Skip to main content

Tígull 13.tbl 02árg.

Page 1

13. tbl. 02. árg. 6. - 19.apríl 2020

Gleðilega Páska!


SR. GUÐMUNDUR ÖRN MEÐ HUGVEKJU

Ónefndur sjónvarpsmaður sagði einhverntíman að hann gæti alveg skrifað undir boðskap Jesú að öllu leyti og lagt trúnað á það sem í Nýja testamentinu stendur, fyrir utan eitt atriði. Og það er upprisan. Honum fannst réttast að sleppa þeim atburði í sögunni af Jesú, enda er þar um svo ótrúlegan atburð að ræða að ekkert upplýst nútímafólk væri tilbúið að skrifa undir þá frásögn þegjandi og hljóðalaust. En hvað gerðist þá eiginlega? Af hverju lifir sagan af Jesú, lífi hans, dauða og upprisu svo góðu lífi öld fram af öld? Það virðist nokkuð ljóst að eitthvað algjörlega einstakt gerðist á hinum fyrstu páskum eftir dauða Jesú. Svar hins ónefnda sjónvarpsmanns er þrátt fyrir allt ekki útí hött.

TÍGULL

Hann hefur einfaldlega orðað þann vafa sem bærist í brjóstum svo margra um jafn ótrúlegan atburð og upprisan er. Því ekkert er óhollara, ómerkilegra eða vonlausara en að taka upprisunni sem sjálfsögðum hlut, því hún er ekki sjálfsagður hlutur og hefur aldrei verið. Að efast er hollt fyrir trúað fólk, að takast á við veruleika upprisunnar er heilnæmt fyrir trúarlíf og þroska. Þau sem stóðu Jesú næst á sínum tíma efuðust líka í fyrstu, en sannfærðust svo gegn vilja sínum, gegn allri skynsemi. Boðskapur páskanna er boðskapur fyrir alla daga. Á hverjum degi vöknum við og byrjum nýjan dag, verðum vitni að sífelldri sköpun og framrás lífsins. Tökum við eftir því? Tökum við þátt

í páskum hversdagsins? Ekkert er svo illt, ekkert svo vonlaust að þar sé ekki von. Boðskapurinn um hina tómu gröf, um að Jesús sé ekki lengur í gröfinni er boðskapur um að aldrei sé allt búið. Ástandið var t.d. ekki björgulegt föstudaginn langa í Jersúsalem. Meistarinn dáinn, allar vonir brostnar. En svo varð undrið mitt í sorginni. Guðlegt líf vann sigur á dauða veraldar. Saman munum við, með Guðs hjálp og góðs fólks, komast í gegnum þá erfiðleika sem að heiminumm steðjar. Guð gefi þér og þínum gleðilega páska. Guðmundur Örn Jónsson Prestur í Landakirkju

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


/gottrestaurant

Þú pantar með lágmark dags fyrirvara og við keyrum þessu heim til þín. Mánudagur 6. apríl Tikka masala kjúklingur með indverskum hrísgrjónum, jógúrtsósu og naan brauði. Þriðjudagur 7. apríl Klassískt Lasagna, pestó og parmesan. Hvítlauksbrauð. Ferskt salat með fetaosti, granateplum og brauðteningum. Miðvikudagur 8. apríl Sjávarréttapanna með smælki kartöflum, skelfisk sósu og grænmeti. Fimmtudagur 9. apríl - SKÍRDAGUR BBQ kjúklingabringa með beikoni , rjómaosti, sætkarteflumús, hnetum og fersku salati 1.950 kr. per mann - 1.750 per máltíð ef pantað er 3 eða fleiri máltíðir yfir vikuna

Þú pantar í tölvupósti gott@gott.is eða í síma 4813060

Gleðilega Páska


NÚ ER TILVALIÐ AÐ NOTA TÍMANN HEIMA VIÐ OG MÁLA

Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV

F

L

Skipalyftan býður upp á heimsendingu Pantanir berast í gegnum netfangið tommi@skipalyftan.is eða í síma 488-3555

S

   

Frá VEY

Brottf.

Lent

7:15

7:40

15:45 16:10 17:30 17:55 8:00

 

8:25

16:30 16:55

 

18:15 18:40

Á að fara að mála? Við eru með allt sem þú þarft í verkið hjá okkur. Við erum með úrval af plastboxum og sóttvarnarspritt á góðu verði

Opnunartími:

virka daga 7:30 - 17:00 laugardaga 10:00 - 12:00

Gleðilega páska kæru Vestmanneyingar Opnunartíminn verður auglýstur á facebook síðu Geisla.

