Skip to main content

Tígull 10.tbl 02árg.

Page 1

10. tbl. 02. รกrg. 11. - 17. mars 2020


ÚTGANGSPUNKTUR

Allur gangur á því hvað er gert í fermingarfræðslu hverju sinni. Á þetta við hvert sem litið er á Íslandi og úti í hinum stóra heimi ef út í það er farið. Formleg kennsla er jafn mismunandi og kennararnir eru margir og allur gangur er á því hvert lesefnið sé í kennslunni ef nokkuð. Fermingarfræðslan er oftast vikulega eins og hér í Eyjum en þó eru til þess dæmi að fermingarfræðslan sé aðra hverja viku. Sums staðar er horft á einhvers lags kvikmyndir í fræðslunni. Allt frá Passion of the Christ til Matrix sem hefur ekki síður trúarlegar skírskotanir en sú fyrrnefnda. Skyldur fermingarbarnanna, fyrir utan að mæta sómasamlega og sinna verkefni sínu af alúð, eru einnig

TÍGULL

mismunandi í fermingarfræðslunni. Sum fermingarbörn þurfa að aðstoða í sunnudagaskólanum, t.d. hér í Eyjum, á meðan önnur eru hartnær skyldug til að taka þátt í æskulýðsfélagi kirkjunnar í viðeigandi samfélagi. Stundum er þeim skylt að lesa ritningarlestra í guðsþjónustum. Og talandi um guðsþjónustur þá er einnig mismunandi hvort þau séu skyldug til að mæta í þær. Þá fara fermingarbörn þar að auki í fjöldamargar ferðir tengdar fræðslunni. Sennilega fara flest fermingarbörn á Íslandi í Vatnaskóg en önnur fara t.d. í Skálholt eða Hóla í Hjaltadal. Samtímis erum við reyndar svo sniðug hér í Eyjum að við fáum fræðara til okkar ofan af landi. Svokallaða „sérfræðinga að sunnan.“ Þá getur fræðslan haft mismunandi

áherslu og fer þar aðallega eftir því hver kennir hverju sinni. Á meðan einn vísar sérstaklega til allra tákna kirkjunnar og trúarinnar er annar sem leggur sérstaka áherslu á helgihald kirkjunnar. Hér í Eyjum má segja að áhersla okkar prestanna og þar með fræðslunnar sé hinn samfélagslegi þáttur trúarinnar og þar með fermingarbarnanna og okkar allra. En þrátt fyrir að fermingarfræðslan sé mismunandi þá er útgangspunktur hennar ávallt sá sami sem er að fræða um trúna. Ekki beint trúboð í eiginlegum skilningi þrátt fyrir að það geti vissulega farið saman. Tjah eða hvað? Er ekki öll kennsla eða miðlun þekkingar boðun? Burtséð frá slíkum vangaveltum er deginum ljósara að sá sem fræðist og veltir fyrir sér sinni eigin trú, heimsynd og guðsmynd mótast og vex sem einstaklingur og samtímis sem samviskusamur þjóðfélagsþegn. Að vaxa í visku og náð eins og sagt var um frelsarann sjálfan er að vaxa sem manneskja. Útgangspunkturinn með allri fermingarfræðslu, burtséð frá öllu fyrirkomulagi og áherslum, og í raun lífinu almennt er Guð sem kennir okkur að vera okkur sjálfum til sóma, að virða náunga okkar og veita honum hjálparhönd og muna hvaðan sá drifkraftur innra með okkur kemur. Um það snýst já fermingarbarnanna. Guð blessi þau öll og leiði hvert sem leiðir liggja. Amen.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Umsjón fermingarblaðs: Sara Sjöfn Grettisdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Verðum í Vestmannaeyjum föstudaginn 13 mars í Smart Tískuvöruverslun, Vestmannabraut 30. frá kl 11-18.

2 fyrir 1 tilboð 35%afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja Frábær skólatilboð Sólgleraugu með styrk frá 19.900kr. Sjónmælingar á staðnum Tímapantanir: 511-6699/899-8801

Glæsibær · Álfheimar 74 · 104 Reykjavík · Sími: 511-6698 · gleraugnav@gmail.com


FERMINGARBÖRN spurt & svarað HELGI ÞÓR ADOLFSSON Fjölskylda: Mamma er María S.Sigurbjörnsdóttir, pabbi Adolf H. Þórsson. Systkyni mín Sólveig, Sigurbjörn og Þorgerður Katrín. Af hverju ertu að fermast? Til að staðfesta skýrnina mína.

