaðir eru fossinn Gljúfrabúi, Landmannalaugar og Vestmannaeyjar.

Segðu okkur frá fyrstu kynnum þínum að ljósmyndun. Hvað dró þig inn í ljósmyndaheiminn?

Líklega kviknaði áhugi minn á ljósmyndun þegar ég fylgdist með pabba taka myndir og svo framkalla filmurnar í barnæsku. En ég hef verið að taka ljósmyndir síðan 2011 eða í þrettán ár.

Hver er sérstaða þín í ljósmyndun? Hvernig gætirðu lýst stílnum þínum?

Ég byrjaði að mynda fyrir módelskrifstofur, barnaveislur, brúðkaup, viðburði, tímarit og auglýsingar. Starfið hefur breyst mikið og orðið mikið faglegra í alla staði. Á þessum tíma var ég mikið að vinna við auglýsingaljósmyndun og taka myndir fyrir myndabanka.Ég býð upp á fjölskylduljósmyndun, auglýsingamyndir fyrir veitingastaði og ýmis vörumerki. Við tökum einnig upp myndbönd fyrir auglýsingar, vörumerki, fyrir viðburði og tónleika, eins fyrir Instagram og TikTok. Ég hef þegar sinnt mörgum verkefnum með íslenskum fyrirtækjum en í Eyjum er ég núna

að vinna með Gott og Slippnum veitingahúsum. Ég geri myndbönd fyrir samfélagsmiðla þeirra.

Hvaðan færðu innblástur?

Ljósmyndun er mín leið til að eiga samskipti við heiminn. Ég er innblásin af fólkinu og náttúru nniþar sem ég er hverju sinni. Ég er ánægð þegar viðskiptavinir mínir eru ánægðir. Ljósmyndir eru mikilvægar því þær varðveita minningar og komandi kynslóðir sjá hvernig heimurinn var áður þau fæddust. Sama má segja með myndbönd, því myndbönd sýna alltaf meiri tilfinningar.

Eyðir þú miklum tíma í að vinna verkin þín?

Ég er með margra ára reynslu á bakinu og er þetta mjög mismunandi eftir verkefnum. Það fer allt eftir vinnumagni og gerð kvikmynda. Ef þetta er andlitsmyndataka eða verkefni sem krefst mikillar sköpunar, þá getur vinnsla við eina mynd tekið frá 30 mínútum til 2 klukkustunda. Myndband tekur lengri tíma, þrisvar sinnum

Natali Osons.

lengri tíma en að vinna með ljósmyndir myndi ég segja.

Hver hefur verið stærsta áskorunin þín hingað til?

Að ná því að maður sé að yfirgefa heimilið sitt fyrir fullt og allt, Úkraínu, og muna líklega aldrei snúa til baka. Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu. Fjölskyldan mín bjó nálægt landamærunum að Rússlandi, í um 12 km fjarlægð. Þau fóru líka til Þýskalands eftir að hernámið og stríðið hófst. Við þurftum að skilja allt eftir. Allar ljósmyndirnar okkar af fjölskyldunni og forfeðrum urðu líka eftir. Stundum líður mér eins og að lífið mitt fram að febrúar 2022 hafi verið þurrkað út. Fyrir mér eru ljósmyndir eitt það mikilvægasta þar sem þær varðveita minningar, minningar um þína kynslóð.

Hversu gefandi er fyrir þig að vera ljósmyndari?

Að sjá glaða og ánægða viðskiptavini er mikilvægast. Oft hefur myndast vinskapur á milli okkar og viðskiptavina eða samstarfsaðila í einhverjum verkefnum.

Hvaða ráð myndir þú gefa einhverjum sem langar að verða ljósmyndari í dag?

Þú þarft að vera dugleg/duglegur að taka myndir og ekki hætta. Með reynslunni munt þú vita hvernig ljósmyndir þú vilt taka. Það þarf að prófa sig áfram og læra.

Ef þú værir ekki ljósmyndari, hvað væriru að starfa við?

Ég hugsa að ég hefði alltaf leitað í eitthvað skapandi starf, hönnun eða álíka. En svo kannski hefði ég unnið í sérgrein minni sem sálfræðingur.

Hvert er þitt uppáhalds... matur: Taílensk súpa Tom Kha og pasta með sjávarfangi drykkur: Smoothie

kvikmynd: „To the Wonder“ leikstjórinn Terrence Malick

hreyfing: jóga

verkefni: «Star media» - kvikmynd fyrir leikstjóra og leikara

tónlist: Kaleo, Imagine Dragons, M83

Instagram : osonsraw

Facebook : Natali Osons

Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is s. 481 1161

Myndataka í stúdíó

Tökum myndir fyrir

öll persónuskilríki

Vantar þig mynd í:

- Ökuskírteini

- Visa-áritanir

- Ferilskrár

- Vinnustaðaskírteini

Myndatakan & 4-6 útprentaðar myndir.

Best er að panta tíma í síma 481-1161 eða með tölvupósti á tigull@tigull.is

STAFARUGL

GETUR ÞÚ FUNDIÐ ÚT ORÐIN?

IAERÓTLNK SÖIANRVG KMBALI JSTÖUPIKNSER JLÓARSKÓAN LRSVAAAIV

RBÉNUIFBAK ALKSNNEJKIAREA

JLÓANDTSYMSÚDÓÍ

KÚULPILS JHÓRPPUKOL AKHNDLÐÆNFOA

LAUSNIR ÚR SÍÐUSTU ÞRAUT: landafræði ferðalög drullusokkur hleðslutæki leikskóli

ljósmyndir

sundlaug

skólataska

hundasvæði golfvöllur

ljósakróna

útihátíð

húsasund

fótboltavöllur

markmaður

ánamaðukur orðarugl

sandkassi

ræstitæknir sumarhús

Gosdrykkur stafavíxl

SÝNING Í VESTMANNAEYJUM 17. OG 18. APRÍL

TOLUM UM LEXUS

UPPLIFÐU OG REYNSLUAKTU GLÆSILEGUM

LEXUSBÍLUM Í EYJUM

Starfsmenn Lexus verða á svæðinu, gefa góð ráð og upplýsa um allt það nýjasta frá Lexus. Léttar veitingar í boði.

RZ450e

LBX

HYBRID

Nýjasta viðbótin í Lexusfjölskylduna.

Bíll ársins hjá What car? 2024.

Miðvikudaginn 17. apríl kl. 15:00–18.00

Fimmtudaginn 18. apríl kl. 11:00–16.00

í og við Akóges salinn, Hilmisgötu 15

100% RAFMAGN
LEXUS RX 450h+ PLUG-IN HYBRID LEXUS NX 450h+ PLUG-IN HYBRID

HELGA ÞÓRISDÓTTIR FORSETAFRAMBJÓÐANDI

Helga Þórisdóttir hefur boðið sig fram til embættis forseta Íslands. Þrátt fyrir að hafa starfað sem forstjóri Persónuverndar í rúm 8 ár og hafa farið í mörg hundruð viðtöl við fjölmiðla, þá er Helga ekki landsþekkt, nema kannski fyrir það starf, og því tilvalið að fá að setjast niður með henni og kynnast henni betur.

Helga Þórisdóttir er fædd 15. júlí 1968 og er gift Theodóri Jóhannssyni (Tedda) og eiga þau þrjú börn. Helga er lögfræðingur að mennt og hefur starfað við það í 29 ár. Helga gekk í Langholtsskóla og var ung send í sveit, í Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu og einnig til útlanda, til að læra tungumál, bæði til Skotlands og Danmerkur. Helga fór svo í Menntaskólann við Sund og lauk þaðan stúdentsprófi. Hún var heilt sumar “au-pair” í La Baule, í Frakklandi og lagði síðan stund á diplómanám í frönsku og frönskum bókmenntum í Université Paul Valery í Montpellier í Frakklandi. Helga er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Helga lauk síðan AMP frá IESE í Barcelona. Á starfsferlinum hefur hún starfað hjá emb-

ætti ríkissaksóknara, á nefndasviði Alþingis, hjá EFTA í Brussel – í deild sem fjallaði um viðskipti á Evrópska efnahagssvæðinu, hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Lyfjastofnun og nú síðast hjá Persónuvernd.

