05. tbl. 02. árg. 5. febrúar - 11. febrúar 2020 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is
Kári Kristján spurt & svarað
Öðruvísi aðfangadagur
Uppskrift vikunnar er ketó
Kári Kristján var valinn íþróttamaður Vestmannaeyja 2019 og við fengum hann til að svara nokkrum spurningum
Vinkonurnar Eyrún Haraldsdóttir og Þóra Ólafsdóttir Eyjapæjur eyddu aðfangadag í grunnbúðum Everest
Keto parmesan brauðstangir og marinara sósa með. Uppskriftin er eftir matarbloggarann Hönnu Þóru.
Brauðplatti með salati: Velur tvær tegundir af salati og brauð af eigin vali Opið alla daga vikunnar
06:00 - 19:00
Strandvegur 30
481 1104
Kári Kristján íþróttamaður Vestmannaeyja 2019 Fullt nafn: Kári Kristján Kristjánsson Aldur: 35 Áhugamál: Tónlist og íþróttir. Besta bíómynd allra tíma? Terminator 2. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Get snert olnboga fyrir aftan bak. Hvaða matur er uppáhalds? Rifsaugasteik. Hvaða þættir eru í uppáhaldi? Cheers. Hvernig tónlist hlustar þú á? Hlusta nánast á allt sem að hljóðfæri koma við sögu. Hvernig er undirbúningur þinn fyrir leik? Halda deginum eins og muna að drekka mikla mjólk fram að leik. Hvað stóð upp úr á síðasta ári? Eagle á fimmtu. Hvað ráð myndir þú gefa 20 ára þér? Lyfta meira og hafa orðið þyngri útgáfan af sjálfum mér strax. Hvað er að frétta af ungrú Snæfells- og hnappadal? Hún hefur það ógeðslega gott og verður með sölubás á gömlum kjólum úr keppninni á goslokunum. Eitthvað að lokum? Minkum skjánotkun gerpana okkar.
Fermingarveislur Veisluþjónusta GOTT býður upp á allar tegundir af veislum, stórar sem smáar. Erum með aðstöðu í Alþýðuhúsinu ef ykkur vantar sal undir veisluna. Upplýsingar í síma 6628770 eða á gott@gott.is
/gottrestaurant
#gottveitingastadur
Eyjatónleikar 2020 - Addi í London tók þessar myndir á tónleikunum -
Leikskóladagurinn 6. febrúar - Tígull heilsaði upp á krakkana á Sóla og Kirkjugerði Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins fimmtudaginn 6. febrúar. Þetta er í 13. skipti sem deginum er fagnað með formlegum hætti. Sjötti febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín, eða fyrir sléttum 70 árum. Tígull kíkti í heimsókn á leikskólana hér í Eyjum, Kirkjugerði og Sóla og tókum stutt spjall við þau yngstu ásamt að heyra í Helgu skólastjóra Sóla og Halldóru verkefnastjóra Kirkjugerðis. Fimmtudaginn 6.febrúar er dagur leikskólans. Að sjálfsögðu ætlum við á Kirkjugerði að gera okkur dagamun í tilefni hans en allar deildir leikskólans hittast í salnum um morguninn, syngja nokkur lög saman og hafa gaman. Eftir hádegi, frá klukkan 14.30-15.30, ætlum við bjóða uppá fjölskyldukaffi. Þá geta fjölskyldur barnanna fengið sér smá hressingu með okkur, spjallað við börn og starfsfólk og séð nýjar áherslur í leik og starfi á leikskólanum. Í haust hófst innleiðing nýrrar uppeldisstefnu á Kirkjugerði. Hugmyndafræði í anda hugsmíðahyggju varð fyrir valinu en sú stefna passar vel við þær áherslur sem voru í leikskólanum fyrir. Einnig hófst markviss vinna með Floorbooks, en starfsfólk leikskólans fór á námskeið í Floorbooks gerð í apríl 2019. Hugmyndafræði bókanna rímar vel við hugsmíðahyggjuna en þar eru börnin virkir þátttakendur í eigin námi. Bækurnar eru unnar af börnunum, með aðstoð kennara, út frá áhugasviði barnanna. Við á Kirkjugerði hlökkum mikið til að fá fjölskyldur okkar í heimsókn á fimmtudaginn, eyða með þeim gæðatíma og leyfa þeim að sjá þessar skemmtilegu nýjungar í starfinu á yndislega leikskólanum okkar, segir Halldóra.