Íþróttafræði í Eyjum Nú er hægt að stunda BSc-nám í íþróttafræði við HR í blöndu af staðarnámi og fjarnámi í Vestmannaeyjum. Kynntu þér málið á hr.is

Sími: 481 3333

Opið fyrir umsóknir til 5. júní


Starf deildarstjóra hjúkrunar á Hjúkrunar-og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum er laus til umsóknar

Starf deildarstjóra hjúkrunar á Hjúkrunar-og dvalarheimilið Hraunbúðir: Helstu verkefni og ábyrgð: Vinnur í nánu samstarfi við hjúkrunarforstjóra og hefur umsjón með heimilinu og ber ábyrgð á starfsemi í fjarveru hans. Skipuleggur störf starfsfólks í samræmi við hjúkrunarþarfir heimilismanna. Metur veitta umönnun í samráði við hjúkrunarfræðinga á deild. Aðstoð við vaktaskýrslur, utanumhald á Vinnustund og skipulagningu orlofs starfsmanna með hjúkrunarforstjóra. Skipuleggur og tekur þátt í fjölskyldufundum og viðheldur jákvæðum samskiptum. Tekur ábyrgð á RAI mati með hjúkrunarforstjóra og fylgist með niðurstöðum gæðastaðla og vinnur að úrbótum með hjúkrunarforstjóra.

Hæfniskröfur: Íslenskt hjúkrunarleyfi Sjálfstæði í starfi Reynsla af starfsmannahaldi er kostur Skipulagning, áreiðanleiki og faglegur metnaður Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum Frekari upplýsingar um starfið: Laun eru greidd samkvæmt sambandi íslenskra sveitarfélaga og félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl n.k. Umsókn ásamt ferilskrá og greinargerð um hæfni til starfsins skal skilað inn á postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Nánari upplýsingar veitir Una Sigríður Ásmundsdóttir hjúkrunarforstjóri. Hraunbúða í síma 488 2600 eða á netfangið una@vestmannaeyjar.is


10 ið kv gar n æfi

27

28

22

Fara í brú

5 reitir áfram

14

15

Bíða 2 umferðir

10

5 armbeygjur

Þrjá reiti áfram

2

Bíða eina umferð

Hoppa 10x

29

24

26

19 5 reitir aftur á bak

Si ein tja h a já fer umð

15 hnébeyjur

10 opp kah s ro

f

5 reitir aftur

7 6

11

1

5


SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Vilja skrá fæðingarsögur feðra Ísak Hilmarsson eignaðist sitt fyrsta barn ásamt sambýliskonu sinni Grétu Maríu Birgisdóttur árið 2017. Eftir að dóttir þeirra fæddist ákváðu þau að hefja söfnun á fæðingarsögum feðra og taka sögurnar saman í bókinni Fæðingarsögur feðra. Tilgangur verkefnisins er að auka umræðuna um fæðingarsögur feðra og gefa þeirra hlið meira rými. „Við fengum þessa hugmynd síðasta sumar. Gréta er ljósmóðir og þess vegna hafa vinir og vandamenn oft mikinn áhuga á að ræða um sínar fæðingarupplifanir og hluti tengda ferlinu við okkur. Það má kannski segja að við höfum gengið með þessa hugmynd í kollinum í einhvern tíma áður en hugmyndin var sögð upphátt. Við allavega ræddum það eitthvað kvöldið að það væri gaman að pæla meira í upplifun feðra af fæðingum. Strax í kjölfarið kom upp hugmyndin að safna sögum frá feðrum og gefa út í bók til að varðveita þær. Við komumst fljótt að því að þetta hafði ekki verið gert áður á Íslandi á þessu formi. Við ræddum við vini og kunningja og allir tóku vel í þessa hugmynd. Þá var lítið annað að gera en að kýla á þetta og fara af stað með verkefnið,“ sagði Ísak.

Vilja stuðla að því að feður ræði sínar upplifanir af fæðingum „Við tölum um verkefni þar sem hluti af þessu er auðvitað að fá fólk og þá sérstaklega feður til að ræða sína hlið og upplifun af fæðingum. Hinn hluti verkefnisins er að safna sögunum. Við ætlum að gefa sögurnar út í bók til þess að þær varðveitist og séu aðgengilegri fyrir fólk sem hefur áhuga á að lesa þær. Við viljum stuðla að því að feður ræði sínar upplifanir af fæðingum og hvetja þá til að skrifa sínar fæðingarsögur niður. Það er ótrúlega gaman að eiga þær þegar lengra líður frá fæðingunum,“ sagði Ísak. Sögurnar nafnlausar Aðspurður sagði Ísak að sögurnar yrði nafnlausar í bókinni. „En við ætlum að birta fæðingarár föður og barns og fæðingarstað. Fæðingarstaðurinn getur verið mjög opinn, t.d. Ísland, Vestmannaeyjar, Landspítalinn, heimahús í Kópavogi, Austfirðir, sjúkrabíll eða bara hvað svo sem faðirinn vill. Það er gert til þess að gefa lesendum smá tilfinningu um aðstæður.“ Vilt þú deila þinni sögu? Söfnunin fer fram í gegnum facebook síðuna okkar ,,Fæðingarsögur feðra". Þar er hægt að senda þeim skilaboð og/eða sögur. Þau eru líka með netfangið faedingarsogurfedra@gmail.com

og taka við sögum og spurningum þar líka. Auk þess eru þau með Instragram reikning sem heitir Fæðingarsögur feðra. Kemur fram það sem feður vilja að komi fram „Annars viljum bara að hvetja feður til að senda okkur línu. Við gerum ekki kröfur um lengd eða form á sögum. Bara að það komi fram það sem feður vilja að komi fram. Fæðingarsagan getur náð til meðgöngunnar, fæðingarinnar og fyrstu dagana þegar feður eru að tengja við barnið, bara allt eftir því hvað viðkomandi vill skrifa um. Eins bendum við þeim á sem hafa áhuga á að skrifa sína sögu en hafa einhverjar spurningar til okkar að hika ekki við að hafa samband.“ sagði Ísak að lokum.


HEIMSENDING MIÐVIKUD. - SUNNUD. MILLI KL. 17:30 - 20:30

pantaðu í síma

551 0055

TILBOÐ 1 Pítsa með 3 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 0,5 L gos

3.790 kr.

TILBOÐ 2 Tvær Pítsur með 2 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 2 L gos

5.190 kr.

TILBOÐ 3 G-special, Sparibrauðstangir & 2 L gos

4.290 kr.

/PÍTSUGERÐIN

#PITSUGERDIN

1. Margaríta með sósu og mozzarella

1.700 kr.

2. Hvítlauksbrauð með mozzarella, hvítlauk, sjávarsalti, og hvítlauksolía

1.690 kr.

3. Brauðstangir með mozzarella og sérvaldri kryddblöndu

1.690 kr.

4. Sparibrauðstangir - hálfmáni með mozzarella, rifnum osti kryddblöndu, hvítlauksolía og piparostur

1.690 kr.

5. Extra pepp með sósu, extra mozzarella og extra pepperoni

2.290 kr.

6. Hawaii með sósu, mozzarella, skinku og ananas

1.990 kr.

7. Pepp og svepp með sósu, mozzarella, pepperoní og sveppum 1.990 kr. 8. Fiesta með sósu, mozzarella, pepperóní, hakki, skinku, hvítlauksolíu

1.990 kr.

9. Trufflað hvítlauksbrauð, með ferskum hvítlauk, mozzarellaosti, sjávarsalti, rjómaosti og truffluolíu

1.890 kr.

10. Döðlupítsa með sósu, mozzarella, döðlum, beikonbitum og kjúkling

2.390 kr.

11. Ostapítsa með sósu, mozzarella, gráðosti, piparosti, rjómaosti, parmesan og sultu til hliðar

2.250 kr.

12. Calzone með sósu, skinku, mozzarella, sveppum, lauk, osti og kryddblöndu

2.190 kr.

13. Vinsæla með sósu, mozzarella, pepperoni, rjómaosti ólífum, jalapeno, svörtum pipar og ananas

2.550 kr.

14. Spæsí með sósu, mozzarella, pepperoní, pikklaður jalapeno, pipar, hunang og ferkst basil

2.390 kr.

15. Parma rocket með sósu, hráskinku, mozzarella, klettasalati, parmesan 16. G - Special með BBQ, pepperoní, osti, rjómaosti, beikon trufflukremi, döðlum, jalapeno, salti og pipar

2.490 kr.

2.790 kr.


VON PÁSKANNA - Þóranna Sigurbergsdóttir skrifar -

Páskarnir þetta árið verða með öðru sniði eða hvað? Venjulega þegar við hugsum um páska hugsum við um frí, súkkulaðiegg, kökur og mat, páskaskraut og ferðalög. Páskaegg minnir á nýtt líf, vorkomu og hafa egg í gegnum tíðina verið tákn um frjósemi og endurfæðingu. Í gegnum aldirnar voru páskaegg máluð hænuegg. Súkkulaðiegg hafa verið alsráðandi í seinni tíð. Á Íslandi tíðkast súkkulaðiegg fyllt sælgæti og málsháttur þykir ómissandi. Páskar eru á mismunandi tíma svo munað getur fjórum vikum – Í vestrænni kristni geta páskar allra fyrst verið 22. mars og seinast 25. apríl. Þeir eru haldnir fyrstu helgi eftir fullt tungl eftir vorjafndægur. Orðið páskar er ættað úr hebresku (pesah) og merkir framhjáganga. Páskarnir voru haldnir til minningar um frelsun Ísraelsmanna frá Egyptalandi. Í seinustu köflum guðspjallanna fjögurra má lesa um innihald

daganna; pálmasunnudags, skírdags, föstudagsins langa og páskadags. Mér finnst gaman að lesa textana og bera saman sjónarhorn höfundanna, margt sameiginlegt en einnig nokkur atriði sem eru ólík. Það er ekki í boði að fara í messur eða samkomur núna en við getum lesið og hugleitt boðskapinn heima. Fyrir rúmum fjörutíu árum vorum við hjónin stödd á Péturstorgi í Róm að hlusta á páskaboðskap páfa ásamt tugum þúsunda annarra. Þar var gleðistemning, fólk með blöðrur og sölubásar opnir. Okkur varð hugsað til Íslands þar sem allt var lokað og meiri alvarleiki. En á þeim tíma var allt lokað á föstudeginum langa og páskadegi. Bernskuminningar mínar eru um að fara til messu á páskadagsmorgni og síðan í bíltúr og borða nesti utan við bæinn, ég minnist ferskra og fallegra vormorgna. Það að fara í kirkju á páskadagsmorgni er sérstakt, vakna og minnast morgunsins þar sem konurnar komu að vitja grafarinnar og Jesús var

horfinn, þrátt fyrir gæslu hermanna. Konurnar voru mjög hissa – Hann er upprisinn og þegar upprisan er íhuguð er hún eitt mesta undur og kraftverk sögunnar og hornsteinn boðskapar kristinnar trúar. Í flestum kristnum kirkjudeildum eru páskar mesta hátíð kirkjuársins enda nefndu kirkjufeðurnir páskana Festum festorum eða hátíð hátíðanna. Ég vona og bið þess að vonin sem við eigum í upprisunni verði okkur hvatning um betri tíma framundan. Ég hef verið um páska í England og farið með vinum mínum í kirkju á páskadegi. Þar heilsaði fólk hvert öðru með kveðjunni He is risen / Hann er upprisinn. Það var svo fallegt og persónulegt að fá þessa kveðju, sérstaklega frá fólki sem ég þekkti ekki. Hann er upprisinn. Gleðilega páska!


VESTMANNAEYJAR

2. maí 2020

– Heimaeyjarhringurinn 2. maí 2020 Kl.12:30

• Einstaklingskeppni kk og kvk • Tvímenningskeppni kk, kvk og bl. • Boðhlaup fjögurra manna lið kk, kvk og bl. Rásmark er við Skansinn. Verð: 4.000 kr. per mann Verðlaun fyrir fyrstu þrjá kk og kvk í einstaklings. Verðlaun fyrir fyrsta sæti í tvímennings og fjögurra manna sveit kk, kvk og blandað /thep uffinru n

|

Skráning á hlaup.is


N N A M Í T A T NÝ Ð A A R A F A ERTU AÐ J G G I L M E S M U N F E K R VE

HEIMSENDINGARÞJÓNUSTA PANTAÐU Á FACEBOOK EÐA Í SÍMA 481 1475

Vilt þú nýta tímann þinn og ganga frá þeim verkefnum sem liggja fyrir heimavið? Pantaðu það sem vantar hjá okkur og við skutlum því til þín eða þú sækir til okkar. Verslunin er einnig opin en með takmörkuðu aðgengi til að minnka smithættu

Opnunartími:

10:00 - 17:00 virka daga (lokað í hádeginu) 10:00 - 14:00 laugardaga

/midstodin


IM E Þ Á R F A G OG GAN ? Ð I V A M I E H FYRIR SKRÚFAR UPP, SMELLIR SAMAN, MÁLAR! EKKERT SPARTL!

KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.

30% AFSLÁTTUR

U G N I N L Á M I AF INN

AF MÁLNINGAR %R ÁHÖLDUM AFSLÁTTU

20

Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is

– Í MEISTARA HÖNDUM


ENGRI MANNESKJU Á AÐ LÍÐA EINS OG HÚN ÞURFI AÐ DEYFA SIG TIL AÐ FINNA EKKI FYRIR EIGIN TILFINNINGUM

SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Einstaklingar sem upplifðu áföll í æsku eru fimm sinnum líklegri til að þjást af áfallastreituröskun heldur en þeir sem urðu ekki fyrir áfalli og í nýrri rannsókn Margrétar Tórshamar Georgsdóttur koma fram sterk tengsl milli áfalla í æsku og fíkniefnaneyslu síðar á lífsleiðinni. Rannsókn Margrétar er hluti af meistaraverkefni hennar við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri „Ég var í meistaranámi í heilbrigðisvísindum með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi. Skemmtileg tilviljun að aðalleiðbeinandi minn var Sigrún Sigurðardóttir sem vann sem lögreglukona í Vestmannaeyjum á sínum tíma.“

Aðspurð um valið á rannsóknarefninu sagði Margrét að náin fjölskyldumeðlimur hafi verið henni ofarlega í huga. „Á þeim tíma sem ég var að velta fyrir mér hvað ég ætti að taka fyrir var náinn fjölskyldumeðlimur að ganga í gegnum erfiða tíma og var hann mér ofarlega í huga. Það er svona meginástæðan. Ég veit að þessi einstaklingur hefur lent í allskonar áföllum í gegnum ævina og hefur svo barist mikið við fíknina á fullorðinsárum. Mig grunaði að það gætu verið tengsl á milli þess að einstaklingar lendi í áföllum í æsku sem er svo lítið sem ekkert unnið úr og að þeir misnoti fíkniefni seinna á ævinni. Ástæða þess að ég ákvað að taka karlmenn sérstaklega fyrir var sú að miklu fleiri rannsóknir eru til um konur og örfáar íslenskar rannsóknir sem tengjast

