Tígull 12. tbl 06. árg.

Page 1

12. tbl. 04. árg. 27. mars - 3. apríl 2023 Gleðilega páska!

VIÐBURÐIR FRAMUNDAN

MIÐ PÍANÓTÓNLEIKAR

27 MARS

Guðný Charlotta & Kitty Kovács Safnaðarheimili Landakirkju kl. 19:30

27

MIÐ MARS

INGÓ VEÐURGUÐ SÖNGUR & SÖGUR Alþýðuhúsið kl. 20:30

27 MARS

MIÐ SELFOSS - ÍBV Olísdeild karla SET höllin kl. 19:30

28 MARS

29 MARS

SPAMALOT LEIKFÉLAG VESTMANNAEYJA Í Kviku kl. 20:00

30

30

BALL MEÐ PÁLI ÓSKARI Höllin kl. 23:00 MARS

Miðasalan í síma 852-1940 opið milli klukkan 16:00 - 20:00

LAU MARS

05 APRÍL

MIÐ NIRVANA TRIBUTE HEIÐAR ÚR BOTNLEÐJU Höllin kl. 21:00

LAU MARS

06

EYJAKVÖLD BLÍTT & LÉTT Alþýðuhúsið kl. 20:30

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

ÚTGÁFA:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

SÝNINGAR FRAMUNDAN:

28. mars fimmtudagur kl. 20:00

29. mars föstudagur kl. 20:00

30. mars laugardagur kl. 20:00

Miðasala í síma 852-1940

Miðasölusíminn verður opinn alla daga frá 27. mars milli kl. 16:00 - 20:00

“TÓNLIST GERIR DAGINN BETRI” KITTY KOVÁCS

Nýr liður í Tígli lítur dagsins ljós þessa vikuna, Listamaður mánaðarins. Þar munum við taka púlsinn á þeim fjölmörgu listamönnum sem Vestmannaeyjar skarta. Liðurinn er í umsjá Elías Inga Björgvinssonar og gefum við honum því orðið.

Nú þegar páskarnir nálgast og fermingar eru á næsta leiti ákvað Tígull að taka púlsinn á organista Landakirkju, Kitty Kovács. Hún er einnig bæjarlistamaður Vestmannaeyja ársins 2023 og vel að þeim titli komin enda mikilvægur hlekkur í tónlistarlífi Eyjamann. Hún fluttist til Vestmannaeyja árið 2011 og tók þá við sem organisti í Landakirkju af Guðmundi H. Guðjónssyni. Í dag hefur Kitty mörgum hlutverkum að gegna hér í Eyjum. Hún starfar sem píanóog tónfræðikennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja, er kórstjóri kórs Landakirkju og Kvennakórs Vestmannaeyja auk þess sem hún kemur að fjölda tónlistarviðburða yfir árið. Fyrir páskana munu þær stöllur, Kitty og Guðný Charlotta,

halda tónleika þar sem þær spila fjórhent á píanó og verður mjög áhugavert að heyra hvernig það kemur út. Greinarhöfundur settist niður með Kitty til þess að kynnast henni betur og hennar sögu.

Vantaði tónlistarkennara á Hvolsvelli

Kitty fæddist árið 1980 í Ungverjalandi og ólstu upp í borginni Győr þar í landi en sú borg er svipuð að stærð og Reykjavík. Í raun sá hún ekki fyrir sér að hún myndi nokkurn tíman flytjast frá Györ því þar var allt til alls og var hún mjög ánægð þar. En eftir tónlistarnám í háskóla fékk hún veður af því að það væri verið að auglýsa eftir tónlistarkennurum til þess að kenna við tónlistarskólann á Hvolsvelli. Maður spyr sig hvernig í ósköpunum berast slíkar fréttir til Ungverjalands en það vildi svo til að skólastjórinn þar í bæ var líka ungverskur og hann vantaði sárlega tónlistarkennara. Þannig að hann auglýsti í tónlistarskólum í Ungverjalandi eftir áhugasömum.

Til allrar lukku fyrir okkur þá bárust fregnirnar til eyrna Kitty og hún hugsaði með sér „af hverju ekki?“ Hún sá enga góða ástæðu til þess að fara ekki og fluttist því til Íslands árið 2006 og hefur verið hér síðan.

Fór á hverju sumri til Vestmannaeyja

Þar sem Kitty bjó á Hvolsvelli hafði hún útsýni í átt að Vestmannaeyjum og sá eyjarnar fögru á hverjum degi þaðan. Í fyrstu hélt hún að þetta væru bara fjöll í fjarska en vinkona hennar upplýsti hana um að þetta væru nú eyjar og ekki fjöll. Þegar hún heimsótti svo Vestmannaeyjar í fyrsta sinn varð hún heilluð af náttúrunni og er þetta fallegasti staðurinn á Íslandi að hennar mati. Eftir þessa heimsókn urðu Vestmannaeyjar fastur áfangastaður á hverju sumri og tilhlökkunin hjá henni var mikil fyrir ferðalaginu hingað.

Varð organisti á Íslandi Eftir dvöl sína á Hvolsvelli fluttist Kitty til Víkur í Mýrdal og vann þar um hríð sem organisti en fyrir eins athafnasaman listamann og hana þá þurfti hún fleiri og fjölbreyttari verkefni en voru í boði þar. Hún fluttist því til Reykjavíkur til þess að vinna sem tónlistarkennari við Tónlistarskólann í Garðabæ og til að vera nær menningarlífinu. Þegar þarna er komið við sögu var árið 2008 og skall kreppan á með tilheyrandi samdrætti í menningarlífinu. Þessi ár í Reykjavík voru henni ekki auðveld en einhvern veginn rataði sama spurningin til hennar úr mismunandi áttum. „Af hverju ferðu ekki til Vestmannaeyja, það vantar organista þar?“ Hún vissi ekki hvernig væri að búa hér en þekkti samt vel til Eyja með árlegu ferðunum sínum. Það kom svo til

að hún leysti af nokkra sunnudaga hér í Eyjum og árið 2011 var hún fastráðin organisti við Landakirkju. Samhliða því hlutverki lærði hún orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og lauk prófi þaðan árið 2017. Kitty hefur spilað reglulega á orgelsumri í Hallgrímskirkju við góðar undirtektir og í ár mun hún halda lokatónleika sumarsins sunnudaginn 25. ágúst í Hallgrímskirkju, frekari upplýsingar má finna á heimasíðu þeirra.

Var valin inn í tónlistarskólann Á bernskuheimili Kittyar stóð píanó í stofunni en enginn spilaði á það. Sömu sögu var að segja heima hjá ömmu hennar og afa, þar var annað píanó en þetta voru meira eins og húsgögn en hljóðfæri. Hún var samt alltaf forvitin um píanóin og þegar kom að því að hún átti að velja hljóðfæri til að læra á í tónlistarskólanum var valið deginum ljósara, píanóið var númer eitt.

