Tígull 09. tbl 05. árg.

Page 1

Ferming 2023

09. tbl. 05. árg. 15 - 21. mars 2022

Sendum öllum fermingarbörnununum og fjölskyldum þeirra hjartans hamingjuóskir.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey

katalaufey@tigull.is

Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

FERMINGARBÖRN spurt & svarað

ERLENDUR GUNNLAUGSSON

Fjölskylda: Mamma heitir Drífa, pabbi heitir Gunni Ella Pé og tvíburasystir mín heitir Arna. Hvar og hvenær líður þér best? Mér líður best heima, hvenær sem er. Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Fótbolti, Chelsea og Vestmannaeyingur.

Hvernig nærðu slökun? Vera í símanum.

BJARTEY ÓSK SÆÞÓRSDÓTTIR

Fjölskylda:

Pabbi minn heitir Sæþór Gunnarsson, mamma mín heitir Bjartey Gylfadóttir, bróðir minn heitir Eyþór Addi Sæþórsson og svo á ég annan bróður sem að verður skírður á fermingardaginn minn.

Hvar og hvenær líður þér best?

Mér líður oftast bara best þegar að ég er ein heima.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Listræn, húmoristi og hugmyndarík.

Hvernig nærðu slökun?

Bara með því að vera upp í rúmi og hlusta á tónlist.

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Akureyri 100%.

Besti matur í heimi?

Kjúklingasalatið hennar mömmu. Leikhús eða bíó? Mér finnst bæði mjög gaman en ég verð eiginlega að segja bíó.

Uppáhaldstónlist? Ég hlusta á mikið af allskonar tónlist en uppáhalds hljómsveitir og tónlistarmenn eru: Radiohead, Beastie Boys og Billie Eilish.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju? Símann minn, heyrnatól og tússpenna.

Hvað er á óskalistanum? Plötuspilari, dvd, blu ray, föt og fleira.

Ertu A eða B týpa? B týpa segir pabbi allavega.

Uppáhaldshlutur? Ég verð eiginlega að segja síminn minn.

Ef þú ættir eina ósk? Að hitta uppáhalds leikarinn minn (Elijah Wood).

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Vestmannaeyjar.

Besti matur í heimi?

Ranya Kebab.

Leikhús eða bíó? Bíó.

Uppáhalds tónlist? Rapp

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju? Fótbolta, rúm og sæng.

Hvað er á óskalistanum? Peningur

Ertu A eða B týpa? B týpa

Uppáhaldshlutur? Fótbolti

Ef þú ættir eina ósk? Að Chelsea vinni meistaradeildina.

Fermingargjöfina þú

færð hjá okkur! Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
LinkBuds S heyrnartól með Noise Cancel
Sony
Sony 1000XM5 Framúrskarandi noise cancel heyrnartól með Bluetooth
Sony Bluetooth hátalari SRSXE200 X-Seria. Vatns og
rykvarinn.

FERMINGARBÖRN spurt & svarað

ÍSEY MARÍA ÖRVARSDÓTTIR

Fjölskylda:

Mamma mín heitir Kolbrún (Kolla) og pabbi minn heitir Örvar. Ég á tvö yngri systkini þau heita Ísafold

Dögun og Ísak Starri.

Hvar og hvenær líður þér best?

Heima og þegar ég vinn í fótbolta.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Tapsár, metnaðargjörn, feimin.

Hvernig nærðu slökun?

þegar ég sef.

Uppáhaldsstaður á Íslandi? Vestmannaeyjar.

Besti matur í heimi?

Pasta

Leikhús eða bíó? Leikhús Uppáhaldstónlist? Ég hlusta á alla tónlist.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju? Vatn, símann minn, auka sokka.

Hvað er á óskalistanum? Fótboltaskóli

Ertu A eða B týpa? A týpa. Uppáhaldshlutur? Síminn minn. Ef þú ættir eina ósk? Að ég gæti lesið hugsanir.

ERTU AÐ FERMAST?

Miðvikudaginn 22. mars ætlum við í Heimadecor að bjóða fermingarbörnum og foreldrum að kíkja á okkur milli 18:00 - 20:00 og skoða fermingarvörur sem við erum með í boði, bæði í sölu og leigu. Verðum einnig með kynningu á húðvörum sem henta fermingarbörnum og bjóðum upp á fermingarafslátt.

Heimadecor | Hilmisgötu 4 | 481 2209 | www.heimadecor.is | heimadecor

VINNINGSHAFINN í afmælisleik Tíguls!

Vinningurinn er 20.000 kr. gjafabréf á veitingastaðnum Einsa Kalda & Soda stream tæki. Til hamingju Una!

Þú getur sótt vinninginn á Leturstofuna Vestmannabraut 38.

