ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2022 HEILSUDAGUR Í SAFNAHÚSI
SVEFN & SVEFNGÆÐI

Síðastliðinn sunnudag var efnt til heilsueflandi dagskrár
í Sagnheimum þar sem flutt voru áhugaverð erindi um heilsutengd málefni. Fremst í flokki við skipulagningu þar fór Sigurhanna Friðþórsdóttir, verkefnastjóri Safnahúss. „Við sem komum að undirbúningi erum mjög ánægð með hvernig til tókst og var mætingin framar vonum,“ sagði Hanna í samtali við Tígul. „Auðvitað er alltaf hægt að gera betur. Þetta var heldur langt, enda erindin öll áhugaverð og erfitt fyrir fyrirlesarana að stytta þau meira en gert var. Mögulega væri betra að hafa erindin færri og meiri tíma í kynningar. Þá munum við einnig endurskoða uppsetninguna og skoða möguleikann á að fyrirlestrarnir væru á einum stað og kynningarnar annars staðar í húsinu.
Jákvætt var að sjá hversu margt er í boði hér í Eyjum, við ættum öll að geta fundið það sem hentar hverju og einu,“ sagði Hanna. Hún segir stefnuna vera að gera þetta að árlegum viðburði en eftir eigi að skoða hvort önnur tímasetning henti ef til vill betur.
Auk fyrirlestra í sal voru nokkrir fluttir um fjarfundabúnað, sem gekk vel þegar búið var að ráða bót á tæknilegum uppákomum „... en auðvitað er alltaf skemmtilegra að fá fólk til okkar í eigin persónu,“ bætti Hanna við.
DREIFING:
Að lokum vildi hún koma á framfæri þökkum til allra sem komu að undirbúningi og framkvæmd og til gestanna sem voru hreint út sagt frábærir. „Við reyndum að ná til allra sem við vitum að bjóða upp á heilsutengda þjónustu og/eða vörur en skiljanlega höfðu sum ekki tök á að vera með að þessu sinni. Ef okkur hefur yfirsést eitthvað væri frábært að fá upplýsingar um það svo við getum gert betur næst. Sömuleiðis ef fólk hefur hugmyndir að fyrirlestur og/eða kynningum.“
Fjölmargir aðilar tóku þátt í viðburðinum þar sem þeir kynntu starfsemi sína. Ætla nokkrir þeirra að bjóða upp á opna tíma vikuna 6. - 10. febrúar. Þeir eru:
- Hressó og Crossfit Eyjar
- Dugnaður
- Rafíþróttadeild ÍBV
- ÍBV íþróttafélag (handbolti og fótbolti)
- Fimleikafélagið Rán
- Sundfélag ÍBV
- Happy Hips
Í Eymundsson er 20% afsláttur af öllum lífsstílsog heilsubókum. Apótekarinn býður 15% afslátt af vítamínum og bætiefnum.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey
katalaufey@tigull.is
Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Tígull heyrði í nokkrum sem að kítku við í Safnahús á heilsudaginn síðastliðinn sunnudag og fékk að heyra hvernig þeim leist á og hvað þeim fannst áhugaverðast.
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Mér leist vel á viðburðinn, frábært framtak, meira af svona takk.
Hvað fannst þér áhugaverðast?
Mér fannst áhugaverðast hvað allir eru farnir að leggja áherslu á svefn í daglegri rútínu jafnt við hreyfingu.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
Starf/menntun:
fræðingur.
Nafn: Vilborg Þórunn Stefánsdóttir.
Æfa daglega ásamt því að leggja upp með hreinu mataræði. Erum með frábæra tíma og þjálfara í boði hér í Eyjum, Dugnaður, Crossfit, hlaupaþjálfun/Eyjaskokk. Hvet fólk bara að byrja og mæta!
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Mjög vel, ég sá reyndar aðeins fyrri hlutann af fyrirlestrunum.
Hvað fannst þér áhugaverðast?
Mér fannst Sigurjón Ernir koma með áhugaverða punkta bæði varðandi mataræði, svefn og föstur. Þetta vekur mann til umhugsunar og það er aldrei of seint að byrja.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
Ég fer í leikfimi fjórum sinnum í viku og út að ganga þess á milli. Er að borða að mestu hreint fæði og kolvetnalítið.
Mér fannst hann mjög fræðandi og skemmtilegur. Hef sjálfur mjög gaman af þessum pælingum með mataræði og hreyfingu. Hafði mjög gaman af Viðarsdætrunum og mest þó af Sigurjóni Ultrahlaupara, sérstaklega með blóðsykurspælingarnar í sambandi við mismunandi mataræði. Síðan hef ég alltaf mjög gaman af Tryggva Hjalta sem ætlar að vera 200 ára.
Nafn: Theodóra Ágústsdóttir.
Fjölskylda: Carlos Guani, Ísafold og drengur væntanlegur í mars.
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Frábært framtak, vel sótt og augljóst að Vestmannaeyingar ætla sér að verða 200 ára.
Hvað fannst þér áhugaverðast?
Hversu mikilvægur svefn er heilsunni okkar og hversu mikil áhrif það hefur á okkur ef við erum vansvefta. Það hefur áhrif á næringuna, einbeitingu og taugakerfið okkar.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
Í byrjun síðasta árs fór ég að hlusta á líkamann minn, hvað hefur slæm áhrif á mig og tók lítil skref í átt að þeim markmiðum. Ég hætti að drekka dökkt gos, orkudrykki, minnkaði fæðu sem fór illa í mig, áfengi, tók út snjallforrit og dró úr símanotkun.
viku þegar ég er landi. Er búinn að betrumbæta með nokkrum stigum aðstöðuna síðan þá. En þetta er minn upphálads tími í vikunni. Einn inni í bílskúr, ber að ofan, öskrandi á lóðin og sjálfan mig. Hlustandi
Nafn: Ágúst Halldórsson
Hvernig leist þér á viðburðinn í Safnahúsi um heilsuna?
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni? Ég keypti mér alvöru lóð og stöng ásamt hálf rekka og bekk fyrir bráðum áratug. Hef því stundað þungar lyftingar. Réttstöðu, hnébeygju og bekkpressu þrisvar í
á hljóðbækur, tónlist eða podköst. Ég veit að fólk þolir ekki að heyra svona. En allavega fyrir mig þá væri ég bara einhver rækjusamloka með perustefni ef ég hefði ekki þessa aðstöðu. Það vara 3-4 tímar í þetta í viku sem er minni tími en venjulegt fólk eyðir í símanum sínum á dag. Síðan er þetta alltaf þess virði við að sjá aðdáunarsvipinn á Guðbjörgu minni þegar ég ríf mig úr að ofan fyrir hana áður en við förum í bælið.
Miðvikudaginn 1.febrúar var haldin viðurkenningarhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja.
Þar veitti Stjórn Íþróttabandalags
Vestmannaeyjaíþróttamanniársins og íþróttafólki æskunnar viðurkenningu. Tígull fékk að birta umsagnir stjórnarinnar um þá leikmenn sem hlutu þau verðlaun að þessu sinni.
Íþróttamaður Vestmannaeyja þarf til að bera að hafa skarað fram úr í íþrótt sinni og með framkomu sinni verið öðrum til fyrirmyndar.
