Skip to main content

Tígull 09.tbl 04 árg.

Page 1

09. tbl. 04. árg. 9. - 15. mars 2022

Rafíþróttadeild ÍBV

Styrktartónleikar Krabbavarnar

Eyjamær í Eurovision?

Lið rafíþróttadeildar ÍBV keppti í leiknum Counterstrike:Go um síðustu helgi á vegum RÍSÍ.

Síðastliðinn fimmtudag hélt Krabbavörn Vestmannaeyja styrktartónleika.

Þura Stína keppir í úrslitum í Söngvakeppninni ásamt hljómsveit sinni Reykjavíkudætrum

heimadecor.is

/heimadecor


EINN FYNDNASTI OG VINSÆLASTI SKEMMTIKRAFTUR ÍSLANDS HEIMSÓTTI EYJAR UM SÍÐUSTU HELGI Ari Eldjárn er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix en þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna manna, sem horfðu á og höfðu gaman af. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.

sannarlega í gegn í Höllinni um síðustu helgi. Ari mætti með leynigest með sér en það var Andri Ívarsson sem náði salnum á sitt band. Tígull mælir svo sannarlega með þessari sýningu og látum okkur hlakka til þegar hann mætir aftur á Eyjuna aftur í desember að hans sögn.

Nú stendur hann fyrir skemmtilegri uppistandssýningu þar sem hann prófar nýtt grín. Sýningin sló svo

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


EYJATÓNLEIKAR 21. APRÍL Í HÖRPU

YNDISLEGU EYJALÖGIN Á EINU GLÆSILEGASTA ÁRGANGS-, ÆTTAR- OG VINAMÓTI VERALDAR!

HREIMUR · STEFANÍA SVAVARS · KK · MAGNI MAGNÚS KJARTAN · SARA RENEE · RÚNAR RÚNARS · UNA ÞORVALDS STÓRHLJÓMSVEIT UNDIR STJÓRN ÞÓRIS ÚLFARSSONAR · BIRGIR NIELSEN · EIÐUR ARNARSSON · JÓN ELVAR HAFSTEINSSON KJARTAN VALDEMARSSON · SIGURÐUR FLOSASON · MATTHÍAS STEFÁNSSON · ARI BRAGI KÁRASON · KRISTJÁN GÍSLA · ALMA RUT MIÐASALA Á HARPA.IS · TIX.IS OG Í MIÐASÖLU HÖRPU Í SÍMA 528 5050


VELHEPPNAÐIR TÓNLEIKAR HJÁ KRABBAVÖRN „ Þakklæti er okkur efst í huga vegna frábærra undirtekta á Mottumarstónleikunum sem haldnir voru í Höllinni þann 3. mars. Þátttaka fór langt umfram væntingar,“ sagði Sigga Stína formaður Krabbavarnar. Hún vill koma á framfæri þakklæti frá stjórninni til allra. Þessu frábæra fólki, velunnurum, styrkjendum og öllum þeim sem gáfu sína vinnu við framkvæmd tónleikanna. Rekstraraðilum Hallarinnar sem rukkuðu ekki fyrir leigu hússins. Einnig strákunum í karlaklúbbnum fyrir ómetanlegt starf þeirra, Simma, Óskari Pétri, Óla, Finni, Steingrími og Dóra. Það var Krabbavörn í Vestmannaeyjum sem stóð að tónleikunum og á kvöldinu söfnuðust um 2 milljónir króna og rann allur ágóði til félagsins.


RAFÍÞRÓTTADEILD ÍBV KEPPIR Á NETMÓTI Á VEGUM RAFÍÞRÓTTASAMBANDS ÍSLANDS tiltekna netmóti sem RÍSÍ er að halda fyrir aðildarfélögin þá var hægt að keppa í CS:GO, Fortnite, Minecraft og Rocket League. Við erum þó aðeins með leikmenn í CS:GO og Fortnite. Hversu oft er keppt? Þetta verða 3 mánuðir en aðeins ein helgi tekin undir hvern leik. Þannig að 3 helgar í heildina fyrir hvern leik. Á hvaða aldri eru keppendur og eru aldurstakmörk? Keppendur eru á aldrinum 10-16 ára Hvenær er næsta mót? CS:GO liðið tók á móti einu liði á laugardaginn síðasta og tekur síðan næsta leik mánuð frá því. Næsta helgi er síðan Rocket League, þar sem við höfum ekki spilara og þriðja helgin er Fortnite. Er eitt mót sem klárast yfir helgi eða er þetta að ná yfir lengri tíma? Þetta er í raun eitt mót sem stendur yfir þrjá mánuði. Og það er bara keppt alltaf á laugardögum og einn leikur tekinn fyrir eina helgi. Hvað eru margir að æfa raf? Hjá okkur eru 18 skráðir á æfingar þessa önnina, sem eru 3 fullir hópar svo erum við með 8 aðila í keppnisliði í fyrstu deild. Jón Þór Guðjónsson er þjálfari rafíþróttadeildar ÍBV. Blaðamaður Tíguls heyrði í honum og forvitnaðist hvað væri framundan hjá þeim í ÍBV Esports. Hvað eru mörg lið að keppa í rafíþróttum fyrir hönd ÍBV? Í meistaraflokki þá erum við með eitt lið í CS:GO. Í yngri hópum eru 3 lið sem vildu taka þátt í netmóti sem er í gangi núna milli aðildarfélaga. Liðin skipa: Yngra CS:GO liðið eru:

Edward Jón Þórarinsson Ginshul Grétar Ingi Helgason Guðmundur Jóhannsson Patrekur Þór Magnússon Signý Geirsdóttir Valur Hugason Andersen Svo eru 2 Fortnite lið: annað lið er: Andri Már Agnarsson Arnaldur Bjarni Sveinbjörnsson Hitt lið er: Arnar Gauti Eiríksson Bjargur Leó Hlynsson

Hvaða aldurshópur er fjölmennastur? Hjá okkur er stærsti aldurshópurinn 11-13 ára.

Í hverju er verið að keppa? Í þessu

Hvernig gekk þeim um síðustu

Hvernig eru æfingarnar settar upp, þ.e er einhver hreyfingarplan inni í æfingunum? Já, æfingarnar hefjast á smá upphitun og teygjum svo er tekið smá líkamlegt þrek og við einblínum meira á gæði frekar en magn. Eftir það er sest við tölvurnar og það er misjafnt eftir aldurshópum og leik hvernig æfingin er upp sett.


helgi? Þeim gekk mjög vel. Tóku á móti Austri og keppt var í BO2 (Best of 2) fyrirkomulagi sem snýst um að sitthvort liðið velur sér leikborð til að spila á og tekinn verða stig af því. Fyrri leikurinn fór 16-3 fyrir okkur og seinni 16-13 fyrir okkur. En aðal málið var að þeir fengu loks að spreyta sig á móti öðrum aðildarfélögum og hafa gaman af því.

Fyrir þau sem vilja fylgjast með keppendum - hvernig er best að snúa sér í því? Það er best að fylgjast með á samfélagsmiðlum bæði á instagram og Facebook (ÍBV Esports). Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? Langar að vitna í punkt frá honum Arnari Hólm sem er fræðslustjóri Rafíþróttasamtaka Íslands: Búum ekki til vandamál að óþörfu. Þetta er afar mikilvægur punktur og það kemur mjög oft upp, að foreldrar

hafi áhyggjur af börnunum sínum vegna tölvuleikjaspilunar. Í mörgum tilfellum eru börnin samt sem áður að standa sig vel í skóla, eru að stunda íþróttir af kappi, hafa félagslíf, fara að sofa á skikkanlegum tíma og okkur finnst þau samt spila of mikla tölvuleiki. Ef þau væru ekki í tölvuleik væri afþreying mjög líklega í formi skjátíma hjá krökkum á þessum aldri, og eru samfélagsmiðlarnir betri vettvangur? Ég veit það ekki en pælið í því.

Brjóstakrabbameinsskimun á heilsugæslunni í Vestmannaeyjum dagana 14. - 17. mars

Tímapantanir í síma 513-6700 milli kl. 8:30 og 12:30 alla virka daga. Einnig er hægt að senda póst á netfangið krabbameinsskimun@heilsugaesla.is ef þú hefur fengið bréf frá okkur.


leturstofan@leturstofan.is Á Leturstofunni bjóðum við upp á hönnun og umbrot á alls konar verkum. Auglýsingar / logo / umbúðir / fréttabréf nafnspjöld / boðskort / bæklinga / límmiða og allt sem þér dettur í hug. Ásamt því að hanna auglýsingar, bjóðum við einnig upp á auglýsingasöfnun. Ert þú með blað eða tímarit og vantar að safna auglýsingum? Vertu í sambandi við okkur og við förum yfir þetta í sameiningu.

Leið 52

STRÆTÓ

www.straeto.is 540 -2700

Landeyjarhöfn Virkir dagar:

Frá Mjódd Frá Mjódd Frá Landeyjarhöfn Frá Landeyjarhöfn

08:00 17:45 10:03 20:40

Helgar: Frá Mjódd Frá Mjódd Frá Landeyjarhöfn Frá Landeyjarhöfn

08:10 15:15 10:13 18:00

www.ernir.is 481-3300 Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

Þorlákshöfn 09:00 Frá Mjódd 17:30 Frá Mjódd Frá Þorlákshöfn - Það er beðið eftir farþegunum og lagt af stað þegar að það eru allir komnir úr Herjólfi.

Frá Reykjavík

12:15 12:40 14:00 14:25

Frá Vestm.eyjum

13:00 13:25 14:45 15:10

Flug á þriðjudögum er eingöngu í mars.

www.straeto.is | 540-2700


Zone er hönnunarmerki sem á rætur sínar að rekja til Danmerkur. Hönnuðir Zone leggja áherslu á lausnir, naumhyggju og gæði.

Vörurnar frá Zone fást í Miðstöðinni

-í meistara höndum Strandvegi 30 | s. 481 1475 | www.midstodin.is |

/midstodin


Afmæli vikunnar ÁRA ÁRA ÁRA

Viktor Hólm Jónmundsson - 06. 03

Hörður Þórðarson 70 ára Elsku pabbi, afi, tengdó!

Guðlaugur Árni Oddsson - 11.03

Hjartans hamingjuóskir með stórafmælið þitt. Þú ert pabbinn, afinn sem allir óska sér að eiga. Við hlökkum til að njóta dagsins með þér.

ÁRA

ÁRA

Anna Kristín Magnúsdóttir - 06. 03

ÁRA

25 35 45 50 70 70

Örvar Þór Örlygsson - 12.03

Guðbjörg Matthíasdóttir - 14.03

Kær kveðja Helga Jóhanna, Kristjana Margrét og fjölskyldur

Hörður Þórðarson - 14.03

Er tilefni?

Þú getur sent okkur grein og við birtum. tigull@tigull.is Til hamingju með stórfmælið! Hvað á að gera í tilefni dagsins? Feluleikur með fjölskyldunni, það fer eftir veðri og vindum hvar það verður.


Atvinna í boði

Stuðningsþjónusta Vestmannaeyjabæjar Óskum eftir að ráða starfsmann í 75 % starf í stuðningsþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð við einstaklinga inni á heimili þeirra við athafnir daglegs lífs, þrif, matarinnkaup ofl. Starfið felur í sér dag, kvöld og helgarvinnu og er vinnutími breytilegur. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Allar frekari upplýsingar gefur deildarstjóri stuðningsþjónustu Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma 4882607 eða með tölvupósti: kolla@vestmannaeyjar.is Umsóknir óskast sendar í gegnum mínar síður hjá Vestmannaeyjabæ.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2022. Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Stavey eða Drífanda stéttarfélags. Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020.

Miðbæjarfélagið

HEIMABÆR

Félag eyjamanna um fallegan miðbæ

VILTU VERA MEÐ? Ertu með góða hugmynd af einhverju sem þú myndir vilja sjá í miðbænum okkar? Nú er margt spennandi framundan og undirbúningsvinna hafin. Hvetjum alla til að skrá sig í félagið - eyjaheimabaer@gmail.com Frjáls framlög við skráningu. Miðbæjarfélagið Heimabær 0582-26-006901 kt. 4911211220


VIÐBURÐIR FRAMUNDAN Valsvöllur kl. 20:15

MARS

FÖS

11

VÍKINGUR R - ÍBV Lengjubikar karla fótbolti

Víkingsvöllur kl. 17:00

MARS

LAU

12

MARS

LAU

12

STJARNAN - ÍBV Lengjubikar kvenna fótbolti Samsungvöllurinn

kl. 14:00

SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPSINS

RÚV 19:45

MARS

MIÐ

16

MARS

Íþróttamiðstöð kl. 18:00 ÍBV U - STJARNAN U Grill 66 kvenna

FÉLÓ

Íþróttamiðstöð kl. 20:00

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

www.eyjabio.IS

Laugardagur - 5. mars

16

MARS

ÍBV - KA/ÞÓR Olísdeild kvenna

MIÐ

09

MARS

FIM

kl.14:00

kl. 15:00

SUNNUdagur - 6. mars

MIÐ

Bein útsending frá úrslitum Söngvakeppninnar í Söngvakeppnishöllinni í Gufunesi. Þar ræðst hvaða lag fer fyrir Íslands hönd í Eurovision á Ítalíu.

