Tígull 10. tbl 05. árg.

Page 1

10.
22.
tbl. 05. árg.
- 28. mars 2023

FÓR VERKJALAUST Í GEGNUM BLÖÐRUHÁLSKRABBAMEIN

Steingrímur Ágúst Jónsson er fæddur og uppalinn í Reykjavík og kynntist konu sinni, Þórönnu M. Sigurbergsdóttur, í kringum kristileg skólasamtök. En þau hjónin hafa alla tíð verið virk í kristilegu starfi, bæði í þjóðkirkjunni og í Hvítasunnukirkjunni. „Þetta er okkar líf. Við erum og höfum verið mjög samhuga og samhent í þessu. Það hefur verið mikil blessun í gegnum lífið.“ Þau fluttu til Vestmannaeyja 1977, gift með eitt barn og hafa búið hér alla tíð síðan.

Eitt og annað komið uppá

Það er alveg óhætt að segja að þau hjónin hafi gengið í gegnum ófá áföllin í lífinu. „Jú, jú, það hefur eitt og annað komið upp á sem hefur tekið á í lífinu,“ sagði Steingrímur af fádæma æðruleysi.

TÍGULL

DREIFING:

Fyrir tveimur árum dundi enn eitt áfallið á þau hjónin þegar Steingrímur greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli. En það er algengasta krabbamein sem finnst í körlum. „Ég varð var við blóð í þvagi hjá mér og fór því til læknis, þar sem gerðar voru alls konar rannsóknir. En í fyrstu var mér hins vegar sagt að það væri ekkert sem sýndi að um væri að ræða krabbamein. Ég og minn læknir ákváðum samt í sameiningu að skoða þetta aðeins nánar og eftir nokkrar blóðprufur sáum við breytingu á ákveðnum gildum. Við nánari skoðun sást í vefjasýni að um var að ræða krabbamein. Þetta ferli tók ca. hálft ár frá því að ég varð var við blóðið og greining var komin.“

Skorinn af vélmenni Þremur mánuðum eftir greiningu gekkst Steingrímur svo undir aðgerð þar sem blöðruhálskirtillinn var fjarlægður. „Miðað við hvernig þetta greindist var gripið frekar snemma inn í hjá mér. En blöðruhálskirtilinn var hinsvegar alveg ónýtur, fullur af krabbameini. En ég sjálfur fann engin meiri einkenni en þessa nokkra daga sem ég sá blóð í þvaginu. Aldrei neinir verkir eða óþægindi. Ég hef stundum sagt það að í sjálfum sér veit ég ekkert almennilega hvað krabba-

mein er. Þetta gekk bara svona í gegn án þess að ég fyndi nokkuð fyrir því.“ Aðgerðin sjálf þótti Steingrími nokkuð merkileg þar sem hún var framkvæmd af vélmenni. „Það er nákvæmara sagði læknirinn mér. Þá skurðlæknarnir séu nákvæmir eiga þeir ekki roð í vélmennin. Það eru gerðir fimm litlir skurðir og vélmennið sér um rest. Allt í gegnum slöngur og myndavélar og læknirinn bara fær sér kaffi á meðan,“ sagði Steingrímur og hló. „Þetta er mjög sérstakt að sjá þetta og upplifa.“

Alveg laus við meinið Nú ári eftir segir Steingrímur batan góðan og engan krabba að finna hjá honum. „Svo eru náttúrulega smá eftirköst sem fylgja svona. Til dæmis það að þurfa ganga með þvagstykki þar sem maður getur ekki haldið þvagi alveg almennilega. Það eru ennþá að koma dropar, sér í lagi við áreynslu. Eins þegar maður hóstar og hnerrar.“

„Það má segja að ég hafi verið mjög heppinn hversu þægilegt þetta hefur verið hjá mér. Því oft þegar blöðruhálskrabbamein uppgötvast er það mjög langt gengið hjá mönnum og farið að sá sér. Það er það versta, þegar það er komið í önnur líffæri. Svo hagar það sér mismunandi hjá fólki. Hjá einum gefur það mikla verki og öðrum

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

eru þeir litlir sem engir. Maður fær reyndar aldrei verki í líffæri, þar eru engar sársaukafrumur. Það er ekki fyrr en meinið fer að nálgast húð eða slíkt þá koma verkirnir.“

Steingrímur hvetur því karlmenn til að hika ekki við að fara í skoðun við minnsta grun. „Ef eitthvað er að gerast þá er bara að grípa nógu snemma inní. Ekki láta neitt bíða.“

Heppin að búa í Eyjum

Steingrímur segist mjög lánsamur í krabbameinsferli sínu. Í

fyrsta lagi með hversu snemma

það uppgvötast og svo hinsvegar að hann skuli búa í Vestmannaeyjum. „Krabbameinsfélagið í

Vestmannaeyjum er stóröflugt

tækin sem stendur vel við bakið á þeim sem fá krabbamein. Það er ekki víða á landinu að finna eins öflugt krabbameinsfélag og hér. Félagið leggur sem fram við að komast í samband við þá sem

greinast og styðja þá. Hér er í boði góður fjárstuðningur til móts við reikningana sem hlaðast hratt upp. Niðurgreiddur ferðakostnaður. Hér eru í boði íbúðir fyrir þá sem þurfa að dvelja fyrir sunnan í lengri eða skemmri tíma. Þannig er allur kostnaður sjúklingsins í algjöru lágmarki, félagið stendur svo vel við bakið á okkur. Stuðningur félagsins bæði fjárhagslega og ekki síst andlega er ómetanlegur,“ sagði Steingrímur. Hann benti einnig á að á síðu Krabbameinsfélagsins, krabb.is, er að finna ýmsa fræðslu um hin ýmsu krabbamein og uppbyggingu eftir krabbamein og á meðan á því stendur. „Þó að ég hafi ekki þjást út af þessu. Er þetta orð „krabbamein“ svolítið illvígt og lamandi. Það fyrsta sem maður sér fyrir sér er bara dauðadómur. En það er langt, langt því frá. Flestir þeir sem fá krabbamein læknast. Í dag eru yfir 80%

af þeim sem fá svona krabba eins og ég sem læknast og lifa góðu lífi á eftir.“ sagði Steingrímur. „Eitt er það sem rétt er að nefna að við hér í Krabbavörn í Eyjum erum svo heppin að búa við. Það er náttúruaflið Stína Valtýs. Hún kom á fót karlahópnum innan Krabbavarnar. Hún hóaði saman okkur körlunum og situr gjarnan fundina með okkur. Þetta er svona tíu manna hópur í sem er að hittast og spjalla um lífið og veginn. Sem og að styðja hvorn annan, því menn eru mislangt komnir í krabbameinsferlinu.“ sagði Steingrímur að lokum og hvatti menn til þess að láta sjá sig á skrifstofu félagsins í Arnardrangi að Hilmisgötu 11 til dæmis á karlafundina á miðvikudagskvöldum kl. 19.30. „Ég vil endilega hvetja alla sem eru að fást við þessi mál að koma og tala. Það er gríðarleg hjálp í því.“

4 JÓGA STÖÐUR TIL AÐ SLAKA Á

VERKJUM Í MJÓBAKI

Að stunda jóga er áhrifamikil leið til þess að slaka á stífum vöðvum og á sama tíma að byggja upp styrk. Jóga hefur einnig góð áhrif á taugakerfið og eykur blóðflæði líkamans, til dæmis til heilans. Hér verður sagt frá fjórum áhrifaríkum jóga stöðum sem geta hjálpað til við að slaka á verkjum í mjóbaki. Lykilatriði er að fara rólega í æfingarnar, hlusta á sinn líkama og hætta eða færa sig í aðra stöðu ef að verkirnir versna. Mjög gott er að nota æfinga-dýnu eða handklæði fyrir allar þessar æfingar.

Kópran (e. Cobra)

Kópran kemur neðri bakvöðvum í slakari stöðu og þar af leiðandi getur staðan haft góð áhrif á verki í mjóbaki.

líkamanum og lófa í gólfinu. Það er í góðu lagi að krulla undir sig tærnar ef það þykir þægilegt.

• Á innöndun lyftir þú bringunni frá gólfinu með því að þrýsta niður í handleggina. Framhandleggir og lófar eru ennþá flatir á gólfinu.

• Mjaðmir og fótleggir eru á gólfinu og olnbogar staðsettir beint undir herðum.

