14. tbl. 06. árg. 11. - 17. apríl 2024
LIONSKLÚBBURINN 50 ÁRA
Söfnuðu tæplega 8 milljónum fyrir Grindvíkinga
Lionsklúbbur Vestmannaeyja fagnar í dag 50 ára afmæli klúbbsins. Af því tilefni var efnt til afmælisfagnaðar í veislusal Einsa Kalda í gærkvöldi. Á áttunda tug mættu í veisluna sem var öll hin glæsilegasta. Hápunktur kvöldsins var þegar að fulltrúar Lionsklúbbsins í Eyjum afhentu fulltrúum Lionsklúbbs Grindavíkur afrakstur söfnunar sem staðið hefur yfir síðastliðnar vikur innan Lions hreyfingarinnar á Íslandi. Söfnuðust alls 7.750.000,-.
Þá voru einnig nokkrir félagar í Lionsklúbbi Vestmannaeyja heiðraðir fyrir óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn síðustu áratugi. Ómetanlegt fyrir bæjarfélagið að hafa jafn öflugan klúbb starfandi í bæjarfélaginu.
Fjórða útgáfa Tímamóta kom út í tilefni stórafmælis Lionsklúbbs Vestmannaeyja. Blaðið er helgað starfsemi og sögu Lionsklúbbsins í fimmtíu ár. Í ritnefnd eru Guðni Einarsson, Ómar Garðarsson og Sigmar Georgsson. Sæþór Vídó hjá Leturstofunni sá um umbrot blaðsins.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Natali Osons.
okkar: www.tigull.is DREIFING: Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM: Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
TÍGULL Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni
Fáðu afhent með Dropp!
Nú getur þú fengið sendingar úr vefverslun IKEA afhentar með Dropp! Með þessu aukum við úrval þjónustu okkar og komum til móts við misjafnar þarfir viðskiptavina, hvar á landinu sem er.
Verslun opin 11-20 alla daga - IKEA.is © Inter IKEA Systems B V . 2024
HALLA TÓMASDÓTTIR FORSETAFRAMBJÓÐANDI
Halla Tómasdóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands. Kosið verður til þann 1. júní 2024 og þegar þetta er ritað hafa 69 manns gert slíkt hið sama.
Halla Tómasdóttir, fædd 1969, er alin upp á Kársnesi í Kópavogi og á ættir að rekja til Skagafjarðar og Vestfjarða. Hún er frumkvöðull og rekstrarhagfræðingur með meistaragráðu og hóf starfsferil sinn í Bandaríkjunum hjá fyrirtækjunum Mars og Pepsi Cola. Halla kom að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík þar sem hún stofnaði og leiddi meðal annars Opna háskólann og verkefnið Auður í krafti kvenna.
Halla hefur ávallt haft brennandi áhuga á forystu og frumkvöðlastarfsemi og hefur kennt þúsundum nemenda á öllum aldri. Hún varð fyrst kvenna framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs vorið 2006. Ári síðar stofnaði Halla ásamt Kristínu Pétursdóttur fjármálafyrirtækið Auður Capital. Fyrirtækið lagði áherslu á ábyrgar
fjárfestingar og að skila hagnaði á grunni góðra gilda. Auður Capital og viðskiptavinir þess fóru tjónlaust gegnum efnahagshrunið árið 2008. Halla kom í kjölfarið að stofnun Mauraþúfunnar sem hélt Þjóðfund árið 2009 þar sem slembiúrtak þjóðarinnar vann að framtíðarsýn og gildum þjóðarinnar.
Halla hefur síðastliðin sex ár verið forstjóri B Team þar sem hún starfar á heimsvísu að sjálfbærni, jafnrétti og ábyrgð í forystu. B Team vinnur með fyrirtækjastjórnendum og stjórnmálaleiðtogum að bættu siðferði sem og réttlátum og gegnsæjum reglum fyrir efnahags- og viðskiptalíf. Halla er vinsæll alþjóðlegur fyrirlesari og hefur meðal annars stigið fjórum sinnum á TED-sviðið ásamt því að halda fyrirlestra fyrir stærstu fyrirtæki heims.
