Skip to main content

Tígull 07. tbl 06. árg.

Page 1

07. tbl. 06. árg. 21. - 28. febrúar 2023

LET

U

RS

F TO

5

A

T & N

A ÁR

!

L ÍGU

L


LETURSTOFAN & TÍGULL 5 ÁRA Í FEBRÚAR Tígull vikunnar markar ákveðin tímamót hjá Leturstofunni en í gær, þriðjudaginn 20, febrúar, voru fimm ár frá því að Tígull kom fyrst út. Blöðin eru orðin vel á þriðja hundrað og halda áfram að þróast og dafna. Það sama á við um Leturstofuna sem sífellt tekur á sig ný verkefni. Í ár tókum við upp á því að dreifa sjálf Tígli undir merkjum Eyjadreifingar og dreifum við í leiðinni ýmsum fjölpósti á öll heimili í Vestmannaeyjum. Með þeirri þjónustu fjölgaði heldur betur á launaskrá hjá Leturstofunni og eru launþegar nú orðnir 16 talsins. Leturstofan annast umbrot og auglýsingasölu í ýmis tímarit og blöð víðsvegar um landið. Þessa dagana vorum við t.a.m. að leggja lokahönd á afsláttarbók Landsambands eldri borgara. Þá setjum við upp og seljum auglýsingar í Sjómannablaðið Víking, Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja, Mótsblöð ÍBV og margt fleiri. Mörgum af þessum blöðum ritstýrum við einnig og er því svo komið að okkur vantar góða penna til liðs við okkur. Þannig að ef þú hefur gaman af skrifum eða vilt prufa að spreyti þig á blaðamennsku endilega vertu í sambandi við okkur. Á þessum tímamótum er okkur efst í huga þakklæti fyrir þær móttökur sem viðskiptavinir okkar og þið lesendur góðir hafið sýnt okkur. Þessar móttökur eru okkur hvatning til að halda áfram og bæta enn meira í. Takk fyrir okkur!

TÍGULL

Grein eftir Guðrúnu Erlingsdóttur sem birtist í Morgunblaðinu 2019

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


FYRIRTÆKJA- OG FJÖLSKYLDUMÓT ÆGIS Í BOCCIA 2024 Ægir, íþróttafélag fatlaðra, heldur skemmtilegt Fyrirtækja- og fjölskyldumót í boccia 2. mars næstkomandi. Mótið byrjar kl.12.30 og verður í gamla salnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Fyrirtæki, fjölskylda eða félagasamtök þurfa að tefla fram 3 leikmönnum og er kostnaðinum haldið í lágmarki. Það kostar 10.000kr að skrá sig og ef að það eru skráð fleiri en 3 lið þá gefum er gefinn afsláttur. „Hugmyndin á bakvið mótið var fengin að láni frá íþróttafélaginu Nes í Reykjanesbæ og var þetta ein af stærstu fjáröflunum félagsins,“ sagði Kristín Ósk Óskarsdóttir. „Fyrsta mótið var haldið árið 2011 þannig að við eigum ansi langa og farsæla sögu í þessum bransa. Það var oft mjög mikill metnaður hjá sumum liðum og mikið keppnisskap í gangi. Ásamt því hvað það er mikill heiður að lyfta Fyrirtækjamótsbikarnum og hafa því montréttinn í heilt ár! Sigurvegarar fyrsta mótsins voru meistararnir í Olís, þá störfuðu Sæmi og Siggi Sveins þar og voru jú með aðstoðarmanninn Anton (sem að vann alltaf í Olís á laugardögum). Anton er nokkuð lunkinn leikmaður og ákváðum við að krydda aðeins uppí móti þessa árs þar sem hægt verður að kaupa sér iðkenda inn í liðið. Þetta hefur vakið mikla lukku og hafa nú þegar 2 lið tryggt sér liðsmann úr Ægi í sitt lið. Eins og áður hefur komið fram að þá var þetta ein af stærri fjáröflunum félagsins og þegar að við sameinuðum þetta með margrómaða Ægis kökubasarnum þá varð þetta einn af dásamlegustu dögum ársins. Það sem gerir þetta jú extra skemmtilegt er að okkar besta fólk bregður sér í dómarastöður. Þannig að á dögum sem þessum þá finna þau mátt sinn margfald-