• Hægt og rólega er möguleiki að færa framhandleggi upp frá gólfinu og líkamann upp á lófa. Lófar eru þá færðir nær líkamanum, svo handleggir verði beinir undir öxlum. Hér er lykilatriði að hlusta á líkamann.

Hné að brjósti (e. Knee to chest)

• Leggstu á bakið, helst á æfingadýnu með hné beygð og iljar í gólfi.

• Leggstu á magann með beinar fætur. Hafðu framhandleggina á gólfinu við hliðina á þér, nálægt

Dragðu annan fótinn rólega að þér með því að grípa utan um hnéð eða undir hnéð, réttu úr hinum fætinum. Hér er gott að byrja á að vinna með annan fótinn í einu til skiptis en ef líkaminn leyfir, þá er í góðu lagi að draga að þér báða fætur í einu.

Köttur og kú (e. Cat/cow pose)

Þessi staða er í raun tvær ólíkar stöður en það hefur tíðkast og virkað vel að stunda þær saman.

• Lyftu rófubeininu hátt upp og myndaðu V-laga form (á hvolfi) með líkamanum.

• Þrýstu lófum og iljum í gólfið, spenntu kviðinn og finndu hrygginn lengjast.

• Passaðu að axlir fari ekki upp að eyrum.

• Hælar þurfa ekki endilega að snerta gólfið en gott er að reyna að ganga hælunum niður til skiptis fyrir dýpri stöðu. Reyndu að halda fótleggjum beinum.

• Það er alveg sjálfsagt að vinna sig áfram með stöðuna, til dæmis lyfta öðrum fæti í einu upp.

Ef þessi staða reynist óþægileg eða erfið er hægt að framkvæma hana á auðveldari hátt með því að styðja sig við vegg:

• Byrjaðu á fjórum fótum, hné og lófar eru í gólfinu. Hafðu handleggi beint undir herðum og hnén beint undir mjöðmum.

• Horfðu á gólfið og haltu höfðinu í beinni línu við hrygginn. Færðu þig yfir í köttinn

• Búðu til krippu á bakið með því að lyfta hryggnum í átt að loftinu. Augun ættu að snúa að kviðinum. Á innöndun skaltu færa þig yfir í kúna

• Lyftu bringu og rófubeini hægt í átt að loftinu og láttu magann sökkva niður í átt að gólfinu. Augun ættu nú að snúa að loftinu.

Endurtaktu þessar tvær æfingar nokkrum sinnum eða eins og þér líður vel með. Saman mynda þessar stöður mjúkar en á sama tíma árangursríkar teygjur fyrir mjóbakið.

• Stattu andspænis veggnum með mjaðmabreidd á milli fóta.

• Beygðu þig örlítið í hnjánum og legðu flata lófa á vegginn.

• Haltu mjöðmum yfir fótum, þrýstu lófunum á vegginn þannig að handleggirnir mynda beina línu við hrygginn og reyndu að halda bakinu eins beinu og hægt er.

• Við þetta ætti að finnast teygja í gegnum bakið.

Hundurinn sem snýr niður (e.

Downward facing dog/Adho mukha svanasana)

Hundurinn sem snýr niður losar ekki einungis um stíft mjóbak heldur teygir hún einnig á kálfum, öxlum, iljum og handleggjum.

• Byrjaðu á fjórum fótum með hnén í mjaðmabreidd og hendurnar í axlabreidd.

Hér er spurning um að finna hvaða staða hentar þér best, ekki er hægt að gera ráð fyrir að allar þessar stöður dragi úr verkjum í mjóbaki hjá öllum. Ef einhver af þessum stöðum eykur sársauka í mjóbaki, þá mælum við með að tala við viðeigandi meðferðaraðila.

BOÐIÐ UPP Á JÓGA SEM VALGREIN

FRÉTTAHORN FÍV

Framhaldsskóli Vestmannaeyja er einn af þeim framsýnu framhaldsskólum sem hefur um nokkra ára skeið boðið upp á jóga sem valgrein.

Að kynnast jóga strax í framhaldsskóla er dýrmætt, því í dag er langvarandi streita og andlegt álag stórt heilbrigðisvandamál og því er mikilvægt að nemendur öðlist tól og tæki í sína verkfærakistu til að takast á við þær áskoranir. Að kunna að hlúa að sjálfum sér og gefa sér tíma í daglegu amstri er mikilvægt.

Áfanginn er eingöngu verklegur

þar sem kenndar eru fjölbreyttar jógastöður og teygjur, mismunandi slökunaraðferðir, hugleiðslutækni og öndunaræfingar. Nemendur elska slökunar tímana enda þurfa þeir á þeim að halda. Í jógatímum fá þeir frí frá símunum sínum og

öllu áreiti sem dynur á ungu fólki allan liðlangan daginn. Að kunna að draga athyglina að stað og

stund, hægir á hraða hugsanna og þá náum við að hlusta á okkar innri rödd og þorum að standa með sjálfum okkar þannig söfnum við lífsorku.

Ávinningur af jógaiðkun er margvíslegur, þar á meðal að bæta liðleika, styrk, jafnvægi og líkamsstöðu, draga úr streitu og kvíða, auka núvitund og einbeitingu og efla almenna vellíðan. En eitt það mikilvægasta er að við náum að halda betur jafnvægi þegar erfiðleikar steðja að í lífsins ólgusjó. Slík þekking er gott veganesti út í lífið.

Það fallega við jóga er að hver og einn er á sínum forsendum við virðum mörkin okkar og erum ekki í neinni keppni. Það eykur víðsýni og umburðarlyndi að gefa nemendum tækifæri til að læra greinar eins og jóga. Það er með jóga eins og allt annað í lífinu að „æfingin skapar meistarann“.

LAUSAPENNI

Leturstofan óskar eftir lausapenna til að skrifa og taka viðtöl

í hin ýmsu blöð og tímarit sem Leturstofan annast útgáfu á.

Menntun og hæfniskröfur:

• Mjög gott vald á íslensku ritmáli.

• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

• Þekking og áhugi á Suðurlandi og samfélaginu okkar í Eyjum.

• Góð samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum.

• Frumkvæði, drifkraftur og sköpunarkraftur.

• Þekking á Wordpress vefumsjónarkerfi er kostur.

• Auga fyrir ljósmyndun kostur.

Nánari upplýsingar og umsóknir sendist á leturstofan@leturstofan.is

Með mætti fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem viðkomandi geri grein fyrir reynslu sinni og hæfni til starfsins.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma

AÐALHEIÐUR JÓNA EINARSDÓTTIR

Skólavegi 7

lést á HSU í Vestmannaeyjum, miðvikudaginn 8. mars.

Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar og

sjúkradeildar HSU í Vestmannaeyjum fyrir

einstaka umönnun og hlýju við sín störf sem og

MND teymi Landspítalans fyrir vel unnin störf.

Njáll Kolbeinsson

Marý Njálsdóttir

Signý Njálsdóttir Alaeddine Layeb og barnabörn

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar 2023

Ágætu unglingar, foreldrar og/eða forráðamenn ungmenna

fæddra 2007, 2008 og 2009.

Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina, frá júní og fram í ágúst. Allir unglingar úr 8., 9., og 10. bekkjum grunnskólans með heimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku í vinnuskólanum.

Unglingunum er skipt í hópa og hver hefur sinn flokksstjóra. Stefnt er að því að hafa verkefnin sem fjölbreyttust en sem fyrr eru garðyrkjustörf og almenn umhirða bæjarfélagsins langstærsti þátturinn í vinnuskólanum.

Í flestum tilfellum er vinnuskólinn fyrstu kynni ungmenna af launaðri vinnu og því mikilvægt að vel takist til. Það er því nauðsynlegt að umræðan á heimili sem og umfjöllun í samfélaginu sé á jákvæðum nótum. Gott er t.d. að hafa í huga að starfsfólk vinnuskóla á rétt á bæði matar- og kaffitímum. Þar sem þau hafa ekki neina sérstaka aðstöðu til umráða er ekki óeðlilegt að þau sjáist sitja og hvíla sig öðru hvoru.

Starfstími unglinganna er misjafn eftir árgöngum:

- Árgangur 2009, 25 vinnudagar, 30 tíma á viku.

Unnið er frá 09-12 og frá 13-16 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess óskað. Valdar eru hámark 5 vikur af þeim sem eru í boði.

- Árgangur 2008, 30 vinnudagar, 30 tíma á viku.

Unnið er frá 09-12 og frá 13-16 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 6 vikur af þeim sem eru í boði.

- Árgangur 2007, 35 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09-12 og frá 13-16 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 7 vikur af þeim sem eru í boði.

Reynt verður að koma til móts við óskir um tímabil eftir fremsta megni. Mjög áríðandi er að skila umsóknum fyrir 14. apríl.

Laun:

Unglingar fæddir 2009 - 931 kr. á klst. með orlofi

Unglingar fæddir 2008 - 1064 kr. á klst. með orlofi

Unglingar fæddir 2007 - 1330 kr á klst. með orlofi

Þeir sem eru fæddir 2007 þurfa að gefa upplýsingar um nýtingu á persónuafslætti hafi þeir náð 16 ára aldri. Laun eru greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar inn á bankareikning og er launatímabil frá 26. hvers mánaðar til 25. þess næsta. Flokkstjórar hafa samband við forráðamenn áður en vinna hefst og gefa upplýsingar um hvar skal mæta ofl.

Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 488 2000 eða á netfanginu: sumarstorf@vestmannaeyjar.is.

Sumarstörf á vegum Vestmannaeyjabæjar 2023

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldra til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2023. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk.

Afleysing á bæjarskrifstofu

Sumarstarfsmaður

Umhverfisstörf

Bókavörður I

Bókasafn

Ráðhús Íþróttamiðstöð

Flokkstjóri í vinnuskóla

Umhverfisverkefni

Forstöðumaður á gæsluvelli

Gæsluvöllur

Hafnarvörður I

Vestmannaeyjahöfn

Hafnsögumaður

Vestmannaeyjahöfn

Leikskólakennari/leiðbeinandi

Kirkjugerði

Leikskólakennari/leiðbeinandi

Víkin 5 ára deild GRV

Safnvörður I

Byggðasafn/Landlyst

Safnvörður I

Eldheimar

Skipstjóri

Vestmannaeyjahöfn

Starfsmaður á dagvist aldraðra

Hraunbúðir

Starfsmaður á leikjanámskeiði

Sumarfjör

Starfsmaður í stuðningsþjónustu

Málefni aldraðra og fatlaðra

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II

Þjónustukjarni fyrir fatlað fólk

Sundlaugarvörður/starfsmaður í Íþróttamiðstöð

Verkamaður II

Umhverfisverkefni

Verkamaður III (með flokkstjórn)

Umhverfisverkefni

Verkstjóri í áhaldahúsi/yfirmaður sumarstarfa

Umhverfisverkefni

Yfirsetumaður

Vestmannaeyjahöfn

Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því öll kyn að sækja um laus störf.

Nánari upplýsingar um störfin er hægt að nálgast á www.vestmannaeyjar.is

Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: sumarstorf@vestmannaeyjar.is

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.

Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.

HÓPURINN OG LEIKSTJÓRINN ALGJÖRIR SNILLINGAR

Fullt nafn:

Albert Snær

Tórshamar

Aldur: 26

Starfsheiti: Formaður leikfélags Vestmannaeyja, starfa sem smiður

Áhugamál: Tónlist og leiklist

Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir? Örugglega að geta „teleportað“, þá þyrfti maður aldrei að fara í Herjólf

Hvað færðu þér í morgunmat?

Kaffi

Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið Þegar stórt er spurt! Ég eiginlega veit það ekki

Hvaða leikari myndi leika þig í bíómynd um þig?

Brendan Fraser

Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju?

Johnny Cash, af því hann er svalasti maður

í heiminum!

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?

1950 af því tónlistasenan var svo góð og bílarnir voru svo flottir.

Starfsemi Leikfélags Vestmannaeyja er í fullu fjöri þar sem er verið að undirbúa leikritið Rocky horror. Í þessum sígilda tímamótasöngleik leitar kærustuparið, Brad og Janet, ásjár í gömlum kastala í aftakaveðri eftir að springur á bílnum hjá þeim. Þar hitta þau fyrir klæðskiptinginn og vísindamanninn Frank-N-Furter og teymi hans sem er skipað skrautlegum persónum. Unga parið glatar sakleysi sínu smátt og smátt enda freistingarnar margar og endirinn kemur alltaf jafn skemmtilega á óvart. Rocky Horror er fyrir löngu orðinn klassískur söngleikur. Þótt gleðin sé í fyrirúmi fjallar Rocky Horror Show líka um mikilvægt málefni: Réttinn til að vera sá sem maður er, með öllum sínum sérkennum og á því sérlega brýnt erindi á meðan valdamesta fólk heims ýtir undir og elur á ótta og hatri í garð jaðarhópa. Við fengum Albert formann LV til að svara nokkrum spurningum.