Fjölskyldan
Dóttir Skagfirðingsins Tómasar B. Þórhallssonar pípulagningameistara og Strandakonunnar Kristjönu
Sigurðardóttur, þroskaþjálfa. Gift Grindvíkingnum Birni Skúlasyni og við eigum tvö börn, Tómas Bjart (22) og Auði Ínu (20). þau eru bæði í háskólanámi í New York. Tómas Bjartur stundar þar nám í viðskiptafræði og spilar fótbolta og Auður Ína nemur sálfræði.
Við hvað vinnur maðurinn þinn? Eiginmaður minn er heilsukokkur og rekur eigið fyrirtæki, justbjorn. com, sem markaðssetur norrænar haftengdar heilsuvörur eins og collagen-fæðubótarefni sem búið er til úr fiskroði. Hann spilaði lengi fótbolta með Grindavík og KR og starfaði í tryggingageiranum og fjármálafyrirtækjum áður en hann gerðist frumkvöull.
Hvað hefur þú starfað við? Ég var í sveit öll sumur æskunnar og vann í fiski á Austfjörðum á unglingsárunum. Ég hef komið víða við í íslensku atvinnulífi og hef einnig víðtæka alþjóðlega starfsreynslu. Ég tók virkan þátt í uppbyggingu Háskólans í Reykjavík, stofnaði og leiddi verkefnið Auður í krafti kvenna og Stjórnendaskólann – sem heitir núna Opni háskólinn í HR – og kenndi nemendum á öllum aldri. Ég var annar stofnenda Auðar Capital, ein þeirra sem kom að undirbúningi Þjóðfundar árið 2009 og hélt alþjóðlega jafnréttisráðstefnu á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Síðastliðin sex ár hef ég starfað sem forstjóri B Team, en það eru alþjóðleg samtök leiðtoga í atvinnulífi og stjórnmálum, sem setja vellíðan fólks og umhverfis á oddinn. Vegna starfs míns hjá B Team hef ég verið með annan fótinn í New York undanfarin ár, en hef alltaf haldið sömuleiðis heimili á Íslandi og verið hér langdvölum.
Áttu tengingu við Vestmannaeyjar?
Systkini foreldra minna giftust góðu Eyjafólki og Eyjalögin hafa ávallt verið í hávegum höfð á mínu heimili. Svo býr æskuvinkona mín, Þjóðhildur Þórðardóttir, í Vestmannaeyjum og við eigum töluvert af góðum vinum úr Vestmannaeyjum. Þá má ekki gleyma fjölda fótboltamóta og leikja. Við Bjössi höfum svo ákveðna matarást á Sigurði Gísla og Berglindi Sigmars, sem reka veitingastaðinn Gott og svo borðuðum við einhverja bestu máltíð allra tíma á Slippnum.
Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Ég hef komið þrisvar á Þjóðhátíð og sjaldan skemmt mér betur.
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn á Íslandi?
Ætli það sé ekki brekkan á Þjóðhátíð, þúsundir Íslendinga að syngja saman útí guðsgrænni náttúrunni, hvað toppar það?
Uppáhaldsstaður erlendis?
Mikla Gljúfur, fór í tveggja vikna ferð í gegnum það undur veraldar á gúmmíbátum og kayak og utan Íslands hef ég aldrei orðið jafn agndofa yfir stórbrotinni náttúru.
Hvar og hvenær líður þér best? Hvar sem er í íslenskri náttúru, en líður einnig vel heima, helst í kringum matarborðið með fjölskyldu og góðum vinum.
Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum?
Hugrökk, heiðarleg og hlý
Hvernig nærðu slökun? Í íslenskum sundlaugum, hvar sem er í náttúrunni, við lestur bóka og í hugleiðslu.
Besti matur í heimi?
Allt sem Bjössi eldar og þá helst ef það er úr hafinu.
það sem heillar mig er.... Jákvæðni og gleði og fólk sem leggur sig fram um að gera gagn og láta gott af sér leiða.
Leikhús eða bíó?
Leikhús
Uppáhaldstónlist?
Gamalt og gott, til dæmis vel flest sem sungið er í brekkunni á Þjóðhátíð. Ég hef sérstakt dálæti á íslenskum sönglögum og það er auðvelt að fá mig til að bresta í söng.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?
Veiðistöng, hníf og eldspýtur
Ertu safnari?
