Tígull 11. tbl 06. árg.

Page 1

11. tbl. 06. árg. 20. - 26.mars 2024

DAGUR

STÆRÐFRÆÐINNAR 14.MARS 2024

Þann 14.mars var dagur stærðfræðinnar og ákvað Víkin 5 ára deild í Hamarsskólanum að halda upp á daginn með skemmtilegri stöðvavinnu. Við fengum þessar skemmtilegu myndir frá starfsfólkinu á Víkinni. Börnin á Víkinni fara í stærðfræðitíma einu sinni í viku þar sem lögð hefur verið áhersla á talningu, form og hin ýmsu stærðfræðihugtök. Megináhersla stundarinnar er nám í gegnum leikinn og unnið er markvisst að því að finna nýjar og fjölbreytar leiðir til náms. Í Víkinni eru þrjár deildir og var ákveðið að hafa 3 stærðfræði stöðvar á hverri deild. Þar fengu börnin tækifæri til þess að fá fjölbreytta nálgun á stærðfræðinám í litlum hópum. Dagurinn lukkaðist mjög vel þar sem bæði börn og kennarar skemmtu sér í leikjum og námi með ólíkan efnivið t.d. legókubba, tölur, steina, spil, dublokubba og fleira.

Eins og sjá má á myndunum er leikur að læra.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

TÖLVUR OG GRÆJUR Í TÖLVUTEK PÁSKA FJÖR PlayStation 5 Slim 89.990 Verð frá 30” 200Hz leikjaskjár 49.990 Úrval leikjastóla 19.990Verð frá 189.990 199.990 Ultra Wide Curved Meta Quest 2 VR 69.99079.990 PÁSKATILBOÐ 10.000 Afsláttur PÁSKATILBOÐ 10.000 Afsláttur EPOS LEIKJAHEYRNARTÓL 7.990 Verð frá ALLT AÐ 40% Afsláttur 20. mars 2024 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l SENDUM FRÍTT ALLT AÐ 10KG

ÁRSHÁTÍÐ GRUNNSKÓLANS

Árshátíð Grunnskóla Vestmannaeyja var haldin með pompi og prakt síðastliðið fimmtudagskvöld Í Höllinni. Salurinn var glæsilega skreyttur.

Veislustjórar kvöldsins voru Ágústa, Elísabet Rut Sigurjónsdóttir, Ágústa Andersen, Maks Bulga og Alanys Medina.

Í boði var þriggja rétta máltíð að hætti Einsa Kalda, happadrætti, spurningaleikur, Fifa keppni og skemmtikraftarnir, DCRM aka Dominic hitaði upp fyrir Prettyboitjokko. Veronika Yakovlyeva tók lagið og Hljómsveitin Þögn kom og tók nokkur lög og svo voru myndbönd nemenda úr 10. bekk sem slógu í gegn. Þar voru þeir Ingi Gunnar, Auðunn Snær, Kristján Ægir, Heiðmar Þór, Stefán Geir og Gunnar Páll sem hlutu verðlaun fyrir sitt myndband.

Sú hefð að kjósa ýmsa titla var á sínum stað og hlutu eftirfarandi verðlaun:

Flippkisi GRV

Guðmundur Huginn Guðmundsson

Bjartasta framtíð

Agnes Lilja styrmisdóttir

Bros GRV

Tinna Mjöll Frostadóttir

Drip god GRV

Anton Frans Sigurðsson

Krútt GRV

Birgir Rúnar

Samlokur GRV

Birna Dögg Egilsdóttir & Ástþór Hafdísarson

Ungfrú GRV

Birna Dögg Egilsdóttir

Herra GRV

Heiðmar Þór Magnússon

Ljósmyndari Tíguls var með myndavélina á lofti og náði skemmtilegum myndum frá kvöldinu.

Drip God GRV: Anton Frans Flippkisi GRV: Guðmundur Huginn Krútt GRV: Birgir Rúnar Bjartasta framtíð GRV: Agnes Lilja Samlokur GRV: Birna Dögg & Ástþór Bros GRV: Tinna Mjöll Herra GRV: Heiðmar Þór Magnússon & Ungfrú GRV: Birna Dögg Egilsdóttir. Kynnar kvöldsins; Elísabet Rut Sigurjónsdóttir, Ágústa Andersen, Maks Bulga og Alanys Medina. Besta myndbandið; Ingi Gunnar, Auðunn Snær, Kristján Ægir, Heiðmar Þór, Stefán Geir og Gunnar Páll.