ÍVA BRÁ GUÐMUNDSDÓTTIR Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Örri og Gíslína og svo á ég eina eldri systur hana Míu og lítinn bróður sem heitir Kormákur. Af hverju ertu að fermast? Af því að pabbi minn er prestur. Er eitthvað stress fyrir deginum? Það er ekkert stress hjá mér.

Er eitthvað stress fyrir deginum? Nei Tekur þú virkan þátt í undirbúningnum? Já alla leið. Hvernig veitingar ætlið þið að hafa? Súpur, shusi, smárétti og kökur. Er von á mörgum gestum? Já vonandi um 90-100 manns. Er fermingarfötin klár? Nei. En það er í vinnslu.

Tekur þú virkan þátt í undirbúningnum? Nei ég tek ekki mikinn þátt í undirbúningnum. Ég valdi þó liti í veisluna og keypti servíettur. Hvernig veitingar ætlið þið að hafa? Ég veit það ekki, en það verður brúnkaka frá langömmu, það er það eina sem ég óskaði eftir. Er von á mörgum gestum? Ég er ekki klár á því. Eru fermingarfötin klár? Já, fermingarfötin eru klár, alla vega kjóllinn, skórnir eru enn ófundnir.

RAKEL PERLA GÚSTAFSDÓT TIR Fermingardagur? Sunnudaginn 19. apríl Fjölskylda: Mamma mín heitir Guðný Halldórsdóttir, pabbi minn heitir Gústaf Adolf Gústafsson, svo á ég þrjá bræður, Arnar Smára, Egil Aron, Elliða Snæ og eina litla bróðurdóttur hana Oktavíu Dröfn og svo hundinn Tuma.

Af hverju ertu að fermast? Ég fermist til að staðfesta skírnina mína Tekur þú virkan þátt í undirbúningnum? Já við mamma undirbúum ferminguna mína í sameiningu Hvernig veitingar ætlið þið að hafa? Lambalæri og tertur í eftirrétt Er von á mörgum gestum? Í kringum 80 Eru fermingarfötin klár? Allt klárt


kjoris.is/panta


LIFANDI BLÓM & KERTI Litir og áhugamál fermingarbarnsins er yfirleitt það sem einkennir þemu fermingarveislunnar. Í gegnum tíðina hefur einnig fermingarkerti og lifandi blóm verið partur af skreytingunum enda lífga lifandi blóm uppá hvaða rými sér er. Við fengum Birgittu Karen Guðjónsdóttur hjá Blómaval til þess að græja fyrir okkar nokkrar borðskreytingar sem allar eru afar fallegar. Ásamt fallegum borðskreytingum líkt og þessar sem við sjáum á myndunum eru ljósmyndir og persónulegt dót eins og fyrstu skórnir einnig hægt að nota til skrauts.


/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340

Full búð af glæsilegum fatnaði fyrir öll tilefni


LÉTTAR GREIÐSLUR & FALLEGIR LIÐIR Svanhvít Una Yngvadóttir hjá hárgreiðslustofunni Crispus gerði fyrir okkur tvær mismunandi fermingarhárgreiðslur. Það voru þær Íva Brá Guðmundsdóttir og Margrét Helgadóttir sem settust í stólinn.

Svanhvít sagði greiðslurnar í ár vera léttar og látlausar. Mjög algengt væri að taka hárið aðeins upp í létta greiðslu og svo léttir lokkar og liðir í afgangin á hárinu eins og við sjáum hér að neðan.


g i n n i e r e KOPAL 4 m u t i l i r k k e d í g e l n fáa

SKRÚFAR UPP, SMELLIR SAMAN, MÁLAR! EKKERT SPARTL!

KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


TÍMALÍNA

Óðinn Sæbjörnsson Fermdis árið 1990

Thelma Sigurðardóttir Fermdist árið 2000

Hallgrímur Heimirsson Fermdist árið 2010

Ég man hversu stressaður ég var fyrir athöfninni, þar sem ég kunni ekki Faðir vorið, ég endaði á að mæma það lista vel. Ég kom lítið nálægt undirbúningnum, mamma sá alfarið um hann. Gústi bróðir mömmu sá um matinn sem var ekki af verri endanum, innbakað naut og tilheyrandi og kjúklingur fyrir krakkana. Veislan var svo haldin heima á Búhamri. Aðaltískan þetta árið var mittislinda í lit, slaufa í stíl og rússkinsjakkar. Ég klæddist því að sjálfsögðu og valdi rauðan linda og slaufu. Eftrminnilegasta gjöfin var AKAI hljómtækjastæða í glerskáp sem ég fékk frá mömmu og pabba. Skemmst er frá því að segja að ég seldi hana vinnnufélaga mínum fyrir jólin sama ár, á heilar 15.000 kr. Mömmu til mikillar ánægju.

