05. tbl. 06. árg. 7. - 13. febrúar 2024
ÞORRABLÓT Í KAUPMANNAHÖFN Það var líf og fjör síðastliðinn laugardag þegar saman komu hátt á þriðja hundrað manns þegar að Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn hélt Þorrablót. Óvenju stór hluti var Eyjafólk eða fólk með tengingu við Eyjar. Er þetta einn af hápunktum í starfsemi Íslendingafélagsins og er ávalt haldið fyrsta laugardag í febrúar. Það varð uppselt á örfáum dögum, eins og vanalega. Þetta er áratuga hefð en þegar að covid var í gangi þá var það ekki haldið þau 2 ár. Blaðamaður Tíguls heyrði í Guðna Gunnarssyni, oft kenndur við Gilsbakka en hann var kominn í stjórn Íslendingafélagsins fljótlega eftir að hann flutti til Danmerkur.
Anna Kristín, Kristjana og Helena á Þorrblótinu í Kaupmannahöfn.
„Hljómsveit kvöldsins var Brimnes sem hélt uppi geggjuðu stuði eftir að borðhaldi lauk. Frábær matur eins og þorrablóti sæmir og kom hann frá Kjarnafæði. Samdóma álit allra gesta sem ég talaði við að hljómsveitin hafi verið stórkostleg og þegar ég nefndi að þeir tengdust Þjóðhátíð, var hún sett á to do lista hjá þeim sem ekki hafa mætt á Þjóðhátíð. Kannski maður fari að skipuleggja hópferð á Þjóðhátíð, maður spyr sig. Aðal styrktaraðili ÍFK er Icelandair og er ómetanlegt fyrir okkur í félaginu. Annar hápunktur er 17. júní skemmtunin á Femøren á Amager á laugadegi, sem næst 17. júní“ sagði Guðni að lokum.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Eyjahljómsveitin Brimnes sá um að halda uppi stuðinu.
Helena, Sigurveig, Ingunn Huld , Kristín og hljómsveitin Brimnes í bakgrunni.
Gústi og Anna Kristín.
Berglind, Kristín Sjöfn og Guðrún Bergrós.
Anna Kristín, stuðbolti borðsins.
Jórunn Einarsdóttir og Kristín Sjöfn.
Litla Skvísubúðin Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.
www.skvisubudin.is /skvisubudin
/skvisubudin
NÝJA
TANNLÆKNASTOFAN Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is
Fundir eru sem hér segir:
Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI
>> Lífið er núna dagurinn - fimmtudaginn 8. febrúar >> Fögnum lífinu því Lífið er núna >> Stöldrum við og njótum augnabliksins Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Kraftur vekur athygli á málefninu í átakinu og selur Lífið er núna armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. Fimmtudaginn 8. febrúar hvetur Kraftur landsmenn alla að halda upp á Lífið er núna daginn og staldra við og njóta líðandi stundar með fólkinu í kringum sig. Dagurinn er tilvalinn í að nýta daginn og láta gott af sér leiða, hrósa fólki og sjálfum sér, nota spari-stellið og peysuna sem þú ætlaðir alltaf að nota við ákveðin tilefni. Ekki bíða eftir rétta mómentinu, búðu það til á Lífið er núna daginn. „Þetta er í annað sinn sem við höldum þennan dag og var dásamlegt að sjá í fyrra hvað fólk var fljótt að taka við sér og fagna honum með okkur,“ segir ÞórunnHilda, markaðs- og kynningarfulltrúi Krafts. „Við hvetjum alla í samfélaginu að njóta dagsins til hins ýtrasta. Búa til einhverja gæðastund með samstarfsmönnum, vinum og vandamönnum eða jafnvel bara ókunnugum og hrósa fólki og minna sig og aðra á að staldra við og fanga augnablikið,“ bætir Þórunn Hilda við. Kraftsliturinn er appelsínugulur og því hvetur félagið sem flesta til að klæðast þessum orkumikla lit á fimmtudaginn. Svo er hægt að fá flottar partýveifur, Lífið er núna servíettur og ýmsar aðrar vörur hjá Krafti sem geta hjálpað fólki að fagna deginum. „Við hvetjum auðvitað líka alla til að fá sér nýja Lífið er núna armbandið og bera það og minna sig einmitt á að Lífið er núna. Armböndin í ár eru sérlega hátíðleg í tilefni af 25 ára afmæli Krafts,“ segir Þórunn Hilda að lokum. Hægt er að nálgast Lífið er núna armböndin í velvöldum Krónuverslunum og Hagkaupsverslunum, í vefverslun Krafts www.lifidernuna.is og víðar. Allur ágóði af sölu armböndunum rennur í starf Krafts í þágu ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og eru öll armböndin perluð af kröftugum sjálfboðaliðum. Nánari upplýsingar veitir: Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts. Sími 866-9600. hulda@kraftur.org og Þórunn Hilda Jónasdóttir, thorunn@kraftur.org.
Breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035;
Nýir reitir fyrir hafnarsvæði Vestmannaeyjahafnar Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sýnum þann 25. janúar 2024 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingar á aðalskipulagi sem gerir ráð fyrir nýjum landnotkunarreitum fyrir hafnarsvæði. Fyrirhugaðar breytingar á höfninni snúa að: · Betri aðkoma að Vestmannaeyjahöfn með styttingu Hörgaeyrargarðs um allt að 40 m. · Lenging viðlegukanta hafnarinnar með gerð viðlegukants undir Kleifum, við Löngu. Gert er ráð fyrir að hafnarkanturinn verði lengdur frá Kleifum í átt að Hörgaeyrargarði. · Uppbyggingu stórskipakants, svokallaðs Brimneskants frá Skansfjöru yfir að Gjábakkafjöru, þar sem hægt verður að taka inn stærri flutningaskip, ekjuflutningaskip, auk farþegaskipa og góð aðstaða mun verða fyrir gáma.
Með fyrirhuguðum breytingum á Vestmannaeyjahöfn verður hægt að taka inn stærri skip, sem er nauðsynlegt til að þjónusta sjávarútveginn og aðra atvinnustarfsemi í Eyjum og viðhalda um leið samkeppnisstöðu hafnarinnar og samfélagsins. Skipulagsgögnin eru til sýnis í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja, á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á vefsíðu sveitarfélagsins á tímabilinu 5. - 26. febrúar 2024.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 26. febrúar 2024 í afgreiðslu Ráðhúss, á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í gegnum skipulaggátt Skipulagsstofnunar.
Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is
Aðalsafnaðarfundur Landakirkju og Kirkjugarðs Vestmannaeyja Sunnudaginn 18. febrúar 2023 fer aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja fram í Safnaðarheimili Landakirkju. Fundurinn fer fram að lokinni messunni sem hefst kl. 13.00. Dagskrá fundar: – Aðalfundarstörf skv. lögum og starfsreglum Þjóðkirkjunnar. Sóknarnefnd Landakirkju
SKÁKÞING
STAFARUGL
VESTMANNAEYJA
GETUR ÞÚ FUNDIÐ ÚT ORÐIN?
2024
RIFNLGKIDUR LURGGEUA RDEHÚAF NFSSVEÓIF AKTLREJÓS NSRDIFTUKIR
ÚRSLIT
KSÓAJLSTÓIR HÁEIGRRÐAITRMSSILUE
Þriðja umferð:
úrslit
Arnar
1-0
Hallgrímur
JLÓLKSSAIIT
Þórarinn
0-1
Sigurjón
Benedikt
1-0
Gísli
ÖGSKYRIGSÁRPA
Arnar Bogi
1
/2 - 1/2
Ágúst Ó.
Karl Gauti
Frestað
Sæmundur
Sæþór Ingi
Frestað
Guðgeir
Nokkrum skákum var frestað. En þeim sem var frestað í þriðju umferð eru: Karl Gauti - Sæmundur Sæþór Ingi - Guðgeir Skák sem frestað var í fjórðu umferð: Sæmundur - Sæþór Ingi
AROMATRBÐ KSÚGINIFNEUF
STAFARUGL LAUSN ÚR SÍÐASTA BLAÐI
Tígull mun uppfæra ný úrslit á vefnum okkar tigull.is
SKÓLABÆKUR
Stigatafla: Benedikt Baldursson Guðgeir Jónsson Arnar Sigurmundsson Sigurjón Þorkelsson Hallgrímur Steinsson Ágúst Ómar Einarsson Þórarinn Ingi Ólafsson Sæþór Ingi Sæmundarson Gísli Eiríksson Arnar Bogi Andersen Karl Gauti Hjaltason Sæmundur Einarsson
NÁMSGREINAR
HÁSTÖKK 3 2 2 2 1,5 1,5 1 1 0,5 0,5 0 0
KÚLUVARP REGLUSTIKA ÚRSLITALEIKUR STROKLEÐUR SÓLARSTRÖND BLÝANTUR VINNUTÍMABÓK BÓKAHESTUR MYNDARAMMI
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns mín, föður, tengdaföður, afa og langafa,
BALDURS AÐALSTEINSSONAR
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum og Hraunbúða fyrir hlýhug og umönnun og einnig starfsfólks sjúkraflutninga fyrir einstakt viðmót, þjónustulundar og vinaþel við Baldur. Guðbjörg Hjálmarsdóttir Hjálmar Baldursson Aðalsteinn Baldursson Soffía Baldursdóttir, Guðmundur Ingi Jóhannesson Sylvía Guðmundsdóttir, Elmar Þór Sylvíuson Alexander Guðmundsson, Sylvía Atladóttir Gabríel Guðmundsson Þegar ég skilst við þennan heim, þreyttur og elliboginn. Ég mun róa árum tveim inn í Sæluvoginn. Árni Gíslason í Höfn
Andlátstilkynning Minningargrein Sálmaskrá
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar. Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.