þessu,“ sagði Margrét aðspurð um rannsóknarefnið. Leið vel í edrúmennsku en höfðu flestir allir fallið Niðurstöður úr rannsókn Margrétar sýndu að allir karlarnir sem tóku þátt sáu skýra tengingu á milli þeirra áfalla sem þeir lentu í fyrr á ævinni og þeirra leiða sem þeir notuðu til að lina sársaukann. „Eftir áföllin og oft ennþá í dag upplifðu þeir kvíða, þunglyndi, vantraust í garð annars fólks, áfallastreituraskanir og sjálfsvígshugsanir. Án undantekninga sögðu þeir allir að áföllin hefðu áhrif á þeirra andlegu líðan enn þann dag í dag. Sumir reyndu að stinga þessu í rassvasann á meðan aðrir voru ennþá að reyna að vinna úr þessu. Þeim leið öllum vel í edrúmennsku en höfðu flestir


upplifað það að falla eftir ákveðinn tíma og var einn sem lýsti því þannig að: „Fyrst og fremst bara af því maður er bara ekkert orðinn heill sko“. Þeir notuðu fíkniefnin sem bjargráð gegn vanlíðaninni. Þeir voru allir með svipaða lýsingu á því hvernig fíkniefnin gátu hjálpað þeim að líða vel á meðan þeir voru undir áhrifum þeirra og að þeir gátu deyft sig með þeim. Fíkniefnin gat gefið þeim eitthvað sem þeir höfðu ekki fundið annarsstaðar, vellíðan. Félagsskapur átti stundum þátt í upphafi neyslunnar hjá sumum þeirra en það var alltaf vanlíðan sem var ástæða þess að þeir héldu áfram,“ sagði Margrét. Aðeins var rætt um eitraða karlmennsku eins og það er oft kallað en voru þeir flestir á því máli að umræðan hefur sem betur fer opnast mikið og er ekki eins „tabú“ að karlar gráti eins og það var áður fyrr. Svo var mikið rætt um meðferðar-

úrræði og þó að þeir sem höfðu nýtt sér slíkt gátu allir nefnt jákvæðar hliðar á þeim að þá voru neikvæðu hliðarnar líka nokkrar. Þá nefndu þeir til dæmis að það væri mikil þörf á einstaklingsmiðaðri meðferð, það sé ekki góð aðferð að setja alla í sama hóp. Þeir töluðu líka um hvað biðlistarnir eru langir og hvað það geti haft slæmar afleiðingar fyrir þá sem þurfa hjálp strax. Einnig voru margir þeirra ósáttir við hvað meðferðarúrræði eru oft trúartengd. Vantar sálræna þjónustu í meðferðarúrræðum Það sem kom Margréti mest á óvart við niðurstöður rannsóknarinnar var hversu algengt það var að karlarnir höfðu margir lent í mörgum áföllum í æsku. „Þeir töluðu líka um hversu mikil þörf það er á meiri áherslu á sálræna þjónustu í meðferðarúrræðum. Það er alveg eitthvað um slíka þjónustu en að mati margra þeirra var ekki nóg framboð og það var einhvernveginn

ekkert verið að spá í undirliggjandi orsökum þess að þeir notuðu fíkniefni. Aðal áherslan var bara að hætta að nota þau.“ Þurfum öll að standa saman „Þetta eru niðurstöður úr þeirri rannsókn sem ég gerði en ekki er hægt að alhæfa þær yfir á almenning. Ég er ekki að segja að þeir sem neyti fíkniefna hafi lent í áföllum í æsku eða að þeir sem lendi í áföllum muni koma til með að neyta fíkniefna. En svona var þetta hjá þessum hóp af körlum. Við þurfum öll að standa saman og koma til móts við þá sem leita í fíkniefni því þeir finna enga aðra lausn. Þegar neyslan er orðin að leið til að líða betur er augljóst hún snúist ekki lengur um fíkniefnin og mikilvægt að við gerum eitthvað. Engri manneskju á að líða eins og hún þurfi að deyfa sig til að finna ekki fyrir eigin tilfinningum,“ sagði Margrét að lokum.