20 ára fermingarafmæli þetta árið, mér finnst það eiginlega svakalegast. Það var ekkert Landeyjahafnarstress þá, fólk bara mætti og lagði á sig 3ja tíma siglingu. Ég fór í greiðslu og förðun, ef förðun skyldi kalla. Það var sett örlítið sólarpúður í andlitið á mér og glæran maskara á augun. Mér fannst ég brjálæðislega mikið máluð fyrst þegar ég leit í spegil. Það var mikið um liti í fötunum og valdi ég mér eiturbleikan kjól og sjal í stíl. Spariskó með agnarsmáum hælum. Ég sjálf man nú ekki eftir tilstandinu kringum veisluhaldið þar sem fullorðna fólkið sá um það en ég man ekkert nema gott frá þessum degi, allt afslappað og þægilegt. Í minningunni var þetta spennandi tími og virkilega ánægjulegur dagur. Öll stórfjölskyldan og bestu vinirnir saman komin til að eyða deginum með manni, hlegið og spjallað. Uppáhaldsgjöfin var fótboltaskóli sem ég fékk frá foreldrum mínum, það er ein skemmtilegasta minning sem ég á í lífnu og góð reynsla. Svo þykir mér líka ótrúlega vænt um skartgripina sem ég fékk frá bróður mínum og ömmu minni heitinni og ber þá enn á mér í dag.

Eftirminnilegasta frá deginum var klárlega þegar ég fékk að opna pakkana eftir veisluna, ég ætla ekki að neita því. Einnig var eftirminnilegt að fá alla gestina sem ég hitti sjaldan í veisluna mína til þess að fagna með mér, það var gaman. Undirbúningurinn gekk mjög vel. Ég var með mína veislu í Oddfellow og þar var allt upp á 10. Okkar allra besti kokkur, Einsi Kaldi sá um veitingarnar, það verður ekki betra en það. Ég var að vinna með svört jakkaföt og bindi á fermingardeginum. Það hefur aldrei klikkað. Eftirminnilegasta gjöfin var eflaust frá mömmu og pabba. Þau buðu mér í Bobby Charlton fótboltaskóla í Englandi. Við vorum nokkrir félagarnir sem fengu það í fermingagjöf og vorum ótrúlega ánægðir með þá ferð.


FRÓÐLEIKUR Á þeim árum þegar munur ríkra og fátækra var mjög sýnilegur á Íslandi var algengt að við fermingu stóðu hlið við hlið fermingarbörn sem áttu ekkert og velklædd börn ríkra foreldra. Fyrir augliti Guðs eru allir jafnir. Fermingarkyrtlarnir voru innleiddir til að minnka þennan mun. Fermingarkyrtlarnir hafa táknræna merkingu. Þeir eru hvítir til minna að á skírnarklæðin, sem alltaf eru hvít. Fyrsta ferming í kyrtlum var árið 1954.

Alls fermarst 46 börn í eyjum í ár. Hér má sjá dagsetningar og fjölda barna sem fermast:

Laust eftir aldamótin 1900 fór að tíðkast að tekin væri ljósmynd af fermingarbarni í fermingarfötum sínum. Það var oft fyrsta myndin sem tekin var af einstaklingi og þáttur í þeirri mannvirðingu sem fermingin veitti.

Klúturinn góði var í upphafi ætlaður frá vöggu til grafar. Klúturinn er notaður til að þerra höfuð barnsins þegar það er skírt og honum er svo haldið til haga inn í sálmabókinni. Klúturinn er svo notaður aftur í fermingunni til að minna á skírnina. Svo er hann breiddur yfir andlitið þegar viðkomandi er borin til grafar. Minnisversin voru stundum saumið í klútana.

4. apríl 6 börn 18. apríl 20 börn 19. apríl 4 börn 25.apríl 16 börn

GÁTLISTI Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga þegar kemur að því að halda veislur. Þá er gott að hafa gátlista sér til aðstoðar. Byrja þarf á því að velja dagsetningu

Kaupa kerti, sálmabók og servíettur

Útbúa gestalista & senda boðskort

Velja fatnað

Bóka sal

Panta greiðslu og förðun

Bóka ljósmyndara

Ákveða veitingar

Á að vera með litaþema

Á að fá aðstoð við að ganga frá?

Panta skraut

Kaupa blóm

Panta gestabók


UPPSKRIFT VIKUNNAR MARENGS BERJABOMBA

Innihald Brownie 230 g sykur 4 egg 200 g smjör 200 g dökkt konsum súkkulaði 70 g hveiti Marengs 3 eggjahvítur 170 g sykur Fylling ½ lítri rjómi Toppur 200 g dökkt súkkulaði 70 g smjör 3 msk síróp Ber af eigin vali

Aðferð Brownie Hitið ofninn í 170 gráður og setjið

smjörpappír í botninn á tveimur 20 cm hringlaga bökunarformum. Þeytið egg og sykur saman í skál þar til blandan verður ljós og létt. Bræðið smjör og súkkulaði saman í potti yfir lágum hita og hrærið stanslaust þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg. Setjið hveitið varlega saman við brædda súkkulaðið og hrærið vel. Hellið því næst súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna og hrærið saman með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman. Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í 30 mínútur. Kælið kökurnar alveg áður en þið takið þær úr formunum. Á meðan þær kólna er gott að undirbúa marengsinn. Marengsinn Stillið ofninn í 150 gráður og setjið smjörpappír á bökunarplötu og myndi tvo hringi jafn stóra og brownie kökurnar eru.

Þeytið eggjahvítur og sykur saman þar til blandan er orðin stíf og stendur. Smyrjið marengsinum á plötuna og bakið í 50 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þurr viðkomu. Kælið marengsinn alveg áður en þið staflið kökunum. Súkkulaðiglassúr Bræðið smjör, súkkulaði og síróp saman í pott við lágan hita og hrærið stanslaust þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg. Þeytið rjóma og setjið á milli botnanna. Setjið marengs neðst og svo brownie og koll af kolli með rjóma á milli. Setjið súkkulaðiglassúrið ofan á og látið leka aðeins niður hliðarnar á kökunni. Skreytið með berjum að eigin vali og stráið flórsykri yfir berin með sigti. Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.


Mikið úrval af gjöfum fyrir fermingarbarnið!

FERMINGARVERSLUNIN ÞÍN


FERMINGARBÖRNIN Fermingardagar vorið 2020 verða sem hér segir: Laugardagur 4.apríl kl. 11.00 Laugardagur 18.apríl kl. 11.00 Sunnudagur 19.apríl kl. 11.00 Laugardagur 25.apríl kl. 11.00

Kristján Örn Kristjánsson Hægri skytta

4. apríl

Andri Júlíusson Foreldrar: Þóra Gísladóttir og Júlíus Ingason

Berta Ómarsdóttir Foreldrar: Arndís Kjartansdóttir og Ómar Steinsson

Birkir Hermannsson Foreldrar: Hermann Sigurgeirsson og Marta Sigurjónsdóttir

Helgi Þór Adólfsson Foreldrar: Adólf H. Þórrson og María Sigurbjörnsdóttir

Anna Margrét Svansdóttir Foreldrar: Svanur Gunnsteinsson og Ingunn Arnórsdóttir

Aron Stefánsson Foreldrar: Þórunn Pálsdóttir og Stefán Jónsson

Árni Þór Ingólfsson Bergur Óli Guðnason Foreldrar: Snjólaug Árnadóttir Foreldrar: Esther Bergsdóttir og Ingólfur Ingvarsson og Guðni Sigurður Guðjónsson

Helga Björt Alfreðsdóttir Foreldrar: Alfreð Halldórsson og Guðrún Erla Gústafsdóttir

18. apríl

Sara Sindradóttir Foreldrar: Sindri Grétarsson og Sæfinna Ásbjörnsdóttir

Herdís Eiríksdóttir Foreldrar: Eiríkur Arnórsson og Arnheiður Pálsdóttir

Anna Fjóla Hilmirsdóttir Foreldrar: Hilmir Agnarsson og Þórunn Lilja Helgadóttir


Ingimar Óli Arnarsson Foreldrar: Arnar Ingi Ingimarsson og Elín Þóra Ólafsdóttir

Ísey Heiðarsdóttir Foreldrar: Lísa Njálsdóttir og Heiðar Pálsson

Jenný María Fonseca Foreldrar: Nanna Sigurjónsdóttir og Nuno Miguel Fonseca

Jón Valgarð Viktorsson Foreldrar: Viktor Ragnarsson og Valgerður Jónsdóttir

Kristján Ólafur Vattness Hilmarsson. Foreldrar: Hildur Vattness og Hilmar Kristjánsson

Liam Daði Jeffs Foreldrar: Sigríður Ása Friðriksdóttir og Ian Jeffs

Margrét Helgadóttir Foreldrar: Helgi Níelsson og Þóra Þorleifsdóttir

Mikael Helgi Sigurðarson Foreldrar: Sigurður Steinn Gunnlaugsson og Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir

Sigurdís Elsa Atladóttir Busk. Foreldrar: Kristrún Heiða Þórarinsdóttir og Atli Ársæll Atlason

Svea María Bergsteinsdóttir Foreldrar: Bergsteinn Jónasson og Drífa Gunnarsdóttir

Þórður Örn Gunnarsson Foreldrar: Guðbjörg Þórðardóttir og Gunnar Þór Guðjónsson

Egill Oddgeir Stefánsson Foreldrar: Þjóðhildur Þórðardóttir og Stefán Friðriksson

Júnía Eysteinsdóttir Foreldrar: Íris Róbertsdóttir og Eysteinn Gunnarsson

Rakel Perla Gústafsdóttir Foreldrar: Gústaf Adold Gústafsson og Guðný Halldórsdóttir

19. apríl

Sara Björt Gunnarsdóttir Foreldrar: Anný Aðalsteinsdóttir og Gunnar Þór Þorsteinsson

Auðunn Sindrason Foreldrar: Sindri Haraldsson og Hildur Jóhannsdóttir


19. apríl

25. apríl

Gabríel Ari Davíðsson Foreldrar: Anna Hulda Ingadóttir og Davíð Þór Halllgrímsson

Ásgeir Galdur Guðmundsson Foreldrar: Guðmundur Ásgeirsson og Heiða Ólafsdóttir

Birkir Björnsson Foreldrar: Hrefna Jónsdóttir og Björn Matthíasson

Bogi Guðjónsson Foreldrar: Sigurlaug Böðvarsson og Guðjón Ásgeir Helgason

Embla Harðardóttir Foreldrar: Hörður Orri Grettisson og Erna Dögg Sigurjónsdóttir

Gísli Freyr Jónsson Foreldrar: Andrea Gísladóttir og Jón Valgarð Gústafsson

Hafsteinn Ingi Logason Foreldrar: Logi Garðar Fells Ingólfsson og Guðrún Þorsteinsdóttir

Hilmar Ingi Vignisson Foreldrar: Inga Sigurbjörg Árnadóttir og Vignir Skæringsson

Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir Foreldrar: Steinn Þórhallsson og María Rós Friðriksdóttir

Íva Brá Guðmundsdóttir Foreldrar: Guðmundur Örn Jónsson og Gíslína Dögg Bjarkardóttir

Jason Stefánsson Foreldrar: Stefán Lúðvíksson og Andrea Atladóttir

Jökull Þorbjörnsson Foreldrar: Þorbjörn Víglundsson og Agnes Guðlaugsdóttir

Karen Ósk Óskarsdóttir Foreldrar: Óskar Birgir Sigurþórsson og Freyja Árnadóttir

Magnús Rafn Kárason Foreldrar: Kári Höskuldsson og Guðný Bjarnadóttir

Mikael Máni Bjarnason Foreldrar: Erla Björg Pétursdóttir og Bjarni Þór Guðmundsson

Valdís Bylgja Elvarsdóttir Foreldrar: Kristjana Jónsdóttir og Elvar Páll Sævarsson


Viggó Valgeirsson Foreldrar: Valgeir Yngvi Árnason og Rósa Gunnarsdóttir

Sr. Guðmundur Örn Jónsson

Sr. Viðar Stefánsson

Fjölbreytt bakkelsi í boði Vigtin Bakhús gerir allt frá grunni og notast við lífrænt hveiti. Við tökum á móti kökupöntunum fyrir öll tækifæri. Þú færð ljúffengan kaffibolla hjá okkur með bakkelsinu en kaffið okkar er frá Kaffitár. Við bjóðum upp á 4 tegundir af salati með brauði. Þú getur komið með þína krukku og færð salatið ódýrara. Hefur þú kíkt til okkar í pretzel og bjór á krana?

Minnum á pítubrauðin okkar miðvikudaga - föstudaga

Opið alla daga vikunnar

06:00 - 18:00

Strandvegur 30 481 1104


FYRIR HANA

Heilsárssæng 24.900 krónur

FYRIR HANN

Vetrarsæng 28.900 krónur


FÖTIN FALLEG & ÞÆGILEG Að velja fermingarfötin er listarinnar kúnst og stór partur hjá flestum fermingarbörnum fyrir stóra daginn. Við fengum Svövu Töru Ólafsdóttur eiganda Sölku til þess að klæða fjögur fermingarbörn upp. Svava Tara sagði að fermingartískan væri falleg og klassísk í ár. Stelpurnar eru hrifnar af kjólum og þær velja mikið hvítt eða bleiktóna. Strákarnir velja oft þægindin. Þeir vilja þægilegar buxur en eru svo í skyrtu, jakka og með bindi eða slaufu við.

Liam er í: Jakki: Blár frá Made 19.995 kr. Buxur: Bláar frá Tailored heita Frederic 11.995 kr. Skyrta: Hvít frá Maó 9.995 kr. Skór: Frá Adidas Continental80 16.690 kr.

Ísey: Pils frá Saint Tropez 9.995 kr. Silki bolur frá Rosemunde 14.995 kr. Skór: Dr. Martens Alyson zip 32.995 kr.

Jason er í: Jakki: Svartur frá Made 19.995 kr. Buxur: Svartar frá Tailored heita Frederic 11.995 kr. Skyrta: Blá frá Tailored heitir York 8.995 kr. Skór: Brúnir frá Matinique 19.995 kr.

Sara: Kjóll frá Sisters Point 9.995 kr. Skór: Frá Adidas Continental80 16.690 kr.


FERMINGARBÖRN spurt & svarað EMBLA HARÐARDÓT TIR Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Hörður Orri Grettisson og Erna Dögg Sigurjónsdóttir. Ég á tvö yngri systkini, Tönju og Gauta Af hverju ertu að fermast? Til þess að staðfesta trú mína fyrir guði, svo er líka alltaf gaman að fá pakka Er eitthvað stress fyrir deginum? Nei ekki ennþá

BERGUR ÓLI GUÐNASON Fjölskylda: Esther og Guðni. Stúppabbi Guðgeir. Systur Katla Þórhildur, Svala. Af hverju ertu að fermast? Flestir vinir mínir eru að fara fermast og mig langar líka til þess.

Tekur þú virkan þátt í undirbúningnum? Já, ég vill fá að ráða öllu. Mömmu finnst ég stundum hafa aðeins of miklar skoðanir. Hvernig veitingar ætlið þið að hafa? Við ætlum líklegast að hafa súpu og smárétti, kökur og kaffi. Er von á mörgum gestum? Já, en við erum ekki komin með endanlegan fjölda. Eru fermingarfötin klár? Já, að mestu leiti

Tekur þú virkan þátt í undirbúningnum? Já ég geri það Hvernig veitingar ætlið þið að hafa? Heita rétti, rúllubrauð, kökur, brauðtertur og ístertu Er von á mörgum gestum? Já ég á stórar fjölskyldur Eru fermingarfötin klár? Nei en ég og Guðni pabbi ætlum að græja þau saman.

HILMAR INGI VIGNISSON Fjöldskylda: Pabbi Vignir Skæringsson og mamma Inga S Árnadóttir, systir mín Aníta Lind Vignisdóttir og bræður mínir Ívar Skæringur og Georg Snær Afhverju ertu að fermast? Staðfesta skírn mína og trú, er líka í kfum og k í kirkjunni og finnst það mjög skemmtilegt starf. Tekur þú þátt í undirbúning? Nei, mamma sér um það, en hún spyr mig um hitt og þetta og ég er bara alltaf sammála henni. Hvernig veitingar ætlið þið að hafa?

Verðum með kökur og heita rétti og svo bað ég um salsa-tortillur og mamma ætlar að græja það fyrir mig, það er uppáhaldið mitt. Er von á mörgum gestum? Vonum að Landeyjahöfn verði í stuði og veðrið verði til friðs svo allir komist. Veislugestir verða um 80. Eru fermingarfötin klár? Fermingarfötin eru klár, eina sem ég vildi var að fá þæginlegar buxur og strigaskó og ég fékk það. Mamma fann sparibuxur sem eru mjúkar og kózý en líka sparilegar og svo vildi ég ekki spariskó, mátaði en þeir voru óþæginlegir og leiðinlegir svo við keyptum hvíta nike skó. Svo er skyrta, slaufa og jakki.


ÞÚ FÆRÐ FERMINGARGJÖFINA HJÁ OKKUR

Íslensk ullarsæng slensk ullarsæng Íslensk ullarsæng slensk ullarsæng slensk slensk ullarsæng ullarsæng Tilvalin til fermingargjafa

Við sjáum um blöðrurnar fyrir ferminguna. Öll fermingarbörn fá afslátt á skrauti fyrir stóra daginn! Léttlopi Plötulopi Spuni Kambgarn

Fimmtu- og föstudaga 13.00-17.00 Laugardaga 11.00-14.00

®

HREIN NÝ ULL PURE LAINE VIERGE REINE SCHURWOLLE 0037IL93W

Gæða ull af íslensku sauðfé Gæða ull ull af af íslensku íslensku sauðfé sauðfé Gæða ull af íslensku sauðfé Gæða létt ·sauðfé hlý · góð öndun · vistvæn Gæða ull af íslensku íslensku létt · hlý · góð öndun vistvænlétt · hlý · góð öndun · vistvæn Gæða ull af sauðfé létt · hlýull · góð öndun ··sauðfé vistvæn Gæða af íslensku létt · hlý hlýull · góð góð öndun ·sauðfé vistvæn www.lopidraumur.is Frí heimsending innanlands Gæða af íslensku létt · · öndun · vistvæn www.lopidraumur.is létt · www.lopidraumur.is hlýull · góð öndun ·sauðfé vistvæn www.lopidraumur.is Gæða af Gæða af íslensku íslensku létt · www.lopidraumur.is hlý ull · góð öndun · sauðfé vistvæn www.lopidraumur.is létt · www.lopidraumur.is hlý · góð öndun · vistvæn

lopidraumur.is

®

®

Strandvegur 47 // 481 3001 ®


Fermingarmöppur og gestabækur

Við bjóðum upp á áletrun á nafni og dagsetningu Fæst einnig í Eymundsson Vestmannaeyjum

við Reykjalund | 270 Mosfellsbæ Sími 562 8500 | www.mulalundur.is


Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar 2020 Ágætu unglingar, foreldrar og/eða forráðamenn ungmenna fæddra 2004, 2005 og 2006. Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina, júní og fram í ágúst. Allir unglingar úr 8., 9. og 10. bekkjum grunnskólans með heimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku í Vinnuskólanum. Unglingunum er skipt í hópa sem hver hefur sinn flokksstjóra og er stefnt að því að hafa verkefnin sem fjölbreyttust en þó er ljóst að sem fyrr eru garðyrkjustörf og almenn umhirða bæjarfélagsins langstærsti þátturinn í vinnuskólanum. Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum. Mjög áríðandi er að sækja formlega um fyrir 17. apríl. Umsóknin fer rafrænt fram hér: https://forms.gle/RKve7a7LxXE4NLo29 Starfstími unglinganna er misjafn eftir árgöngum: - Árgangur 2006, 25 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09-12 og frá 13-16 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess kosið. Valdar eru hámark 5 vikur af þeim sem eru í boði.

- Árgangur 2005, 30 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09-12 og frá 13-16 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 6 vikur af þeim sem eru í boði. - Árgangur 2004, 35 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09-12 og frá 13-16 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 7 vikur af þeim sem eru í boði. Reynt verður að koma til móts við óskir um tímabil eftir fremsta megni. Ofangreint miðast við að það náist að ráða flokkstjóra til starfa, gæti skipulag tekið breytingum með tilliti til þess. Laun: Unglingar fæddir 2006 Unglingar fæddir 2005 Unglingar fæddir 2004

690 kr. á klst. 805 kr. á klst. 973 kr. á klst.

Flokkstjórar hafa samband við forráðamenn áður en vinna hefst og gefa upplýsingar um hvar skal mæta ofl. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 488-2000 eða á netfanginu: ernag@vestmannaeyjar.is.

Umsóknarform og frekari upplýsingar um stö


Sumarstörf á vegum Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldri til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl nk.

