Myndirfrá öskudeginum máfinnainní blaðivikunnar!

Myndirfrá öskudeginum máfinnainní blaðivikunnar!
Hráefni:
250 g sykur
150 g smjör
3 egg
1/2 tsk lyftiduft
230 g hveiti
150 g suðusúkkulaði vel af kanilsykri
50 g suðusúkkulaði til skreytinga ca. 2 epli eða 1 stórt (ekki köld)
Aðferð:
Sykri og smjöri hrært saman. Eggjum bætt við. Þurrefnum blandað saman í sér skál og svo bætt við smjörblönduna.
Súkkulaði saxað niður. Epli skorið í þunnar sneiðar. Deginu smurt eins og þunnt og hægt er í botn formsins. (Hringlaga form 25-30 cm). Eplunum dreift yfir deigið. Kanilsykri stráð vel yfir - meira en þú heldur að þurfi.
Saxaða súkkulaðinu dreift yfir eplin og kanilsykrinum og svo restinu af deginu smurt yfir, best er að nota borðhníf til þess.
Bakast við 140° við blástur í 45-60 mín eða þangað til að bakan er orðin brún að ofan.
Gott að bera fram með rjóma eða vanilluís.
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Ekki fara fyrst að huga að gluggunum þegar veðrið er orðið gott, þá eiga nýju gluggarnir að vera komnir á staðinn! Afhendingartíminn getur verið allt að 3 mánuðir svo nú er tíminn til að mæla og panta!
Skanva hefur yfir 10 ára reynslu í Skandinavíu, þar sem gott og vandað gæðahandverk einkennir alla glugga og hurðir Skanva. Þar að auki eru Skanva gluggar og hurðir vottaðir og slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður.
gluggana í tæka tíð fyrir sumarið! Netklúbbur
Gildir aðeins t.o.m. 9/3
Starfsheiti: Aðstoðarmaður dýraverndar
Hvaðan ertu: Spáni
Hversu lengi hefur þú unnið á Beluga Whale Sanctuary: Ég flutti hingað í janúar 2022 og lenti beint í snjóstormunum, sem urðu til þess að ég varð ástfanginn af eyjunni. Ég er vetrarmanneskja.
Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér: Venjulega byrjum við daginn á að athuga hvort öll dýrin séu í lagi og eftir það fer ég venjulega í fiskieldhúsið að undirbúa fæðið. Svo er það góð morgunstund með hvölunum. Ég geri heildarlíkamspróf á mjöldrunum og athuga hvort þær séu heilbrigðar. Það er líka alltaf þriftími, ég byrja venjulega á að hreinsa sandsíurnar og meðan það er í gangi klára ég að þrífa eldhúsið. Klukkan 9 erum við með fund til að skipuleggja
verkefni dagsins og skipuleggja
þjálfunina sem við viljum gera á þessum degi. Við tökum venjulega stund með mjöldrunum, með hléum, á milli kl. 8 og 15 á daginn. Um kl. 15:00 byrjum við svo aftur að þrífa, gera djúphreinsun á eldhúsinu og allri dýraaðstöðunni áður en lagt er af stað heim.
Hver er uppáhaldsþátturinn þinn í starfinu: Að eyða tíma með hvölunum er einstakt. Ég nýt leikstundanna með þeim, því við sjáum að þær njóta félagsskapar okkar líka, í hvert skipti sem við göngum í gegnum aðstöðuna koma þær til okkar til að spjalla.
Hvert er uppáhaldsdýrið sem þú hefur unnið með: Nika, hún var suður-amerískt sæljón og hún hafði lent í mjög slæmri lífsreynslu áður fyrr svo hún var vön að bíta. Ég persónulega vann með henni í meira en ár daglega og við vorum orðin svo góðir vinir. Hún endaði á því að koma sjálfviljug til okkar í heilsufarsrannsóknir
sem hún hefði aldrei áður gert. Í dag er ég með hana húðflúraða á mér.
Kanntu eitthvað íslenskt orð: já já, takk fyrir, nei þetta reddast, góðan daginn.
Einhver skemmtileg staðreynd um mjaldra: Þeir eru einu hvalirnir sem geta tjáð sig með hálsbeinunum.
Starfsheiti: Sérfræðingur í dýravernd
Hvaðan ertu: Ég er frá Bandaríkjunum.
Hversu lengi hefur þú unnið á Beluga Whale Sanctuary : Ég hef unnið hér í 1 ár.
Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér: Dæmigerður dagur hjá mér felur í sér nokkra kaffibolla,
þó nokkuð af þrifum, hafa gaman með starfsfélögum mínum og að byggja upp gott samband við dýrin. Ég hef líka verið í þróunarvinnu með Frosta í Fab Lab til að gera umhverfi dýranna betra.
Hver er uppáhaldsþátturinn þinn í starfinu: Mér finnst ótrúlega gaman að fá að hanna og búa til ný þroskaleikföng fyrir dýrin.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt sem þú hefur unnið með: Atlantic Bottlenose Dolphins.
Kanntu eitthvað íslenskt orð: Þetta reddast.
Einhver skemmtileg staðreynd um
mjaldra: Mjaldrar geta synt aftur á bak með því að nota litlu hliðaruggana sína.
Minnum á að um páskana verður ratleikur um allt safnið fyrir krakkana þar sem þau leita að eggjum með dýranöfnum inn í. Og þegar búið er að finna öll dýrin fá þau verðlaun. Hlökkum til að sjá ykkur
á Beluga Whale Sanctuary.
Vissir þú að Litla Hvít og Litla Grá eru að hjálpa villtum náhvölum?
Litla Hvít og Litla Grá hjálpa til við að þróa frumgerð af merki sem verður notað til að safna upplýsingum um villta stofna náhvala og hegðun þeirra. Mjaldrar og náhvalir eru náskyldir og með því að safna gögnum frá Litlu Hvít og Litlu
Grá geta samstarfsaðilar okkar (Grønlands naturinstitut) þróað lokaafurðina.
Þetta er einföld sogskálahönnun sem festist við húð mjaldranna. Merkið safnar gögnum um stefnu, hraða, dýpt og líkamsstöðu í vatni, svo og bergmál, smelli og tíðni. Með þessari vöru geta vísindamenn sagt hvernig náhvalir bergmála bráð sína, umhverfi og hvern annan. Gögnunum er safnað eftir hverja merkjaþjálfun, hægt er á sjá myndband af þessu á Facebook síðunni okkar.
Merkið er líka mjög gagnlegt fyrir okkur, þar sem það greinir
hvers kyns mun á hegðun þeirra í innilauginni sem við getum síðan borið saman við hegðun þeirra þegar þær fara út í Klettsvík. Við hófum þetta samstarf á síðasta ári og erum mjög spennt að bera saman gögnin þegar stelpurnar fara aftur út í vor.
Svo minnum við á að við erum með opið á föstudögum og laugardögum frá kl. 13-16. Einnig bjóðum við uppá leiðsöguferðir alla daga vikunnar kl 14 þar sem starfsmenn okkar fara með ykkur í gegnum safnið og sýna m.a. frá því hvernig maturinn er útbúinn og lífið á safninu er. Árskort fyrir fullorðna kostar 3500 kr. Árskort fyrir börn kostar 2500 kr.
Svo er hægt að panta í bátsferðir út í Klettsvík, frá og með maí, á heimasíðunni okkar https:// belugasanctuary.sealifetrust. org/en/tickets/
FRÉTTAHORN FÍV
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og ÍBV hafa um árabil átt í samstarfi um íþróttaakademíu í fót- og handbolta. Akademían er hönnuð með það að markmiði að veita nemendum sem leggja stund á þessar íþróttir sem stefna á að komast í meistaradeildir og lengra, tækifæri til að taka íþróttina sem hluta af námi sínu við skólann. Námið er hannað til að veita nemendum tækifæri til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi, fá faglega þjálfun, þróa færni og íþróttahæfileika sína.
Í dag stundar 21 einstaklingur nám í akademíunni en það hallar á stelpurnar, þær eru einungis fjórar núna á vorönninni. Nemendur sem taka þátt í akademíunni fá sérhæfða þjálfun frá reyndum þjálfurum og fá enn frekara tækifæri til að þróa íþróttahæfileika sína. Nemendur í akademíunni eiga það sammerkt að vera mjög skipulagðir, það eru þeir sem mæta á æfingar áður en hefðbundinn skóladagur hefst og enda vikuna á fyrirlestrum, þegar aðrir nemendur eru komnir í helgarleyfi. Samstarf FÍV og ÍBV hefur skilað töluverðum árangri. Margir nem-
endur sem hafa tekið þátt í akademíunni hafa haldið áfram að spila og eigum við einstaklinga sem spila með atvinnuíþróttaliðum erlendis, nemendur hafa fengið námstilboð frá erlendum háskólum með því skilyrði að spila fyrir viðkomandi skóla og landsliðsmönnunum sem hafa tekið akademíuna er alltaf að fjölga. Nemendur sem sótt hafa akademíuna hafa lýst mikilli ánægju með námið sem þar fer fram og það er dýrmæt að geta haft það sem hluta af þeirri námskrá sem þeir taka.
Íþróttanámið sem skólinn býður upp á samstarfi við ÍBV er frábært tækifæri fyrir nemendur sem hafa mikinn áhuga á fót- og handbolta. Skólinn hefur einnig starfrækt akademíu í samstarfi við Golfklúbb Vestmannaeyja og önnur félög innan ÍBV hafa sýnt áhuga á að starfrækja akademíur. Til að koma á móts við íþróttaáhuga nemenda verður frá og með næsta hausti boðið upp á sértækt íþróttasvið til stúdentsprófs innan skólans. Við erum meðvituð um þau jákvæðu áhrif sem íþróttir gera haft á líf
Þarð var líf og fjör á Leturstofunni þegar að börnin kíktu í heimsókn á öskudaginn. Teknar voru myndir af öllum þeim sem kíktu á okkur og munum við birta þær allar á vefnum okkar um helgina. www.tigull.is
Skákþingi Vestmannaeyja 2023 sem greint hefur verið frá í Tígli lauk 23 febrúar sl. Keppendur voru 10 og tefldar 9 umferðir og fór mótið fram í skákheimili TV að Heiðarvegi 9.
Umhugsunartími á skák var 60 mín. á keppanda + 30 sek fyrir hvern leik. Tók hver skák yfirleitt 2-3 klst. Keppendur voru á öllum aldri og 65 ára aldursmunur á þeim yngsta og elsta.
Skákstjóri var Sæmundur Einarsson, en hann býr yfir góðri reynslu og verið skákstjóri á fjölmennum Íslandsmótum skákfélaga.
Sigurjón Þorkelsson varð Skákmeistari Vestmannaeyja 2023 og hlaut 8,5 vinninga úr 9 skákum sem er mjög góður árangur. Í öðru sæti varð Hallgrímur Steinsson með 6,5 vinninga, í 3ja sæti varð Arnar Sigurmundsson með 5,5 vinninga og í 4.-5 sæti með 5 vinninga voru Sæmundur Einarsson og Hrafn Oddsson. Hallgrímur Steinsson var Skákmeistari Vm. 2022.
Sigurjón Þorkelsson hefur unnið Skákþing Vestmannaeyja í alls 16 skipti frá 1986 -2023. Sigurjón er stigahæstur skákmanna í Eyjum og
Hallgrímur Steinsson næst stigahæstur. Sæþór Ingi Sæmundarson 14 ára sem varð í 6-7 sæti ásamt Þórarni Inga Ólafssyni hækkaði mest á stigum á skákþinginu, en hann er mjög vaxandi skákmaður.
Framundan hjá Taflfélaginu er Íslandsmót skákfélaga 2022-2023 síðari hluti sem fram fer í Fjölnishöllinni í Grafarvogi helgina 18. - 19. mars nk. Er þar teflt í úrvalsdeild og 1. - 4. deild.
TV er með þrjár sex manna skáksveitir sem tefla í 1., 3. og 4. deild og keppa 20-25 manns fyrir félagið á seinnihluta mótsins. Íslandsmót skákfélaga er mjög fjölmennt og eru keppendur vel yfir 300 talsins. Eftir fyrrihlutann er sveit TV í 1. deild , í öðru sæti af átta, í 3ju deild í fimmta sæti af átta og í 4. deild í 10. sæti af 16 sveitum. Í fyrrihluta mótsins voru fjórar umferðir og verða þrjár í seinni hluta þess og þar ráðast úrslitin. Félagar í TV eru ýmist búsettir í Eyjum eða uppi á landi og hafa margir þeirra sem þar búa komið áður við sögu í starfsemi félagsins.
Sigurjón með bikarinn Nokkrir af keppendum í mótslok, Guðgeir, Sigurjón, Hallgrímur, Sæmundur, Arnar og Hrafn.Tígull
Sigurjóni til hamingju með
Taflfélagið er með skákkennslu fyrir ungmenni í GRV í skákheimili TV að Heiðarvegi 9.
Skákkennsla er á eftirfarandi tímum: mánudögum kl. 17:30 - 18:30 og fimmtudögum kl. 17:30 - 18:30.
Leiðbeinendur eru Sæmundur Einarsson og Guðgeir Jónsson og þeim til aðstoðar er Sæþór Ingi. Auk þess eru haldin reglulega skákmót fyrir nemendur sem auglýst eru sérstaklega. Vinnslustöðin hefur styrkt skákkennsluna mjög myndarlega. TV er með síðu á Facebook. Skákæfingar ungmenna í Vestmannaeyjum. Grunnskóli Vestmannaeyja er einnig með skákkennslu í nokkrum bekkjardeildum og spilar þetta vel saman.
Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.
Hægt er kíkja við hjá okkur á Vestmannabraut 38 og sjá sýnishorn af því sem við erum með í boði.
Hægt er að hafa samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, afa og langafa
SIGURÐAR GEORGSSONAR
Skipstjóra
Guðný Fríða Einarsdóttir
Jón Ingi Sigurðsson
Sigurbára Sigurðardóttir
Adda Jóhanna Sigurðardóttir
Vigdís Sigurðardóttir
Lilja Sigurðardóttir
Elísabet Hrönn Pálmadóttir
Óskar Friðbjörnsson
Magnús Bragason
Erlingur Birgir Richardsson
Rúnar Hjartarson
barnabörn og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi,
ÓLI ÁGÚST ÓLAFSSON FOLDAHRAUN 41, VESTMANNAEYJUM
Lést laugardaginn 18. febrúar á Gran Canaria. Útför auglýst síðar.
fyrir hönd aðstandenda
Sigurveig Andersen
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Þriðjudaginn 7. mars kl. 14
í Silfurbergi í Hörpu Skráning á landsvirkjun.is
Ávörp Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Landsvirkjunar
Erindi Hörður Arnarson forstjóri
Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri
Rafnar Lárusson framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni
Tinna Traustadóttir framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu