11. tbl. 02. árg. 18 - 24 .mars 2020
Brauðplatti með salati: Við bjóðum upp á 4 tegundir af salati með brauði. Þú getur komið með þína krukku og fengið salatið ódýrara.
Opið alla daga vikunnar
06:00 - 18:00
Strandvegur 30
481 1104
Við erum sterkt samfélag!
Við lifum nú ástand sem er ólíkt öllu sem við höfum áður þekkt. Af því leiðir að við getum ekki nema að takmörkuðu leyti notfært okkur fyrri reynslu til að takast á við þetta, hún er ekki fyrir hendi. Þetta hefur ekki gerst áður. Ekki svona. Á hverjum degi, jafnvel oft á dag, þurfum við að tileinka okkur nýja hluti og bregðast við stöðugt breyttum aðstæðum. Við þurfum að aðlagast kringumstæðum sem við bara fyrir nokkrum vikum hefðum ekki getað ímyndað okkur að kæmu upp. Við þessar aðstæður þurfum við sem samfélag og einstaklingar að
TÍGULL
leggja meira á okkur en venjulega. Það er mikilvægt að geta haldið uppi ákveðinni þjónustu í samræmi við það sem landlæknir og sóttvarnalæknir leiðbeina um í samkomubanni. Útfærslan er komin fyrir okkar sveitarfélag en við erum auðvitað með þetta í endurskoðun dag frá degi. Okkar hlutverk sem íbúa er að taka þátt í þessu samfélagsverkefni og það þarf hver og einn að passa sjálfan sig og fylgja fyrirmælum og tilmælum. Tölum við börnin okkar og útskýrum stöðuna. Hugum að þeim sem eldri eru og veikburða.
Mikilvægt er að halda ró og yfirvegun þótt ástandið sé skrýtið og erfitt. Tæknin gerir okkur kleift að eiga margskonar samskipti og tala saman þótt við séum ekki í námunda hvert við annað. Höldum því áfram! Við erum sterkt samfélag hér í Eyjum og höfum oft þurft að takast á við stór og vandasöm verkefni í sameiningu. Þetta er eitt að þeim, og við klárum það líka. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðuljósmynd: helgi Rasmussen Tórzhamar.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
SKRÚFAR UPP, SMELLIR SAMAN, MÁLAR! EKKERT SPARTL!
– Í MEISTARA HÖNDUM
Við gerum okkar besta til að draga úr smithættu í versluninni okkar. Við hvetjum til notkunar á handsprittinu sem er til staðar hjá okkur.
BREKI
GULLI
Kynning á leikmönnum meistarflokks karla Nafn: Breki Ómarsson
Nafn: Guðlaugur Gísli
Fjölskylda: Foreldrar eru Arndís María og Ómar Steinsson, svo á ég tvær yngri systur Bríet og Bertu
Fjölskylda: Pabbi minn heitir Huginn, Mamma mín þórunn, svo á ég tvö eldri systkyni, Guðmund Inga og Öddu Dís.
Staða á vellinum: Sóknar/kantmaður Hver eru þín helstu áhugamál? Fylgist aðallega með flestum íþróttum, stefni á að setja vallarmetið á golfvellinum í sumar. Hvernig undirbýrðu þig fyrir leik? Ekkert sérstakt svosem, drekk reyndar oftast rauðrófusafa. Uppáhalds tónlist ? Er mikið fyrir íslenska tónlist, annars get ég hlustað á flest allt. Grófasti leikmaðurinn í liðinu? Halldór Páll Geirson fær þetta skuldlaust, kemst upp með allt.