ÚRBEINAÐUR FYLLTUR LAMBAHRYGGUR MEÐ OSTASÓSU - Uppskrift vikunnar -

Úrbeinaður fylltur lambahryggur með ostasósu 1 stk úrbeinaður lambahryggur Fylling Rifin börkur af einni sítrónu 1 hvítlauksostur 5 hvítlauksgeirar 2 dl fetaostur Handylli steinselja 100 gr ristaðar pekanhnetur 1 msk rósmarín salt og pipar Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Leggið hrygginn flatan á borð, setjið lundirnar í miðjuna, ostamaukið yfir og lokið honum með sláturgarni. ATH - Takið frá smá af fyllingunni til að maka yfir hann upprúllaðan. Í fatið fer: Gulrætur Brokkolí Rósmarín fersk eða þurkkað)

laukar (venjulegur, blaðlaukur, rauðlaukur eða smá af öllum) salt og pipar Setjið gulætur, brokkolí, rósmarín, lauk, salt og pipar á botninn á eldföstu formi. Hellið yfir 1 dl af vatni. Leggið hrygginn ofan á, kryddið með salti, pipar og rósmarín, setjið restina af fyllingunni yfir hann. Bakið við 125°C í um 2 klst. Hækkið hitann í 180° síðustu mínúturnar. Ostasósa 1 piparostur 1 villisveppaostur nautakjötkraftur grænmetiskraftur salt og pipar soð af hryggnum Setjið osta, kraftana og krydd í pott og sjóðið á lágum hita. Bætið soði við í lokin og hrærið saman.

Döðlugott með lakk­rísk­urli Hrá­efni 500 g döðlur, saxaðar smátt 250 g smjör 120 g púður­syk­ur 150 g Kellogg‘s Rice Krispies 400 g Síríus rjómasúkkulaði 2 pok­ar Nóa lakk­rísk­url Aðferð Döðlur og smjör brætt sam­an í potti. Púður­syk­ur­inn er brædd­ur með þangað til döðlurn­ar eru orðnar mjúk­ar. Blandið Rice Krispies og lakk­rísk­urli sam­an við og setjið í form í frysti í 10 mín­út­ur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið yfir Rice Krispiesblönd­una og frystið í um það bil 30 mín­út­ur. Skerið í bita, berið fram og njótið.


Sumarstörf á vegum Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldri til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2020.

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. Verkstjóri í áhaldahúsi/yfirmaður sumarstarfa Umhverfisverkefni

Starfsmaður í umönnun á hjúkrunarheimili I Hraunbúðir

Verkamaður III (með flokksstjórn) Umhverfisverkefni

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II Þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk

Sumarstarfsmaður – Umhverfisverkefni

Sjá fleiri störf á vef Vestmannaeyjabæjar: vestmannaeyjar.is/is/page/sumarstorf

Flokksstjóri í vinnuskóla – Umhverfisverkefni Forstöðumaður á gæsluvelli - Gæsluvöllurinn Strönd Starfsmaður á gæsluvelli - Gæsluvöllurinn Strönd Flokksstjóri á leikjanámskeiði - Sumarfjör Starfsmaður á leikjanámskeiði - Sumarfjör Leikskólakennarar/leiðbeinendur –Kirkjugerði Leikskólakennari/leiðbeinandi Víkin 5 ára deild GRV Starfsmaður í stuðningsþjónustu Málefni aldraðra og fatlaðra Forstaða fyrir dagvist aldraðra Hraunbúðir Starfsmaður við dagvist aldraðra Hraunbúðir Hjúkrunarfræðingur 2 Hraunbúðir Sjúkraliði B á hjúkrunarheimili Hraunbúðir

Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf. Nánari upplýsingar um störfin er hægt að nálgast á www.vestmannaeyjar.is og hjá forstöðumönnum. Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488-2000 eða í tölvupósti: ernag@vestmannaeyjar.is. Laun eru samkvæmt þeim kjarasamningi sem tilgreindur er í yfirliti sumarstarfa á www.vestmannaeyjar.is Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488-2000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.

Umsóknarform og frekari upplýsingar um störfin má finna inn á www.vestmannaeyjar.is


Páskaopnun í Tvistinum : Skírdagur 11:00 – 23:00 Föstudagurinn langi 12:00 – 23:00 Lauardagur 11:00 – 23:00 Páskadagur 12:00 – 23:00 Annar í páskum 12:00 – 23:00

Opið alla daga 11-14 & 17:30-20:30 Sendum frítt heim 481-3939 Lokað föstudaginn langa og Páskadag

Hægt að hringja og panta í 481-3141 og sækja síðan í lúgu. Líka opið inn, munið bara hámark 10 manns inni og 2 metrar á milli manna. Gleðilega páska til ykkar kæru viðskiptavinir.

Gleðilega páska!

NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ LÁTA LAGA BANKIÐ Í BÍLNUM Starfslaun bæjarlistamanns 2020

Einstaklingar geta núna sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við viðgerðir á fólksbifreiðum. Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn í síma 481-1216.

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2020. - Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. - Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2020. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. júní. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.

Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000


SUMARVINNA / VERTÍÐARVINNA

Vinnslustöðin hf. leitar eftir áhugasömu starfsfólki til starfa við fiskvinnslu fyrirtækisins sumarið 2020 á sumar- og makrílvertíð. Frekari upplýsingar um störfin: Sumarstörfin eru fyrir 17 ára (árg. 2003) og eldri. Þeir sem vinna á vöktum á makrílvertíð þurfa að vera orðnir 18 ára. Engin sumarlokun verður í fyrirtækinu. Unnið er á goslokum. Unnið er a.m.k. fram á föstudegi á Þjóðhátíð. Sumarvertíð er frá maí til ágúst.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókn: Nafn Kennitala Heimilisfang Símanúmer Hvenær viðkomandi getur hafið störf og hvenær áætluð starfslok verða

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2020 Haft verður samband við þá sem ráðnir verða en tilkynning verður birt á heimasíðu fyrirtækisins þegar búið er að ráða í öll sumarstörf hjá fyrirtækinu. Nánari upplýsingar veitir: Lilja Björg Arngrímsdóttir í síma 488 8000 eða á netfangið lilja@vsv.is Sólveig Rut Magnúsdóttir í síma 488 8000 eða á netfangið solveigm@vsv.is Umsóknum má skila rafrænt á heimasíðu félagsins vsv.is, https://vsv.is/career/ eða á tölvupósti til solveigm@vsv.is. Vinnslustöðin hf

hafnargata 2

900 Vestmannaeyjar

vsv@vsv.is

www.vsv.is


nnaeyjum.

VERSLANIR & ÞJÓNUSTA Í EYJUM

Gleðilega páska

Vestmannaeyjum

Opið virka daga 9 - 12 og 13 -18 Laugardaga 11 - 15. Pantanir í síma 481-3900 við bjóðum upp heimkeyrslu

Opið virka daga 13:00 - 17:00 Laugardaga 11:00 - 15:00 Sími 4813333 og 8486522. Hægt að versla við okkur símleiðis og við bjóðum upp a heimkeyrslu.

Opið virka daga 13:00 - 17:00 Laugardaga 12:00 - 16:00 Nánar um páskaopnun á facebook s. 481 3340 / gsm: 846 6512 www. smartey.is - heimkeyrsla

Opið virka daga 9:00 - 17:00 (lokað í hád) Laugardaga 10:00 - 15:00 Skírdag 11:00 - 15:00 Lokað: föstudgaginn langa, páskadag og annan í páskum.

Opið virka daga 13:00 -17:00 Laugardaga 13:00 -15:00 Hægt er að hringja í síma 481 1617 eða hafa samband á facebook eða instagram. Netverslun: salkaverslun.is

Opið virka daga 07:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 - 12:00 Bjóðum upp á heimkeyrslu. Pantanir í síma 488-3555.

Opnun er auglýst á Facebook Hægt er að hafa samband í gegnum facebook eða í síma 6924846 og við opnum um hæl. Bjóðum einnig heimsendingu. Netverslun: www.skvisubudin.is

Opið alla daga 11-14 & 17:30-20:30 Sendum frítt heim 481-3939 Lokað: föstudaginn langa og Páskadag

Lokað i bili. Hægt að hafa samband við okkur á facebook eða í síma: 8941331

Opið virka daga 08 - 23 Helgidaga og helgar 09 - 23 Hægt er að hringja og panta mat og góðgæti í síma 481-1559

Opið virka daga 14:00 - 17:00 Laugardaga 12:00 - 14:00 Hægt er að hringja í síma 4811666 eða hafa samband á facebook.

Opið virka daga 08:00 - 23:00 Laugardagur 10:00 - 23:00 Sunnudag 11:00 - 23:00 Hægt að hringja og panta í síma 4813141 sækja síðan í lúgu. Líka opið inn.

Opið virka daga 13:00 - 17:00 Laugardaga 12:00 -14:00 Hægt að hringja í 892 1304 fyrir utan opnun eða hafa samband á facebook.

Opið alla daga 08:00 - 17:00 Nánar um opnun um páskana á facebook. Ef þið eruð í sótthví er hægt að hringja í síma 662-0265 og við sendum heim að dyrum.

Opið virka daga 13:00 - 17:00 Laugardaga 12:00 - 15:00 Hægt er að hringja og hafa samband í síma 481 1155 eða 845 6744, facebook eða instagram (póleyverlsun )

Opið virka daga 8:00 - 15:00 Laugardaga 10:00 - 14:00 Við bjóðum uppá heimsendingu, sími 481-2058

Opið virka daga 10:00 - 17:00 (lokað í hád) laugardaga 10:00 - 14:00 Hægt að hringja og panta i síma 481 1475 og á facebook. Bjóðum upp á heimkeyrslu

Opið virka daga 9:00 - 18:00 Laugardaga 12:00 - 16:00 sími: 482 3683


UPPLÝSINGAR UM ÞJÓNUSTU Í BOÐI Opið alla daga 11:30 -14:00 og 17:30 - 20:30 Take away og heimsending sími: 481-3060

HÁRHÚSIÐ

Ef þig vantar hársnyrtivörur ELEVEN MOROCCANOIL FUDGE þá er þér velkomið að hafa samband í skilaboðum á facebook síðu okkar eða hringja í 481-2500

Opið virka daga 17:00 - 21:00 Skírdag og föstudaginn langa 17:00 - 21:00 Laugardag og annan í páskum 12:00 - 21:00, Páskadag LOKAÐ Sendum frítt heim. Sími: 481-1567

Býð upp á heimsendingu á hárvörum, Upplýsingar í síma 845-4550 eða á facebook síðu Silver- hárstofu.

Opið miðvikudag - sunnudags 17:30 - 20:30 Við sendum heim sími: 551-0055

Vantar þig Brunette dry sjampó frá label.m sem kemur sér vel núna. Ef fólki vantar vörur getum við skutlað þeim til ykkar, hafið samband á Facebook eða instagram.

Opið alla daga nema mánudaga 11:30 - 14:00 & 17:30 - 20:00 LOKAÐ - föstudaginn langa og páskadag Bjóðum upp á heimkeyrslu og take away Pöntunarsími 414-4420 & 696-4425

Vantar þig sjampó eða eitthvað gott í hàrið? HàrArt sendir FRÍTT heim að dyrum. Hafðu samband í síma 897-0050 eða à facbook.

Opnunartími auglýstur hverju sinni á facebook síðu okkar Alltaf er hægt að hafa samband við okkur á facebook eða síma 697-3795

Verslun lokuð en hægt er að hafa samband. www.eyjaborn.is Frí heimsending í Eyjum. facebook & instagram Sími: 6904682 (Þórdís) / 8466775 (Lísa)

Hægt að hafa samband við okkur ef ykkur vantar vörur eða gjafabréf frá okkur. Hægt er að hafa samband í gegnum facebook eða í síma 865 4820

Ilmkerti, handklæði, handsápur ofl. www.heimilislif.is og á facebook Þú pantar og við keyrum vörunum heima að dyrum frítt. Sími: 694-5831

Lokað þar til annað er tilkynnt, en ef nauðsynlegt/neyðartilfelli þá redda ég því. Gjafakort til sölu og heimsendingarþjónusta á þeim 8977519

VERSLUN

GRÉTARS ÞÓRARINSSONAR

Opið virka daga 14:00 - 17:00 Laugardaga 12:00 - 14:00 Hægt er að hafa samband í síma 481-1400 og 861-0121 eða á facebook. Frí heimsending í Eyjum.

Lokað - á meðan samkomubann stendur yfir. Við eigum mikið úrval af Oszio og Keratin vörum. Bjóðum upp a heimkeyrslu. Hægt er að panta í síma772-3332 eða skilaboð á facebook

Opið virka daga 08:00 - 16:00 ( endurskoðað eftir páska ) Skírdag, laugardag og annar í páskum 10:00 - 17:00

Vantar þig fjólublátt sjampó, maska, djúpnæringu, hárlakk, morrocan olíu eða bara hvað sem er. Hringdu þá í 481-1444 og fáðu það heim að dyrum.

Opið virka daga 13:00 - 17:00 Sími 488-0000 Bjóðum upp á heimkeyrslu Sími Davíðs 6981122 er opinn allan sólarhringinn að venju.


SUDOKU

ORÐARUGL

PÁSKAR SAMVERA MÁLSHÁTTUR

FJÖLSKYLDA SPILAKVÖLD PÁSKAEGG KÓSÝ NJÓTA GAMAN SAMAN


Verið hjartanlega velkomin í Apótekarann Vestmannaeyjum. Við viljum minna á að hægt er að panta lyf og aðrar vörur inná apotekarinn.is og sækja til okkar. Einnig er að hægt að hringja á undan sér í síma 481-3900 og við höfum vörurnar tilbúnar þegar þér hentar.

Vesturvegur 5

virka daga frá 9 -18

Gleðilega páska

laugardagar frá 11-15

Vestmannaeyjum

Tannlæknar

Lokað vegna covid-19

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hringja í síma 481-2772

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

Hönnun / umbrot á auglýsingaefni. Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala o.fl. leturstofan@leturstofan.is

Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is

Skrifstofa Heiðarvegi 9b 481-2700 formadur@sjomannafelag.is skrifstofa@sjomannafelag.is

Lokað - á meðan samkomubann stendur yfir. Við eigum mikið úrval af Oszio og Keratín vörunum, sjampó, hárnærningar & djúpnæringar. Bjóðum upp á heimkeyrslu. Hægt er að panta í síma 772-3332 eða senda skilaboð á facebook okkar.


HEIMSMET 2020

SETJUM HEIMSMET Í LESTRI VERTU MEÐ Í LANDSLIÐINU Nú sameinumst við í einu liði, landsliðinu í lestri, og setjum heimsmet í lesnum mínútum í apríl. Allir geta verið í landsliðinu og allur lestur telst með. Þú tekur tímann þegar þú lest og skráir mínúturnar á timitiladlesa.is.

SVO NÚ ER BARA AÐ REIMA Á SIG LESSKÓNA OG GRÍPA NÆSTU BÓK. VIÐBÚIN — TILBÚIN — LESA!

#timitiladlesa

timitiladlesa.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 13.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu