Skip to main content

Tígull 07.tbl 02árg.

Page 1

07. tbl. 02. árg. 19. - 25. febrúar 2020 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

1 árs

Bolludagurinn 24. febrúar Klassískar ger- og vatnsdeigsbollur. After eight, saltkaramellu, bláberja, jarðarberja, oreo, núggat súkkulaði o.fl

Opið alla daga vikunnar

06:00 - 19:00

Strandvegur 30

481 1104


Sigurður Arnar

Róbert Aron

Kynning á leikmönnum meistarflokks karla Nafn & aldur: Róbert Aron, 20 ára

Nafn og aldur: Sigurður Arnar Magnússon, 20 ára

Fjölskylda: Eysteinn Gunnarson og Íris Róbertsdóttir, systkini mín eru Gunnar Ingi og Júnía

Fjölskylda: Magnús Sigurðsson og Ester Sigríður Helgadóttir. Svo á ég tvö yngri systkini þau Rögnu Söru og Heiðmar Þór

Staða á vellinum: Ég er miðjumaður Hver eru þín helstu áhugamál? Flest allar íþróttir. Hvernig líst þér á hópinn fyrir sumarið? Mér líst bara helvíti vel á hópinn í ár, góð blanda af mörgum ungum leikmönnum ásamt nokkrum reynslumiklum. Uppáhalds þættir? Suits og Prison Break Uppáhalds matur? Allur ítalskur matur. Uppáhalds tónlist? Get hlustað á flest alla tónlist en það fer eftir skapi hvað maður hlustar á.

Staða á vellinum: Miðvörður Hver eru þín helstu áhugamál? Íþróttir og að ferðast á framandi staði. Hvernig líst þér á hópinn fyrir sumarið? Mér líst mjög vel á hópinn, stemningin inni í klefa er frábær og við höfum verið að ná vel saman inná velli. Uppáhalds þættir? Survivor er í miklu uppáhaldi en Prison Break eru þeir bestu frá upphafi. Uppáhalds tónlist? Er mikill talsmaður íslenskrar tónlistar, hvort sem það er það sem er að koma út í dag eða gömlu góðu. Svo koma eyjalögin sterk inn þegar fer að líða á sumarið.


g i n n i e ú n r e 4 L A P KO m u t i l i r k k e d í g e l n fáa KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


Tígull 1 árs Fyrsta tölublað Tíguls gáfum við út þann 20. febrúar 2019 og eigum við því eins árs afmæli næstkomandi fimmtudag 20.02.20. Á þessu fyrsta ári okkur hefur tíminn flogið áfram og þetta búið að vera rosalegt ár fyrir okkur. Fjölbreytt, krefjandi, erfitt, lærdómsríkt, of mikið að gera en fyrst og fremst skemmtilegt. Meira er ekki hægt að biðja um. Vinnan okkar blandast saman við áhugamálin og það sem okkur finnst hvað skemmtilegast að gera, það finnst okkur forréttindi. Við höfum höfum lært meira á þessu eina ári en margra ára nám, það frábæra við þetta starf er að við lærum alla daga eitthvað nýtt. Við höfum kynnst allskonar flottu fólki bæði hérna á eyjunni og upp á fastalandinu. Við erum endalaust þakklátar ykkur öllum fyrir frábærar og jákvæðar viðtökur á okkar fyrsta ári.

Við sjáum svo sannarlega ekki eftir því að hafa hent okkur út í djúpu laugina fyrir ári síðan, vitandi að við værum svart og hvít í hegðun en smellum svona ljómandi vel saman og útkoman svona líka bara frábær. Við hlæjum oft að því að þau verkefni sem annari finnst leiðinleg finnst hinni skemmtileg og öfugt. Við gætum ekki verið án hvor annarrar í þessu verkefni okkar, það er bara þannig. Það eru forréttindi að vera í starfi sem maður elskar að gera, við erum afar þakklátar því. Afmæliskveðja, Kata Laufey & Lind


Afmæli

Hólmfríður 80 ára Hólmfríður Sigurðardóttir, einnig þekkt sem Fríða á Þrúðvang, einnig þekkt sem Beauty in the theater, verður 80 ára þann 24. febrúar. Foreldrar Hólmfríðar eru þau Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurður Ólason. Hólmfríður er gift Ragnari Jóhannessyni og eiga þau fimm börn, Ragnheiði Önnu, Lindu Kristínu, Sigurð Inga, Ragnar Þór og Zindra Frey. Barnabörnin og barnabarnabörnin eru fjölmörg. Fríða verður með opið hús á Hólagötu 34, laugardaginn 22. febrúar á milli 16:00-18:00. Þar tekur hún á móti gestum sem vilja fagna með henni á þessum tímamótum.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Hressó 25 ára - Ein af stoðum samfélagsins -