Aldur: Tvítugur Staða á vellinum: Hafsent Hver eru þín helstu áhugamál? Tónlist og íþróttir yfir höfuð og pílan er að koma sérstaklega sterk inn núna hjá mér Hvernig undirbýrðu þig fyrir leik? Hlusta á Ingó og kem mér í gír þannig og fæ oft góð ráð frá Benóný Friðriks Býrðu yfir leyndum hæfileika? Nei Gunnar býr fyrir neðan mig veit ekkert hver leyndur hæfileiki er Grófasti leikmaðurinn í liðinu? Breki
#gottveitingastadur /gottrestautant
Take away
Bárustíg 11 900 Vestmannaeyjar
Pantanir í síma: 4813060
481-3060
Pósturinn leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum starfmanni í dreifingu og flokkun á pósti í Vestmannaeyjum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 50% starf með möguleika á meiri vinnu. Vinnutíminn er frá klukkan 09:00 til 13:00, alla virka daga. Umsóknarfrestur er til og með 23.mars 2020. Opið er fyrir umsóknir á umsóknarvef Póstsins, www.posturinn.is. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Pósturinn er með Jafnlaunavottun og leggur ríka áherslu á jafnrétti. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingimar Sveinn Andrésson stöðvarstjóri í netfanginu ingimara@postur.is. Pósturinn er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dreifingarlausnum. Dreifikerfi fyrirtækisins nær til allra landsmanna og er auk þess í samstarfi við öfluga aðila um allan heim. Höfuðstöðvar eru í Reykjavík en fyrirtækið starfrækir starfsstöðvar víðsvegar um landið.
www.gott.is
gott@gott.is
Skertur opnunartími stofnana bæjarins vegna COVID-19 Í ljósi heimsútbreiðslu COVID-19 og tilmæla almannavarna og sóttvarnalæknis, hefur Vestmannaeyjabær gripið til þeirrar ráðstöfunnar að takmarka opnunartíma stofnana bæjarins. Tilgangurinn er að stuðla að öryggi starfsmanna og lágmarka hættu á að þjónustan rofni. Fjöldatakmarkanir eru í íþróttahúsi og aldurstakmark miðast við 16 ára. Athugið að boðið er upp á vistun leikskólabarna annan hvern dag til þess að mæta skilyrðum samkomubannsins.
Opnunartímar stofnana eru sem hér segir: Grunnskóli Vestmannaeyja 4 kennslustundir á dag. sjá nánar á grv.is
Bæjarskrifstofur- Bárustíg 15 10-12 alla virka daga
Víkin 5 ára deild 7:45-15:30 sjá nánari á grv.is
Bæjarskrifstofur- Rauðagerði 10-12 alla virka daga
Kirkjugerði 7:45-15:30 sjá nánar á kirkjuderdi.leikskolinn.is
Bæjarskrifstofur- Tæknideild 10-12 alla virka daga
Sóli 7:45-15:30 sjá nánar á soli.hjalli.is
Höfnin Enginn opnunartími. Vaktsími hafnarvarða 893-0027
Frístund 12-15 í Hamarskóla sjá nánar á grv.is Tónlistarskóli Óbreytt starfsemi. Hópatímar falla niður Sambýlið Engar heimsóknir leyfðar Hraunbúðir Engar heimsóknir leyfðar Heimaey hæfingarstöð Engar heimsóknir leyfðar Endurvinnslan Lokuð tímabundið Eldheimar 13-15 miðvikudaga til sunnudaga Sagnheimar 13-15 alla virka daga Bókasafn 13-15 alla virka daga Héraðsskjalasafn 13-15 alla virka daga
Þjónustumiðstöðin Enginn opnunartími. Símanúmer 488-2500 Féló (félagsmiðstöðin) Lokað þessa viku vegna flutninga og svo endurskoðað. Íþróttamiðstöðin Óbreyttur opnunartími. Breytt starfsemi (útfærsla auglýst) Herjólfshöllin Takmarkaður aðgangur (16 ára og eldri hafa aðgang) Týsheimilið Lokað Hægt er að beina erindum í gegnum síma í s. 488 2000 á hefðbundnum opnunartímum (dagvinnutíma) eða með tölvupósti á postur@vestmannaeyjar.