Helga hefur undanfarið ár einnig verið formaður félags forstöðumanna ríkisstofnana.

Fjölskyldan

Ég er yngsta dóttir Þóris Helgasonar og Auðar Jónsdóttur og á tvær systur, Önnu Sesselju og Hildu Klöru sem eru 10 og 12 árum eldri en ég. Svo ég er örverpið. Pabbi var sérfræðingur í lyflækningum, prófdómari og kennari við Læknadeild Háskóla Íslands og stofnaði göngudeild sykursjúkra á Landspítalanum. Mamma fagnar 91 ári í lok þessa mánaðar. Hún er mjög dugleg og syndir alla virka morgna í Laugardalslaug. Hún var ein af fyrstu flugfreyjum landsins hjá Flugfélagi Íslands og síðar læknaritari. Systur mínar eru báðar læknar - og önnur þeirra gift lækni frá Vestmannaeyjum. Teddi, maðurinn minn er sjúkraþjálfari og hann er einn af eigendum Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur

og Garðabæjar. Hann hefur starfað sem sjúkraþjálfari í tæp 30 ár. Saman eigum við þrjú börn. Auður Katarína er 25 ára, hugbúnaðarverkfræðingur og býr í Gautaborg þar sem hún starfar hjá Boeing. Kolbeinn er 23 ára og er á þriðja ári í læknisfræði við Háskóla Íslands. Loks er það Lilja Dórótea sem er 12 ára og nemi í Fossvogsskóla.

Hverjir eru helstu kostir þínir og gallar?

Ég er heiðarleg, traust, opin og glaðlynd - og að sama skapi óhrædd við að taka erfiðar ákvarðanir. Teddi segir að ég setji mig stundum of mikið í spor annarra og geri kannski stundum of miklar kröfur til mín. En ég held að allir gallar geti líka verið kostir manns.

Einhver sturluð staðreynd?

Þegar ég var barn þá var ég stundum send í hvítum fötum í leikskólann og ég kom heim í þeim jafn hvítum. Ég var ótrúlega stillt og prúð en mamma segir að ég hafi samt alltaf haft munninn fyrir neðan nefið og hef þannig svarað fyrir mig, ef á þarf að halda, alla tíð.

Helga Þórisdóttir. Ljósmynd/Anton Bjarna

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Spaghetti Bolognese. Málið er að mamma var mjög góður kokkur og ég er alin upp við virkilega góða matseld. Pabbi eldaði hins vegar alltaf á laugardögum - Spaghetti Bolognese og lét kjötsósuna malla í marga klukkutíma og stóð yfir henni allan tímann - sem aftur kallaði á mikla og góða samveru fjölskyldunnar í eldhúsinu. Alla tíð síðan ég stofnaði fjölskyldu, þá höfum við haft sama rétt á borðum á hverjum einasta laugardegi - enginn annar matur kemur til greina á þeim degi.

Hunda eða kattarmaneskja?

Ég elska öll dýr en ég verð að segja hundar. Það hefur verið hundur á heimilinu okkar í 17 ár. Í dag eigum við dalmatíuhundinn

Sesar, sem er þriggja ára. Við fengum hann til okkar þegar hann var eins árs því hann gat ekki verið áfram á sínu fyrsta heimili. Hann er mjög orkumikill og ansi mikill prakkari en algjör sjarmör og hann fær mikla ást á heimilinu.

Hvaða hreyfingu stundar þú?

Ég elska að vera úti við og í dag stunda ég aðallega göngu og fer stundum á fjöll. Sesar þarf sína hreyfingu á hverjum degi og við hjónin förum alltaf í um klukkustundargöngu með hann og þá getum við líka farið yfir hvernig dagurinn okkar var og þess háttar. Þegar ég var yngri þá var ég í fimleikum og svo sundi en fór loks í badminton þar sem ég fann mig algjörlega. Ég komst í unglingalandsliðið og er margfaldur Íslandsmeistari í tvíliðaleik í yngri flokkum. Okkur hjónunum finnst líka mjög gaman að dansa.

Hefurðu komið til Vestmannaeyja? Heldur betur. Ég hef komið á mörg fótboltamótin með börnunum mínum. Þvílík fegurð í Eyjum og þvílík gæði á flottum veitingastöðum. Hlakka til að heimsækja fögru eyjuna fljótlega.

Helga Þórisdóttir ásamt fjölskyldunni. Ljósmynd/Íris

Hver er ástríðan þín og eldmóður – hvað drífur þig áfram?

Í grunninn brenn ég fyrir að skila góðu dagsverki á hverjum degi.

Ertu sparsöm eða eyðslukló?

Fyrstu rúm 20 ár lífs míns átti ég aldrei pening, var alltaf send eitthvert til að læra tungumál eða í sveit. Í dag myndi ég segja að ég væri þokkalega sparsöm en mér finnst alveg gaman að versla fallega hluti. Ég hef mikinn áhuga á nýtingu verðmæta og hef undanfarin ár tekið virkan þátt í að selja og kaupa notaðar vörur bæði föt og innbú á hinum ýmsu mörkuðum.

Hverju ertu stoltust af varðandi vinnuferilinn?

Ég er stoltust af því að hafa undanfarin ár staðið vörð um persónuvernd einstaklinga á Íslandi.

Af hverju á fólk að kjósa þig? Sem forseti Íslands vil ég fyrst og

fremst vera þjónn fólksins. Ég vil tala fyrir verndun íslenskrar tungu, góðri menntun og fyrir bættum hag aldraðra. Ég hef sérþekkingu á réttindum og öryggi einstaklinga á tækniöld, sem aldrei hefur verið mikilvægari en nú. Festa, fagmennska og heiðarleiki eru mín einkunnarorð. Ég hef dug og þor til að stíga í fæturnar fyrir íslenska þjóð ef á þarf að halda.

Getur þú lýst þér í þremur orðum? Ákveðin, dugleg - en líka stuðbolti .

Uppáhalds tónlist?

Allur góður taktur fær mig til að dilla mér

Uppáhalds sjónvarpsefni

Breskir sakamálaþættir og norrænir - ekki neitt til betra en það. Bíó eða leikhús?

Bæði - alæta á menninguna. Helsta áhugamál?

Ganga, lestur, finna gömul verðmæti á mörkuðum, hönnun og tíska.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Spaghetti bolognese

Uppskrift frá Helgu Þórisdóttur forsetaframbjóðenda

Hráefni: laukur

hvítlaukur

hakk

niðuroðnir tómatar tómatpurré

paprika

salt & pipar

basil

parmesan

Aðferð:

Laukur og hvítlaukur, steiktur á vægum hita, svo verði gullinn. Fært til hliðar, straumur aukinn og hakkið steikt (ekki meira en 8% fita). Þegar steikt í gegn, þá blanda með lauknum. Því næst niðursoðnir tómatar settir út í (eða ferskir, ef til), og því næst tómatpurré. Papriku er nú bætt við (2-4 kúfaðar msk, eftir smekk), og látið malla, helst í ca klt. Maldon salt og piprað. Áður en fer á borðið, þá er ferskt basil sett yfir. Framreitt með Tabasco og rifnum parmesan. Bon appetit!

Vertu með okkur í liði!

Í boði eru spennandi störf á HSU

HSU óskar eftir að ráða í sumarafleysingu:

Starfsfólk í aðhlynningu á Hraunbúðir

Ritara á sjúkradeild

Starfsmann í býtibúr á sjúkradeild

Nánari upplýsingar má finna á hsu.is undir laus störf

Við óskum einnig eftir að ráða starfsmann í afleysingu í eldhús HSU í Vestmannaeyjum.

Athugið að ekki er aðeins um sumarafleysingu að ræða í því starfi.

Bjarni Sigurðsson yfirmatreiðslumaður, gefur upplýsingar í gegnum tölvupóstinn bjarni.sigurdsson@hsu.is

Ársþing Íþróttabandalags

Vestmannaeyja fyrir árið 2023

verður haldið þriðjudaginn 14.maí kl. 20:00 í Týsheimilinu.

Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórn

Íþróttabandalags

Vestmannaeyja

TOYOTA HJARTAÐ SLÆR Í EYJUM SÝNING 17. — 18. APRÍL HÚS AKÓGES HILMISGÖTU 15 Kauptúni 6 Toyota Kauptúni 570 5070 Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega það verð og þann búnað sem kann að vera tilgreindur Fyrirvari við 7 ára ábyrgð: Ökutækinu skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans og ber eigandi kostnaðinn við slíkt viðhald Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds 7 ára ábyrgð gildir eingöngu um bíla sem uttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf 12 mánaða vegaaðstoð fylgir öllum nýjum Toyota bílum. Birt með fyrirvara um villur TOYOTA FÖRUM LENGRA Sýning 17. apríl kl. 15:00 – 18:00 18. apríl kl. 11:00 – 16:00 Kynning og reynsluakstur á nýjum bílum Kíkið í léttar veitingar og spjall við sölumenn Á Á JÓNU VEGAAÐSTOÐ
19 APRÍL FÖS SPAMALOT Leikfélag Vestmannaeyja Kvika kl. 20:00 MIÐ APRÍL 24 TÓNLISTARBINGÓ Höllin kl. 21:00 MIÐ APRÍL 24 CHITOCARE KYNNING Apótekarinn kl. 12:00 - 18:00 LAU APRÍL 20 SPAMALOT Leikfélag Vestmannaeyja Kvika kl. 20:00 18 APRÍL FIM OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK kl. 19:30 - 22:00 Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk FÉLÓ ÞRI APRÍL 23 OPIÐ HÚS FYRIR 5. & 7. BEKK kl. 16:30 - 18:30 MÁN APRÍL OPIÐ HÚS FYRIR 8. - 10. BEKK kl. 19:30 - 22:00 22 SÝNINGAR FRAMUNDAN: 19. apríl kl. 20:00 20. apríl kl. 20:00 MIÐASALA Í SÍMA 852-1940 Miðasölusíminn verður opinn alla daga milli kl. 16:00 - 20:00 5 - 7. BEKK kl. 17:30 - 19:30 Hægt er að kaupa miða og velja sæti á www.eyjabio.is Sunnudagur 5. mars kl. 15:00 KUNG FU PANDA 4 Sunnudagur 5. mars kl. 20:00 BACK TO BLACK SUN APRÍL 21 EYJABÍÓ Kung Fu Panda kl. 15 Back to black kl. 20
VIÐBURÐIR FRAMUNDAN

LEIKFIMI MEÐ EYGLÓ EGILS

Íþróttahús kl. 10:00 - 11:00

ÞRI SUNDLEIKFIMI

23 apríl

MIÐ

24 Apríl

MIÐ

24

Apríl

MIÐ

24 apríl

MEÐ HRAFNHILDI HÖNNU

Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00

HANDVERK & HITTINGUR

Kviku kl. 13:00 - 16:00

SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00

SÖNGHÓPUR LALLA

Kviku

kl. 17:00 - 18:00

Frítt er í sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar

fyrir heimafólk 67 ára og eldri.

Hressingarganga

í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00

Púttsalurinn

pútt í kviku alla virka daga frá klukkan

13:00 - 14:00

5. MAÍ 2024

KL. 13:00 - 17:00

PERLAÐ AF KRAFTI HÖLLIN

Ein helsta fjáröflunarleið Krafts er sala perluarmbanda með áletruninni „Lífið er núna“. Armböndin eru eingöngu framleidd af sjálfboðaliðum sem leggja félaginu

lið með því að bjóða fram krafta sína.

