Skip to main content

Tígull 13.tbl

Page 1

13. tbl. 01. árg. 22. - 28. maí 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Bjartur föstudagur 24. maí verða verslanir með miðnæturopnun. Söluskúrar og tjöld verða í Bárustígnum.

Hreinsunardagur Stakkó kl. 17:30 Fimmtudaginn 23. maí verður almennur hreinsunardagur á Heimaey.

Vortónleikar karlakórsins

Karlakór Vestmannaeyja heldur vortónleika í Landakirkju 23. maí kl. 20:00

Útsölumarkaður Að kirkjuvegi 12a ( Prýði )

Opnum fimmtudaginn 23. maí kl 13:00 Opnunartími: Mánudaga - Föstudaga 13:00 - 17:00


Skrifstofuaðstaða til leigu Húsnæðið okkar er staðsett á Strandvegi 47 í Vestmannaeyjum. Við erum með skrifstofuaðstöðu til leigu í opnu rými. Innifalið er skrifborð / stóll / hirslueining / internet / prentun / aðgangur að eldhúsi / lítið fundarherbergi. Ef þú hefur áhuga þá endilega vertu í bandi við okkur á netfangið leturstofan@leturstofan.is

TÍGULL Vikublað // Netmiðill

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Upplagið er 1600 eintök. Hægt er að skoða blaðið á www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

AUGLÝSINGASAMNINGUR:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Það borgar sig að skipuleggja vel, bókaðu auglýsingar fram í tímann og fáðu bestu kjörin með því að gera auglýsingasamning.

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Auglýsingasími 481 1161 / tigull@tigull.is | www.tigull.is


01

JÚNÍ

2019

SJÓMANNA DAGSBALLIÐ STUÐLABANDIÐ LEIKUR FYRIR DANSI

MATSEÐILL

FORRÉTTIR VIÐ INNKOMU: (Street food style)

SKEMMTUN & BALL MEÐ JÓNSA & STEBBA HILMARS VEISLUSTJÓRI: GÍSLI EINARSSON GLÆSILEGUR VEISLUMATUR FRÁ EINSA KALDA HÖLLIN / HÚSIÐ OPNAR KLUKKAN 19:30 Matur / Skemmtun / ball: 11.900 kr. Ball: 3.000 kr.

Ítölsk-súrdeigsloka Kínverskar pönnukökur Grillaður túnfiskur Tígrisrækjur-teriyaki Anda-taco

AÐALRÉTTUR: Langtímaelduð nautalund Brakandi purusteik Kalkúnabringur Eplasalat, hasselback kartöflur, svepparagú, sætar kartöflur, new style sesar salat, rustic grænmeti, Villisveppasósa og bernaisesósa

EFTIRRÉTTAHLAÐBORÐ: Súkkulaðikaka, hnetusmjörkrem, jarðhnetupralin bananakaka, bláber, vanillusmjörkrem, bláberjamarengs Súkkulaðimús, möndlumulningur, kaffikrem, vanillukaka, jarðaber, mynta, og þeyttur rjómi


Spjallið Nafn: Silvía Björk Birkisdóttir Fjölskylda: Í sambúð með Birni Kristjánssyni. Áhugamál: Heimilið, bakstur og eldamennska, góð tónlist, handavinna, ferðalög, að vera í góðra vina hópi svo finnst mér golfið alveg ótrúlega heillandi. Þú ert með þitt fyrirtæki á Hraunbúðum, getur þú sagt okkur aðeins frá því? Já, ég hef rekið Silver – hárstofu á Hraunbúðum í rúmlega 3 ár. Þar er ég að þjónusta breiðan hóp fólks, bæði heimilismenn á Hraunbúðum og almenning. Ég hef einnig gott úrval af hárvörum á stofunni frá merkjum eins og Eleven, Wella og Milk Shake. Má hver sem er hringja til þín og panta tíma? Já hver sem er getur hringt og pantað tíma á Silver, bæði ungir sem aldnir. Allir eru velkomnir. Hvaða er síðasta bókin sem þú last? Ég verð að viðurkenna að ég er alls enginn bókaormur. Í hvaða stjörnumerki ertu? Sporðdreki. Finnst þér stjörnumerkið þitt passi við þig og hvernig þá? Já ég myndi segja það að mörgu leiti, á það reyndar til að vera svolítil meyja í mér. Hver er þín besta afslöppun? Að sitja með prjónana finnst mér virkilega góð afslöppun. Uppáhalds… - tónlist: Ég myndi segja íslensk tónlist, hún klikkar ekki. - matur: Það besta sem ég fæ er góð purusteik. -hárvörur: Í uppáhaldi þessa stundina eru hárvörurnar frá Eleven. -ferðalag sem þú hefur farið í: Ég fór til Salou á spáni með 12 af mínum bestu vinkonum fyrir ári síðan, sú ferð var frábær í alla staði. Þinn litur er… Svartur Lífsmottóið þitt er: Að lifa lífinu lifandi, þú kemst hvort sem er ekki lifandi frá því.

