06. tbl. 06. árg. 14. - 20. febrúar 2023
Þvottastöðin Löður í Vestmannaeyjum
Systurnar fögnuðu 80 ára afmælinu
Eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins
Bílaþvottastöðin Löður hefur nú opnað sína fyrstu þvottastöð í Vestmannaeyjum. Þú getur farið í áskrift og þá farið eins oft og þú vilt í mánuði að þrífa bílinn þinn.
Tvíburasysturnar Kristrún og Hildur Axelsdætur eru 80 ára. Þær fögnuðu tímamótunum ásamt nánustu fjölskyldu og vinum 10. febrúar síðastliðinn.
Leikfélag Vestmannaeyja er að vinna að nýju verki sem frumsýnt verður á Skírdag. Verkið er söngleikurinn Spamalot sem er skrifaður af Monty Python. Stefán Benedikt Vilhelmsson leikstýrir.
Á Leturstofunni bjóðum við upp á hönnun og umbrot á alls konar verkum. Auglýsingar / logo / sálmaskrár umbúðir / fréttabréf nafnspjöld / boðskort bæklinga / límmiða og allt sem þér dettur í hug. Vertu í sambandi við okkur og við förum yfir þetta í sameiningu. leturstofan@leturstofan.is
/leturstofan
/leturstofan
ROSALEGA ÁNÆGÐ MEÐ FRÁBÆR VIÐBRÖGÐ ÍBÚA Bílaþvottastöðin Löður hefur nú opnað sína fyrstu þvottastöð í Vestmannaeyjum. Í samtali við Hörð Inga Þórbjörnsson rekstrarog þjónustustjóra Löðurs sagði hann hugmyndina að koma með Löður til Vestmannaeyja hafi vaknað fyrir þó nokkru síðan. Seinkun hafi verið á henni vegna nokkurra þátta, eins og vatnsveitunni. „Okkur fannst ekki gáfulegt að fara að sóa fullt af vatni hér á meðan allir áttu að spara það,“ sagði Hörður í samtali við Tígul. „Uppbyggingin á húsinu hófst síðasta vor og var planið að opna stöðina í lok ágúst 2023. Það er mikil vatnsnotkun í þessum rekstri og við vildum ekki vera að koma til Eyja á skjön við það sem almannavarnir voru að ráðleggja fólki að spara vatn. Svo er þannig þegar maður er með nýtt hús þá þarf að bíða eftir allskonar leyfum og jú díla við frostið og annað.“ Hörður sagði þau vera mjög spennt að vera loksins búin að opna. „Við erum rosalega spennt að vera búin að opna í dag. En það en smá eftir, eins og malbika hér fyrir framan en það kemur í vor. Við erum rosalega ánægð með frábær viðbrögð íbúa sem hafa eingöngu verið jákvæð.“ Hörður sagði stöðina alveg sjálfvirka og því opna allan sólahringin. „Þú getur farið í áskrift og þá farið eins oft og þú vilt í mánuði að
TÍGULL
Ólafur Haukur stöðvarstjóri og Hörður rekstrar- og þjónustustjóri Löðurs.
þrífa bílinn þinn. Og ef þú ert með fleiri en einn bíl á heimilinu þá er 50% afsláttur á bíl númer tvö. Það eru í raun þrjár leiðir til að greiða. Sú fyrsta er þessi gamla góða með korti áður enn þú ferð með bílinn í gegn. Önnur leið er að nota appið hjá Löður og sú síðasta er að skrá bílnúmer inn í appið Parka og þá einfaldlega keyrir þú að og myndavélin les bílnúmerið og þú ert tilbúin í þvott. Einnig verður hægt að nota Orkulykilinn og nýta afslátt sem býðst með honum en sú tenging
er ekki enn virk. Við erum að vinna í henni.“ Til viðbótar við Löður stöðina hér í Eyjum gildir áskriftinn einnig í fimm stöðvum í höfuðborginni. Að lokum var Hörður með smá ábendingu til að fá sem best þrif í stöðinni yfir vetramánuðina. „Gott er að taka mesta snjóinn af bílnum áður enn þú ferð með bílinn inn í stöðina, þá nær vélin að þrífa bílinn betur.“
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
ÓLAFUR HAUKUR STÖÐVARSTJÓRI LÖÐURS Í EYJUM Stöðvarstjóri Löðurs í Vestmannaeyjum er Ólafur Haukur Hansen. Hann tók einnig þátt í því að reisa húsið. Við hentum á Óla nokkrum laufléttum spurningum til að kynnast honum aðeins betur. Nafn: Ólafur Haukur Hansen Fjölskylda: Sandra Gísladóttir, Dagbjört Ýr og Heiðbjört Líf og Lilja Rut fósturdóttir mín. Aldur: 41 Menntun: Blikksmiður Fæddur og uppalinn: 109 Seljahverfi Starf: Umsjónarmaður Löður í Eyjum og sjálfstætt starfandi blikksmiður í húsklæðningu og þökum. Áttu mörg systkini? 5 systkini og ég er nr. 2 í röðinni. Af hverju Vestmannaeyjar? Því ég kynnist ÍBV í handbolta 1998
Hvað finnst þér best við Vestmannaeyjar? Samstaðan og jákvæðnin. Þegar ég kaupi fyrsta húsið þá er allir tilbúnir að hjálpa hvort sem það sé helgi eða ekki. Flestir höfðu gaman að því að sjá eitthvað gerast í húsinu. Hefuru verið á þjóðhátíð? Já, fór fyrst árið 2001 á þjóðhátíð Eitthvað að lokum: Ótal margir hafa komið í heimsókn og spurt út í þvottastöðina. Fólk er allmennt jákvætt og spennt fyrir henni. Fjölskyldan; Sandra, Heiðbjört Líf, Dagbjört Margir komnir í áskrift og fer þeim Ýr, Ólafur Haukur og Lilja Rut fremst. ört fjölgandi. Til að mynda fóru og hélt ennþá sambandi, lang- 100L af tjöruhreinsir fyrsta daginn. aði í sumarhús í þorpi ekki sveit Á fimmtudaginn milli kl. 12 og 16 og keypti mína fyrstu eign 2015 ætla ég svo að vera í Tvistinum og í Eyjum, Háaskála. Ég kynnist svo aðstoða fólk við að setja inn appið Söndru Gísladóttur sumarið 2021 hjá sér. Þannig að endilega kíkið á og í ársbyrjun 2022 byrjum við að mig. hittast.
RENNDU VIÐ FIMMTUDAGINN 15. FEBRÚAR 12:00-16:00 VI Ð VER Ð UM Á S TA ÐN UM OG K YNN UM Á SK R IF TA RL EI ÐIR O G LÖ ÐU R A PPI Ð
SKANNAÐU QR KÓÐANN EÐA KÍKTU Á LÖÐUR.IS TIL AÐ KYNNA ÞÉR ÁSKRIFTARLEIÐIRNAR
SYSTURNAR FÖGNUÐU TÍMAMÓTUNUM ÁSAMT NÁNUSTU FJÖLSKYLDU OG VINUM Systurnar Kristrún og Hildur Axelsdætur eru 80 ára. Þær fögnuðu tímamótunum ásamt nánustu fjölskyldu og vinum 10. febrúar síðastliðinn. Hildur og Kristrún, oft kallaðar Lillurnar, fæddust í Vestmannaeyjum 12. febrúar 1944. Faðir þeirra var Axel Gunnlaugsson kaupmaður og móðir Sigurbjörg Magnúsdóttir, bæði úr Vestmannaeyjum. Systkini þeirra eru; Anna Dóra Axelsdóttir (f.12.081937, d.03.01.1953), Gunnlaugur Jón Ólafur Axelsson, framkvæmdastjóri (f.31.05.1940, d.16.10.2006), Magnús Ólafur Helgi Axelsson kennari, skrifstofumaður, (f. 08.06.1948.) Halldór Gunnlaugsson Axelsson framkvæmdastjóri, (f. 29.08.1952). Lillurnar ólust báðar upp á Sólvangi í Vestmannaeyjum til unglingsára. 16 ára fóru þær í Lýðháskóla í Danmörku. Þaðan fer Kristrún í iðnnám til Vestmanneyja og Hildur í húsmæðraskólann að Varmalandi. Þann 6.júní 1964 gengu þær báðar í hjónaband á Árbæjarkirkju, Hildur giftist Kristjáni Finnssyni og Kristrún giftist Sigmar Pálmasyni. Kristrún og Bói hafa búið i Vestmannaeyjum alla tíð síðan, fyrir utan nokkra mánuði í kringum Vestmannaeyjagosið 1973. Hildur og Kristján hófu búskap að Grjóteyri í Kjós og hafa búið þar síðan þar til nýlega þegar þau bjuggu sér annað heimili í Mosfellsbæ. Hildur og Kristján eiga saman 5 börn. Þau Rebekku f.6.maí 1963, Svanhvíti f. 30.október 1965, Sigurbjörgu f.18.maí 1967, Önnu Kristínu f. 3.maí 1973 og Finn Bjarna f.8.september 1977. Kristún og Bói eiga saman 4 börn. þau Pálma f.25.desember 1961, Unni Björgu f.17.sepember 1964, Berglindi 17.maí 1975 og Hildi 15.maí 1979. Afkomendur Hildar og Kristrúnar eru í heildina 54.
LIONSKLÚBBUR
VESTMANNAEYJA
20. FEBRÚAR NK. KL. 20.30 KYNNINGARFUNDUR ÞRIÐJUDAGINN Í ARNARDRANGI ANNAR HÆÐ. Við hvetjum alla karlmenn sem hafa áhuga á að kynna sé starfsemina hjá klúbbnum og skoða hvort þessi félagsskapur er ekki eitthvað sem hentar þeim.
Verkefnin eru margþætt og síðasta stórverkefnið var söfnun fyrir tækjabúnað fyrir nýju augnlæknastofuna á HSU og pallasmíðin við lundaskoðunarhúsið í Stórhöfða.
Fundir eru 2 sinnum í mánuði yfir vetrarmánuðina. Almennur félagsfundur og svo er fenginn fyrirlesari með fræðslu og hvað eina annað áhugavert fyrir hinn fundinn.
Verkefnin á þessu starfári er verkefni sem kallast ,, karlar í skúrum,, og er úrræði sem gefur karlmönnum stað og stund til þess að hittast og vinna að sameiginlegum og eða eigin verkefnum á sínum eigin hraða. Megin áhersla er lögð á vinnu í tré og hvers konar handverk og er tilgangurinn að auka lífsgæði gegnum handverk, tómstundir og ekki síst
Klúbbfélagar hafa farið í nokkra vor og haustferðir um landið og alltaf gist 2 nætur. Í senn.
samveru. Klúbburinn er að fara af stað við vinnu við að innrétta rúmgott húsnæði fyrir verkefnið og auglýsir um leið eftir notuðum hefilbekkjum, trésmíðavélum og handverkfærum Í vor er ráðgert að halda kynningarfund fyrir sykursjúka og kemur fólk frá félaginu Deabetes ,félag fólks með sykursýki á Íslandi og einnig verður Hjörtur Kristjánsson læknir með erindi.
Lionsklúbbur er skemmtilegur klúbbur og hentar mönnum á öllum aldri Lionsklúbbur Vestmannaeyja fagnar í ár 50 ára afmæli sínu. Stofndagur var 6. Apríl 1974 og voru stofnfélagar 31 og nú er verið að vinna í vönduðu afmælisriti sem kemur út í marslok
VESTMANNAEYJAR EIGA EITT ÖFLUGASTA ÁHUGALEIKFÉLAG LANDSINS Leikfélag Vestmannaeyja hefur verið að æfa af krafti undanfarnar vikur að nýju verki sem frumsýnt verður á Skírdag. Verkið er söngleikurinn Spamalot sem er skrifaður af Monty Python. Stefán Benedikt Vilhelmsson leikstýrir hópnum í Leikfélagi Vestmannaeyja. Stefán er fæddur árið 1980 og er frá Egilsstöðum en hann ólst upp á Fljótsdalshéraði. Foreldrar hans búa svo núorðið á Seyðisfirði sem hann kallar svolítið æskuslóðirnar líka þar sem hann á mikið af góðum minningum þaðan. Blaðamaður Tíguls fékk Benedikt í létt spjall. um. Svo sýningin er líklega ekki hönnuð fyrir undir 12 ára þó ég haldi nú að krakkar gætu alveg haft mjög gaman af þessu. Hefuru leikstýrt mörgum verkum? Ég hef leikstýrt vel á annan tug leiksýninga en leikstjórn er eitthvað sem mig langar mjög að geta gert meira af. Verkefnastaðan hefur þó verið þannig að ég get alls ekki gert jafn mikið af því og ég vildi. Spamalot verður held ég fimmtánda verkið sem ég leikstýri. Uppáhaldsverk sem þú hefur leikið í eða leikstýrt? Litla hryllingsbúðin á sérstakan stað í hjarta mínu þar sem ég hef leikstýrt þremur uppsetningum af henni. Og Litaland sem ég leikstýrði hjá Leikhópnum Lottu. Og svo er svona guilty pleasure uppáhald MEDÍA sem ég skrifaði með hópnum og leikstyrði hjá Stúdentaleikhúsinu. Medía er sæ-fæ verk sem gerist í framtíðarheimi um borð í geimskipinu Medíu. Og var sturlað skemmtilegt.
Stefán Benedikt Vilhelmsson
Fjölskylda: Eiginkonan Andrea Ösp Karlsdóttir, leikkona. Tvær dætur, þær Embla Steinvör og Iðunn Eldey. Starf / Menntun: Leikari með BFA gráðu frá Listaháskóla Íslands. Nokkur orð um það sem þú hefur verið að bardúsa fram til þessa? Stærstur hluti af mínum ferli hefur verið tileinkaður sjálfstæðum leikhópum og þá auðvitað langmest elsku Lottunni minni, en ég hef frá 2011 leikið og unnið með stórkostlegu fólki í Leikhópnum Lottu. Auk þess hef ég verið að leikstýra töluvert. Ég talset svo töluvert mikið af teiknimyndum og þáttum bæði hjá Myndform og Stúdíó Sýrlandi og hef lesið ca. 40 hljóðbækur fyrir Storytel. Til hverra nær leikritið Spamalot? Spamalot er söngleikur skrifaður af Monty Python genginu og sem slíkur fullur af fullorðins húmor og afar svörtum og klúrum bröndurum og orðfari á köfl-
Hvernig líst þér á Leikfélag Vestmannaeyja? Vestmannaeyjar eiga eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins. Ég þekki vel til þar sem ég hef leikstýrt hér tvisvar áður (Litla Hryllingsbúðin og Nei Ráðherra) og haldið hér námskeið og fleira. Það vita kannski ekki margir að ég kom hér um 2000-ish, þá rétt tvítugur og kenndi götuleikhús, eldblástur og stultugöngu. Og eignaðist marga góða vini frá eyjum. Þetta ætlaði félagið að nota á þjóðhátíð við að kveikja í brennu og ég held að þegar blysin voru tendruð hafi liðið blásið eld líka. Og þessu hefur verið haldið við að einhverju leyti sýnist mér hér síðan. Ég sá allavega stultur uppi í leikfélagi og það eru enn í félaginu einhverjir sem ég kenndi þá. Hvenær er frumsýningin? 28.mars - skírdag Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir? Geta stjórnað tímanum og raunverulega haft 48 tíma í sólarhringnum. Og aukavikuna sem mann langar alltaf í í leikhúsinu fyrir frumsýningu. Hvað færðu þér í morgunmat? Morgunkorn, brauð og kaffi eru svona helstu réttirnir.
Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið? Konan mín. Margborgaði sig. Hvaða leikari myndi leika þig í bíómynd um þig? Dætur mínar og konan mín myndu túlka mig og skipta því á milli sín. Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju? Tim Burton held ég að yrði fyrir valinu og við myndum ræða mikið um list og drekka mikið kaffi. Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju? Ég myndi fá valkvíða og enda á að googla alla áhugaverðustu tímana og persónurnar og vera mjög lengi að velja gaumgæfilega. Svo líklega ferðast aftur til þess tíma þegar ég var að byrja að googla og segja sjálfum mer hvað ég vildi og spara mér googlið. Hvaða smáforrit er ómissandi? Notes Eitthvað að lokum? Bara að ráðleggja öllum að mæta á SPAMALOT - sjáið Spamalot! Þetta verður sturlað fyndið og skemmtilegt.
SPORTSMAN'S PRIDE er gæludýra fóður og hefur það verið notað í áratugi af hundaræktendum og hundaeigendum um allan heim. Allt fóður frá SPORTSMAN'S PRIDE er verðlaunað með svokölluðu Omega Pride Skin & Coat System fyrir bestu heilsu og glansandi feld.
FRÍ HEIMSENDING Á ÞESSU FRÁBÆRA FÓÐRI
WWW.EYJADYR.IS
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á SKRIFUM? Leturstofan óskar eftir lausapennum til að skrifa og taka viðtöl í hin ýmsu blöð og tímarit sem Leturstofan annast útgáfu á. Menntun og hæfniskröfur: • Mjög gott vald á íslensku ritmáli. • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi • Þekking og áhugi á Suðurlandi og samfélaginu okkar í Eyjum. • Góð samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum. • Frumkvæði, drifkraftur og sköpunarkraftur. • Þekking á Wordpress vefumsjónarkerfi er kostur. • Auga fyrir ljósmyndun kostur. Nánari upplýsingar og umsóknir sendist á leturstofan@leturstofan.is Með mætti fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem viðkomandi geri grein fyrir reynslu sinni og hæfni til starfsins.
SKÁKÞING VESTMANNAEYJA
2024
Úrslit síðustu umferða
Skákþing Vestmannaeyja á sér áratuga langa sögu á vormánuðum hvers árs. Telft er um titilinn skákmeistari Vestmannaeyja og í ár eru 12 þátttakendur á öllum aldri. Sæmundur Einarsson er mótstjóri líkt og undanfarin ár en hann býr yfir góðri reynslu og verið skákstjóri á fjölmennum Íslandsmótum skákfélaga. Teflt tvisvar sinnum í viku í húsnæði Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9. Í fyrra var það Sigurjón Þorkelsson varð Skákmeistari Vestmannaeyja og hlaut 8,5 vinninga úr 9 skákum sem er mjög góður árangur. Í öðru sæti varð Hallgrímur Steinsson með 6,5 vinninga, í 3ja sæti varð Arnar Sigurmundsson með 5,5 vinninga.
Stigatafla: Benedikt Baldursson Arnar Sigurmundsson Hallgrímur Steinsson Ágúst Ómar Einarsson Sigurjón Þorkelsson Guðgeir Jónsson Sæþór Ingi Sæmundarson Þórarinn Ingi Ólafsson Arnar Bogi Andersen Karl Gauti Hjaltason Gísli Eiríksson Sæmundur Einarsson
fjórða umferð:
úrslit
Hallgrímur
1-0
Guðgeir
Sæmundur
Frestað
Sæþór Ingi
Ágúst Ómar
1-0
Karl Gauti
Gísli
0-1
Arnar Bogi
Sigurjón
0-1
Benedikt
Arnar
1-0
Þórarinn
fimmta umferð:
úrslit
Þórarinn
0-1
Hallgrímur
/2 - /2
Arnar
Arnar
0-1
Sigurjón
Karl Gauti
1-0
Gísli
Sæþór Ingi
Frestað
Ágúst Ómar
Guðgeir
Frestað
Sæmundur
sjötta umferð:
úrslit
Hallgrímur
1-0
Sæmundur
Ágúst Ómar
1-0
Guðgeir
Gísli
0-1
Sæþór Ingi
Sigurjón
Frestað
Karl Gauti
Arnar
1-0
Arnar Bogi
/2 - 1/2
Benedikt
Benedikt
5 4,5 4,5 3,5 3 2 2 1,5 1,5 1 0,5 0
Þórarinn
1
1
1
Okkar allra besta verð á rafmagni Komdu í viðskipti á orkusalan.is
ÞRAUTIR
AFMÆLI GAMAN SAMAN
FJÖR GLEÐI HITTINGUR
RÆÐUR SAMTÖL STUÐ
SKEMMTUN SAMVERA VIÐBURÐIR
Sjáumst í HeimaRaf! Ráðgjafar okkar verða á staðnum 15.-16. febrúar og aðstoða fyrirtæki og einstaklinga í Vestmannaeyjum með áskriftir sínar. Við hvetjum öll til að kíkja á okkur í kaffi og með því.
Vosbúð
- antik og nytjamarkaður (antik & second hand market )
Flatir 29 / )822-0587 Að gefnu tilefni viljum við í Vosbúð nytjamarkaði enda á að það er ekki lengur hægt að setja dót og húsgögn í gáminn fyrir aftan. Einungis er hægt að koma með dót á opnunartíma ( og alls ekki setja fyrir utan).
Opnunartími
Miðvikudag til föstudags..........kl. 13 til 18 Laugardaga......................................kl. 13 til 16 Eyjafólk! Takk fyrir allt dótið og húsgögnin sem þið hafið gefið í Vosbúð! Án ykkar gengi þetta aldrei. Kveðja Helga Dís
Sumarstarf í útibúi í Vestmannaeyjum Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með ríka þjónustulund í fjölbreytt sumarstarf í útibúi okkar í Vestmannaeyjum. Hæfni og eiginleikar ● Framúrskarandi þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar ● Reynsla af þjónustustörfum er kostur ● Góð tölvukunnátta ● Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð ● Stúdentspróf er æskilegt
● Gert er ráð fyrir að sumarstarfsfólk geti starfað samfellt frá maí/júní og út ágústmánuð þar sem um er að ræða afleysingastörf. ● Vinsamlegast athugið að haka við staðsetningu starfs í umsóknarforminu.
Umsóknarfrestur er til 10. mars 2024 og sótt er um í gegnum formið „Sumarstörf 2024-landsbyggð“ á vef Landsbankans Nánari upplýsingar veitir Jón Ó. Þórhallsson útibússtjóri Jon.O.Thorhallsson@landsbankinn.is