Grunnskólinn og Frístund Stjórnendur og starfsfólk GRV hefur nú unnið að undirbúningi viðbragða við takmörkun á skólahaldi sem tekið hefur gildi vegna Covid-19 veirunnar. Starfsemi og þjónusta skólans verður með breyttu sniði næstu þrjár vikurnar. Nemendur verða aðeins í sínum bekk og munu mæta á misjöfnum tíma í skólann. Umsjónarkennari sér um alla kennslu og öll önnur kennsla fellur niður, sem og íþróttir, lotutímar, valáfangar o.fl. Umsjónarkennarar munu vera í góðu sambandi við sína nemendur og senda frekari upplýsingar til foreldra. Heimanám gæti aukist og þá sérstaklega á unglingastigi, þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með á Mentor. Hér má sjá hvenær hver árgangur mætir og lýkur skóla: Tími : Hópur Inn/útgangur 09:00-12:00 1. bekkur vestur inngangur 08:30-11:30 2. bekkur vestur inngangur 08:20-11:20 3. bekkur niðri inngangur 08:40-11.40 4. bekkur niðri inngangur 08:20-11:20 5. bekkur miðstigs inngangur 08:30-11:30 6. bekkur miðstigs inngangur 08:20-11:20 7. bekkur norður inngangur 11:00-13:55 8.bekkur suður inngangur 11:10-14:05 9. bekkur norður inngangur 11:20-14:15 10. bekkur suður inngangur Það er mjög mikilvægt að virða tímasetningar og nemendur eiga að mæta á þeim tíma sem þeirra árgangur mætir, hvorki fyrr né seinna. Enginn hafragrautur, ávextir eða hádegismatur verður í boði. Nemendur mæta með nesti sem þeir borða í sínum umsjónarstofum. Matarkostnaður verður felldur niður þessa daga. Engir utanaðkomandi gestir mega koma inn í skólann, sem þýðir að foreldrar mega ekki koma inn í skólann og bendum við ykkur á að hafa samband við kennara eða stjórnendur í gegnum síma eða tölvupóst.
Athugið að ef það kemur til mikilla forfalla kennara í skólanum, gæti þurft að senda einstaka bekki/árganga heim. Einnig ef það kemur til hegðunarvandkvæða sem ekki tekst að leysa í kennslustofu, verður hringt heim og foreldrar beðnir um að sækja nemandann. Það er mikilvægt að halda áfram að fara eftir tilmælum landlæknis. Nemendur með undirliggjandi sjúkdóma og flensueinkenni ættu að halda sig heima og fylgja áætlunum á Mentor. Starfsemi frístundar mun færast upp í Hamarsskóla á meðan banninu stendur. Þar munum við hafa afnot af heimastofum hvers bekkjar og mun hver bekkur vera í sinni heimastofu á meðan starfinu stendur. Bekkirnir munu ekkert blandast saman á meðan banninu stendur. Opnunartími frístundar mun breytast og vera frá 12:00-15:00 alla virka daga og þurfa börnin að hafa með sér nesti hvern einasta dag. Ef foreldrar hafa tök á því að hafa barnið sitt heima þá væri það gott. Ef barnið ykkar kemur ekki til með að nýta frístund í samkomubanninu þá bið ég ykkur vinsamlega að tilkynna forföll á anton(at) vestmanneyjar.is eða í síma 868-8769 og 481-2964 Þegar barn er sótt á frístund fyrir 15:00 þá þarf að hringja á undan sér eða senda póst. Forráðamenn eru ekki leyfðir inn í skólann og þurfa því að bíða við innganginn þegar barn er sótt. Klukkan 15:00 verða síðan börnunum fylgt að útganginum. Hægt verður að hringja beint í heimastofurnar til að ná sambandi við starfsmenn. Símanúmerinn má finna hér að neðan: · · ·
1. BB – 488-2213 1. SJ – 488-2211 1. ÞS – 488-2212
Heimsendingarþjónusta er í boði frá 18: 00 - 20: 00 Pantanir í síma 414 4420 og 696 4425
Til að bregðast við þeim erfiðu aðstæðum sem skapast hafa í samfélaginu höfum við ákveðið að bjóða upp á heimsendingar á meðfylg jandi matseðli. Heimsendingin er í boði frá kl. 18.00 – 20.00 og er án sérstaks endurg jalds. Við bjóðum upp á símgreiðslu. Lágmarkspöntun er kr. 2.500.
We are gonna respond to the difficult situation in our community. We have decided to offer home delivery from this special menu. The home delivery is available from 18:00-20:00 and is free of charge. The minium order is 2.500 kr.