Maðurinn minn myndi líklega segja það já, ég myndi frekar segja að ég sé nýtin.
Ertu A eða B týpa?
Var B, en er núna A týpa. Tek daginn snemma og finnst fátt betra en að fara tímanlega í rúmið.
Uppáhaldshlutur?
Mynd af mér með Mola mínum, hundinum okkar sem fór því miður í Sumarlandið nýlega.
Fjölskyldan á góðri stundu með uppáhaldi allra honum Mola sem kvaddi fjölskylduna nú í febrúar og hélt í sumarlandið.
VIÐBURÐIR FRAMUNDAN 12 APRÍL FÖS SPAMALOT Leikfélag Vestmannaeyja Kvika kl. 20:00 15 APRÍL LAU ÍR - ÍBV OLÍSDEILD KVENNA Skógarsel kl. 19:40 FÖS APRÍL 12 ÍBV - ÍR OLÍSDEILD KVENNA Íþróttamiðstöð kl. 18:00 FIM APRÍL 18 ÍBV - ÍR OLÍSDEILD KVENNA Íþróttamiðstöð kl. 18:00 LAU APRÍL 13 SPAMALOT Leikfélag Vestmannaeyja Kvika kl. 20:00 11 APRÍL FIM OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK kl. 19:30 - 22:00 Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk FÉLÓ ÞRI APRÍL 16 OPIÐ HÚS FYRIR 5. & 7. BEKK kl. 16:30 - 18:30 MÁN APRÍL OPIÐ HÚS FYRIR 8. - 10. BEKK kl. 19:30 - 22:00 15 SÝNINGAR FRAMUNDAN: 12. apríl kl. 20:00 13. apríl kl. 20:00 MIÐASALA Í SÍMA 852-1940 Miðasölusíminn verður opinn alla daga milli kl. 16:00 - 20:00 5 - 7. BEKK kl. 17:30 - 19:30 ÚRSLITAKEPPNIN OLÍSDEILD KVENNA 1. UMFERÐ ÍBV - ÍR 12. APRÍL KL. 18:00 ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA ÍR - ÍBV 15. APRÍL KL. 19:40 SKÓGARSEL ÍBV - ÍR 18. APRÍL KL. 18:00 ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA
MIÐ HANDVERK & HITTINGUR Kviku kl. 13:00 - 16:00 Er Apríl
Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00 17 17 Apríl
MIÐ Apríl
17 apríl
SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR
MIÐ SÖNGHÓPUR LALLA Kviku kl. 17:00 - 18:00
Frítt er í sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar
fyrir heimafólk 67 ára og eldri.
pútt í kviku alla virka daga frá klukkan 13:00 - 14:00
Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is NÝJA TANNLÆKNASTOFAN Áratuga reynsla í málun innan og utanhúss Vantar þig málara? Nýmálun og endurmálun Hvort sem það er smá lagfæring eða meiriháttar breyting þá erum við með lausnina fyrir þig. Jói Málari s: 898-2651 / johann.gislason@simnet.is FIM apríl 11 DRENGJARADDIR LALLA Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00
Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00
MEÐ EYGLÓ EGILS Íþróttahús kl. 10:00 -
FÖS apríl 12 KVIKU kl. 19:30 apríl FIM SPILAVIST 11
Herjólfshöllinni
kl.
- 12:00
16 apríl ÞRI SUNDLEIKFIMI MEÐ HRAFNHILDI HÖNNU
LEIKFIMI
11:00
Hressingarganga í
alla daga
08:00
Púttsalurinn
Tímapantanir í síma 570 9090 Faxastígur 38
þinn skoðunarmánuður? Frumherji í Eyjum vikuna 15. - 18. apríl Stórir bílar einnig skoðaðir!