Fyrirkomulagið í Ungverjalandi á þessum tíma var þannig að tónlistarkennarar gerðu skimanir í fyrsta bekk grunnskóla og valin voru efnileg börn til þess að stunda tónlistarnám í tónlistarskólanum. Kittý var í þessum hópi en áður en þau fengu að velja sér hljóðfæri þá þurftu þau að læra tónfræði og nótur fyrst. Þetta auðveldar lærdóminn og spilamennskuna á hljóðfærið. Hún fetaði menntaveginn með píanóið og tónlistina að leiðarljósi alla leið í háskóla þar sem hún útskrifaðist árið 2003 úr tónlistardeild Széchenyi István háskólans í Győr.

Hugfangin af Bach frá barnsaldri Aðgangur að tónlist var allt annar en hann er í dag þegar Kittý var að alast upp. Það var bara útvarp, kassettur og geisladiskar. Stundum ef það var keppni í tónlistarskólanum og hún vann þá mátti hún velja sér geisladisk í verðlaun. Þá valdi

hún ávallt klassíska tónlist alveg frá því að hún var barn, og í flest skiptin var það Johann Sebastian Bach sem varð fyrir valinu. Bach er mikill snillingur að hennar mati og snilldin felst í því að hann lætur margar raddir og hljóðfæri hljóma eina undursamlega heild. „Málið er að hver rödd og hvert hljóðfæri eru jafn mikilvæg í heildinni. Ef þú hlustar á eina rödd eða eitt hljóðfæri eitt og sér þá hljómar það líka fallega,“ segir Kittý. Hún hefur farið á marga ótrúlega tónleika víða um Evrópu en það eftirminnilegasta sem hún hefur gert var þegar hún fór til Leipzig á Bach tónlistarhátíðina. Hún var þar í tvo daga og fór á eins marga tónleika og hún gat. Henni leið eins og hún væri komin heim, því andrúmsloftið í borginni var svo notalegt og allir komnir saman til þess að hlusta á verk Bach. Kitty lýsir þessu eins og ættarmóti hjá Bach fjölskyldunni, bara gleði og gaman.

Tónlist gerir daginn betri

Þegar Kitty er spurð um hvað drífur hana áfram í að spila, æfa og skapa tónlist þá er svarið einfalt, „þegar ég spila tónlist þá verður dagurinn bara betri.“ Tónlistin nærir það andlega í manneskjum, því við erum ekki vélar sem ganga á fyrir olíu heldur þurfum við annað sem upphefur andann og opnar nýjar dyr og hugarheima. „Stundum hlusta ég á eitthvað verk, og það þarf ekki að vera langt kannski bara fjórar mínútur, en það gerbreytir hjá mér hugsun og tilfinningu,“ segir Kittý. Áhrifamáttur tónlistar er vanmetinn að hennar mati, sem og mikilvægi þess að læra um tónlist og á hljóðfæri. „Þegar maður spilar á hljóðfæri þá fær persónuleikinn tækifæri til þess að þroskast og tjá sig á annan hátt en venjulega.“ Það sem gefur henni mest við æfingar er þegar hún rekst á vandamál og erfiðleika í tónverkinu, en að sýna þrautsegju og finna lausnina, æfa hana og heyra afraksturinn gerir þetta allt þess virði. Kittý brosir við þegar hún segir frá þessu.

Fjölbreyttir tónleikar á döfinni Það eru ávallt mörg járn í eldinum hjá Kitty og eiginlega of fáir klukkutímar í deginum finnst henni. Næstu tónleikar á dagskrá eru fjórhentir píanótónleikar með Guð-

nýju Charlottu. Áskorunin þar er að tveir píanóleikarar sem spila á sama píanóið þurfa að hljóma sem einn. Þessir tónleikar fara fram miðvikudaginn 27. mars, daginn fyrir skírdag í safnaðarheimilinu.

Bílstjóri óskast

Einnig æfir hún fyrir sellótónleika sem verða í lok maí í Eldheimum og svo auðvitað eru vortónleikar Kvennakórsins á næsta leiti. Þegar hún er spurð um hver sé besti tónleikasalurinn í Vestmannaeyjum þá er hún ánægðust með hljómburðinn í safnaðarheimilinu en minnist einnig á það að það sé kominn tími á að uppfæra flygilinn í safnaðarheimilinu sem og orgelið. „Hljóðfærin eru svo mikilvæg til þess að tónlistin hljómi sem allra best í eyrum áheyrenda,“ segir Kittý.

Fyrir þá sem aðhyllast slík fræði, þá mætti segja að örlög Kittýar og Vestmannaeyja hafa verið samofin frá því að hún kom fyrst til Íslands og horfði í átt að Eyjum frá Hvolsvelli. Fjöllin í fjarska, ferðasumrin og fyrirspurnir um organista leiddu hana til Eyja og vonandi verður hún sem allra lengst hjá okkur.

Viðtal: Elías Ingi Björgvinsson

Vi ð l e i t u m a ð s t a r f s m a n n i á s t e y p u b í l , v i n n u v é l a r o g í s t e y p u s t ö ð f y r i r t æ k i s i n s .

K r a f a e r g e r ð u m m e i r a p r ó f ( C r é t t i n d i )

Á h u g a s a m i r s e n d a u m s ó k n á s a m t f e r i l s k r á

á s t e y p e y @ d v g f . i s f y r i r 3 1 . m a r s .

Driver needed

We a r e l o o k i n g f o r a n e m p l o y e e o n c o n c r e t e t r u c k , h e a v y m a c h i n e r y a n d i n o u r c o n c r e t e s t a t i o n

D r i v i n g l i c e n s e w i t h a d d i t i o n a l C l i c e n s e i s r e q u i r e d .

P l e a s e s e n d y o u r a p p l i c a t i o n w i t h C V t o s t e y p e y @ d v g f . i s b e f o r e M a r c h 3 1 s t .

Potrzebny kierowca

P o s z u k u j e m y p r a c o w n i k a n a b e t o n o w ó z , s p r z ę t o r a z b e t o n i a r k ę .

Wy m a g a n e p r a w o j a z d y k a t e g o r i i C .

P r o s i m y o p r z e s ł a n i e a p l i k a c j i w r a z z C V n a a d r e s s t e y p e y @ d v g f i s d o 3 1 m a r c a

Gledilega páska!

