Tígull 11. tbl 05. árg.

Page 1

Gleðilega páska!

11. tbl. 04. árg. 5. apríl - 18. apríl 2023

ÞAÐ ERU ALLIR HRIFNIR AF VESTMANNAEYJUM

Daníel Geir Moritz fer yfir stöðuna í Höllinni

Já, við höfum gert talsverðar breytingar. Við höfum tekið í gagnið nýtt ljósakerfi og stórbætt hljóðkerfi hússins, bæði í Höllinni og uppi á Háalofti. Þá eru skrilljón litlir hlutir sem Svanur er búinn að snurfusa við og hefur húsið líklega aldrei verið í betra standi. Við viljum sýna þessu húsi þann sóma sem það á skilið og þá líður gestum okkar vel. Við ákváðum líka að hafa forsölu alltaf á Tix.is og hefur það gefið afar góða raun.

Hvernig finnst ykkur viðtökurnar hafa verið við viðburðunum? Við erum bara virkilega þakklátir fyrir viðtökurnar, mætinguna og peppið sem við höfum fengið. Þetta skiptir allt miklu máli og má alltaf heyra í okkur með hugmyndir að viðburðum.

Þeir Daníel Geir og Svanur tóku við rekstri Hallarinnar í miðjum heimsfaraldri og horfa nú fram á fyrsta árið í rekstri án takmarkanna. Talsvert hefur verið um viðburði í vetur og svaraði Daníel nokkrum spurningum frá blaðamanni Tíguls.

Hvernig gengur að fá tónlistarfólk til að vera með viðburði í Eyjum?

Það gengur alveg rosalega vel. Það eru allir hrifnir af Vestmannaeyjum og eiga þaðan góðar minningar, enda auðvelt að skemmta fólki sem mætir alltaf til að skemmta sér almennilega. Það fer hins vegar í taugarnar á mér að Skítamórall sé ekki starfandi sem stendur! Þeir eru það sem mig langar mest að bóka en koma tímar, koma ráð.

Hafið þið gert miklar breytingar frá því að þið hófuð reksturinn á Höllinni/Háaloftinu?

TÍGULL

DREIFING:

Eitthvað sem stendur upp úr? Það er auðvitað frábært þegar fyrirtækin í bænum koma hingað með viðburði, eins og árshátíðir. Þetta auðveldar okkur allt saman og höfum við fengið góð viðbrögð hjá þeim sem hafa haldið hjá okkur árshátíðir eða veislur. Af okkar viðburðum standa tveir upp úr fyrir mér. Annars vegar er það þegar við smekkfylltum húsið á tónleikum með Bjartmari síðasta sumar og hins vegar uppistandið með Pétri Jóhanni núna í janúar. Þar ætluðum við að gera eitthvað skemmtilegt á leiðinlegustu helgi ársins, síðustu helginni í jan, en vorum vissir um að ná allavega góðri stemningu á Háaloftinu. Aðsóknin var síðan svo mikil að við ekki bara færðum viðburðinn í Höllina heldur varð gersamlega smekkfullt hjá okkur og uppselt. Við hefðum getað selt fleiri tugi miða í viðbót miðað við eftirspurn, enda Pétur frábær.

Hvernig leggst árið í ykkur, nóg að viðburðum framundan? Árið leggst alveg svakalega vel í okkur og hefur farið mjög vel af stað. Það er búið að bóka heilmargt í húsið; brúðkaup, ættarmót, afmæli, árgangsmót o.fl. Þá erum við búnir að skipuleggja fullt af viðburðum sem ég hlakka mjög til að sjá raungerast. Ber þar kannski hæst tónleikarnir með Pálma Gunnars núna í apríl, Skonrokk, Sjómannadagsballið og svo verður gaman að halda kósý tónleika með Stebba og Eyfa um Goslokin. Við erum með virka Facebook síðu þar sem fólk getur fylgst með okkur, sem og á síðunni www.tix.is/hollin.

Eitthvað að lokum? Bara, hvetja fólk til að hafa samband ef það er að spá í einhvern viðburð og við finnum lausn á því. Húsið býður upp á endalausa möguleika. En mig langar persónulega að lokum að taka fram hversu ánægður ég er með samstarfið við þau Svan og Ingunni. Það er allt auðveldara með góðu fólki og hefur þetta verið virkilega gaman og erum við rétt að byrja!

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Allar vörur á 10-15% afslætti laugardaginn 8. Apríl *gildir ekki af vörum sem eru á sérverði Strandvegur 30 | 4811475 | midstodin.is Gleðilega páska! Gleðilega páska!

NEMENDUR Í ÍSLENSKU FENGU FRÁ YRSU SIGURÐARDÓTTIR

FRÉTTAHORN FÍV

Nemendur í íslensku fengu góða heimsókn í kennslustund um miðjan marsmánuð þegar að Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur kom til okkar á Teams og leyfði okkur að skyggnast inn í líf sitt sem höfundar. Eins og alþjóð veit er Yrsa einn af okkar þekktustu og vinsælustu höfundum og nýtur mikillar hylli í útlöndum. Yrsa hefur skrifað átján glæpa- og spennusögur sem hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. Það sem hefur hins vegar ekki farið eins hátt er að hún hefur einnig skrifað sex barnabækur sem einnig njóta vinsælda.

