Skip to main content

Tígull 13.tbl 04 árg.

Page 1

12. tbl. 04. árg. 6. apríl - 12. april 2022

Spilaði sinn 250. leik fyrir ÍBV

Snókerklúbbur Vestmannaeyja

Loksins tónleikar Hjá Kvennakórnum

Dagur Arnarsson spilaði sinn 250. leik um daginn með handboltaliði ÍBV og hefur í þeim leikjum skorað fjölda marka.

Er nýtt íþróttafélag þar sem boðið verður upp á æfingaog keppnis-aðstöðu í snóker og pílukasti.

Kristín Halldórsdóttir formaður í léttu spjalli. Tónleikarnir verða haldir í safnaðarheimili Landakirkju, miðvikudaginn 18. maí n.k.


VIÐBURÐIR FRAMUNDAN MIÐ

06 APRÍL

MIÐ

06 APRÍL

FIM

07 APRÍL

LAU

09 APRÍL

SUN

10 APRÍL

SUN

10 APRÍL

SUN

10 APRÍL

10

Pálmasunnudagur

ÍBV - AFTURELDING Olísdeild kvenna

Íþróttamiðstöðin kl. 17:30

APRÍL

ÍBV - GRÓTTA Olísdeild karla

Íþróttamiðstöðin kl. 19:30 ÍBV U - SELFOSS Grill 66 kvenna

Íþróttamiðstöðin kl. 18:00 HAUKAR - ÍBV Olísdeild kvenna

Friðrik Dór og Jón Jónsson, ÍBV tónleikar

Ásvellir kl. 16:00 HK - ÍBV Olísdeild karla

DAGSKRÁ FÉLÓ

Kórinn kl. 18:00 FRIÐRIK DÓR & JÓN JÓNSSON, ÍBV TÓNLEIKAR

MIÐ

HÖLLIN

C.R.U.D MÓT !

APRÍL

8. - 10. BEKKUR 19:30 - 22:00

BRJÓSTSYKURSGERÐ

11

FIM

OPIÐ HÚS

ÞRI

07

Íþróttamiðstöð kl. 14:00

MÁN

06 APRÍL

FH - ÍBV U Grill 66 kvenna

9. & 10. BEKKUR 19:30 - 22:00

APRÍL

FÖS

08 APRÍL

9. & 10. BEKKUR 19:30 - 22:00

RAFÍÞRÓTTAMÓT SAMFÉS & ELKO

12 APRÍL

MIÐ

13 APRÍL

5. - 7. BEKKUR 16:30 - 18:30

OPIÐ HÚS

5. & 6. BEKKUR 16:30 - 18:30

7. & 8. BEKKUR 18:30 - 20:30 OPIÐ HÚS

9. & 10. BEKKUR 19:30 - 22:00

leturstofan@leturstofan.is

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


EYJATÓNLEIKAR 21. APRÍL Í HÖRPU

YNDISLEGU EYJALÖGIN Á EINU GLÆSILEGASTA ÁRGANGS-, ÆTTAR- OG VINAMÓTI VERALDAR!

HREIMUR · STEFANÍA SVAVARS · KK · MAGNI MAGNÚS KJARTAN · SARA RENEE · RÚNAR RÚNARS · UNA ÞORVALDS STÓRHLJÓMSVEIT UNDIR STJÓRN ÞÓRIS ÚLFARSSONAR · BIRGIR NIELSEN · EIÐUR ARNARSSON · JÓN ELVAR HAFSTEINSSON KJARTAN VALDEMARSSON · SIGURÐUR FLOSASON · MATTHÍAS STEFÁNSSON · ARI BRAGI KÁRASON · KRISTJÁN GÍSLA · ALMA RUT MIÐASALA Á HARPA.IS · TIX.IS OG Í MIÐASÖLU HÖRPU Í SÍMA 528 5050