Emil Aron Bergsson, Sara Kristey Gústafsdóttir og Aron Ingi Hilmarsson.
Nafn: Emil Aron Bergsson Foreldrar: Sara Sjöfn og Bergur Aldur: 3 ára, Hvenær áttu afmæli? 7.ágúst Hvað er skemmtilegast að gera í leikskólanum? Leira Hvar er mamma þín að vinna? Í Stóra húsinu mínu. Hvar er pabbi þinn að vinna? Líka í stóra húsinu mínu. Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? Kjúklinganaggar og franskar. Uppáhaldsbúningur: Spiderman en ég á alla búninga. Nafn: Sara Kristey Gústafsdóttir Foreldrar: Silja Rós & Gústaf Aldur: 4 ára Hvenær áttu afmæli? 24. ágúst Hvað er skemmtilegast að gera í leikskólanum? Lita og leika Hvar er mamma þín að vinna? Í grænu húsi. Hvar er pabbi þinn að vinna? Heima með þrjú rifbein.
Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? lamba- og kjúklingakjöt. Uppáhaldsbúningur: Elsa í Frozen Nafn: Aron Ingi Hilmarsson Foreldrar: Hilmar & Guðrún Aldur: 4 ára Hvenær áttu afmæli? 18.mars Hvað er skemmtilegast að gera í leikskólanum? Fara út að leika í snjónum. Hvar er mamma þín að vinna? Á sóla Hvar er pabbi þinn að vinna? í Íþróattahúsinu. Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? Kjúklinganaggar og kjúklingur. Uppáhaldsbúningur: Batman, Hulk og Iron man.
Meginreglur Hjallastefnunnar eru grundvöllurinn að öllu starfi Hjallastefnuskólanna, meginreglurnar eru í senn stefnuyfirlýsing og hugmyndafræði Hjallstefnuskólanna og fela þær í sér þá lífsýn og mannskilning sem Hjallastefnan stendur fyrir og starfsfólk sameinast um. Meginreglurnar eru sex, í stuttu máli er þeim ætlað að stuðla að því að hverju barni sé mætt eins og það er, að ólíkar þarfir aldurshópa, kynja og einstaklinga séu viðurkenndar og virtar. Meginreglunum er ætlað að stuðla að því að jákvæðni, gleði og kærleikur séu ráðandi öfl í skólastarfi, að samfélag innan hvers skóla sé einfalt, gagnsætt og að jafnvægi haft í öndvegi. Innan Hjallastefnunnar ber hverjum skóla að virða valfrelsi og ólíkan áhuga barna og hlúa á víðfeðman hátt að velgengni allra. Skólar Hjallastefnunnar búa aukinheldur að sérstakri kynjanámskrá og unnið er kerfisbundið eftir þeirri námskrá allan ársins hring. Kynjanámskráin er birtingarmynd á hugsjónum Hjallastefnunnar um jafnrétti stúlkna og drengja. Hið kynjaskipta skólastarf hefur það að markmiði að gera báðum kynjum jafn hátt undir höfði og að mæta ólíkum þörfum stúlkna og drengja. Það er ávallt markmið Hjallastefnunnar að gefa börnum kost á því að starfa og leika á eigin forsendum þar sem menning allra er virt og viðurkennd. Röð, regla og rútína er mantra sem við þekkjum vel á Sóla, en allir dagar eru eins hjá okkur. Þar skipast á tímar sem við köllum, val og hópatímar. Valið er nemendastýrði tíminn, þar velja nemendur sér svæði, en þau eru föndur, leir, kubbar, leikstofa, sull og útivera. Hópatíminn er kennarastýrði tíminn þar sem uppfylla þarf Aðalnámskrá leikskóla og Kynjanámskrá Hjallastefnunnar. Sami hópstjóri fylgir oftast nemendahópi sínum í gegnum leikskólagönguna. Við eigum nokkrar fastar hefðir á Sóla og sem dæmi þá bjóðum við alltaf í
Börnin á Sóla. Ármey Óskarsdóttir, Ari Bjarkan Fannarsson og Brynja Rut Sigurþórsdóttir.
bóndadagskaffi í kringum bóndadag og konudagskaffi í kringum konudag. Þá fyllist skólinn af fjölskyldum barnanna, þessar stundir eru alltaf virkilega ánægjulegar, segir Helga Björk. Nafn: Ármey Óskarsdóttir Aldur: 4 ára Hvenær áttu afmæli? 29.mars. Hvað er skemmtilegast að gera í leikskólanum? Renna í snjónum og elska að borða snjó og velja leikstofu. Hvar er mamma þín að vinna? Í Leikskólanum. Hvar er pabbi þinn að vinna? Pabbi vinnur í Olís og stundum er hann að veiða fugla og ref, Mikka ref. Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? Fiskur með appelsínugulu ofan á og kjúklingur. Uppáhaldsbúningur: Elsubúningurinn minn.
Nafn: Ari Bjarkan Fannarsson Aldur: 4 ára Hvenær áttu afmæli? 5.ágúst. Hvað er skemmtilegast að gera í leikskólanum
Í leikstofu, leika með púðana. Hvar er mamma þín að vinna? í Fiskinum Hvar er pabbi þinn að vinna? Hann er smíðamaður. Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? Grjónagrautur Uppáhaldsbúningur: Ninja, hann er blár. Mér finnst líka gaman að fara í snjóboltaleik og vatnsblöðruleik.
Nafn: Brynja Rut Sigurþórsdóttir Aldur: 4 ára. Hvenær áttu afmæli? Ég man það ekki Hvað er skemmtilegast að gera í leikskólanum? Renna mér í snjónum, lita og mála. Hvar er mamma þín að vinna? Á spítalanum Hvar er pabbi þinn að vinna? Hann er að brasa og vinnur í Heildverslun KK. Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn? Pizza. Uppáhaldsbúningur: Kanínubúningur.
Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV
l
F
L
vörurnar fást nú í
S
l l
l
Lent
7:15
7:40
15:45 16:10
l l l l l
Frá VEY
Brottf.
l
11:30 11:55
l
17:30 17:55 8:00
l l
8:25
16:30 16:55
l l l l l l l
12:15 12:40 18:15 18:40
Skrifstofa Heiðarvegi 9b 481-2700 formadur@sjomannafelag.is skrifstofa@sjomannafelag.is
/crispus
Tannlæknar
772-6766 Heiðarvegur 9
5. - 7. febrúar - Hjalti Þórðarson
8. - 9. febrúar - Hjalti Harðarsdóttir Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook
刀䄀䘀䜀䔀夀䴀䄀刀
19. - 22. febrúar - Harðarsdóttir
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772
吀刀䄀唀匀吀 伀䜀 䘀䄀䜀䰀䔀䜀 䨀팀一唀匀吀䄀 匀琀爀椀爀 漀最 欀爀愀昀琀洀椀欀氀椀爀 爀愀昀最攀礀洀愀爀 昀礀爀椀爀 猀琀愀爀琀 漀最 渀攀礀猀氀甀 猀欀椀瀀 漀最 戀氀愀
一攀琀栀愀洀愀爀 攀栀昀 ∠ 䜀愀爀愀瘀攀最椀 㔀 ∠ 匀洀椀㨀 㐀㠀ⴀ㈀㘀
Trjáklippingar Kæru eyjamenn og konur Undanfarin ár höfum við komið til eyja og klippt tré fyrir bæinn og í hvert skipti sem við komum erum við beðin um að klippa fyrir ykkur s.s heimagarða. Við vorum að hugsa um að bjóða fram þjónustu okkar til klippinga og stefnum á að koma í febrúar ef næg þáttaka fæst. A.T.H. eingöngu er um klippingar að ræða ekki hreinsun greina. Vinsamlegast pantið okkar þjónustu með að senda okkur tölvupóst eða einfaldlega hringja. Kær kveðja Óskar Páll 892-5590 ÓP-Verk ehf opverk@simnet.is Kristín Auður (Stína) 770-5377 Garðagleði ehf gardagledi@gmail.com
Salka Verslun / Bárustígur 9 / sími 481 1617
salkaverslun
Eyjakonurnar Eyrún og Þóra í grunnbúðum Everest um jólin - Algjörlega geggjuð tilfinning komast að alla leið -
Vinkonurnar Eyrún og Þóra í grunnbúðum Everest.
ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Algjörlega geggjuð tilfinning að komast alla leið. Þér finnst þú geta allt! Það var -22° og mikil vindkæling. - Mjög samtaka og ákveðnar í að klára þetta saman! „Mér dettur ýmislegt í hug og sem betur fer læt ég sumt af þessum hugmyndum verða að veruleika. Að fara í grunnbúðir Everest hefur verið fjarlægur draumur í nokkur ár en ég hef svo sem ekki hugsað mikið um það af alvöru fyrr en núna í vetur. Ég kom heim til Eyja í október og nefndi við mömmu að ég stefndi á að fara þangað í október 2020,“ segir Eyrún Haraldsdóttir, Eyjakona sem ekki beið eftir næsta ári heldur dreif sig af stað með Þóru Margréti Ólafsdóttur vinkonu sinni og voru þær í grunnbúðum Everest á þriðja í jólum í 5364 m hæð, 22 stiga frosti
og vindi. En tilfinningin að komast alla leið var einstök tilfinning, segir hún. Þær voru heppnar með veður en þægindin ekki mikil á leiðinni. Eyrún er dóttir Haraldar Þorsteins Gunnarssonar og Kristínar Gunnarsdóttur, Leist foreldrunum rétt mátulega vel á hugmyndina en eru í dag stolt af stelpunni sinni. Þóra er ættuð úr Eyjum og foreldrar hennar eru Sigurveig Andersen og Ólafur Þór Ólafsson. En áfram með söguna. „Þann 11. nóvember fæ ég skilaboð frá Þóru um að hún væri búin að bóka göngu um jólin. Ég fór strax að spyrja hana frekar út í ferðina og hvort hún vildi félagsskap. Ég hætti reyndar við í millitíðinni að fara þar sem ég hélt ég væri orðin of sein með bólusetningar og ég var ekki byrjuð að safna fyrir ferðinni. Sem betur fer kíkti ég í heimsókn til Hrefnu systur viku síðar sem var fljót að sannfæra mig að þetta væri tækifæri sem ég gæti ekki sleppt. Fjórum vikum síðar
var ég sest upp í flugvél á leiðinni til Nepal,“ segir Eyrún og viðurkennir að þetta hafi borið brátt að. Stuttur fyrirvari „Fyrirvarinn var svo sannarlega stuttur hjá mér en Þóra var búin að bóka allt svo ég fékk allar upplýsingar frá henni um hvað ég ætti að bóka og hvað þyrfti til. Ég fór í að bóka gönguna, kaupa ferðatryggingu, panta flug og fara í bólusetningu. En fyrirtækið sem við völdum heitir Himalayan Wonders og það var í raun allt innifalið fyrir utan flugið til Kathmandu. Þeir bókuðu hótel fyrir okkur í Kathmandu bæði fyrir og eftir göngu, sóttu okkur út á flugvöll og keyrðu okkur á hótel, bókuðu flugið til og frá Lukla, alla gistingu á meðan á göngunni stóð, þrjár máltíðir á dag og öll leyfi upp í fjöllunum. Algjör lúxus.“ Eyrún og Þóra eru báðar í nýliðaþjálfun hjá Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík þar sem þær kynntust. „Þjálfunin þar er mjög krefjandi og frábær grunnur fyrir göngu eins og þessa. Við erum búnar að lenda í allskonar aðstæðum saman í allskyns veðrum svo við þekkjum hvor aðra frekar vel þrátt fyrir að vera búnar að þekkjast í stuttan tíma. Þóra er líka ættuð úr Eyjum og mamma hennar og systir búa þar svo Eyjablóðið rennur í okkur báðum sem er ekki verra. Ég hef líka verið dugleg að æfa í Spörtu síðasta eina og hálfa árið svo ég vissi að ég væri í ágætis standi líkamlega. Ég hef gengið á fjöll síðan ég var barn en hef tekið langar pásur á milli meðan ég stunda önnur áhugamál. Mér verður oft hugsað til Ágústar æskuvinar míns þegar ég fæ dellu fyrir nýju áhugamáli og áður en ég veit af er ég búin að kaupa racer hjól, gönguskíði og farin að skoða kajak, fjallahjól og fleira. En gönguskórnir mínir eru kannski það sem ég hef notað mest af þessum “dellum” svo vonandi er það áhugamál komið til að vera.“ Mamman kvíðin Eyrún segir að það hafi eiginlega ekki gefist tími til að verða kvíðin þar sem fyrirvarinn var svo stuttur. „Ég var meira spennt en kvíðin fyrir
Nýbúnar að setja sólarvörn í andlitið á aðfangadagsmorgun
Hæðaraðlögunardagur þar sem við gengum upp að Everest viewpoint. Það er ekki hægt að kvarta yfir útsýninu né hópnum. Drag On leiðsögumaður er fremstur á myndinni.
ferðinni, mamma tók á sig að vera kvíðin. Það kom þó smá stress þegar kom að fluginu frá Kathmandu til Lukla en það var svo ekkert mál. Ég og Þóra erum vanar að fljúga til og frá Eyjum bæði frá Reykjavík og Bakkaflugvelli og þetta minnti á það, “smá” hristingur. Ferðalagið út tók um 36 klst. Því miður vorum við Þóra ekki samferða út en ég er vön að ferðast ein svo það truflaði mig lítið. Ég flaug út eldsnemma 16. desember og var fyrsti leggur til Amsterdam, svo Qatar og þaðan til Kathmandu þar sem ég lenti um miðjan dag 17. desember. Ferðalagið gekk vel fyrir sig, töskunar tékkaðar inn alla leið og lúxusinn með Qatar Airways er mikill svo ég gat lítið kvartað.“
eru sjö dagar upp og þrír dagar niður. Við lögðum af stað frá Kathmandu til Lukla sem er í 2860 m hæð þar sem við lentum snemma morguns þann 20. desember og hittum Drag On, leiðsögumanninn okkar og burðarmanninn. Í Lukla vorum við þegar komnar hærra en hæsti tindur Íslands. Fyrsti dagurinn var í styttra lagi og gengum við til Phakding í 2610 m hæð. Það var ekkert sérstaklega erfitt að vakna daginn eftir þar sem spenningurinn var mikill að halda áfram. Leiðin lá til Namche Bazaar í 3440 m hæð sem er stærsta Sherpa þorpið í Sagarmatha þjóðgarðinum. Leiðin lá meðfram Milky River í frábæru veðri, náttúru og við fórum yfir fimm hengibrýr.“
Einkaferð „Hópurinn” samanstóð af mér og Þóru,“ segir Eyrún þegar hún er spurð um ferðafélaga. „Það er pláss fyrir tíu í hverri ferð en það var enginn annar sem hafði keypt sig í ferðina svo við vorum með okkar einka leiðsögumann og burðarmann (porter) alla ferðina og þar með gátum við labbað á okkar hraða, splæst í hópmyndir og sagt endalaust “vá” yfir náttúrufegurðinni og menningunni. Gangan í heild tekur tíu daga, það
Í frábæru veðri „Á hverjum degi stoppuðum við til að fá okkur te sem varð eitt af því besta við ferðina. Staðirnir voru með svo dásamlegu útsýni og sólin skein nánast alla dagana. Hef ekki verið mikil temanneskja hingað til en ég og Þóra vorum farnar að bíða spenntar eftir að fá okkur ginger lemon honey tea alla daga. Við eyddum tveimur dögum í Namche Bazaar þar sem annar dagurinn var til að „hvíla“ og venjast hæðinni. Þann dag gengum við upp
Komnar niður til Gorakshep, þreyttar en ótrúlega ánægðar. Brosið fór varla af allan tímann.
að Everest viewpoint í 3840 m hæð og fengum okkur að sjálfsögðu te í dásamlegu umhverfi. Nýttum okkur að komast í sturtu því næsta sturta yrði líklega eftir sjö til tíu daga. Frá og með Namche Bazar mældi Drag On leiðsögumaður alltaf súrefnismettun og púls hjá okkur og fylgdist vel með heilsunni. Þann 23. desember héldum við ferð okkar áfram og gengum til Pangbuche, við áttum að ganga til Phortse en stígurinn þangað var illfær vegna hálku og var því ákveðið að fara öruggustu leiðina. Gönguleiðin varð því aðeins lengri þennan dag en við vorum sáttar með það því við vorum sammála um að setja okkur ekki í neina óþarfa hættu. Hæðin var farin að segja til sín og við að ganga aðeins hægar. Drag On var duglegur að minna okkur á að ganga hægt og stoppa til að drekka. Við þurftum að drekka fjóra lítra af vatni á dag sem leiddi af sér fleiri klósettferðir við mismunandi aðstæður.“ Kaldur aðfangadagur „Á göngunni til Pangbuche blasti Ama Dablam við okkur sem er sá toppur sem heillaði mig mest. Hækkunin þennan dag var um 1200 metrar og var því kærkomið að koma á náttstað.
Á tehúsinu þar sem við gistum var allt frosið, vatnið í vöskunum og klósettunum og maturinn var ekki sá besti sem ég hef smakkað. En Drag On var búinn að vara okkur við að maturinn batnaði ekki eftir því sem við færum hærra. Það var erfitt að koma sér fram úr á aðfangadag þar sem frostið var mikið. Það tókst á endanum og enn einn daginn klæddum við okkur í sömu göngufötin sem voru farin að ilma af samblandi af svitalykt og svitalyktareyðinum. Leiðin lá svo til Dingboche í 4410 m hæð og þar erum við komin upp fyrir 4000 metra og því engin gróður og loftið orðið þunnt. Ekkert rennandi vatn og næturnar orðnar vel kaldar. Við eyddum jóladegi í Dingboche ásamt öðru göngufólki að taka hæðaraðlögunardag.“ Markinu náð Eyrún segir að hún hafi vissulega saknað jólanna heima og kannski mest matarins. „Ég viðurkenni að ég saknaði graflaxins töluvert á meðan ég borðaði bragðlaus hrísgrjón með eggi. Við gerðumst grænmetisætur á meðan við vorum í Nepal sem var lítið mál en ég saknaði mest að fá ekki ferska ávexti og ferskt grænmeti sem ekki er í boði á þessum árstíma.
Það er mjög dýrt að fá þyrlur til að flytja upp dót svo flest er borið upp á bakinu á fólki eða jakuxar og asnar nýttir í það. Þegar við tókum af okkur bakpokana og teygðum úr okkur viðurkenni ég alveg að það kom samviskubit þegar burðarfólk kom upp brekkurnar með allt að 130 kíló á bakinu. Á annan í jólum gengum við til Lobuche í 4900 m hæð og farið að styttast í að ná markmiðinu. Þann 27. desember lögðum við af stað eldsnemma morguns í miklu frosti og mótvind áleiðis í grunnbúðirnar. Dagurinn var svo sannarlega kaldur og krefjandi en við náðum takmarkinu og vorum skælbrosandi þegar við komumst í grunnbúðir Everest sem eru í 5364 m, “We made it to the bottom of the top”! Við stoppuðum stutt við í grunnbúðunum, rétt um 15 til 20 mínútur til að taka myndir og gengum svo niður til Gorakshep í 5146 m hæð þar sem við gistum.“ Með bros á vör Það var mæld hjá okkur súrefnismettun þegar við komum niður til Gorakshep og vorum við báðar í kringum 55 svo það var ákveðið að slaka á það sem eftir var dags enda vorum við frekar þreyttar en ótrúlega ánægðar með okkur. Niðurtúrinn hófst svo 28. desember og við gengum hann með bros á vör og vorum glaðar að komast aftur í gróðurinn, meiri hita og rennandi vatn. Það var ekkert rennandi vatn í sjö daga svo við tannburstuðum okkur með því að hrækja í flöskur og notuðum baby wipes til að þvo okkur um hendurnar. Við komum til Lukla þann 30. desember þar sem við skáluðum í einum bjór og flugum svo til Kathmandu 31. desember þar sem við fögnuðum nýju ári og eyddum nokkrum dögum áður en við flugum saman heim til Íslands.“ Ólíkt íslenska veðrinu Desember er svokallað „low season“ til að ganga í grunnbúðirnar þar sem það getur verið mjög kalt og voru Eyrún og Þóra vel búnar til að mæta kuldanum. „Við erum vanar að vera í tjaldi upp á hálendi um hávetur í vondu veðri og miklum kulda svo
við erum orðnar nokkuð sjóaðar í að klæða okkur rétt fyrir mikinn kulda. Þetta er þó mjög ólíkt veðrinu á Íslandi og kom okkur á óvart hvað var í raun og veru hlýtt þrátt fyrir frost. Nokkrum dögum áður en við flugum til Lukla hafði snjóað mikið og flugvöllurinn hafði lokast. Snjórinn var þó að mestu bráðnaður þegar við komum og göngustígar að mestu greiðfærir. Himininn var heiðblár og sólin skein á hverjum degi. Veðrið var því mun betra en við bjuggumst við og mikið hlýrra. Ég hefði alveg verið til í að vera með einn stuttermabol með mér en í staðinn fékk ég nokkra auka daga í sama bolnum. Þegar við vorum komnar upp fyrir 4000 metra þá er engin gróður svo það var ekkert skjól frá trjám og því meiri vindur og töluvert kaldara. Kosturinn við að ganga í desember er að það eru miklu færri að ganga og engin örtröð af fólki á göngustígunum. Einu skiptin sem við þurftum að stoppa og víkja var þegar kom röð að jakuxum eða ösnum sem voru að bera vörur upp eða niður.
Við vorum duglegar að taka hópmyndir. Í bakgrunni eru hengibrýr og er sú efri í notkun núna.
Flugvöllurinn í Lukla. Einn af hættulegustu flugvöllum í heimi þar sem flugbrautin er stutt og í 10% halla.
Algjörlega geggjuð tilfinning „Það voru margir búnir að vara mig við litlum svefni, klósettunum og hæðinni. Svefnin varð aldrei vandamál og svaf ég átta til tíu klukkustundir á nóttu. Hæðin hafði ekki teljandi áhrif á mig en ætli ég sé ekki þakklátust fyrir rennandi vatn! Bæði til að þvo sér um hendur, tannbursta og sturta niður því það var af skornum skammti vegna frostsins. Eftir á sá ég hvað við höfum það ótrúlega gott á Íslandi og neysluhyggjan er mikil. Lífið í Himalaya fjöllunum er allt öðruvísi og allir hefðu gott af því að eyða nokkrum dögum þar. Það var algjörlega geggjuð tilfinning komast alla leið og þér finnst þú geta allt! Það var -22° og mikil vindkæling. Það tók okkur langan tíma um morguninn að ganga í sólina svo hausinn þurfti að vera rétt skrúfaður á til að hughreysta sjálfa mig. En ég og Þóra vorum mjög samtaka og ákveðnar í að klára þetta saman!
Þegar við komum svo í grunnbúðirnar kemur auka adrenalín og hamingjan verður ólýsanleg. Markmiðinu var náð og brosið varð enn breiðara. En það var mjög kalt svo leiðsögumaðurinn gaf okkur tíu til fimmtán mínútur til að taka myndir og svo var lagt af stað niður til Gorakshep.“ „Toppurinn heillar ekki,“ sagði Eyrún aðspurð, „allavega ekki toppur Everest. En þarna er fullt af öðrum fjallatoppum og margir sem voru heillandi og margar gönguleiðir í boði. Svo hver veit nema ég verði komin aftur til Nepal fyrr en síðar,“ sagði Eyrún að endingu.
Keto parmesan brauðstangir & marinara sósa - Uppskrift vikunnar -
Uppskrift: 1 poki mozzarella ostur 1 1/2 dl möndlumjöl 1 msk lyftiduft 1/2 tsk hvítlauksduft 1 egg
Tígull hafði samband við hana Hönnu Þóru sem hefur verið á Ketó mataræði í tæp tvö ár. Hún er matarbloggari og er hægt að nálgast uppskriftirnar hennar á Instagram-inu hennar. Hún gaf okkur sína allra vinsælustu uppskrift síðan hún byrjaði og viljum við deila henni með ykkur.
Aðferð: Hita ofn í 200 gráður Blanda saman í glerskál 1 poka af rifnum mozzarella, 1 og hálfur dl af möndlumjöli, 1 msk lyftidufti og 1/2 tsk af hvítlauksdufti Hita í örbylgjuofni í tvær mínútur. Bæta einu eggi útí og hnoða vel. Móta deigið í brauðstangir. Toppa með parmesan og oregano áður en þær eru bakaðar í 15-18 mínútur á blæstri. Borið fram með marinara sósu. Marinara sósa: Heimagerða marinara sósan mín
sem ég á alltaf til í fyrsti og nota fyrir frægu brauðstangirnar, í pastarétti, sem pizzusósu eða fyrir ítalskar kjötbollur. Hvað krydd varðar er smekkur manna mismunandi og þetta er svona sósa sem er gott að láta malla og smakka til. Fyrir þau sem vilja fylgjast með Hönnu Þóru og fá fleiri hugmyndir af ketó uppskriftum þá er þetta instagramreikningurinn hennar. hannathora88
SKRÚFAR UPP, SMELLIR SAMAN, MÁLAR! EKKERT SPARTL!
– Í MEISTARA HÖNDUM
FERMINGARDAGAR
30% í Blómavali
Árituð kerti
Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
afsláttur af ÖLLUM vörum í Blómavali
Áprentaðar sálmabækur
Gegn framvísun heimsenda fermingarpóstsins
Áprentaðar servíettur