Íþróttamaður Vestmannaeyja 2022 er Eiður Aron Sigurbjörnsson. Eiður Aron er fyrirliði karlaliðs ÍBV í knattspyrnu. Eiður lék með yngri flokkum ÍBV alla leið upp í meistaraflokk til ársins 2011 og er hann á þeim árum að berjast með ÍBV í efri hluta efstu deildar. Eiður heldur þá erlendis í atvinnumennsku þar sem hann spilar með liðum í
Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi við góðan orðstír en hann snýr svo aftur heim til Íslands þar sem hann semur við Val í Reykjavík og á þeim 4 árum
sem hann er hjá Val vinnur hann þrjá Íslandsmeistaratitla. Eiður ákveður á hátindi ferils síns að snúa aftur heim til Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2021 og hjálpa sínu félagi að komast upp úr fyrstu deild og í deild þeirra bestu sem þeir og gerðu. Eiður Aron var svo lykilmaður í liði ÍBV á árinu 2022 og átti stóran þátt í að halda liðinu áfram í efstu deild. Eiður Aron er mikil fyrirmynd utan vallar sem og innan og var hann kjörinn besti leikmaður meistaraflokks karla í ÍBV árið 2022 . Í desember síðastliðinn skrifaði Eiður Aron svo undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild ÍBV, sem eru mikil gleðitíðindi fyrir ÍBV og Eyjasamfélagið allt.
Eiður Aron er 32 ára og eiga þau Guðný Ómarsdóttir, kærasta hans, saman börnin Emilíu Eir og Ómar Dag. Tígull tók létt spjall við Eið í vikunni sem leið. „Ég er bara mjög stoltur af þessu, alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir sín afrek í fótboltanum,“ sagði Eiður um viðurkenningu bandalagsins. Á milli
sparka, vinnur Eiður í Ísfélaginu og segir hann það ganga bara vel saman. „Ætli við æfum ekki svona fimm sinnum í viku og svo einn leikur.“ Aðspurður hvort hann setji sér persónulega nýtt markmið fyrir hvert tímabil sagði hann það mjög einfalt. „Verða betri en tímabilið áður,“ enda lifir hann eftir því mottói að gefa 100% í það verkefni sem hann er í hverju sinni. Eftirminnilegast á ferlinum segir Eiður vera fyrsti Íslandsmeistaratitilinn. En hver skyldi vera erfiðasti andstæðingurinn á æfingum? „Ég verð að gefa Arnari Breka þetta,“ sagði Eiður og hló. „Mesti pepparinn er hins vegar Jón Ingason, ekkert eðlilega mikill peppari.“
Eiður sagðist líða mjög vel í Eyjum og kostina mjög marga „stutt að fara, fólkið og auðvitað veðrið.“ sagði Eiður og brosti og bætti svo við að lokum. „Mig langaði að þakka því fólki sem stóð við bakið okkur á síðasta tímabili og vonandi sjáum við enn fleiri á næsta tímabili.“
Eiður Aron, Ómar Dagur, Guðný og Emilía Eir.Síðastliðið sumar spilaði hann svo með 2. flokki ÍBV í knattspyrnu. Elmar stimplaði sig svo rækilega inn í lið meistaraflokks karla í handknattleik á síðasta tímabili og lék hann eftirminnilega í úrslitakeppninni síðasta þar sem ÍBV tapaði naumlega gegn Val í úrslitaeinvíginu.
Elmar hefur verið í yngri landsliðum síðastliðin ár og í sumar var hann fyrirliði í U18 ára landsliði íslands sem tók þátt í Evrópumeistaramótinu, þar sem liðið endaði í 10. sæti keppninnar. Elmar er duglegur og samviskusamur iðkandi og góð fyrirmynd. hverfi og ÍBV.
Elmar er 18 ára og er sonur Vigdísar Sigurðardóttur og Erlings Birgis Richardssonars. Systkini hans eru tvö þau Sandra og Andri. Ásamt íþróttunum stundar Elmar nám við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. „Ég æfi oftast á hverjum degi vikunnar og lyfti með því,“ sagði Elmar um tíðni æfinganna. Þá sagði hann viðurkenninguna Íþróttamaður æskunnar mikinn heiður og hvatningu.
„Það er mikill heiður og þakklæti og gefur manni meiri hvatningu í að halda áfram á sömu braut.“ Þá sagðist hann reyna að setja sér árlega það markmið að bæta sig í því sem hann er að gera og lifir hann eftir mottóinu „æfingin skapar meistarann!“
Elmar Erlingsson er kraftmikill og fjölhæfur íþróttamaður en hann lék bæði hand- og fótbolta á liðnu ári með góðum árangri og af miklum móð. Elmar hefur verið mjög öflugur í sínum aldursflokki í báðum íþróttunum og á síðasta ári fór hann að æfa með meistaraflokkunum. Hann æfði með meistaraflokki karla í knattspyrnu í byrjun árs ásamt því að spila handknattleik með ÍBV í Olísdeildinni.
Aðspurður um uppáhaldsmat sagði Elmar, Pasta carbonara skora hátt. Þá sagðist hann mest nota „Gamla góða Snapchat og Instagram“ í símanum en þó mest vera inni á Handbolti.is þegar kemur að vefsíðum.
Á milli æfinga, leikja og námsins reynir hann svo bara að slaka á, fara í sund og hitta vini. Aðspurður um það besta við að búa í Eyjum sagði Elmar „Ég dýrka samfélagið hérna og íþróttamenninguna.”
Fundir eru sem hér segir:
Sunnudaga kl. 11.00
Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur
Miðvikudaga kl 20.30
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30
Opnunartímar:
Mánudagur - lokað
Þriðjudagur - 13.00 til 17.30
Miðvikudagur - 13.00 til 17.30
Fimmtudagur - 13.00 til 17.30
Föstudagur - 13.00 til 17.30
Laugardagur - 12.00 til 15.00
Sunnudagur - lokað
fyrir land og þjóð á árinu 2022. Einnig var Birna María valin besti leikmaður 3. flokks í knattspyrnu á síðasta ári. Birna María er mjög dugleg og samviskusöm og á eflaust eftir að ná langt í því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
Birna er 16 ára og dóttir Unnars Hólm Ólafssonar og Helgu Jóhannu Harðardóttur og svo á tvær yngri systur, Erlu Hrönn og Örnu Hlín.
Birna er í 10. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja og æfir vanalega átta sinnum í viku handbolta og fótbolta „og svo fer ég 2-3x í akademíuna hjá GRV.“
Birna segist titilinn íþróttamaður æskunnar mjög hvetjandi „Er mjög stolt að hafa fengið þessa viðurkenningu og hvetur mig áfram til að stunda mínar íþróttir af krafti.“ Hún segist setja sér það markmið ár hvert að halda áfram að bæta sig sem leikmann og einnig að liðin hennar verði enn betri. Einnig er markmið hennar að ná titil í handboltanum. Hún lifir eftir mottóinu að standa sig vel og vera góður einstaklingur.
Uppáhaldsmatur Birnu er Rjómapasta með pylsum, helst með eplasalati á kantinum.
Í símanum notar hún mest Snapchat og TikTok og segist líklega fara oftast inn á google.com.
Þegar stund gefst milli æfinga og náms finnst henn best að bara chilla eða vera með vinum.
Birna María Unnarsdóttir er ung og mjög efnilegur iðkandi í fótbolta og handbolta. Hún hefur verið valin í landslið í báðum íþróttagreinunum og spilað opinberlega
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Aðspurð um það besta við að búa í Eyjum segir hún það vera „fjölskyldan, vinirnir, þægilegt umhverfi og ÍBV.“
FRÉTTAHORN FÍV
Námsmat gegnir veigamiklu hlutverki í skólakerfinu. Þegar komið er í framhaldsskóla þarf lágmarkseinkunn til að standast áfanga og ef þeirri einkunn er ekki náð, þurfa nemendur að endurtaka áfanga. Einnig eru takmörk fyrir því hversu oft nemandi fær að endurtaka áfanga og ákveðnar kröfur um hversu marga áfanga nemandi þarf að standast til að halda áfram námi. Námsmat er í stöðugri þróun og í stað þess að nemendur fái einungis lokamat sem byggir á lokaprófi í lok annar, fá nemendur nú mat á því hvernig þeir eru að standa sig jafnt og þétt yfir önnina.
Í FÍV meta kennarar nemendur þrisvar sinnum yfir önnina. Fyrsta matið var í síðustu viku og kallast „vörðumat“, mat númer tvö er um miðja önn og þriðja matið fer fram í lok annar.
FÍV notar námsumsjónarkerfið Innu og þar geta nemendur og forráðamenn nemenda sem eru yngri en 18 ára séð matið frá kennurunum sínum. Gefnar eru
einkunnirnar VTS, þar merkir V að nemandi sé að standa sig vel í öllum námsþáttum, T merkir að
nemandi stendur ekki alveg undir þeim kröfum sem gerðar eru og S merkir að nemandi þarf virkilega að taka sig á til að geta náð þeim lágmarksárangri sem krafist er til að standast áfangann.
Einnig eru gefnar umsagnir í
nemenda og veita endurgjöf til útbóta. Í því mati sem fram fer á önninni fá nemendur upplýsingar um frammistöðu sína.
Snemmtækt mat gerir nemendum kleift að bera kennsl á veikleika sína og hvar þeir gætu þurft viðbótarstuðning. Kennarar nota þessar upplýsingar til að ákvarða hvar þeir geta veitt frekari leiðbeiningar ásamt því að veita endurgjöf um þá þætti þar sem nemendur skara fram úr og aðstoða nemendur við að einbeita sér af þeim þáttum þar sem þurfa að ná sem mestum framförum. Í seinna námsmatinu sem fram fer um miðja önn gefst nemendum tækifæri til að ígrunda framfarir sínar. Nemendur sjá hversu langt þeir eru komnir og fá tækifæri til að gera nauðsynlegar breytingar ef þess þarf. Matið veitir þeim sem hafa staðið sig vel hvatningu til að halda áfram að vinna hörðum höndum. Lokamatið sem
námsmatinu en í lokamati eru gefnar einkunnir frá 1-10 og er lágmarkseinkunn til að standast áfanga 5.
Námsmat gegnir mikilvægu hlutverki í framhaldsskólanum. Kennarar meta með hlutlægum hætti árangur
fram fer í annarlok gefur nemendum heildarmynd af námsárangri sínu. Lokamatið er notað til að ákvarða lokaeinkunnir og veitir mikilvægar upplýsingar um námsstöðu nemenda. Hefur áhrif á áframhaldandi nám og atvinnutækifæri.
Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar íbúðir eldri borgara Kleifarhrauni. Stærð húsnæðisins er 71,3 fm. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk.
Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað.
Nauðsynlegt er að skila inn uppfærðum gögnum, liggi þau fyrir, með öllum umsóknum. Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.
Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Sigurjón Ernir Sturluson er eigandi og yfirþjálfari UltraForm, Íþróttafræðingur, einka- og fjarþjálfari, hlaupaþjálfari, keppnismaður, mikill áhugamaður um mataræði og hreyfingu.
„Ég hef stundað reglubundna hreyfingu í 27 ár og tilraunir í mataræði í ca. 16 ár. Hef prófað keto, paleo, carb back loading, vegan, jurtafæði og notast við föstur í +10 ár, mest prófað að fasta í 3 sólarhringa. Ég hef aldrei hætt að prófa mig áfram og mun aldrei gera það.“
Áhersla á svefn og svefngæði
Góður svefn er grunnstoð líkamlegrar jafnt sem andlegrar heilsu. Æskilegur svefn er á milli 8 og 9 klst. Því meira sem þú æfir því meiri svefn þarftu. Sama á við um meiðsli, veikindi og fleira líkamlegt áreiti, þá þarfnastu meiri hvíldar til að ná bata.
Mikilvægt að raska ekki mikið svefnrútínu. Sigurjón mælir með að fara að sofa á sama tíma og
vakna á sama tíma. Sigurjón fór yfir sína svefn rútínu til að gefa dæmi: „Ég sofna oftast 9:30 og vakna 5:20-5:30. Ég nota skjá gleraugu eftir kvöldmat, minnka birtu heima fyrir jafnt sem skjábirtu eftir kvöldmat, engin raftæki 1-2 klst fyrir svefn, engin matur 2-3 helst klst fyrir svefn og ef maður þarf að fá sér eitthvað að velja þá helst prótein og fitu til að viðhalda jöfnum blóðsykri fyrir svefninn.“
Þegar við sofum stuðlum við að: Endurheimt (andleg jafnt sem líkamleg), hreyfiminni (motor skills) og viðhaldi/vexti á öllu í líkamanum jafnt sem viðgerð
á líffærum (heila), frumum og hvatberum innan frumunar og fjölmörgu öðru.
„Ég sef alltaf í myrku og köldu herbergi eða ca. 17-18 gráður, ró og næði. Svefn er algjör lykill að vellíðan yfir daginn og gefur grunn að góðum degi,“ sagði Sigurjón.
Við fáum að heyra fleiri góð ráð frá Sigurjóni Erni í næsta blaði.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi okkar
skipstjóri frá Holti, Vestmannaeyjum
Lést á hjartadeild Landspítalans þann 15. janúar 2023. Útförin fer fram frá Landakirkju, föstudaginn 17. febrúar kl. 13:00
Streymt verður frá útförinni á landakirkja.is
Rósa Björg Sigurjónsdóttir
Sigmar Valur Hjartarson
Sóley Þorsteinsdóttir
Guðmundur Vigfússon
Freydís Vigfúsdóttir
Dóra Guðrún Þórarinsdóttir
Haukur Magnússon
Barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
Vélstjóra frá Nýhöfn
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða Vestmannaeyjum fyrir góða umönnun og hlýju í hans garð.
Margrét Ólafsdóttir
dætur og fjölskyldur
Hráefni:
¼ bolli brasilíuhnetur og 1 bolli vatn (sjá athugasemdir)
1 bolli vatn
½ banani
¼-1/2 tsk kanil
¼ tsk vanilladuft eða 2-3 vanilludropar
1 tsk hörfræ
1-2 msk kókospálmanektar síróp frá Biona
¼ -1/s tsk arctic thyme frá Íslensk hollusta
Um morguninn eða daginn áður: Leggið brasilíuhnetur í bleyti.
Aðferð:
1. Skolið af brasilíuhnetum í sigti. Setjið hnetur og vatn í blandara og vinnið í brasilíumjólk.
2. Setjið rest af hráefnum í blandara og vinnið þar til silkimjúkt. Smakkið til og bætið við meira af sætu eða kryddum eftir smekk.
3. Drekkið fyrir ljúfan og djúpan nætursvefn.
Uppskriftin er fengin frá: www.heilsutorg.is/
Fjórar umferðir hafa farið fram í mótinu og má sjá hér stöðuna:
Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 9. febrúar og mætast þá þessir:
Sæþór Ingi teflir gegn Hrafni
Sigurjón teflir gegn Sæmundi
Hallgrímur teflir gegn Þórarni Inga
Guðgeir teflir gegn Ísak Elí
Gísli teflir gegn Arnari.
Hægt er að kaupa miða og velja sæti á www.eyjabio.is
THE WHALE
9. febrúar kl. 20:00
KARDIMOMMUBÆRINN
Föstudagur
10. febrúar kl. 20:00
NAPÓLEONSSKJÖLIN
12. febrúar kl. 15:00
Sunnudagur
12. febrúar kl. 20:00
Það er ca. 13-15 vikna afhendingar tími á gluggum og hurðum hjá okkur.
Skanva hefur yfir 10 ára reynslu í Skandinavíu, þar sem gott og vandað gæðahandverk einkennir alla glugga og hurðir Skanva. Þar að auki eru Skanva gluggar og hurðir vottaðir og slagveðursprófaðir fyrir íslenskar aðstæður.