Skip to main content

Tígull 06.tbl 02árg.

Page 1

06. tbl. 02. árg. 12. - 18. febrúar 2020 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Leikmenn ÍBV kynning

Kjúklingur í paprikusósu

Pólskur dagur 22.02.20

Í næstu blöðum Tíguls ætlum við að kynna meistaraflokksleikmenn ÍBV bæði karla- og kvennaliðin.

Uppskrift vikunnar kemur frá Maríu Kristu ketódrottningu. Það er kjúklingur í paprikuog spínatsósu.

Viltu kynnast pólskri menningu, þjóðsögur, matarmenning, vörur til sölu. Dagskráin er í blaðinu.

Brauðplatti með salati: Velur tvær tegundir af salati og brauð af eigin vali Opið alla daga vikunnar

06:00 - 19:00

Strandvegur 30

481 1104


FATMA KARA

BIRGITTA SÓL

Kynning á leikmönnum meistarflokks kvenna Nafn & aldur: Fatma Kara, 28 ára

Nafn & aldur: Birgitta Sól Vilbergsdóttir, 17 ára

Hvaðan ertu? Ég fæddist í Þýskalandi (Gelsenkirchen) en er frá Tyrklandi. (Balıkesir)

Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Vilberg Ingi og Ásdís Lilja og svo á ég tvö systkini eldri bróðir og yngri systur, Andri Már og Hjördís María.

Staða á vellinum? Miðjumaður Hver eru þín helstu áhugamál fyrir utan fótboltann? Mér finnst gaman að spila badminton. Hvað stóð upp úr á síðasta tímabili? Ég spilaði þá fyrir HK/Víking sem var erfitt tímabil þar sem við vorum í botnslagnum. Langar ekkert sérstaklega að muna eftir því. Hvernig líst þér á hópinn fyrir sumarið? Við erum með fjölbreyttan hóp og með leikmenn sem spiluðu í Evrópu eða Bandaríkjunum með mikla reynslu. Hver leikmaður hefur sinn styrkleika og erum við að vinna í að stilla okkur saman og verða gott lið inn á vellinum. Hvernig undirbýrðu þig fyrir leiki? Ég undirbý mig ekki sérstaklega, passa að fá nægan svefn og ef ég get séð myndbönd af andstæðingnum þá nýti ég mér það. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Nei, engan leyndan hæfileika. Get bara spilað fótbolta. Hvernig líst þér á að búa í Vestmannaeyjum? Þegar ég fékk tilboð frá ÍBV þá var á smá hrædd við að búa á eyju en ég sé það núna að það var rétt ákvörðun. Mér líkar betur að vera hér heldur en á höfuðborgarsvæðinu.

Hvaðan ertu? Ég er frá Ólafsvík. Staða á vellinum? Eins og er spila ég hægri bakvörð. Hver eru þín helstu áhugamál? Mér finnst gaman að ferðast og bara eyða tíma með vinum og fjölskyldu. Hvað stóð upp úr á síðasta ári? Tenerife ferðin með allri fjölskyldunni yfir öll jólin. Hvernig líst þér á hópinn fyrir sumarið? Mjög vel það eru allar mjög almennilegar og skemmtilegar og fótboltalega séð mjög góðar. Hvernig undirbýrðu þig fyrir leiki? Ég er ekki með sérstaka rútínu en annars fer ég bara snemma að sofa og borða góðan morgunmat. Uppáhalds þættir? Hawai five 0 Uppáhalds tónlist? Er með mjög fjölbreyttan tónlistarsmekk en annars finnst mér ný íslensk tónlist góð. Uppáhalds matur? Naut og bernes er í miklu uppáhaldi. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Nei held ekki, hann er allavegana það leyndur að ég er ekki búin að finna hann ennþá.


VILT ÞÚ VINNA MEÐ OKKUR Í SUMAR? Krefjandi en jafnframt fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf í boði

Skipstjóri

Leiðsögumenn

Sumarstarf við siglingar með ferðamenn á bátum Ribsafari og Boat Tours in Vestmannaeyjar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. maí nk.

Sumarstarf við leiðsögn á bátum Ribsafari. Hægt er að vera í hlutastarfi eða fullu starfi. Allir leiðsögumenn þurfa að hafa lokið hóp- og neyðarstjórnunarnámskeiði Slysavarnarskóla sjómanna. En við sendum fólk á námskeið ef svo er ekki.