Lifið heil! Starfsfólk Tangans
Take care! Tanginn staff
696 4425
tanginn@tanginn.is
/tanginn.is
Matseðill Crepes – kr. 1.890 Pönnukaka m/hrísgrjónum, púrrulauk, osti, og hvítlaukssósu Pancake filled with rice, ham, leek, cheese and garlic sauce. Kjúklingasalat / Chicken salad – kr. 1.990 Kjúklingabringa, paprika, svört sesamfræ og romain salat m/ sætri jalapeno sósu / chicken breast, paprika, black sesam seeds, romain salat with sweet jalapeno sauce. Indverskur kjúklingaréttur/ Butter chicken – 2.490 Bragðmikill ekki sterkur m/ hrísgrjónum og naan brauði / Full flavored chicken with rice and naan bread. BBQ Rif / BBQ Ribs – kr. 2.690 Grísarif í BBQ sósu / Baby back ribs in BBQ sauce. Indverskur Kjúklinganbaunaréttur / Chana Masala – kr. 1.990 Með pönnusteiktu grænmeti, fetaosti og naan brauði / served with panfried vegetables, feta cheese and naan bread. Diablo – kr. 1.590 Bragðmikill mexíkóborgari í Brioche brauði með osti, beikoni, rauðlauk, klettasalati og sinnepssósu. Spicy mexican burger in a Brioche bun, topped with cheese, crispy beicon, red onion, rucola and sweet mustard sause.
B.B.King – kr. 1.590 Alvöru Beikon borgari í Brioche brauði m/ stökku beikoni, eggi, rauðlauk, klettasalati og hvítlaukssósu / The king of bacon burgers in Brioche bun with crispy bacon, fried egg, red onion, rucola and garlic sauce. Kjúklingaborgari / Chicken burger – kr. 1.590 Í Brioche brauði m/ beikoni, káli, grillaðri papriku, steiktum rauðlauk, mæjónesi og BBQ sósu / in Brioche bread with crispy bacon, grilled pepper, fried red onion, majo and BBQ sauce. Barnaseðill Kjúklinganaggar / Chicken nuggets – kr. 690 Hamborgari í Brioche brauði / Hamburger in Brioche bread – 690 Meðlæti Country Franskar / Country Fries Lítill – 390 Stór – 590 Hrásalat / salat – kr. 290 Kokteilsósa / Cockteil sause kr. 190 Gosdrykkir 33cl / Soft drinks 33cl - kr. 220 Pepsi – Pepsi Max – Appelsín – Kristall Tökum við pöntunum frá kl. 17.30 Verði þér að góðu !
covid.is
Við erum öll almannavarnir Covid-19 kallar á samstöðu og ábyrgð okkar allra. Til að auðvelda heilbrigðiskerfinu að ráða við vandann er mikilvægt að takmarka útbreiðslu veirunnar eins og hægt er. Til þess eru ýmis ráð sem við þurfum öll að tileinka okkur.
Þvoum okkur um hendurnar
Með vatni og sápu. Reglulega – og reglulega vel.
Forðumst óþarfa snertingu
Finnum snertilausar leiðir til að heilsast og kveðjast. Bros er betra en koss og knús.
Virðum sóttkví
Sóttkví fyrir þau sem mögulega eru smituð og einangrun þeirra sem greinast er nauðsynleg til að hægja á útbreiðslu.
Hlýtum samkomubanni
Samkomubann tekur gildi aðfararnótt mánudagsins 16. mars. Kynnum okkur vel reglur um bannið og fylgjumst með fréttum.
Á vefnum www.covid.is finnur þú fleiri góð ráð, traustar upplýsingar og fréttir af stöðu mála.
covid.is
Samkomubann Ákveðið hefur verið að setja á samkomubann frá og með aðfararnótt mánudagsins 16. mars. Bannið gildir í fjórar vikur, til og með mánudagsins 13. apríl (annar í páskum). Samkomubannið verður í stöðugu endurmati, gæti lengst, styst og breyst eftir því sem aðstæður kalla á.
