04. tbl. 04. árg. 2. - 8. febrúar 2022
OPNA VEITINGASTAÐINN NÆS Í NÆSTU VIKU
Gísli Matthías Auðunsson situr ekki auðum höndum, það er alltaf einhver verkefni í gangi hjá honum og fjölskyldunni. Nú á næstum dögum mun hann ásamt fjölskyldu sinni opna veitingastaðinn Næs á Strandgötunni. En þar áður voru þau með staðinn ÉTA. Tígull heyrði í Gísla og fékk að vita allt um Næs og það sem er framundan hjá þeim. Hvernig staður er Næs? Hugmyndin er bara að opna geggjað næs veitingastað! Ótrúlega góður matur sem vonandi allflestir fýla. Við viljum vera með stað sem getur verið svolítið breytilegur en samt alltaf þannig að maður getur gengið að
TÍGULL
því að fá gæðamat. Við verðum með skemmtilega kokteila og svo verðum við góða bjóra á krana. Hvað eruð þið að fara að bjóða upp á þar? Á kvöldin munu smáréttir verða allsráðandi, hálfgert Tapas með áhrifum frá Ítalíu en þó einnig hægt að koma í góða aðalrétt; steik, góðan pastarétt, fiskrétti og þess háttar.
Eruð þið að fara í einhverjar fleiri framkvæmdir á staðnum? Já við erum búinn að vera að vinna að gera hann enn meira kósí, ný gólfefni, stólar og bætt lýsing og þess háttar. Svo erum við að setja inn dælukerfi og verðum alltaf með 2-3 bjóra á dælu.
Við mælum með að pantað séu nokkrir réttir til að deila og tilvalið í date kvöld eða vinahópurinn saman.
Er hægt að sitja inni á staðnum? Já! Hann er hugsaður þannig að það verður ekki mikið take-away - allavega ekki í byrjun. Þó eitthvað, en það verður þá auglýst sérstaklega.
Þegar við munum opna í hádeginu þá verða stórir réttir á sanngjörnu verði, hröð afgreiðsla og matur úr góðu hráefni.
Hvenær opnar Næs? Við opnum þann 9. febrúar! Við munum taka við borðabókunum bráðlega og það verður tilkynnt sérstaklega. Í
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
þessari viku erum við að fínstilla hlutina og fáum vini og vandamenn í prufur á matnum og staðnum almennt! Hvernig verður opið? Til að byrja með verður opið mið-laugardaga á kvöldin frá 18.0022.00 (lengur um helgar) svo bætum við hádeginu inn fljótlega. Er eitthvað fleira framundan hjá ykkur? Planið er bara að einbeita okkur eins og við getum að þessum stað og gera hann eins næs og hann getur verið! Svo er strax byrjaður fullur undirbúningur fyrir SLIPPINN í ráðningu starfsfólks og þess háttar. Hvað getur þú sagt mér um þessa mynd (fyrir ofan)? HBO hafði samband og vildi gera þátt um okkur á SLIPPNUM fyrir seríu sem kallast “Zero Waste Chef”. Þeim fannst magnað að sjá hvernig hugmyndafræðin okkar um nýtingu er í hávegum höfð og hversu frumlega við vinnum með margt hráefni. Það er mikil viðurkenning fyir okkur að fá svona risastóran miðil til okkar og kynna okkar starf og Vestmannaeyjar í leiðinni. Þátturinn mun verða sýndur næsta vetur útum allan heim.