VIÐBURÐIR FRAMUNDAN

FIM PÁSKABINGÓ

21 MARS

Mfl kvk í knattspyrnu Höllin kl. 19:30

21

FIM MARS

LÍKN MEÐ BASAR & KÖKUBOTNASÖLU Faxastíg 35 kl. 16:00 - 18:00

22 MARS

FÖS ÍBV - FH Olísdeild karla Íþróttamiðstöðin kl. 19:30

LAU MARS

23 STJARNAN - ÍBV Olísdeild kvenna TM völlurinn Garðabæ kl. 17:30

MIÐ INGÓ VEÐURGUÐ SÖNGUR & SÖGUR

27 MARS

27 MARS

Alþýðuhúsið kl. 20:30

30

LAU MARS

BALL MEÐ PÁLI ÓSKARI Höllin kl. 23:00

30 MARS

INGÓ VEÐURGUÐ Söngur & sögur í Alþýðuhúsinu kl. 20:30 Aðgangseyrir 5.000 kr. Forsala miða í Klettinum.
Á PÁSKUNUM! klukkan 23:00
PALLABALL

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Vertu í betra sambandi hjá

Símanum

Þjónustuaðilar okkar taka vel á móti þér.

Sjáumst í HeimaRaf!

AÐALFUNDUR

Aðalfundur Einhugar, aðstandendafélags einhverfra í Vestmannaeyjum verður haldinn miðvikudaginn 27.mars kl.19.30 í Framsóknarsalnum að Kirkjuvegi 19.

Dagskrá: Ávarp fundarstjóra / Ávarp formanns / Ávarp gjaldkera

Tillögur að starfinu framundan / Stjórnarkjör / Önnur mál.

Léttar veitingar í boði.

Hvetjum félaga og aðra áhugasama að mæta.

Stjórnin.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Skinkuhorn

Hráefni:

Skinkuhorn

400 ml mjólk

12 g þurrger (1 pk)

1 msk sykur

100 ml olía

1 tsk salt

660 g brauðhveiti (Blátt Kornax)

Fylling

200 g skinka

250 g smurostur, skinkumyrja Rifinn Mozzarella ostur

Deig

Hitið mjólkina þangað til hún er ylvolg, í örbylgjuofni eða potti. Setjið í hrærivélarskál og bætið þurrgerinu saman við, hrærið létt saman. Leyfið því að standa örlítið meðan þið takið hin hráefnin saman. Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og hrærið með krók á lágri stillingu í 3-4 mín.

Takið deigið sem hefur fest við krókinn af og takið deigið í hendurnar á ykkur og hnoðið í kúlu.

Setið deigið aftur í skálina og rakt viskastykki yfir. Leyfið deiginu að hvíla í minnst 1 klst.

Fylling

Skerið skinkuna niður í ferninga og blandið saman við smurostinn.

Aðferð

Takið deigið og setjið á hveitistráð borð og skiptið því upp í tvennt. Takið annan helminginn og fletjið út hring sem er um það bil 5 mm á þykkt. Skerið síðan deigið í 16 þríhyrninga.

Setjið u.þ.b. eina teskeið af fyllingu á hvern þríhyrninn og setjið á breiðari endann. Gott að setja smá rifinn ost til að gera extra djúsí. Til að rúlla þeim upp, tosið aðeins í hornin sitthvoru megin við fyllinguna, lokið fyllinguna inni með deiginu og rúllið upp. Tosið í mjóa endann til að fá brotið í þeim til að enda undir horninu. Leggið hornin á bökunarpappír og látið mjóa endann snúa niður og hafið gott bil á milli þeirra.

Passið að fyllingin sé lokuð inni í deiginu svo hún renni ekki út um allt þegar þau fara inn í ofn. Leyfið þeim að hefast í 20-30 mín. Endurtakið með hinn helminginn af deiginu. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C blástur. Setjið smávegis mjólk í glas og penslið yfir hornin til að fá fallega áferð á þau. Setjið rifinn ost ofan á hvert horn. Bakið hornin í 10 mín eða þangað til þau eru orðin gullinbrún.

Vantar þig málara?

Hvort sem það er smá lagfæring eða meiriháttar breyting þá erum við með lausnina fyrir þig.

Áratuga reynsla í málun innan og utanhúss

Nýmálun og endurmálun

s: 898-2651 / johann.gislason@simnet.is

Jói Málari

Allt að verða tilbúið fyrir sýningar grín söngleiksins

Fyrstu sýningar:

Frumsýning 28. mars

2. sýning 29. mars

3. sýning 30. mars

GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?

SUDOKU
FISKUR HVALUR MÁLNING VATNSPÍPA BLEIKUR GLUGGI HIMINN MÁNI LJÓSMYND KAFFI HÖND SKÁPUR

Á að taka baðið í gegn?

Þú færð allt fyrir baðherbergið á einum stað. Við bjóðum við upp á frábært úrval af blöndunartækjum, vöskum og klósettum.

Gólefni ásamt úrvali af veggklæðningum.

Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
/midstodin @midstodin

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 11. tbl 06. árg. by Leturstofan - Issuu