15. tbl. 02. árg. 29.apríl - 5.maí 2020
Við þurfum á þér að halda! Þetta eru stórfurðulegir tímar sem við erum að upplifa. Við treystum á auglýsingar Tígull er eingöngu rekinn á innkomu auglýsinga og eins og þið öll vitið þá er ekki mikið um að fyrirtæki í dag hafi tök á að auglýsa á meðan allir halda að sér höndum og reyna hreinlega að lifa af þennan heimsfaraldur. Við höfum mikið velt fyrir okkur hvað við ættum að gera, hvernig við ættum að tækla þetta tímabil, við erum engan vegin tilbúnar að gefast upp enda er þetta skemmtilegasta
TÍGULL
vinna sem við höfum sinnt hingað til. Við elskum að miðla upplýsingum til ykkar Við elskum að miðla áfram efni og upplýsingum til ykkar Vestmannaeyinga eins hratt og örugglega og mögulegt er, við reynum að vera með eins jákvæðar fréttir og mögulegt er. Til að geta haldið útgáfunni áfram þá þurfum við á þér að halda. Hefur þú tök á að aðstoða okkur Við leitum því til þín kæri lesandi og bjóðum þér að ganga í stuðningslið Tíguls.
Inn á tigull.is er renningur sem þú getur smellt á og þar eru upplýsingar og valmöguleikar um að styrkja okkur. Þú velur þá upphæð sem þú hefur tök á að styrkja okkur með mánaðarlegu framlagi eða í eitt skipti. Einnig er hægt að greiða beint inn á styrktarreikninginn, upplýsingar hér: Kennitala: 650219-0900 Reikningsnúmer:185-15-20007 Katrín Laufey & Lind
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Helgi Torzhamar
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
VIÐ ÞURFUM Á ÞÉR AÐ HALDA! >> Hefur þú tök á að aðstoða okkur?
>> Nánari upplýsingar inn á www.tigull.is
>> Þú getur hjálpað okkur að >> Einnig er hægt að leggja beint tryggja útgáfu blaðsins í hverri inn á styrktarreikninginn, viku upplýsingar hér: Kennitala: 650219-0900 >> Þú velur þá upphæð sem þú Reikningsnúmer: hefur tök á að styrkja okkur 185-15-20007 með mánaðarlegu framlagi eða í eitt skipti.
SUMARIÐ ER TÍMINN
Nú er sumarið komið og þá fer golfið á fullt. Tígull heyrði í Karli Haraldssyni golfkennara. Golf er mikið fjölskyldusport og hefur verið mikil gróska undanfarin ár hérna í Eyjum.
sinnum í viku allt árið. Bæði inni og úti. Einnig er golfklúbburinn með akademíu fyrir krakka á grunnog framhaldskólastigi eins og handboltinn og fótboltinn og hefur það gengið mjög vel.
Mikill aukning hefur verið í hjá yngstu kynslóðinni og mun það vonandi skila okkur fleiri afrekskylfingum næstkomandi ár. Golfklúbbur Vestmannaeyja hefur staðið vel á málum í kringum barnaog unglingastarf undanfarin ár sem hefur skilað mögum afrekskylfingum og kylfingum sem hafa fengið styrk til háskólanáms í Ameríku.
Yfir sumartímann æfa krakkarnir 4 sinnum í viku og er þeim skipt upp í aldurshópa og eru æfingarnar í 1 ½ klst. Við byrjum sumaræfingarnar um leið og skóla lýkur. Árgjald er 27.000 og þurfa krakkarnir ekki að eiga neinar kylfur eða neitt til að stunda golfíþróttina. Með mér í kennslu er Thelma Sveinsdóttir leiðbeinandi. Æfingar hefjast stax hjá krökkunum eftir samkomubann og reynum við að skipta æfingunum upp í fleiri hópa vegan COVID.