Yrsa fór yfir sviðið allt frá því að hún fær hugmyndir sem þróast og verða að sögu í bók. Hún las mikið sem barn og unglingur og á unglingsárunum ákvað hún einhverju sinni að lesa eina bók á dag. Það gekk ágætlega í átta mánuði en þá fékk hún bók í hendurnar sem var of löng til að klára á svo stuttum tíma og þar með var áskoruninni lokið. Þetta vakti mikla athygli nemenda og ljóst er að Yrsa hefur snemma haft mikinn áhuga á bókun og trúlega átt þátt í því að hún er rithöfundur. Þetta sýnir hvað

lestur er mikilvægur fyrir alla sem vilja og stefna á að skrifa texta eða vinna með skapandi skrif og á þátt í því að þroskast og lesa í persónur og umhverfi.

Yrsa benti nemendum á að tölvuleikir, annað afþreyingarefni og kvikmyndir virkuðu ekki eins og bækur enda ert þú þá áhorfandi eða þátttakandi . Aftur á móti þarf lesandi sjálfur að túlka lýsingu á persónu í bók og skapa og ráða í efnið eftir sínu höfði. Þannig verður persónan til í huga hvers lesanda fyrir sig. Sama á við um umhverfi, samfélag, athafnir og framgang sögunnar.

Þegar hún var spurð út í umhverfi og aðstæður í bókum sem hún skrifar sagðist hún velja það eftir því hvað hentaði söguþræðinum. Til dæmis var hún einu sinni á ferðalagi og komið á stað þar sem ekki var netsamband og valið hann sem sögusvið þar sem það hentaði mjög vel efni sem hún var að vinna með. Tvær af sögum hennar gerast í Vestmannaeyjum og hún sagði að aðstæður sem hér gætu hugsanlega komið upp hentuðu vel ef allt væri lokað

vegna veðurs og persónur gætu þess vegna ekki yfirgefið staðinn. Þegar hún kom til okkar var hún að vonast til að komast einn túr á loðnubát áður en vertíð lyki og kynna sér þannig aðstæður um borð. Spurning hvort við getum lesið bók áður en langt um líður sem tengist loðnuveiðum. Aldrei að vita.

Fram kom að lengi vel hafi viðhorf til íslenskra glæpasagna verið heldur neikvætt og menn töldu eiginlega ekki hægt að skrifa þær inn í okkar samfélag en það hefur breyst. Yrsa kom aðeins inn á norrænu glæpasöguna sem hefur sín sérkenni, munur væri á lesendum þeirra og annara glæpasagna. Hún útskýrði það á einfaldan og á athyglisverðan hátt. Norðurlandbúar eru t.d. hrifnari að Mikka mús en Andrési önd og það væri vegna þess að Mikki mús væri ekki fullkominn.

Auðvitað kom margt fleira fram og nemendur voru ánægðir með að hitta rithöfund, hlusta á hvernig hún nálgast hlutina og það sem hún hafði fram að færa.

Guðbjörg Sigurgeirsdóttir

tilboðPáska

Eru gluggarnir óþéttir og kominn tími á nýja?

Skanva hefur yfir 10 ára reynslu í Skandinavíu, þar sem gott og vandað gæðahandverk

einkennir alla glugga og hurðir Skanva. Þar að auki eru Skanva gluggar og hurðir vottaðir og

slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður. Skanva framleiðir glugga og hurðir í margvíslegum útfærslum, þar sem lögð er rík áhersla á efnisgæði, öryggi og fagurfærði.

Gildir aðeins t.o.m. 11. apríl

Netklúbbur Skanva.is

Skanva ehf. - Fiskislóð 73 - 101 Reykjavík - S: 558 8400

Todor þjálfari

meistaraflokk kvenna

ÍBV í knattspyrnu:

SPENNTUR FYRIR

SUMRINU & HLAKKAR

TIL FYRSTA LEIKS

Sjómannadagsball

Meistaraflokkur kvenna ÍBV átti flott tímabil síðasta sumar. Enduðu í 6. sæti Bestu deildarinnar með 29 stig, 8 sigra, 5 jafntefli og 5 töp. Í þessum átján leikjum skoruðu stelpurnar 27 mörk en fengu hinsvegar á sig 28 Í Mjólkurbikarnum féllu þær út í átta liða úrslitum.

Í Lengjubikarnum núna í febrúar og mars endaði ÍBV í fjórða sæti síns riðils með tvo sigra og þrjú töp. Stelpurnar hefja tímabilið á heimaleik gegn Selfossi þriðjudaginn 25. apríl kl. 18.00.

Töluverðar breytingar hafa orðið á hópnum frá því á síðasta ári þar. Þær Sandra Voitane og Madison Wolfbauer yfirgáfu herbúðir ÍBV og gengu til liðs við Keflavík. Auður S. Scheving, sem var í láni frá Val, í Stjörnuna, Hanna Kallmaier í Val og Lavinia Boanda hélt til ítalíu. Einhverjir nýjir leikmenn hafa þó bæst í hópinn. Caeley Lordemann kom frá North Carolina Courage í Bandaríkjunum, Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz frá Breiðabliki og Camila Pescatore frá Bandaríkjunum. Þá er nýr þjálfari í brúnni Todor Hristov. Við heyrðum aðeins í kappanum um komandi tímabil.

