Skip to main content

Tígull 10.tbl 04 árg.

Page 1

10. tbl. 04. árg. 16. - 22. mars 2022


RAGNHEIÐUR SVEINÞÓRSDÓTTIR

Sækist eftir 2. - 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðisflokksins Starfsemin var gagnrýnd þegar Eimskip hafði samninginn en maður spyr sig í dag hverju breytingarnar, sem áttu að vera til batnaðar, skiluðu? Ég vann sjálf á Herjólfi fyrir um 20 árum, þegar Lalli var skipstjóri og kynntist stjórnuninni og hvernig hugsunin var þá. Hins vegar erum við sjálf orðin kröfuharðari en við vorum fyrir 20 árum þegar við horfum á samgöngurnar. Í dag finnst okkur sjálfsögð krafa að farnar séu 7 ferðir á dag í Landeyjarhöfn. Við sem eyjafólk gerum okkur þó fulla grein fyrir að yfir hörðustu mánuðina þarf að sigla í Þorlákshöfn þegar ölduhæðin er of mikil. Seinustu tvo vetur höfum við verið ótrúlega heppin og frátafir verið óverulegar.

Ég hef verið spurð fyrir hvað ég stend þegar kemur að bæjarmálunum okkar. Ég hef víst skoðun á flestu en er hins vegar raunsæ þegar kemur að takmörkunum mínum til að ræða málefni sem ég hef einfaldlega ekki nógu mikið vit á.

TÍGULL

Samgöngumálin Það fyrsta sem ég horfi til sem íbúi Vestmannaeyjabæjar er hvað við getum gert betur varðandi stjórnun samgöngumála. Það er ekki eðlilegt að bærinn logi stafnanna á milli þegar Herjólfur er ræddur, að illa gangi að slökkva elda innanbúðar hjá Herjólfi.

Það sem ég vil koma á framfæri er að við verðum að hugsa fram í tímann. Við getum ekki bara yppt öxlum þegar sandurinn er orðinn of mikill og á sama tíma er sjólagið óhagstætt. Það velta allir fyrir sér hvað sé að frétta af dýpkun þessa dagana. Ef við horfum framhjá náttúrunni þá þarf einfaldlega að setja skýrar verklagsreglur þegar kemur að stjórnun er varðar ferjuna og huga betur að upplýsingagjöf til notenda hennar á skilvirkan hátt. Það eru alltaf til lausnir og hér eru frábær tækifæri samfélaginu til hagsbóta.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Innviðirnir Þar sem ég sækist eftir 2.-4. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þá langar mig að minnast á innviðina okkar. Þegar kemur að grundvallarskipulagi kerfisins eða innviðunum þá er ég í fyrsta lagi vel kunnug skólakerfinu, með þrjú börn í grunnskóla. Heilbrigðisþjónustunni, við fjölskyldan nýtum okkur hana eins og aðrir en við Siggi eigum líka langveikt barn svo mig grunar að við höfum þurft að nýta okkur þá þjónustu sem býðst, oftar en margir. Af sömu ástæðu þekkjum við félagslega kerfið hér í eyjum ágætlega og þegar ég segi fólki í sömu sporum og við, hvernig þjónustan er í okkar sveitarfélagi þá gapa margir. Því við erum ótrúlega heppin þegar kemur að ótrúlega mörgum þáttum í innviðunum hjá okkur. Hins vegar þegar kemur að bráðahjálp vitum við að þegar við þurfum hana þá tekur hún tíma. Ég sjálf þakka fyrir að hafa ekki farið fyrr af stað með miðjubarnið mitt sem fæddist hér í eyjum. Þann dag voru vaktaskipti hjá svæfingalæknunum, ef hún hefði reynt að koma í heiminn nokkrum klukkustundum fyrr þá finnst mér ólíklegt að hún væri 10 ára í dag. Sjúkravél staðsett á norðurlandi hefði mjög ólíklega náð að ferja okkur í bæinn í tíma. Mikilvægi sjúkraþyrlu eru ótvíræð, konur eru að fæða börn hérna í eyjum, fólk slasast, veikist, skip eru á sjó allt í kringum okkur. Af hverju höfum við ekki heyrt meira um áform um staðsetningu sjúkraþyrlu á suðurlandi ? Af hverju er þetta í alvöru ekki eitt af helstu baráttumálum bæjarins? Ég geri mér fulla grein fyrir því að fá sjúkraþyrlu til okkar er eins og að snúa olíuskipi í Suez-skurðinum, reyndar

litlu olíuskipi, en það krefst samt sem áður þrautseigju, undirbúnings og reynslu. Ég hef þrautseigju og reynslu af stjórnsýslunni. Ég vann lengi hjá opinberu hlutafélagi og geri mér ótvíræða grein fyrir því hvernig fjármunum er ráðstafað. Ég hef líka með þrautseigju komið tveimur reglugerðabreytingum, fyrir börn með skarð í gómi, í gegn ásamt viðauka til að stemma stigu við óbilgirni í kerfinu. Við verðum að halda áfram og hafa hátt. Umhverfið Ég hef einbeittar skoðanir á umhverfismálum þegar kemur að bæjarfélaginu okkar. Ég tel að reynsla mín og menntun muni nýtast sveitarfélaginu þegar við horfum til umhverfismála og sjálfbærni. Ég vil hugsa fram í tímann og hafa yfirsýn yfir næstu skref. Þegar ég var að klára grunnskóla og samnemendur mínir fóru á framhaldsskólakynningar þá fór ég fyrst á háskólakynningu, til að áætla hvar áhugi minn kynni að liggja til að geta ákveðið framhaldsskóla í átt að framtíðarmarkmiðinu. Sjávarútvegsfræði heillaði mig mest svo eftir að hafa skoðað framhaldsskóla valdi ég Stýrimannaskólann þar sem mér fannst hann líklegastur til að veita mér þá þverfaglegu menntun sem ég sá fyrir mér. Ég elska að vinna og sjómennskan átti ótrúlega vel við mig. Ég gef aldrei eftir og t.d. á loðnu í gamla daga þá var ég í blýinu heila vertíð, eftir að tuðað var um að ég hefði fengið léttara hlutverk í desember. Til að gera langa sögu stutta þá byrjaði ég í sjávarútvegsfræði í háskólanum og heillaðist af umhverfisfræðinni á sama tíma. Í stað þess að skipta um námsbraut þá ákvað ég að „bæði væri betra“ fyrir mig og lagði harðar að mér og kláraði

ég tvær gráður á þremur árum. Í dag vinn ég að umhverfismálum sem stjórnandi rannsókna í þverfaglegum nýsköpunarhópi, sem þverar landið og vinnur að nýjum afsetningarleiðum fyrir aukaafurðir í landbúnaði til hagsbóta fyrir sjávarútveg. Umhverfismál eru mér hugleikin og ég myndi gjarnan vilja koma á fót öflugri, heildrænni umhverfisog samfélagsstefnu fyrir bæinn okkar þar sem umhverfisstefna er svo miklu meira en að flokka rusl og samfélagsstefna er svo miklu meira en að vísa í heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Við þurfum að horfa í sömu átt og Þóra í Kubuneh sem hugsar hvert skref fram í tímann, nýtir öll efni sem hún meðhöndlar og horfir alltaf næstu skref inn í framtíðina. Ég mun berjast fyrir hagsmunum bæjarins af fullum krafti. Ég trúi að samfélagið okkar sé það besta til að búa í, fólk sem flyst hingað muni undantekningalaust hagnast á því í formi lífsgæða fyrir sig og fjölskylduna sína. Ég vil að samfélagið okkar sé alltaf besta útgáfan af sjálfu sér – fyrir okkur öll. Vestmannaeyjar – verðum best.


ÞRAUTIR

GEIMFARI NUDDARI MÁLARI KENNARI KOKKUR SMIÐUR SÖLUMAÐUR UPPISTANDARI SÖNGVARI PRENTARI


Starfsmaður Starfsmaðuróskast óskasttiltilað aðsjá sjáum um Starfsmaður óskast til að sjá um virkni, virkni,skemmtun skemmtunogogáhugahvetjandi áhugahvetjandi virkni, skemmtun og áhugahvetjandi verkefni verkefnialdraðra aldraðra ááhjúkrunarheimilinu hjúkrunarheimilinu verkefni aldraðra á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í Vestmannaeyjum Hraunbúðum í Vestmannaeyjum

Helstu Helstu verkefni verkefni ogog ábyrgð ábyrgð Helstu verkefni og ábyrgð • • Stilla Stilla upp upp skemmtilegum skemmtilegum verkefnum verkefnum fyrir fyrir íbúa íbúa • Stilla upp skemmtilegum verkefnum fyrir íbúa Hraunbúða. Hraunbúða.Hraunbúða. • • SjáSjá um um upplestur, upplestur, föndur, föndur, bakstur bakstur ogog að að fáfá viðburði viðburði • Sjá um upplestur, föndur, bakstur og að fá viðburði s.s.s.s. kóra, kóra, almennan almennan samsöng samsöng o.fl. o.fl. inn inn á heimilið. á heimilið. s.s. kóra, almennan samsöng o.fl. inn á heimilið. • • Aðstoð Aðstoð í matsal. í•matsal. Aðstoð í matsal. • • Önnur Önnur tilfallandi tilfallandi verkefni. verkefni. • Önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur Hæfniskröfur Hæfniskröfur • • Einlægur Einlægur áhugi á að á að vinna vinna með öldruðum. • áhugi Einlægur áhugi ámeð aðöldruðum. vinna með öldruðum. • • Jákvætt Jákvætt viðhorf. viðhorf. • Jákvætt viðhorf. • • Frumkvæði Frumkvæði og sjálfstæð sjálfstæð vinnubrögð. • ogFrumkvæði ogvinnubrögð. sjálfstæð vinnubrögð. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • • Framúrskarandi Framúrskarandi hæfni hæfni í mannlegum í mannlegum samskiptum. samskiptum.

Frekarium upplýsingar Frekari Frekari upplýsingar upplýsingar um starfið starfið um starfið • er Starfshlutfall er viðkomandi 55% og þarf viðkomandi að geta hafið • • Starfshlutfall Starfshlutfall er 55% 55% ogog þarf þarf viðkomandi aðað geta geta hafið hafið störf sem fyrst. störf störf sem sem fyrst. fyrst. •erer Vinnutími eralla frá kl virka 10-14 alla virka daga. • • Vinnutími Vinnutími frá frá kl kl 10-14 10-14 alla virka daga. daga. • Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 og dvalarrými og • • ÁÁ Hraunbúðum Hraunbúðum eru eru 3030 hjúkrunarrými, hjúkrunarrými, 4 dvalarrými 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými. 1 hvíldarrými. 1 hvíldarrými. • Um er að ræða gefandi og spennandi starf fyrir ein• • Um Um erer aðað ræða ræða gefandi gefandi ogog spennandi spennandi starf starf fyrir fyrir eineinstakling sem hefur áhuga á áhugahvetjandi umhverfi stakling stakling sem sem hefur hefur áhuga áhuga á áhugahvetjandi á áhugahvetjandi umhverfi umhverfi fyrir aldraða. fyrir fyrir aldraða. aldraða. • Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og • • Laun Laun samkvæmt samkvæmt gildandi gildandi kjarasamningi kjarasamningi sem sem fjármálafjármálaogoggert. efnahagsráðherra og Drífandi, stéttarfélag hafa efnahagsráðherra efnahagsráðherra ogog Drífandi, Drífandi, stéttarfélag hafa hafa gert. • Umsókn skal skilaðstéttarfélag rafrænt á vef HSU -gert. www.hsu.is undir • • Umsókn Umsókn skal skal skilað skilað rafrænt rafrænt á vef á vef HSU HSU www.hsu.is www.hsu.is undir undir flipanum “lausar stöður”. flipanum flipanum “lausar “lausar stöður”. stöður”. Umsóknarfrestur er til og með 28.03.2022 Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur erer tiltil ogog með með 28.03.2022 28.03.2022 Nánari upplýsingar veitir: Una Sigríður Ásmundsdóttir - una.asmundsdottir@hsu.is Nánari Nánari upplýsingar upplýsingar veitir: veitir: Sími: 432-2650. - una.asmundsdottir@hsu.is Una Una Sigríður Sigríður Ásmundsdóttir Ásmundsdóttir - una.asmundsdottir@hsu.is - Sími: Sími: 432-2650. 432-2650.


VERKIÐ ER MJÖG SPENNANDI OG ENDIRINN AFAR ÓVÆNTUR!

Leikstjóri sýningarinnar er hún María Sigurðardóttir, hún er 67 ára úr Reykjavík. Hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1983.

frá Línakri, 39 Þrep, Honk!, Gaukshreiðrið, Þrek og tár, Tveir tvöfaldir og fleirum.

María vann síðustu fimm ár í Melabúð en hefur skotist út á land til að leikstýra einu sinni á vetri. En nú er María hætt í Melabúð og ætlar að treysta á lukkuna í leiklistinni.

Þau reikna með að ná að frumsýna um páskana. Það tekur yfirleitt um sex til átta vikur að æfa sýningar. Í þessari sýningu eru ellefu leikarar. Auk þeirra koma um tíu til fimmtán manns að vinnunni. María segir að það sé mikil vinna að setja upp svona sýningu. Það er heilmargt sem þarf að gera, bæði á æfingatímanum og á sýningum. Hún hefur mikið dáðst að fólki í áhugaleikhúsunum fyrir dugnað þeirra og ósérhlífni og segir að fólkið hér í Leikfélagi Vestmannaeyja sé sko engin undantekning. „Þvílíkur kraftur og áhugi,, segir María. Maríu hlakka til að halda áfram með þeim og koma þessu spennuleikriti á svið.

Áður en María kom til Eyja kenndi hún eina önn í Listaháskólanum, hún vann senur úr Shakespeare með leiklistarnemum.

Leikstýrði meðal annars Djöflaeyjunni og Englum Alheimsins

María er með nokkur skemmtileg verk í farteskinu og vonast til að komast inn í atvinnuleikhúsin á næstu misserum til að setja þau upp. Hún hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri í kvikmyndum, til dæmis: Bíódagar, Djöflaeyjan, Englar Alheimsins og fleirum. Hún leikstýrði svo eigin kvikmynd árið 2001, hún heitir Regína og er dans- og söngvamynd. Í atvinnuleikhúsum og hjá áhugaleikfélögum hefur María meðal annars leikstýrt sýningunum: Sex í sveit, Pétur Pan, Fegurðardrottningin

Stefna á frumsýningu um páskana

Agatha Christie höfundur leikritsins

Leikritið er eftir Agöthu Christie og hún byggir það á samnefndri bók sem hún skrifaði. Upphaflega hét verkið, 10 litlir negrastrákar, Ten Little Niggers, en var svo breytt í 10 Little Indians. Ég breytti titlinum í samræmi við staðinn og við köllum það 10 litlir Eyjapeyjar.

Söguþráðurinn í stórum dráttum

10 manneskjum er boðið í óvissuferð út í Eyju en óséður morðingi drepur þau eitt af öðru. Við kynnumst þarna ólíkum persónum, og sögum þeirra, sem eru margar æði forvitnilegar. Verkið er mjög spennandi og endirinn afar óvæntur! Leikarnir eru frá sextugt og niður í sautján ára. Langflest eru ung að árum og fá þarna að fást við ólíkar og spennandi persónur á ýmsum aldri. Þetta leggur mikið á þeirra herðar, en gefur þeim á móti mikla reynslu. María er mjög ánægð með vinnu þeirra allra og trúi því að þau muni koma skemmtilega á óvart. Leikarar eru: Aron Kristinn Helga Lind Halldórsdóttir Albert Snær Tórshamar Goði Þorleifsson Birna Karen Wíum Elí Kristinn Símonarson María Fönn Frostadóttir Alexander Páll Salberg Reynir Þór Egilsson Unnur Guðgeirsdóttir Breki Einarsson


SÍÐASTA LEIKSÝNING SEM UNNUR TEKUR ÞÁTT Í

Unnur Guðgeirsdóttir er fædd 23. febrúar 1961 og er því 61 árs, hún er gift Ragnari Gíslasyni og eiga þau þrjú uppkomin börn og tvö barnabörn og það þriðja er á leiðinni. Hún kláraði gaggann og fór að vinna í fiski og svo við verslunarstörf.

Síðasta sýningin sem Unnur tekur þátt í

María leikstjóri snéri upp á höndina á Unni, ekki það að hún hafi þurft að snúa mjög langt því Unnur elskar að taka smá þátt í því sem gerist á sviðinu. Hún hefur tekið þátt í sjö leiksýningum en alltaf verið viðloðandi leikhúsið síðan 1986 eða 36 ár, og verið formaður fèlagsins síðan 2013. Unnur á ekkert uppáhalds leikrit þau eru öll skemmtileg á sinn hátt en Sjö stelpur er það minnisstæðasta sem hún hefur tekið þátt í.

Sviðsmyndin gæti alveg eins verið út í Bjarnarey Leikverkið sem þau erum núna að vinna er eftir Agatha Christie Ten Little Indians á frummálinu. Tíu litlir eyjapeyjar, sakamálaleikrit virkilega spennandi og skemmtilegt

sem gerist á eyju sem líkja má við Bjarnarey. Unnur segir að þetta verk hafi ekki verið sett upp hér í Vestmannaeyjum, hún hefur allavega ekki vitneskju um annað. Það sem er skemmtilegast við þetta leikrit er að það virkar eins og farsi þar sem hver einasta hreyfing og staðsetning leikarana verður að vera rétt svo það virki sem skyldi. Mér persónulega finnst það spennandi og fyndið segir Unnur. Þau stefna á 10 sýningar og frumsýningu um páskana, Unnur segir alla eiga að njóta og fara loksins í leikhús.

Við spurðum Unni hvað leikhúsið hefur gefið henni í gegnum árin? Það er stór spurning segir Unnur, svo ég tali frá hjarta mínu þá er ekkert eins gefandi en að fá börn sem oftast hafa engin áhugamál koma og blómstra á sviði, opna sig fyrir áhorfendum standa teinrétt í baki og koma aftur og aftur. Unnur segir við ykkur sem ekki hafið komið og tekið þátt í uppsetningu á leikriti: Komið þið því þið lærið ekki bara

að leika, þið lærið aga, einbeitingu, hópavinnu, framkomu, ófeimin í ræðustól og svo margt annað sem ekki er upp talið. Komið þið og prófið, það bítur enginn.


Við spurðum Aron hvaða hlutverk sé í uppáhaldi hjá honum og hann var ekki lengi að svara því. Uppáhalds hlutverk mitt verður að vera íþróttaálfurinn, það var rosalega gaman. En annars hef ég verið pabbi Línu langsokks og auðvitað var mín fyrsta rulla talandi blóm sem var með 5 línur. Í þessari sýningu leikur Aron, Philip Lombard sem er breskur “ævintýramaður” að einhverju leyti. Er ekki erfitt að læra mikið af texta utan af? Það er alltaf mjög erfitt fyrir mig að læra alla þessa texta svona í byrjun. En ef þú ert duglegur að fylgjast með og lesa mikið þá kemur þetta næstum alltaf. Auðvitað kemur fyrir að maður klikki smá, en þá er eins gott að þú bjargir þér eða mótleikarinn bjargar þér.

Geðveikt að standa stressaður baksviðs að peppa sig inn á svið, og þegar þú gengur inn á þá hverfur allt stress Aron Kristinn Smárason er á 19. ári. Foreldar hans eru Smári Kristinn Harðarson og Sigurlína Guðjónsdóttir.

Þið sem eruð eitthvað feimin með að mæta! KOMIÐI Þetta er svo gaman og síðan er geðveikt að standa stressaður baksviðs að peppa sig inn á svið, og þegar þú gengur inn á þá hverfur allt stress. Síðan er þetta frábært ef þú ert athyglissjúkur segir Aron Kristinn að lokum og hlær.

Birna Karen hefur ekki leikið áður í leikhúsi. Hún flutti til Vestmannaeyja árið 2020 og langaði alltaf að prófa að leika svo hún ákvað bara að láta vaða í ár.

Við spurðum Birnu Karen hvað væri skemmtilegast við að taka þátt í þessu. Það er alltaf gaman að fá að vera partur af þessu. Mjög skemmtilegt þegar maður er ennþá að finna útúr karakterunum og leikritinu og fær svolítið að leika sér með mismunandi “útgáfur” þangað til maður finnur rétta. Það er oft spennandi að sjá hvernig karakterarnir voru allir í byrjun vs hvernig þeir eru núna segir Birna. Erfitt að læra texta? Já það getur alveg verið smá erfitt. Það klikka allir öðru hvoru á textanum og er það bara mjög venjulegt. En enginn lærir allan textann án þess að gleyma nokkrum línum öðru hvoru og sérstaklega í byrjun æfinga þegar maður er ennþá að læra handritið. Birna leikur lækninn Armstrong, einn af “eyjapeyjunum” sem kom á Eyjuna. Til þeirra sem langar að prufa: Ég segi bara go for it! Þetta er súper skemmtilegt og allt fólkið er æðislegt. Ef þig langar að prófa þá mæli ég 100% með því að gera það bara strax segir Birna Karen að lokum.

Elskar að baka Hann starfar í bakaríinu Vigtin Bakhús sem bakari og elskar það mjög mikið. Hann fær mikið frelsi þar að hans sögn og er duglegur að leika sér eftir vinnutíma við að búa til ýmislegt sniðugt og gott. Hann er ekki kominn á samning, en yfirmaður hans er einmitt að klára meistaranámið og þá fær Aron allan tímann sinn metinn í skólann. Sem betur fer! Hefur leikið í fimm ár með Leikfélagi Vestmannaeyja Aron hefur leikið í leikhúsinu síðan hann var 13/14 ára. Þetta verk er það fimmta sem hann tekur þátt í. En ef talið er Spamalott með þá er þetta sjötta. En vegna Voldemort þá fengum við ekki að sýna þá sýningu.

Hefur alltaf langað að prófa að leika

Birna Karen Björnsdóttir er 18 ára eyjamær. Foreldrar hennar eru Inga Guðrún og fósturfaðir er Þorvaldur Hafdal. Birna er í Framhaldsskólanum hér í Vestmannaeyjum á félagsvísindalínu og sterfnir á að klára stútendinn.


Starfsmaður Starfsmaðuróskast óskasttiltilað aðsjá sjáum um virkni, virkni,skemmtun skemmtunogogáhugahvetjandi áhugahvetjandi verkefni verkefnialdraðra aldraðraááhjúkrunarheimilinu hjúkrunarheimilinu Starfsmenn vantar til sumarafleysinga Hraunbúðum Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í Vestmannaeyjum á Hjúkrunarog dvalarheimilið Helstu Helstu verkefni verkefni ogog ábyrgð ábyrgð Hraunbúðir í Vestmannaeyjum • • Stilla Stilla upp upp skemmtilegum skemmtilegum verkefnum verkefnum fyrir fyrir íbúa íbúa Hraunbúða. Hraunbúða. Helstu verkefni og ábyrgð • • SjáSjá um um upplestur, upplestur, föndur, föndur, bakstur bakstur ogog aðað fáfá viðburði viðburði •almennan Umönnun aldraðra. s.s.s.s. kóra, kóra, almennan samsöng samsöng o.fl. o.fl. inninn á heimilið. á heimilið. Veita hlýju og gleði. • • Aðstoð Aðstoð í matsal. í •matsal. • Létt eldhúsverk. • • Önnur Önnur tilfallandi tilfallandi verkefni. verkefni. Hæfniskröfur Hæfniskröfur Hæfniskröfur • Áhugi á að vinna með öldruðum. • • Einlægur Einlægur áhugi áhugi á að á að vinna vinna með með öldruðum. öldruðum. • Jákvætt viðhorf. • • Jákvætt Jákvætt viðhorf. viðhorf. • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. • • Frumkvæði Frumkvæði ogog sjálfstæð sjálfstæð vinnubrögð. vinnubrögð. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • • Framúrskarandi Framúrskarandi hæfni hæfni í mannlegum í mannlegum samskiptum. samskiptum.

Frekarium upplýsingar Frekari Frekari upplýsingar upplýsingar um starfið starfið um starfið • erHjúkrunarog dvalarheimilið Vestmanna• • Starfshlutfall Starfshlutfall er 55% 55% ogog þarf þarf viðkomandi viðkomandi aðHraunbúðir að geta geta hafið hafið eyjum óskar eftir starfsfólki til sumarafleysinga í störf störf sem sem fyrst. fyrst. skemmtilegt og gefandi starf með yndislegu heimilisfólki. • • Vinnutími Vinnutími erer frá frá kl kl 10-14 10-14 alla alla virka virka daga. daga. • Á Hraunbúðum eru 30. hjúkrunarrými, 4.og dvalarrými og • • ÁÁ Hraunbúðum Hraunbúðum eru eru 3030 hjúkrunarrými, hjúkrunarrými, 4 dvalarrými 4 dvalarrými og 1. hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara. 1 hvíldarrými. 1 hvíldarrými. • ræða Starfshlutfall samkomulagsatriði. • • Um Um erer aðað ræða gefandi gefandi ogog spennandi spennandi starf starf fyrir fyrir einein• Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og stakling stakling sem sem hefur hefur áhuga áhuga á áhugahvetjandi á áhugahvetjandi umhverfi umhverfi efnahagsráðherra og Drífandi, stéttarfélag hafa gert. fyrir fyrir aldraða. aldraða. • Umsókn skalkjarasamningi skilað rafræntsem ásem veffjármálaHSU - www.hsu.is undir • • Laun Laun samkvæmt samkvæmt gildandi gildandi kjarasamningi fjármálaogog flipanum “lausar stöður”. efnahagsráðherra efnahagsráðherra ogog Drífandi, Drífandi, stéttarfélag stéttarfélag hafa hafa gert. gert. • • Umsókn Umsókn skal skal skilað skilað rafrænt rafrænt á vef á vef HSU HSU - www.hsu.is - www.hsu.is undir undir Umsóknarfrestur er til og með 28.03.2022 flipanum flipanum “lausar “lausar stöður”. stöður”. Nánari upplýsingar veitir: Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur er tiltil ogog með með 28.03.2022 28.03.2022 Unaer Sigríður Ásmundsdóttir - una.asmundsdottir@hsu.is Sími: 432-2650. Nánari Nánari upplýsingar upplýsingar veitir: veitir: Una Una Sigríður Sigríður Ásmundsdóttir Ásmundsdóttir - una.asmundsdottir@hsu.is - una.asmundsdottir@hsu.is - Sími: Sími: 432-2650. 432-2650.


Afmæli vikunnar ÁRA ÁRA

Steiney Arna Gísladóttir - 17. 03 Tómas Aron Kjartansson - 17. 03

ÁRA

Einar Kárason - 16. 03 Valur Smári Heimisson - 17.03

ÁRA

10 25 35 45

Þór Albertsson - 12.03 Þórir Bjarnason - 19.3

Kristjana Magrét Harðardóttir - 16.03 Ingibjörg Bryngeirsdóttir - 17.03

ÁRA

40

Arnar Ingi Ingimarsson - 15.03

Til hamingju með stórfmælið! Hvað á að gera í tilefni dagsins? Borða góða mat með fjölskyldunni, ekkert flóknara en það.

Er tilefni? Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Þú getur sent okkur grein og við birtum. tigull@tigull.is


VEL HEPPNUÐ ÁRSHÁTÍÐ VESTMANNAEYJABÆJAR Vestmannaeyjabær hélt á laugardaginn í fyrsta sinn árshátíð fyrir öll svið bæjarins. Alls mættu 430 manns í borðhaldið. En það var Gatsby þema. Einski Kaldi sá um veislumatinn, meðal annars var boðið upp á Anda-taco í forrrétt, lambalæri og svínapurru í aðalrétt og brownís eftirrétt en þetta er brot af matseðlinum. Það voru Friðrik Ómar og Jógvan sem voru veislustjórar og Elísabet Ormslev sem söng nokkur lög. Atriði var frá Leikfélagi Vestmannaeyja og Litlu Lú og svo spilaði bandið Allt í Einu fyrir balli fram á nótt. Mikil ánægja var með vel heppnað kvöld og langþráð ball.


VIÐBURÐIR FRAMUNDAN MIÐ

16

MARS

MIÐ

16

MARS

LAU

19

MARS

LAU

19

MARS

MIÐ

23

MARS

MIÐ

23

MARS

MIÐ

23

MARS

LAU

26

MARS

SUN

27

MARS

LAU

01 APRÍL

ÍBV - KA/ÞÓR Olísdeild kvenna

Íþróttamiðstöð kl. 18:00 ÍBV U - STJARNAN U Grill 66 kvenna

www.eyjabio.IS

Íþróttamiðstöð kl. 20:00 BREIÐABLIK - ÍBV Lengjubikar kvenna

Laugardagur - 19. mars

SUNNUdagur - 20. mars

SUNNUdagur - 20. mars

kl. 20:00

kl.15:00

kl.20:00

Kópavogsvöllur kl. 14:00 VALUR - ÍBV Olísdeild kvenna

Origo völlur kl. 14:00 ÍBV - HK Olísdeild kvenna

Íþróttamiðstöð kl. 14:00 ÍBV U - HK U 66 Grill kvenna

Íþróttamiðstöð kl. 20:00 Afturelding - ÍBV Olísdeild karla

Íþróttamiðstöð Varmá kl. 18:00 HK - ÍBV Olísdeild kvenna

Kórinn kl. 14:00 ÍBV - HAUKAR Olísdeild karla

Íþróttamiðstöðin kl. 16:00 KONU- & KARLAKVÖLD ÍBV

HÖLLIN & HÁALOFTIÐ 19:30

01 APRÍL


Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Það kostar 10.000 kr.

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR Túngötu 3, Vestmannaeyjum

lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum Vestmannaeyjum miðvikudaginn 9.mars. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 26. mars kl. 13:00. Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is Sigurður Kristinn Ragnarsson Margrét Elín Ragnheiðardóttir Daði Garðarsson Magnea Ósk Magnúsdóttir Ásbjörn Garðarsson Gylfi Garðarsson Sigmar Garðarsson Ragna Garðarsdóttir Lilja Garðarsdóttir Gísli Magnússon Gerður Garðarsdóttir Eyjólfur Heiðar Heiðmundsson barnabörn og barnabarnabörn.

Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma

GUÐNÝ STEFANÍA KARLSDÓTTIR (GAUJA) lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum Vestmannaeyjum 8.mars. s.l Útför Guðnýjar (Gauju) fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 19. mars kl 13:00 Athöfninni verður einnig streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is. Ingi Steinn Ólafsson Sigríður Björg Ingadóttir Ómar Stefánsson Árni Karl Ingason Friðþór Vestmann Ingason Ragnheiður Jónsdóttir

barnabörn og barnabarnabörn


FÉLAG DÝRAVINA Í VESTMANNAEYJUM

SYNTI 6 KM TIL MINNINGAR UM AFREK GUÐLAUGS Hið árlega Guðlaugssund fór fram í Vestmannaeyjum þann 11. mars síðastliðinn til minningar um frækið björgunarafrek Guðlaugs Friðþórssonar sem synti um 6 kílómetra leið í land eftir sjóslys fyrir tæplega 40 árum. Guðlaugur synti til lands eftir að Hellisey VE 503 sökk austan við Heimaey að kvöldi 11. mars 1984. Fjórir menn fórust í slysinu. Sonja Andrésdóttir fer á hverju ári og syndir Guðlaugssundið í sundlaug Vestmannaeyja til minningar um atburðinn. Hún mætti kl. 04 um nóttina og var að klára rétt fyrir 7. Hún sagðist vita til þess að fleiri hefðu synt sem mættu klukkutíma síðar og einhverjir sem skiptu vegalengdinni á milli sín. Afhverju að synda Guðlaugssundið á hverju ári? Þetta er ákveðin áskorun og fara út fyrir rammann. Mér finnst skipta máli að halda minningunni á lofti því sem Guðlaugur afrekaði.

Stofnfundur áhugafólks um velferð dýra í Vestmannaeyjum var haldinn að miklu fjölmenni þann 5. mars síðastliðinn. Félaginu var gefið nafnið Félag dýravina í Vestmannaeyjum.

Kosið var í stjórn og hana skipa: Þóra Gísladóttir, formaður Sonja Andrésdóttir, varaformaður Georg Eiður Arnarsson Elín Björk Hermannsdóttir Daníel Edward Jónsson Elísa Hallgrímsdóttir Marsibil Sara Pálmadóttir.

Facebooksíða félagsins er Dýravinafélag Vestmannaeyja. Fyrir þau sem vilja hafa samband við þau þá eru þau með netfangið: dyravinafelagvestmannaeyja@gmail.com Stjórnarmeðlimir vilja ítreka við gæludýraeigendur að hirða upp eftir sín dýr. Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta sent tölvupóst á félagið eða haft samband við stjórnarmeðlimi.

Hversu oft í viku syndirðu? Ég syndi einu sinni á ári og tek þá 6 km eða 240 ferðir.

Í samtali við Sonju Andrésdóttur sagði hún að það væri mikil vinna farin í gang. En þau eru að herða á að koma húsinu við Malarvöllinn í lag svo hægt sé að taka á móti dýralæknum. En hingað hafa ekki komið dýralæknar í 7 mánuði. Einnig erum við í viðræðum við Herjólf um að koma upp aðstöðu fyrir dýrin okkar eða plássi þar sem við getum verið með dýrin.

Hvernig heldur þú þér í formi? Ég er í dugnaði og mæti þangað ca. þrvisvar í viku og svo reynum við félagarnir að hlaupa saman (ég og hundurinn) 2x í viku. Það er svo frábært að vera hjá stelpunum í Dugnaði og þetta er hreyfing sem ég hef fundið mig í. Þetta er eitthvað sem er fyrir alla.

Það er ýmislegt sem mætti bæta hér fyrir dýrin okkar og erum við með margar hugmyndir en við munum gera okkar besta til að koma þessu öllu í góðan farveg. Það er alltaf gott að fá ábendingar svo að ef að fólk vill þá má endilega senda okkur tölvupóst á netfangið okkar, segir Sonja að lokum.


AÐALFUNDUR Aðalfundur Krabbavarnar verður haldinn 31. mars kl. 20:00 Fundarstaðu: Arnardrangur, efri hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum alla sem hafa áhuga á félaginu að mæta. Léttar veitingar.

leturstofan@leturstofan.is Á Leturstofunni bjóðum við upp á hönnun og umbrot á alls konar verkum. Auglýsingar / logo / sálmaskrár umbúðir / fréttabréf nafnspjöld / boðskort / bæklinga / límmiða og allt sem þér dettur í hug. Ásamt því að hanna auglýsingar, bjóðum við einnig upp á auglýsingasöfnun. Ert þú með blað eða tímarit og vantar að safna auglýsingum? Vertu í sambandi við okkur og við förum yfir þetta í sameiningu.

Stjórnin

Leið 52

STRÆTÓ

www.straeto.is 540 -2700

Landeyjarhöfn Virkir dagar:

Frá Mjódd Frá Mjódd Frá Landeyjarhöfn Frá Landeyjarhöfn

08:00 17:45 10:03 20:40

Helgar: Frá Mjódd Frá Mjódd Frá Landeyjarhöfn Frá Landeyjarhöfn

08:10 15:15 10:13 18:00

www.ernir.is 481-3300 Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

Þorlákshöfn

Frá Reykjavík

09:00 Frá Mjódd 17:30 Frá Mjódd Strætó fer frá Mjódd til Þorlákshafnar kl. 19.00 þegar Herjólfur fer kl. 20.45 frá Þorlákshöfn. Frá Þorlákshöfn - Það er beðið eftir farþegunum og lagt af stað þegar að það eru allir komnir úr Herjólfi.

12:15 12:40 14:00 14:25

Frá Vestm.eyjum

13:00 13:25 14:45 15:10

www.straeto.is | 540-2700

Flug á þriðjudögum er eingöngu í mars.


EYJATÓNLEIKAR 21. APRÍL Í HÖRPU

YNDISLEGU EYJALÖGIN Á EINU GLÆSILEGASTA ÁRGANGS-, ÆTTAR- OG VINAMÓTI VERALDAR!

HREIMUR · STEFANÍA SVAVARS · KK · MAGNI MAGNÚS KJARTAN · SARA RENEE · RÚNAR RÚNARS · UNA ÞORVALDS STÓRHLJÓMSVEIT UNDIR STJÓRN ÞÓRIS ÚLFARSSONAR · BIRGIR NIELSEN · EIÐUR ARNARSSON · JÓN ELVAR HAFSTEINSSON KJARTAN VALDEMARSSON · SIGURÐUR FLOSASON · MATTHÍAS STEFÁNSSON · ARI BRAGI KÁRASON · KRISTJÁN GÍSLA · ALMA RUT MIÐASALA Á HARPA.IS · TIX.IS OG Í MIÐASÖLU HÖRPU Í SÍMA 528 5050


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 10.tbl 04 árg. by Leturstofan - Issuu