SNÓKERKLÚBBUR VESTMANNAEYJA Þriðjudaginn 29. mars var leikinn fyrsti snókerleikurinn hjá Snókerklúbbi Vestmannaeyja sem er staðsettur í kjallara Hvítasunnukirkjunnar. Þar áttust við Rúnar Gauti Gunnarsson og Júlíus Ingason. Þetta var leikur í Bikarmóti BSÍ þar sem einn af átta riðlum er leikinn í Vestmannaeyjum. Leikar enduðu þannig að Rúnar Gauti vann með þremur römmum gegn einum hjá Júlíusi. Hæsta stuð átti Rúnar Gauti, upp á 51. Snókerklúbbur Vestmannaeyja er nýtt íþróttafélag þar sem boðið verður upp á æfinga- og keppnisaðstöðu í snóker og pílukasti, þrjú úrvals snókerborð og nokkur píluspjöld af bestu gerð. Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarna mánuði, og standa enn, en stefnt er að því að opna í vor. Öllum verður velkomið að ganga í klúbbinn en nánar verður sagt frá fyrirkomulagi hans síðar. Hægt er að finna hann á Facebook undir nafninu: Snókerklúbbur Vestmannaeyja. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um starfið á næstu vikum.


ÞÚ FÆRÐ VERKFÆRIN HJÁ OKKUR!

Til að gera vinnuna við bygginguna auðveldari er nauðsynlegt að eiga góð verkfæri. Þar komum við sterkir inn með rafmagns- og batterýsverkfæri frá

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475

www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is


SPILAÐI SINN 250. LEIK FYRIR ÍBV Dagur Arnarsson spilaði sinn 250. leik um daginn með handboltaliði ÍBV og hefur í þeim leikjum skorað fjölda marka. Dagur er 25 ára Eyjapeyji, en hann útskrifaðist í fyrra sem sjávarútvegs- og viðskiptafræðingur. Hann vinnur hjá Vinnslustöðinni og sem stendur er hann í Idunni Seafoods. Við tókum Dag í létta yfirheyrslu.

Fjölskylda: Kærastan mín er Svava Tara Ólafsdóttir og eigum við Flóka Dagsson. Foreldrar mínir eru Arnar Pétursson og Minna Ágústsdóttir. Svo á ég systur sem heitir Katla. Hver er fyndnastur í liðinu? Þeir sem þekkja til okkar í liðinu þá er húmorinn aldrei langt undan og stundum eins og við séum fimm ára og allt er fyndið. En Björn Viðar er einstaklega fyndinn. Áhugamál fyrir utan handbolta? Hef rosalega gaman að því að vinna Nökkva Snæ í golfi þrátt fyrir að það gerist sjaldan. Hvað hræðistu mest? Ég hræðist köngulær alveg kjánalega mikið. Hver er þinn helsti kostur? Yfirvegun, dugnaður og þolinmæði. Hvaða forrit ertu mest notuð í símanum þínum? Samkvæmt screen time þá er það Snapchat og facebook.

Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Ég myndi segja lífsgleði. Skemmtilegasta sagan af ÍBV liðinu? Jahá, til að nefna eina þá var það þegar við vorum að fara að keppa í úrslitakeppninni 2014. Þá var reglan sú að við skiptumst á að þvo búningana milli leikja. En það er búið að vera tveggja vikna pása milli deildarinnar og úrslitakeppninnar. Við erum mættir í leik, hópur sá sami og í síðasta leik. Svo fara menn að pæla í því hvar búningarnir séu og hver hefði átt að þrífa þá. Allt í einu verður einn leikmaður hvítur í framan og læðist út úr klefanum og brunar heim. Þá föttuðu menn að hann hefði verið sá seki og pældu því ekkert meira í því. En aldrei kom leikmaðurinn aftur og farið er að hringja í hann, án árangurs. 45 mínútum í leik mætir hann loksins með búningana nema hvað þegar taskan var opnuð mætti gufuský og alveg agalega súr lykt. Þá hafði leikmaðurinn hent töskunni lokaðri inn í þvottarhús fyrir tveimur viku og aldrei sett búningana í vél. Hann gat ekki mætt með búningana í

þessu ástandi til leiks. Hann dó ekki ráðalaus en tók á það ráð að henda sveittum búningunum í þurrkarann, sprautaði rakaspreyi á þá til að reyna að fela lyktina sem ég hreinlega veit ekki hvort var betra eða verra. Fyrirmyndin? Ég held ég eigi ekki einhverja eina fyrirmynd. Er meira fyrir það að taka og tileinkna mér kosti fólks. En til þess að nefna einhvern þá var Michael Jordan alltaf uppá vegg hjá mér. Draumurinn? Fyrir utan það að vera heilbrigður, eiga fjölskyldu og með vinnu, þá væri gaman að prufa handkast í öðru landi. Uppáhalds tónlistarmaður? Júníus Meyvant Ef þú mættir velja þrjár manneskjur (lífs eða liðnar) til að bjóða í kvöldmat, hverjar yrði fyrir valinu? Væri rosalega til í að hlusta á Kára Stef spjalla við Jesú krist og Boris Bjarna. Hugsa að það gæti verið mjög áhugavert.


