

DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd og Puffin Run myndir: Friðrik Björgvinsson.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
í Safnaðarheimili Landakirkju
16. maí 2023 kl 20:00
Forsala 8.-13. maí á Kletti
Miðaverð 3.000 kr. ( Kórinn á ekki posa og fólk því beðið að borga með pening. )
Um nýliðna helgi fóru 14 meðlimir úr Kvennakór Vestmannaeyja á Landsmót íslenskra kvennakóra. Þar sem kórinn var stofnaður árið 2021 var þetta í fyrsta sinn sem kórinn tók þátt í landsmótinu. Gestgjafar mótsins að þessu sinni voru Kvennakór Reykjavíkur og mótið því haldið í höfuðborginni. Mótið heppnaðist afar vel að sögn kórkvenna en alls tóku 15 aðildakórar Gígjunnar, sem er landssamband íslenskra kvennakóra, þátt í mótinu. Mótið innihélt mikla og afar skemmtilega dagsskrá sem stóð yfir í þrjá daga.
„Mótið hófst með sameiginlegri æfingu í Háskólabíó þar sem um 430 konur víðsvegar að af landinu sameinuðust í tveimur lögum sem kórarnir höfðu æft hver í sínu lagi í vetur. Síðan var haldið í Hallgrímskirkju þar sem formleg opnunarhátíð hófst. Hver kór fyrir sig flutti svo lög að eigin vali á stórtónleikum í Eldborgarsal Hörpu á föstudeginum. Kvennakór
Vestmannaeyja tók þar eyjalagið “Vor við sæinn” við undirleik kórstjórans og nýkjörins bæjarlistamanns
Vestmannaeyja Kitty Kovács.
Á laugardeginum voru svo tónleikar í Háskólabíó þar sem afrakstur smiðja mótsins var fluttur. Kvennakór
Vestmannaeyja tók þátt í smiðjunni “Abba og smá Bubbi” og flutti lagið „Money, money“ og „Dancing queen“ með Abba og „Strákarnir á Borginni“ með Bubba,“ sagði Kristín Halldórsdóttir, formaður Kvennakórs Vestmannaeyja í samtali við Tígul.
„Mótinu lauk svo með afar glæsilegu lokahófi í Gullhömrum í Grafarholti þar sem sungið var og dansað fram á nótt eftir afar góða þriggja rétta matarveislu.“
Þátttakendur frá Kvennakór Vestmannaeyja voru allar sammála um að hér sé á ferðinni mót sem kórinn stefnir á að taka þátt í hér eftir en Landsmót sem þetta er haldið þriðja hvert ár og verður það í höndum Kvennakórs Suðurnesja, elsta kvennakórs landsins, að skipuleggja og halda næsta mót, vorið 2026.
Næsta mál á dagsskrá hjá Kvennakór Vestmannaeyja eru svo vortónleikar kórsins en þeir verða nú haldnir í annað sinn frá stofnun kórsins. Þeir fara fram í Safnaðarheimilinu, þriðjudaginn 16. maí, kl 20:00. „Uppselt var á tónleika Kvennakórs Vestmannaeyja í fyrra og komust færri að en vildu. Við hvetjum því fólk að
tryggja sér miða í tíma en forsala miða er hafin og fer fram á Kletti. Miðaverð á tónleikana eru litlar 3000 kr. Lagaval tónleikanna að þessu sinni verður afar fjölbreytt en kórinn fer með áheyrendur um víðan völl, allt frá íslenskum dægurlögum, í Baggalútslagið „Mamma þarf að djamma“, Simon og Garfunkel fá sitt pláss og lag úr söngleiknum Mary Poppins fær einnig að hljóma svo fátt eitt sé nefnt. Það er því óhætt að segja að allir munu finna eitthvað við sitt hæfi,“ sagði Kristín.
Kynnir tónleikana verður hinn eini sanni Geir Jón Þórisson og Kitty Kovács stjórnar kórnum og leikur á flygilinn að sinni alkunnu snilld.