PIZZUTILBOÐ

sent sótt

12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós

[ 4.590 kr. ]

16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 6.290 kr. ]

9” PIZZA

með 3 áleggjum [ 2.290 kr. ]

12” PIZZA

með 3 áleggjum

+ 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.090 kr. ]

OPNUNARTÍMI YFIR PÁSKANA

Skírdagur 12-21

Föstudagur langi 17-22

Laugardagur 12-22

Páskadagur lokað

Annar páskum 12-21

12” PIZZA

með 3 áleggjum [ 2.790 kr. ]

16” PIZZA

með 3 áleggjum

+ 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.790 kr. ]

16” PIZZA með 3 áleggjum [ 3.390 kr. ]

TVENNUTILBOÐ

Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir

[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]

481-1567 ( Sendum heim alla daga

kl.
eftir
17.00

KÍRÓPRAKTORSTÖÐIN HEFUR VERIÐ STARFRÆKT Í AÐ VERÐA 30 ÁR

Kírópraktorstöðin opnaði útibú í Vestmannaeyjum haustið 2021 og hefur stöðin nú verið starfrækt í tvö og hálft ár. Þau koma til Eyja hverja helgi með fáeinum undartekningum. Þannig tryggja þau betri takt í meðferðinum viðskiptavina og þar með meiri árangur. Blaðamaður Tíguls tók stöðuna á þeim

Hvernig hafa íbúar Vestmannaeyja tekið ykkur á þessum tíma ?

Á þeim tíma sem við höfum verið starfandi í Eyjum hefur fólk tekið okkur afar vel. Kírópraktorstöðin hefur verið starfrækt í að verða 30 ár í Reykjavík og á þeim tíma höfum við hitt fjöldan allan af fólki frá Vestmannaeyjum, sem hafa leitað til okkar á stöðina á Sogaveginum. Okkur fannst hins vegar mikilvægt að geta sinnt þessu fólki betur, að geta boðið þeim að koma oftar þar sem margir af viðskiptavinunum þurftu á því að halda að koma oftar í meðferð. Með því að opna stöð í Eyjum gátum við tryggt betra aðgengi að þjónustu okkar fyrir Eyjafólk.

Hvernig veit ég að ég hafi gott að því að láta kíkja á mig og hnykkja? Þetta er mjög góð spurning. Margir leita til kírópraktors þegar þeir finna til verkja og upplifa stoðkerfisvandamál. Algengast er að fólk komi vegna bakvandamála, mjóbaksverkja, klemmdra tauga, höfuð- og hálsverkja, verkja í mjöðmum, hnjám, olnboga og öxlum, svo dæmi séu tekin. Kírópraktík hentar einkar vel sem meðferðarúrræði við slíkum vandamálum og í flestum tilvikum tekst okkur að draga úr einkennum og oft koma fólki til bata. Hins vegar fáum við líka til okkar einstaklinga sem líður vel en vilja fá þennan auka kraft, þessa auknu orku og vellíðan. Þetta fólk vill einfaldlega byggja upp meira heilbrigði, tryggja að líkamsstaðan sé góð, að taugakerfið og blóðrásin sé að vinna með eðlilegum hætti, fyrirbyggja meiðsli og verki og þar fram eftir götunum. Þetta eru oft á tíðum íþróttafólk og fólk sem stundar mikla hreyfingu. En einnig fólk sem einfaldlega vill hámarka heilsuna sína, tryggja að það sé á

fullum afköstum alla daga. Við burstum tennurnar daglega til þess að koma í veg fyrir skemmdir og halda tönnunum sterkum og heilbrigðum. Það sama gildir í raun um hryggsúluna okkar. Það er mikilvægt að hlúa að henni og með því að koma reglulega til kírópraktors er hægt að fyrirbyggja vandamál, styrkja líkamsstöðuna sem aftur tryggir eðlilega virkni taugakerfisins, eykur liðleika og hreyfifærni og gefur okkur þennan auka kraft sem nýtist okkur í leik og starfi.

Hvernig getur fólk aflað sér meiri þekkingar og fræðslu um bakið og stoðkerfið?

Inn á heimasíðunni okkar kiro.is er hægt að finna mikinn fróðleik og fjöldan allan af teygjum og æfingum sem fólk getur framkvæmt heima við. Við hvetjum því fólk til þess að fara inn á kiro.is/aefingar og kiro.is/heilsupistlar og skoða efnið sem þar er að finna.

Hvernig er best að passa upp á að börnin okkar fái ekki kryppu á mik-

illi símanotkun, er einhver teygja sem þið mælið með til að koma á móts við þetta ?

Það er klárlega hægt að vinna á móti skaðlegum áhrifum símanotkunar á hryggsúluna, bæði hjá börnum og fullorðnum. Þegar við höllum okkur fram og höngum yfir símanum, þá bogna axlirnar fram og efri hluti baksins verður kúptur. Þessi líkamsstaða veldur því að vöðvar og liðbönd ýmist styttast eða lengjast sem veldur gríðarlegu ójafnvægi í líkamanum. Með tímanum getur slæm líkamsstaða leitt til ójafnvægis í vöðvum, skertrar starfsemi taugakerfisins, aukins álags á hryggjarliði, vöðva og liðbönd. Allt þetta leiðir svo til stoðkerfisvandamála, verkja og

annað sem tryggir eðlilegt flæði taugaboða, hreyfingar og virkni í líkamanum. Allt þetta hjálpar okkur að viðhalda líkamsstöðunni og byggja upp kjarnavöðva líkamans, sem dregur úr umræddum áhrifum af snjallsímanotkun.

stöðu. Inn á heimasíðunni okkar eru góðar greinar um líkamsstöðuna almennt sem við bendum fólki endilega á að skoða, kiro.is/flokkur/likamsstada/

Hvernig panta ég tíma ?

Vertu

í betra sambandi hjá

Símanum

Þjónustuaðilar okkar taka vel á móti þér.

Sjáumst í HeimaRaf!

Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar 2024

Ágætu unglingar, foreldrar og/eða forráðamenn ungmenna fæddra 2008, 2009 2010 og 2011.

Drodzy nastolatkowie, rodzice i/lub opiekuni młodzieży urodzonej w latach 2008, 2009, 2010 i 2011. Dear teenagers, parents and/or guardians of youth born in 2008, 2009, 2010 and 2011.

Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina, frá júní og fram í ágúst. Allir unglingar úr 7., 8., 9. og 10. bekkjum grunnskólans með heimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku í vinnuskólanum.

Unglingar í 7. bekk geta aðeins valið um vikur frá 15. júlí til 16. ágúst. Unglingum er skipt í hópa og hver hefur sinn flokksstjóra. Stefnt er að hafa verkefnin sem fjölbreyttust en sem fyrr eru garðyrkjustörf og almenn umhirða bæjarfélagsins langstærsti þátturinn í vinnuskólanum.

Í flestum tilfellum er vinnuskólinn fyrstu kynni ungmenna af launaðri vinnu og því mikilvægt að vel takist til. Það er því nauðsynlegt að umræðan á heimili sem og umfjöllun í samfélaginu sé á jákvæðum nótum. Gott er t.d. að hafa í huga að starfsfólk vinnuskóla á rétt á bæði matar- og kaffitímum. Þar sem þau hafa ekki neina sérstaka aðstöðu til umráða er ekki óeðlilegt að þau sjáist sitja og hvíla sig öðru hvoru.