Starfsemi á árinu 2021 Ávöxtun sjóðsins sú besta frá upphafi

Meginniðurstöður ársreiknings. Efnahagsreikningur 31. desember: Eignir: Verðbréf með breytilegum tekjum Verðbréf með föstum tekjum Afleiðusamningar Fasteign Kröfur Handbært fé Skuldir: Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok Þar af samtryggingardeild Þar af séreignadeild

Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris: Iðgjöld Lífeyrir Fjárfestingartekjur Fjárfestingargjöld Rekstrarkostnaður Hækkun á hreinni eign á árinu Hrein eign frá fyrra ári Hrein eign til greiðslu lífeyris

Tryggingafræðileg staða: Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum (%): Í hlutfalli af heildarskuldbindingum (%):

Kennitölur: Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun Hrein raunávöxtun, meðaltal sl. 5 ára Hrein raunávöxtun, meðaltal sl. 10 ára Eignir í ísl. kr. (%) Eignir í erl. mynt (%) Meðalfjöldi greiðandi sjóðfélaga Meðalfjöldi lífeyrisþega Fjöldi sjóðfélaga í árslok

Kostnaður í hlutfalli af eignum

í milljónum króna

2021

2020

55.319 30.212 25 27 188 386 -5 86.151

44.142 25.225 29 29

85.198 953

69.562 822

2021

2020

2.107 -2.419 16.053 -23 -119 15.768 70.384 86.151

1.884 -2.087 9.592 -4 -113

31.12.2021

16,8% 7,4%

144 820

-5 70.884

9.272 61.112 70.384

31.12.2020

6,4% 2,6%

2021

2020

22,1% 17,1% 10,2% 7,5% 62% 38% 1.661 2.156 15.026

15,5% 11,6% 6,6% 5,9% 58% 42% 1.655 2.062 14.944

0,15%

Afkoma

Árið 2021 var nafnávöxtun sjóðsins 22,1% m.v. 15,5% árið 2020. Hrein raunávöxtun sjóðsins var jákvæð um 17,1% samanborið við 11,6% árið 2020. Ávöxtun sjóðsins er sú besta frá upphafi.

Lífeyrisgreiðslur

Skipting 2021: Ellilífeyrir 68,9% Örorkulífeyrir 24,2% Makalífeyrir 5,0% Barnalífeyrir 0,4% Séreignalífeyrir 1,4%

Allur lífeyrir sjóðsins er verðtryggður og breytist mánaðarlega skv. neysluvísitölu.

Séreignadeild

Hrein nafnávöxtun séreignadeildar í heild var 11,9% á árinu og raunávöxtun 6,9%. Nafnávöxtun Raunávöxtun

Safn I 11,1% 6,1%

Safn II 15,6% 10,6%

Stjórn sjóðsins er þannig skipuð frá ársfundi í maí 2021 til ársfundar 2022:

Arnar Hjaltalín, formaður Þorvarður Gunnarsson, varaformaður Andrea Atladóttir Guðný Óskarsdóttir Thelma Hrund Kristjánsdóttir Örn Friðriksson

Framkvæmdastjóri: Haukur Jónsson Ársfundur LSV verður haldinn 4. maí n.k.

