TÍGULL Á 4 ÁRA AFMÆLI 06. tbl. 05. árg. 22. febrúar - 1. mars 2023 & við skellum í leik!
FYRSTI TÍGULLINN KOM FYRST ÚT FYRIR FJÓRUM ÁRUM SÍÐAN
Síðastliðinn mánudag 20. febrúar voru fjögur ár liðin frá því að fyrsti Tígull kom út. Það er því að nálgast 180 Tíglar sem Leturstofan hefur gefið út.
Okkur langar til að koma á framfæri þakklæti til ykkar kæru lesendur og þökkum fyrir samfylgdina þessi ár og hlakkar okkur til komandi ára. Einnig kunnum við að meta þær ábendingar og tillögur sem hafa komið til okkar. Alltaf er hægt að senda á okkur á netfangið tigull@tigull.is
Í tilefni afmælisins langar okkur til að skella í leik!
Mjög einfalt er að taka þátt - það eina sem þú þarft að gera er að gefa okkur like á færslu um leikinn sem við munum deila á facebook. Við munum svo draga heppinn vinningshafa miðvikudaginn 1. mars.
Veglegur vinningur sem við munum deila með ykkur fljótlega. Mælum með að fylgjast með!
TÍGULL
DREIFING:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is
Prentun: Prentun.is
& Sæþór Vídó.
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir
VIÐ ERUM AÐ KOMA TIL EYJA ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ PANTA TÍMA Í SJÓNMÆLINGU Í SÍMA 511-6699 EÐA 899-8801 VIÐ VERÐUM Í LITLU SKVÍSUBÚÐINNI, SKÓLAVEGI 6 FÖSTUDAGINN 3. MARS FRÁ KL. 10:00-18:00 35% AFSLÁTTUR FYRIR ALDRAÐA OG ÖRYRKJA ALLIR NEMAR FÁ 30% AFSLÁTT
7 GÓÐ RÁÐ FYRIR BAKVEIKA TIL AÐ GERA BÍLFERÐINA BÆRILEGRI
Við erum flest vön því að ferðast mikið í bíl, hvort sem það er á einkabíl eða með almenningssamgöngum. Fyrir þá sem eiga það til að finna verki í bakinu þegar kemur að löngum bílferðum erum við hér með nokkur góð ráð í pokahorninu, ef til þess kæmi að bakverkirnir láti á sér kræla, sem og auðvitað til þess að fyrirbyggja þá.
Hér að neðan gefur að líta á sjö ráð sem hjálpa þér vonandi að gera bílferðina bærilegri.
Komdu þér vel fyrir strax í byrjun ferðarinnar
Taktu þér góðan tíma til þess að koma þér vel fyrir um leið og þú sest upp í bílinn. Hinn minnsti pirringur eða sársauki sem þú finnur fyrir í byrjun ferðar gæti leitt til mikils sársauka síðar í ferðinni og því nauðsynlegt að tryggja þægindi frá fyrstu mínútu.
• Fjarlægðu sem dæmi alla hluti úr vösunum. Það að geyma til dæmis veski í rassvösunum getur sett hryggsúluna í ójafnvægi og valdið sársauka. Hafðu bakið þétt upp við og samsíða stólbakinu.
• Sittu með bakið beint og hnén örlítið hærra en mjaðmirnar. Gættu þess að tylla hökunni eilítið inn á við þannig að þungi höfuðsins hvíli beint fyrir ofan hrygginn.
• Ef þú ert sá sem keyrir bílinn, stilltu sætið vel af þannig að þú sitjir ekki of nálægt stýrinu en þó ekki of langt frá, því ef þú þarft að fara að teygja þig fram á við til þess að ná í stýrið, getur þú sett álag á hendur, axlir, bakið og úlnliðina.
Gott er þó að hafa í huga að engin ein stelling hentar öllum og því mikilvægt að finna það jafnvægi sem kemur þér best.
Stöðvaðu reglulega og stattu upp og hreyfðu þig
Það að sitja í sömu stellingunni í langan tíma er ávísun á bakverki
þegar líða tekur á ferðina. Því er nauðsynlegt að stoppa sem oftast og hreyfa sig þannig að vöðvar og liðir stirðni ekki upp og valdi krampa, verkjum og öðrum óþægindum. Það er góð regla að keyra aldrei lengur en tvo tíma í senn og hreyfa sig að minnsta kosti í um 15 mínútur fyrir hverjar tvær klukkustundir. Þeir sem eru verulega bakveikir ættu að stoppa til að hreyfa sig á 30-60 mínútna fresti. Hreyfingin hjálpar þér að koma blóðflæðinu af stað sem kemur næringu og súrefni til vöðvanna.
Breyttu um stellingu og teygðu úr þér reglulega
Þegar þú hefur tækifæri til þess, reyndu að breyta um stellingu og hreyfa þig örlítið til í sætinu. Jafnvel bara tíu sekúndna teygjur og hreyfing í sætinu geta gert ferðina bærilegri. Reyndu að hafa það sem reglu að teygja úr þér og hreyfa þig til í sætinu á 15 mínútna fresti. Hreyfðu til fótinn þannig
að þú fáir hreyfingu í ökklana og teygðu létt á kálfunum ef þú hefur tækifæri til.
Reyndu að leiða hugann að einhverju öðru Það getur skipt sköpum að hafa eitthvað í bílnum sem hjálpar þér að hugsa um annað en verkina og óþægindin sem fylgir bílferðinni. Hvort sem það er góður félagsskapur, tónlist í útvarpinu, gott hlaðvarp í eyrun, spil, tölvuleikir eða bók. Veldu eitthvað sem hjálpar þér að gleyma verkjunum meðan á ferðinni stendur og styttir mögulega ferðatímann á huglægan hátt.
Veittu bakinu stuðning með fótunum Stuðningur við hryggsúluna byrjar í fótunum. Þú þarft að gæta þess að hafa fæturnar þétt við gólfið, á hörðu undirlagi. Þá þarftu að gæta þess að fæturnir séu í réttri hæð, þ.e. hnén örlítið hærra en mjaðmirnar, þannig að þú leggir ekki of mikinn þrýsting á mjóbakið. Ef þú ert að keyra bílinn
er upplagt að nota „cruise control“ ef slíkt er fyrir hendi. Þannig getur þú mögulega, á lengri bílferðum þar sem umferð er lítil, stigið með báðum fótum niður í gólf endrum og eins til þess að lágmarka álag á mjóbakið.
Notaðu hita- og kæli aðferðir ef það hjálpar Mörgum þykir gott að annaðhvort kæla eða hita bakið á löngum ferðalögum.
• Með kælingu getur þú dregið úr bólgum og bjúgmyndun. Þannig getur þú ferðast með kælibox sem veitir þér tækifæri til þess að nota kælipoka (með hléum) meðan á ferðinni stendur eða nota kælikrem.
• Með hita meðferð getur þú aukið blóðflæðið og veitt vöðvunum slökun. Hægt er að notast við bæði hitapúða sem og hitakrem. Ráðlagt er að nota hita eða kulda í um 15-20 mínútur í senn en gefa svo húðinni um 1-2 klst hið minnsta til þess að jafna sig áður en næsta umferð af kælingu/hita hefst.
Reyndu að lágmarka hossur og hristing
Holur í veginum, ójafn vegur og þar fram eftir götunum, getur sannarlega sett líkamsstöðuna úr jafnvægi og valdið ónotum hjá bakveikum meðan á ferðinni stendur. Reyndu því eftir fremsta megni að lágmarka allt slíkt, til dæmis með því að aka varlega, sitja ofan á púða eða nota annan stuðning undir rassinn sem og huga vel að bílnum sjálfum og gæta þess að nóg loft sé í dekkjunum, demparar séu í lagi o.s.fr.
Að lokum má nefna að það getur verið gott að ráðfæra þig við sérfræðing, til dæmis kírópraktor eða sjúkraþjálfara, sem getur aðstoðað þig og veitt þér ráð varðandi ferðalagið og hvernig sé best fyrir þig að sitja og ferðast, með tilliti til bakverkjanna.
Átta umferðir hafa farið fram í mótinu og í efsta sæti er Sigurjón Þorkelsson með 7,5 vinning og hefur því tryggt sér sigur í mótinu. Hér fyrir neðan má sjá hér stöðuna fyrir lokaumferðina:
Lokaumferðin umferð fer fram fimmtudaginn 23. febrúar og mætast þá þessir:
Hrafn teflir gegn Hallgrími
Guðgeir teflir gegn Sigurjóni
Gísli teflir gegn Sæþóri Inga
Arnar teflir gegn Sæmundi
Ísak Elí teflir gegn Þórarni
lokaumferðin fer fram á fimmtudag Sæti Nafn Stig 1 Sigurjón Þorkelsson 7,5 2 Hallgrímur Steinsson 5,5 3 Hrafn Oddsson 5 4 Arnar Sigurmundsson 5 5 Sæmundur Einarsson 4,5 6 Guðgeir Jónsson 3,5 7 Sæþór Ingi Sæmundarson 3 8 Þórarinn Ólafsson 3 9 Ísak Elí Ívarsson 1,5 10 Gísli Eiríksson 1,5
SKÁKMÓT VESTMANNAEYJA
50 ÁR FRÁ STRANDI GJAFARS VE 300 – MYNDIR FRÁ BLÖÐUM ÞESS TÍMA
Miðvikudaginn 22. febrúar 2023 eru liðin 50 ár frá því að Gjafar VE 300 strandaði í innsiglingunni í Grindavík, rétt tæpum mánuði eftir að Heimaeyjargosið hófst.
Um 430 manns eiga minningar um að hafa siglt með þessu farsæla aflaskipi á flóttanum frá Heimaey til Þorlákshafnar hina örlagaríku aðfaranótt 23.janúar 1973 þegar eldgosið hófst.
Rúmum tveimur vikum síðar tók áhöfnin þátt í einni umfangmestu leit sem Íslendingar hafa tengst í Atlandshafinu. Mildi þótti að enginn skyldi farast í leitinni í því mikla óveðri sem geisaði dagana tíu sem leitin stóð yfir.
Leitað var að áhöfn tíu manns sem voru um borð í Sjöstjörnunni frá Keflavík, sjá mynd með frétt frá Morgunblaðinu.
Og rétt um mánuði eftir að gosið hófst réðust svo örlög bátsins þegar hann strandaði við innsiglinguna í Grindavík. Björgunarsveitinni Þorbirni tókst með afar vasklegri framgöngu að bjarga allri áhöfninni,tólf mönnum. ( sjá mynd frá frétt Morgunblaðsins.)
(skjáskot úr bók Útkalls á ögurstundu)
Forsíða Morgunblaðsins þar sem greint er frá björguninni í Grindavík. Og ef þið lesið neðar á forsíðuna þá var einn fremsti eldfjallafræðingur með það álit á Vestmannaeyjakaupstað að hann væri dauðadæmdur.
Ljósmynd: Sigurgeir Jónasson.
LÍFEYRISSJÓÐUR VESTMANNAEYJA
Sérfræðingur
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings Leitað er að öflugum einstaklingi í krefjandi starf.
Helstu starfs- og ábyrgðarsvið: Forgangsverkefni eru lífeyris- og innheimtumál, afstemmingar, rafræn samskipti og önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur: Gerð er krafa um viðeigandi háskólamenntun, reynslu og þekkingu sem nýtist í starfinu. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt góðum samskiptahæfileikum eru kostir sem horft er til
Hlutastarf getur komið til greina.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Jónsson framkvæmdastjóri.
Umsækjendur skuli skila inn ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi í ráðningarkerfi Alfreð (www.alfred.is) fyrir 28. febrúar n.k.
LÍFEYRISSJÓÐUR VESTMANNAEYJA
Skólavegur 2, 900 Vestmannaeyjar Sími 481-1008, http://www.lsv.is
Gleðigjafa
Fyrir nokkrum árum stóðu Gleðigjafar, fötluð ungmenni í Vestmannaeyjum fyrir söfnun til að fara til Tenerife. Vegna Kórónuveirunnar varð ekkert af ferðinni en núna er áætlað að fara í haust (í okt/nóv).
Styrkurinn sem var kominn verður notaður til að borga ferðina niður fyrir fatlaða einstaklinga. Fatlaðir þurfa að útvega fylgdarmann og borga fyrir hann.
Áhugasamir þurfa að tilkynna þátttöku fyrir 5. mars svo að hægt verði að leita hagstæðra tilboða.
Upplýsingar veita: Jóhanna í síma 894-2064 og Hafdís í síma 849-9943.
VESTMANNAEYJABÆR
UPPBYGGINGARSJÓÐUR SUÐURLANDS
óskar eftir umsóknum í sjóðinn
Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í : LED LAMPA FYRIR GÖTU- OG STÍGALÝSINGU
Tilboðið felst í að útvega 1.199 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri hverfi í Vestmannaeyjabæ sem og í ný hverfi sem verið er að reisa.
KYNNTU ÞÉR ÁHERSLUR OG ÚTHLUTUNARREGLUR
UMSÓKNARFRESTUR
UMSÓKNARFRESTUR
MIÐVIKUDAGINN
1. MARS KL. 16:00
SASS.IS
Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is og verður hægt að nálgast gögn til og með 10. mars 2023.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 10:00 miðvikudaginn 22. mars 2023
Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sjá einnig upplýsingar á vef Vestmannaeyjabæjar, vestmannaeyjar.is
TILKYNNING TIL
RANNSÓKN Á LITAREFNUM Í MATVÆLUM
FRÉTTAHORN FÍV
Ánáttúruvísindalínu við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum velja nemendur sér valáfanga samhliða skyldunni. Á vorönn 2023 stendur áfanginn Verkefnalíffræði, LÍFF3VL05, nemendum til boða. Áfanginn er á 3. hæfniþrepi sem þýðir að enn meiri kröfur eru gerðar til nemenda um sjálfstæð vinnubrögð, bæði í ræðu og riti og við verklegar æfingar.
Áhersla er lögð á að nemendur samþætti þá þekkingu og færni sem þeir hafa tileinkað sér í fyrri líffræðiáföngum, og setji í víðara samhengi en áður hefur verið gert. Talsverður hluti lesefnis er á ensku, bæði greinar og lesefni tengt verklegum æfingum. Þannig er leitast við að undirbúa nemendur enn frekar fyrir framhaldsnám á háskólastigi.
Í Verkefnalíffræðinni vinna nemendur þessa dagana að rannsókn á litarefnum í matvælum og sælgæti. Í æfingunni einangra nemendur litarefni úr algengum sælgætistegundum s.s M&M og Skittles, en báðar tegundir innihalda litarefni. Að lokinni einangrun litarefna eru sýnin rafdregin á agarósa geli og greind m.t.t færslu á rafdráttargeli.
Rafdráttur á agarósageli líkt og hér er beitt, er algeng aðferð við DNA rannsóknir. En þekkt er að DNA bútar færast í rafsviði í réttu hlutfalli við stærð og hleðslu sýna (DNA búta).
Samhliða verklegu æfingunni kynna nemendur sér tengt lesefni, má þar nefna aukaefni í matvælum (E-efni), um notkun litarefna í matvælum (E100-199), og um náttúruleg litarefni og kemísk. Nemendur þurfa jafnframt að setja sig vel inní fræðin bakvið rafdráttinn, enda forsenda fyrir frekari greiningu sýna. Í verklegu æfingunni læra nemendur m.a að útbúa bufferlausnir, að steypa agarósa rafdráttargel, að einangra litarefni, vinna með pípettur og borðskilvindu, að undirbúa sýni fyrir rafdrátt og að hlaða sýnum á gel.
Við lok æfingarinnar rýna nemendur í niðurstöður rafdráttar; Bera færslu standardsýna við sælgætissýni og tengja við byggingarformúlu og hleðslu sameindanna sem mynda litarefnið.
Líkt og í DNA rafdrætti færast sameindirnar sem mynda litarefnin eftir stærð, þar sem
minnstu litarefnissameindirnar færast hraðast í agarósagelinu. Æfingin er ný í áfanganum og er skemmtileg viðbót við æfingar líffræðinema á náttúruvísindalínu við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.
Dr. Radinka Hadzic, PhD. Raungreinakennari við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.
Á að skipta um glugga í sumar?
Þá þarf að panta núna!
Það er ca. 13-15 vikna afhendingar tími á gluggum og hurðum hjá okkur.
Skanva hefur yfir 10 ára reynslu í Skandinavíu, þar sem gott og vandað gæðahandverk einkennir alla glugga og hurðir Skanva. Þar að auki eru Skanva gluggar og hurðir vottaðir og slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður.
Skanva ehf. - Fiskislóð 73 - 101 Reykjavík - S: 558 8400 10ára ábyrgð
Netklúbbur Skanva.is
RAKARARNIR MEÐ VERSLUNINA HERRAHORNIÐ
Síðasta haust opnuðu rakararnir saman verslunina Herrahornið. En hún er staðsett inná rakarastofunni Hárstofu Viktors. Rakarastofan var stofnuð árið 1963 af Ragnari Guðmundssyni sem flestir þekkja sem Ragga Rakara. Rakrastofan er nú í eigu sonar hans Viktors. Þeir feðgar eru hárgreiðslumeistarar og tóku Birki Hlynsson í læri ungan að árum. Þeir starfa allir saman á Hárstofu Viktors í dag og reka einnig saman Herrahornið. Allar vörur í búðinni eru handvaldar af þeim köppum en þeir eru miklir úra áhugamenn og sérhæfa sig í þeim. Starfandi sem rakarar til margra ára með sína þekkingu og reynslu af hinum
ýmsu rakstursvörum getum þeir hjálpað þér við val á vörum sem hentar fyrir þig.
Hægt er að skoða vörur og versla á vefsíðu þeirra www.herrahornid.is
Herrahornið er lítil herraverslun þar sem þú færð allar tækifærisgjafir fyrir herrann.
100% RAFKNÚINN JEEP® AVENGER
TRYGGÐU ÞÉR BÍL
ÁRSINS Í FORSÖLU
100% RAFKNÚINN JEEP® AVENGER ER BÍLL ÁRSINS Í EVRÓPU
Tryggðu þér þitt eintak af þessum einstaka verðlaunabíl í forsölu.
400 km meðaldrægni og allt að 550 km í innanbæjarakstri.*
Sendið tölvupóst á avenger@isband.is eða hringið í síma 590 2300. FORSALAN ER HAFIN
*Samkvæmt WLTP-staðli
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 • ISBAND.IS • JEEP.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
SUDOKU
LEIKVÖLLUR BÚSTAÐUR SUMARFRÍ FJÖLSKYLDA APARÓLA TJALDÚTILEGA ÚTILEIKIR GAMAN SAMVERA SPIL
ORÐAÞRAUTIN
UPPSKRIFT VIKUNNAR
Pistasíukjúklingur í air fryer
Hráefni:
2-3 kjúklingabringur
100 g pistasíukjarnar, saltaðar
1/2 tsk cumin
1 tsk kóríander
1 msk sesamfræ
1 egg
hlynsíróp
örlítið salt og pipar
Aðferð:
Byrjið á að mala pistasíukjarnana í matvinnsluvél í grófa mylsnu.
Blandið saman í skál pistasíumylsnunni ásamt sesamfræjum, cumin og kóríander.
Í annarri skál má slá saman eggið. Forhitið air fryer í 200°c. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt til að fá jafnar steikur. Dýfið hverri kjúklingasteik í eggjablönduna og því næst í pistasíumylsnuna.
Úðið örlítið af olíu á kjúklinginn og leggið í air fryer körfuna. Steikið í 8-12 mínútur eða þar til kjarnhitinn í kjötinu nær 70°c.
Blandið saman hlynsírópi og örlitlu af salti og pipar í lítilli skál. Penslið sírópinu á fulleldaðan kjúklinginn áður en borið er fram. Gott er að bera fram með hrísgrjónum, salati og hvítlauksbrauði.
Opnunartímar:
Mánudagur - lokað
Þriðjudagur - 13.00 til 17.30
Miðvikudagur - 13.00 til 17.30
Fimmtudagur - 13.00 til 17.30
Föstudagur - 13.00 til 17.30
Laugardagur - 12.00 til 15.00
Sunnudagur - lokað
s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com GLUGGA- OG HURÐASKIPTI ÓÞÉTT? Almennt viðhald & smíði! Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fermingarmyndir
VILLIBRÁÐ
NAPÓLEONSSKJÖLIN
Föstudagur 24. febrúar kl. 20:00
Laugardagur 25. febrúar kl. 15:00
ANT MAN & THE WASP
KARDIMOMMUBÆRINN
Sunnudagur
26. febrúar kl. 15:00
Sunnudagur
26. febrúar kl. 20:00
Hægt er að kaupa miða og velja sæti á www.eyjabio.is
QUATNUMANIA
Prentum sálmaskrár
Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
ÓSKAR ÞÓR HAUKSSON Vestmannabraut 13a
Okkar ástkæri lést á hjartadeild Landspítalans 8. febrúar. Útförin verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 24. febrúar kl.13:00.
Haukur Hauksson
Sigríður Högnadóttir
Kristín Harpa Halldórsdóttir
Magnús Magnússon
Stefán Jónsson
Tinna Hauksdóttir
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
INGÓLFUR ÞÓRARINSSON
FJÓLUGÖTU 4 VESTMANNAEYJUM
sem lést á HSU Vestmannaeyjum föstudaginn
10. febrúar, verður jarðsunginn frá
Landakirkju Vestmannaeyjum
laugardaginn 25. febrúar kl. 14:00.
Streymt verður á vef Landakirkju, landakirkja.is
Sigurjón Ingi Ingólfsson
Þórarinn Ingólfsson
Gunnar Örn Ingólfsson
Sigurrós Sverrisdóttir
Anna Guðmundsdóttir
Helga Barðadóttir
Barnabörn og langafabörn
Þórunn Pálsdóttir
Bjarni Geir Pétursson
Daði Hauksson og aðrir ástvinir
Ágústa Jóhanna Ólafsdóttir
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Toyota á Íslandi ehf. leitar að bifreiðaverkstæði í Vestmannaeyjum til þess að gerast viðurkenndur þjónustuaðili Toyota á Íslandi.
Toyota leggur mikinn metnað í að veita góða þjónustu. Hlutverk viðurkenndra þjónustuaðila er að þjónusta viðskiptavini með framúrskarandi og faglegum hætti til þess að tryggja ánægju og öryggi allra. Þetta felst meðal annars í almennu viðhaldi og þjónustu s.s. smurþjónustu, þjónustuskoðunum, 3 ára þjónustupökkum, ábyrgðarviðgerðum í allt að 10 ár með tilkomu RELAX, innköllunum og svo framvegis.
Viðurkenndir þjónustuaðilar þurfa að uppfylla fyrirliggjandi kröfur Toyota Motor Europe.
Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda helstu upplýsingar um viðkomandi bifreiðaverkstæði og rekstur þess á netfangið bni@toyota.is fyrir 15. mars 2023.
Allar frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri þjónustusviðs Toyota á Íslandi í gegnum ofangreint netfang.