Hráefni:
2 andabringur
1 poki klettasalat
1 granatepli
2 perur
1 tsk ólífuolía
1 tsk smjör
Handfyll ristaðar valhnetur
Geitaostur, magn eftir smekk
Salatdressing
1 tsk rauðvínsedik
1 dl jómfrúarolía
2 skallottulaukar
1 tsk dijon sinnep
Salt og pipar
Aðferð:
Skerið aðeins í andabringurnar og steikið á pönnu.
Kryddið bringuna til með salti og
pipar og steikið bringurnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Setjið andabringurnar
í eldfast mót og inn í ofn við 180°C í 8 – 10 mínútur. Eins og með allt kjöt er mikilvægt að leyfa því að hvíla í fáeinar mínútur áður en það er skorið, en það kemur í veg fyrir að safinn leki út og kjötið verði þurrt.
Skerið perur í sneiðar og steikið upp úr olíu og smjöri í 1-2 mínútur á hvorri hlið.
Þurristið valhnetur á pönnu.
Útbúið franska salatdressingu, saxið niður skallottulauk mjög smátt og setjið í skál. Blandið jómfrúarolíu, sinnepi og rauðvínsediki saman við og hrærið vel í dressingunni.
Veltið kálinu upp úr dressingunni og leggið salatið á fat, raðið perum yfir, skerið andabringuna í sneiðar og leggið yfir, myljið geitaosti, sáldrið valhnetum og dreifið granateplum yfir salat í lokin.
Berið strax fram og njótið vel.
Uppskrift og myndir fengin að láni frá Evu Laufey Kjaran - evalaufeykjaran.is
Andasalat
ristuðum valhnetum, perum og geitaosti að hætti Evu Laufeyjar
OPIÐ
Sun-fim 12-21
Fös og lau 12-22
17.00
(
Kæru ættingjar og vinir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og kærleik við andlát og útför okkar elskulega,
ÓLAFS MÁS SIGMUNDSSONAR
Vélstjóra
Áshamri 47
Sérstakar þakkir til allra sem komu að björgunaraðgerðum í Vestmannaeyjum kvöldið sem hann lést.
Þórhildur Jónasdóttir
Aðalbjörg Ólafsdóttir
Magnús G. Ólafsson
Stefán Ólafsson
Hörður Ársæll Ólafsson
Ragnhildur Ólafsdóttir
Ólafur Már Harðarson
VIÐ TÖKUM AÐ OKKUR
AÐ SETJA UPP
OG PRENTA SÁLMASKRÁR.
Ríkharð Lúðvíksson
Agnes Númadóttir
Helena Árnadóttir
Jóhannes Jóhannesson
Lucinda Hulda Fonseca
Barnabörn og barnabarnabörn
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Kærar þakkir til allra þeirra sem að hjálpuðu að láta The Puffin Run 2023 takast vel.
Hið árlega The Puffin Run fór fram í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þar sem tæplega ellefu hundruð hlauparar tóku þátt. Sem er þátttökumet í hlaupinu. Það voru hinsvegar ekki eina metið sem féll á laugardaginn því fyrstu hlauparar, bæði hjá körlum og konum, slógu sitt eigið brautarmet frá því á síðasta ári. Þrátt fyrir að aðstæður væru langt frá því að vera eins góðar og á síðasta ári en hífandi rok var á Stórhöfða, en þangað upp var einmitt m.a. hlaupið.
Fyrstur allra í mark var Arnar Pétursson á tímanum 01:17:32 og var hann rúmum sjö mínútum fljótari en næsti hlaupari, Jörundur Frímann Jónasson.
Fyrst meðal kvenna í mark var líkt og í fyrra Andrea Kolbeinsdóttir á tímanum 01:26:12.