Hvaða samkomur eru bannaðar? Bannið nær til skipulagðra viðburða þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Til dæmis: Ráðstefnur, málþing, fundir og hliðstæðir viðburðir. Skemmtanir, s.s. tónleikar, leiksýningar, bíósýningar, íþróttaviðburðir og einkasamkvæmi. Kirkjuathafnir hvers konar, s.s. vegna útfara, giftinga, ferminga og annarra trúarsamkoma. Að auki þurfa aðrir staðir að tryggja að ekki séu á sama tíma fleiri en 100 manns inni í sama rými. Þetta á t.d. við um veitingastaði, mötuneyti, kaffihús, skemmtistaði, verslanir, sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, og söfn. Þessi mörk eiga einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilegra starfsemi. Á samkomum, vinnustöðum og í annarri starfsemi þar sem færri en 100 eru samankomnir skal hafa að minnsta kosti tvo metra á milli einstaklinga.
Hvað fellur ekki undir samkomubann? Samkomubannið nær ekki til alþjóðaflugvalla, alþjóðahafna, flugvéla eða skipa.
Skólahald Töluverðar takmarkanir eru á skólahaldi á meðan á samkomubanninu stendur. Framhaldsskólum og háskólum verður lokað og kennsla fer fram í fjarkennslu eins og hægt er. Grunnskólar mega hafa kennslu í skólabyggingum ef þeir tryggja að ekki séu fleiri en 20 nemendur í sömu kennslustofu og að nemendur blandist ekki milli hópa, til dæmis í mötuneyti eða frímínútum. Leikskólar mega hafa opið ef þeir tryggja að börn séu í fámennum hópum og aðskilin eins og kostur er. Takmarkanirnar gilda einnig um aðrar menntastofnanir, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og íþróttastarf.
Kjúklingur með paprikusósu og smjörsteiktu hvítkáli - Uppskrift vikunnar -
Uppskrift fyrir: 2 Hráefni: 2 úrbeinuð kjúklingalæri kryddblanda að eigin vali 1 krukka grillaðar paprikur í (Jamie’s eru tilvaldar) 150 ml rjómi 400g hvítkál 2 msk smjör salt Stilltu ofninn á 180° og blástur. Aðferð: 1. Byrjaðu á að steikja kjúklingalær in á vel heitri pönnu upp úr olíu eða klípu af smjöri. Kryddaðu og þegar lærin hafa fengið góðan lit færirðu þau í eldfast mót og inn í heitan ofn í 10 mínútur. 2. Skerðu hvítkálið í þunnar sneiðar eða settu í matvinnsluvél. Skolaðu af pönnunni eftir kjúklinginn, settu smjör á hana og steiktu hvítkálið á háum hita í 5 mínútur. Kryddaðu það
með grófu salti, lækkaðu hitann og leyfðu því að malla þar til kjúkling urinn er tilbúinn. 3. Settu papriku og rjóma í blandara í 20 sek. Settu sósuna síðan í pott og hitaðu rólega upp. Saltaðu hana eftir smekk. 4. Settu hvítkálið upp á disk, kjúk linginn yfir og að síðustu sósuna. Lífrænt appelsínu- og súkkulaði granóla Hráefni: 1 poki Rapunzel hnetumix 2 dl Rapunzel kókosflögur 6 dl Rapunzel hafrar 2 lífrænar appelsínur (börkurinn af tveimur, safinn úr einni, ca 1 dl) 1 dl Rapunzel kókosolía 1 dl Rapunzel hlynsíróp 1 msk Rapunzel möndlusmjör 1/2 tsk Rapunzel vanilluduft 1 msk Rapunzel kakóduft 1/2 tsk Himalyasalt
3 bitar Rapunzel appelsínusúkkulaði Leiðbeiningar 1. Hitið ofninn í 180°C 2. Hnetumixið og kókosflögur saxað smátt og blandað saman við hafrana í skál. 3. Blandið saman kókosolíu, hlynsírópi, möndlusmjöri, kakói, vanillu og salti í pott ásamt berki af tveimur lífrænum appelsínum og safa úr einni, ca 1 dl. 4. Blandið öllu saman og dreifið á bökunarplötu og bakið á 180°C í u.m.b. 20 -25 mínútur. Veltið granólanu til eftir 15 mínútur og fylgist vel með. 5. Takið granólað út úr ofninum og leyfið því að kólna alveg á ofnplötunni. Bætið svo útí smátt söxuðu appelsínusúkkulaði og geymið í loftþéttri krukku. 6. Berið fram með Oatly jógúrt eða ískaldri lífrænni Oatly mjólk og ávöxtum.