Todor Hristov er 35 ára en hann flutti til Vestmannaeyja í nóvember 2020. Hann hefur menntað sig á Íslandi síðastliðin sjö ár og er með UEFA A og UEFA B.

Todor segir undirbúningstímabilið hafa gengið mjög vel og finnst hann vera heppinn með þetta tæki færi að þjálfa þennan hóp. „Við spiluðum leiki í lengjubikarnum og æfingaleiki og er það mjög gaman fyrir mig

sem þjálfari að sjá svona margar ungar stelpur taka þátt og sjá bætingu hjá þeim hvern einasta dag. Og þær eru komnar með góða reynslu eftir þessa leiki. Það er töluverð breyting á hópnum frá því í fyrrasumar og höfum við fengið frábæra leikmenn í liðið okkar fyrir tímabilið. En mér líst mjög vel á hópinn. Það er spennandi og gaman að blanda leikmönnum með mikla reynslu og mörgum ungum efninlegum stelpum.

Það er ekkert

Mórallinn í liðinu er mjög góður og mér finnst stelpurnar ná vel saman sem er mjög mikilvægt. Ég er meira en spenntur fyrir sumrinu og hlakka mig til fyrsta leiks sem er gegn Selfossi. Að lokum langar mig að hvetja alla til að koma á leiki í sumar og búa til stemningu fyrir stelpurnar okkar. Þær hafa staðið sig vel í vetur og finnst mér þær eiga það skilið að fá stuðning og hvatningu í leikjum. Við munum lofa að gera okkar besta í hverjum einasta leik, segir Todor.“

skemmtilegra en að þjálfa á einum af fallegustu stöðum á Íslandi.

Sjómannadagsball Vestmannaeyja Sjómannadagsball

MIÐASALA HAFIN Á TIX.IS/HOLLIN

UnaSara&
ErnaHrönn Á móti sól
Halli Melló
Magni
Hebert
3. JÚNÍ 2023 Í HÖLLINNI!

MEISTARAFLOKKUR KVENNA 2023

KNATTSPYRNA

Júlíana Sveinsdóttir Varnarmaður 25 ára #3 Ragna Sara Magnúsdóttir Varnarmaður 19 ára #2 Valentina Quinones Markvörður 24 ára #12 Guðný Geirsdóttir Markvörður 25 ára #30 Haley Thomas Varnarmaður 24 ára #18 Camila Pescatore Varnarmaður 22 ára #5 Kristjana Sigurz Varnarmaður 20 ára #8 Helena Jónsdóttir Varnarmaður 19 ára #24 Inga Dan Ingadóttir Varnarmaður 17 ára #25 Embla Harðardóttir Varnarmaður 16 ára #23 Rakel Perla Gústafsdóttir Varnarmaður 16 ára #22 Erna Davíðsdóttir Varnarmaður 16 ára #27 Caele Lordemann Miðjumaður 25 ára #4 Olga Ševcova Sóknarmaður 30 ára #14 Berta Sigursteinsdóttir Sóknarmaður 18 ára #11 Þóra Björg Stefánsdóttir Miðjumaður 19 ára #7 Kristín Erna Sigurlásdóttir Sóknarmaður 31 ára #9 Thelma Sól Óðinsdóttir Miðjumaður 18 ára #6 Sara Sindradóttir Varnarmaður 16 ára #19 Vika Zaicikova Miðjumaður 22 ára #17 Selma Björt Sigursveinsdóttir Sóknarmaður 19 ára #15 Holly Taylor O´Neill Sóknarmaður 24 ára #10 Anna Margrét Svansdóttir Sóknarmaður 16 ára #28 Elísabet Sigurjónsdóttir Sóknarmaður 15 ára #16 Mikkel Hasling Aðstoðarþjálfari
FYRSTU HEIMALEIKIRNIR 2023 Á HÁSTEINSVELLI 25. apríl ÍBV - Selfoss kl. 18:00 7. maí ÍBV - Þór/KA kl. 14:00 15. maí ÍBV - Þróttur R. kl. 18:00 31. maí ÍBV - Tindastóll kl. 18:00 12. júní ÍBV - Breiðablik kl. 18:00
Todor Þjálfari

MEISTARAFLOKKUR KARLA 2023

Elvis Okello Bwomono Varnarmaður 25 ára #27 Guðjón Ernir Hrafnkellsson Varnarmaður 22 ára #7 Eiður Aron Sigurbjörnsson Varnarmaður 33 ára #23 Sigurður Arnar Magnússon Varnarmaður 24 ára #2 Jón Kristinn Elíasson Markvörður 22 ára #1 Guy Smit Markvörður 27 ára #12 Nökkvi Már Nökkvason Varnarmaður 23 ára #4 Felix Örn Friðriksson Varnarmaður 24 ára #3 Jón Ingason Varnarmaður 28 ára #5 Bjarki Björn Gunnarsson Varnarmaður 23 ára #8 Ólafur Haukur Arilíusson Miðjumaður 19 ára #24 Filip Valencic Miðjumaður 31 árs #10
KNATTSPYRNA