HUGLEIÐSLA – HVAÐ ER NÚ ÞAÐ ? Hafdís Krisjánsdóttir jógakennari fræðir okkur um hugleiðslu Þú getur hugleitt alls staðar t.d. þegar þú ert í biðröð, út í göngu, að vaska upp, prjóna osv.frv. Þegar þú veitir því athygli sem þú ert að gera, þá ertu í núvitund. Flestir eru nánast með athyglina á ytra umhverfinu allan liðlangan daginn og eru mikið á sjálfstýringunni. Sem þýðir að þú ert ekki með athyglina á því sem þú ert að gera. Algengasta hugleiðslu staðan er annað hvort sitjandi á gólfinu eða á stól. Aðalmálið er að láta fara vel um sig í þeirri stöðu sem þú ert í. Í hugleiðslu ertu að færa athyglina frá ytra umhverfi inn í þitt innra umhverfi. En það getur reynst okkur erfitt ef hugurinn er órólegur, tilfinningarnar út um allt og/eða verkjaður líkami. Þú ert EKKI að tæma hugann í hugleiðslu þú ert að kyrra hugann. Til að skilja betur hvernig hugleiðslan fer fram. Þá er þetta svipað og þú sitjir í bíósal og sért að horfa á kvikmynd. Þú ert ekki þessi kvikmynd. Þú er áhorfandinn að kvikmyndinni. Það er nákvæmlega þetta sem þú ert að gera í hugleiðslunni. Þú ert hlutlaus áhorfandi að þínum hugsunum og tilfinningum án þess að bregðast við. Þú ert að stækka bilið á milli þín (kjarnans þíns) og hugsanna þinna. Sem verður til þess að þú ert að styrkja hlutlausa vitnið og tekur yfirvegaðri ákvarðanir og viðbrögð þín við lífinu verða einnig yfirvegaðri. Það eru margar aðferðir til að hugleiða. Ein af þeim er að fylgjast með andardrættinum. Anda inn gegnum nefið á fjórum töktum og út um nefið á 8 töktum.
Þegar þú ert í hægum og djúpum andardrætti þá ertu að tengjast seftaugakerfinu þínu sem hefur róandi áhrif á líkamann. Andardrátturinn er það eina sem þú hefur til að tengjast ósjálfráða taugakerfinu. Við stjórnum ekki hjartslættinum eða meltingunni sem tilheyrir ósjálfráða taugakerfinu en með því að anda djúpt þá höfum við aðgengi að því. Ég hvet þig til að taka nokkra djúpa andardrætti nokkrum sinnum yfir daginn. Með því kemurðu þér inn í augnablikið og slakar á taugakerfinu. Ef þú setur þér það markmið að dýpka andardráttinn þá mæli ég með að þú tengir hann við einhverja athöfn. T.d hvert skipti sem þú sest upp í bílinn eða ferð í tölvuna/símann, opnar ísskápinn, sest niður. Finndu þína tengingu sem þú vilt nota til að minna þig á að dýpka andardráttinn.
Prufaðu að taka fjóra djúpa andardrætti NÚNA. Anda inn um nefið 1 2 3 4 og út um nefið 1 2 3 4 5 6 7 8. Taktu eftir breytingunni sem verður innra með þér. Hugleiðsla er verkfæri til að hjálpa þér við að vera við stjórnvölinn í þínu lífi. Hafdís Kristjánsdóttir, jógakennari. Ef þú hefur áhuga að læra að hugleiða þá byrjar hugleiðslu námskeið 8. febrúar kl. 19:30 Nánari upplýsingar í síma 863-4224.
eyjabio.is
Laugardagur
klukkan 14:00
klukkan 20:00
Sunnudagur
klukkan 14:00
klukkan 20:00
ÞRAUTIR
ELLIÐI ORRI
ELVAR ÓMAR
VIKTOR SIGVALDI
KRISTJÁN ARON VIGGÓ TEITUR
SPURNING VIKUNNAR! Finnst þér bæjarstjórnin hafa staðið sig vel á þessu kjörtímabili?
Ólafur Björgvin Jóhannesson Já, hún hefur staðið sig vel en það má alltaf gera betur.
Steindór Hreinsson Já bara ágætlega.
Elva Ágústa Magnúsdóttir Já.
Ragnhildur Svansdóttir já og nei.
www.eyjaeignir.is
Ert þú að hugsa um að selja eignina þína á næstu mánuðum?