Verkstjóri í áhaldahúsi/yfirmaður sumarstarfa Umhverfisverkefni Verkamaður III (með flokksstjórn) Umhverfisverkefni Sumarstarfsmaður – Umhverfisverkefni Flokksstjóri í vinnuskóla – Umhverfisverkefni Forstöðumaður á gæsluvelli - Gæsluvöllurinn Strönd Starfsmaður á gæsluvelli - Gæsluvöllurinn Strönd Flokksstjóri á leikjanámskeiði - Sumarfjör Starfsmaður á leikjanámskeiði - Sumarfjör Leikskólakennarar/leiðbeinendur –Kirkjugerði Leikskólakennari/leiðbeinandi Víkin 5 ára deild GRV Starfsmaður í stuðningsþjónustu Málefni aldraðra og fatlaðra Forstaða fyrir dagvist aldraðra Hraunbúðir Starfsmaður við dagvist aldraðra Hraunbúðir Hjúkrunarfræðingur 2 Hraunbúðir Sjúkraliði B á hjúkrunarheimili Hraunbúðir Starfsmaður í umönnun á hjúkrunarheimili I Hraunbúðir Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II Þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk

Sundlaugarvörður/starfsmaður í Íþróttamiðstöð Afleysing á tæknideild Umhverfissvið Hafnarvörður I - Vestmannaeyjahöfn Bókavörður I - Bókasafn Safnvörður I Byggðasafn/Náttúrugripasafn/Landlyst Safnvörður I Eldheimar Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf. Nánari upplýsingar um störfin er hægt að nálgast á www.vestmannaeyjar.is og hjá forstöðumönnum. Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488-2000 eða í tölvupósti: ernag@vestmannaeyjar.is. Laun eru samkvæmt þeim kjarasamningi sem tilgreindur er í yfirliti sumarstarfa á www.vestmannaeyjar.is Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488-2000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.

örfin má finna inn á www.vestmannaeyjar.is


Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV

l

F

L

S

l l

l

Lent

7:15

7:40

15:45 16:10

l l l l l

Frá VEY

Brottf.

l

11:30 11:55

l

17:30 17:55 8:00

l l

8:25

16:30 16:55

l l l l l l l

12:15 12:40 18:15 18:40

Aðalfundur fimleikafélagssins Ránar Fundurinn fer fram í fundaherbergi Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja miðvikudaginn 25. mars kl. 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og kosning stjórnar.

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS

/crispus

Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Tannlæknar 17. - 19. mars Hjalti Þórðarson

21. - 22. mars Hjalti Harðarsson 14. - 16. apríl Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772

Fallegar fermingargreiðslur fyrir hana innifalið skraut í hárið, hárþvottur og þurrkun og gel fyrir hann.


Starf deildarstjóra hjúkrunar á Hjúkrunar-og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum er laus til umsóknar Starf deildarstjóra hjúkrunar á Hjúkrunar-og dvalarheimilið Hraunbúðir: Starfshlutfall er 70%, þar af 50% dagvaktir og 20% kvöld eða helgarvaktir. Helstu verkefni og ábyrgð: Vinnur í nánu samstarfi við hjúkrunarforstjóra og hefur umsjón með heimilinu og ber ábyrgð á starfsemi í fjarveru hans. Skipuleggur störf starfsfólks í samræmi við hjúkrunarþarfir heimilismanna. Metur veitta umönnun í samráði við hjúkrunarfræðinga á deild. Aðstoð við vaktaskýrslur, utanumhald á Vinnustund og skipulagningu orlofs starfsmanna með hjúkrunarforstjóra. Skipuleggur og tekur þátt í fjölskyldufundum og viðheldur jákvæðum samskiptum. Tekur ábyrgð á RAI mati með hjúkrunarforstjóra og fylgist með niðurstöðum gæðastaðla og vinnur að úrbótum með hjúkrunarforstjóra.

Hæfniskröfur: Íslenskt hjúkrunarleyfi Sjálfstæði í starfi Reynsla af starfsmannahaldi er kostur Skipulagning, áreiðanleiki og faglegur metnaður Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum Frekari upplýsingar um starfið: Laun eru greidd samkvæmt sambandi íslenskra sveitarfélaga og félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 25. mars n.k. Umsókn ásamt ferilskrá og greinargerð um hæfni til starfsins skal skilað inn á postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Nánari upplýsingar veitir Una Sigríður Ásmundsdóttir hjúkrunarforstjóri. Hraunbúða í síma 488 2600 eða á netfangið una@vestmannaeyjar.is


Sparaðu og við hvetjum þig áfram Landsbankinn leggur til allt að 12.000 króna mótframlag þegar fermingarbörn leggja inn á Framtíðargrunn og í verðbréfasjóð. Þannig hvetjum við til sparnaðar. Nánari upplýsingar á landsbankinn.is/fermingar.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 10.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu