
1 minute read
GRÆJU SUMAR


Advertisement


TINNA MJÖLL FULLTRÚI FÍV Í ÍSLANDSMÓTI IÐN- OG VERKGREINA
FRÉTTAHORN FÍV
Íslandsmóts iðn- og verkgreina fór fram dagana 16.-18. mars sl. í Laugardalshöll. Keppt var í 22 faggreinum þar sem keppendur tókust á við krefjandi og raunveruleg verkefni sem reyndu m.a. á hæfni, leikni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Fulltrúi Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum var Tinna
Mjöll Guðmundsdóttir og keppti hún í málmsuðu ásamt öðrum framúrskarandi nemendum á því sviði. Verkefnið reyndi á mismunandi aðferðir og tækni, m.a. mic-, tic- og pinnasuðu. Þegar Tinna


Mjöll var spurð út í keppnina sagði hún að taka þátt í svona keppni hafi verið langt út fyrir hennar þægindaramma. Umgjörðin var stór og mikið af fólki. Umhverfið og áreitið á meðan á þessu stóð hafi því aukið pressuna en fyrst og fremst hafi þetta verið frábært upplifun. Þessir tveir dagar voru henni afar lærdómsríkir og fara beint í reynslubankann.
Hún kynntist einnig fullt af nemendum þarna og hefurtengslanetið stækkað töluvert. Árangur Tinna Mjallar í keppninni var mjög góður og á hún framtíðina fyrir sér á þessu vettvangi. Tinna stundar nám við vélstjórnarbraut í FÍV og klára B-stigið núna í vor og stefnir á að hefja nám við C-stig í haust. Auk þess er hún langt komin með viðbótarnám til stúdentsprófs. Í náinni framtíð er svo stefnan tekin á Tæknifræði í Háskóla Reykjavíkur.
Fyrirhugað er að fara af stað með C-réttinda nám í vélstjórn í FÍV næst haust en námið veitir réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og
1. vélstjóra á skipum með vélarafl minna en 3000 kW (STCW III/3) og undirvélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl.




NÆSTU SÝNINGAR:

21. apríl kl. 19:00 - 8. sýning
21. apríl kl. 22:00 - 9. sýning - PARTÝ!