Örfá orð um það sem þú hefur verið að bardúsa fram til þessa? Ég er nýorðin formaður LV eftir 7 ár í félaginu, við erum að vinna hart að því núna að æfa leikritið og gera allt og græja.

Á döfinni:

Nú er þetta allt farið að taka mynd hjá okkur og það er orðið ótrúlega skemmtilegt að horfa á framfarirnar sem verða á æfingum enda er hópurinn og leikstjórinn algjörir snillingar. Næst á dagskrá er bara að klára að sauma allt saman og byrja að sýna 6. mars!

Fyrir hverja er leikfélag Vestmannaeyja?

Leikfélagið er fyrir alla! Bæði fyrir áhorfendur, sem við værum auðvitað ekkert án og eiga svo sannarlega þakkir skilið fyrir frábærar móttökur á síðasta verki, Ávaxtakarfan. Og auðvitað þá sem taka þátt í uppsetningum. Það sést nú einmitt í þessu verki hvað hópurinn sem tekur þátt er mjög fjölbreyttur. Þann tíma sem ég hef verið í leikhúsinu hef ég fylgst með mörgum einstaklingum blómstra í starfinu hvort sem það er að takast á við feimni, félagslegan kvíða eða ofvirkni sem ég get nú sjálfur sagt frá. Svo eru margir sem hafa haldið áfram á þessu sviði og menntað sig við til dæmis leiklist og leikstjórn eða í tæknibransanum eins og við upptökur, ljós og hljóð þannig að þetta er frábær vettvangur fyrir fólk sem hefur áhuga á öllu slíku.

Til hverra nær leikritið?

Leikritið nær auðvitað til allra. Þetta er eitt sýrutripp, fullt af frábærri tónlist, dansi, fjölbreyttum persónum, kynþokka og húmor! Þegar leikritið var skrifað ýtti það á marga takka í samfélaginu hvað varðar kyn og kynhneigðir, sem betur fer er leikritið ekki svo hneykslandi í dag en okkur finnst auðvitað mjög gaman að vekja upp þessa umræðu í samfélaginu vegna þess að það er nægt pláss til framfara.

Hvað finnst þér leikfélagið gera fyrir menninguna og félagslífið í Eyjum?

Leikhús er auðvitað stór hluti menningar í dag og það er okkar sönn ánægja að geta boðið upp á það hér í Vestmannaeyjum. Er ekki alltaf gaman að fara í leikhús? Leikfélagið er frábær staður til að vera hvað varðar félagslíf og manni leiðist sko aldrei á meðan maður er að setja upp verk, ég hef kynnst svo mikið af frábæru fólki og þar á meðal mikið af mínum bestu vinum.

Er eitthvað sem að betur mætti fara varðandi LV, þá er meiri aðstoð? (sjálfboðaliðar eða fjármagn)?

Það tekur auðvitað mikinn mannskap að setja upp verk og það er sjaldan of mikið af hjálparhöndum. Það fer gríðarlega mikil vinna, tími og peningur í að setja upp verk og leikfélagið græðir ekki eins mikið fyrir uppsetningu og margir myndu halda, erum við því mjög þakklát fyrir alla þá styrki sem leikfélagið fær vegna þess að okkur langar auðvitað að geta haldið áfram að bjóða upp á þessa afþreyingu og þennan vettvang með sama krafti og við höfum gert undanfarna áratugi hér í eyjum.

Hvaða karakter leikur þú í leikritinu? Eitthvað sem þið eigið sameiginlegt? Ég leik Frank n Furter, sem hefur verið drauma hlutverkið mitt síðan ég kynntist persónunni. Þetta er svo sannarlega áskorun en gríðarlega skemmtilegt og mig hlakkar mjög til að geta sýnt ykkur það sem ég og leikstjórinn höfum verið að vinna í. Ég á kannski aðalega það sameiginlegt við Frank að vera athyglissjúkur.

Hvaða smáforrit er ómissandi? Instagram eða Messenger

Veistu fyrir hverju

Krabbavörn stendur?

Langar þig að vita meira?

Opið hús í Akoges fimmtudaginn

30. mars kl: 17:00 - 19:00

Þar sem starfsemi félagsins verður kynnt.

Dagskrá

Kristín Valtýrsdóttir fer yfir starf félagsins.

Gyða Arnórsdóttir segir frá hvaða þjónusta er í boði hjá HSU í Vestmannaeyjum.

Sólrún Gunnarsdóttir félagsráðgjafi hjá HSU í Vestmannaeyjum mætir með stutt erindi .

Sigurbjörg Óskarsdóttir og Sigmar Georgsson segja frá sínu starfi innan félagsins.

Sigrún Eva Einarsdóttir verður sérstakur gestur frá Krabbameinsfélagi Íslands.

Léttar veitingar verða í boði.

Hvetjum alla Vestmannaeyinga til að mæta.

Krabbamein kemur okkur öllum við!

---

Fundir eru sem hér segir:

Sunnudaga kl. 11.00

Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur

Miðvikudaga kl 20.30

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30

NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

Í tilefni opnunar AllraHeilsa Sjúkraþjálfunar (Strandveg 54) er öllum boðið að koma og skoða aðstöðuna okkar

Fermingarmyndir

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

GLUGGA- OG HURÐASKIPTI ÓÞÉTT?

Almennt viðhald & smíði!

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

föstudaginn 24.mars kl.16:00-18:00

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Opnunartímar:

Mánudagur - lokað

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

Frumherji verður í Eyjum

vikuna 27. - 30. mars

Tímapantarnir í síma 570 9090.

Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.

Það vorar í lofti í Vestmannaeyjum og brátt líður að 50 ára goslokahátíðar.

Að þessu tilefni efnir Vestmannayjabær í samstarfi við helstu verslanir sem bjóða uppá málningarvörur og garðáhöld til tilboðsdaga.

Tökum til hendinni um páska og í vor og gerum bæinn okkar í sameiningu enn fegurri fyrir sumarið.

veitir 30% afslátt af úti-

veitir 30% afslátt af málningu, viðarvörn og garðáhöldum.

Gildir 24. mars – 8. apríl 2023

VORDAGAR í Vestmannaeyjum

LEIKFÉLAGIÐ HEFUR ÁVALT LAGT METNAÐ SINN Í

AÐ SETJA UPP FLOTTAR OG GÓÐAR SÝNINGAR

Fullt nafn: Zindri Freyr

Ragnarsson Caine

Aldur: Jafn gamall og svarið við alheiminum og öllu, 42 ára.

Starfsheiti: Varaformaður LV og starfsmaður Safnahúss Vestmannaeyja

Áhugamál: Bókalestur, tölvuleikir, borðspil, ferðalög og að sjálfsögðu leiklistin.

Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir?

Ég er myndi helst vilja

geta lesið og haft áhrif á hugsanir (telepathy) og að geta hreyft hluti með huganum (telekinesis).

Það myndi mér finnast áhugavert.

Hvað færðu þér í morgunmat?

Úff, ég mjög latur að borða á morgnanna. Venjulega

hefði ég fengið mér kaffibolla, en eftir að það fór að fara illa í mig þá hef ég skipt yfir í orkudrykki, þá helst Nocco.

Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið

Hmm, góð spurning. Ég hreinlega veit það ekki, ég er ekki áhættusækinn maður, mér finnst betra að hugsa hlutina í þaula áður en ég framkvæmi.

Zindri Freyr er varaformaður Leikfélags Vestmannaeyja. Hann segir lítið annað komast að hjá sér nema starfsemi Leikfélagsins enda er uppsetning á svona stóru og flottu verki töluverð vinna. Svo dagarnir fara mest í vinnu á Safnahúsinu og svo vinnu í leikhúsinu. Vinna, leikhús, borða og sofa er svona mest allt sem ég geri, það er þó lítið um svefn. Ætli ég stingi svo ekki eitthvað af út í heim seinna á þessu ári til að slaka á eftir æfinga og sýningatímabilið. segir Zindri. Við köstuðum á hann nokkrum spurningum.

Fyrir hverja er leikfélag Vestmannaeyja?