SUNNUdagur - 6. mars

10

VALUR - ÍBV coca-cola bikar kvenna

kl.17:00

10

MARS

MÁN

SUNNUdagur - 6. mars

FIM

14

MARS

ÞRI

kl.20:00

15

MARS

OPIÐ HÚS FYRIR 9. & 10. BEKK

kl. 19:30 - 22:00

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

kl. 19:30 - 22:00

OPIÐ HÚS FYRIR 5. - 7. BEKK

kl. 16:30 - 18:30 8. - 10. BEKK

kl. 19:30 - 22:00 OPIÐ HÚS FYRIR 5. & 6. BEKK

kl. 16:30 - 18:30 7. & 8. BEKK

kl. 18:30 - 20:30


Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu

MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR (DÚLLA) Frá Skálum Illugagötu 36

Lést á heimili sínu föstudaginn 18. febrúar. Útför hennar verður gerð frá Landakirkju Laugardaginn 12. mars kl. 14:00. Athöfninni verður einnig streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á reikning Krabbavarnar í Vestmannaeyjum 0582-26-2000 kt. 651090-2029 Lúðvík Bergvinsson Þóra Gunnarsdóttir Magnea Bergvinsdóttir Þorvarður Ægir Hjálmarsson Haraldur Bergvinsson Sigurlína Guðjónsdóttir

Bergvin, Tómas Ingi, María, Baldur, Jóhanna Lea, Bjarni Þór, Birkir og Magnea Björg.

SÆFINNU ÁSTU VÍDÓ SIGURGEIRSDÓTTUR SÆSU VÍDÓ Hrauntúni 11, Vestmannaeyjum

Fjölskyldan þakkar starfsfólki HSU í Eyjum innilega fyrir einstaka umönnun og væntumþykju.

Þorbjörn Númason Sigurgeir Þorbjarnarson Berglind Ómarsdóttir (Siggi Vídó), Sæþór Vídó Þorbjarnarson Kristín Halldórsdóttir Marta María Vídó Þorbjarnardóttir og barnabörn.

Viltu minnast Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og látins ættingja eða vinar?amma Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina.

Ástkær eiginkona, móðir, SIGURBJÖRG JÓNASDÓTTIR tengdamóðir og amma Frá Grundarbrekku í Vestmannaeyjum Höfðavegi 26

Lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum þriðjudaginn 1. mars SIGURBJÖRG JÓNASDÓTTIR Frá Grundarbrekku í Vestmannaeyjum Viðar Óskarsson Höfðavegi 26 Jónas Rúnar Viðarsson Inger J. Daníelsdóttir Hafþór Óskar Viðarsson Arna Erlingsdóttir LéstBarnabörn á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum þriðjudaginn 1. mars. Viðar Óskarsson Jónas Rúnar Viðarsson Inger J. Daníelsdóttir Hafþór Óskar Viðarsson Arna Erlingsdóttir

Barnabörn


TREYSTI Á YKKAR STUÐNING Það er í nógu að snúast hjá Þuru Stínu Kristleifsdóttur Eyjamær en hún er hluti af hljómsveitinni Reykjavíkurdætur. Hljómsveitin er komin í úrslit í Söngvakeppni sjónvarpsins með lag sitt Tökum af stað (Turn this around) en úrslitin ráðast á laugardaginn næstkomandi. Við heyrðum í Þuru Stínu. Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Kristleifur Guðmundsson og Heiða Önundardóttir. Stjúpmamma mín er Hildur Jónasdóttir. Ég á eina stelpu sem heitir Emilía Karin og er trúlofuð Arnari Jónmundssyni. Systkini mín í Eyjum eru Kristjana Sif, Kristleifur, Magnús, Ólafur Kristján og Hrafnhildur Kristín. Svo auðvitað bestu amma Þura Stína og afi Gummi í Hrauntúninu sem hafa alltaf verið mér eins og foreldrar. Hvenær fluttiru frá Eyjum: Ég bjó seinast í Eyjum á fyrsta ári í FÍV. Ég fór síðan í listnám á hönnunarbraut og þurfti því að færa mig yfir í Tækniskólann.

Hvar býrðu/hvað gerir þú: Litla fjölskyldan býr í Mílanó en ég var að klára fyrstu önnina mína í mastersnámi. Ég er grafískur hönnuður og er í grafískri hönnun, markaðsfræði og listrænni stjórnun í skóla sem heitir NABA. En maki þinn: Arnar er klippari og pródúsent og vann hjá Stöð2 og Stöð2 Sport áður en við fluttum til Mílanó en er núna í freelance verkefnum. Hvernig er týpískur dagur hjá þér? Dagarnir mínir eru mjög fjölbreyttir en ég vinn mikið enda vinn ég við svo ótrúlega skemmtilega hluti. Ég er bæði tónlistarkona, framleiðandi, hönnuður og leikstjóri og verkefnin í aðdraganda söngvakeppninnar hafa verið ansi mörg og fjölbreytt. Annars njótum við fjölskyldan okkar mjög mikið í nýju landi, ég fer í skólann á daginn og elska að fara út að hlaupa. Við eigum ekki bíl úti en hjólum mikið svo ég byrja vanalega á því að hjóla með Emilíu í leikskólann og

hjóla síðan í skólann minn. Eftir tíma fæ ég mér eitthvað gott að borða og kem svo heim eða fer á kaffihús til að vinna. Þegar við sækjum Emilíu Karin úr leikskólanum förum við oftast í garðinn að leika og svo fáum við okkur oft gelato í sólinni. Svo er bara eldað eitthvað gott heima og reynt að ná eins og einum góðum þætti ef að vinnan kláraðist af mestu yfir daginn. Hvernig er undirbúningur fyrir söngvakeppnina? Við ákváðum að taka þátt í september í fyrra og haustið fór í að semja lagið og undirbúa atriðið sjálft. Ég fékk síðan hugmynd að tónlistarmyndbandi fyrir lagið í nóvember svo að það fór í gang mjög mikil vinna því tengdu en ég leikstýrði og framleiddi myndbandið okkar. Við skutum það í byrjun janúar en aðaltökumaðurinn var Tómas Marshall og svo fékk ég annan eyjamann Harald Ara Karsson til að aðstoðarleikstýra. Það kom mikið af góðu fólki að þessu verkefni með


okkur og við vorum mjög ánægðar að geta loksins frumsýnt það núna í síðustu viku. Hvernig kom lagið til í keppnina? Við sömdum lagið allar saman í haust heima hjá Sölku sem er pródúsentinn í hljómsveitinni, bæði íslensku og ensku útgáfuna sem er reyndar blanda af íslensku og ensku en þannig semjum við flest lögin okkar í dag þar sem við erum að spila mjög mikið erlendis. Við gerðum nokkur demó en þetta small frekar fljótt hjá okkur og við vissum strax að þetta lag væri okkar framlag. Af hverju að taka þátt núna? Það er búinn að vera draumur okkar mjög lengi að taka þátt í Söngvakeppninni en það hefur einhvernveginn aldrei gefist tími til þar sem við höfum verið mjög uppteknar við tónleikaferðalög úti. Við erum ótrúlega spenntar að taka lagið á ensku á laugardaginn en við erum búnar að leggja miklu vinnu í atriðið. Við erum aftur númer 3 í röðinni og því er bara sama kosninganúmer 900-9903.

Er eitthvað í kortunum hjá þér að flytja aftur til Eyja? Það er alltaf jafngott að komast til Eyja, við fjölskyldan eigum íbúð út á Seltjarnarnesi sem minnti mann mjög mikið á samfélagið heima. Lítið, vinalegt, sjórinn allt í kring og alltaf rok. En við erum auðvitað nýflutt til Mílanó svo það er ekki beint á planinu að flytja aftur heim í náinni framtíð allavega. Eru fleiri úr hópnum ykkar tengdar Eyjum? Já, Ragga á frændfólk í Eyjum en flestar hafa nú komið með mér á þjóðhátíð til að spila og hitta fjölskylduna mína en það er langþráður draumur okkar Reykjavíkurdætra að spila saman á þjóðhátíð. Ertu með skilaboð til Eyjanna? Ég vona að þið tjékkið á laginu, myndbandinu og að sjálfsögðu að þið kjósið ykkar konur á laugardaginn!

UPPSKRIFT VIKUNNAR Einfaldur pastaréttur í hvítlaukssósu Hráefni: 250 g pasta 2 msk smjör 3 hvítlauksrif, pressuð 2 msk hveiti 180 ml soðið vatn 1 msk kjúklingakraftur 180 ml mjólk eða rjómi rifinn parmesan salt og pipar Aðferð: Bræðið smjör í potti og léttsteikið hvítlaukinn í 1 mín.

Bætið hveiti saman við og hrærið stöðugt. Hellið kjúklingasoði og mjólk/rjóma saman við og hrærið. Látið malla þar til sósan er farin að hitna. Bætið ríflegu magni af rifnum parmesan saman við Smakkið til með salti og pipar. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Bætið saman við sósuna.


Við setjum viðskiptavininn ávallt í fyrsta sæti Sumarstarf í Vestmannaeyjum Við leitum að áreiðanlegum einstaklingi með ríka þjónustulund til sumarstarfa í útibúi Landsbankans í Vestmannaeyjum

Nánari upplýsingar

atvinna.landsbankinn.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 09.tbl 04 árg. by Leturstofan - Issuu