FYRSTU HEIMALEIKIRNIR 2023 Á HÁSTEINSVELLI

Breki Ómarsson Sóknarmaður 25 ára #19 Sverrir Páll Hjaltested Sóknarmaður 23 ára #9 Halldór Jón S. Þórðarson Sóknarmaður 27 ára #28 Hermann Þór Ragnarsson Sóknarmaður 20 ára #22 Arnar Breki Gunnarsson Sóknarmaður 21 árs #14 Tómas Bent Magnússon Miðjumaður 21 árs #16 Jón Jökull Hjaltason Miðjumaður 22 ára #6 Nikolay Grekov Aðstoðarþjálfari Hermann Hreiðarsson Þjálfari Sigurður Grétar Benónýsson Miðjumaður 27 ára #11 Alex Freyr Hilmarsson Miðjumaður 30 ára #25
15. apríl ÍBV - KA kl. 16:00 23. apríl ÍBV - Breiðablik kl. 16:00 8. maí ÍBV - Víkingur R. kl. 18:00 21. maí ÍBV - FH kl. 16:00 2. júní ÍBV - HK kl. 18:00 24. júní ÍBV - Valur kl. 16:00 8. júlí ÍBV - Fram kl. 16:00 16.júlí ÍBV - Keflavík kl. 16:00 5. ágúst ÍBV - Stjarnan kl. 14:00 20. ágúst ÍBV - Fylkir kl. 16:00 3. sept. ÍBV - KR kl. 14:00

Hermann Hreiðarsson

þjálfari meistaraflokk karla

ÍBV í knattspyrnu:

VIÐ ERUM OFBOÐSLEGA SPENNTIR FYRIR SUMRINU

Meistaraflokkur karla ÍBV fór hægt af stað á síðasta tímabil og var lengi vel í fallbaráttu. Þeir sneru þá taflinu við og enduðu í níunda sæti að loknum hefðbundnum tveimur umferðum. Þar unnu þeir þó aðeins fjóra leiki, gerðu átta jafntefli og töpuðu tíu. Skoruðu 33 mörk en fengu á sig 44. Þetta þýddi að þeir léku í neðri hluta í úrslitakeppni Bestu deildarinnar þar sem þeir höfnuðu í öðru sæti. Unnu þar fjóra leiki og töpuð einum og luku því leik í 8. Sæti bestu deildarinnar. Í Mjólkurbikarnum féllu strákarnir út strax í fyrsta leik í 32 liða úrslitum.

Undirbúningstímabilið hefur gengið vel og fór ÍBV taplaust í gegnum sinn riðil í Lengjubikarnum núna í febrúar og mars. Þeir töpuðu hinsvegar í vítakeppni gegn KA í leik í undanúrslitum.

Strákarnir hefja tímabilið á Origo vellinum í leik gegn Val mánudaginn 10. Apríl kl. 18.30.

Töluverðar breytingar hafa orðið á liði ÍBV á milli tímabila. Andri Rúnar Bjarnason er genginn til liðs við Val, Atli Hrafn Andrason í HK, Óskar Dagur Jónasson til Fjölnis úr láni, José Sito Seoane er farinn til Bergantinos á Spáni og Telmo Castanheira til Sabah í Malasíu.

Til liðs við ÍBV hafa hinsvegar gengið Filip Valencic frá KuPS í Finnland, Hermann Þór Ragnarsson frá Sindra, Bjarki Björn Gunnarsson að láni frá Víkingi Reykjavík, Guy Smit að láni frá Val og Sverrir Páll Hjaltested frá Kórdrengjum.

Við heyrðum aðeins í Hermanni Hreiðarssyni sem heldur nú inn í sitt annað tímabil með liðið.

Ertu sáttur með undirbúningstímabilið?

Já, við erum virkilega ánægðir með undirbúningstímabilið. Mikill dugnaður og frábært hugarfar hjá drengjunum og menn komnir í frábært stand undir öruggri handleiðslu Ella Fitness þjálfara. Æfingaferðin fór vel í okkur og í kjölfarið spiluðum við 5 leiki á tveimur vikum og náðum því um 3 óslitnum vikum af mikilli samveru sem er mikilvægt fyrir svona tvískiptan hóp.

Hvernig leggst sumarið í þig? Okkur líður vel í því sem við erum að gera og leikmenn eru að njóta þess að spila þennan fótbolta þannig að við erum ofboðslega spenntir fyrir sumrinu.

Eru allir heilir? Elli Jör og Bjöggi eru með allt undir control en það er smá hnjask eins og gerist og gengur.

Hvernig er mórallinn í hópnum? Þetta er einstakur hópur, svakalega samstilltur og heilbrigður klefi.

Er hópurinn fullmótaður? Ég er mjög ánægður með hópinn sem ég hef en auðvitað höfum við augun alltaf opin.

Hverja telur þú vera styrkleika okkar í sumar? Samstaðan, liðsandinn, vinnusemin og hvað hópurinn er mentally sterkur

Eitthvað að lokum sem þú vilt koma á framfæri? Við erum þakklátir fyrir stuðninginn á síðasta sumri og stefnum á að endurgjalda það ríflega á komandi tímabili. Vonumst til að sjá sem flesta splunkunýja og snarvitlausa á vellinum í sumar.

Skírdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Páskadagur Annar í páskum 11:30 - 21:00 Lokað 11:30 - 21:00 Lokað 11:30 - 21:00
Opnunartími yfir páskana Skírdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Páskadagur Annar í páskum 11:00 - 15:00 Lokað 10:00 - 14:00 Lokað Lokað Áletruð kerti, serviettur og sálmabækur Hvetjum ykkur til að panta blóm tímanlega til að tryggja að við eigum réttu blómin FYRIR ÞIG. Skírdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Páskadagur Annar í páskum Lokað Lokað 11:00 - 16:00 Lokað Lokað Gleðilega páska!
Páskar í Blómavali

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Páskakaka

hvítur botn & súkkulaðikrem

Hráefni:

2½ bollar hveiti

1¼ tsk lyftiduft

¼ tsk matarsódi

1 tsk salt

1¾ bollar sykur

2 tsk vanillu extract

½ bolli smjör brætt og kælt niður í stofuhita

Aðferð:

1bolli súrmjólk

1 bolli olía

3 stór egg aðskilin við stofuhita

3 stórar eggjarauður við stofuhita

Forhitið ofninn í 180° og smyrjið tvö 22 cm hringlótt form. Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti í stórri skál.

Í annarri skál blandið saman sykri, vanillu, bræddu smjöri, súrmjólk, olíu og öllum sex eggjarauðunum.

Setja til hliðar.

Þeytið eggjahvíturnar (af 3 aðskildum eggjum) þar til stífir toppar myndast, setjið til hliðar.

Þeytið hveitiblönduna og súrmjólkurblönduna saman þar til þau eru sameinuð og slétt. Blandið eggjahvítunum varlega saman við þar til þær blandast saman.

Skiptið jafnt í tilbúnu kökuformin og bakið í 25-30 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar.

Krem: Flórsykri, bræddu smjöri, bökunarkakó og uppáhelltu kaffi blandað við. Kakan smurð og skreytt með eggjum og kökuskrauti. Gott að bera fram með þeyttum rjóma.

Það er

Kátt í Höllinni

Kátt í Höllinni

LAUGARDAGUR 8. apríl

LAUGARDAGUR 29. apríl

Pálmi Gunnars

Ball

með

LAUGARDAGUR 6. maí

Matta, Vigga og hljómsveit

FÖSTUDAGUR 2. júní

LAUGARDAGUR 3. júní

FIMMTUDAGUR 6. júlí

Stebbi & Eyfi

Tryggið ykkur miða á

viðburði Hallarinnar

tix.is/hollin

LÉTTÖL 2.25%

HÉR ERU BESTU STUÐNINGSMENN LANDSINS OG ÞÓ VÍÐAR VÆRI LEITAÐ

Laugardaginn 25. mars tryggði kvennalið ÍBV sér annan titilinn

í sömu vikunni þegar þær lögðu Selfoss með yfirburðum. Lokartölur leiksins var 41-27 en ÍBV var sex mörkum yfir í hálfleik. Þær unnu Poweradebikarkeppnina helgina

áður þegar þær lögðu Val af velli í Laugardagshöllinni og sigldu með bikarinn heim. Það er einn titill í boði í viðbót sem er Íslandsmeistaratitillinn en úrslitakeppninn fer fram eftir páska. Tígull fékk þær Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur og

Sunnu Jónsdóttur, fyrirliða í spjall.

Nítján eru liðin síðan ÍBV varð síðasta deildarmeistari kvenna, hvernig er tilfinningin að vera partur af þessum áfanga?

Sunna: Tilfinningin er ótrúleg, ég er mjög þakklát, glöð og stolt að vera hluti af þessum hóp. Við erum svo sannarlega búin að leggja hart að okkur og núna erum við að uppskera og njótum þess því við eigum þetta svo innilega skilið. Þetta er búið að vera draumurinn lengi og loksins rættist hans.

Hanna: Það er mikill heiður að vera partur af þessum áfanga. Við höfum lagt á okkur gífurlega mikla vinnu til að ná á þennann stað sem við erum á núna og því gaman að uppskera svona vel. Það er mikil gleði að hafa unnið þessa tvo titla á einni viku eftir nokkuð langa bið hér í eyjum kvennamegin.

Sunna er að spila sinn fimmta vetur með ÍBV en Hanna gekk til liðs við ÍBV 2020. Hvernig er lífið í Eyjum? Hvað er það besta við að búa í Eyjum?

Sunna: Lífið í Eyjum er dásamlegt og það er hvergi betra að vera. Náttúran er mögnuð, hér er frábært að ala upp börn, fólkið og samstaðan hér er ótrúleg og svo

er stutt í alla þjónustu sem gefur manni meiri tíma t.d til að eyða með fjölskyldu og vinum.

Hanna: Ég kann virkilega vel við mig hér í Eyjum bæði í handboltanum og í minni vinnu sem sjúkraþjálfari. Ég kom til Eyja 2020 og fann strax frá byrjun hvað maður var velkomin og vel tekið á móti manni inn í samfélagið. Að mínu mati er samfélagið hér einstaklega skemmtilegt og því einn af mörgum kostum þess að búa hér. Annar kostur er auðvitað þessi stórbrotna náttúrufegurð sem eyjan hefur uppá að bjóða.

Þetta var yfirburðaleikur hjá ykkur þegar þið tryggðuð ykkur deildarmeistarabikarinn, hvernig leið ykkur inn á vellinum?

Sunna: Hið unga og efnilega lið Selfoss mætti ansi vængbrotið til leiks í þennan leik. En við mættum án alls vanmats, 100% klárar og ætluðum okkur að tryggja okkur annan titil á 8 dögum. Okkur leið vel inn á vellinum enda ekki annað hægt fyrir framan fólkið okkar. Við spiluðum okkar leik sem við vissum að myndi tryggja okkur sigur. Það er mikil leikgleði og liðsheild hjá okkur og stuðningurinn við liðið er hreint út sagt magnaður. Stuðningurinn gefur okkur auka orku og er okkar sterkasta vopn.

Hanna: Mér leið bara vel og naut þess að spila leikinn. Það var mikil tilhlökkun fyrir leiknum, vitandi það að við gætum tryggt okkur deildarmeistaratitilinn með sigri og það hér heima í Eyjum fyrir framan fulla stúku af okkar fólki sem hefur verið með okkur í þessu allt tímabilið.

Þá er einn titill í boði í viðbót? Hvernig er stemninging?

Sunna: Bara góð. Við njotum titlana sem við höfum unnið en höldum okkur samt sem áður á jörðinni. Við erum á leið í tæplega mánaðar leikja pásu en ætlum að nýta tímann vel til að halda áfram að bæta okkur, við fáum okkur samt pottþétt páskaegg og páskasteik. Stóri titillinn er eftir og stefnan er klárlega sett á hann.

Hanna: Stemningin í hópnum er virkilega góð. Við erum mjög samstilltur hópur og höfum mjög gaman af því að vera saman en erum líka duglegar í að halda hver annarri á tánnum. Við höfum fagnað vel og glaðst yfir þeim árangri sem við höfum náð hingað til en erum jafnframt hungraðar í að ná í þriðja titilinn sem í boði núna í vor.

Eitthvað sem að þið viljið koma á framfæri?

Sunna: Ég vil þakka öllum kærlega fyrir stuðninginn í kringum liðið. Hann er magnaður, ómetanlegur og ólýsanlegur. Hér eru bestu stuðningsmenn landsins og þó víðar væri leitað. Siglingin heim eftir bikartitilinn með fólkinu okkar og öllu fólkinu sem beið eftir okkur var framar væntingum og væntingarnar voru vægast sagt háar.

Hanna: Mig langar bara að þakka enn og aftur fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið og finnum gífurlega vel fyrir hvert sem maður kemur hér í Eyjum. Það gefur okkur gífurlega mikið og gerir þetta svo ennþá skemmtilegra.

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 17 ára með Fylki

Uppáhalds tónlistarmaður/ kona: Bubbi

Hvernig hljómar síðasta skilaboð sem þú fékkst: Ja, ok hafðu hann uppí húsi

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég hef upplifað ansi mörg skemmtileg atvik. En það er alltaf jafn fyndið þegar leikmenn detta asnalega í miðjum leik. Elísa Elíasar á nokkur þannig moment.

SUNNA HANNA

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2010

Uppáhalds tónlistarmaður/ kona: Á erfitt með að nefna einn/eina, er með svo fjölbreyttan tónlistarsmekk að það eru margir sem koma til greina.

Hvernig hljómar síðasta skilaboð sem þú fékkst: “Gefið mér 10”

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það sem er mér efst í huga núna er þegar Marta fékk rautt spjald snemma í bikarúrslitaleiknum okkar um daginn. Það atvik eitt og sér var auðvitað alls ekki skemmtilegt heldur frekar ákveðið áfall. En það sem á eftir fylgdi gerði allt svo margfalt

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Get klappað með rassinum

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja?

Já þessi er góð…

Ég myndi enn og aftur spyrja

Hilmar þjálfara af hverju hann fjárfesti í Bitcoin

Uppáhalds hlaðvarp?

Í ljósi sögunnar

Hver er mesti trúðurinn í klefanum?

Í klefanum er það Ásta Björt.

skemmtilegra. Að takast á við þetta mótlæti, að að finna samheldnina í okkar hóp og allan stuðninginn úr stúkunninni, snúa leiknum okkur í hag og standa uppi sem sigurvegarar með titil sem við höfum lengi beðið eftir.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Það kemur alltaf mörgum á óvart að ég var í hópfimleikum þangað til að ég varð 18 ára og hef þar með unglingalandsliði Íslands unnið brons og gull

sitthvoru Evrópumeistaramótinu.

Uppáhalds hlaðvarp?

The Snorri Björns podcast show

Hver er mesti trúðurinn í klefanum? Ásta

á
SUDOKU
PÁSKAR PÁSKAEGG PÁSKAUNGI PÁSKADAGUR PÁSKASKRAUT PÁSKAMATUR PÁSKALÖG PÁSKAOPNUN PÁSKANAMMI
ORÐAÞRAUT

BÓI SÆMDUR GULLMERKI

ÍÞRÓTTABANDALAGS

VESTMANNAEYJA

knattspyrnunnar í Eyjum og mætir á flesta leiki bæði karla og kvenna liðanna.

Það mikill heiður að sæma Bóa gullmerki Íþróttabandalags Vestmannaeyja á þessum tímamótum. Heiðursmerki úr gulli er næst æðsta heiðursviðurkenning Íþróttabandalags Vestmannaeyja“

Í afmælinu rifjaði Einar Friðþjófsson upp fyrri ár í knattspyrnunni en þeir voru lengi saman í ÍBV og gengu í gegnum ýmislegt.

Sigmar Pálmason eða Bói Pálma eins og flestir þekkja hann var sæmdur gullmerki ÍBV fimmtudaginn 23. mars en hann varð einmitt 80 ára þann dag. Hann hélt upp á daginn með veislu sem haldin var á veitingastaðnum GOTT.

Helga Sigrún Þórsdóttir varaformaður Íþróttabandalags Vestmannaeyja flutti kveðjur frá Íþróttabandalagi Vestmannaeyja og leyfum við henni að birtast hér: „Eins og allir vita hér inni þá hefur Sigmar svo sannalega komið mikið við sögu í íþróttalífi okkar Eyjamanna. Hann hóf ungur að iðka knattspyrnu og var í liði ÍBV sem vann sér sæti í fyrstu deild árið 1967 en fyrsta deildin var úrvalsdeildin í þá daga. Hann átti 15 ára feril með meistaraflokki, lék 150 leiki og skoraði 67 mörk. Sigmar

var leikmaður í liði ÍBV sem varð bikarmeistari 1968 og vann alla titla með félaginu á ferli sínum nema Íslandsmeistaratitil. Ásamt því að leika með ÍBV kom Sigmar að þjálfun yngri flokka hjá félaginu og unnu þeir bæði Íslandmeistara og bikarmeistaratitla undir hans stjórn. Þá var Sigmar um skeið aðstoðarþjálfari George Skinner eftir að hann hafði lokið keppnisferli sínum. Þegar Sigmar var 49 ára snéri hann sér að golfíþróttinni og náði þar einnig góðum árangri, var í landsliði öldunga árið 2002 og hefur jafnframt unnið sex Íslandsmeistaratitla í öldungasveitum. Þó Sigmar sé að halda upp á 80 árin er hann svo sannarlega ekki hættur golfiðkun og má sjá hann á golfvellinum flesta morgna með golffélögum sínum. Sigmar er einnig dyggur stuðningsmaður

„Kynslóð Bóa kom ÍBV á knattspyrnukortið. Þetta var kynslóðin 1942-1947. Þarna voru margir flottir peyjar í fótbolta sem ólust upp eins og allir peyjar sem voru í fótbolta, á litlum sparkvöllum út um allan bæ. Það verður ekki hjá því komist að minnast á ömmu hans Hólmfríði. Hún var mikill Týrari, enda ein af stofnendum Týs. Hún mætti á alla leiki og lét vel í sér heyra og var mikið hörkutól. Sagan segir að þegar Kiddi föðurbróðir Bóa kvartaði yfir handleggsmeiðslum og sagði að hann gæti ekki spilað einhvern leik, sagði sú gamla. „Spilar þú ekki með fótunum!“ Málið útrætt.

Ráðinn var tékkneskur þjálfari Rudolf Krcil 1965-1967 og segir Bói að þar hafi verið á ferðinni maður sem var eins og frá annarri plánetu. Hann kom með svo margt nýtt. Hann breytti hugsunarhætti, kom með leikkerfi sem þeir vissu ekki hvað var. Hann vann mikið maður á mann. Fram að þeim tíma hafði knattspyrnuráð valið meistaraflokksliðið. Þessu breytti Rudolf, enda galið kerfi. Annaðhvert ár. 3 frá Tý 2 frá Þór og öfugt.

1967 verða vatnaskil þegar ÍBV fer upp í 1. deild. Þá var ráðinn þjálfari

Bói í 80 ára afmælisveislunni sinni.
útivistarlína Icewear Skoðaðu úrvalið inn á www.icewear.is
Íslensk ullareinangrun Ný

sem hét Hreiðar Ársælsson. Hann funkeraði mjög vel inn í móralinn

í Eyjum og gerði margt gott fyrir okkur. Í fyrsta leik í efstu deild gegn Val sem ÍBV vann 3-1 skoraði Bói tvö mörk. Annað á ótrúlegan hátt frá endalínu. Minnti á mark Van Basten. En það var sérgrein Bóa að komast upp að endalínu og gefa fyrir.

En þetta ár er að koma inn í hópinn ný bylgja ungra leikmanna eða bara mín kynslóð. Ekki margir af frumherjunum lifðu það af. En það gerði Bói og lék í úrslitaleik í Bikarkeppninni 1968 gegn KR-b sem ÍBV vann 2-1 og átti Bói stoðsendingu á Val Andersen. Atli Skrugga frændi minn kallaði okkur villidýr. En staðreyndin var sú að til að lifa af á meðal Bóa og félaga varð maður að bíta frá sér og fengum við yngri þar góða skólagöngu. Ég lenti stundum í Bóa og á einhverjum tímapunkti sást ég á harðahlaupum frá malarvellinum og út á Heiðarveg. En svo var allt í góðu.

1969 spiluðum við svo fyrstu Evrópuleikina við Levski Spartak frá Búlgaríu. Alveg frábært lið. Í þeim leikjum spilaði Bói mjög vel og ekki síður Palli bróðir hans í markinu. En báðir leikir fóru 4-0 fyrir Levski.

Bói var síðan með liðinu til 1974 en var óheppinn með meiðsli, sem gerðu að verkum að hann missti af Bikarúrslitaleik 1972.

Eftir að hann hætti að spila tók hann við þjálfun, fyrst hjá ÍBV þar sem hann varð Ísandsmeistari með

4. fl og svo hjá Þór í 3. fl. þar sem hann vann Dania Cup. Hvað ætli Hólmfríður amma hans hefði sagt við þessu?

1977-1978 var ráðinn enskur þjálfari til ÍBV að nafni Skinner. Hann var enskari en allt enskt. Bói var ráðinn aðstoðarmaður hans og

ekki bara það heldur sáu Bói og Kristrún um hann. En hann bjó í kjallaranum hjá þeim. Þegar hann mætti á svæðið var hann bara með eina hand ferðatösku.

Einar minnist á hversu Bói og Halli gullskalli náðu vel saman á vellinum. Mér er til efs að flottara samband hafi komið fram í íslenskri knattspyrnu.

Eins og áður hefur komið fram var Bói meistari endalínunnar og endaði hann oft fyrir aftan hana eftir fyrirgjöf, þvílík var ákefðin. Þá þekktust ekki innsving spyrnur heldur voru allar fyrirgjafir útsving. Bói setti boltann á fyrirfram ákveðinn stað sem Halli vissi um og, bang, mark. Frábært.

Bói er hluti af Liverpool genginu sem hittist í Kiwanis fyrir leiki og veit ég að það veitir honum mikla

ánægju og er ómetanlegt fyrir hann og fyrir mig líka því að hann kemur alltaf við hjá mér og við verðum samferða í kjallarann.

Margir halda að Bói og Palli hafi verið klikkaðir í skapinu. Víst gátu þeir fokið upp en það fauk jafn hratt niður. Það hefði verið frábært ef Palli hefði verið hérna. En svona er lífið.“

Megi þér auðnast vel í framhaldinu. Til hamingju með 80 árin. Þrefallt húrra fyrir þér,“ sagði Einar að lokum.

Ásgeir Sigurvinsson og Bói. Halldór Einarsson eða Henson færði Bóa treygju að gjöf. En hún er tvískipt, merkt Val og ÍBV. En Bói spilaði með Val 1973.
TÖLVUR OG GRÆJUR Í TÖLVUTEK PÁSKA FJÖR 13" MacBook Air M1 179.990 189.990 29.990 Úrval leikjastóla 19.990Verð frá RTX 3050 Verð frá 106.990 MACBOOK AIR TILBOÐ 5. apríl 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l

STARFSLAUN BÆJARLISTAMANNS 2023

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2023.

- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félaga samtökum.

- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir með tölvupósti (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2023

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu

SIGRÍÐAR STEINSDÓTTUR

Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir faglega og nærgætna umönnun.

Steinn Sveinsson

Magnús Sveinsson

Sigurður Þór Sveinsson

Birgir Sveinsson

Ólína M. Jónsdóttir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir Sigríður S. Þórðardóttir

barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

skoðaðu úrvalið á heimadecor.is

/heimadecor

15cm Skrautegg sem má fylla með nammi. Skreytt með myndum af Múmín fjölskyldunni.

ACAI HEILSUSKÁLAR

FÁST HJÁ OKKUR!

við Strandveg · sími 481-1559

Opið alla páskana til klukkan 24:00

Gleðilega Páska!

ísKúluís ÚR vél bragðarefur

Sjöfn

prótein SKÁL

Þeytt hindber, mangó & möndlumjólk

Jarðarber, bláber & banani Granóla

Kókosflögur, döðlur & eða súkkulaði Hnetusmjör eða súkkulaðisíróp Próteinduft

LÍF

acai SKÁL

Acai berjagrunnur

Grískt jógúrt jarðarber, bláber & banani Granóla

Kókosflögur, döðlur & eða súkkulaði Hnetusmjör eða súkkulaðisíróp

Fundir eru sem hér segir:

Sunnudaga kl. 11.00

Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur

Miðvikudaga kl 20.30

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30

NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

Passamyndir

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

ERT’AÐ BREYTA?

BAÐHERBERGINU? ELDHÚSINU? INNRÉTTINGUM? PARKETLEGGJA?

Almennt viðhald & smíði!

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

Litla Skvísubúðin

Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is

Fasteignaljósmyndun /skvisubudin

/skvisubudin Skírdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Páskadagur Annar í páskum 10:00 - 16:00 10:00 - 16:00 07:00 - 16:30 10:00 - 16:00 10:00 - 16:00

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.