Frumherji verður í Eyjum vikuna 23. - 26. mars. Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarsveitarfélagsins.
Frumherji Faxastígur / 570 9231
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga stjórnar um að aðalfundurinn staðfesti samruna við Útgerðarfélagið Glófaxa ehf. 3. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfundinn. Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. STJÓRN VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF.
ATHUGIÐ! Leturstofan verður lokuð almenningi frá 17. mars - 13. apríl Hægt er að hafa samband við okkur með tölvupósti eða í síma Kata laufey katalaufey@tigull.is 856 4250 Lind lind@leturstofan.is 694 7999
Ónógur svefn barna og unglinga hefur neikvæð áhrif á líf þeirra
Fylgið útivistarreglum Yngstu skólabörnin þurfa u.þ.b. 9 klst. svefn yfir nóttina. Unglingar þurfa u.þ.b. 10 klst. svefn yfir nóttina. Að sofa á daginn kemur ekki í staðinn fyrir tapaðan nætursvefn. Lengd og gæði nætursvefns hefur áhrif á námsgetu og minni. Úrvinnsla úr þeim upplýsingum sem við höfum fengið yfir daginn fer fram í svefni. Svefninn er nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska barna og unglinga. Góður svefn er öllum lífsnauðsynlegur til að geta tekist á við viðfangsefni dagsins. Yngstu skólabörnin þurfa að sofa í kringum 9 tíma á nóttu en þegar komið er fram á unglingsárin eykst svefnþörfin um u.þ.b. klukkustund vegna þess aukna álags sem fylgir gelgjuskeiðinu. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að lengd og gæði nætursvefns hefur áhrif á námsgetu og minni. Í svefni er verið að rifja upp og vinna úr þeim upplýsingum sem við höfum fengið yfir daginn, þessar upplýsingar festast í minninu. Ónæmiskerfið virkjast þegar við sofum og því er svefninn nauðsynlegur til að auka mótstöðu gegn veikindum og fyrir vöxt og þroska unglingsins. Á unglingsárunum eiga sér stað
miklar hormónabreytingar í líkamanum. Mikill hluti þeirra hormóna framleiðir líkaminn á næturnar og er sú framleiðsla háð góðum nætursvefni. Að sofa á daginn kemur því ekki í staðinn fyrir tapaðan nætursvefn. Góðar svefnvenjur barna og unglinga stuðla að hamingjusamara lífi, meiri ábyrgð á heilsunni, hollari matarvenjum, færni til að takast á við streitu og auka líkurnar á reglulegri hreyfingu. Nokkur einföld ráð fyrir foreldra sem komið geta að notum við að hjálpa börnum og unglingum að ná betri nætursvefni. 1. Koma á reglulegum svefntíma þ.e. sofna og vakna á svipuðum tíma á hverjum degi. Ef börn og unglingar fá nægjanlegan svefn á virkum dögum þurfa þau ekki að sofa lengur um helgar. 2. Ef börn og unglingar eru mjög þreytt á daginn þá getur hjálpað að fá sér stuttan lúr. Þó ekki lengur en klukkustund, þá gæti það reynst þeim erfitt að sofna á kvöldin. 3. Fylgið útivistareglum alla daga vikunnar því þær taka mið að svefnþörf barna. Gott er að börn og unglingar hafi tíma til rólegrar stundar áður en þau fara í rúmið. 4. Takmarka tölvunotkun og sjónvarpsáhorf seint á kvöldin. Bæði sjónvarp og tölvuleikir örva heilann
og trufla þannig svefn. 5. Gott samband foreldra við börn og unglinga stuðlar að góðri líðan. Áhyggjur og streita geta valdið ónógum nætursvefni. Með því að vera í góðu sambandi við börnin og unglingana og reyna að skilja tilfinningar þeirra og líðan getum við stuðlað að aukinni hugarró og betri líðan hjá þeim. 6. Dagleg hreyfing og hollt mataræði er gott bæði fyrir svefninn og heilsuna. Hvetjið börn og unglinga til að stunda íþróttir eða daglega hreyfingu í frítímanum. Ekki er gott að borða þunga fæðu eða sykur fyrir svefninn. Í lokin viljum við minna foreldra og forráðamenn á að gott fordæmi eykur áhrif góðra ráða.