VANTAR EIGNIR Á SKRÁ FYRIR ÁHUGASAMA KAUPENDUR
ENDILEGA HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FÖRUM YFIR HLUTINA SAMAN. - Lág söluprósenta,
- Allar eignir sýndar af fasteignasala - Fagljósmyndun í boði
- Legg mikið upp úr persónulegri og vandaðri þjónustu,
þar sem kaupendur og
seljendur eru vel upplýstir
um stöðu mála, góð eftirfylgni, hröð en vönduð vinnubrögð
HALLDÓRA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR - viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali
861 1105
dora@fasteignasalan.is
UPPSKRIFT VIKUNNAR Vegan súkkulaði skúffukaka Hráefni: 2 þroskaðir bananar 1/2 bolli hnetusmjör 1/3 bolli kakó 1/2 tsk lyftiduft 2 tsk kókossykur Stappa saman bönununum. Öllu hrært saman í skàl. Setja í form með bökunarpappír og baka í 25 mínútur à blæstri við 175˚.
ÁRA ÁRA
30 75
01.02 Anton Örn Björnsson 04. 02 Áki Heinz Haraldsson
ÁRA
Afmæli vikunnar
65
01.02 Oddur Júlíusson
Til hamingju með stórfmælið! Hvað gerðir þú í tilefni dagsins? Bara fá mér svart kaffi og ekkert annað plan. Ég hef ekkert staðið mikið í því að halda upp á afmælið mitt.
Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina.
TÆKIFÆRI Í SPARNAÐI Á ÁRINU 2022? nær því sem var fyrir heimsfaraldur. Ástæðan er ekki síst mildara afbrigði veirunnar sem veldur Covid19, en einnig útbreiddari bólusetningar og ný lyf til að meðhöndla sjúkdóminn. Þróun á mörkuðum síðustu tveggja ára gæti að sumu leyti færst nær því sem var fyrir heimsfaraldur, þótt það gerist ekki á einni nóttu. Í því munu bæði felast tækifæri og ógnanir.
Tígull fékk Eyjamanninn Sigurð Kristján Sigurðsson og Helenu Kristínu Brynjólfsdóttur sérfræðinga hjá fjárfestingafyrirtækinu Akta til að taka saman góð sparnaðarráð og upplýsingar varðandi hlutabréfamarkaðinn. Há verðbólga um þessar mundir þýðir að sparnaður á innlánsreikningum rýrnar að raungildi í hverjum mánuði. Á sama tíma er umrót á mörkuðum eftir gjöfult ár í fyrra. Því er mikilvægt að spyrja sig hvort sparnaðurinn sé skynsamlega staðsettur í byrjun nýs árs. Hvað þarf ég að hafa í huga varðandi minn sparnað ? Skynsamlegt getur verið að leita ráðgjafar um hvaða tilfærslur á sparnaði geta hentað hverjum og einum. Afar mismunandi er hvernig eignasöfn einstaklinga eru staðstett fyrir og um leið hefur fólk mismunandi ávöxtunar- og áhættuvilja. Hvaða umrót er nú á mörkuðum ? Helsta ástæðan fyrir núverandi umróti á skuldabréfa- og hlutabréfamörkuðum er einna helst há verðbólga hér heima og erlendis. Líklegt er þó að verðbólga taki að hjaðna á ný með vorinu þótt það gæti tekið a.m.k. ár fyrir hana að komast í eðlilegt horf.
Umrótið á mörkuðum er þó að einhverju leyti úr jákvæðri átt, þ.e. vegna færslu úr óvenjulegu efnahagsástandi samhliða Covid yfir í eðlilegra ástand. Eignaflokkar sem gáfu vel af sér í Covid krísunni síðustu tvö ár eru farnir að gefa á bátinn. Um leið hafa sumir fjárfestingarkostir tekið að rétta úr kútnum á ný vegna væntinga um eðlilegra efnahagsástand. Hver voru áhrif Covid19 á markaði ? Tökum örstutta upprifjun á áhrifum Covid-19 á markaði frá árinu 2020. Í fyrstu einkenndust viðbrögð markaða af hræðslu við áhrif veirunnar og vissulega hafa ákveðnar atvinnugreinar ekki enn náð sér almennilega á strik á ný líkt og ferðaþjónustan hérlendis. Ríkisstjórnir og seðlabankar víðast hvar, þar með talið á Íslandi, gripu hinsvegar til sögulegra stuðningsaðgerða sem áttu vafalaust þátt í því að eignaverð hækkaði almennt umtalsvert. Sparifjáreigendur nutu því í mörgum tilfellum góðs af þróuninni svo sem með almennt hækkandi verði hlutabréfa, skuldabréfa og fasteigna. Hver verða áhrifin ef veiran er orðin mildari ? Aukin bjartsýni er á að efnahagslíf heimsins geti á ný farið að þokast
Hvernig lítur íslenski hlutabréfamarkaðurinn út ? Sveiflur á erlendum hlutabréfamörkuðum munu eflaust halda áfram að smitast að einhverju leyti yfir á innlenda hlutabréfamarkaðinn. Ágætt er þó að hafa í huga ólíka samsetningu innlenda markaðarins samanborið við bandarískar hlutabréfavísitölur. Íslenski markaðurinn einkennist síður af vaxtarfélögum og ætti því að vera síður næmur fyrir hækkandi vaxtastigi. Þannig má færa rök fyrir að verðlagning innlendra hlutabréfa byggi í sumum tilvikum í meiri mæli á núverandi hagnaði fyrirtækja heldur en framtíðarvæntingum. Jafnframt gæti innlendi markaðurinn átt a.m.k. tvo hauka í horni. Í fyrsta lagi gera spár ráð fyrir að hagvöxtur ársins 2022 muni aukast frá fyrra en því er öfugt farið þegar spár um heimshagvöxt eru skoðaðar. Í öðru lagi eru teikn á lofti um að Ísland muni halda áfram að gera sig meira gildandi í alþjóðlegum hlutabréfavísitölum sem gæti ýtt undir kaupáhuga erlendra hlutabréfasjóða. Að því sögðu þarf þó ávallt að hafa í huga að hlutabréf eru í eðli sínu sveiflukennd og að áhættudreifing í eignasöfnum er mikilvæg. Er innlánum betur borgið í skuldabréfum ? Skuldabréfaverð fór mjög hækkandi í kjölfar Covid-19 krísunnar enda gerðu lækkandi innlánavextir það að verkum að skuldabréf urðu að hlutfallslega meira spennandi kosti. Eftir því sem Seðlabankinn hefur tekið
að hækka vexti á ný hafa skuldabréf heilt yfir tekið að leiðréttast í verði í takt við þá hefðbundnari heimsmynd sem virðist blasa við. Vissir hlutar skuldabréfamarkaðarins hafa þó haldið áfram að skila góðri ávöxtun. Nú sem fyrr hefur því skipt ákaflega miklu máli að stýra samsetningu skuldabréfasparnaðar í samræmi við aðstæður, hvort sem það er gert beint eða gegnum sjóði. Þótt illskárri tíð geti verið framundan fyrir innlánasparnað eru líkur á að vandlega valin skuldabréfasöfn haldi áfram að gera töluvert betur en innlánavextir. Hvar verða tækifærin á árinu 2022 ? Líklegt er að áhugaverð fjárfestingartækifæri skapist á árinu þegar umrót á mörkuðum er að mestu gengið yfir. Mikilvægt að skoða gaumgæfilega hvaða áhrif þróunin gæti haft á þinn sparnað og hvort tilefni sé að stokka upp í núverandi eignasafni.
ER TILEFNI? Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Þú getur sent okkur grein og við birtum hana hjá okkur. tigull@tigull.is
KÁTT
Í HÖLLINNI FEBRÚARTÓNLEIKAR Jón Jónsson & Friðrik Dór 19.febrúar kl. 20:00 verð: 3.900 kr.
Það verður frábær stemning og kátt í Höllinni þegar bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór mæta til Eyja með alla sína bestu slagara. Skemmtilegar sögur munu flettast inn í prógrammið og munu bræðurnir eflaust dansa eins og hálfvitar, til í allt og dýrka þegar sólin fer að skína. Ath. að vegna takmarkanna er takmarkað miðaframboð, svo það er um að gera að drífa sig í að næla sér í miða! Miðasala á tix.is
Áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!