Það er ekki sjálfgefið í ekki stærra bæjarfélagi en Vestmannaeyjar eru að geta valið úr þegar kemur að líkamsrækt. Elst í dag er Íþróttamiðstöðin með æfinga- og tækjasali og frábæra sundlaug. Á eftir komu Týsheimilið og Þórsheimilið þar sem ýmislegt var í boði fyrir þá sem vildu svitna og taka á. Þannig var þetta þangað til fyrir 25 árum að þær systur, Anna Dóra og Jóhanna Jóhannsdætur ákveða að opna líkamsræktarstöð á annarri hæðinni í Vosbúð sem var í eigu fjölskyldunnar. Þær opnuðu Hressó með bravör í janúar 1995 og fagnar stöðin því 25 ára afmæli í ár. Þær hafa staðið við stjórnvölin síðan. Fengu reyndar Gilla Hjartar í lið með sér sem slysaðist þarna inn fyrir nokkrum árum og endaði í fanginu á Jóhönnu. Einkarekin líkamsrækt var ekki nýtt fyrirbrigði í Eyjum, Dúdda á Hól, Óla Heiða og fleiri vaskar konur buðu upp á leikfimi þar sem ég held að Jane Fonda hafi verið fyrirmyndin að ógleymdri kallaleikfiminni sem enn lifir. Flaggskip En þær systur komu inn af miklum krafti og buðu upp á líkamsræktarstöð sem er rekin allt árið með tækjasal og tímum þar sem flestir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi. Á þessum 25 árum hefur áhugi á líkamsrækt vaxið og fleiri aðilar komið inn en flaggskipið er Hressó sem hefur vaxið og dafnað á þessum aldarfjórðungi sem liðinn er frá stofnun stöðvarinnar.

Það er með þennan sem þetta skrifar eins og Gilla, að hann byrjaði fyrir slysni á Hressó í apríl 1995, í ekki alltof góðu standi. Þá voru snillingar eins og Smári Harðar, Gyða Arnórs að ógleymdri Jóhönnu með tíma sem fengu karlinn til að svitna svo um munaði. Og síðan hefur margur svitadropinn fallið og sambandið við Hressó hefur eflst með hverju árinu. Þá var slegist um plássin Þegar litið er til baka rifjast margt upp, eins og airobictímar þar sem hver átti sinn stað í salnum. Endaði stundum með slagsmálum hjá konunum ef einhver þeirra vogaði sér að fara inn á svæði annarrar. Það var tekið á og mikið hopp og ekki var þetta létt. Með stjörnur fyrir augunum, í andnauð og púlsinn í toppi var ekki séns að gefast upp með glæsikonur á allar hliðar. Ekki bætti úr þegar konan við hliðina var komin sjö mánuði á leið og kennarinn átta. Uppgjöf var ekki inni í myndinni. Þú varðst að standa þig og brosa í gegnum tárin. Haninn sem féll Hjólatímar í litla herberginu í suðausturhorninu á neðstu hæðinni eru líka eftirminnilegir. Mætt klukkan sex á morgnana og ég, eins og stundum, einn með konum. Leið pínu eins og hana í hænsnahópi en sú


tilfinning hvarf þegar yngri menn slógust í hópinn. Þá var maður fljótur að detta niður virðingarstigann hjá þessum elskum. Það hefur verið stefnan hjá Hressó alla tíð að bjóða upp á fjölbreytta tíma þar sem fylgt er nýjustu straumum og stefnum í líkamsrækt. Ég hef komið mér upp ákveðnu prógrami sem eru tímar í hádeginu þrisvar í viku og svo fyrir hádegi á laugardögum. Allt í föstum skorðum en ég hef stundum lent í ýmsu eins og Buttlift og Core. Hélt þetta vera léttar lyftingar og mætti óhræddur eins og alltaf. En það runnu á mig tvær grímur þegar ég var mættur í fullan sal af konum sem voru þarna komnar til að lyfta og hressa upp á rassinn. Þarna blöstu við mér 40 til 50 rasskinnar, allar flottar og til í slaginn og ég kallinn með mínar tvær. Allt slapp þetta en fleiri hafa Buttlift og Core tímarnir ekki orðið hjá mér. Jóhanna Birgis, vinkona mín mikil, skoraði á mig að mæta í Zumbatíma hjá Dagmar. Það var eins og ég vissi, Dagmar er frábær kennari en við Zumba eigum ekki samleið. Sem er einmitt málið hjá Hressó, þú getur valið og fundið prógram sem hentar. Að ætla sér ekki um of Það er viss áfangi að ná því að verða fimmtugur, sextugur og sjötugur á Hressó. Kannski sá fyrsti en vonandi ekki sá síðasti. Steini í Bankanum, sem var

mikill áhugamaður um líkamsrækt og hreyfingu almennt sagði einu sinni við mig; - það er mikill munur á milli þess að hlaupa tíu kílómetra á dag og gera ekki neitt. Eitthvað sem gott er að hafa í huga þegar aldurinn færist yfir, að ætla sér ekki um of. Vera þakklátur fyrir það sem maður getur og vera ekki að velta sér upp úr því sem ekki er hægt. Þakklæti Þá er það hin hliðin og ekki sú sísta, það er félagsskapurinn og fólkið sem maður hefði ekki kynnst annars. Hressó er ekki bara líkamsræktarstöð heldur líka félagsmiðstöð þar sem fólk kynnist, hittist og spjallar. Eitthvað sem maður kann betur að meta með hærri aldri. Ég mun alltaf líta til Önnu Dóru, Jóhönnu og Gilla með þakklæti og líka allra kennarana sem hafa hvatt fólk til dáða. Allt fólk sem hefur ástríðu fyrir því sem það er að gera og alltaf tilbúið að leiðbeina. Stöðin hefur líka stækkað og fjölbreytni aukist. Eitt að lokum; Hressó er ein af stoðum samfélagsins og megi stöðin lifa sem lengst. Það eru forréttindi að fá að fagna með þeim 25 ára afmælinu en ég lofa ekki að vera enn að þegar Hressó fylllir 50 árin. En Hver veit? Kv. Ómar


Sjá nwáwn.atrigull.is w

Viðburðir FIM

20 FEB

LAU

22 FEB

LAU

22 FEB

LAU

22

ADHD & EINELTI OPINN SPJALLFUNDUR

23

Safnaðarheimilinu kl. 11:30 - 15:00

23 FEB

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

19

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

FEB

ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ 16:00

FIM

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

20

ÁRSHÁTÍÐ HRESSÓ Í HÖLLINNI

Húsið opnar kl. 19:400

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

FEB

MÁN

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

24

KONUDAGSMESSA

Landakirkja kl. 14:00

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

FEB

ÞRI

ÍBV U - SELFOSS 66 GRILL DEILD KVENNA

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

25

ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ 14:00

MIÐ

19 FEB

MIÐ

19 FEB

MIÐ

ÍBV - STJARNAN OLÍSDEILD KVENNA

FEB

SUN

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

PÓLSKUR DAGUR / POLSKI DZIEN

FEB

SUN

Rauðagerði

Hamarsskóli kl. 20:00 - 22:00

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

FEB

MIÐ

19 FEB

MIÐ

19 FEB

FIM

20 FEB

MÁN

24 FEB

ÞRI

LAUGARDAGUR 22

LAUGARDAGUR

FEB

22

FEB

FEB

ÞRI

25 FEB

Íslenskt tal

kl. 15:00

SUNNUDAGUR 23

kl. 18:00

SUNNUDAGUR 23

FEB

FEB

SUNNUDAGUR 23 FEB

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00 SPILAVIST

Vinaminni/Kviku kl. 20:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

PÚTTMEISTARAMÓT

Vinaminni/Kviku kl. 13:00

VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

FRÍTT ER Í SUNDLAUG ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐVARINNAR FYRIR HEIMAFÓLK 67 ÁRA OG ELDRI. PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00 HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLLINNI ALLA DAGA KL. 08:00 - 12:00

Íslenskt tal

kl.15:00

25

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

kl. 18:00

kl. 21:00


Trjáklippingar

PÁLL ÓSKAR Í HÖLLINNI

Laugardaginn 22.febrúar Húsið opnar á miðnætti DJ veisla með Palla! Tryggðu þér miða, forsala í Tvistinum til 19.febrúar. 2.500 kr. Aðgangseyrir við inngang: 3.500 kr.


Nýja Þjónustumiðstöðin fékk nafnið Laufey

Nýja þjónustumiðstöð Eyjamanna við Þjóðveg 1 hefur fengið nafnið “Laufey – Welcome Center” Tígull heyrði í Eyjapeyjanum og verkefnastjóranum Sveini Waage. “Hugmyndin bak við nafnið og merkið er sú að Laufey verður græn orkustöð í hvívetna. “Ey” fannst okkur tilvalið fyrir veiðikofann okkar á stærstu eyjunni okkar og svo erum við á því að Laufey sé líka einstaklega huggulegt nafn”, segir Svenni sposkur við samnefndan ritstjóra Tíguls. “Þetta er búið að ganga mjög vel. Við höfum ekki enn hitt þann Eyjamann sem er ekki með okkur í liði og sér ekki hversu gríðarlega mikilvæg þessi aðstaða verður fyrir okkur öll. Bæði fyrir heimamenn en

ekki síst sem aðdráttarafl fyrir okkar einstöku Vestmannaeyjar. Við erum búin að funda nokkrum sinnum með hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu þ.á.m. Herjólfi og Ferðamálasamtökunum. Bæjarstjórn fær að fylgjast með öllu ásamt okkar öflugustu þingmönnum sem standa heilshugar við bakið á verkefninu, segir Svenni og bætir við “Nú verðum við að róa öll í sömu átt. Á meðan loðnan kemur og fer þá eru gríðarlega verðmæt “mið” á Suðurlandi sem við náum ekki til. Hótelin á Vík t.d. eru í 90-100% nýtingu yfir háveturinn. Ferðamenn streyma framhjá okkur óaðvitandi hversu sturlaður

viðkomustaður Eyjarnar okkar eru. Spurðu hvaða ferðamann sem er, sem kom til Eyja í sinni Íslandsför, hver hápunkturinn hafi verið? Það er aldrei spurning!” Aðspurður um fjármögnun segir Sveinn að hún sé kominn af stað og búið sé að brjóta ísinn. “Við erum að vinna með besta hugsanlega aðila núna sem mun gefa okkur mikið traust og kraft til að klára dæmið. Við vonumst til að fyrirtæki í Eyjum nýti sér forgang að verkefninu næstu vikur og þjónustumiðstöðin, og þar með landið sjálft, verði í meirihlutaeigu heimamanna og skráð í Eyjum með tilheyrandi tekjum fyrir samfélagið.”


Hér má sjá tölvumyndir af Þjónustumiðstöðinni Laufey – Welcome Center.

Búið er að fá öll tilskilin leyfi þ.á.m. byggingarleyfið og við það tilefni var þessi mynd tekin af glöðum sveini við Landeyjarhafnar afleggjarann.

HRAÐASMURNINGAR

Sértilboð á smurþjónustu dagana 17.–28. febrúar hjá Nethamar, viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. 20% afsláttur af olíu, síum, rúðuþurrkum, perum og fleiru.*

15% afsláttur af vinnu við smurningu.

Engin vandamál – bara lausnir

Vestmannaeyjar

*Olía, olíusíur, loftsíur, frjókornasíur, bensín- og hráolíusíur, þurrkublöð, þurrkugúmmí, perur, rúðuvökvi, frostlögur og Adblue (afsláttur gildir eingöngu með vinnusölu).


Kjötbollur með indverskum keim - Uppskrift vikunnar a la María Krista -

INNIHALD BOLLUR: 500 g nautahakk eða annað hakk að eigin vali 1 egg 1 msk möndlumjöl, fituskert t.d. í grænum pokum 1 tsk cumin malað, ég nota frá Kryddhúsinu 1/2 tsk chilli malaður , ég nota frá Kryddhúsinu 50 g rifinn ostur 1/2 tsk hvítlauksmauk eða2 geirar smátt skornir 1 tsk gróft sjávarsalt 2 msk fínt skorið kóríander, má sleppa ef þið fílið ekki kóríander AÐFERÐ: Setjið öll hráefni saman í skál. Notið hendurnar eða sleif til að blanda hakkinu vel saman við kryddin. Ég nota yfirleitt bara hendur og einnota gúmmíhanska. Mótið bollur og steikið á pönnu með olíu, ef þið eigið Airfryer þá set ég bollurnar í skúffuna og elda á 180° í ca 20 mín og hristi öðru hvoru upp í bollunum.

SÓSA: 250 ml vatn 1 súputeningur að eigin vali, nauta eða kjúklinga 1 msk karrý, veljið gott karrý t.d. Kryddhúsið 1 dl rjómi, mætti líka nota kókosmjólk eða möndlumjólk 2 msk ólífuolía 1/2 hvítlauksostur 1 tsk Fiber síróp gold, má sleppa en kom vel út AÐFERÐ: Hitið vatn og súputening, bætið svo við olíu, rifnum hvítlauksosti til að flýta fyrir eldun. Kryddið og látið suðuna koma upp. Sósan þykknar vel þegar osturinn er bráðnaður, þynnið þá með rjóma. Bragðbætið örlítið með sykurlausa sírópinu ef þið viljið. Salt og pipar eftir smekk. Það er snilld að bera þetta fram með blómkálsgrjónum og naan brauði.

NAAN BRAUÐ: 90 g kókoshveiti 10 g sesammjöl frá Funksjonell 1/2 tsk lyftiduft 2 eggjahvítur um 60 g 1 tsk salt 2 tsk maukaður hvítlaukur 15 g fínmalað husk 200-250 ml soðið vatn AÐFERÐ: Blandið þurrefnum saman og bætið svo eggjahvítum saman við. Pískið deigið þar til það er vel blandað og hellið soðnu vatni saman við þar til deigið er slétt og fellt og helst saman í kúlu Notið blauta fingur til að móta 6 kúlur úr deiginu. Fletjið út hverja kúlu með fingrum og steikið á vel heitri pönnu, það er mjög gott að setja smá smjör og hvítlauk á pönnuna Látið brauðin brúnast vel á hvorri hlið og takið til hliðar. Ef það þarf að hita þau upp er gott að skella þeim í ofn rétt áður en þau eru borin fram en þá fá þau enn stökkari áferð.


AÐALFUNDUR Aðalfundur Rauða Krossins í Vestmannaeyjum verður haldinn í Arnardranga húsi félagsins við Hilmisgötu mánudaginn 9.mars 2020 og hefst hann kl 20:00 Venjuleg aðalfundarstörf Fjóla Einarsdóttir svæðisfullrúi RKÍ á Suðurlandi kemur á fundinn. Kaffi og léttar veitingar Vestmannaeyingar, fjölmennið á fundinn. ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR RAUÐI KROSSINN Í VESTMANNAEYJUM

Orðarugl

JÚPITER MARS MERKÚRÍUS SATÚRNUS

TUNGL VENUS SÓL ÚRANUS NEPTÚNUS

PLÚTÓ


Tannlæknar 19. - 22. febrúar Hjalti Harðarsson 17. - 19. mars Hjalti Þórðarson

14. - 16. apríl Hjalti Harðarsson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F

Tímapantanir í síma 481-2772

Frá RKV

l

F

L

S

l l

/crispus

Frá VEY

l

Lent

7:15

7:40

15:45 16:10

l l l l l

772-6766 Heiðarvegur 9

Brottf.

l

11:30 11:55

l

17:30 17:55 8:00

l l

8:25

16:30 16:55

l l l l l l l

12:15 12:40 18:15 18:40

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

Saltkristalslampar Birtan er einstaklega hlýleg og falleg og er sögð hafa ýmiskonar jákvæð áhrif á líðan okkar og heilsu. Þegar kristallinn hitnar við ljós eða kerti gefur hann frá sér neikvæða jónun sem hefur hreinsandi áhrif á andrúmsloftið. Lamparnir fást í Leturstofunni.

Verð: stór 7.900 kr. litill 5.500 kr.


Frumherji verður í Eyjum vikuna 24. - 27. febrúar.

Aðalfundur

Tímapantanir í síma 570 9090

Fyrir starfsárið 2019

Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarsveitarfélagsins.

Golfklúbbs Vestmannaeyja Verður haldinn í Golfskálanum

Fimmtudaginn 20. febrúar 2020 kl. 20:00 Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál

Aðalfundur

Frumherji Faxastígur / 570 9231

vörurnar fást nú í

Krabbavarnar Vestmannaeyjum Miðvikudaginn 4.mars 2020 kl.19:30 í Arnardrangi Léttar veitingar

NÝJA TANNLÆKNASTOFAN Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 Opið á laugardögum


OPNUM FÖSTUDAGINN

21. FEBRÚAR

Borðapantanir og take away 4813060 #gottveitingastadur Bárustíg 11 900 Vestmannaeyjar

/gottrestautant 481-3060

www.gott.is

gott@gott.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 07.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu