14. tbl. 02. árg. 21. - 27.apríl 2020
THE PUFFIN RUN - Laugardaginn 9. maí -
Laugardaginn 9.maí 2020 fer The Puffin Run fram í þriðja sinn. Framkvæmd hlaupsins er hjá félögum í Eyjaskokk. Það eru margir sem leggjum hönd á plóg og mörg verkefni sem þarf að vinna s.s. að laga og merkja brautina. Fengnir eru löggiltir tímaverði sem koma með búnað og skrá tíma eftir hverja 5 km. Hlaupinu hefur verið hrósað fyrir eru góða brautarvörslu, en 50 brautarverðir sjá til þess að allir fari rétta leið. Hlaupið nýtur þeirrar sérstöðu að hér er stórbrotin náttúra. Farið um stærstu lundabyggð í
TÍGULL
heimi og tímasetning þess miðast við að lundinn sé sestur upp. Leiðin liggur við rætur eins yngsta eldfells í heimi og farið yfir nýja hraunið. Þá er útsýnið á leiðinni fallegt. Það hefur verið gaman að sjá hvað Vestmannaeyingar hafi verið duglegir að hlaupa og ganga í þessa erfiðu daga. Það verða því margir í góðu formi þegar að hlaupinu kemur. Leiðin er 20 km og ekki fyrir alla að fara heilan hring. Þess vegna er gott að deila leiðinni með vini og taka 2 x 10 km. Allir geta farið 5 km. og þá er að
finna þrjá í liðið. Skráning er á hlaup.is Veitt er verðlaun í þremur flokkum: Einstaklingskeppni 20 km - kk. & kvk. Tvímenningskeppni 2 x 10km. bl, kk. & kvk. Boðhlaupskeppni 4 x 5 km. - bl, kk. & kvk Við höfum verið heppin með hvað margir vilja hjálpa til og ef einhver vill aðstoða, þá er hann velkominn. Sigmar Þröstur skráir niður brautarverði í síma 895 3339 Það var gaman hvað margir komu og fylgdust með í fyrra. Vonandi verður það líka í ár, bara að muna eftir #tveggjametrareglunni!
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Donna Ýr Kristinsdóttir
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Í A R A F Ð ERTU A ? R I D M Æ V K FRAM
/midstodin
HEIMSENDINGARÞJÓNUSTA PANTAÐU Á FACEBOOK EÐA Í SÍMA 481 1475
Vilt þú nýta tímann þinn og ganga frá þeim verkefnum sem liggja fyrir heimavið? Pantaðu það sem vantar hjá okkur og við skutlum því til þín eða þú sækir til okkar.
Opið: 10:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga
Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
– Í MEISTARA HÖNDUM
Viðspyrna við veiruógn
Tillögur bæjarstjórnar Vestmannaeyja SKJÓL
STÖÐUGLEIKI
Gjalddögum fasteignagjalda á íbúa- og atvinnuhúsnæði frestað
Gildistími sundkorta framlengdur
Gjöld fyrir leikskóla, grunnskóla og frístund lækkuð í samræmi við notkun
Unnið að auknum sveigjanleika í innheimtu og gjaldfrestum Efling velferðaþjónustu
Önnur gjöld lækkuð/felld niður tímabundið til samræmis við notkun s.s. mánaðargjald vegna Janusarverkefnisins
Stuðningur við heilsueflingu og tómstundir
Virkt samtal milli Vestmannaeyjabæjar, íbúa og fyrirtækja
Flýta þegar ákveðnum viðhaldsverkefnum
KOMIÐ TIL FRAMKVÆMDA
Flýta þegar ákveðnum framkvæmdum Vestmannaeyjabær haldi áfram að leggja sig fram um að versla þjónustu og ráðgjöf í heimabyggð
Í FRAMKVÆMD
Sími: 481 3333
AÐGERÐIR Í VINNSLU Lagning ljósleiðara Stefnt er að því að taka skýrslu sem er á lokametrunum um ljósleiðaravæðingu í Vestmannaeyjum til umræðu á bæjarstjórnarfundi þann 30. apríl nk. Mikilvægt er að ríkið komi að þessu verkefni með einhvers konar styrkjum og efla þannig til muna eðlilega innviðauppbyggingu í sveitarfélögum.
SÓKN Nýjar framkvæmdir á vegum bæjarins Framkvæmdir í samstarfi ríkis og Vestmannaeyjabæjar Fjölgun atvinnutækifæra Tillögur um nýsköpunar- og frumkvöðlastarfsemi til eflingar nýrra atvinnugreina og fjölbreyttari tækifæra Sameiginlegt markaðsátak í ferðaþjónustu
NÆSTU SKREF
Nýsköpunar- og frumkvöðlasrtarf Ráðist verði í nýsköpunar- og frumkvöðlastarf með bættri aðstöðu á 3. hæð Fiskiðjuhússins fyrir fólk, sterkari innviðum og margvíslegri aðstoð, t.d. um vöru- og þjónustuþróun, fjármögnun verkefna og markaðsátak. Von er á skýrslu frá starfshópi á næstu dögum. Fráveituframkvæmdir Bæjarstjórn er reiðubúin að flýta umfangsmiklum fráveituverkefnum ef ríkið ákveður að koma til móts við sveitarfélög með endurgreiðslum virðisaukaskatts vegna slíkra framkvæmda. Frekari uppbygging innviða Einnig er vilji til þess að ráðast í frekari uppbyggingu innviða í Vestmannaeyjum, svo sem ýmissa hafnarframkvæmda. Þetta verði skoðað í næsta aðgerðapakka.
NÝR VEITINGASTAÐUR ER AÐ FÆÐAST Í VESTMANNEYJUM SEM MUN BERA NAFNIÐ ÉTA
Til að átta sig betur á hvernig staður þetta verður er gott að blanda saman þessum þremur stöðum: Skál, Hamborgarabúllu Tómasar og KFC. Hamborgarar og djúpsteiktur kjúklingur er það sem verður í boði meðal annars. ÉTA er systurstaður Slippsins og þarf af leiðandi sömu eigendur, hjónin Katrín og Auðunn ásamt syni þeirra Gísla Matthíasi. Hugmyndin kom út frá því að þeim hefur alltaf langað að hafa veitingastað opin allt árið hérna í Vestmannaeyjum en Slippurinn er einfaldlega of stór og mikill í rekstri til að hægt hafi verið að hafa hann opin allt árið í kring, þannig þá kviknaði þessi hugmynd. ÉTA mun taka 16 manns í sæti og mun til að byrja með vera opinn alla daga frá kl. 11:30 til 20:30.
Hægt verður að panta og greiða fyrir mat í gegnum heimasíðu ÉTA og stefna þau á að opna heimasíðuna nokkrum dögum áður enn staðurinn opnar sem verður í byrjun maí en ekki er komin endanlega dagsetningin á opnun. Það fer allt eftir leyfum og stöðunni á covid faraldrinum. Verður einhver sérstakur hamborgari sem mun einkenna staðinn? Nei ég myndi ekki segja það en þetta verður ekki flókin formúla, Á ÉTA verður hágæða skyndibiti unninn úr góðu hráefni og undirbúinn frá grunni á staðnum. Markmiðið er að hafa ekki of marga rétti á matseðlinum en þó þannig að allir eiga geta fundið eitthvað fyrir sig.
Okkar sérkenni verða hamborgarar sem eru hakkaðir á staðnum úr sérvöldum vöðvum og djúpsteiktur kryddaður kjúklingur; vængir, leggir & samlokur. Það verða fleiri réttir á seðli, svo sem; Nauta mínútusteik, fiskur í orly og fleira sem á eftir að koma í ljós. Hugmyndin er að vera með hamborgara vikunnar sem verður þá kynntur hverju sinni. Við munum bjóða upp á léttvín sem er náttúruvín sem er vín án allra aukaefna. Svo gaman að segja frá að allir drykkir eru í dósum nema léttvínið auðvitað meira að segja kokteilarnir. Hægt verður að sitja inni og einnig taka með í take-away, en take away kerfið verður á netinu á vefsíðu okkar og verður mjög einfalt í notkun.
Hver er myndirður segja að væri mesti hamborgara aðdáandinn í fjölskyldunni? Örugglega mamma en pabbi elskar djúpsteiktan kjúkling hann er talsmaður þess að hann er með hér. Átt þú þinn uppáhalds borgari? Nei í raun ekki, eina krafan sem ég set er að nota gott hráefni í borgarann það skiptir mig mestu máli. Hvernig myndir þú lýsa stílnum á staðnum, hver er hönnuðurinn á bakvið hann? Hönnunin er öll einföld, við höfum hannað allt sjálf og eru til að mynda að búa til borðin sjálf og nota gamla eldhússtóla fengum við þau hjónin Helgu og Arnór til að yfirdekkja fyrir okkur. Við höfum séð um að gera upp húsnæðið og allar framkvæmdi við þetta algjörlega sjálf því er mikil ást og umhyggja í staðnum.
Þau ákváðu að færa hurðina á rýminu eftir að fannst gömul hurð falin undir hlöðnum vegg sem breytti svolítið ásýnd rýmisins.
SUDOKU
VESTMANNAEYJAR
9. maí 2020
– Heimaeyjarhringurinn 9. maí 2020 Kl.12:30
• Einstaklingskeppni kk og kvk • Tvímenningskeppni kk, kvk og bl. • Boðhlaup fjögurra manna lið kk, kvk og bl. Rásmark er við Skansinn. Verð: 4.000 kr. per mann Verðlaun fyrir fyrstu þrjá kk og kvk í einstaklings. Verðlaun fyrir fyrsta sæti í tvímennings og fjögurra manna sveit kk, kvk og blandað /t hepuffinrun
|
Skráning á hlaup.is
HUMARLOKA EINSA KALDA - Uppskrift vikunnar -
Einn vinsælasti réttur á matseðli Einsa Kalda á síðasta ári var humarlokan. Við heyrðum í Einari á dögunum sem var á fullu að undirbúa sumarmatseðil fyrir veitingastaðinn en hann ætlar að opna fimmtudaginn 7. maí. Einar Björn var tilbúin að gefa okkur uppskrift af humarloku sem tilvalið er að gera heima við. Uppskrift fyrir 2 samlokur Útbúið paprikusalsa, lime majónes, skerið grænmetið og smjörsteikið humarinn áður en að samsetningu kemur. • 6 þunnar súrdeigsbrauðsneiðar (3 í hverja loku) • Cheddarostasósa (sjá uppskrift) • 4-6 parmaskinkusneiðar (eftir stærð) • Paprikusalsa (sjá uppskrift) • 16 smjörsteiktir humarhalar (skelflettur humar) • Lime majónes (sjá uppskrift) • Klettasalat
• ½ ferskt chili, skorið í þunnar sneiðar • Granatepli • Vorlaukur/graslaukur í sneiðum
1. Snúrdeigsbrauðsneiðarnar eru
grillaðar í stutta stund áður en lokan er sett saman.
2. Neðsta sneiðin smurð með
cheddar-ostasósu, parmaskinka sett þar ofan á og þar á eftir paprikusalsa
3. Hér kemur næsta brauðsneið og
ofan á hana fer smjörsteiktur humar sem búið er að hræra saman við lime majónesið ásamt klettasalati.
4. Að lokum kemur 3ja brauðsneiðin og hún er smurð með lime majónesinu og toppuð með frisee salati, chilisneiðum, granateplafræjum og vorlauk/ graslauk.
Cheddarostasósa - t.d. ostasósa sem er ætlað fyrir nachos Paprikusalsa • 1 x rauð paprika • 1 x rauðlaukur • 2 x tómatur (kjarnhreinsaðir) • 4 x sólþurrkaðir tómatar • 6 x döðlur • 1 msk. söxuð steinselja • Salt og pipar eftir smekk • Ólífuolía til steikingar
1. Skerið allt hráefnið í þunna strimla og steikið upp úr ólífuolíunni stutta stund.
2. Lækkið þá hitann og leyfið að
malla í um 20 mínútur og hrærið reglulega í á meðan.
Lime majónes • 4 msk. majónes • ½ lime (safi og börkur)
1. Hrærið vel saman og geymið í kæli.
LITAÐ EFTIR NÚMERUM
SIGRÚN ARNA LÆTUR DRAUM SINN RÆTAST
Tígull hafði samband við Sigrún Örnu en hún er að opna verslun og mun einnig bjóða upp á innanhúsráðgjöf. Hún ákvað að láta langþráðann draum sinn rætast, að stofna sitt eigið fyrirtæki. Verslunarrýmið á Strandveginum hefur alltaf heillað hana og eftir að hafa séð þetta standa autt í langan tíma lét hún vaða og tók það á leigu. “ Þetta var svona fluga sem ég fékk fyrir hádegi og var komin með lykla daginn eftir, segir Sigrún” Sigrún Arna er að taka verslunarrýmið í gegn en segist nú sjá fyrir endann á þessu og stefnir hún á að opna í byrjun maí. Hægt er að fylgjast með framkvæmdunum á Instagram reiknig Sigurúnar. @heimadecor Sigrún hefur alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og skellti sér í nám til Svíðþjóðar 2018 og er að útskrifast núna í sumar sem innanhúshönnuður.
Í búðinni ætlar hún að bjóða upp á fallegar gjafavörur og verður hún í samstarfi með frábærum fyrirtækjum, má þar nefna Sérefni og Granítsteina. Hægt er að koma í kaffibolla og skoðað fallegu litina og tala nú ekki um veggfóðrin sem Sérefni hefur upp á að bjóða, það verður td eitt geggjað veggfóður á einum vegg í búðinni, segir Sigrún Arna. Sigrún verður með vörur til sölu frá Granítsteinum og segir þau vinni saman með skemmtilegt consept Hún mun þjónusta frá þeim t.d. borðplötur og fleira og með fullt af sýnishornum. Sigrún er einnig í samstarfi með með Lúmex. Svo ef þú ert í ljósapælingum þá bara endilega að kíkja og við leysum það. Lýsing gott fólk skiptir miklu máli, segir Sigrún Arna.
En ég ætla nú ekki að segja frá öllu saman! Hlakka til að taka á móti ykkur. Get ekki alveg lofa hvaða dag ég opna en þetta styttist!
Hér má sjá eldhús í nýbyggingu á Suðurlandi sem Sigrún Arna hannaði. Hér fyrir neðan má svo sjá verslunarrýmið. Liturinn á rýminu vann Sigrún með Sérefni og heitur hann Heimagrár.
SUDOKU
ORÐARUGL
ARMBEYGJA LYFTA
HLAUPA SKOKKA
HNÉBEYGJA HUGLEIDA LABBA SUND UPPHÍFING YOGA
Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV
F
L
Starfslaun bæjarlistamanns 2020
S
Frá VEY
Brottf.
Lent
7:15
7:40
15:45 16:10 17:30 17:55 8:00
8:25
16:30 16:55
18:15 18:40
Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2020. - Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. - Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2020. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. júní. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000
Tannlæknar
Lokað vegna covid-19
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hringja í síma 481-2772
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
Hönnun / umbrot á auglýsingaefni / greinaskrif Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala o.fl. leturstofan@leturstofan.is
Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
Lokað - á meðan samkomubann stendur yfir. Við eigum mikið úrval af Oszio og Keratín vörunum, sjampó, hárnærningar & djúpnæringar. Bjóðum upp á heimkeyrslu. Hægt er að panta í síma 772-3332 eða senda skilaboð á facebook okkar.
Við söknum ykkar fólk Girnilegur matur, hressandi drykkir og notalegt umhverfi er ekkert án ykkar.
Við erum búin að opna salinn hjá okkur!
Velkomin að koma til okkar og njóta. Við fylgjum áfram ýtrustu kröfum um sótthreinsun á snertiflötum. Höfum tvo afgreiðslukassa svo ekki myndist röð og pössum upp á 2 metra regluna.
OPIÐ ALLA DAGA KL. 11:30 - 14:00 & 17:30 - 21:00 #gottveitingastadur
pantaðu í síma
/gottrestautant
481 3060
/ Bárustígur 11 / gott@gott.is / 481 3060