Karlar 20 km
1. Arnar Pétursson 1:17:32
2. Jörundur Fríman Jónasson 1:24:33
3. Manuel Hartwrg 1.24:44
Konur 20 km
1. Andrea Kolbeinsdóttir 1:26:12
2. Halldóra Huld Ingvarsdóttir 1:32:51
3. Íris Anna Skúladóttir 1:33:41
1. sæti2x10 km konur
Lið: Tvær sem elska Lunda. Kristín Hildur og Hugrún. 1:56:28
1. sæti2x10 km karla
Lið: Spyrnir FC. Hörður Bragi og Gísli Björn. 1:32:44
1. sæti 2x10 km blandað
HÍ International waddlers. Joana og Andrear. 1:40:32
1. sæti 4x5 km karla
Lið: Þór Oldboys. Sigursteinn, Hjálmar, Ingi og Þorsteinn
1. sæti konur4x5 km
Lið: Pysjurnar. Kristín, Jóhanna, Kristín Ósk,Andrea 2:15:32
1. sæti blandað4x5 km
Lið: Slow Farah. Eva, Leandra, James, Katie 2:12:11
Elsti keppandinn í ár var Björn Tryggvason fæddur 1953 timi 2:19:35
Yngsti keppandinn í ár var Haraldur Jóhannsson fæddur 2011 tími 2:07:13
Vestmannaeyjameistari karla: Hannes Jóhannsson 1:31:21
Vestmannaeyjameistari kvenna: Þórsteina Sigurbjörns 02:01:14
Mesta bæting á tíma frá því í fyrra: Af konum: Elsa Hannesdóttir 2022 var 2:37:00 í ár 2023 1:55:50 sem er 41:10 bæting
Af körlum: Davíð Egilsson 0222 var 2:50:45 í ár 2023 2:24:37 sem er 26:10 bæting.
Karlakór Vestmannaeyja heldur sína árlegu vortónleika í Höllinni á uppstigningardag fimmtudaginn 18. maí næstkomandi, að þessu sinni í samstarfi við hljómsveitina Molda.
„Kórmeðlimir hafa fengið smjörþefin af rokklíferninu eftir að hafa nokkrum sinnum stigið á stærstu svið landsins í Herjólfsdal og Hörpu. Á síðasta ári héldum við svo tónleika í Höllinni með okkar eigin hljómsveit og nú sætta menn sig ekki við neitt minna,“ sagði Snorri Þór Guðmundsson meðlimur og stjórnarmaður í Karlakór Vestmannaeyja. „Tónleikarnir í ár verða tvískiptir. Fyrir hlé ætlum við að syngja alla karlakóra klassíkina eins og hún leggur sig við undirleik bæjarlistamannsins okkar, Kitty Kovács. Þarna verða slagarar eins og Brennið þið vitar, Brimlending og að sjálfsögðu tiltillag tónleikanna Hraustir menn,“ sagði Snorri af mikilli tilhlökkun.
„Eftir hlé ætlum við svo að taka nokkur lög með rokkhundunum í hljómsveitinni Molda. Þar munum við flytja nokkur lög frá þeim í bland við eldri rokkslagara. Þetta verður klikkað! Það ætti eiginlega bara að vera skyldumæting á þetta,“ sagði Snorri og hló.
Helgi Rasmussen Tórzhamar forsprakki hljómsveitarinnar Molda sagðist fullur eftirvæntingar enda verkefnið einstaklega spennandi. „Bandið er funheitt enda nýbúnir að spila á annað tug sýninga á Rocky Horror hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Við höfum því sjaldan verið í eins góðu spilaformi og nú. Þetta er ekki síður skemmtilegt verkefni enda alveg stórkostlegur kór og skemmtilegur að vinna með. Páll Viðar
Kristinsson mund leika með okkur á tónleikunum líkt og hann gerði í leikhúsinu og svo mun hún Kristín Viðja spila nokkur lög á gítarinn líka. Þannig að ég get alveg lofað fólki frábærri skemmtun,“ sagði Helgi.