lega. Við bættum svo líka á sínum tíma við búningakeppni og var það algjörlega keppnis, það voru veitt verðlaun fyrir frumlegasta og flottasta búninginn. Það sem var líka vel heppnað er að raða fyrirtækjum saman uppá ákveðna samkeppni. Við unnum t.d með að láta Íslandsbanka og Sparisjóðinn (sem var og hét) etja kappi, tryggingarfélögin háðu einnig baráttur og setti þetta oft mikinn svip á mótin þar sem samkeppnin var gríðarleg. Boccia er virkilega krefjandi íþrótt og finnst okkur

mikilvægt að fólk átti sig á hversu góðir iðkendur Ægis eru í þessari skemmtilegu íþrótt. Við skorum því hér með á ykkur að taka þátt og gera þennann frábæra dag eftirminnilegan með okkur.“ Ertu maður eða mús? Allir að skrá sig og láta gott af sér leiða í leiðinni. Allar skráningar fara í gegnum Kristínu Ósk Óskarsdóttur. Hægt að senda skilaboð á Facebook, hringja í 894-1731 eða senda tölvupóst á bubsy@simnet.is.


ÖSKUDAGURINN Á LETURSTOFUNNI Það var líf og fjör á Öskudaginn sem var miðvikudaginn í síðustu viku. Börn um allan bæ að syngja og fá nammi í poka. Heyrst hefur að fullorðna fólkið hafi ekki látið sitt eftir liggja hvað búningana varðar og margir mætt skrautlega til fara í vinnuna þann morguninn - um að gera að taka þátt í þessu með börnunum og hafa svolítið gaman af þessu öllu saman. Leturstofan fékk margar heimsóknir og fengum við að smella mynd af þeim sem kíktu við.


Nýtt verkefni hjá Lionsklúbbi Vestmannaeyja ,, KARLAR Í SKÚRUM ,,

Steindór Guðjónssong og Sigmar Georgsson.

Klúbburinn er farinn af stað með skemmtilegt verkefni fyrir karmenn 18 ára og eldri og vill reyna að ná til karlmanna sem ekki geta stundað almenna vinnu, eru búnir að minnka við sig vinnu eða komnir á eftirlaun. Oftast eru menn búnir að minnka við sig húsnæði og hafa þá ekki aðstöðu fyrir föndur eða þessa háttar. Þá myndast oft tómarúm og margir eiga erfitt með að finna sér einhverja rútínu eða verkefni til að geta gengið að og fengið félagsskap, Í haust var farið af stað með fjáröflun, sem hefur gengið mjög vel og var öllum fyrirtækjum í Vestmannaeyjum sent bréf þar sem óskað var eftir framlögum í verkefnið og markmið þess og tilgangur útskýrður. Tilgangurinn að auka lífsgæði gegnum handverk, tómstundir og samveru Karlar í skúrum er úrræði sem gefur karlmönnum stað og stund til

þess að hittast og vinna að sameiginlegum og eða eigin verkefnum á sínum eigin hraða. Markmið verkefnisins er að skapa aðstæður þar sem heilsa og vellíðan karla er höfð í fyrirrúmi og þeir geti haldið sér við líkamlega, andlega og félagslega. Megináhersla er lögð á vinnu í tré og hvers konar annað handverk og er tilgangurinn að auka lífsgæði gegnum handverk, tómstundir og ekki síst samveru. Vel tekið á móti okkur í Hafnarfirðinum Vestmannaeyjabær hefur útvegað rúmgott húsnæði undir verkefnið, þar sem við lionsmenn erum að fara í það verk að stúka niðurrýmið í vélasal, handverksrými, salerni og kaffistofu. Til að undirbúa okkur fyrir verkið fóru tveir klúbbfélagar í heimsókn til Hafnarfjarðar, þeir Sigmar Georgsson og Óskar Pétur Friðriks-