Starfstími unglinganna er misjafn eftir árgöngum:

Árgangur 2011 20 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 - 16 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess kosið. Valdar eru hámark 4 vikur á tímabilinu 15. júlí til 16. ágúst.

Árgangur 2010, 25 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess kosið. Valdar eru hámark 5 vikur af þeim sem eru í boði.

Árgangur 2009, 30 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12- 13 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 6 vikur af þeim sem eru í boði.

Árgangur 2008, 35 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 7 vikur af þeim sem eru í boði.

Reynt verður að koma til móts við óskir um tímabil eftir fremsta megni. Mjög áríðandi er að skila umsóknum fyrir 14. apríl.

Laun

Unglingar fæddir 2011: 798 kr. á klst. með orlofi

Unglingar fæddir 2010: 931 kr. á klst. með orlofi

Unglingar fæddir 2009: 1.064 kr. á klst. með orlofi

Unglingar fæddir 2008: 1.330 kr. á klst. með orlofi

Þeir sem eru fæddir 2008 þurfa að gefa upplýsingar um nýtingu á persónuafslætti hafi þeir náð 16. ára aldri. Laun eru greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar og eru lögð inn á bankareikning og er launatímabil frá 26. hvers mánaðar til 25. þess næsta. Flokkstjórar hafa samband við forráðamenn áður en vinna hefst og gefa upplýsingar um hvar skal mæta ofl.

Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglinga í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 488-2000 eða á netfanginu sumarstorf@vestmannaeyjar.is.

Sumarstörf á vegum Vestmannaeyjabæjar 2024

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldra til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk.

- Afleysing á bæjarskrifstofu Ráðhús

- Bókavörður Bókasafn

- Flokkstjóri í vinnuskóla Umhverfisverkefni

- Forstöðumaður á gæsluvelli Gæsluvöllur

- Hafnarvörður I Vestmannaeyjahöfn

- Hafnarverkamaður Vestmannaeyjahöfn

- Hafnsögumaður Vestmannaeyjahöfn

- Leikskólakennari/leiðbeinandi Kirkjugerði og Gæsluvöllur

- Leikskólakennari/leiðbeinandi Víkin 5 ára deild GRV

- Safnvörður I Byggðasafn/Landlyst

- Safnvörður I Eldheimar

- Starfsmaður á leikjanámskeið Sumarfjör

- Starfsmaður í stuðningsþjónustu og dagdvöl

Málefni aldraðra og fatlaðra

- Sumarstarfsmaður Umhverfisstörf

-Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II Þjónustukjarni fyrir fatlað fólk

-Sundlaugarvörður/starfsmaður í Íþróttamiðstöð Íþróttamiðstöð

- Yfirsetumaður Vestmannaeyjahöfn

- Verkamaður II Umhverfisverkefni

- Verkamaður III (með flokkstjórn) Umhverfisverkefni

- Vélstjóri

Vestmannaeyjahöfn

Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.

Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: sumarstorf@vestmannaeyjar.is

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Páskaísinn

Hráefni:

5 stk egg aðskilin

100 g púðursykur

3 tsk vanillusykur

2 msk bökunarkakó

400 ml þeyttur rjómi

Aðferð:

240 g Cadbury Mini eggs

3 pokar

1 stk brúnn marengsbotn keyptur tilbúinn

Takið til smelluform sem er um 22-24 cm í þvermál. Setjið bökunarpappír í botninn og innan á hliðarnar Fínt að klippa bökunarpappír í langa ræmu sem hægt er að leggja slétta allan hringinn innan á formið (hægt að líma með límbandi til að festa betur).

Saxið Cadbury Mini eggin gróft niður, geymið.

Bútið marengsbotninn niður í munnstóra bita. Ég keypti tilbúinn brúnan marengsbotn til þess að einfalda lífið en auðvitað gætuð þið notað botn sem þið bakið.

Þeytið rjómann og geymið í skál.

Þeytið eggjahvíturnar og geymið í skál.

Þeytið eggjarauður og púðursykur saman þar til létt og ljóst, bætið þá vanillusykri og bökunarkakó saman við og blandið vel saman.

Vefjið næst þeytta rjómanum varlega saman við eggjarauðublönduna með sleikju.

Næst má gera það sama við stífþeyttu eggjahvíturnar, vefja þær saman við blönduna með sleikju.

Að lokum má taka um helminginn af marengsbitunum og Mini eggjunum og hræra saman við með sleikju og hella blöndunni í smelluformið.

Restin af marensbitunum og eggjunum fer síðan ofan á ísinn áður en hann fer í frysti.

Frystið ísinn í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt og njótið síðan með heitri íssósu.

Heit íssósa

200 g gróft saxað Toblerone 100 ml rjómi

Bræðið saman í potti þar til slétt og þykk íssósa hefur myndast.

Leyfið hitanum aðeins að rjúka úr áður en þið notið sósuna.

Uppskrift frá: Gerum daginn girnilegan!

https://gerumdaginngirnilegan.is

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

Gleðilega páska!

PÁSKAOPNUN:

Fimmtudagur 11 til 21

Föstudagur lokað

Laugardagur 11 til 21

Sunnudagur lokað

Mánudagur 11 til 21

Skírdagur

Föstudagurinn langi

Laugardagur

Páskadagur

Annar í páskum

07:00 - 17:00

07:00 - 17:00

07:00 - 17:00

10:00 - 16:00

07:00 - 17:00

Gleðilega Páska!

BÁRUSTIG 1 | S. 481 3939 Vantar þig mynd í: - Ökuskírteini - Visa-áritanir - Ferilskrár - Vinnustaðaskírteini Myndatakan & 4-6 útprentaðar myndir. 4.900 kr. Myndataka í stúdíó Tökum myndir fyrir öll persónuskilríki Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is s. 481 1161

ER LÖNGU BÚINN AÐ LÆRA AÐ

TREYSTA ÞVÍ AÐ SUMT BULL ER GULL

Palla þarf vart að kynna en hann sló fyrst rækilega í gegn í uppsetningu Menntaskólans við Hamrahlíð á The Rocky Horror Picture Show árið 1991, þar sem hann lék hinn óseðjandi Dr. Frank-N-Furter. Síðan þá hefur hann heillað landann með fallegum söng en einnig hefur hann fengið allmarga Íslendinga til að trylla dansgólfið á sínum frægu Pallaböllum. Laugardaginn 30. mars mun Palli mæta til Eyja og verður heljarinnar Pallaball í Höllinni.

Borðaru Páskaegg og hvað er best? Ég byrja að éta Nóa páskaegg um leið og þau sjást í hillum stórmarkaða í janúar ár hvert.

