

UPPSKRIFT VIKUNNAR
Kvöldmatur tilbúinn á korteri - Tacoskálar
Hráefni:
10 stökkar tacos skálar

ólífuolía
1 pkn tilbúið kínóa frá Quinola
1 krukka salsasósa
Krydd
Laukduft, hvítlauksduft, cumin, Salt og pipar eftir smekk
Rifinn cheddar ostur
Toppurinn
Sýrður rjómi
Ostasósa
Smátt skorin gúrka, eftir smekk
Smátt skorinn tómatur, eftir smekk
1-2 avókadó, stappað með salti, pipar og lime
safa
Limebátar
Aðferð:
Steikið kínóa upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk. Blandið salsa sósunni saman við.
Dreifið tacos skálunum á bökunarplötu og
fyllið þær með kínóa blöndunni og rifnum osti. Bakið í ofni við 190°C í um það bil 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
Toppið með sýrðum rjóma, ostasósu, gúrku, tómötum, avókadó og kreistið lime safa yfir.
Njótið vel.
TÍGULL
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Tói Vídó.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


ALDREI SKILAÐ OF SEINT OG VIL HELST EKKI TAKA UPPÁ ÞVÍ NÚNA
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum sá fjöldi nýbygginga sem risið hefur í Eyjum á undanförnum misserum. Ein þeirra bygginga sem nú eru í byggingu er fjölbýlishús að Áshamri 79 en það reisa SA smíðar ehf. Eigendur eru feðgarnir Svanur Örn Tómasson húsasmiður og Aron Ingi Svansson og eru þeir feðgar búnir að vinna saman meira og minna frá 2006.
„Svanur er búin að vera í þessum bransa 1990 þegar hann og félagi hans stofnuðu byggingarfélagið Akkorð sf. þar áður var ég búin að vera nemi og unnið nokkur ár sem sjálfstæður smiður,“ sagði Aron Ingi í spjalli við Tígul. Svanur var orðinn ansi fyrirferðarmikill í bransanum fyrir nokkrum árum. Byggði upp leigufélag með íbúðarhúsnæði og var komin með 137 íbúðir í leigu og um 60 íbúðir í byggingu ásamt því að vera með lóð undir 52 íbúða húsnæði sem var búið að teikna íbúðir á árið 2007. Eins og gefur að skilja voru fjögur erfið ár framundan þá vegan bankahrunsins. Svani tókst hinsvegar að halda rekstrinum
gangandi allan tímann og seldi Leiguliða ehf árið 2012. „Ég sneri mér að öðru í þrjú ár eða svo, en helti mér síðan aftur í þennan bransa,“ sagði Svanur.
Aldrei skilað of seint Þeir feðgar eru orðnir vel kunnugir staðháttum hér í Eyjum og sér í lagi í Áshamrinum. En SA Smíðar byggðu raðhúsalengjuna við Áshamar 95 til 103 og það sem meira er skiluðu þeim húsum á áætluðum tíma. Þá kom Svanur einnig að byggingu raðhúsalengju við Foldahraun. „Á öllum mínum ferli í þessum bransa hef ég aldrei skilað of seint og vil helst ekki taka uppá því núna. Við leggjum mikið upp úr því að standa við það sem við segjum,“ bætti Svanur við.
„Framundan eru þessar lóðir sem við erum með hér í Eyjum bæði íbúðarhúsnæði ásamt atvinnuhúsnæði á nýja svæðinu upp við flugvöll,“ sögðu þeir feðgar aðspurðir hvað væri framundan.
„Þessi hús sem við erum að byggja hér við Áshamar 79-93 eru uppsteypt fjórbýli og eru allar íbúðir
með sér inngang, rafmagn og hita. Húsin verða einangruð og klædd að utan, með timbur/ál gluggum og hurðum, og reynt að hafa allt vandað og vel unnið.“
Aðspurðir út í aðstæður fyrir verktaka á markaðnum í dag sögðu þeir þær vera mjög skrítnar. „Það virðist vera mikil eftirspurn en engin þorir að gera neitt vegna vaxtaóróa. En það þýðir bara að þegar vextir fara lækka aftur þá verður orðin enn meiri eftirspurn og meiri þensla og þar afleiðandi leiðir það bara til enn meiri hækkana.“

Yndislegt að vera hér
Feðgarnir segja það vera talsvert öðruvísi að byggja hér í Eyjum en á fastalandinu. „Hér þarf maður svolítið meira að skipuleggja framkvæmdina varðandi efni þar sem það fæst nú ekki alltaf allt sem manni vantar hér á Eyjunni. Öll aðföng eru líka mikið dýrari og vinnuafl er jafnvel bæði erfitt að fá og virðist vera dýrara en á höfuðborgarsvæðinu. En annars bara frábært að vera hér á þessari yndislegu eyju,“ sögðu þeir feðgar Aron Ingi og Svanur að lokum.
Feðgarnir og smiðirnir, Aron Ingi og Svanur Örn.Glæsileg nýbygging
AFHENDIST ÍLOK SUMARS
Fjórbýli - sérinngangur
3 og 4 herbergja
118 og 132 m2
Nánast viðhaldsfrítt
Afhending sumarlok 2023
Nánari upplýsingar á eyjaeignir.is
eða í síma 861 1105

eða þú getur skannað inn kóðann:
Nánari upplýsingar veitir:
HALLDÓRA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR


- viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali

* dora@husfasteign.is // ( 861-1105



UNNU TIL VERÐLAUNA Í
ALÞJÓÐLEGRI DUOLINGO KEPPNI
FRÉTTAHORN FÍV

Í síðustu viku var verðlauna afhending í FÍV, en nemendur í dönsku á 1. þrepi tóku þátt í alþjóðlegri keppni í Duolingo og unnu til verðlauna.


Duolingo er farsímaforrit sem býður upp á nám í tungumálum. Með Duolingo geta notendur þjálfað sig í að tala, hlusta, lesa og skrifa á mörgum mismunandi tungumálum, meðal annars dönsku.
Tungumálanámið er skipulagt sem leikur, þar sem notendur þurfa að klára ákveðna þætti og fá stig fyrir að svara spurningum og leysa verkefni. Duolingo notar líka svokallaðar „gamification“ aðferðir til að auka áhuga notenda og búa til samkeppni í náminu.

Þetta forrit er aðgengilegt á netinu og er hægt að nálgast það á flestum snjallsímum og öðrum tæki sem eru tengd internetinu.

Þetta hefur gert námið aðgengilegra fyrir notendur út um allan heim og hefur gert það mögulegt að læra tungumál á einfaldan og skemmtilegan hátt.
Margrét Rut Rafnsdóttir, kennari í dönsku, skráði nemendahópinn í keppnina án þess að vita nákvæmlega út á hvað keppnin gekk, annað enn að hópurinn var að vinna að verkefninu sem heild. Dönskuhópurinn fór í keppni innanhúss við nemendur í spænsku og keppnisskapið hjá sumum kom í ljós. Nemendur og kennari fylgdust með súlunni sem sýndi fjölda sameiginlegra stiga hópsins.
Eftir fjórar vikur barst kennara póstur um að hópurinn hafði unnið sér inn gjafapakka og beðið var um heimilisfang. Miklar pælingar fóru af stað hvað varðar innihald pakkans og hann var lengi á leiðinni en pakkinn mætti í skólann í síðustu viku. Það var skemmtileg stund og í verðlaun var meðal annars tattú, límmiðar, blýantar, armbönd og nælur, allt merkt Duolingo.
Það er alltaf gaman að taka þátt í svona verkefnum sem ná út fyrir veggi skólans og hvað þá þegar unnið er til verðlauna.