Hæfniskröfur: • 65brl skipstjórnarréttindi ásamt STCW skírteini • Smábáta- og vélgæslu réttindi 750kw

Hæfniskröfur: Enskukunnátta, frásagnargleði og þjónustulund.

• ROC fjarskiptaréttindi • Æskilegt er að viðkomandi hafi einnig lokið hóp- og neyðarstjórnunarnámskeiði Slysavarnarskóla sjómanna

Starf í móttöku Hlutastarf í móttöku gesta, innritun og sölu ferða. Hæfniskröfur:

Nánari upplýsingar um störfin veitir: Laila Pétursdóttir, info@ribsafari.is

Enskukunnátta, skipulagshæfni, söluhæfileikar og þjónustulund.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á: info@ribsafari.is Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar nk.

RIBSAFARI | Básaskersbryggju 8 | www.ribsafari.is | S: 661-1810


Pólskur dagur í Vestmannaeyjum

22. 02. 2020 Vestmannaeyjabær i samstarfi við Pólska sendiráðið í Reykjavík ætla að halda „Pólskan dag“ í fyrsta skipti í Vestmannaeyjum. Viðburður er opinn öllum og hefur það markmið að kynna pólska menningu í eyjum og fá erlenda sem innlenda til að kynnast. Haldið er upp á daginn í Safnaðarheimili Landakirkju. Allir Velkomnir!

Dagskrá: 10:00

Húsið opnar Sala pólskra vara byrjar

10:30

Formleg opnun Íris Róbertsdóttir (bæjarstjóri) Gerard Pokruszynski (sendiherra) Jarl Sigurgeirsson með tónlistaratriði ásamt tónlistarskólanum Pólskar Þjóðsögur á pólsku Filip og Kacper Kynning frá ÍBV „Víti í Vestmannaeyjum“ kynning

12:00

Pólskir þjóðarréttir bornir fram Hægt að smakka allskonar rétti -Konsúl (Jakub Plich) byrjar vaktina

12:30

Spurningakeppni um Ísland og Pólland Glæsilegir vinningar fyrir efstu sætin í boði fyrirtækja í eyjum!

13:30

Tónlistaratriði í boði Sendiráðsins Bræður Mikolaj, Maksymilian og Nikodem Frach spila á fiðlu og pianó

14:45

Formlegri dagskrá lokið

15:00

Séra Rafal fer með rómversk-kaþólska messu í Landakirkju


Polski dzień w Vestmannaeyjar

22. 02. 2020

Gmina Vestmannaeyjar wraz z Ambasadą Polską w Reykjaviku organizuje „Polski dzień” po raz pierwszy w Vestmannaeyjar. Wydarzenie jest otwarte wszystkim i ma na celu promowanie polskiej kultury w Vestmannaeyjar, jak i ma być okazją dla Polaków i Islandczyków do bliżeszego zapoznania się. Miejsce: Salka kościelna przy kościele Landakirkja. Serdecznie wszystkich zapraszamy!

Program: 10:00

Otwarcie Sali Sprzedaż polskich produktów zostaje otwarta

10:30

Oficjalne otwarcie Íris Róbertsdóttir (burmistrz) Gerard Pokruszynski (ambasador) Jarl Sigurgeirsson wystep muzyczny wraz ze Szkołą muzyczną Filip i Kacper Czytają Polskie legendy Kilka slów od klubu sportowego ÍBV i marcowa oferta Promocja „Víti í Vestmannaeyjum“ Książka Przetłumaczona

12:00

Polskie dania zostaja wydane zapraszamy do Spróbowania polskich smaków Konsul rozpoczyna dyżur konsularny Godziny dyżuru zależą od zapotrzebowania

12:30

Quiz o Islandii i Polsce Niesamowite nagrody od firm z wyspy za najlepsze wyniki!

13:30

Wystepy muzyczne organizowane przez Ambasade Bracia Mikolaj, Maksymilian i Nikodem Frach zagraja dla nas na skrzypcach i fortepianie.