Ertu með einhverjar páskahefðir? Oftast eru páskarnir hjá mér þannig að ég spila eins mikið og ég get, en svo hittist stórfjölskyldan alltaf á mánudeginum annan í páskum. Við erum sirka 45 manns alls, með mökum, börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum, svo við þurfum að hafa mikið fyrir því að hittast öll saman. Við náum því í kringum jól og páska, og svo einu sinni yfir sumartímann.

Hvað kemur þér í stuð? Stuð er

andlegt ástand, og ég passa mig á því að "sæka" mig upp andlega fyrir hvert gigg. Stuðið kemur venjulega yfir mig í öllum sándtékkum, um leið og öll tæknilegu atriðin eru komin á hreint. Þá spennist ég allur upp, finn mikla tilhlökkun og er tilbúinn í ball..

Hvernig undirbýrðu þig fyrir gigg? Ef það er gigg, hvort sem það er stórt eða lítið, þá fer allur dagurinn í giggið á einn eða annan hátt. Það er óumflýjanlegt í mínu tilviki. Ég þarf að hita mig upp andlega og líkamlega og svo fara margir klukkutímar bara í að gera sig sætann.

Við hverju má fólk búast frá þér á sviðinu um páskana? Það má búast við dansgólfi sem fyllist á örskömmum tíma og fólki að öskursyngja með öllum lögunum.

Ertu ástfanginn? Já, ég hef aldrei verið svona ástfanginn í lífinu og fengið svona mikla ást til baka. Ég var búinn að afskrifa þessa pælingu fyrir löngu og svo voru æðri máttarvöld með eitthvað allt annað plan. Nú er ég að láta hvern einasta dag koma mér á óvart.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Allt sem viðkemur listum, tónlist, bíó, leikhús og sviðslistir.

Hvaðan færðu innblástur?

Minn helsti innblástur kemur alltaf óvart úr einhverju bulli sem ég bulla og prófa að spinna í stúdíóinu. Ég er löngu búinn að læra að treysta því að sumt bull er gull.

Hver er þín helsta fyrirmynd? Ég lít upp til fólks sem stendur með sjálfu sér.

Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir? Að vita hvað mun gerast á morgun. Þar sem ég hef ekki þann ofurkraft þá þarf ég að nota annan ofurkraft í staðinn sem heitir traust. Ég þarf stöðugt að treysta því að allt sem gerist verði gott og fari vel.

Hvað færðu þér í morgunmat?

Kaffi með karmellusírópi. Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið? Að kjósa þetta starf.

Hvaða smáforrit er ómissandi? Ekkert af þessu er ómissandi. Ég á í tjúlluðu ástar / haturs sambandi við símann minn. Öll þessi öpp eru hönnuð til að gera mann "hooked".

Hvar líður þér best? Heima er best.

Ef þú ættir eina ósk - hver væri hún? Að ég gæti fengið allar mínar óskir uppfylltar.

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju? Það væri forvitnilegt að fá að kíkja til framtíðarinnar, bara sirka 20 ár fram í tímann og athuga hvort gervigreindin væri þá búin að breyta heiminum í blöndu af Mad Max og Terminator 2. Það væri almesta fokk öpp mannkynssögunnar.

UPPÁHALDS...

Tónlist

Kali Uchis.

Matur

Allt sem er eldað heima.

Drykkur

Pepsi Max

Kvikmynd/þættir Hryllingsmyndir

Bók Dagbókin mín.

SÝNINGIN BÝÐUR UPP Á ALLT ÞAÐ BESTA, HÚMOR, DANS, TÓNLIST OG SÖNG

Fimmtudaginn 28. mars frumsýnir Leikfélag Vestmannaeyja grín söngleikinn Spamalot. Söngleikurinn Spamalot er byggður á kvikmyndinni Monty Python and the Holy Grail og hefur verið sýndur við miklar vinsældir á Broadway, West End og víða um heim.

Valgerður Elín Sigmarsdóttir eða Vallý eins og hún er kölluð hefur haft nóg að sinna við undirbúning verksins. Ásamt því að hjálpa til við sviðmynd, hanna búninga þá leikur hún eina Karamellusystur sem er hluti af sex manna danshóp sem dansa heiftarlega í gegnum verkið.

Hvað getur þú sagt okkur um Spamalot hjá Leikfélagi Vestmannaeyja?

Þetta er alveg frábær sýning sem sýnd hefur verið um allan heim og unnið til margra verðlauna, hún býður upp á allt það besta, húmor, dans, tónlist, söng og svo margt fleira. Leikstjórinn, leikhópurinn og allir aðrir sem koma að sýningunni eiga svo sannarlega skilið gott lof fyrir alla vinnunna sem er nú að skila sér í alveg stórkostlegu verki.

Nú hefur þú mikið komið að hönnun búninga í LV, hvernig kom það til?

Árið 2022 settum við upp Ávaxtakörfuna hér í leikfélaginu þar sem ég lék Geddu Gulrót, ég hafði horft mikið á það leikrit sem barn og var með margar hugmyndir varðandi búninga sem ég stakk undir leikstjórann. Þá vann ég með Unni Guðgeirsdóttur í búningaherberginu og rifjaði upp gamla takta á saumavélinni. Síðan í næstu leikritum hef ég tekið yfir saumadeildinni eftir að Unnur hætti og hef nú bæði unnið með leikstjóra og sjálfstætt við að hanna og sauma/ búa til búninga.

Hvað myndir þú segja að væri uppáhalds búningahönnunin þín?

Þetta verk sem við erum að setja upp núna er búið að vera mjög krefjandi þar sem að við erum að hanna yfir 100 búninga! En þar standa riddara búningarnir helst upp úr. Annars verð ég að segja að Tumi engispretta úr Gosa.

Hvaðan færðu innblástur?

Í hverju verki fyrir sig finnst mér gaman að skoða hvað önnur leikhús úti í heimi hafa gert, síðan skoða ég hvaða tíma og stað þetta gerist á og dreg svo innblástur frá því. Þannig að það veltur mikið á því hvaða leikrit er verið að setja upp og hver karakterinn sjálfur er.

Hvenær kviknaði áhugi þinn fyrir leiklist og hvenær byrjaðir þú í LV?

Mér fannst alltaf mjög gaman að fara á leikrit og leit mikið upp til leikarana á sviðinu en á yngri árum hvarlaði það ekki að mér að fara sjálf á svið og gefa færi á mér, fyrr en í 9. bekk þegar vinkonur mínar drógu mig með sér í leikhúsið. Síðan þá hef ég ekki farið þaðan, enda ótrúlega skemmtilegt.

Hvað hefur þú tekið þátt í mörgum verkum?

Þetta er níunda verkið sem ég tek þátt í en þau eru Klaufar og Kóngsdætur, Latabær, Línu Langsokkur, Spamalot sem fór ekki á svið vegna Covid, Síðan eru liðin mörg ár, Ávaxtakarfan, Rocky Horror, Gosi og nú aftur Spamalot.

Skírdagur

Föstudagurinn langi

Laugardagur

Páskadagur

Annar í páskum

17:00 - 21:00

17:00 - 21:00

11:30 - 21:00

Lokað

11:30 - 21:00

Eldhúsið er opið til 21:00 en GOTT barinn er alltaf lengur!opinn

Opnunartími yfir páskana

Skírdagur

Föstudagurinn langi

Laugardagur

Páskadagur

Annar í páskum

11:00 - 15:00

Lokað

10:00 - 14:00

Lokað

Lokað

Gleðilega Páska!

Skírdagur

Föstudagurinn langi

Laugardagur

Páskadagur

Annar í páskum

Lokað

Lokað

11:00 - 16:00

Lokað

Lokað

Gleðilega páska!

Áttu þér eitthvað draumaverk sem

þú myndir vilja taka þátt í? Moulin Rouge og Chicago.

Besta leikrit/söngleikur sem þú hefur séð?

Back to the future sem ég sá á West End í London. Mæli heiftarlega með.

Örfá orð um það sem þú hefur verið að bardúsa fram til þessa utan LV?

Ég hef verið að undirbúa allt sem þarf áður en ég flyt út í haust og nýta þann tíma sem ég hef með vinum og fjölskyldu.

Áhugamál að leiklist undanskildinni?

Ég hef mjög gaman af öllu föndri og handavinnu, til dæmis að mála eða hekla, spila á nintendo switch, en aðallega finnst mér gaman að vera með vinum mínum og brasa eitthvað skemmtilegt með þeim.

Hverju ertu stoltust af?

Seiglunni minni, hef tileinkað mér

UPPÁHALDS...

Tónlist

Er með mjög víðan tónlistasmekk og það er eiginlega ekki hægt að segja, en uppáhalds í augnablikinu eru örugglega Laufey og Amy Winehouse.

Leikrit

Chicago klárlega.

Matur

Er bálskotin í samlokunum á Eydís í augnablikinu.

það að leggja mig alltaf vel fram og skila frá mér góðu verki.

Á hvað stefniru?

Í haust er ég á leið í nám í Bretlandi til BA-gráðu í Sviðshöfunda-, leikmynda- og búningahönnun.

Hvar sérðu þig fyrir þér eftir 10 ár?

Ég vil helst búa hér á Íslandi með fjölskyldu en vinna allskonar verkefni út um allan heim.

Drykkur

Mjög góður Mojito.

Íþrótt

Eina sem ég hef verið að stunda undanfarið er heiftarlegur dans á æfingum, sem er bara mjög skemmtilegt.

Smáforrit

Notes eða Pinterest.

Kvikmynd/þættir Moulin Rouge.

Hver er þín helsta fyrirmynd?

Mamma og ömmur mínar.

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?

Ég myndi vilja fara aftur til aldamótanna og fara á Spice Girls tónleika, Amy Winehouse tónleika og upplifa íslenska tónlistastefnu á þessum tíma, til dæmis Jónsa í svörtum fötum eða Birgittu Haukdal.

Típískur dagur hjá þér?

Í augnablikinu er það að vakna, borða, leikhús um klukkan níu og fram eftir kvöldi/ nóttu og svo heim að sofa. Nóg að gera í frumsýningarviku.

Hvaða stað/land/borg myndir þú vilja heimsækja og afhverju?

Mig langar að fara til Grikklands eða Krótaíu og bara slaka á í sólinni með ferska appelsínu.

Eru einhverjar páskahefðir hjá ykkur? Ef já, þá hverjar?

Undanfarið hef ég verið að sýna yfir páskanna og það hefur komið upp sú hefð að fara í hádegismat á frumsýningardegi og djamma eftir sýninga helgina. Annars bara liggja uppi í sófa að borða páskaegg og horfa á góða mynd.

Eitthvað sem þú vilt bæta við? Eitthvað að lokum? Allir að mæta á sýningar Spamalot um páskana!

Á að taka baðið í gegn?

/midstodin @midstodin

Þú færð allt fyrir baðherbergið á einum stað. Við bjóðum við upp á frábært úrval af blöndunartækjum, vöskum og klósettum. Gólfefni ásamt úrvali af veggklæðningum.

Gleðilega páska! Gleðilega páska!

Strandvegur 30 | 4811475 | midstodin.is

VÆRI TIL Í GOTT KAFFISPJALL MEÐ TOLKIEN

Margrét Steinunn Jónsdóttir förðunarfræðingur sér um að hanna leikgervið í Spamalot verkinu sem sagt sér um förðun og hár leikaranna en einnig er hún meðstjórnandi í stjórn leikfélagi Vestmannaeyja.

Ásamt þessu er hún að vinna í að klára BA gráðu í bókmenntafræði með kynjafræði sem aukagrein og vinnur á leikskólanum Sóla. Hún er dóttir Helenu Jónsdóttur og Jóns Braga Arnarssonar.

Fjölskylda þín:

Gift Birkir Helgasyni, saman eigum við tvo stráka, þá Hilmar Orra og Jóhann Bjart.

Hefuru verið lengi í þessum bransa?

Ég kynnist Leikfélagi Vestmannaeyja árið 2004 þegar var verið að setja upp Dýrin í Hálsaskógi og fékk þá leikhús-bakkteríuna. Ég hef verið viðloðandi við leikhúsið síðan þá með smá pásum inná milli en alltaf kem ég aftur. En hvað varðar förðunina þá útskrifaðist ég sem förðunarfræðingur 2016 en hef verið að sminka í leikhúsinu síðan 2009.

Hvað er skemmtilegasta verkefni sem þú hefur tekið að þér?

Þau eru nokkur sem standa uppúr, en þau tengjast öll leiklistarbransanum. Ég tók þátt í lokaverkefni með frænda mínum sem var að útskrifast úr Kvikmyndaskóla Íslands það var mjög skemmtilegt. Svo hef ég unnið í Borgarleikhúsinu sem var lærdómsríkt og gaman að kynnast vinnunni í atvinnu leikhúsi. Það er bara rosalega gaman að taka þátt í leikhúsuppsetningum. En mér þykir almennt mjög gaman að farða fyrir hvaða tilefni sem er og brúðarfarðanir standa þar uppúr.

Hvaðan færðu innblástur?

Samfélagsmiðlar veita mikinn innblástur og förðunarfræðingar þar eru mjög aðgengilegir núna. Annars sæki ég mikinn lita innblástur í náttúruna hverju sinni.

Áttu þér eitthvað draumaverk sem þú myndir vilja taka að þér?

Ég er ótrúlega stolt af því að mér hafi verið treyst fyrir því að hanna leikgervið fyrir Spamalot, en það er alltaf gaman að takast á við nýjar áskoranir og ég væri alveg til í að takast á við verkefni eins og Cats þar sem leikgervið er mjög mikið.

Örfá orð um það sem þú hefur verið að bardúsa fram til þessa utan LV?

Fram til þessa hef ég verið í fæðingarorlofi með Jóhanni Bjarti sem er 10 mánaða, ég er þó að taka að mér farðanir líka við hvaða tilefni sem er.

Þín helstu áhugamál?

Leikfélagið og það sem því tengist skipa stóran hluta af mér núna. Annars er ég komin á þann stað að samvera með fjölskyldunni og vinum gefur mér lang mest.

Hverju ertu stoltust af?

Ég hef sjaldan verið jafn stolt af mér og þegar ég varð mamma. En annars er ég almennt mjög stolt af mér þegar ég stend með sjálfri mér og mínum ákvörðunum sem og þegar ég ögra sjálfri mér í nýjum verkefnum.

Hver er þín helsta fyrirmynd?

Ég held ég eigi ekki neina sérstaka fyrirmynd. Ég hef frekar verið að reyna að tileinka mér ákveðna eiginleika sem heilla mig í fari fólksins í kringum mig.

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?

Vá held að ég geti ekki valið það eru of mörg tímabil

í mannkynssögunni sem ég væri til í að upplifa. En sagan af Grikklandi hinu forna og Rómaveldissagan hafa hins vegar alltaf heillað mig.

Eru einhverjar páskahefðir hjá ykkur? Ef já, þá hverjar?

Já og nei, við Birkir erum svolítið að skapa okkar hefðir, en páskarnir eru almennt mjög opnir. Ég er hinsvegar alin upp við Páskadags brunch og ég hef yfirfært það á okkur, ég býð þá vanalega öllum í fjölskyldunum okkar sem eru í eyjum þá páskana. Þessa páskana held ég að við náum að vera öll saman, nema yngri bróðir minn og kærastan hans.

Ég hef líka falið páskaeggin hjá Birkir og Hilmari Orra því ég er alin upp við páskaeggjaleit. Birkir er það hinsvegar ekki og honum finnst ég ekki skemmtileg þegar ég fel hans egg, en ég ætla samt ekki að hætta því.

Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir?

Ég mundi vilja vita ef fólk er að ljúga að mér.

Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið?

Held það sé þegar ég ákvað að kynnast Birkir.

Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju?

Ég væri til í að hitta Tolkien og eiga gott kaffispjall með honum um hans hugarheim innan bókmenntanna, en hann er minn uppáhalds erlendi rithöfundur.

UPPÁHALDS...

Tónlist

Svolítil alæta, en hlusta oftast á íslenskt popp, en country tónlist er alltaf þægileg að hlusta á.

Leikrit

Úff svo margt... þrái að sjá Wicked, en segi annars Rent.

Matur

Saltkjötið og baunirnar hennar mömmu er í miklu uppáhaldi. Svo líka sósan og salatið með hamborgarhryggnum á Aðfangadag, það er alltaf uppáhald.

Drykkur

Gefðu mér klaka með drykknum og ég er góð,

annars drekk ég mest af sódavatni eða vatn með miklum klökum.

Íþrótt

Forfallin handbolta aðdáandi

Smáforrit

Skoða mest Instagram

Kvikmynd/þættir

Get horft aftur og aftur á Lord of the Rings þríleikinn, Hobbit þríleikinn og Harry Potter myndirnar, tek reglulega maraþon á þessum myndum.

Annars eru Friends, The big bang theory og New Girl þættir sem ég get horft á aftur og aftur.

SUDOKU

DAGSKRÁ

LANDAKIRKJU

Mánudagur

15:30 Kirkjustarf fatlaðra (aðra hverja viku)

16:00 Æfing Barnakórs Landakirkju

18:30 Vinir í bata, 12 spora starf – Byrjendahópur

20:00 Vinir í bata, 12 spora starf - Framhaldshópur

Þriðjudagur

17:00 Kyrrðarbænahópur

17:30 Gagnið (aðra hverja viku)

19:30 Samvera Kvenfélags Landakirkju

20:00 Fundur Orðsins (aðra hverja viku)

Miðvikudagur

10:00 Bænahópur

11:00 Helgistund á Hraunbúðum (aðra hverja viku)

14:30 TTT (5.-6. bekkura

15:30 1T2 (1.-2. bekkur)

16:30 3T4 (3.-4. bekkur)

20:00 AGLOW-fundur (fyrsta miðvikudag í mánuði)

Fimmtudagur

10:00 Foreldramorgunn

20:00 Æfing Kórs Landakirkju

Sunnudagur

11:00 Sunnudagaskóli

13:00 Guðsþjónusta

14:30 Guðsþjónusta á Hraunbúðum (síðasta sunnudag í mánuði)

20:00 Æskulýðsfundur

Ástkær eiginkona mín og systir okkar

SIGRÍÐUR ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR (LILLÝ)

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands

í Vestmannaeyjum sunnudaginn 24. mars. Útför hennar verður gerð frá Landakirkju föstudaginn 5. apríl klukkan 14.00. Streymt verður frá athöfninni á landakirkja.is

Haukur Guðjónsson

Guðmundur Lárusson

Valdimar Heimir Lárusson

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Sumarstarf hjá sýslumanni

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum leitar að öflugum starfskrafti í sumarafleysingar. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf sem gerir kröfu um þjónustumiðað viðhorf og framúrskarandi samskiptafærni.

Helstu verkefni:

- Aðstoð við fulltrúa og ritara, einkum við könnun hjónavígsluskilyrða.

- Afleysingar við almenn afgreiðslustörf (móttaka umsókna um vegabréf, ökuskírteini, dvalarleyfi o.fl.).

Menntunar- og hæfnikröfur:

- Stúdentspróf er áskilið. Nám á háskólastigi er æskilegt.

- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.

- Þjónustulund, heilindi og góð færni í mannlegum samskiptum.

- Stundvísi, áreiðanleiki og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu.

- Jákvæðni, frumkvæði og vandvirkni.

- Góð almenn tölvukunnátta.

- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. (Færni í öðrum tungumálum er kostur.)

- Hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar:

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið miðað við framsettar menntunar- og hæfnikröfur.

Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu Sýslumannsins í Vestmannaeyjum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Kristín Þórðardóttir, settur sýslumaður (kristin.thordardottir@syslumenn.is). Umsóknir sendist á framangreint netfang.

Starfshlutfall er 100%. Vinnutími er frá kl. 08:00 – 15:30 alla virka daga nema föstudaga kl. 08:00 – 14:00.

Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan maí n.k. Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2024.

Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði og eru leiðandi í stafrænni og rafrænni opinberri þjónustu. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum annast könnun hjónavígsluskilyrða á landsvísu ásamt öðrum sérverkefnum. Nánari upplýsingar um verkefni sýslumanna má finna á island.is/syslumenn.

ATNV

ÍASNDL

IPMHISKEE

RLFÁU

JHÓHLÝIS

JSÁSMNLDYF

GGLIUG

MÁURML

ELKSKIÓANLBAR

KSÓIL

HÁMLFÁIN

MTNNII

GETUR ÞÚ FUNDIÐ ÚT ORÐIN?

IKTVANRTI

RYGNUNIIERNH AKKPOASR

AJAEFJADELLYL RULERSUTTG

GTNETIAVIASÐRU

TUARLSKLUSU EASRVGGRI

ATASYRNKTIS

IVÐPANLIARL

SSÍÓAS

MAARUBLEALGRKÐ

GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?

KÓRÓNA

HJARTA FLAKKARI

TÖLVUREIKNIR

FISKISLOPPUR FRYSTIHÚS

TEIKNIBÓLA

APÓTEK
GJALLARHORN
UMSLAG
TÓNLISTARMAÐUR
LEIKARI
STAFARUGL

VÆRI TIL Í AÐ UPPLIFA 80´S TÍMABILIÐ

Emma Bjarnadóttir hefur ásamt Birtu Marinós, Guðrúnu Elfu og Önnu Maríu skipt dönsum verksins á milli sín þar sem þeir eru ofboðslega margir og mikil vinna á bakvið þá. Emma og Birta sömdum dansa saman og kenndum leikurunum í leiksýningunni Spamalot. Emma er með Bs gráðu í sálfræði og vinnur sem ráðgjafi hjá félagsþjónustunni. Einnig kennir hún dans í grunnskólanum og hjá fimleikafélaginu. Hún á tvö börn þau Emilíu Dís og Emil Gauta með manninum sínum Kalla. Blaðamaður Tíguls heyrði frá Emmu.

Hverra manna ertu?

Ég er dóttir Hafdísar Kristjáns og Dadda og á tvo yndislega stjúpforeldra, Palla hennar mömmu og Guðrúnu hans pabba.

Hvernig kemur þú að leikritinu?

Hefuru verið lengi í þessum bransa? Við Birta höfum báðar verið í mörg ár í leikhúsinu, við byrjuðum báðar ungar að taka þátt í barnaleikritum og tókum þátt í öllum þeim verkum sem við áttum tök á að vera með í s.s Blái Hnötturinn, Mamma Mia, Grease og einnig leikhústónleikum.

Hvað er skemmtilegasta verkefni sem þú hefur tekið að þér?

Ég hef tekið mikið af skemmtilegum verkefnum að mér, ég sá t.d. um Sumarstúlkuna þegar ég var tvítugs-

aldri sem að var ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt. Núna nýlega vorum við Birta leiðbeinendur í valfagi í GRV þar sem við fórum með hæfileikaríkan hóp af krökkum til Þorlákshafnar og þau kepptu fyrir hönd GRV í hæfileikakeppninni Skjálftinn með atriði sem krakkarnir bjuggu til sjálf.

Hvaðan færðu innblástur?

Ég horfi mikið á dansa á youtube og TikTok og nýti mér þá miðla óspart við að pússla saman dönsum.

Áttu þér eitthvað draumaverk sem þú myndir vilja taka að þér?

Ójá, ég held ég tali fyrir okkur Birtu báðar, við eigum það sameiginlegt að dreyma um að það verði sett aftur upp Hárið og svo Moulin Rouge! Þessi tvö leikrit eru með tónlist sem væri ótrúlega gaman að hanna dansa við.

Örfá orð um það sem að þú hefur verið að bardúsa fram til þessa utan LV?

Við Birta ásamt vinkonu okkar Agnes Líf höfum verið með námskeið sem er einmitt sprottið út frá reynslu okkar í leikhúsinu og úr námi okkar í sálfræðinni og þroskaþjálfanum. Það snýst um að efla sjálfstraustið og að auka hugrekki sem leikhúsið gerði að miklu leyti fyrir okkur allar.

Við höfum einmitt verið að vinna að því að finna tíma fyrir nýtt námskeið sem verður auglýst á næstunni.

Þín helstu áhugamál? Ætli það sé ekki dans og fimleikar.

Hverju ertu stoltust af? Auðvitað af fjölskyldunni minni sem ég er ótrúlega þakklát fyrir og hefur þolinmæði fyrir mér og öllum mínum spennandi hugmyndum. En svo er ég líka ótrúlega stolt af okkur vinkonunum og litla barninu okkar Hugrökkum stelpum.

UPPÁHALDS...

Tónlist

Ed Sheeran

Leikrit

Mamma mia

Matur

Crepes

Drykkur

Rauður Collab

Íþrótt

Fimleikar

Smáforrit

TikTok

Kvikmynd/þættir Big Bang Theory

Hver er þín helsta fyrirmynd?

Foreldrar mínir sem eru öll svo ótrúlega dugleg. Öll sem eitt. Þau láta enga stiga eða tröppur hindra sig og koma því í verk sem þau ætla sér og gera það vel. Þau eru góð, hvetjandi og styðja við sína, ég vona að ég verði jafn frábær og þau þegar ég verð stór.

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?

Ég held það sé 80´s tímabilið, ég væri til í að upplifa þann tíma.

Eru einhverjar páskahefðir hjá ykkur? Ef já, þá hverja?

Ekki beint nein hefð en við leitum af páskaeggjum á páskadag og borðum góðan mat um kvöldið. Svo reynum við bara að nýta páskana í góðar fjölskyldustundir.

Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir? Lesa hugsanir.

Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið?

Að flytja til Tenerife með ekkert plan nema að það markmið að fá vinnu í animation teami á Iberostar hóteli.

Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju?

Ed Sheeran því hann er Ed Sheeran.

STARFSLAUN BÆJARLISTAMANNS 2024

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2024.

- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félaga samtökum.

- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.

Nánari upplýsingar veitir Súsanna Georgsdóttir með tölvupósti (susanna@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000.

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2024
Miðasala á tix.is/hollin Framundan í HÖLLINNI LAUGARDAGUR 30. mars PALLABALL FÖSTUDAGUR 31. maí LAUGARDAGUR 1. júní LÉTTÖL Fylgist með okkur á Facebook, því meira á eftir að koma! NÝ DÖNSK FÖSTUDAGUR 5. apríl STURLUÐ SJÓMANNADAGSHELGI FRAMUNDAN: Kristó Auddi Sverrir Bergmann HalldórGunnar Kristín& SæpórVídó Bandmenn Steindi Sjómannadagsball VESTMANNAEYJA Sjómannadagsball 2024 2024

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 12. tbl 06. árg. by Leturstofan - Issuu