ORÐAÞRAUTIN

PÍLUSPJALD

KEPPNI SIGUR VINNINGSHAFI SKEMMTILEGT GAMAN SAMVERA TAPSÁR PIRRINGUR MEISTARAMÓT
MAGNAÐUR MAGNAÐUR MARS MARS FERMINGARGRÆJUR Í MIKLU ÚRVALI tolvutek.is 11.990 Glorious leikjamýs Verð frá 129.990 Öflugar leikjafartölvur 189.990 Apple MacBook Air Verð frá Verð frá 129.990 Öflugir leikjaturnar 19.990 Leikjastólar í úrvali SENDUM FRÍTT ALLT AÐ 10KG 109.990 PlayStation VR2 gleraugu Verð frá 99.990 PlayStation 5 Verð frá Stafræn útgáfa Verð frá Verð frá 15. mars 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l

Fermingardagurinn minn

Jón Örvar van der Linden

Fermdist árið 1984

Ég og frændi minn vorum að fermast á sama tíma og fermdist ég með hans hópi en ekki með bekkjarfélögunum mínum. Ég hafði voða lítið um undirbúninginn að segja enda líklega með lítinn áhuga á því. Fermingarveisluna héldum við frændurnir saman í Flugbjörgunarsveitarhúsinu á Akureyri þar sem að fjölskyldan okkar kom saman. Fermingin fór fram í Akureyrarkirkju. Ég var mjög stressaður í kirkjunni og þegar röðin kom að mér þá kinkaði ég kolli en presturinn var búinn að ítreka það áður að segja já hátt og snjallt.

Eftirminnilegasta gjöfin var kassettutæki frá mömmu og pabba og reglustika sem var með innbyggðri reiknivél. Tónlistin sem ég hlustaði á þessum tíma var m.a. Duran Duran. Það voru tveir kokkar í fjölskyldunni sem að sáu um veitingarnar en það var bæði matur og kökur. Fötin valdi ég nú ekki sjálfur en eins og sjá má á myndinni er ég í gráum jakka í svörtum buxum með hvítt belti, hvítri skyrtu með lakkrísbindi.

Lind Hrafnsdóttir

Fermdist árið 1996

Ég fermdist sunnudaginn 14. apríl 1996 í Landakirkju.

Mamma leyfði mér að fá strípur í hárið nokkrum dögum fyrir ferminguna. Annars var farið í greiðslu eldsnemma á sunnudagsmorgni þar sem að fermingin byrjaði kl. 11. Lítil sem engin förðun.

Ég kom ekki mikið að undirbúningnum nema vali á fatnaði. Við mamma fórum í bæjarferð til Reykjavíkur og keyptum bæði kjól og skó í Gallerí Sautján. Veislan var haldin heima og var þar nánastu ættingjum og vinum boðið.

Þemaliturinn var grænn og voru keyptar áletraðar servíettur með nafninu mínu og fermingardegi. Grænir dúkar voru á borðunum.

Í veislunni var boðið uppá hlaðborð með alls kyns kræsingum og að sjálfsögðu kransakaka skreytt með machintoshi sem mér finnst reyndar ekkert góð. Eftirminnilegasta gjöfin eru hljómtækjagræjur með geislaspilara fyrir þrjá geisladiska og tveimur kasettuhólfum sem ég fékk frá mömmu og pabba. Ég fékk línuskauta, um 140.000 í peningum, náttföt, skartgripi, penna og pottþétt fullt í viðbót. Einnig fékk ég slatta af skeytum.

Sæþór Vídó

Fermdist árið 1992

Að rifja upp það sem er löngu liðið er nú ekki alveg mín sérgrein. En ég man nú eftir að hafa séð einstaka ljósmynd úr veislunni. Hún fór að sjálfsögðu fram í Þórsheimilinu eins og stór hluti minnar æsku. Ef ég þekki móður mína rétt þá hefur verið þar heljarinnar kökuborð og væntanlega flatkökur með hangikjöti, enda í miklu uppáhaldi. Og ég er líka nokkuð vissum að veisluföngin dugðu okkur langt fram eftir vori. Ég man svo sem lítið eftir fermingardeginum og veislunni en ég man þó að við strákarnir eyddum henni að megninu til niðri í íþróttasalnum og svitnuðum lífinu í fermingarfötin.

Fermingargjafirnar voru nokkuð í takt við tíðarandann. Sanyo hljómflutningsgræjur, með tvöföldu kasettutæki, plötu- og geislaspilara. Einhver pennasett voru á meðal gjafa, rakvél og ýmislegt fleira. Ég man sérstaklega eftir því að hafa fengið brúnt leðurveski merkt mér frá afa Núma sem skemmdist síðar í grenjandi rigningu mér til mikillar mæðu. Einhverjir peningar voru líka í spilunum en ég get ómögulega munað hversu miklir. Man þó að ég keypti mér sjónvarp fyrir hluta fermingarpeninganna, að Sanyo gerð, heilar 13 tommur.

Kristín Halldórsdóttir

Fermdist árið 1999

Ég fermdist 18. apríl 1999, degi fyrir afmælið mitt og var þetta lang fjölmennasti fermingardagurinn það árið sem þýddi að kirkjan var þétt setin. Það varð rosalega heitt inni í kirkju þar sem blíðskapar veður var úti og sólin skein. Eitthvað var einn fermingardrengurinn illa fyrir kallaður, í jakkafötum og fermingarkirtli, í þessum hita því það steinleið yfir hann í miðri athöfn. Annars gekk athöfnin þokkalega þó löng hafi verið og vona ég innilega að Ágúst Halldórs hafi nú samt átt góðan fermingardag þrátt fyrir þessa byltu.

Ég man að það var mikil spenna í kringum ferminguna mína. Við mamma ákváðum að þema liturinn yrði vínrauður. Finnur teiknikennari skrifaði á fallegt vínrautt kerti, við vorum með áprentaðar vínrauðar servéttur og hárskrautið mitt var vínrautt og hvítt. Ég fór eldsnemma þennan morgun í greiðslu til Guðbjargar hár og var hrikalega ánægð með hárið á mér. Ég man að ég keypti fermingarkjólinn minn í Flamingo og skórnir sem ég var í voru með svakalega háum botni. Veislan var í Akóges og boðið var upp á kökur og kaffi.

Ég man eftir ótrúlega mörgum gjöfum sem ég fékk. Ég fékk 116.000 í peningum, yfir 100 skeyti, sængurverasett, teppi, reiðhjálm, græjur með geislaspilara fyrir 3 diska, 2 hálsmen, hring og málverk eftir Sigurdísi Arnars. svo eitthvað sé nefnt. Amma og afi gáfu mér svo PC tölvu sem var örugglega 50 kíló og túbuskjá sem tók allt skrifborðið mitt. Það var mikil ánægja með það að geta tekið símasnúruna og tengt við tölvuna, hringt inn internetið og farið á irkið inni í mínu herbergi. Þegar litið er til baka var þetta dásamlegur dagur sem gekk mjög vel.

Fermingardagurinn minn

Hvað er þér eftirminnilegast á fermingardaginn: Ég man hvað ég var stressaður fyrir kirkjunni og var mjög létt þegar athöfnin var búin. Svo var gaman að fá alla ættingja í heimsókn og auðvitað fullt af gjöfum.

Tókstu þátt í undirbúningnum?

Já ég hjálpaði til við að baka kökurnar og skreyta kökurnar, man eftir því að við notuðum papriku á brauðtertuna sem var heimaræktuð.

Hvaða veitingar voru og hvar var veislan haldin? Veislan var haldin heima. Það var boðið upp á kökur og brauðtertur.

Hvernig voru fermingarfötin þín?

Ég var í svörtum jakkafötum með svarta slaufu og hvít skyrta.

Hvað var eftirminnilegasta fermingargjöfin?

Ég man sérstaklega eftir geggjuðum hermanna penna sem ég fékk í gjöf.

Uppáhalds tónlist frá þessum tíma?

U2 og Cranberries.

Hvað er þér eftirminnilegast á fermingardaginn: eftirminnilegast, já hóst, verð að segja að það var sennilega að um kvöldið hittist allur árgangurinn og fyrsta fylleríið varð að veruleika. Ég drakk slatta af Baley’s. Það var lífsreynsla. En það var hefð fyrir því í þá daga hjá krökkum á Blönduósi að detta í það eftir fermingu. Enda orðin fullorðin að okkar mati.

Hvaða veitingar voru og hvar var veislan haldin?

Ég var svo heppin að bróðir pabba var kokkur á þessum tíma og hann sá um að elda kalkún og með því. Svo var bæði marsípan kaka fræga með dagssetningu og nafni. Veislan var haldin heima hjá mér, hjónarúminu var hent út í bílskúr og veisluborði skellt upp.

Hvernig voru fermingarfötin þín?

Ég var í mynstruðum hvítum sokkabuxum, dökkbláum skokk og hvítri skyrtu. Svo fór ég í permanent.. lambakrullur voru málið.

Hvað var eftirminnilegasta fermingargjöfin?

Það var auðvitað græjurnar frá mömmu og pabba, með geislaspilari sem var þá alveg glænýtt á markaðnum. Ég fékk svo Bart simpson geisladisk sem var geggjaður. En ég fékk einnig margt í fermingargjöf sem ég notaði lengi og nota enn: Svefnpoka, skartgripaskrín, hárblásarar sem gaf upp öndina fyrir ca 5 árum, íþróttatösku, rúmföt.

Uppáhalds tónlist frá þessum tíma?

Ég elskaði Whitney Houston og Duran duran.

Jón Helgi Sveinsson Fermdist árið 1994 Katrín Laufey Rúnarsdóttir Fermdist árið 1992

Skipulagsauglýsing

Tillaga að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 og að deiliskipulagi Eldfells vegna minnisvarða í tilefni 50 ára gosloka afmælis Heimaeyjargoss, auglýst skv. skipulagslögum nr. 123/2010.