LEIKFÉLAG VESTMANNAEYJA SETUR UPP
ROCKY HORROR Í LEIKSTJÓRN
ÁRNA GRÉTARS JÓHANNSSONAR
Leikfélag Vestmannaeyja stendur í ströngu þessa dagana við æfingar á næsta verki, Rocky Horror. Leikstjóri verksins er Árni Grétar Jóhannsson. Hann lauk B.A. gráðu í leikstjórn frá Rose Bruford College of Theatre and Performance í London árið 2010. Síðan þá hefur hann komið víða við og leikstýrt fjölda leiksýninga. Þar á meðal hér í Eyjum. Þrisvar áður hefur Leikfélag Vestmanneyja notið leikstjórn Árna. Það í verkunum, Benedikt Búálfur 2016, Klaufar og Kóngsdætur 2017 og Blúndur og blásýra árið 2019 sem er einmitt síðasta verkið sem hann leikstýrði. Tígull heyrði aðeins í kappanum og forvitnaðist um hann og hvað á daga hans hefur drifið síðan þá. „Ég er fæddur og uppalinn á Selfossi en á þó ættir að rekja til Vestmannaeyja. Bjó um tíma í London meðan ég menntaði mig. Bý núna í miðborg Reykjavíkur með manninum mínum, Leifi Erni og hundinum okkar Magnúsi Dreka,“ sagði Árni sem hefur ýmislegt bardúsars frá síðasta leikverki „Ég hef verið að reka skemmtistað, gifta fólk, leiðsegja ferðamönnum, bara allskonar skemmtilegt.“
Vísindaskáldskapssöngleikur með brjálæðislega skemmtilegri tónlist
Eins og fyrr segir æfir Leikfélagið nú Rocky Horror sem er þrælskemmtilegur Vísindaskáldskapssöngleikur með brjálæðislega skemmtilegri tónlist og karakterum sem eru stærri en lífið sjálft. Við fylgjumst með hinu fullkomna bandaríska pari sem villist af leið og endar í kastala geimverunnar Frank N Furter þar sem þau lenda heldur betur í ævintýrum, verða vitni að kraftaverkum og kynnast nýjum hliðum á sjálfum sér með óvæntum endi.
Aðspurður segir Árni æfingar ganga mjög vel. „Æfingarnar hafa gengið stórkostlega enda metnaðurinn í leikhópnum mikill, hljómsveitin þrusu þétt og söng-

ur og dansar í öruggum höndum hjá Jórunni og Ernu,“ sagði Árni og bætti við. „Leikfélag Vestmannaeyja er ofsalega heppið með aðstöðu og aðbúnað. Kvika er einstakt hús og metnaður félagsins í gegnum árin við að safna sér fyrir og koma sér upp góðum tækjabúnaði gerir það að verkum að það er hægt að láta allskonar
drauma rætast á sviðinu.“
Rocky Horror verður frumsýnt á Skírdag, fimmtudaginn 6. apríl og verður svo sýnt áfram nokkrar helgar þar á eftir. „Eyjafólk verður því að hafa hraðar hendur við að nálgast miða þegar opnað verður fyrir sölu,“ sagði Árni Grétar Jóhannsson,leikstjóri að lokum, fullur tilhlökkunnar.

SUMARAFLEYSINGAR Í ELDHÚS HSU Í VESTMANNAEYJUM
Helstu verkefni og ábyrgð
Spennandi starf í eldhúsi HSU í Vestmannaeyjum. Eldhúsið matreiðir mat fyrir sjúklinga, íbúa hjúkrunardeildar auk þess að sjá um mötuneyti starfsmanna.
Um er að ræða vaktavinnu. Vinnutími er frá kl. 07:00-15:00 og aðra hverja helgi.
Hæfniskröfur
• 18 ára aldurstakmark

• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 70-90%






Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023


Nánari upplýsingar veitir Bjarni Sigurðsson - bjarni.sigurdsson@hsu.is - 4322500
verður haldinn miðvikudaginn 15. mars 2023 kl. 19:30.
DAGSKRÁ FUNDARINS: - Venjuleg aðalfundarstörf- Önnur mál- Kaffi -
Hlökkum til að sjá sem flestar & nýjar konur velkomnar.
ÞAÐ SEM ER FRÍTT GETUR VERIÐ HEILMIKILS VIRÐI
Á tímum óðaverðbólgu eru tónleikar munaður sem kannski ekki allir geta leyft sér um hverja helgi. Síðustu tvær helgar hefur það þó ekki þurft að trufla nokkurn. Því síðustu tvo laugardaga hafa verið í boði tónleikar gestum að kostnaðarlausu.
Þýsk-íslenskur Jazz í Eldheimum Það voru hinir hálfíslensku jazzistar Lars Duppler, á píanó og Stefán Karl Schmid, sem lék á Saxófón og klarínett, sem riðu á vaðið laugardaginn 25. mars. Þeir félagarar eiga það sameiginlegt að eiga íslenskar mæður. Þeir eru margverðlaunaðir og eftirsóttir í þýsku jazzsenunni og buðu upp á dagskrá þar sem þeir sóttu innblástur í sínar íslenskar rætur. Á tónleikunum spiluðu þeir lög af hljómplötu sinni Hringferð sem, ásamt lögum eftir þá félaga, inniheldur túlkun þeirra á nokkrum ramm íslenskum lögum eins og Númarímum, Heyr himna smiður og Sveitin milli sanda. Stórkostleg upplifun sem mikið fleiri misstu af en fengu að njóta.


Lúðrasveita samkurl í Kviku Síðastliðinn laugardag öttu saman
hestum sínum tvær lúðrasveitir í Kviku og buðu Eyjamönnum að njóta. Þar voru á ferðinni Lúðrasveit Vestmannaeyja ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur. Sveitirnar buðu uppá afbragðs skemmtun með fjölbreyttu lagaval samansettu af íslenskum dægurlögum. Þar mátti heyra lög eins og Garún, syrpu af lögum með Grýlunum
og fleiri gömul og góð. Það var líka skemmtilegt þegar Jarl Sigurgeirsson stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja kynnti eina Eyjalag kvöldsins, lagið Color Decay með Júníusi Meyvant. Það má nefninlega alveg spyrja sig, hvenær verður lag Eyjalag?
Frábært framtak, takk fyrir mig.
Hinir hálfíslensku jazzistar Lars Duppler og Stefán Karl Schmid í Eldheimum. Félagar úr Lúðrasveitum Vestmannaeyja og Reykjavíkur í Kviku á laugardaginn.PIZZUTILBOÐ
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.590 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 6.290 kr. ]
9” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.290 kr. ]
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.090 kr. ]
12” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.790 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.790 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum [ 3.390 kr. ]
TVENNUTILBOÐ
Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir [ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]
OPIÐ Mán-fim 17-21
og lau 12-22 Sun 12-21
„I want someone to look at me the way I look at pizza”



FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR VIÐ EINU FLOTTASTA
HLAUPI LANDSINS, THE PUFFIN RUN
Ekkert lát virðist á vinsældum
The Puffin Run. Þrátt fyrir að hafa fjölgað þátttakendum úr þúsund í tólfhundruð er orðið uppselt í hlaupið og komast færri að en vilja. Það er kannski engin furða enda hlaupahringurinn einstakur og náttúrufegurðin ólýsanleg allt hlaupið. Af 1200 ætla sér 1000 manns að hlaup heilan hring sem telur alls 20 km.
Tígull heyrði í Kötu Laufey sem er ein af skipuleggjendum hlaupsins. „Við erum rosalega þakklát öllum sem koma ár eftir ár og hlaupa með okkur. Þetta er eitt stórt
partý, allir brosa allan hringinn og koma svífandi á bleiku skýi í mark. Þetta er klárlega skemmtilegasta verkefni ársins, Við hlökkum mikið til að taka á móti hlaupurnum í ár,“ sagði Kata sem vildi nota tækifærið og minna hlaupara af fastalandinu á að bóka sér far með Herjólfi sem fyrst. „Það borgar sig ekkert að draga það ef þú vilt vera viss um að komast þegar þér hentar.,“ sagði Kata.
The Puffin Run fer fram laugardaginn 6. maí næstkomandi. Eins og fyrr segir er von á 1200 hlaupurum til Eyja og ljóst að

þörf er á mikið af starfsfólki til þess að hlaupið og skipulagið í kringum það gangi sem best fyrir sig. „Já, þetta gengi aldrei upp ef ekki væri fyrir þá fjölmörgu sjálboðaliða sem koma að þessu. Þar er alltaf pláss fyrir fleiri og um að gera að hafa samband ef þú vilt leggja okkur lið,“ sagði Kata að lokum. Þess má líka geta að allir sem koma að hlaupinu gera það í sjálfboðavinnu og er rétt að hrósa þeim og þakka fyrir framtakið. The Puffin Run er enn einn árlegi viðburðurinn í Eyjum sem dafnar og stækkar og fyrirtæki og þjónustuaðilar í Eyjum njóta góðs af.
Opnunartímar:
Mánudagur - lokað
Þriðjudagur - 13.00 til 17.30



Miðvikudagur - 13.00 til 17.30
Fimmtudagur - 13.00 til 17.30






Föstudagur - 13.00 til 17.30
Laugardagur - 12.00 til 15.00
Sunnudagur - lokað
Fermingarmyndir




Hægt er að kaupa miða og velja sæti á www.eyjabio.is


FÖSTUDAGUR 10. MARS



KL. 20.00
LAUGARDAGUR 11. MARS
KL. 15.00
SUNNUDAGUR 12. MARS


KL. 15.00
KL. 20.00
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi,
ÓLI ÁGÚST ÓLAFSSON FOLDAHRAUN 41, VESTMANNAEYJUM ÁÐUR VATNSKOTI ÞYKKVABÆ
Verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju Þykkvabæ föstudaginn 17. mars kl. 14:00.

Sigurveig Andersen
Rósa Emilía Óladóttir
Ólafur Bjarni Ólason
Sigrún Óladóttir
Jóhannes Ólason
Gunnar Ársælsson
Eydís Ásgeirsdóttir
Árni Þorbergsson

Þórdís María Viðarsdóttir
stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn


Viltu minnast
látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Kæru ættingjar og vinir! Þökkum þá samúð og hlýju sem þið sýnduð okkur við fráfall og útför okkar elskulega föður, tengdaföður, afa og langafa
INGÓLFS ÞÓRARINSSONAR FJÓLUGÖTU 4, VESTMANNAEYJUM


Sérstakar þakkir færum við Hjalta lækni, starfsfólki HSU Vestmannaeyjum, séra Viðari Stefánssyni og öðru starfsfólki Landakirkju.
Megi minningin um góðan mann lifa.
Sigurjón Ingi Ingólfsson

Þórarinn Ingólfsson

Gunnar Örn Ingólfsson
Sigurrós Sverrisdóttir
Anna Guðmundsdóttir
Helga Barðadóttir
barnabörn og langafabörn.
Prentum sálmaskrár
Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.
Hægt er kíkja við hjá okkur á Vestmannabraut 38 og sjá sýnishorn af því sem við erum með í boði.
Hægt er að hafa samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Framtalið þitt er opið til staðfestingar á skattur.is
Skilafrestur er til 14. mars
Símaþjónusta í 442-1414
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Pantaðu símtal
Hægt er að panta símtal í 442-1414
og við hringjum til baka
Sendu okkur tölvupóst
Þú getur líka sent okkur tölvupóst á póstfangið framtal@skatturinn.is
Ekki er unnt að veita framtalsaðstoð á starfsstöðvum Skattsins
Áríðandi er að yfirfara upplýsingarnar á framtalinu