Krabbavörn í Vestmannaeyjum

29
í síma:
TANNLÆKNASTOFAN Áratuga reynsla í málun innan og utanhúss Vantar þig málara?
og endurmálun Hvort sem það er smá lagfæring eða meiriháttar breyting þá erum við með lausnina fyrir þig. Jói Málari s: 898-2651 / johann.gislason@simnet.is
Flötum
Tímapantanir
481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is NÝJA
Nýmálun
FIM apríl 18 DRENGJARADDIR LALLA Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00
FÖS apríl 19 KVIKU kl. 19:30 apríl FIM SPILAVIST 18

GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?

SUDOKU
SKÆRI GÚMMÍ PENNI AUGLÝSING STELPA VIÐSKIPTAVINIR GAMAN KENNARI ORKUDRYKKUR PYLSUR FYRIRTÆKI FLATBRAUÐ

LAUS TIL UMSÓKNAR SVÆÐI FYRIR GÖTUOG TORGSÖLU SUMARIÐ 2024

Svæðin sem um ræðir eru á Skipasandi og á Vigtartorgi og er úthlutað í samræmi við reglur Vestmannaeyjabæjar um götu- og torgsölu sem finna má á heimasíðu: https://www.vestmannaeyjar.is/

Hægt er að sækja um stöðuleyfi fyrir söluvagn eða söluskúr fyrir allt sumarið (maí- september), fyrir mánuð eða fyrir viku, gilda þá mismunandi verðflokkar.

Í umsókn skal koma fram sá tími sem sótt er um, fyrirhuguð starfsemi, stærð og mynd af sölubás eða vagni og orkunotkun.

Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2024. Umsóknir skulu berast með skriflegum hætti á netfangið: umhverfissvid@vestmannaeyjar.is eða í afgreiðslu í Ráðhús Vestmannaeyja

Andlátstilkynning

Minningargrein Sálmaskrá

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar.

Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.

900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 leturstofan leturstofan

Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elsku eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu

MARGRÉTAR JENNÝJAR GUNNARSDÓTTUR

Innilegar þakkir færum við starfsfólki HSU

í Vestmannaeyjum og starfsfólki heimahjúkrunar.

Guðlaugur Jóhannsson

Sigríður Elín Guðlaugsdóttir

Agnes Guðlaugsdóttir

Jóhann Ármann Guðlaugsson

Bjarnhéðinn Grétarsson Þorbjörn Víglundsson

Barnabörn og barnabarnabörn

HELGA ÞÓRISDÓTTIR FORSETAKOSNINGAR

ÍSLANDS 2024

REYNSLA OG ÞEKKING — Í ÞÁGU ÞJÓÐAR

Sem forseti Íslands vil ég fyrst og fremst vera þjónn fólksins. Ég ber virðingu fyrir lýðræðinu og fyrir grunngildum íslenskrar þjóðar. Ég vil vera málsvari hins íslenska drifkrafts, sem gerir okkur að þeirri sterku þjóð sem við erum.

Áherslur mínar eru að styðja við fræðasamfélagið, menninguna og atvinnulífið, sem og okkar gróskumiklu nýsköpun og sköpunarkraft íslenskrar þjóðar. Ég vil tala fyrir verndun íslenskrar tungu, góðri menntun og fyrir bættum hag aldraðra. Ég hef sérþekkingu á réttindum og öryggi einstaklinga á tækniöld, sem aldrei hefur verið mikilvægari en nú.

Festa, fagmennska og heiðarleiki eru mín einkunnarorð. Ég brenn fyrir hagsmunum íslenskrar þjóðar. Ég bý að reynslu, þekkingu og einlægni til að gegna þessu mikilvæga embætti og býð því fram krafta mína fyrir þjóðina.

HELGATHORISDOTTIR.IS

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.