Með tillögu að fyrirhugaðri aðalskipulagsbreytingu er gert ráð fyrir uppsetningu minnisvarða og gerð grein fyrir staðsetningu hans á Óbyggðu svæði ÓB-3 og nýjum gönguleiðum á Hverfisvernduðu svæði HV-9. Deiliskipulagið gerir grein fyrir byggingareit minnisvarðans, aðkomu gangandi og keyrandi vegfaranda og bílastæða. Einnig er gerð grein fyrir nýrri gönguleið á Eldfell sem skapar sjónrænt samspil við minnisvarðann sjálfan. Auk þess er gert ráð lokun vegslóða og takmörkun umferðar ökutækja á svæðinu.

Meginmarkmið uppsetningarinnar í heild er að skapa sjónarhorn og sýn á stórbrotna náttúruna, þar sem lögð verður áhersla á samspil gönguleiða og náttúrumynda.

Breytingin styður við meginmarkmið Aðalskipulags Vestmannaeyja um að sérkenni Vestmannaeyja, sem eru þeirra aðdráttarafl verði styrkt með því að draga enn frekar fram sérstöðu eyjanna með uppbyggingu aðstöðu, þróun afþreyingar og markaðssetningar.

Skipulagsgögn liggja í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja, að Kirkjuvegi 50 frá og með 14. mars til 24. apríl 2023 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 24. apríl 2023 í afgreiðslu Ráðhússins eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is.

Arnar Bogi Andersen

Foreldrar: Kristín Tryggvadóttir & Ingi Þór Arnarsson.

FERMINGARBÖRNIN

Fermingardagar vorið 2023 verða sem hér segir:

Laugardagur 15. apríl

Fimmtudagur 20. apríl - borgaraleg ferming

Laugardagur 22. apríl

Laugardagur 29. apríl

Sunnudagur 28. maí

Guðni Þór Halldórsson

Foreldrar: Sigrún Arna Gunnarsdóttir & Halldór Ingi Guðnason.

Ásdís Sara Sigurfinnsdóttir

Foreldrar: Ása Sigurðardóttir & Sigurfinnur Viðar Sigurfinnsson.

Ásta María Helgadóttir

Foreldrar: Þóra Hallgrímsdóttir & Helgi Bragason.

Helga Vala Vattnes Bjartmarsdóttir. Foreldrar: Harpa Kristjánsdóttir & Bjartmar Oddur Þ. Alexandersson.

Ísey María Örvarsdóttir

Foreldrar: Kolbrún Kjartansdóttir & Örvar Omrí Ólafsson.

Foreldrar: Emil Marteinn Andersen & Ingveldur Magnúsdóttir.

Maríanna Jónasdóttir

Foreldrar: Ester Torfadóttir & Jónas Logi Ómarsson.

Thelma Lind Ágústsdóttir

Foreldrar: Ágúst Sævar Einarsson

Jóel Þór Andersen & Kristjana Sif Högnadóttir. Tómas Sveinsson Foreldrar: Sveinn Tómasson. Kjartan Freyr Andreuson Foreldrar: Andrea Kjartansdóttir & Eyþór Þórðarson. 15. apríl Elsa Sigrún Símonardóttir Foreldrar: Elín Sigríður Björnsdóttir & Símon Þór Eðvarðsson.

20. apríl 1. apríl

Foreldrar: Benóný Baldvinsson & Alfa Markan Elfarsdóttir.

Foreldrar: Drífa Þöll Arnarsdóttir & Gunnlaugur Erlendsson.

Foreldrar: Bergvin Oddsson & Fanný Rósa Bjarnadóttir.

Anna Kolbrún Orradóttir

Foreldrar: Hulda Birgisdóttir & Orri Jónsson.

Bjartey Ósk Sæþórsdóttir

Foreldrar: Sæþór Gunnarsson & Bjartey Gylfadóttir.

Foreldrar: Agnes Guðlaugsdóttir & Þorbjörn Víglundsson.

Foreldrar: Ingunn Arnórsdóttir & Svanur Gunnsteinsson.

Foreldrar: Guðbjörg Þórðardóttir & Gunnar Þór Guðjónsson.

Sóley Óskarsdóttir

Foreldrar: Kolbrún Sól Ingólfsdóttir & Óskar Haraldsson.

Káradóttir Foreldrar: Guðný Bjarnadóttir & Kári Höskuldsson.

Guðrún

Inda Marý Kristjánsdóttir

Foreldrar: Hansína Metta Jóhannsdóttir & Kristján Ingi Sigurðsson.

Foreldrar: Hansína Metta Jóhannsdóttir & Kristján Ingi Sigurðsson.

Foreldrar: Arnar Ingi Ingimarsson & Elín Þóra Ólafsdóttir.

Foreldrar: Brynjar Smári Unnnarsson & Jóhanna Jóhannsdóttir

Foreldrar: Bjarni Rúnar Einarsson & Arna Hrund Baldursdóttir Bjartmars.

Birna Kristel Mist Mikaelsdóttir Foreldrar: Ingibjörg Ósk Marínósdóttir. Dagur Markan Oddur Bjarni Bergvinsson Ragnar Ingi Arnarsson Lilja Kristín Svansdóttir Petra Metta Kristjánsdóttir Jenný Svava Þorbjörnsdóttir Einar Bent Bjarnason Aðalbjörg Andrea Brynjarsdóttir Arna Gunnlaugsdóttir 22. apríl Sandra Björg Gunnarsdóttir 29. apríl

29.apríl

Guðjón Elí Gústafsson

Foreldrar: Silja Rós Guðjónsdóttir & Gústaf Kristjánsson.

Halldór Skúli Björnsson

Foreldrar: Halldóra Björk Halldórsdóttir & Björn Sigþór Skúlason.

Jenna Gunnarsdóttir

Foreldrar: Betsý Ágústsdóttir & Gunnar Friðfinnsson.

Katla Margrét

Guðgeirsdóttir

Foreldrar: Esther Bergsdóttir & Guðgeir Jónsson.

Kristín Klara Óskarsdóttir Foreldrar: Óskar Jósúason & Guðbjörg Guðmannsdóttir.

Kristófer Dagur Rúnarsson foreldrar: Ásta Björk Guðnadóttir & Rúnar Freyr Guðmundsson.

Roman Alexander Hlynsson

Foreldrar: Hlynur Sigmundsson & Kateryna Sigmundsson.

Foreldrar:

Stefán Jökull Erlendsson

Foreldrar: Oddfríður Lilja Jónsdóttir & Erlendur G.

Foreldrar:

Borghildur Lára Atladóttir

Busk Foreldrar: Atli Ársæll Atlason & Kristrún Heiða Þórarinsdóttir Busk.

Foreldrar:

Foreldrar: Drífa Þöll Arnarsdóttir & Gunnlaugur Erlendsson.

Gunnarsson. Þuríður Andrea Óttarsdóttir Óttar Gunnlaugsson & Nanna Dröfn Sigurfinnsdóttir. Snædís Liljurós Gísladóttir Gísli Már Ragnarsson & Oddný Sigurrós Gunnarsdóttir. Erlendur Gunnlaugsson Edda Dögg Sindradóttir Foreldrar: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir & Sindri Viðarsson. Elín Sif Hlynsdóttir Foreldrar: Hlynur Már Jónsson & Hulda Sif Þórisdóttir. Edda Björk Guðnadóttir Guðni Grímsson & Kristín Hartmannsdóttir. Ernir Ísak Elísson Foreldrar: Elís Jónsson & Þóranna Halldórsdóttir. 28.maí

Foreldrar: Berglind Þórðardóttir & Sigurjón Örn Lárusson.

Hrannar Ágústsson

Foreldrar: Steinunn Ásta Hermannsdóttir & Ágúst Ingi Jónsson.

Foreldrar: María Pétursdóttir & Gunnar Bergur Runólfsson.

Þórarinn Hjörtur Sigmarsson

Foreldrar: Sigmar Valur Hjartarson & Dóra Guðrún Þórarinsdóttir.

Kolbeinsdóttir Foreldrar: Guðríður Jónsdóttir & Kolbeinn Agnarsson.

Vala

Myndir afhentar stafrænt

KR. 29.900.-

Myndir afhentar í upplímdu klassísku albúmi og stafrænt

KR. 59.900.-

Sigurmundur Gísli Unnarsson

Foreldrar: Unnar Gísli Sigurmundsson og Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir

Dröfn Pétur Dan Gunnarsson Heimir Halldór Sigurjónsson Sr. Guðmundur Örn Jónsson Sóknarprestur
20.maí FJÖLSKYLDU &FERMINGAR MYNDATAKA
Sr. Viðar Stefánsson Prestur
Upplýsingar í síma 868-3376 eða á 1000andlit@gmail.com -félagi í ljósmyndarafélagi Íslands-

PERSÓNULEG FERMINGARKORT

Fyrir jólin sögðum við frá persónulegum jólakúlum sem Marta María

Vídó var að útbúa. Fengu þær að prýða ófá jólatrén síðustu jól. En Marta bíður uppá ýmislegt fleira í þessu föndri sínu. Til að mynda persónuleg fermingarkort.