Leikfélagið er vettvangur fyrir alla sem hafa áhuga á að skapa og stuðla að listrænni uppbyggingu fyrir eyjafólk og aðra. Í félagið eru allir velkomnir sem hafa áhuga á að starfa með okkur. Svo er líka bara svo hrikalega skemmtilegt fólk hérna, maður kynnist alltaf einhverjum snillingum í þessu starfi.

Til hverra nær leikritið?

Leikritið sjálft er óttarlega sýra, þetta er geimvísinda fantasía með persónum sem eru í rauninni of stórar fyrir lífið. Þetta verk ætti að höfði til allra, en kannski sérstaklega til þeirra sem hafa gaman af súrealískum og áhugaverðum persónum. Mikla erótík er að finna í verkinu sem gerir þetta að fullorðins verki.

Hvað finnst þér leikfélagið gera fyrir menninguna og félagslífið í Eyjum?

Leikfélagið hefur ávalt lagt metnað sinn í að setja upp eins flottar og góðar sýningar og það getur fyrir eyjafólk og aðra, við viljum halda áfram að stuðla að menningarlífinu og hér í Eyjum og byggja það upp með því að bjóða upp á eitthvað skemmtilegt og öðruvísi. Það eru komin að mig minnir 23 ár síðan Rocky Horror var sett upp síðast hér í Eyjum og okkur fannst alveg kominn tími til að sýna það aftur, enda mjög skemmtilegt og öðruvísi verk.

Er eitthvað sem að betur mætti fara varðandi LV, þá er meiri aðstoð? (sjálfboðaliðar eða fjármagn)?

Við búum mjög vel sem áhugamannafélag, erum með flotta aðstöðu og félagsmenn eru mjög virkir. Við fögnum að sjálfsögðu hverri þeirri aðstoð sem við fáum, hvort sem það er í formi sjálfboðavinnu, styrkja eða fjármagns, því til að geta gert svona stórar sýningar frábærara þá þurfum við svo sannarlega á því að halda.

Hvaða karakter leikur þú í leikritinu? Eitthvað sem þið eigið sameiginlegt?

Ég leik hinn undirgefna en lævísa Riff Raff, sem er bryti Dr. Frank N Furter. Ég get ekki sagt að ég deili miklu með Riff Raff, hvorki útlitslega né hvað innræti varðar, það væri þá kannski helst pervertisminn, því blundar ekki einhver smá pervert í okkur öllum?

Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju?

Það væri nú gaman að hitta Plato, Diogenes og Immanuel Kant, það væri áhugavert að fylgjast með heimspekilegri hringavitleysunni sem þá myndi skapast, en þá þyrfti nú að bjóða upp á eitthvað sterkara en kaffi grunar mig.

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?

Úff, mér þætti áhugavert að fara annað hvort til Egyptalands eða Grikklands til forna, en það er hættulegt að fikta í tímanum, mæli ekki með því. Held ég myndi bara fela vélana og horfa á eitthvað á Netflix í staðinn.

Hvaða smáforrit er ómissandi?

Ekkert er ómissandi, en flest eru ávanabindandi. Er að reyna að draga úr smáforrita notkun hjá mér, það gengur ekki eins vel og ég hefði viljað. En batnandi mönnum og allt það.

Hvaða leikari myndi leika þig í bíómynd um þig? Einhverntíman sagði götusali í L.A. að ég liti út eins og Brad Pitt, ætli það væri ekki bara flottur kandidat í að túlka mig sem persónu.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Pasta Carbonara

Hráefni:

120 gr beikon

1 msk ólífuolía

400 gr spaghetti

Salt

4 eggjarauður

2 msk léttrjómi

1/4 glas af parmesan

Pipar

Aðferð:

Skerið beikonið í ræmur og steikið. Sjóðið spaghettíið í léttsöltu vatni. Hrærið eggjarauðurnar saman í skál og blandið rjómanum saman við, ásamt helmingnum af parmesanostinum og piparnum.

Kveikið á pönnunni med beikoninu og henda spaghettíinu í. Hrærið í smá tíma og setjið svo spaghettíið með beikoninu í skálina med eggjablöndunni.

Berið fram med parmesanosti og jafnvel salati og hvítlauksbrauði.

Litla Skvísubúðin www.skvisubudin.is Úrval
veisluna
af kjólum fyrir

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.