Lokað í hádeginu
ENN OG AFTUR FÁUM VIÐ AÐ UPPLIFA HVERSU RÍK VIÐ ERUM
Leikfélag Vestmannaeyja sýnir Spamalot – Handrit: Eric Idle Tónlist: John Du Prez og Eric – Idle –Þýðing: Bragi Valdimar Skúlason – Leikstjóri: Stefán Benedikt Vilhelmsson
Söngleikurinn Spamalot, eftir breska leikrita- og tónskáldið Eric Idle sem er ekki síst þekktur fyrir að vera meðlimur grínhópsins vinsæla Monty Python, hefur verið sýndur víða um heim við miklar vinsældir og er nú komið að okkur Eyjamönnum og gestum okkar að fá að njóta verksins af höndum Leikfélags Vestmannaeyja. Bragi Valdimar Skúlason íslenskufræðingur og tónlistarmaður sá um þýðingu á verkinu og gerir það af slíkri snilld að texti, sem undirritaðri þótti persónulega svona í meðallagi fyndinn á upprunalega tungumálinu, verður hreint bráðskemmtilegur og afar hnyttinn eftir meðhöndlun og stílfæringu Braga Valdimars á honum.
Það er Stefán Benedikt Vilhemsson sem leikstýrir verkinu en þetta er í þriðja skiptið sem hann starfar með LV. Söngleikurinn er byggður á myndinni ,,Monty Python and the holy grail“ og segir frá Artúri konungi og riddurum hr-
ingborðsins og leit þeirra að hinu heilaga grali. Á ferðalaginu verða á vegi þeirra allskonar skrautlegir karakterar sem og hindranir sem þeim tekst misvel að komast í gegnum. Í verkinu fléttast saman veröld Broadway söngleikja og sagnheimur miðalda þannig að útkoman verður full af ærslaleik, allskonar vitleysu, fullorðins húmor, söng og dansi.
Það er stór hópur leikara og dansara sem fara með hlutverk í Spamalot og þó nokkrir sem fara með fleiri en eitt hlutverk. Þau stóðu sig afar vel í sínum fjölbreyttu og mis stóru hlutverkum þau Guðjón Emil Ómarsson, Jón Helgi Reykjalín, Auðbjörg Helga Óskarsdóttir og Gunnar Davíð Frímanns. Sigurjón Geirsson var líka í nokkrum smáhlutverkum, eins og þau hér að ofan, en hann var einkar hress og líflegur í hlutverki Ekki-dauður-enn og þá stóð Reynir Þór Egilsson sig líka vel og var sérstaklega skemmtilegur sem hinn lítt hörundsári svarti riddari.
Þá er ekki hægt að láta hjá líða að minnast sérstaklega á dansarana og
Karmellusysturnar þær Maríu Fönn Frostadóttur, Guðný Emilíönu Tórshamar, Guggu Rún
Vestmann, Önnu Maríu Lúðvíksdóttur, Valgerði Elínu Sigmarsdóttur og Svölu Hauksdóttur sem stóðu sig algjörlega frábærlega í skemmtilega útfærðum og fjölbreyttum dansatriðum sem nóg var af í þessu verki. Bertha Þorsteinsdóttir hefur tekið þátt í þó nokkrum uppfærslum LV og þó hún hafi aldrei verið í sérstaklega stóru burðarhlutverki hefur hún engu að síður oftar en ekki dregið athygli áhorfenda að sér fyrir góða frammistöðu.
Að þessu sinni var það frábær túlkun hennar á Tuma galdramanni sem varð þess valdandi að einn af sessunautum mínum hreinlega grét úr hlátri. Elí Kristinn Símonarson leikur hugrakka….eða réttara sagt hinn huglausa riddara Hróa og ferst það vel úr hendi. Hann er skemmtilega kómískur, fer vel með textann sinn og hefur fínustu söngrödd. Það hefur líka Jökull Elí Þorvaldsson sem hinn óttalausi og átakafjáði riddari Lancelot sem við fáum að sjá að á sér ögn mýkri hlið líka síðar í verkinu.
Arnar Gauti Egilsson leikur hinn ráðgefandi riddara Bedivere sem reynist hreint ekki eins ráðagóður og halda mætti þegar á hólminn er komið. Það hefur verið mjög gaman að fylgjast með Arnari Gauta vaxa með hverju hlutverkinu sem hann hefur tekist á hendur og kemst hann virkilega vel frá sínu í þessu verki.
Alexander Páll Salberg fer bæði með hlutverk sögumannsins sem og Herberts prins og þó hann fari vel með bæði hlutverk er það engu að síður frammistaða hans sem hinn mjúki Herbert sem fær áhorfendur til að skella ítrekað uppúr. Ekki síst þegar hann hefur upp mjóróma söngröddina þar sem hann situr í turninum og bíður eftir að hans eina sanna ást komi og finni hann. Algerlega dásamlegur.
Konur fjárfestum
Fræðsluviðburður
Viska, Ægisgata 2
11. apríl kl 17:00
Dagskrá:
Konur fjárfestum – vertu með!
Iða Brá Benediktsdóttir segir okkur frá langtímaátaksverkefni Arion banka.
Fjármál og fjárfestingar!
Snædís Ögn Flosadóttir fer því næst yfir grunninn að fjármálum og fjárfestingum, lykilhugtök og hvernig á að byrja reglubundinn sparnað, lífeyrissjóði, sjóði, hlutabréf og skuldabréf.
Boðið verður upp á léttar veitingar. Skráning fer fram á heimasíðu okkar: arion.is/konurfjarfestum
Vertu með!
Zindri Freyr Ragnarsson Caine er bráðskemmtilegur í sínum þremur hlutverkum. En hann leikur hinn ýkta franska og hrokafulla Hæðinn svo og bróðir Magnfreð og síðast en ekki síst föður Herberts prins, sem hann er hreint út sagt orðinn þokkalega þreyttur á hversu mjúkur og söngelskur hann er. Zindri er óborganlegur í þessum hlutverkum sínum og sýnir okkur að þarf ekki alltaf að hreppa stærstu hlutverkin til að vera eftirminnilegur.
Sarah Elía Ó. Tórshamar leikur Blóra hinn trausta meðreiðarsvein Artúrs konungs sem vill ekkert meira en vera viðurkenndur af konungnum og sýnir honum eindæma hollustu í einu og öllu þrátt fyrir að vera hálf ósýnilegur í augum húsbónda síns. Sarah Elía hefur tekið þátt í nokkrum uppfærslum á fjölum LV þrátt fyrir ungan aldur en þetta er í fyrsta skipti sem við fáum að sjá hana í svona stóru hlutverki. Henni ferst það líka vel úr hendi og sýnir á stundum hreint frábæra og óaðfinnanlega frammistöðu. Það heyrist líka að hún hefur fallegan tón í söngröddinni sinni sem með réttri þjálfun og æfingu gæti orðið afar frambærileg. Ég ætla því rétt að vona að hún haldi áfram á listabrautinni því hún hefur þar mikið fram að færa hvort heldur snýr að leiklist eða tónlist. Ég hlakka allavega persónulega til að fylgjast með henni í framtíðinni.
Ingunn Silja Sigurðardóttir leikur Vatnadísina. Stórt hlutverk og það kröfumesta þori ég að segja sem hún hefur tekið að sér á vegum LV hingað til. Ingunn Silja býr yfir stórkostlegri sópran söngrödd sem marga dreymir um hafa og því skyldi engan, sem þekkir verkið Spamalot, undra að Stefán leikstjóri hafi valið hana í hlutverk Vatnadísarinnar þar sem hlutverkið krefst mikils sönglega séð af leikaranum. Bæði hvað varðar söngstíl og tónhæðir. Það gleður óumræðanlega að Ingunn Silja skuli sífellt fá stærri og viðameiri hlutverk til að takast á við á fjölum leikfélagsins, því leikur hennar nú ber þess merki að hún hafi slípast vel til við hverja áskorun
sem hún hefur tekist á hendur. Það er eitthvað við röddina hennar sem fær undirritaða og leikhúsfélaga hennar Kolbrúnu Hörpu Kolbeinsdóttur til að fá gæsahúð í hvert skipti sem hún hefur upp raust sína og frumsýningarkvöldið var engin undantekning þar á. Svo er hún líka bara drullufyndin á stundum í hlutverki dívunnar sem finnst hún aldrei fá nógu mikinn tíma á sviðinu.
Albert Snær Tórshamar leikur lágstéttarmanninn Denna sem gengur til liðs við Artúr konung og umbreytist í hinn aðlaðandi riddara Galahad. Mér finnst ég oftar en ekki vera að endurtaka sjálfa mig þegar ég fjalla um frammistöðu Alberts Snæs á sviði LV. En sannleikurinn er engu að síður sá að Albert fer á kostum í hlutverki Galahad. Eins og einn af sessunautum mínum hafði á orði í leikhlé ,,Albert fer einhvern veginn alltaf vel með allt sem hann gerir á sviði“. Og það er satt. Honum virðist einfaldlega líða lang best á sviði fyrir framan fullan sal af fólki og ber stórgóður leikur hans þess merki. Albert er bráðfyndinn, með tímasetningar á hreinu, hefur góða söngrödd og svo er samleikur hans og Ingunnar Silju svo og samsöngur þeirra í ,,Einmitt svona lag“ alveg hreint stórkostlegur og dásamlega fyndinn. Enda ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna eftir þá frammistöðu þeirra.
Sigurhans Guðmundsson er eins og hann hafi verið fæddur til að leika Artúr konung. Útlitslega séð hefði hann vel getað verið uppi á miðöldum og svo hefur hann einkar flotta, djúpa og valdsmikla rödd sem hann kann sérstaklega vel að beita á sviðinu hvort heldur það er á mæltu máli eða sungnu. Minnti um margt í sínum bestu senum á okkar afar dáða leikara Ólaf Darra. Og þó þetta hafi verið í fyrsta skipti sem ég persónulega sé Sigurhans í stykki á vegum LV þykist ég þó vita að þetta sé hreint ekki í fyrsta skipti sem hann stígur þar á svið. Ber stórgóður leikur hans, tímasetning og tækni þess öll merki að þar er enginn viðvaningur á ferð.
Ætla ég rétt að vona að við fáum að sjá enn meira af Sigurhans á sviði LV í framtíðinni því þar á hann sannarlega heima. Búningar og leikmynd vöktu sérstaka athygli okkar Kolbrúnar Hörpu í þessu verki enda áberandi hversu vandað er til verks hvað þetta tvennt varðar. Skilst mér að þar hafi samvinna LV og FabLab skipt sköpum. Ber að þakka það sérstaklega um leið og ég vona að þetta sé aðeins byrjunin á enn frekara samstarfi þar í millum. Eins verð ég að fá að nefna ljósahönnunina sem var sérstaklega flott og hljóðstjórn sem var nánast óaðfinnanleg. Spamalot er bráðfyndinn söngleikur með, að því er virðist, oft ótrúlega tilviljunarkenndum og á stundum vandræðilega fyndnum bröndurum og geggjuðum karakterum. Stemningin á frumsýningunni var frábær og leikhúsgestir vel með á nótunum. Enn og aftur fáum við Eyjamenn að upplifa hversu rík við erum að eiga þetta frábæra áhugamannaleikhús sem Leikfélag Vestmannaeyja er. Leikfélag sem virðist ekki hafa minnsta vott af minnimáttakennd, veigrar sér ekki við að ráðast í risastór verkefni eins og Spamalot og gera það líka svona fantavel.
BRAVÓ…Stefán Benedikt og þið öll hjá Leikfélagi Vestmannaeyja!
Takk fyrir mig og okkur, Helena Páls
ÞJÓNUSTUHERFERÐ Í EYJUM
Toyota Kauptúni kemur til Eyja dagana 15. — 19. apríl. Smur, þjónustuskoðanir og minni viðgerðir.
Við verðum til húsa að Flötum 21.
Bókið tíma á info@toyota.is eða í síma 570 5070 Toyota Kauptúni info@toyota.is 570-5070
UPPSKRIFT VIKUNNAR
Mexíkóskar hveitikökur (tortillur) með þorsk, avocado og chili mayo
Uppskrift frá eiginmanni Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðenda, Birni Skúlasyni heilsukokk.
Við erum svo heppin að hafa aðgang að svona fersku og hreinu hráefni sem íslenski þorskurinn er. Þessi uppskrift er úr safni eiginmanns míns, en hann kemur úr Grindavík og er sérstaklega hrifinn af því að elda þorsk. Rétturinn er ljúffengur og fljótlegur að gera hann.
Hráefni:
500 gr ferskir þorskhnakkar (bein og roðlaus)
2 tsk hveiti
1 egg, hrært saman við tvær teskeiðar af mjólk
1 bolli brauðraspur
4 msk ólivu olía
¼ haus af káli, fínsaxað
4 mjúkar hvetikökur (tortillur)
Meðlæti, sneitt avocado, kirsuberja tómatar, skornir í tvennt, saxaður rauðlaukur
Hvítlaukssósa
2 msk sýrður rjómi
1 msk majones
1 hvítlauksgeiri, fínt saxaður
1 tsk agave sýróp
Aðferð:
Hreinsa, þurrka og skera þorskinn í smærri bita Setja hveiti, eggjablöndu og brauðrasp í þrjár mismunandi skálar. Setjið þorskinn fyrst í hveitið, svo í eggjablönduna og síðast í brauðraspinn.
Setjið olíuna í pönnu og hitið upp. Þegar olían er orðin vel heit skal setja þorskinn á pönnuna og steikja í um tvær mínútur á hverri hlið eða þangað til fiskurinn er orðinn gullinnbrúnn. Slökkvið á hitanum og setjið fiskinn á disk með bréfþurrku til að taka við olíunni. Blandið saman í skál sýrðum rjóma, majones, hvítlauk og agave sýrópi og hrærið vel saman og bætið svo kálinu saman við.
Hitið tortillurnar beint á gashellunni eða á pönnunni í nokkrar sekúndur. Setjið svo allt saman, byrjið á tortillunni, setjið næst kálblönduna og svo þorskinn ofan á.
Bætið svo við meðlætinu ykkar. Ég notaði avocado, kirsuberjatómata, og rauðlauk.
Setjið svo yfir þetta allt chili mayo (blanda saman mayo og sriracha sósu).
JÓRUNN GUÐNÝ HELGADÓTTIR frá Vesturhúsum
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 3. apríl. Útför hennar verður gerð frá Landakirkju föstudaginn 19. apríl kl. 14.00.
Streymt verður frá útförinni á www.landakirkja.is.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Gunnars Karls, kt. 480922-0500, bnr. 0582-14-250994.
Helgi Benóný Gunnarsson
Haraldur Þ. Gunnarsson
Matthildur Gunnarsdóttir
Nanna Björk Gunnarsdóttir
Jarþrúður K. Guðmundsd. Kristín Gunnarsdóttir Jón Gunnar Hilmarsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Upphitaðri geymslu eða bílskúr til leigu fyrir innbú sem fyrst.
Einnig óska ég eftir íbúð til leigu frá og með júní 2024.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem
Haraldur Þ. Gunnarsson
Matthildur Gunnarsdóttir
Nanna Björk Gunnarsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Jón Gunnar Hilmarsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar.
Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.
Andlátstilkynning Minningargrein Sálmaskrá 900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 leturstofan leturstofan
Hafa samband við Leu í síma 891 8285.
GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?
SUDOKU
ÁSKORUN FLUTNINGAR HLÁTUR GRÍN ORÐRÓMUR REYNSLA HARÐJAXL DRAUGUR AÐSTOÐ SPARA VINUR VEFSÍÐA
Vestmannabraut 38
Myndataka í stúdíó
Tökum myndir fyrir öll persónuskilríki
Vantar þig mynd í:
- Ökuskírteini
- Visa-áritanir
- Ferilskrár
- Vinnustaðaskírteini
Myndatakan & 4-6 útprentaðar myndir.
leturstofan@leturstofan.is s. 481 1161 NÝTT
ÁSKRIFTARKERFI LÖÐURS
ÓTAKMARKAÐUR BÍLAÞVOTTUR
OG RENNDU VIÐ ÞEGAR ÞÉR HENTAR
HÆGT ER AÐ VELJA UM TVENNS KONAR ÁSKRIFTARLEIÐIR Á VÖLDUM ÞVOTTASTÖÐVUM
SNERTILAUS � 6.900 KR.-
SNERTILAUS OG SVAMPBURSTA � 9.900 KR.-
SKANNAÐU QR KÓÐANN EÐA
KÍKTU Á LÖÐUR.IS TIL AÐ KYNNA ÞÉR ÁSKRIFTARLEIÐIRNAR
Kæru Vestmannaeyingar!
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, munu heimsækja eyjuna ykkar fögru föstudaginn 12. apríl og vonast til að eiga samtöl við sem flest.
OPIÐ HÚS KL. 19:00
TANGINN (SETUSTOFA)
Opinn viðburður og gott tækifæri til að kynnast Höllu og því sem hún stendur fyrir.
Sjáumst á föstudaginn!