„Já, persónulegu fermingarkortin hafa verið mjög vinsæl. Ég hef verið að gera þau persónuleg bæði eftir áhugamáli viðkomandi og einnig með nafni eða það sem fólk vill fá,“ sagði Marta í spjalli við Tígul. „ Mér hefur alltaf fundist gaman að föndra, alveg frá því ég var lítil. Ég byrjaði svo að útbúa kort fyrir aðra í kringum árið 2017, ef ég man rétt. Síðan þá hef ég boðið uppá allskonar, þá aðallega úr pappír. Ég hef mikið gert af kortum, afmælis-, fermingar-, stúdent-, skírnar- og við öll hugsanleg tilefni. Einnig hef ég gert allskyns gjafabox, nafnspjöld, veifur, kassa undir peningagjafir, fermingarkerti, kökutoppa, barmblóm og brúðarvönd. Svo það er margt hægt að gera. Ef fólk dettur eitthvað í hug þá bara reynum við að búa það til.“ En fermingarkortin eru alltaf vinsælust að sögn Mörtu. „Það fylgja með þeim umslög og einnig get ég sett umslag inní kortið ef um peningagjöf er að ræða,“ bætti Marta við.

Aðspurð um afgreiðslufrestinn segist Marta gefa sér fimm til sjö daga í kortin þannig að það er alltaf best að panta með góðum fyrirvara. „Það er hægt að senda mér skilaboð bæði á facebook og instagram, M. Vídó Kort. Einnig er ég með emailið: mvidokort@gmail.com og í síma 823-7711.“

Litla Skvísubúðin www.skvisubudin.is Þú færð dragtina hjá okkur fyrir veisluna Fæst einnig í ljósbláu

EINSTÆÐUR ATBURÐUR Í SKÁLHOLTSKIRKJU

FYRIR 50 ÁRUM, 103 BÖRN FRÁ EYJUM FERMD

Jónssyni og séra Karli Sigurbjörns syni, Eiríki Guðnasyni kennara og fleirum. Geysilegt fjölmenni var í Skálholti við ferminguna, sem var mjög hátíðleg. Margir einstæðir atburðir hafa átt sér stað á hinum forna kirkjustað og þarna bættist einn við. Kirkjukór Vestmannaeyja söng við ferminguna en með honum söng einnig fólk úr Eddukórnum og hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands léku með.

fermingarveizla í félagsheimilinu á Flúðum og komu um 1000 manns í þá veizlu. Vestmannaeyjabörnin létu mjög vel af dvölinni á Flúðum og kváðust glöð yfir að hitta vini og kunningja. Þá létu þau sérlega vel of öllum aðbúnaði á Flúðum. Öll framkvæmd fermingarinnar tókst mjög vel og gekk vel þrátt fyrir mun meiri mannfjölda, en búizt hafði verið við. Fermingarveizlan á Flúðum stóð yfir frá kl. 3 á sunnudag og fram eftir sunnudagskvöldi.

fermingarinnar frá öllum landshlutum þar sem þau dvelja um sinn meðan byggð er óbýl í Eyjum. Börnin voru fermd í 2 hópum. Fyrri fermingin hófst kl. 13 og sú síðari kl. 15. Hárgreiðslufólk úr Vestmannaeyjum kom að Flúðum sl. laugardag og greiddi hár stúlknanna. Voru þær allar með mjög látlausa og eðlilega hárgreiðslu. Í Skálholti hittu fermingarbörnin foreldra sína og aðra aðstandendur og var kirkjan þétt setin við báðar fermingarnar.“

NÁMSKYNNING

ÞRIÐJUDAGINN 21. MARS KL. 12-13

EITTHVAÐ VIÐ ALLRA HÆFI!

• Félagsfræði • Náttúrfræði • Íþróttafræði • Heilbrigðisfræði • Listabraut • Viðskiptabraut • Fiskeldisfræði • Opið svið t.d. fyrir þá sem eru í tónlistarnámi samhliða framhaldskólanum • Afreks akademía í samvinnu við ÍBV

• Vélstjórnarnám og vélvirkjun og nú einnig C stig í vélstjórninni • Skipstjórn B

• Grunndeild málmiðna • Grunndeild byggingargreina • Grunndeild rafiðna sem er einnig skipulagt sem nám með vinnu • Sjúkraliðabraut sem er einnig skipulögð sem nám með vinnu • Framhaldsskólabrú • Starfsbraut fyrir þá sem eru með einstaklingsmiðaða námskrá.

Háskóli Íslands verður einnig á svæðin með kynningu á sínum deildum.

KÍKTU Á OKKUR OG KYNNTU ÞÉR ÞAÐ SEM ER Í BOÐI!

fiv79 /framhaldsskolinnivestmannaeyjum

FERMINGARBÖRN spurt & svarað

GUÐNI ÞÓR HALLDÓRSSON

Fjölskylda: Sonur Halldórs og Sigrúnar. Og á bróðir sem heitir Breki Þór

Hvar og hvenær líður þér best?

Niðrá bryggju

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum?

„ÉG ELSKA SKIP“

Hvernig nærðu slökun?

Finnst fínt að vera einn heima Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Keflavík,því þegar ég er þar þà er ég að fara til útlanda daginn eftir

ARNA GUNNLAUGSDÓTTIR

Fjölskylda: Faðir er Gunni Ella Pé og móðir er Drífa Þöll, tvíburabróðir er Elli Gunna Ella Pé

Hvar og hvenær líður þér best?

Mér líður best með fjölskyldu og vinum og nágranna mínum Elsu. Mér líður vel þegar ég er uppi á fjalli.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum?

Snillingur, húmoristi, áhugaverð Hvernig nærðu slökun?

Ég næ slökun með Bellu minni. Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Vestmannaeyjar

Besti matur í heimi? Pestóbrauðið

hans Einsa kalda Leikhús eða bíó? Bæði Uppáhaldstónlist? Öll skemmtileg

tónlist

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju? Ég myndi taka með tæki til að eima sjó, ávexti með fræjum í til að gróðursetja og húsið mitt. Hvað er á óskalistanum? Eitthvað sem fólki finnst vera Örnu-legt.

Ertu A eða B týpa? A týpa Uppáhaldshlutur? Herbergið mitt

Ef þú ættir eina ósk?

Að öll í heiminum séu hamingjusöm

HEIMIR HALLDÓR SIGURJÓNSSON

Fjölskylda: Mamma mín heitir Berglind, Pabbi minn heitir Sigurjón og svo á ég eina systir sem heitir Anna Sif og bróðir sem heitir Rúnar Örn.

Hvar og hvenær líður þér best?

Heima, íþróttahúsinu og á handboltaæfingu.

Ertu til í að lýsa þér í þremur orðum? Duglegur, flottur, keppnismaður.

Hvernig nærðu slökun?

Þegar ég er að fara að sofa Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Besti matur í heimi?

Lambakórónur og Sushi

Leikhús eða bíó?

Bíó

Uppáhaldstónlist?

Coldplay

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Síma - Hleðslutæki og wifi rouder

Hvað er á óskalistanum?

Borðtölva

Ertu A eða B týpa?

B

Uppáhaldshlutur?

Skip

Ef þú ættir eina ósk? Að vera skipstjóri.

Vestmannaeyjar

Besti matur í heimi?

Lambalæri

Leikhús eða bíó? Bíó

Uppáhaldstónlist? Popp

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju?

Vatn, mat og kveikjara

Hvað er á óskalistanum?

Ferð til Englands, handboltaskóli í útlöndum og peningar.

Ertu A eða B týpa? A

Uppáhaldshlutur? Handbolti

Ef þú ættir eina ósk, hvers myndir þú

óska þér? Fá tímavél.

FÖSTUDAGUR 17. MARS

SUNNUDAGUR 18. MARS KL. 20.00 KL. 20.00

LEIKHÓPUR Í HEIMSÓKN Í FÍV

FRÉTTAHORN FÍV

Við fengum góða heimsókn Leikhópnum Stertabenda sem í samtarfi við Þjóðleikhúsið lagði í leikferð um landið með sýninguna Góðan daginn, faggi og nutum við góðs af því. Haldnar voru tvær sýningar í bæjarleikhúsinu í Vestmannaeyjum, annars vegar fyrir efstu bekki grunnskólans og hins vegar fyrir framhaldsskólann.

Leikritið „Góðan daginn, faggi“ er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur unnin upp úr dagbókum Bjarna Snæbjörnssonar frá yngri árum og fjallar á gamansaman en einlægan hátt um aðkallandi málefni tengd hinseginleika; skömm, öráreiti og drauminn um að tilheyra. Verkið hefur ríkt fræðslugildi og á brýnt erindi við íslenskt samfélag. Sýningin gekk fyrir fullu húsi allt síðasta leikár og hefur fengið fádæma góðar viðtökur meðal gagnrýnenda og áhorfenda á öllum aldri og hlaut tvær tilnefningar til Grímuverðlauna.

Nemendur og starfsfólk FÍV er sammála þeim viðtökum sem verkeið hefur fengið og fannst það mjög

athyglisvert. Þeir Ísak Huginn, Benóný, Andri Snær og Gabríel Ari voru eins og flestir sammála um að sýningin væri áhugaverð, skemmtileg og einnig fannst þeim hún fræðandi og upplýsandi. Höfundar og aðstandendur sýningarinnar eru hinsegin sviðslistafólk sem öll ólust upp á landsbyggðinni, Bjarni Snæbjörnsson leikari frá Tálknafirði, Axel Ingi Árnason tónskáld úr Eyjafjarðarsveit og Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri frá Hrísey. Það hefur verið ásetningur þeirra frá upphafi ferlisins að ferðast um landið með sýninguna, eiga opið samtal við fólk á

öllum aldri og vera fyrirmyndirnar sem þau sjálf hefðu þurft á að halda á yngri árum. Sýningin skapar umræður um hvernig  er hægt að vinna gegn einangrun hinsegin unglinga, ofbeldi, fordómum og hatursorðræðu sem hefur sýnt sig að undanförnum að færist í aukana. Nemendur framhaldsskólans tóku sýningunni vel og urðu gagnlegar umræður að sýningu lokinni. Við færum leikhópnum og Þjóðleikhúsinu þakkir fyrir að koma með sýninguna til okkar og bindum vonir við að þær verði fleiri í framtíðinni.

SÁLMABÆKUR, SERVÍETTUR OG KERTI MEÐ ÁRITUN

Nú getur þú valið þína áletrun á servíetturnar, kertin, sálmabækurnar og heillaóskabækur á vefsíðu blómavals. www.blomaval.is Athugið að það getur tekið allt að 1 til 3 vikur að fá vöruna með áletruninni.

Allt fyrir

ferminguna

Áletruð kerti, serviettur og sálmabækur Blómaskreytingar og blóm

Allt fyrir ferminguna

Áletruð kerti, servíettur og sálmabækur. Blómaskreytignar og blóm.

Hvetjum ykkur til að panta blóm tímanlega til að tryggja að við eigum réttu blómin FYRIR ÞIG.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Kransakaka

Hráefni:

1000 g marsipan (möndludeig)

400 g flórsykur

2 eggjahvítur (ca 60 gr)

flórsykur til að vinna deigið með

Sykurbráð (glassúr)

250 g flórsykur

1 eggjahvíta (30 g)

1 tsk ferskur sítrónusafi

Karamellubráð til að setja saman hringina og festa skrauti utan á kökuna.

100 g strásykur

2-3 tsk hveiti eða dökkt súkkulaði brætt í vatnsbaði eða sykurbráð úr 1 eggjahvítu og 220 g af flórsykri Konfekt, ávextir eða annað til skreytinga eftir smekk.

Aðferð:

Marsipanið rifið eða skorið niður í bita og hnoðað (í hræri- eða matvinnsluvél) með flórsykrinum þangað til það blandast vel saman. Þá er eggjahvítunum bætt saman við í tvennu lagi.

Hnoðað þangað til massinn verður þéttur og áferðarfallegur.

Gott að láta deigið standa í kæli í 3-4 klst. Stráið flórsykri á borð og skiptið deiginu í nokkra hluta og úr þeim unnar lengjur þannig:

Lengjurnar eru hafðar ca 1,5 – 2 cm þykkar og lengdin mæld þannig að minnsti hringur er gerður úr 8 cm síðan er bætt við hverja lengju 3 cm og áfram þannig þangað til æskilegum fjölda er náð. Þetta deig dugar í ca 16-18 hringi.

Nú er tvennt í stöðunni, annað hvort að raða hringjunum á bökunarplötu klædda bökunarpappír eða setja hringina í kransakökuform. En þá fer stærð þeirra að sjálfsögðu eftir stærð formanna.

Bakað við 225° hita í 8-10 mín. eða þangað til hringirnir hafa tekið gullinbrúnan lit.

Varast skal að baka þá of lengi. Síðan eru þeir lagðir saman hvort heldur er með karamellubráð eða bræddu súkkulaði eða sykurbráð.

Karamellubráð

Hveitið er blandað saman við sykurinn og brætt á pönnu við vægan hita.

Nota skal eins lítið og mögulegt er af sykri á milli hringja.

Sykurbráð (glassúr)

Flórsykur, eggjahvíta og sítrónusafi er hrært vel saman þangað til myndast þykk og jöfn sykurbráð.

Sett í plastpoka sem gert er lítið gat á eitt hornið eða búið til kramahús úr t.d. bökunarpappir.

Hringirnir skreyttir með zik-zak munstri áður en þeir eru lagðir saman.

Nokkur góð ráð: Smyrjið bökunarform með smávegis af smjörlíki og eins er gott að setja ögn af raspi á botninn. Notið reglustiku til að mæla lengdina og beittan hníf til að skera deigið sundur.

HÖNNUN

&PRENTUN

Á HINU OG ÞESSU

Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir

hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m.

• Afsláttarbók LEB

• LEB blaðið

• Sjómannadagsblað Vestmannaeyja

• Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja

• Sjómannablaðið Víkingur

• Heima er bezt

• VM blaðið

• Blað Rafiðnaðarsambandsins

• Tímaritið Úti

• Vikublaðið Tígull

AÐALFUNDUR

VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF. reikningsárið frá 1. janúar 2022 til desember 2022, verður haldinn

í Vinnslustöðinni, Hafnargötu 2, fimmtudaginn 30. mars 2023 kl. 17:00.

Fundarefni:

1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins.

2. Önnur mál löglega upp borin.

Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins tveimur vikum fyrir aðalfundinn.

Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.

STJÓRN VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF.

900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161

Við stækkum fermingargjöfina

Við gefum fermingarbörnum allt að 12.000 króna mótframlag þegar þau spara fermingarpeninginn hjá okkur.

Við erum betri saman

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.