F.h Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Jónína Lóa Kristjánsdóttir Hjúkrunarfræðingur heilsugæslustöð Selfoss
Minningarkort Alzheimer Stuðningsfélag Fjóla Sif Ríkharðsdóttir S:6990856 Andrea Guðjóns Jónasdóttir S:6947503
Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F
Rn: 0582-04-250626 Kt: 570316-0950
Frá RKV
l
F
L
S
l l
/crispus
Frá VEY
l
Lent
7:15
7:40
15:45 16:10
l l l l l
772-6766 Heiðarvegur 9
Brottf.
l
11:30 11:55
l
17:30 17:55 8:00
l l
8:25
16:30 16:55
l l l l l l l
12:15 12:40 18:15 18:40
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook
Tannlæknar
17. - 19. mars Hjalti Þórðarson
21. - 22. mars Hjalti Harðarson
4. - 5. apríl Rakel Ósk Þrastardóttir 14. - 16. apríl Hjalti Harðarsson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
Aðalfundur Sundfélags ÍBV Þriðjudaginn 31. mars kl. 18:00 í fundarsal Íþróttahússins. Venjulega aðalfundastörf, lagabreytingar. Stjórn sunddeildar ÍBV
Heimsendingarþjónusta er í boði frá 18: 00 - 20: 00 Pantanir í síma 414 4420 og 696 4425
Matseðill Crepes – kr. 1.890 Pönnukaka m/hrísgrjónum, púrrulauk, osti, og hvítlaukssósu Pancake filled with rice, ham, leek, cheese and garlic sauce.
B.B.King – kr. 1.590 Alvöru Beikon borgari í Brioche brauði m/ stökku beikoni, eggi, rauðlauk, klettasalati og hvítlaukssósu / The king of bacon burgers in Brioche bun with crispy bacon, fried egg, red onion, rucola and garlic sauce.
Kjúklingasalat / Chicken salad – kr. 1.990 Kjúklingabringa, paprika, svört sesamfræ og romain salat m/ sætri jalapeno sósu / chicken breast, paprika, black sesam seeds, romain salat with sweet jalapeno sauce.
Kjúklingaborgari / Chicken burger – kr. 1.590 Í Brioche brauði m/ beikoni, káli, grillaðri papriku, steiktum rauðlauk, mæjónesi og BBQ sósu / in Brioche bread with crispy bacon, grilled pepper, fried red onion, majo and BBQ sauce.
Indverskur kjúklingaréttur/ Butter chicken – 2.490 Bragðmikill ekki sterkur m/ hrísgrjónum og naan brauði / Full flavored chicken with rice and naan bread.
Barnaseðill Kjúklinganaggar / Chicken nuggets – kr. 690 Hamborgari í Brioche brauði / Hamburger in Brioche bread – 690
BBQ Rif / BBQ Ribs – kr. 2.690 Grísrif í BBQ sósu / Baby back ribs in BBQ sauce.
Meðlæti Country Franskar / Country Fries Lítill – 390 Stór – 590
Indverskur Kjúklinganbaunaréttur / Chana Masala – kr. 1.990 Með pönnusteiktu grænmeti, fetaosti og naan brauði / served with panfried vegetables, feta cheese and naan bread. Diablo – kr. 1.590 Bragðmikill mexíkóborgari í Brioche brauði með osti, beikoni, rauðlauk, klettasalati og sinnepssósu. Spicy mexican burger in a Brioche bun, topped with cheese, crispy beicon, red onion, rucola and sweet mustard sause.
Hrásalat / salat – kr. 290 Kokteilsósa / Cockteil sause kr. 190 Gosdrykkir 33cl / Soft drinks 33cl kr. 220 Pepsi – Pepsi Max – Appelsín – Kristall Tökum við pöntunum frá kl. 17.30 í síma 414 4420 og 696 4425 Verði þér að góðu !