Golf er stundað allt árið í Vestmannaeyjum. Með bættri aðstöðu undanfarina ára hefur okkur tekist að gera þetta að heilsársíþrótt. Krakkar og unglingar á aldrinum 6-19 ára æfa 2-4
Mér hlakkar mikið til að hitta krakkana og ég veit að þau eru farin
að hlakka mikið til að fara út á völl að leika sér í vorblíðunni. Nánari upplýsingar um æfingar eru á facebook, leita að: Unglingastarf GV Eða í síma 698-1475 Einnig mun ég bjóða upp á almenna kennslu, byrjendanámskeið og margt fleira núna strax þegar samkomubanni lýkur. Golf er fyrir alla og er mjög hentugt fjölskyldusport í Vestmannaeyjum. Þar sem við erum með einn fallegasta og besta golfvöll landsins. Nánari upplýsingar um námskeið sem boði verða eru inn á : https:// www.facebook.com/haraldsson.karl eða haraldsson.karl@gmail.com eða í síma 698-1475
Viðarvörn
fyrir íslenskar aðstæður Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.
Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga
Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM
- það segir sig sjálft -
SATAY KJÚKLINGASPJÓT & SUMARSALAT - Uppskrift vikunnar -
Satay kjúklingaspjót (fyrir 3): Hráefni: 2-3 vænar kjúklingabringur 1 krukka satay sósa (Ég nota Blue Dragon satay sósu úr glerkrukku) 1 msk sojasósa 1 hvítlauksrif, smátt saxað eða rifið Sítróna, skorin í tvennt 1/2 kjúklingateningur Krydd Aðferð: Byrjið á að skera kjúklingabringurnar í litla jafnstóra bita. Setjið kjúklingabitana í skál. Hellið helmingnum af satay sósunni yfir kjúklinginn ásamt sojasósunni, hvítlauknum og safanum úr hálfri sítrónu. Blandið þessu vel saman og þræðið upp á teina og kryddið. Grillið á vel heitu grilli í 10-15 mínútur og snúið nokkuð oft. Hægt er að hita afganginn af satay sósunni í potti ásamt 1 dl af vatni, 1/2 kjúklingatening og safanum
úr hálfri sítrónu og bera fram með kjúklingaspjótunum ásamt hrísgrjónum og fersku salati.
Sumarsalat
Hráefni: Iceberg-salat Klettasalat Mangó Cherry-tómatar 2 bollar svartar Doritos-flögur, muldar 1 bolli kasjúhnetur 3 msk. hlynsíróp 2 msk. sykur Aðferð: Skerið salatið í strimla, tómatana í fjórðunga, mangóið í teninga og setjið í skál með klettasalatinu. Magnið fer eftir því hversu margir eru í mat. Hitið pönnu miðlungshita og þurrristið kasjúhneturnar. Þegar þær eru rétt byrjaðar að fá á sig gullinn lit er Doritos-flögunum bætt út á pönnuna. Þurrristið blönduna saman í nokkrar mínútur og bætið
svo við hlynsírópi og sykri. Steikið áfram í nokkrar mínútur. Látið kólna og brjótið niður áður en dásemdinni er dreift yfir salatið.
Kartöflusalat
Hráefni: Soðnar kartöflur Sellerí Döðlur 2 msk. dijon-sinnep 4 msk. extra virgin-ólífuolía Salt Aðferð: Byrjið á að setja sinnepið og ólífuolíuna saman í skál og hræra duglega. Skerið kældar kartöflur í bita, sellerí í sneiðar og döðlur smátt. Blandið öllu saman í skál og saltið eftir smekk. Þetta salat bragðast best eftir klukkustund í kæli.
Störf ráðgjafa hjá skólaþjónustu
Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða í eftirtalin störf:
Kennsluráðgjafi grunnskóla Um er að ræða 70% starf kennsluráðgjafa grunnskóla sem starfar sem sérfræðingur á vegum skólaskrifstofu og sinnir hlutverki ráðgjafa við Grunnskóla Vestmannaeyja. Hann sinnir ráðgjöf til skólaskrifstofu, kennara og stjórnenda varðandi nemendur, skipulag og kennslu. Þá sér hann um skimanir, eftirfylgd og skráningu ýmissa mála.
Skipuleggur og framkvæmir skimanir í árgöngum og vinnur að úrræðum í samvinnu við deildarstjóra skóla. Hefur yfirsýn og heldur skráningu um alla þá þjónustu sem nemendur með sérþarfir njóta innan GRV. Önnur verkefni sem starfsmanni er falið af yfirmanni og falla undir starfssvið hans.
Helstu verkefni: Situr fundi skólaskrifstofu, nemendaverndarráðsfundi í GRV, lausnateymi GRV, fundar með kennurum, stuðningsfulltrúum og stjórnendum eftir þörfum og situr teymisfundi vegna nemenda eftir þörfum. Er í ráðgjafateymi stoðþjónustu og sinnir verkefnum sem teymið felur honum. Innheimtir og fer yfir einstaklingsnámskrár nemenda. Veitir kennurum aðstoð og ráðgjöf við að aðlaga nám einstaka nemenda. Er kennurum og stuðningsfulltrúum til faglegs ráðuneytis varðandi skipulag á kennslu nemenda og er sérstök áhersla á nýtingu tækni í skólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur: Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi. Framhaldsnám á sviði kennslu- og menntunarfræða. Menntun og/eða reynsla á sviði upplýsingatækni og miðlunar er kostur. Logos- og Talnalykilsréttindi er kostur. Samskipta- og samstarfshæfni. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður. Góð tölvukunnátta. Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Sérkennsluráðgjafi leikskóla Um er að ræða 90% starf sérkennsluráðgjafa leikskóla til afleysingar í eitt ár. Sérkennsluráðgjafi vinnur að stuðningi og ráðgjöf við foreldra, kennara og starfsfólk leikskóla vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning eða sérfræðiaðstoð. Hann er starfsmaður skólaþjónustu fjölskyldu- og fræðslusviðs og starfar í samstarfi við fræðslufulltrúa og stjórnendur leikskóla. Helstu verkefni: Annast faglega ráðgjöf og stuðning við foreldra, leikskólastjóra og aðra starfsmenn leikskóla vegna barna sem njóta sérfræðiaðstoðar eða sérkennslu og fylgir greiningu eftir ef þurfa þykir. Tekur þátt í greiningu/skimunum og ráðleggur starfsmönnum leikskóla um gerð verkefna og einstaklingsnámskráa fyrir hvert barn í samvinnu við aðra er að málinu koma. Fylgist með að einstaklingsáætlunum sé fylgt eftir og leiðbeinir starfsmönnum leikskóla. Fylgist með og miðlar nýjungum varðandi málefni barna sem þurfa á sérfræðiaðstoð og sérkennslu að halda til yfirmanns og starfsmanna leikskóla og tekur þátt í að móta fræðslu fyrir starfsmenn.
Vinnur skýrslur og yfirlit varðandi börn sem þurfa á sérfræðiaðstoð og sérkennslu að halda í samráði við fræðslufulltrúa og starfsmenn leikskóla. Sinnir sérkennslu barna eftir atvikum. Hefur samráð við þá aðila sem tengjast börnum sem þurfa sérkennslu og/eða stuðning í leikskóla. Situr fundi þar sem fjallað er um málefni barna sem þurfa sérkennslu og/eða stuðning í leikskólum samkvæmt boðun yfirmanns eða hlutaðeigandi aðila. Sinnir öðrum þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum. Menntunar- og hæfniskröfur: Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á leikskólastigi. Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða. Réttindi til að leggja fyrir skimunarpróf, s.s Íslenska þroskalistann, Íslenska smábarnalistann, Íslenska málhljóðamælinn og EFI-2, er kostur. Samskipta- og samstarfshæfni. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður. Góð tölvukunnátta. Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst og á það við um báðar stöðurnar. Umsókn sendist á drifagunn@vestmannaeyjar.is merkt „Kennsluráðgjafi grunnskóla“ eða „Sérkennsluráðgjafi leikskóla“. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf til kennslu auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir Drífa Gunnarsdóttir fræðslufulltrúi í síma 488-2000 Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
42 Miðvikudaginn 6. maí n.k. mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefja heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í átjánda sinn. Það stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 26. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning í þjóðfélaginu um hjólreiðar sem heilsusamlegan samgönguvalkost. Þátttaka hefur margfaldast á nokkrum árum Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa aldeilis tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast á nokkrum árum. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitarfélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk. Hjólað í vinnuna er nú orðið hluti af menningu margra vinnustaða í landinu í maí ár hvert. Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum
samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert. Nauðsynlegt að sinna daglegri hreyfingu á dögum covid Við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu er nauðsynlegt að sinna sinni daglegu hreyfingu. Það er ekki síður mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga vel að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum. Hjólað í vinnuna er góð leið til að þjappa vinnuhópnum saman Verkefnið Hjólað í vinnuna er mjög góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og öflug líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna. Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær Í fyrsta lagi vinnustaðakeppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Og í öðru lagi kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði. Í ár hvetjum við þá sem vinna
heima hjá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annann virkan ferðamát sem nemur kílómetrum til og frá vinnu. Einfaldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt. Hverjir eru gjaldgengir þátttakendur? Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu (og heimavinnu) þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð. Ýmsir leikir í gangi á meðan á átakinu stendur Meðan á átakinu stendur eru ýmsir leikir í gangi svo sem skráningarleikur þar sem allir þátttakendur fara sjálfkrafa í pott og eiga möguleika á að vera dregnir út í þættinum Morgunverkin á Rás 2 alla virka daga. Hjólreiðaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga og þann 28. maí er dregið út glæsilegt reiðhjól að verðmæti 100.000kr. Myndaleikur verður í gangi á Instagram, Facebook og á vefsíðu Hjólað í vinnuna þar sem fólk er hvatt til að taka skemmtilegar myndir af þátttöku sinni í verkefninu og merkja myndina með #hjoladivinnuna. Með því gætu þátttakendur unnið veglega vinninga frá Nutcase á Íslandi. Auðvelt er að skrá sig til leiks ásamt því að finna allar frekari leiðbeiningar um verkefnið á www. hjoladivinnuna.is
BÖRNIN spurt & svarað SIGRÚN ANNA VALSDÓT TIR Aldur: 7 að verða 8 ára veistu þú hvað Covid-19 er? það er sjúkdómur, við þurfum að passa gamla fólkið. Finnst þér síðustu vikur hafa verið skrítnar? Já, skrítið að mega ekki leika við marga í einu. hvað er það skemmtilegasta sem
INGIBERGUR SIGMUNDSSON Aldur: 7 ára veistu þú hvað Covid-19 er? Það er einhver veira og maður getur orðið mjög veikur. Finnst þér síðustu vikur hafa verið skrítnar? Já mjög skrýtnar. hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur gert núna eftir að það var svona lítill skóli? Fara í fjallgöngu, veiða hjá gólfvellinum og út að hjóla. Ertu búin að gera eitthvað nýtt síðstu daga? Vatnsblöðrustríð! Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að vinna í sundlauginni og verða sundkennar. Hver er mesti prakkarinn í fjölskyldunni? Valli litli bróðir minn
þú hefur gert núna eftir að það var svona lítill skóli? Að vera í tölvunni og fara í frispí uppi á lofti og að fara í Páskahelli og Haugahelli og fjöruferðir. Ertu búin að gera eitthvað nýtt síðstu daga? Nei. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Lögga. Hver er mesti prakkarinn í fjölskyldunni? Pabbi.
ELÍSABET VALTÝRSDÓT TIR Aldur: 7 að verða 8 ára veistu þú hvað Covid-19 er? Já það er slæm veiki. Finnst þér síðustu vikur hafa verið skrítnar? Nei, bara eins og að vera í fríi. Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert núna eftir að það
var svona lítill skóli? Hoppa á nýja trampólíninu mínu, út að hjóla og hlaupahjóla. Ertu búin að gera eitthvað nýtt síðstu daga? Já, eins og að sippa og hoppa. Það er skrítið því ég hef aldrei átt trampólín. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Pössunarpía eða hárgreiðslukona. Hver er mesti prakkarinn í fjölskyldunni? Pabbi
BÖRNIN spurt & svarað BREKI FREYR FINNSON Aldur: 8 ára veistu þú hvað Covid-19 er? Veira sem gerir mann mjög veikan og sumir deyja. Finnst þér síðustu vikur hafa verið skrítnar? Nei ekkert svo Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert núna eftir að það var
EMBLA SIGRÚN ARNSTEINSDÓTTIR Aldur: 7 ára veistu þú hvað Covid-19 er? Já, það er veira sem getur drepið fólk og veldur veikindum og svona. Finnst þér síðustu vikur hafa verið skrítnar? Já útaf því að ég má ekki hitta neinn og mamma er lengi í vinnunni.
svona lítill skóli? Labba um allt og fara í fjöruferðir. Ertu búin að gera eitthvað nýtt síðstu daga? Nota zoom til að fara í gítartíma. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Sjómaður og laga net eins og pabbi og vélstjóri. Hver er mesti prakkarinn í fjölskyldunni? Pottþétt ég en svo kemur pabbi.
hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert núna eftir að það var svona lítill skóli? Leikið við Jón Bjarka og hjólað. Ertu búin að gera eitthvað nýtt síðstu daga? Já, ég svaf í tjaldi inni. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Hárgreiðslukona. Hver er mesti prakkarinn í fjölskyldunni? Ég auðvitað.
TRAUSTI FANNAR GUNNARSSON Aldur: 8 ára veistu þú hvað Covid-19 er? Veira sem gæti tæknilega drepið mann. Finnst þér síðustu vikur hafa verið skrítnar? Já
hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert núna eftir að það var svona lítill skóli? Tjalda í stofunni. Ertu búin að gera eitthvað nýtt síðstu daga? Prufa nýja tölvuleiki. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Vinna í bankanum. Hver er mesti prakkarinn í fjölskyldunni? Ég
Meginverkefni: •
• • • •
•
Aðstoða stjórnendur Vinnslustöðvarinnar og Grupeixe við samþættingu vinnslu félaganna. Eftirlit með gæðum fisks við veiðar, vinnslu í Eyjum og áframvinnslu í Portúgal. Umsjón með framlegðarútreikningum vinnslu og vinnsluleiða í gegnum allan feril frá veiðum til neytenda. Áætlanagerð og eftirfylgni. Umsjón með daglegum rekstri framleiðslu í samstarfi við aðra stjórnendur félagsins. Aðstoð og afleysingar við aðra fiskvinnslu í fyrirtækinu.
Kröfur til umsækjenda: •
• • • •
Áhugi á vinnslu, veiðum og markaðssetningu fisks. Þekking á sjávarútvegi og markaðssetningu. Háskólamenntun, menntun á sviði sjávarútvegs og/eða mikil starfsreynsla sem nýtist í starfi mikilvæg. Góð tölvufærni og færni í framsetningu talna og gagna. Frumkvæði, áreiðanleiki og samskiptalipurð.
Starfið krefst vakandi áhuga, ósérhlífni og þess að stjórnandi vinni með starfsfólki félagsins til sjávar, í landi og í Portúgal. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. Við hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um. Upplýsingar veitir: Lilja Björg Arngrímsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar. Umsóknir óskast sendar á lilja@vsv.is. Kynningarbréf ásamt ferilskrá þar sem fram koma ítarlegar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf fylgi umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk. Vinnslustöðin hf. 488 8000
Hafnargata 2 vsv@vsv.is
900 Vestmannaeyjar www.vsv.is
SUDOKU
ð finna Ertu búin a blaðinu? töluna 42 í
ORÐARUGL
NAGLALAKK MASAKARI PÚDUR MEIK VARALITUR EYELINER GLOSS KINNALITUR
AUGNSKUGGI ANDLITSHREINSIR
SKIPULAGS- OG UMHVERFISFULLTRÚI Laust er til umsóknar starf skipulags- og umhverfisfulltrúa Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitafélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulagsog umhverfismálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdarstjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV
F
L
S
Frá VEY
Brottf.
Lent
7:15
7:40
15:45 16:10 17:30 17:55 8:00
8:25
16:30 16:55
18:15 18:40
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið: olisnorra@vestmannaeyjar.is
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí
Tannlæknar 12. -17. maí Hjalti Þórðarson 22. - 24. maí Rakel Ósk Þrastardóttir
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
Nú er Götuskeggur til sölu Ford Transit árgerð 2008, ekinn 65.000 km Topp eintak sem er hlaðinn öllum þeim aukahlutum sem góðan húsbíl má prýða. Verð 6,9 milljónir stgr. Upplýsingar í síma 699 4411
OPNUM 4.MAÍ Erum byrjaðar að taka niður pantanir í síma 772-3332 eða senda skilaboð á facebook okkar.
#mĂnbarĂĄtta
1. maĂ er barĂĄttudagur verkalýðsins Ă rleg ĂĄminning um mĂĄtt samstÜðunnar og nauðsyn ĂĄframhaldandi barĂĄttu fyrir rĂŠttlĂŚti og mannsĂŚmandi lĂfskjĂśrum fyrir alla.
ĂžĂnar krĂśfur – okkar barĂĄtta!
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVĂ?K | S. 510 1700 | WWW.VR.IS