900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 leturstofan
leturstofan
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samhug og hlýhug við andlát eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HAFLÍNU ÁSTU ÓLAFSDÓTTUR Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum fyrir einstaka alúð og umönnun. Sveinn Sigurðsson Ólrikka Sveinsdóttir Þórólfur Þorsteinsson Sigurður Sveinsson Þóra Ólafsdóttir Þór Jakob Sveinsson Helga Þuríður Ágústsdóttir Rósa Sveinsdóttir Guðni Hjörleifsson Jóna Sveinsdóttir Hilmar Ögmundsson barnabörn og barnabarnabörn.
UPPSKRIFT VIKUNNAR VATNSDEIGSBOLLUR 101 frá Eldhúsperlu Helenu - eldhusperlur.com
Hráefni: 300 ml vatn 100 gr smjör 4 tsk sykur 150 gr hveiti 4 egg (pískuð) Gefur um það bil 24 bollur
Aðferð: – Ofn hitaður í 200 gráður með blæstri. Deiginu sprautað eða sett með skeið á plötu (magn af deigi í hverja bollu ca. 1 msk) og bakað í 20-22 mínútur. – Ef þið viljið stærri bollur er mikilvægt að lengja bökunartímann. – Ofninn þarf að vera vel heitur áður en bollurnar eru settar inn. Það hefur reynst best að hafa stillt á blástur með yfir og undirhita og blússhita svo ofninn upp 200 gráður. Það þýðir ekkert að setja bollur inn í volgan ofn.
af hitanum. Þetta tekur ca. hálfa mínútu. – Deigið þarf að kólna aðeins áður en eggin eru sett út í. Það er nóg að það kólni niður í um 40 gráður. Eða þannig að þægilegt sé að snerta það með fingrunum.
– Það þarf að bræða smjörið í vatninu og hleypa svo suðunni upp. Hella svo hveitinu út í á meðan potturinn er enn á heitri hellunni (á miðlungs hita).
– Píska eggin saman í skál áður og setja þau svo smám saman út í deigið, ca 2-3 msk í einu og hræra vel á milli. Stundum þarf ekki alveg öll eggin t.d. ef þau eru mjög stór. Ef of mikið er sett af eggi er hætta á að deigið verði of þunnt og þá lyfta bollurnar sér verr. Þetta er gert annað hvort með handafli, hrærivél eða handþeytara. Skiptir ekki öllu máli, bara hræra vel (það tekur samt vel á að gera þetta með handafli).
– Hræra deigið meira en maður heldur að þurfi í pottinum (með sleif). Þá gerast töfrarnir. Á þessu stigi á deigið að losna vel frá hliðunum og vera fallega glansandi og þykkt og þá er það tekið
– Deigið á að vera mjúkt, glansandi og dálítið teygjanlegt þegar það er tilbúið og ekki of þunnt. Gott er að miða við að ef þið takið spaðann á hrærivélinni eða sleif, stingið í deigið og lyftið upp ætti
það að mynda lítið V sem hangir niður af sleifinni en helst samt frekar stöðugt og lekur ekki mikið niður. – Deigið er sett á bökunarpappír á plötu með góðu millibili (12 bollur á plötu) og sett inn í ofninn (sprautað eða sett með skeiðum, skiptir ekki öllu máli). – Best er að baka bara eina plötu í einu. Þannig er hitinn jafnastur og deigið þolir vel að standa í skálinni á meðan bakstur stendur yfir. – Aldrei undir neinum kringumstæðum freistast til að opna ofninn áður en bollurnar eru tilbúnar. Þær eiga að hafa lyft sér mjög vel og vera fallega gullinbrúnar. – Gott er að stinga lítið gat á hverja bollu til að hleypa gufunni út. Þegar þær eru bakaðar. Þær halda hæð sinni stundum betur sé þetta gert.
úrval af vönduðum stigum og tröppum Stigar og tröppur standast staðalinn EN131 sem tryggir gæði og vandaða smíði. Vörurnar þekktar fyrir góða endingu, stöðuleika og fallega hönnun.