0,16% Skólavegi 2, 900 Vestmannaeyjum Sími 481-1008 og 481-2098 Vefsíða: http://www.lsv.is Fylgstu með okkur á facebook

:


LOKSINS STEFNIR Í TÓNLEIKA HJÁ KVENNAKÓR VESTMANNAEYJA

Frá æfingu Kvennakórs Vestmannaeyja sl. Mánudagskvöld. Efri röð frá vinstri; Sigurveig Steinarsdóttir, Helga Jóhanna Harðardóttir, Sigríður Gísladóttir, Fanney Guðmundsdóttir, Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir, Hildur Jóhannsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Marsibil Sara Pálmadóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Birna Guðmundsdóttir, Ingunn Björk Sigurðardóttir Bjarmarz, Ásdís Emilía Björgvinsdóttir og Ragnheiður Reynisdóttir. Neðri röð; Kitty Kovács, Júlíana S. Andersen, Kristín Gísladóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Guðrún María Jónsdóttir, Helga Björk Georgsdóttir, Arna Björg Sigurbjörnsdóttir, Kristjana Harðardóttir, Anna Hulda Ingadóttir, Betsý Kristmannsdóttir og Ragnheiður Lind Geirsdóttir.

Kvennakór Vestmannaeyja er nú í óðaönn að leggja lokahönd á lagauppröðun fyrir sína fyrstu tónleika. Tónleikarnir verða haldir í safnaðarheimili Landakirkju, miðvikudaginn 18. maí n.k. en miðasala verður auglýst á næstu vikum. „Tónverk þessara tónleika má finna vítt og breitt um tónlistarsöguna, við kíkjum við í West side story, íslensku dægurlögin sem og Eyjalögin fá að hljóma og hljómsveitin Radiohead fær einnig sitt pláss á tónleikunum auk annarra frábærra tónsmíða,“ sagði Kristín Halldórsdóttir, formaður Kvennakórsins í samtali við Tígul. Það er því óhætt að segja að allir muni finna eitthvað við sitt hæfi á þessum tónleikum. „Það er okkar ósk að þessir tónleikar hafi hvetjandi áhrif á konur í bænum að koma og taka þátt í kórstarfinu með okkur á næstu önn. Við misstum svolítið af konum í þessu Covid fjöri öllu saman

en eftir stendur sterkur kjarni eftir og eru um 25 konur að sækja æfingar þessa dagana.“ Erfið fæðing Kórinn var stofnaður í byrjun mars 2020 og mættu á fimmta tug kvenna á fyrstu æfinguna. Fyrstu samkomutakmarkanir vegna Covid-19 tóku svo gildi 16. mars sama ár þannig að það er óhætt að segja að þetta hafi verið erfið fæðing hjá kórnum. „Við viljum fá að nota tækifærið og koma á framfæri okkar allra bestu þökkum til þeirra fyrirtækja í bænum sem styrktu okkur fjárhagslega þegar Covid skall á þar sem rekstur þessa nýja kórs stóð mjög skyndilega höllum fæti þegar svo margar konur hættu og er það þessum fyrirtækjum að þakka að þessi dásamlegi félagsskapur blómstrar enn.“ Nú horfir til betri tíðar og æfingar því á fullu fyrir komandi tónleika.

„Við æfum öll mánudagskvöld í sal Tónlistarskólans,“ sagði Kristín og hvatti allar konur sem áhuga hafa til þess að prufa að mæta. „Við vitum að það er mikið af söngfuglum þarna úti sem langar að koma og vera með og hvetjum við þær eindregið til að mæta, við tökum vel á móti öllum nýjum röddum,“ sagði Kristín. Heppnar með kórstjóra Stjórnandi Kvennakórsins er Kitty Kovács sem einnig sér um undirleik. „Við erum rosalega heppnar með kórstjóra en hún Kitty stýrir okkur með sterkri hendi og tónlistarsnilligáfu sem er engri annarri lík. Við erum henni óendanlega þakklátar fyrir alla þolinmæðina, og kennsluna, sem fylgir því að koma svona nýjum kór af stað,“ sagði Kristín að lokum og hvetur sem allra flesta bæjarbúa til að láta sjá sig á tónleikunum 18. maí.


by lovisa skartgripir OPNAR Í HEIMADECOR LAUGARDAGINN 9.APRÍL AFSLÁTTUR LOVÍSA VERÐUR Á STAÐNUM TRYLLT ÚRVAL LÉTTAR VEITINGAR -

FLÉTTUR, dásamlegir silfurskartgripir, fullkomið sett.

HEIMADECOR - HILMISGATA 4, VESTMANNAEYJAR


Pálmasunnudagur 10. apríl

Friðrik Dór og Jón Jónsson, ÍBV tónleikar

Skírdagur 14. apríl

Guðrún Árný á Háaloftinu

Páskaball 2022 Laugardagur 16. apríl

Páskadansleikur með Brimnes og Clubdub Forsala miða á Tix.is/hollin Ath. að miðar eru ódýrari í forsölu.


ROYAL CANIN FÆST HJÁ OKKUR Fyrir hunda, ketti, hvolpa og kettlinga

Pallaefnið er væntanlegt 488 3550 // skipalyftan.is Opið alla virka daga 07:30 - 18:00 laugardaga 10:00 - 14:00


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

SÓDAVATN SALSASÓSA KJÚKLINGUR OSTUR SAMLOKA AGÚRKA

NAUTAHAKK PAPRÍKA KÁL SVEPPIR


Auglýsing á deiliskipulagi í botni Friðarhafnar Vestmannaeyjabær auglýsir tillögu að breyttu deiliskipulagi Hafnasvæðis við Eiði vesturhluti (H-2) á lóð í botni Friðarhafnar (skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010). Helstu breytingar eru að lóðar- og byggingarreitur við Standveg 104 stækkar og hámarshæð lækkar úr 18 m í 10-15 m. Bílastæði við bygginguna fækkar úr 53 í 25 stæði. Einnig er gert ráð fyrir svæði fyrir varaaflsstöð.

Skipulagsgögn verða til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 31. mars til 12. maí 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt sveitafélagsins (https://www.vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/). Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 12. maí 2022 í afgreiðslu Skildingavegi 5, eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is


Starfslaun bæjarlistamanns 2022 Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2022. - Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veitaeinstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. - Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2022. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta 21. apríl nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000

Vélaverkstæðið Þór óskar eftir að ráða vanan járniðnaðarmann í fullt starf. Starfið felur í sér almenna málmsmíði og þjónustu við iðnaðinn. Hæfniskröfur: >> Menntun/reynsla af málmsmíði og vél­tækni >> Nákvæm, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð. >> Góð samskiptahæfni, stundvísi og frumkvæði í starfi. >> Reynsla af rennismíð kostur.

Upplýsingar veita: Haraldur Guðbrandsson, verkstjóri 8684550/ halli@velathor.is Sævald Páll Hallgrímsson, framkvæmdarstjóri 8987567/ saevald@velathor.is

Íbúð aldraðra við Sólhlíð Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til um sóknar íbúð eldri borgara við Sólhlíð 19. Íbúðin er 86,2 fm. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Umsóknarfrestur er til 25. apríl nk. Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu fjölskyldu -og fræðslusviðs, Kirkjuvegi 23 og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Nauðsynlegt er að staðfesta eldri umsóknir og skila inn uppfærðum gögnum séu breytingar á högum umsækjanda. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is.


Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma

GUÐRÚN JENSDÓTTIR

lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum Vestmannaeyjum föstudaginn 1.apríl sl. Útförin fer fram frá Landakirkju miðvikudaginn 13. apríl kl 14. Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, www.landakirkja.is. Linda Antonsdóttir Bjarni Valtýsson Jen Kristinn Þorsteinsson Hrafnhildur Hafnfjörð Þórisdóttir Ásgeir Þorbjörnsson Guðrún Maronsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi

ALFREÐ ELÍAS SVEINBJÖRNSSON lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 19. mars. Útför hins látna fer fram laugardaginn 9. apríl klukkan 13:00 frá Landakirkju.

Jóhann Þórir Alfreðsson Símon Alfreðsson Sigurður Björn Alfreðsson Jóhanna Alfreðsdóttir Alfreð Elías Jóhannsson Bryngeir Sigfússon

Ingibjörg Áslaugsdóttir Gunnhildur Björgvinsdóttir Margrét Elsabet Kristjánsdóttir Ólafur Týr Guðjónsson Berglind Friðriksdóttir Ásta María Kristinsdóttir

barnabörn og barnabarnabörn.


OATMEAL COOKIE

299 kr.

Tilboð gildir út apríl 2022

N1 Vestmannaeyjar


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 13.tbl 04 árg. by Leturstofan - Issuu