Þetta verða sjöttu vortónlekar kórsins sem er nú á sínu áttunda starfsári. En hinsvegar þeir fyrstu undir stjór nýs stjórnanda, Matthíasar Harðarsonar sem tók við kórnum um síðustu áramót. Eins og fyrr segir fara tónleikarnir fram fimmtudaginn 18. Maí og opnar húsið kl. 19:30 og hefjast tónleikarnir kl. 20:00 á slaginu. Miðaverð er kr. 3.900 og fer miðasala fram á Tix.is/hollin. Einnig verður hægt að kaupa miða við dyrnar.
FRÉTTAHORN FÍV
Það voru ævintýraþyrst starfsfólk úr FÍV sem héldu af stað í dagsferð upp á meginlandið í vorfríi skólans þann 24. apríl. Tilgangur ferðarinnar var að ganga upp á Sólheimajökul. Jökullinn sem er 8 km langur skriðjökull er á Suðurlandi og hluti af Mýrdalsjökli. Lagt var að stað kl. 9:30 með Herjólfi og keyrt austur þar sem við höfðum mælt okkur mót við leiðsögukonuna okkar hana Berglindi. Við rætur jökulsins hristum við okkur saman og útbjuggum okkur betur þ.e.a.s. settum á okkur belti, hjálm og klæddum okkur í brodda. Við vorum afskaplega heppin með veður þennan daginn. Það var milt og gott auk þess sem ekki voru margir ferðamenn á sama tíma og við á ferli við jökulinn eða á honum. Það vakti athygli okkar að við
vorum fyrsti íslenski hópurinn sem Berglind hefur farið fyrir á meðan hún fer með ríflega 2000 nemendur frá Bretlandi upp á jökulinn árlega. Það er semsagt ekki algengt að Íslendingar fari í jöklaferðir á borð við þessa enda ráku aðrir leiðsögumenn upp stór augu þegar þeir mættu okkur, heyrandi að við vorum íslensk. Þegar upp á jökulinn var komið fengum við smá fræðslu um svæðið og Sólheimajökul sjálfan, hvernig hlýnun loftslags hefur áhrif á hann og hversu mikið hann hefur minnkað í gegnum tíðina. Það voru djúpar sprungur og hættur við hvert fótmál og mikilvægt að við héldum hópinn. Við stoppuðum stöku sinnum á göngunni, nutum stórbrotins útsýnisins og fengum okkur ískalt jökulvatn að drekka á meðan við spjölluðum um það sem fyrir augu bar. Við létum ekki staðar numið eftir Sólheimajökul heldur keyrð-
um einnig að Skógum og skoðuðum byggðasafnið þar sem er virkilega skemmtilegt. Við gengum einnig að Kvernufossi sem er í 10 mín göngufæri frá Byggðasafninu. Því er ekki hægt að neita að það að upplifa náttúru sem þessa er mikilvæg reynsla fyrir okkur öll. Þegar við upplifum hana með eigin augum, öðlumst við annan skilning á henni, styrkjum tengsl okkar við hana og áttum okkur þ.a.l. betur á því hve dýrmæt hún er fyrir okkur og hvernig á að fara með hana. Þetta var stutt en engu að síður ógleymanleg ferð og verður vonandi endurtekið árlega héðan í frá að fara í ævintýraför sem þessa en að auki að hafa fleiri vettvangsferðir fyrir nemendur sem hluta af námsmati í framtíðinni.
F.h. FÍV Jóna Heiða SigurlásdóttirJEEP® COMPASS HENTAR ÞÉR FULLKOMLEGA
Rafmagnaður, fjórhjóladrifinn Jeep® Compass skilar þér hvert á land sem er. Pláss fyrir allt, alla og öll þín ævintýri út í búð eða upp á næsta fjall. Sumarkaupauki fylgir öllum Jeep® Compass og Jeep® Renegade. Dráttarbeisli, aurhlífar, hleðslukapall og þjónustuskoðanir að verðmæti 455.000 kr.
GLÆSILEGUR
455.000 KR. SUMARKAUPAUKI FYLGIR MEÐ
TÖKUM ALLAR
GERÐIR BÍLA UPP Í