son. Óskar Pétur hafði meðferðis myndavélina og myndaði aðstöðuna, fyrirkomulagið og tækjabúnaðinn. Það var virkilega vel tekið á móti okkur að Helluhrauni 8 í Hafnarfirði og fengum við góða leiðsögn um húsnæðið og hvaða tækjabúnaður þarf að vera til staðar í upphafi og bæta síðan við eftir þörfum. ,, Í skúrnum ,, en reynt sé að skapa aðstæður fyrir allar hugmyndir Þetta er verkefni að erlendri fyrirmynd og snýst um að veita mönnum tækifæri til að sinna hugðarefnum sínum og um leið að koma í veg fyrir félagslega einangrun. Þeir sögðu stefnuna hjá þeim vera þá að menn gætu sinnt léttri trésmíði, útskurði, rennismíði, tálgun, hnífasmíði, skartgripasmíði, leðurvinnu og ljósmyndun ,, í skúrnum ,, en reynt sé að skapa aðstæður fyrir allar hugmyndir. Félagslegi þátturinn vegur þungt og þeir


sögðu einróma að kaffitíminn og spjallið væri stór ástæða til að mæta sem oftast, en opið er alla virka daga. Gjafir sem munu koma sér vel Kaffitíminn er heilagur hafði einhver þeirra að orði. Og að sjálfsögðu var okkur boðið í kaffið og spjallið. Við áttum góða stund í skúrnum og vorum leystir út með stórgjöfum við brottför. Fengum við pússivél og bandsög sem ritari karlana í skúrum, Steindór Guðjónsson afhenti Sigmari Georgssyni. Steindór hvatti okkur að endingu að kíkja í annan skúr á svæðinu og utan á honum var útskorið skilti sem á stóð ,, snúið og skorið,, snúið merkir fyrir rennivinnu og skorið fyrir útskurð. Og þarna var okkur einnig tekið af mikilli velvild. Örn Ragnarsson sýndi okkur aðstöðuna og fór yfir tækjabúnaðinn og sagði okkur sína sögu sem væri svipuð og hjá

flestum sem væru í þessu áhugamáli. Hann sagðist hafa farið í þetta til að búa sig undir starfslok og hafa þá eitthvað til að gera ogsinna þegar hann hætti að vinna.

Sagði hann alltof marga karla verða einmana eftir að hafa sinnt vinnunni frá a til ö fram að starfslokum og eina áhugamálið þar á eftir væri sjónvarpið. Sjálfur byrjaði hann í útskurði og fann sig ekki alveg í því og prufaði þá að fara í rennismíði og kolféll fyrir því algjörlega og keypti sér fljótlega rennibekk og rennir núna á hverjum degi alls konar hluti úr tré og það sama gera félagar hans í skúrnum. Hann gaf okkur við brottför glæsilega skál sem hann hafði nýlokið við og baust til að koma til Vestmannaeyja og kynna þessi verkefni fyrir Eyjamönnum okkur að kostnaðarlausu. Einnig bauðst hann til að hafa námskeið í rennismíði hjá okkur þegar verkefnið er farið af stað í Eyjum án þess að taka nokkuð fyrir. Það er ekki hægt að segja annað en þessi ferð til Hafnarfjarðar hafi verið til fjár og heilla fyrir verkefnið okkar og færum við öllum bestu kveðjur og þakklæti. Sigmar Georgsson Óskar Pétur Friðriksson


HLJÓMEY TÓNLISTARHÁTÍÐ Í STOFUNNI HEIMA Í VESTMANNAEYJUM – MIÐASALA HEFST Textarnir einlægir og lögin hans hreyfa við okkur öllum. KK kemur einn með gítarinn, segir sögur og syngur öll sín bestu lög á Hljómey þann 26. apríl nk. HIPSUMHAPS

Þann 26. apríl nk. verður haldin stórglæsileg tónlistarhátíð í Vestmannaeyjum í annað sinn. Þegar er búið að tilkynna 3 listamenn sem fram koma á hátíðinni og nóg eftir. Undirbúningur hefur verið í fullum gangi síðan síðasta Hljómey var haldin í apríl árið 2023. Verkefnið sjálft er óhagnaðardrifið samfélagsverkefni sem unnið er í samvinnu við Vestmannaeyjabæ, Herjólf, The Brothers Brewery, Hótel Vestmannaeyjar, Partýland og Westman Islands Inn. Setning hátíðarinnar verður fimmtudaginn 25. apríl, og sama kvöld verður árlegt Hljómey pub-quiz á Brothers Brewery. Föstudagskvöldið 26. apríl munu svo sjálfir tónleikarnir fara fram í stofum heimamanna víðsvegar um miðbæ Vestmannaeyja. Mikilvægt er að hafa í huga að mjög takmarkað magn miða verður í boði á hátíðina, þar sem húsrúm er takmarkað. Listamennirnir sem bætast við verða kynntir á næstu vikum á heimasíðu hátíðarinnar, www. hljomey.is og á Facebook síðu hátíðarinnar undir Hljómey og á instagram síðu hátíðarinnar og hvetjum við alla til að fylgjast vel með þar. Dagskráin verður svo birt þegar nær dregur hátíðinni sjálfri. Við kynnum leiks fyrstu þrjá listamenn hátíðarinnar:

GDRN

Einfaldlega stórkostlegt band. Hipsumhaps hlaut mikið lof fyrir plötuna Best gleymdu leyndarmálin sem að innihélt lög eins og Lífið sem mig langar í og Fyrsta ástin og gaf út plötuna Ást og praktík í lok síðasta árs. GDRN er stórkostlegur listamaður og það er mikill heiður fyrir okkur að fá að taka á móti henni í Eyjum. Hún tekur engan aukvisa með sér, en Magnús Jóhann, tónlistarstjóri Íslands ætlar að spila með henni. KK

Miðasala á Hljómey mun hefjast á föstudaginn 23. Febrúar nk. kl 10:00 á www.hljomey.is og á www.midix.is Nánari upplýsingar má fá á hljomeyehf@gmail.com KK er auðvitað löngu orðinn ódauðlegur í íslensku tónlistarlífi.


SKÁKÞING VESTMANNAEYJA 2024 Þegar að Tígull fór í prentun þá var áttunda umferð búin en sú níunda fór fram á þriðjudeginum 20. febrúar. Tvær frestaðar skákir voru eftir að tefla: Sæmundur - Sæþór Ingi úr 4. umferð og Benedikt - Hallgrímur úr 7. umferð en sú skák var tefld á mánudagskvöld. Spennan er heldur betur að magnast í mótinu þegar farið er að sjá fyrir endann á því.

Úrslit úr 8. umferð áttunda umferð:

úrslit

Hallgrímur

1-0

Ágúst Ómar

Gísli

1-0

Sæmundur

1-0

Guðgeir

/2 - /2

Sæþór Ingi

Þórarinn

0-1

Karl Gauti

Benedikt

1-0

Arnar Bogi

Sigurjón Arnar

1

1

Stigatafla: Benedikt Baldursson Arnar Sigurmundsson Hallgrímur Steinsson Sigurjón Þorkelsson Guðgeir Jónsson Sæþór Ingi Sæmundarson Ágúst Ómar Einarsson Karl Gauti Hjaltason Þórarinn Ingi Ólafsson Arnar Bogi Andersen Gísli Eiríksson Sæmundur Einarsson

6 5,5 5,5 5 5 4,5 4,5 1,5 1,5 1 0,5 0


ÞRAUTIR

EPLASAFI REIÐHJÓL SKENKUR

LEÐURJAKKI SKÓLATASKA RYKSUGA

MÁLVERK BINDI GLERFLASKA

STEINAR HANDKLÆÐI BLÓMAVASI


Er febrúar þinn skoðunarmánuður? Frumherji í Eyjum

vikuna 26. - 29. febrúar Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma

570 9090 Faxastígur 38

Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is

Vantar þig fyrirbæn?

Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is Viltu biðja með öðrum? Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum


ar k k o l i t n i m o k l e v ð i r Ve

a n i ll í Hö

Tryggið ykkur miða á viðburði Hallarinnar

tix.is/hollin

LAUGARDAGUR

Tónleikar með

24. FEB VALDIMAR

FÖSTUDAGUR

5. APRÍL FÖSTUDAGUR

31. MAÍ

NIRVANA TRIBUTE

HEIÐAR ÚR BOTNLEÐJU ÁSAMT HLJÓMSVEIT

NÝDÖNSK MIÐUM FER FÆKKANDI!

Miðasala hefst mánudaginn 26. febrúar

LÉTT

ÖL 2

.2 5 %


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 07. tbl 06. árg. by Leturstofan - Issuu