TRÖPPUR Tröppurnar eru fáanlegar frá 3 þrepum upp í 12 þrep. Sterkar Samansoðnar Efsta þrep er tvöfalt Tröppurnar standast kröfur EN131
ÞREFALDIR STIGAR Léttir Sterkir Samansoðnir Þrep ganga inn í hliðarprófíla
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
ÞRAUTIR
KLIFURVEGGUR KÖRFUBOLTI BÆKUR
LESKRÓKUR BANGSAR PLAYSTATION
LITIR BARNARÚM LEIKIR
VEGGFÓÐUR FATASKÁPAR BOLTI
GREINDIST 19 ÁRA MEÐ ÆXLI Í MÆNUGÖNGUM „Að sjá einhvern með armbandið sýnir mikinn stuðning, skilning og samhug.“ Áður en Hrafnkell greindist hafði hann verið kvalinn í langan tíma og með mikla taugaverki. Eftir að hafa farið í þriðja sinn upp á bráðamóttöku svo verkjaður að hann gat ekki gengið þá kom loks í ljós æxli í mænugöngunum sem að þrýsti á allar taugarnar frá kviði niður í fætur. Hann var þarna á þriðja ári í MH og meðan aðrir voru að læra undir lokapróf þá var hann lagður inn á spítala og settur í aðgerð. Við tók svo sex vikna geislameðferð. Í ferlinu fór hann að nýta sér þjónustu Krafts, fara í hittinga og hitta sálfræðing á vegum félagsins sem hjálpaði honum mikið. Hrafnkell er 25 ára í dag. Hann var lengi að jafna sig eftir aðgerðina og meðferðina og er í eftirliti á 10 mánaða fresti. Þetta hefur haft langvarandi áhrif á orkuna hans og hann hefur þurft að endurraða ýmsu í lífinu en á sama tíma er hann að virða betur orkuna sem hann hefur og er ekki að stressa sig of mikið á hlutunum. Hans helsta gullmóment og sigur var þegar hann náði að labba upp að gosinu í Fagradalsfjalli með vini sínum frá Bandaríkjunum sem hann bjóst jafnvel ekki við að geta.
Breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035;
Skilgreining á landnotkunarreit athafnasvæðis AT-2 breytist og verður iðnaðarsvæði Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 25. janúar 2024 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingar á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags sem gerir ráð fyrir að landnotkunarreit AT-2 verði breytt í iðnaðarsvæði. Svæðið AT-2 liggur á Eldfellshrauni en yfirborð landsins er þó raskað þar sem það var áður nýtt til hitaveitu frá hrauninu. Brýn þörf er á iðnaðarlóðum í Vestmannaeyjum þar sem engin lóð á iðnaðarsvæði er laus. Samhliða gerð deiliskipulags verður gerð breyting á aðalskipulagi sem felst í að skilgreina reitinn sem iðnaðarsvæði. Gert er ráð fyrir að lækka svæðið um allt að 6 m m.a. til þess að draga úr sýnileika þess frá nálægum útivistar og ferðamannasvæðum. Við gerð skipulagsáætlana verður sérstaklega hugað að varðveislu sérstæðra jarðmyndana og að takmarka sýnileika frá ferðamannasvæðum.
Efnisvinnsla bæjarins hefur verið staðsett í Viðlagafjöru og með uppbyggingu fiskeldis verður nauðsynlegt að finna henni nýjan stað. Er fyrirhugað iðnaðarsvæði á Eldfellshrauni talið besti kostur fyrir staðsetningu hennar og einnig er fyrirhugað að með tímanum muni steypustöðvar sem reknar eru í bænum einnig flytjast á iðnaðarsvæðið. Efni sem til fellur vegna landmótunar verður m.a. nýtt í uppbyggingu í Viðlagafjöru eða manir á nýja iðnaðarsvæðinu.
Skipulagsgögnin eru til sýnis í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja, á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á vefsíðu sveitarfélagsins á tímabilinu 5. - 26. febrúar 2024.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 26. febrúar 2024 í afgreiðslu Ráðhúss, á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í gegnum skipulaggátt Skipulagsstofnunar.
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á SKRIFUM? Leturstofan óskar eftir lausapennum til að skrifa og taka viðtöl í hin ýmsu blöð og tímarit sem Leturstofan annast útgáfu á. Menntun og hæfniskröfur: • Mjög gott vald á íslensku ritmáli. • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi • Þekking og áhugi á Suðurlandi og samfélaginu okkar í Eyjum.
• Góð samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum. • Frumkvæði, drifkraftur og sköpunarkraftur. • Þekking á Wordpress vefumsjónarkerfi er kostur. • Auga fyrir ljósmyndun kostur.
Nánari upplýsingar og umsóknir sendist á leturstofan@leturstofan.is Með mætti fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem viðkomandi geri grein fyrir reynslu sinni og hæfni til starfsins.