Gull eða Silfur: Silfur Súkkulaði eða karamella: Súkkulaði Te eða kaffi: Kaffi Rautt eða hvítt: Hvítt Lumar þú á uppskrift handa lesendum Tíguls? Ég ætla að bjóða ykkur upp á uppskrift af gersnúðum sem frábært er að skella í frystinn og kippa út þegar gesti ber að garði: Innihald: 1,7 kg hveiti 750 ml mjólk 8 tsk þurrger

1 tsk salt 2 dl sykur 300 g smjörlíki

Aðferð: Gerið, saltið og sykurinn er látið leysast upp í volgri mjólkinni. Smjörlíkinu bætt saman við og hveitið fer síðast út í blönduna. Deigið látið hefast í 30mín. Fylling: Bræddu smjöri smurt yfir deigið og kanilsykri stráð yfir. Suðusúkkulaði eða glassúr passar mjög vel ofan á snúðana. Þessir klikka ekki, verði ykkur að góðu.


Halló Apple Pay

Það tekur aðeins örfáar mínútur að koma í viðskipti í gegnum Landsbankaappið.


Vissir þú að...

Að skv. lögum má barn sem er lægra en 150cm ekki sitja í framsæti þar sem er virkur öryggispúði nema púðinn sé gerður óvirkur og barnið í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði? Að skv. lögum er bílbelti eitt og sér ekki nóg fyrir börn sem eru lægri en 135cm og þarf því að vera í öryggis- og verndarbúnaði sem hentar þeim? Að höfuð barns má aldrei ná upp fyrir brún stólsins? Að allir bílstólar miðast við þyngd en ekki aldur og hæð? Að bílbelti má ekki vera snúið, heldur slétt og þarf að falla vel að líkama barnsins? Að það má aldrei setja belti aftur fyrir bak eða undir handlegg? Að öryggisbúnaður þarf ekki bara að henta barninu heldur líka bílnum?

a n r a b i g g y Ör lnum í bí

Að stóll þarf að vera rétt festur og fylgja þarf bæði leiðbeiningum frá framleiðanda stólsins og handbók bílsins? Að endingartími flestra barnabílstóla (fyrir utan ungbarnabílstóla) er 10 ár? Að endingartími ungbarnabílstóla er yfirleitt ekki lengri en 5 ár? Að þú getur yfirleitt séð framleiðsluár stólsins á botni stólsins eða á heimasíðu framleiðandans, þannig að þú sérð hvenær hann er orðinn ónothæfur? Að það er mikilvægt að kanna framleiðsluár og hvort að stóll hafi orðið fyrir skemmdum eða hnjaski ef þú færð stólinn lánaðan eða kaupir hann notaðan? Að sektin við að nota ekki sérstakan öryggisbúnað fyrir barn í bíl er 20.000.- kr? Að sektin við að gæta þess ekki að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað er 30.000.- kr?


Viðarvörn

fyrir íslenskar aðstæður

ÍSLENSKA / SIA.IS / MAL 91548 04/19

Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -

STEINVARI

Útimálning fyrir íslenskt veðurfar Steinvari er öflug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


Barnabílstólar Athugið að bílstólar miðast við þyngdir en ekki aldur þó svo að það sé yfirleitt aldursviðmið. Flestir stólar eru með ISOFIX festingum og eru þá stólarnir festir í/undir bílsætin, í sökkulinn en þess háttar festingar eru ekki í boði í öllum bílum en ætti að vera í öllum bílum sem eru yngri en 2011 árgerð. Aðrir bílstólar eru festir með bílbeltinu sjálfu. Ungbarnabílstóll er fyrir 0-13kg sem eru yfirleitt börn á aldrinum 0-2 ára. Það eru þó til stólar sem duga upp í 18kg. Mælt er með því að hafa börn í bakvísandi stól til 3ja ára eða eins lengi og mögulegt er. Barnabílstóll með fimmpunktabelti er fyrir 9-18kg eða börn sem eru ca 1-4 ára, sumir stólar eru þó fyrir börn upp í 25kg. Bílpúði með baki er hugsaður fyrir börn sem eru 15-36kg. Sumir stólar eru frá 25-36kg. Þetta eru yfirleitt börn á aldrinum 4-10 ára. Yfirleitt er höfuðpúði stillanlegur og þarf að passa að hann sé rétt stilltur svo að vel fari um höfuðið og svo að hak til þess að þræða bílbeltið í falli rétt að líkama barnsins og renni ekki undan barninu við árekstur. Bílpúði án baks. Einungis er mælt með að barn sem hefur náð 135cm á hæð noti slíkan öryggisbúnað. Barnið er þá fest með bílbelti sem er fest undir hök á bílpúðanum.


InnrItun er hafIn innritun í nám við framhaldsskólann í vestmannaeyjum á haustönn 2019 er hafin og stendur til 7. júní

nánari upplýsingar upplýsingar og og skráning skráning á á heimsíðu heimsíðu skólans skólans nánari

w w w. f I v. I s

cnc

nýtt rennIbekkur og fræsIvél

sjúkra

liða nfjaárnm ámi í

Getum bætt við nemum í:

málmiðngreinar & vélstjórn


Viðburðir 22 MAÍ 23 MAÍ 23 MAÍ 24 MAÍ 27 MAÍ

Sjá wnwánwa.trigull.is

LANDAKIRKJA KL. 17:00 BÆNAGANGA AGLOW STAKKÓ KL. 17:30 - 19:30 HREINSUNARDAGUR GRILLAÐAR PYLSUR OG FJÖR LANDAKIRKJA KL. 20:00 VORTÓNLEIKAR KARLAKÓRS VESTMANNAEYJA Í MIÐBÆNUM KL. 10:00 - 00:00 BJARTUR FÖSTUDAGUR MIÐNÆTUROPNUN VERSLANA, TILBOÐ OFL.

Ástkær faðir okkar,

MAGNÚS ÞÓR JÓNASSON

Frá Grundarbrekku í Vestmannaeyjum

verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunni í Vestmannaeyjum laugardaginn 25. maí kl. 11:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Kristniboðssjóð Hvítasunnukirkjunnar í Vestmannaeyjum.

HÁSTEINSVÖLLUR KL. 18:00

Þórarinn Magnússon Elín Ósk Magnúsdóttir Sævar Þór Magnússon

ÍBV - STJARNAN PEPSÍ MAX DEILD KVK

Rauðagerði

www.eyjabio.is

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

22 MAÍ

RAUÐAGERÐI kl. 19:30 - 22:00

24 MAÍ

RAUÐAGERÐI kl. 16:30 - 18:30

27 MAÍ

RAUÐAGERÐI kl. 16:30 - 18:30

28 MAÍ

RAUÐAGERÐI kl. 19:30 - 22:00

MIÐ

FÖS

MÁN

ÞRI

23

a

MAÍ

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

MAÍ

25

a

MAÍ

26

a

MAÍ

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

24

a

kl.21:00

25

a

MAÍ

kl.18:00

25

a

MAÍ

kl.15:00

26

a

MAÍ

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

#felo_eyjar / Rauðagerði félagsmiðstöð

kl.18:00

kl.21:00

kl.21:00


Eyjan okkar Margt smátt gerir eitt stórt eins og gjarnan er sagt. Víst er fagur Vestmannaeyjabær er laglína sem við könnumst öll við úr lagi Stuðmanna og væri réttast að birta allan textann þar sem hann á svo einstaklega vel við það sem mig langar til að skrifa um í þessum stutta pistli. Ég heiti Hildur Jóhannsdóttir og er baráttukona fyrir bættu umhverfi hér í eyjum. Ég setti inn færslu á síðu Heimakletts fyrir nokkrum dögum þar sem ég fór stórum orðum um sóðaskap í kringum svæði Kubbs og sorpgryfjuna í Eldfellinu okkar. Vægt til orða tekið vakti hún athygli og fór ég að hugsa hvort að ég væri bara svona einstaklega leiðinleg manneskja að láta þetta pirra mig eða hvort að öðrum liði á einhvern hátt svipað og mér. Ég veit að þegar bent er á eitthvað sem betur má fara hjá öðrum er maður að setja sig á stóran hest og láta sig líta út fyrir að vera betri en náunginn, en það er bara alls ekki það sem ég vil láta í ljós. Ég er á engan hátt frábær og veit það manna best, en umhverfið er mér bara svo hugleikið að ég læt ruslómenninguna fara óstjórnlega í taugarnar á mér bæði í eyjum og annarstaðar. Vestmannaeyjar eru heimilið mitt og þessir 17,3 km³ eru mér allt. Það hvernig við göngum um eyjuna er ekki persónulegt mál hvers og eins og berum við öll fulla ábyrgð á umhverfi eyjanna okkar. Ef þú býrð í eyjum þá berð þú ábyrgð, það varðar þig að öllu leiti að náunginn hendi rusli út um bílrúðuna, hundur skíti á gangstéttina eða að landrof sé að færast í aukana. Þú berð einnig ábyrgð á ruslinu sem fýkur úr ruslatunnunni þinni eða af kerrunni þegar þú ert á leiðinni upp í sorpu. Það skiptir okkur nefnilega máli hvað hvert og eitt okkar gerir þegar kemur að náttúrunni. Ég bað um leifi hjá atorkukonunum Lind og Kötu Laufeyju um að setja litla umhverfispistla í blaðið öðru hvoru og ber ég fulla ábyrgð á því sem ég segi í þeim pistlum og endurspeglar þetta aðeins hugsjónir mínar en ekki Tíguls.

Ég loka þessu á sama hátt og ég byrjaði pistilinn Hér ég þekki hvern hól, hverja þúfu, hvert ból, hér er náttúran fögur og rík. Hér ég átthaga á, hér ég dvelja vil fá þar til aldinn ég æviskeiði lýk. Hildur Jóhannsdóttir

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

20 ára reynsla! Sími 692-3131

LKL

Meðan birgðir endast PASTARÉTTUR TILBÚINN Konjak núðlur og dásamleg pastasósa. 990 kr./stk.

LKL PASTA sem er búið til úr lífrænum soya baunum og er því próteinríkt. 795 kr./stk.

STRANDVEGUR 47 / VESTMANNAEYJAR 481-1161 / LETURSTOFAN@LETURSTOFAN.IS


/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan

Bjartur föstudagur

24. maí

Miðnæturopnun Ýmis skemmtileg tilboð í gangi!

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


Þrautir

ORÐARUGL MEÐ FISKIHEITUM

BLÁGÓMA HLÝRI HORNSÍLI HROGNKELSI HUMAR HÁFUR MARHNÚTUR SANDKOLI SKÖTUSELUR STEINBÍTUR UFSI ÝSA


772-6766 Heiðarvegur 9

/crispus

SÖNGUR - FÖNDUR - SÖGUR LEIKIR - GLEÐI - GAMAN

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

ÖKUKENNSLA

AKSTURSMAT ÖKUSKÓLI

Sunnudagaskóli í Hvítasunnukirkjunni kl. 11:00 alla sunnudaga fyrir alla krakka

GÍSLI MAGNÚSSON

Allir velkomnir Sjáumst!

896 6810 // gislimagg47@gmail.com Leið 52

Siglingaáætlun

STRÆTÓ

Frá 30. mars - 30. nóvember 2019

Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó

Umferðarmiðstöðin Mjódd Mjódd Norðlingabraut / Helluvað Landeyjarhöfn

06:55 07:05 07:10 07:14 09:15

... ... 12:00 12:04 ...

... ... 16:30 16:34 18:55

Mjódd - Þorlákshöfn Frá Mjódd 09:00 koma til Þorlákshafnar 10:15 Mjódd - Þorlákshöfn Frá Mjódd 17:30 koma til Þorlákshafnar 18:45

www.straeto.is | 540 -2700

Vestmannaeyjar brottför:

Landeyjahöfn brottför:

07:00 - Alla daga

08:15 - Alla daga

09:30 - Alla daga

10:45 - Alla daga

12:00 - Alla daga

13:15 - Alla daga

14:30 - Alla daga

15:45 - Alla daga

17:00 - Alla daga

18:15 - Alla daga

19:30 - Alla daga

20:45 - Alla daga

22:00 - Alla daga

23:15 - Alla daga

Gildir til 30. apríl 2019 Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

Frá Reykjavík

07:15 15:45 11:30 17:30

07:40 16:10 11:55 17:55

Frá Vestm.eyjum

08:00 16:30 12:15 18:15

08:25 16:55 12:40 18:40

www.ernir.is | 481-3300

Brottför frá Vestmannaeyjum 7:00 og 15:30 Brottför frá Þorlákshöfn 10:45 og 19:15 herjolfur@herjolfur.is +354 481 2800 Básaskersbryggju - 900 Vestmannaeyjum


Sjóvá

sjova.is

Börnin stækka hratt og barnabílstóll þarf að hæfa aldri og þyngd barnsins. Viðskiptavinir í Stofni fá 20% afslátt af bílstólum. Sjá nánar á sjova.is.

Samstarfsaðilar: AB varahlutir, Ninekids og Ólavía & Oliver


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 13.tbl by Leturstofan - Issuu