Tígull 09. tbl 06. árg.

Page 1

09. tbl. 06. árg. 6. - 13.mars 2024

BENEDIKT BALDURSSON SKÁKMEISTARI VESTMANNAEYJA 2024

TÍGULL

DREIFING:

Benedikt Baldursson varð skákmeistari Vestmannaeyja fimmtudaginn 29. febrúar þegar hann sigraði Hallgrím Steinsson í bráðabana. Hann flutti til Eyja í desember 2023 en var þá búinn að vera með annan fótinn hér síðastliðinn fimm ár. Unnusta hans er Sigurfinna Kristjánsdóttir. Hann á þrjú börn og Finna á fjögur börn og barnabörnin eru þrjú. Hann starfar í Kjarnanum með yndislegum íbúum og frábæru starfsfólki. Benedikt er fæddur og uppalinn í Reykjavík en á þó tengingu við Vestmannaeyjar þar sem faðir hans fæddist hér. Tígull sló á þráðinn til Benedikts.

Hvenær byrjaðiru að tefla?

Ég var 6 ára gamall þegar faðir hans henndi honum mannganginn.

Hver er eftirminnilegasta skákin?

Það er erfitt að tilgreina einhverja eina, en þegar ég var smápolli fékk ég að taka þátt í fjöltefli á móti Helga Ólafssyni sem síðar varð svo stórmeistari í skák. Þetta var eftirminnilegt fyrir ungan dreng sem var að stíga sín fyrstu skref í skákinni.

Erfiðasti andstæðingurinn?

Helgi Ólafsson

Hefur þú unnið titil áður í skák og ef já þá hvaða?

Já, ég hef orðið skákmeistari Þróttar og einnig hraðskákmeistari Þróttar, en þeir voru á sínum tíma með öfluga skákdeild.

Hvað er það besta við að búa í Eyjum? Kyrrðin, smæðin, samfélagið og náttúrufegurðin.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Karl Gauti formaður Taflfélags Vestmannaeyja afhendir Benidikt bikarinn eftir bráðabanann. Benedikt og Hallgrímur einbeittir í úrslitunum.

VIÐ

SKANNAÐU QR KÓÐANN EÐA KÍKTU Á LÖÐUR.IS TIL AÐ KYNNA ÞÉR ÁSKRIFTARLEIÐIR
Á FAXASTÍG
HJÁ TVISTINUM TAKK FYRIR FRÁBÆRAR MÓTTÖKUR Faxastígur 36
HÖFUM OPNAÐ
36

KEPPNIN ÓVENJU JÖFN ÞETTA ÁRIÐ Á SKÁKÞINGI VESTMANNAEYJA

Skákþingi Vestmannaeyja lauk hlaupársdagskvöld með einvígi tveggja efstu manna, þeirra Hallgríms Steinssonar og Benedikts Baldurssonar, sem báðir enduðu með 9 vinninga af 11 mögulegum. Einvígið var hörkuspennandi, tefldar voru þrjár 15 mínútna atskákir og skyldi sá verða sigurvegari sem fleiri vinninga hlyti úr þeirri rimmu. Benedikt vann fyrstu skákina, en Hallgrímur aðra og var nú komið að því að tefla eina úrslitaskák. Sú skák var jöfn frá upphafi til enda og sömdu keppendur jafntefli eftir að einungis voru 2 biskupar og 3 peð eftir á borðinu. Allar þessar skákir voru jafnar frá upphafi og því gaman að fylgjast með átökunum. Næst var háð 3 mínútna bráðabani til að skera úr um hver hlyti titilinn og fór svo að Benedikt sigraði og er því Skákmeistari Vestmannaeyja 2024, en þetta er hans fyrsta Skákþing, enda nýr í félaginu. Hallgrímur hefur hins vegar tvisvar áður orðið meistari, árin 2019 og 2022.

Tígull óskar nýjum meistara innilega til hamingju! Á Skákþingi fer árlega fram keppni um titilinn Skákmeistari Vestmannaeyja og eru 98 ár síðan það fór fyrst fram á stofnári Taflfélags Vestmannaeyja árið 1926, en þá hlaut sá sem sigraði sæmdarheitið Skákkonungur Vestmannaeyja. Alls tóku tólf skákmenn þátt í Skákþinginu að þessu sinni og tefldu allir saman eða ellefu skákir á mann. Fyrsta umferð fór fram 28. janúar og mánuði síðar var síðasta umferðin tefld. Keppnin var óvenju jöfn þetta árið og fyrir síðustu umferð áttu fimm manns möguleika á að vera efstir,

en jafnir í 3-5 sæti urðu þeir Sæþór Ingi Sæmundarson, Arnar Sigurmundsson og Sigurjón Þorkelsson, allir með 8 vinninga. Arnar varð meistari síðast 1979 og hefur alls fjórum sinnum borið titilinn. Enginn hefur oftar sigrað heldur en Sigurjón, en hann hefur unnið 16 sinnum, fyrst 1986 og síðast í fyrra. Sæþór er hins vegar ungur og upprennandi skákmaður og sýndi á mótinu að hann er til alls líklegur á næstunni.

Um helgina teflir félagið í árlegu Íslandsmóti skákfélaga í Reykjavík og teflir fram þremur sveitum, einni í úrvalsdeild, einni í 3 deild og þeirri þriðju í 4 deildinni. Hver sveit er skipuð 6-8 mönnum, en alls eru um og yfir 30 manns sem tefla fyrir félagið um helgina.

10 ÁRA GOTT verður 10 ára í maí - á matseðli eru vinsælustu réttirnir síðustu 10 ára. Borðabókanir og take away á www.gott.is & í síma 481 3060. Verið velkomin á GOTT! Við opnum 6. mars! 17:00 - 21:00 17:00 - 21:00 Miðvikudaga Fimmtudaga OPNUNARTÍMI: 11:30 - 21:00 11:30 - 21:00 Föstudaga Laugardaga

EINSTAKLEGA VEL HEPPNAÐ BOCCIA MÓT

ÍÞRÓTTAFÉLAGSINS ÆGIS UM HELGINA

Fyrirtæka- og fjölskyldumót í boccia var haldið síðastliðinn laugardag en að er Ægir, íþróttafélag fatlaðra sem stóð fyrir mótinu. Mótið var haldið í gamla salnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og voru 24 lið skráð til leiks, ýmist fyrirtæki, fjölskylda eða félagasamtök. Hvert lið tefldi fram þremur leikmönnum. Mótið var spilað í fjórum riðlum og í hverjum riðli voru sex lið, þar sem allir spiluðu við alla. Eitt lið komst uppúr hverjum riðli og spilaði í undanurslitum.

Í undanúrslitum spiluðu Skrifstofa Ísfélagsins, skiplyftan, Steini og Olli og MM flutningar.

Skipalyftan og MM flutningar unnu sína leiki og spiluðu því til úrslita þar sem MM flutningar stóðu uppi sem sigurvegarar.

Mótið var hrikalega skemmtilegt og spennandi.

Girnilegur kökubasar tók á móti þeim sem mættu í mótið og sáu foreldrar og aðstandendur um að að baka og elda rétti. Allur ágóði rann til íþróttafélagsins Ægis.

Íþróttafélagið Ægir vill koma á framfæri kærum þökkum til allra fyrir stuðninginn og fyrir einstaklega vel heppnað og skemmtilegt mót.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Prótein brauðstangir

Hráefni:

Brauðstangir

140 g hveiti

230 g hreint Ísey skyr

5 g lyftiduft egghvíta til penslunar, eða egg

brauðstangakrydd

Brauðstangakrydd

1 tsk. salt

1 tsk. hvítlaukskrydd

1 tsk. óregangó

1 tsk. paprika

1 tsk. basilíka smá svartur pipar og cayenne pipar

Aðferð:

Setjið öll innihaldsefni í skál og hnoðið saman. Mér finnst oft þægilegast að nota hrærivélina í þetta en það er líka hægt að hræra þetta í höndunum.

Gerið kúlu úr deiginu, skiptið því í 10 parta og myndið brauðstangir.

Brauðstangirnar eru settar á plötu, penslaðar með eggjahvítu eða eggi og kryddaðar með brauðstangakryddi yfir og undir.

Bakið í 10-12 mínútur við 180 gráður. Uppskrift og mynd frá gottimatinn.is

AÐALFUNDUR Kvenfélags Landakirkju Aðalfundur kvenfélags Landakirkju verður haldinn þriðjudaginn 19. mars 2024 kl. 20:00. DAGSKRÁ FUNDARINS: - Venjuleg aðalfundarstörf- Önnur mál- KaffiHlökkum til að sjá sem flestar & nýjar konur velkomnar. STAFARUGL GETUR ÞÚ FUNDIÐ ÚT ORÐIN? SLHAERIFU OSKÐNRIAUMÐI GUFVLÉL KSÁAULRSDKP YGRUHMNDI SNIVÆDIRL ÓAMRTNÍK TRNBASVÚIS ÞÍRÓTAFTÉALG GADULERLF ABLÐAAMÐRU

STYRKTARTÓNLEIKAR FYRIR GRINDVÍKINGA

föstudaginn 3. maí í Höllinni

Fram koma: Molda /// Júníus Meyvant /// Blítt og létt Karlakór Vestmannaeyja ásamt meðlimum úr Kvennakór Vestmannaeyja

Hljómsveitin Gosar ásamt Unu Þorvalds , Kristínu Halldórs, Sæþóri Vídó, Tóta Óla , Jarli Sigurgeirs, Hafþóri Hafsteins, Elísabetu Guðna, Guðnýju Emilíu o.fl. Sérstakir gestir Matti Matt og Védís Hervör

Miðasala er hafin á tix.is, í Tvistinum og á Kletti

Miðaverð kr. 5.000,- en hægt er að greiða meira.

Samhliða tónleikunum hefur verið sett af stað styrktarsöfnun. Reikn.nr. 0185-26-270, kt. er 270246-4199.
ÞRAUTIR HETTUPEYSA HJARTA MÍKRAFÓNN BLÓMAVASI ÁVÖXTUR SKYRTA KRULLUJÁRN BARNASTÓLL KVIKMYNDIR SKENKUR SPILABORÐ RYKSUGA

FERMINGARBLAÐ TÍGULS

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

Kemur út 13. mars

F ermingarblaðið verður fullt af skemmtilegu efni tengt fermingunum, spjall við fermingarbörnin og margt fleira.

Þeir auglýsendur sem vilja koma vöru sinni eða þjónustu á framfæri vinsamlegast hafið samband við okkur fyrir 8. mars.

Hafðu samband við okkur: 481 1161 tigull@tigull.is

tannsi@eyjar.is NÝJA TANNLÆKNASTOFAN /skvisubudin Litla Skvísubúðin Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is /skvisubudin

Nú er skattframtalið þitt opið á skattur.is

Skilafrestur

Almennur skilafrestur fyrir launamenn og einstaklinga með eigin atvinnurekstur er til 14. mars.

Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda.

Auðkenning

Unnt er að auðkenna sig með tvenns konar hætti, þ.e. með rafrænum skilríkjum og með veflykli RSK.

Ríkisskattstjóri mælir með að rafræn skilríki séu notuð við auðkenningu.

Upplýsingar á framtali

Áríðandi er að framteljandi athugi hvort áritaðar fjárhæðir og aðrar upplýsingar séu í samræmi við gögn og upplýsingar sem hann hefur sjálfur undir höndum. Athuga skal sérstaklega hvort einhverjar upplýsingar vanti inn á framtal, s.s. verktakatekjur.

Aðgengilegar leiðbeiningar

Leiðbeiningar er að finna á skatturinn.is. Einnig er auðvelt að kalla fram skýringar við einstaka kafla eða reiti í vefframtalinu sjálfu.

Framtalsaðstoð

Aðstoð er veitt í síma 442-1414 mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00 til 15:30 og á föstudögum frá kl. 9:00 til 14:00.

Ekki er unnt að veita framtalsaðstoð á starfsstöðvum Skattsins.

Símaþjónusta í 442-1414

Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00

Sendu okkur tölvupóst Þú getur líka sent okkur tölvupóst á póstfangið framtal@skatturinn.is

Spurðu Ask Hann getur líka leiðbeint þér með skattframtalið

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.