14:45

Oficjalna część programu zostaje zakonczona

15:00

Ksiadz Rafal odprawi Mszę Świętą w kościele Landakirkja


Pólski dagurinn haldin 22. febrúar 2020 - Klaudia fjölmenningarfulltrúi segir okkur meira frá pólska deginum -

Í Vestmannaeyjum búa ca. 250 pólverjar. Þann 21. febrúar er alþjóðlegur dagur pólska móðurmálsins og okkur fannst tilvalið að hafa pólska daginn strax eftir þann dag. Hátíðin er haldin í Safnaðarheimilinu sem er við Skólaveg. En ef þetta gengur vel reynum við næst að halda pólska daginn næst þegar nær dregur sumri segir, Klaudia fjölmenningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar. Hvernig eru pólskar hefðir/menning frábrugðnar þeim íslensku? Maturinn er klárlega öðruvísi og hægt verður að smakka hann á hátíðinni. Verðum með pierogi (dumplings), súrkálsrétti, súpu, kjöt og eitthvað sætt líka. Hvað varðar hefðir og menningu er Pólland með mjög viðburðaríka sögu og byggist margt í pólskri menningu og hefðum á því. Mjög margir pólskir listamenn hafa komið við sögu og

er því mikið til af fallegum pólskum lögum sem við fáum að heyra í útgáfu Frach bræðra á hátíðinni. En annars er líka margt sem er svipað í menningu hér og í Póllandi. Tóku sendiherrann og konsúllinn strax vel í hátíðina og að koma til Eyja? Sendiherrann kom tvisvar til Eyja sumarið 2019. Kom fyrst þegar Herjólfur kom til Eyja, hélt ræðu og sá að það voru margir pólverjar hér og vildi leggja meiri áherslu á samskipti sendiráðsins við Eyjar. Seinna kom hann á fund og talaði um áherslur sínar gagnvart pólska samfélaginu og eftir þann fund var ákveðið að bjóða pólskukennslu fyrir börn á miðsstigi í grunnskólanum, þar sem móðurmál barna þarf að vera gott til að geta lært íslensku vel. Sú kennsla gengur vel og skilar góðum árangri og öll gögn sem skólinn hefur fengið til pólskukennslu eru í boði sendiráðsins. Sendiherranum honum Gerard

finnst Vestmannaeyjar mjög fallegur staður og hefur marg oft sagt okkur frá því hvað þetta er yndisleg og falleg eyja. Hann er alltaf ánægður að koma hingað og þegar ég kynnti fyrir honum þennan viðburð tók hann strax vel í hann, kom með fullt af hugmyndum og vildi vera virkur í því að skipuleggja og styrkja og hafa þetta samstarfsverkefni. Hátíðin er haldin fyrir alla íbúa Vestmannaeyja, sama hvaðan þau koma og hvernig bakgrunn þau eru með. Hátíðin er samstarf Vestmannaeyjabæjar og Sendiráðs Póllands. Pólska samfélagið er oft mjög einangrað og þetta er klárlega tækifæri til að hafa gaman, kynnast menningu, mat og fólki. Við hvetjum alla til að mæta ekki einungis pólverja. Hátíðin fer öll fram á íslensku og pólsku og allir ættu að geta fundið eitthvað fyrir sig. Aðgangur er ókeypis.


Milljarður rís 2020

Sýnum samstöðu með þolendum kynbundins ofbeldis!

14. 02. 2020

kl. 12:15 í Íþróttamiðstöðinni Dansbyltingin Milljarður rís fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja þann 14. febrúar klukkan 12.15-13.00. Þetta er í áttunda sinn sem viðburðurinn er haldinn hér á landi og fólk á öllum aldri kemur saman og dansar fyrir heimi þar sem allir, óháð kyni og kynhneigð, njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Það er óhugnanleg staðreynd að 1 af hverjum 3 konum um heim allan verður fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni, það er um ein milljón kvenna! Við mjökumst þó hægt í rétta átt og það verður ljósara með hverju árinu sem líður að ofbeldi í garð kvenna verður ekki lengur liðið. Í ár verður kastljósinu beint að stafrænu ofbeldi, sem er sívaxandi vandamál sem Ísland og önnur lönd hafa verið sein að grípa til aðgerða gegn.

Ekki missa af stærstu dansveislu heims - mætum og dönsum gegn ofbeldi!

Munið myllumerkið #milljarðurrís og #fokkofbeldi


Sjá nwáwn.atrigull.is w

Viðburðir FÖS

14 FEB

SUN

16 FEB

Íþróttamiðstöðin kl. 16:00

FEB

FEB

ÞRI

18 FIM

20 FEB

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

FEB

FIM

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

13

VISTVÆNAR LAUSNIR Í HAFTENGDRI STARFSEMI

Þekkingarsetrið kl. 11:45 - 13:30

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

FEB

MÁN

LEIKHÓPURINN LOTTA SÝNIR HANS KLAUFA

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

17

Íþróttamiðstöð kl. 17:30

FEB

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

12

Landakirkja 20:00

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

FEB

ÞRI

ADHD & EINELTI OPINN SPJALLFUNDUR

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

18

Hamarsskóli kl. 20:00 - 22:00

MIÐ

12 FEB

MIÐ

12 FEB

MIÐ

EAGLES MESSA

16 18

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

ÍBV - HAUKAR OLÍSDEILD KARLA

SUN

ÞRI

Rauðagerði

MILLJARÐUR RÍS

Íþróttamiðstöðin kl. 12:15 - 13:00

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

FEB

MIÐ

12 FEB

MIÐ

12 FEB

FIM

13 FEB

MÁN

17 FEB

ÞRI

FÖSTUDAGUR 14

LAUGARDAGUR 15

FEB

LAUGARDAGUR

FEB

15

FEB

FEB

ÞRI

18 FEB

Íslenskt tal

kl. 15:00

kl. 18:00

SUNNUDAGUR

SUNNUDAGUR

kl. 21:00

SUNNUDAGUR 16

16

FEB

FEB

ÞRI

18 FEB

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00 SPILAVIST

Hraunbúðir kl. 20:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

PÚTTMEISTARAMÓT

Vinaminni/Kviku kl. 13:00

LÍNUDANS

Vinnaminni/Kviku kl. 15:00 VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

16 FEB

PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00 HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLLINNI ALLA DAGA KL. 08:00 - 12:00

Íslenskt tal

kl.15:00

18

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

kl. 18:00

kl. 21:00


Trjรกklippingar


Stökk í djúpu laugina og stofnaði sitt eigið fyrirtæki

Hulda Birgisdóttir, Vigdís Sigurðardóttur og Þórunn Ragnarsdóttir.

SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Vigdís Sigurðardóttir ákvað fyrir tveimur árum að stofna sitt eigið fyrirtæki. Til að byrja með var rólegt yfir þessu og verkefnin fá en fyrirtækið hefur vaxið vel á þessum tveimur árum og er hún nú með tvo starfsmenn í vinnu. Fyrirtæki Vigdísar bíður uppá alla almenna bókhaldsþjónustu og telur hún velvild eyjamanna hjálpa til þar sem við viljum sjá fyrirtæki dafna hér heldur en að sækja þjónustuna á fastalandið. „Fyrir tveimur og hálfu ári þá fluttumst við fjölskyldan aftur til eyja eftir fjögurra ára búsetu erlendis og þá fór ég að leita mér að vinnu. Ég hafði hugsað mér að fara aftur til Deloitte þar sem ég hafði unnið í 15 ár áður en ég flutti erlendis en samt hafði alltaf blundað í mér að prófa

að fara sjálf í atvinnurekstur og þótti mér þetta góður tímapunktur til að láta þann draum rætast,“ sagði Vigdís aðspurð um ákvörðunina að hefja rekstur. Efasemdir í byrjun Vigdís byrjaði ein með aðstöðu í Básum og voru verkefnin ekki mörg í byrjun. „Ég var með efasemdir þá hvort ég væri að gera rétt en ákvað að halda aðeins áfram. Svo fyrir tveimur árum þá flutti ég aðstöðu mína í Íslandsbankahúsið þar sem ég deili skrifstofu með Lögmannsstofu Vestmannaeyja,“ sagði Vigdís. Viljum sjá fyrirtækin hérna dafna vel Aðspurð um viðtökur sagði Vigdís að þær væru búnar að vera mjög góðar. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og tel ég að það hjálpi mér að vera frá eyjum. Fólkið hér er þannig að það vill styðja sitt fólk og sjá fyrirtæki hérna í Vestmannaeyjum

dafna í stað þess að sækja þjónustu upp á fastalandið.,“ Skilvirkari vinna í hlutastarfi Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað síðan þá og starfa þar tvær stelpur. „Þær eru báðar í 50% vinnu og tel ég það gott að geta boðið upp á þann vinnutíma því ég þekki það sjálf að vera með stórt heimili og vilja vera úti á vinnumarkaðinum en vilja samt ekki vera í fullri vinnu. Ég tel að slíkir starfsmenn séu oft vanmetnir því þeir skila oft mun skilvirkari vinnu,“ sagði Vigdís en fyrirtækið býður upp á alla almenna bókhaldsþjónustu. „Við sjáum um almennt bókhald, laun, reikningagerð, ársreikningagerð og framtöl bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Einnig höfum við aðstoðað við stofnun fyrirtækja og ýmsu því tengdu.,“ sagði Vigdís að endingu.


Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og hjúkrunarnemar Við á heilsugæslu HSU í Vestmannaeyjum óskum eftir starfsfólki í sumarafleysingar

Helstu verkefni og ábyrgð • Starfið fellst í almennri hjúkrun og móttöku á heilsugæslu og vinnu við heimahjúkrun. Auk lögbundinna verkefna heilsugæslu sinnir heilsugæslan bráða og slysamóttöku á dagvinnutíma. • Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem góður starfsandi ríkir. Mikið er lagt upp úr þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, virðing og umhyggja fyrir skjólstæðingum og aðstandendum þeirra er höfð að leiðarljósi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní eða eftir nánara samkomulagi . Umsóknarfrestur er til 20. mars eða eftir nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja fá skemmtilega tilbreytingu og vinna í góðum félagskap. Sumar í eyjum býður upp á góð tækifæri til útivistar með vinnunni og fjölbreyttri afþreyingu.

Nánari upplýsingar gefur: Guðný Bogadóttir, yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu í síma 432-2500 Netfang: gudny.bogadottir@hsu.is. Umsókn sem greinir frá menntun, starfsreynslu og starfsleyfi skal skilað rafrænt á vef HSU, www.hsu.is undir flipanum ,,lausar stöður“. Umsóknarfrestur er til og með 20.03.2020


Kjúklingur í papriku og spínatsósu - Uppskrift vikunnar -

Girnilegur kjúklingaréttur frá Maríu Kristu. Þessi er ketóvænn. INNIHALD: 1 bakki kjúklingalæri 1 tsk paprikuduft 1 tsk hvítlauksduft 1 tsk salt 2 msk smjör 250 ml rjómi 2-3 msk smátt skornir sólþurrkaðir tómatar 2 hvítlauksgeirar smátt skornir 100 g spínat

AÐFERÐ: Hitið smjör á pönnu, kryddið kjúklingalærin með papriku, hvítlauksdufti og salti. Steikið næst kjúklingalærin þar til þau eru brúnuð og nánast fullelduð. Takið upp úr pönnunni og setjið til hliðar. Bætið við hvítlauk á pönnuna og látið mýkjast aðeins, þar næst rjómanum og að lokum sólþurrkuðum tómötum. Hrærið vel í sósunni og látið allt blandast vel

刀䄀䘀䜀䔀夀䴀䄀刀

saman og krauma í nokkrar mín á lágum hita. Bætið nú spínatinu saman við og hrærið, að lokum fer kjúklingurinn aftur á pönnuna og látið hann fulleldast í sósunni góðu. Þennan rétt er gott að bera fram með hvítlauksbrauði, blómkálsgrjónum eða kúrbítspasta. Kristaketo

吀刀䄀唀匀吀 伀䜀 䘀䄀䜀䰀䔀䜀  䨀팀一唀匀吀䄀 䠀最愀 爀愀昀最攀礀洀愀爀  愀氀氀愀爀 最攀爀椀爀 戀氀愀Ⰰ 氀欀愀  洀攀 匀琀愀爀琀ⴀ匀琀漀瀀 戀切渀愀椀

一攀琀栀愀洀愀爀 攀栀昀 ∠ 䜀愀爀愀瘀攀最椀 ㄀㔀 ∠ 匀洀椀㨀 㐀㠀㄀ⴀ㄀㈀㄀㘀


Alzheimerkaffi Fyrsta alzheimerkaffi ársins verður haldið í Kviku – félagsheimilinu við Heiðarveg Þriðjudaginn 18.febrúar kl.17.00 Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri í öldrunarmálum ætlar að kynna tengiliðaverkefnið og velferðartækni. Kaffið verður á sínum stað ásamt söng í lokin. 500 kr. kaffigjald

Allir hjartanlega velkomnir Stuðningsfélag Alzheimer Vestmannaeyja

Minningarkort Alzheimer Stuðningsfélag Fjóla Sif Ríkharðsdóttir S:6990856 Andrea Guðjóns Jónasdóttir S:6947503 Rn: 0582-04-250626 Kt: 570316-0950

Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi

Magnús Örn Guðmundsson Skipstjóri Lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 4. febrúar síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Landakirkju fimmtudaginn 13. febrúar kl. 14:00 Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimerfélagið í Vestmannaeyjum. Sigrún Hjörleifsdóttir Ómar Örn Magnússon Anna Kristín Magnúsdóttir Hermann Þór Marínósson Hjördís Inga Magnúsdóttir Atli Már Magnússon Þórdís Gyða Magnúsdóttir Baldvin Þór Sigurbjörnsson Guðmundur Jón Magnússon Ólöf Halla Sigurðardóttir og afabörn.

Tannlæknar 19. - 22. febrúar Hjalti Harðarsson 17. - 19. mars Hjalti Þórðarson

14. - 16. apríl Hjalti Harðarsson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772

OPIÐ UM HELGAR föstudag – sunnudags frá 17:30- 21:00 pantanir í síma: 551 0055

Wood burning oven &

beer from local brewery

BÁRUSTÍGUR 1


Hvernig bregðast skal við? - Spjall við Guðnýju Bogadóttur um Koronaveiruna Tígull heyrði í Guðnýju Bogadóttur yfirhjúkrunarfræðing heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum og fékk upplýsingar um það hvernig við eigum að bregðast við ef eða þegar Koronaveiran mun berast til landsins og þá jafnvel til Eyja. Ef mig grunar að ég sé með Koronaveiruna hvað á ég að gera? Ef þig grunar að þú sért með Koronaveiruna átt þú að hringja í síma 1700 þar sem starfsmaður metur áhættu á að þú sért smituð eða smitaður. Enn eru það þau sem hafa verið í Kína eða umgengist smitaðan einstakling sem eru taldir í áhættuhóp. Ef næst ekki í 1700 er rétt að hringja í heilsugæsluna, ekki koma. Ráðlagt er að halda sig heima ef grunur er um smit.

ÖKUKENNSLA

Af hverju á ég ekki að fara beint upp á heilsugæslu? Markmiðið er að draga úr smiti eins og kostur er og með því að mæta á heilsugæsluna er möguleiki á að smita aðra sem eru mættir og bíða eftir að hitta heilbrigðisstarfsmann. Læknir eða heilbrigðisstarfsmaður mun koma heim til þín ef rökstuddur grunur er um smit. Skoða þig, taka sýni til að greina hugsanlegt smit og veita leiðbeiningar um framhaldsmeðferð.

SNORRA RÚTS

Ekki gleyma sýkingavörnum, góður handþvottur, halda fyrir munninn ef hóstar og nota spritt.

Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

Einkenni Kórónaveiru sýkinga geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Kórónaveiran getur snögglega valdið sýkingu í neðri loftvegum með lungnabólgu sem getur gert öndun erfiða, en leiðir sjaldnar til einkenna frá efri öndunarfærum eins og hálssærindum og kvefi. Einkenni kórónaveirunnar koma fram 2 vikum frá smiti.

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Ítarlegar upplýsingar eru á vefsíðunum hsu.is og landlaeknir.is

/crispus

NÝJA TANNLÆKNASTOFAN

772-6766 Heiðarvegur 9

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 Opið á laugardögum

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook


Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV

l

F

L

Trjáklippingar & garðaúðun S

l l

l

Lent

7:15

7:40

15:45 16:10

l l l l l

Frá VEY

Brottf.

l

11:30 11:55

l

17:30 17:55 8:00

l l

8:25

16:30 16:55

l l l l l l l

12:15 12:40 18:15 18:40

Þetta vorið ætlar Sólbakkablóm að bjóða upp á trjáklippingar og trjáúðun í sumar. Einnig ætla ég að bjóða upp á fíflaeitrun í apríl/maí. Betra er að panta tímanlega þar sem tíðarfar getur verið breytilegt.

Pantanir í síma 899-5544 eða á netfangið solbakkablom@simnet.is

Jónas Þór Sigurbjörnsson Garðyrkjufræðingur.


30% AFSLÁTTUR

U G N I N L Á AF INNIM

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 06.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu