Skip to main content

Tígull 04.tbl 02.árg

Page 1

04. tbl. 02. árg. 29.janúar - 4. febrúar 2020 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Opið alla daga vikunnar

06:00 - 19:00

Strandvegur 30

481 1104


Díana Íva tók þátt í Miss Universe í fyrrasumar - Setti mér markmið að vera betri útgáfan af sjálfri mér Fullt nafn: Díana Íva Gunnarsdóttir Aldur: 25 ára Áhugamál: Ferðast, útivera, hreyfing, keppa/spila með fjölskyldu minni, innanhúshönnun og tíska. Hvar líður þér best? Er mjög heimakær og nýt mín best heima í Vestmannaeyjum. Hvað óttastu mest? Óttann sjálfann Býrðu yfir leyndum hæfileika? Ef svo er þá er hann mjög vel leyndur. Hvaða freistingar getur þú sjaldnast staðist? Útsölur - stórhættulegt fyrirbæri. Instagram eða snapchat? Instagram - alla leið! Hvaða þættir eru í uppáhaldi hjá þér? Ég er mikið fyrir sakamálaþætti sem eru byggðir á sönnum atburðum en mínir “feel good” þættir eru Brooklyn Nine Nine. Hvað fannst þér áhugaverðast við keppnina Miss Universe? Miss Universe er góður vettvangur fyrir konur að láta í sér heyra. Vekja athygli á hlutum sem líða yfirleitt úr hug og opna umræðuna. Hvenær tókstu þátt í keppninni? Ég tók þátt í Miss Universe Iceland í fyrrasumar, undirbúningur stóð frá maí og lokakvöldið var í lok ágúst. Hvar var keppnin haldin? Keppnin Miss Universe Iceland var í Hljómahöllinni í Keflavík en aðalkeppni Miss Universe var haldin í Atlanta, US. Hvernig fannst þér keppnin í heild vera og varstu sátt með hana? Þetta var strembið en eflandi ferli. Ég lagði mig alla fram enda vann ég Directors Award, verðlaun sem Jorge og Manuela veita. Ég fór út úr þessu sem sigurvegari. Ég setti mér markmið að verða betri útgáfan af sjálfri mér, hafa gaman af þessu og eignast nýjar vinkonur í ferlinu - mér tókst að gera þetta allt! Þetta ferli gaf mér svo margt og er ég svo þakklát fyrir þá upplifun sem ég fékk.


EINSI KALDI

Opnum á fimmtudaginn OPNUNARTÍMI Í VETUR MIÐVIKUDAGAR FRÁ KL 18:00 FIMMTUDAGAR FRÁ KL 18:00 FÖSTUDAGAR FRÁ KL 18:00 LAUGARDAGAR FRÁ KL 18:00 Hægt er að panta borð í síma 481-1415 & á facebook síðu staðarins.


Japanskur kjúklingaréttur & hvítlauksbrauð - Uppskrift vikunnar -

Uppskrift (sósa): ½ bolli olía ¼ bolli balsamic edik 2 msk sykur 2 msk soyasósa Aðferð (sósa): Þetta er soðið saman í ca 1.mín, kælt og hrært annað slagið á meðan þetta kólnar. (ef ekki hrært skilur sósan sig). Uppskrift: 1 poki núður (instant súpunúðlur) Möndluflögur (3-4 msk) sesamfræ (1-2 msk) Aðferð: Þetta er ristað á þurri pönnu, núðlurnar brotnar í smáa bita og þær ristaðar fyrst því þær taka lengstan tíma, síðan möndlurnar og fræin. Kælt. (ath. núðlurnar eiga að vera stökkar).

Uppskrift: Salatpoki (blandað t.d.) Tómatar (t.d. cherry tómatar) 1 mangó 1 lítill rauðlaukur Kjúklingabringur skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu. Sweet hot chillisósu hellt yfir og látið malla í smá stund. Allt sett í fat eða mót. Fyrst salatið, síðan núðlugumsið ofan á, svo balsamic blandan yfir og að síðustu er heitum kjúklingabringuræmunum dreift yfir. Mælt er með að borða þetta með hvítlauksbrauði og er því uppskrift hérna fyrir þau sem vilja búa til. Uppskrift Hvítlauksbrauð ¾ bolli mjúkt smjör 1 msk. hvít­lauksrif, marið 1 tsk. hvít­laukssalt 1 msk. stein­selja, smátt söxuð ½ bolli par­mes­an

1 tsk. paprikukrydd ½ bolli rif­inn ost­ur Gott brauð Aðferð: Hitið ofn­inn í 200°. Blandið sam­an smjöri, hvít­lauk, hvít­ laukssalti, stein­selju og par­mes­anosti. Skerið brauðið í sneiðar og smyrjið með smjör­inu. Setjið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­ plötu. Stráið smá paprikukryddi yfir. Bakið í 10 mín­út­ur þar til smjörið er bráðið og brauðið byrjað að rist­ast. Takið úr ofn­in­um og stráið rifn­um osti yfir. Stillið ofn­inn á grill og grillið brauðið í 1-2 mín­út­ur. Fylg­ist með brauðinu þegar það fer inn á grillið svo það brenni ekki. Stráið stein­selju yfir og berið fram.


30% AFSLÁTTUR

U G N I N L Á AF INNIM

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


SUDOKU

ORÐARUGL

PEPSI MALTÖL

COCACOLA APPELSÍN

SPRITE TOPPUR

KRISTALL POWERADE

MIX ORKA


Staða náms- og starfsráðgjafa við GRV Staða náms- og starfsráðgjafa við Grunnskóla Vestmannaeyja er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% afleysingastöðu til eins árs. Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, hæfni og lipurð í samskiptum er mikilvægur þáttur. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Í Grunnskóla Vestmannaeyja eru um 515 nemendur. Námsráðgjafi er hluti af stoðkerfi skólans. Hlutverk námsráðgjafa er að vera talsmenn nemenda í skólanum, standa vörð um velferð nemenda og leita lausna í málum þeirra. Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa eru: • Ráðgjöf í námi og starfi

• • •

Ráðgjöf við náms- og starfsval (náms- og starfsfræðsla). Persónuleg ráðgjöf og stuðningur Námstækni

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar. nk. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum en umsókn skal fylgja ítarleg ferilská, leyfisbréf til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi auk annarra gagna er málið varðar. Umsóknum ber að skila á rafrænu formi á netfangið annaros@grv.is merkt: Náms- og starfsráðgjafi við GRV. Gott væri ef starfsmaður gæti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri S: 488-2202, annaros@grv.is

Saltkristalslampar Birtan er einstaklega hlýleg og falleg og er sögð hafa ýmiskonar jákvæð áhrif á líðan okkar og heilsu. Verð frá 5.500 kr.

Leturstofan // Strandvegur 47 // 481-1161


Sjá nwáwn.atrigull.is w

Viðburðir LAU

01

SELFOSS - ÍBV OLÍSDEILD KARLA

FEB

LAU

01 FEB

Samsungvöllurinn kl. 11:30

FEB

SUN

02 MIÐ

06 FEB

FIM

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

30

Origo höllin kl. 15:00

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

JAN

MÁN

ÍBV - KA BIKAR / 4FL. KK. YNGRI

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

03

Íþróttamiðstöð kl. 15:00

FEB

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

JAN

VALUR - ÍBV OLÍSDEILD KVENNA

FEB

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

29

Kiwanis 19:30

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

FEB

ÞRI

ÍBV - FH COCA COLA BIKAR

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

04

Íþróttamiðstöð kl. 18:30

MIÐ

29 JAN

MIÐ

29 JAN

MIÐ

ÞORRABLÓT KIWANIS

01 02

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

STJARNAN - ÍBV MFL. KK FOTBOLTI.NET MÓT

LAU

SUN

Rauðagerði

Hleðsluhöllin kl. 16:00

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

FEB

MIÐ

29 JAN

MIÐ

29 JAN

FIM

30 JAN

FÖS

31 JAN

MÁN

FÖSTUDAGUR 31 JAN

LAUGARDAGUR

LAUGARDAGUR

01

01

FEB

03 FEB

FEB

ÞRI

04 JAN

enskt tal

kl. 15:00

kl. 21:00

LAUGARDAGUR 01

SUNNUDAGUR 02

FEB

SUNNUDAGUR 02

FEB

ÞRI

kl. 18:00

FEB

SUNNUDAGUR

kl.15:00

JAN

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00 SPILAVIST

Hraunbúðir kl. 20:00

ÞORRAGLEÐI AKÓGES

kl. 19:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

LÍNUDANS

Vinnaminni/Kviku kl. 15:00 VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

02 FEB

PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00 HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLLINNI ALLA DAGA KL. 08:00 - 12:00

Íslenskt tal

kl.21:00

04

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

kl. 18:00

kl. 21:00


Fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir starf fjármálastjóra bæjarins laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst á nýju ári. Fjármálastjóri hefur umsjón með áætlanagerð og fjármálastjórnun í samvinnu við bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviðanna. Helstu verkefni: • Umsjón með árlegri fjárhagsáætlanagerð, langtímaáætlun og forsendum áætlana • Annast greiðslu á útgjöldum Vestmannaeyjabæjar í samráði við bæjarstjóra og framkvæmdarstjóra sviða • Útgreiðsla launa og launatengdra gjalda • Umsjón með ávöxtun fjármuna bæjarins ásamt framkvæmdastjóra stjórnsýsluog fjármálasviðs og samskipti við eignarstýringaraðila banka • Annast regluvörslu Vestmannaeyjabæjar. • Umsýsla og eftirlit með fjármálum stofnanna bæjarins. Gætir samræmis í vinnulagi um fjármálasýslu bæjarins. • Frágangur ársreiknings í samráði við bæjarstjóra, aðalbókara, endurskoðendur og framkvæmdarstjóra bæjarins. • Samráð og ráðgjöf til stjórnenda um fjármálastjórnun Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem viðskipta- eða hagfræðimenntun. • Viðbótarmenntun í reikningshaldi eða endurskoðun er kostur • Víðtæk reynsla af fjárhagsáætlanagerð og fjármálastjórnun • Þekking á reikningshaldi • Þekking og reynsla af opinberum fjármálum, sérstaklega sveitarfélaga • Góð þekking, færni og reynsla af fjárhagskerfum, (Navision, Oracle eða annarra sambærilegra kerfa). • Kunnátta og færni í Excel og Word • Samskiptahæfni, jákvæðni og lipurð í mannlegum samsktipum Nánari upplýsingar um starfið veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið: angantyr@vestmannaeyjar.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga. Vestmannaeyjabær hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 3, 900 Vestmannaeyjum og merkja „fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar nk.


Námsefni sem ekki er bundið við hina hefðbundnu skólabók - Snjólaug og Unnur Líf búa til fjölbreytt námsefni -

Snjólaug og Unnur Líf

Snjólaug Árnadóttir og Unnur Líf Ingadóttir Imsland eru metnaðarfullir kennarar sem starfa við grunnskólann í Vestmannaeyjum. Þeim fannst vanta námsefni fyrir krakka sem ekki var bundið við hina hefðbundu kennslubók og úr varð verkefnið Út fyrir bókina. Út fyrir bókina er síða á Facebook þar sem hægt er að finna fjölbreytt námsefni fyrir börn, „við setjum inn allskonar námsefni sem við búum til sjálfar, en planið er að opna heimasíðu sem fyrst og erum við að vinna í því,“ sögðu Snjólaug og Unnur Líf í samtali við Tígul. Síðan er opin öllum Aðspurðar um hver drifkrafturinn var að verkefninu var vegna þess að þeim fannst vanta námsefni. „Okkur fannst vanta námsefni sem er ekki bundið við hina hefðbundnu skólabók. Verkefnin okkar eru aðallega í formi spjalda og spila sem vekja áhuga nemenda.“

Inni á síðunni er hægt að finna námsefni sem hentar grunnskólanum, mest þó fyrir 3. – 6. bekk. „Síðan er öllum opin. Kennurum sem vilja nýta efnið í kennslu og foreldrum sem vilja þjálfa börnin sín heima. Síðan er líka kjörin fyrir fólk sem býr erlendis og vill viðhalda íslenskunni hjá börnum sínum,“ sögðu þær.

Mikill áhugi Þær sögðu að viðtökurnar við verkefninu hafi verið mjög góðar, „meðlimir síðunnar eru orðnir 2230 og finnum við fyrir miklum áhuga.“ Hægt er að finna síðuna á facebook undir nafninu “Út fyrir bókina”.


/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan

Algjört verðhrun á útsöluvörum! 1.000 - 2.000 - 3.000 4.000 - 5.000 kr.

Búðin er að fyllast af nýjum vörum!

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


Lífsbjörgin - Sönn smásaga frá Auði Finnboga-

Svo bar til um þessar mundir að í ár nánar tilltekið 19.mars eru 50 ár, já takk fyrir 50 ár síðan að æskuvinkona mín hún Svava Björk Johnsen bjargaði mér frá drukknun í loðnu sem lá um allt gamla hraun. Loðnugengdin var svo mikill að alls staðar var loðna, allar þrær fullar svo það var brugðið á það ráð að hella loðnunni í allar skorur og bugður. Svo loðnan var alls staðar. Jæja í mínu hverfi var það svoleiðis að sá/sú sem átti afmæli réði öllu þann daginn. En þetta var afmælisdagurinn minn

og var ég foringinn þennan dag. Ég stefndi öllum skaranum að skoða alla loðnuna. Arkaði ég svo í eina vöðuna og varð pikkföst, þetta var eins og kviksyndi. Svava sá að þetta var að fara í ógöngur og dreif sig úr nýju gallabuxunum og nýju peysunni og óð út í til að draga mig upp úr. Svo allur skarinn í halarófu til að drösla okkur upp. Uss bara, lyktin af okkur var rosaleg. Mamma henti bara öllum afmælisfötunum mínum, svo var Svövu launuð lífsbjörgin - hún fékk stærra páskaegg en ég fékk. Foreldrar mínir

voru svo glaðir að litlu stelpunni þeirra var bjargað. Hugsið ykkur fyrirsagnirnar í blöðunum - “10 ára stelpa drukknar í loðnu” það hefði verið svakalegt. Elsku Svava Björk, takk enn og aftur fyrir lífsbjörgina. P.s hennar fötum var líka hent. Takk fyrir, Auður Finnboga.

Við erum þjónustuaðilar fyrir eftirfarandi umboð

Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216


Mannauðsstjóri Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir starf mannauðsstjóra bæjarins laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst á nýju ári. Mannauðsstjóri hefur umsjón með stefnumótun og stjórnun mannauðssmála í samvinnu við bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviðanna. Helstu verkefni: • Stefnumótun og markmiðssetning í mannauðsmálum • Umsjón með mannauðs- og vinnuverndarmálum • Umsjón með jafnlaunakerfi og jafnlaunagreiningum • Ábyrgð persónuverndarmála • Umsjón, gerð og eftirfylgni reglna, ákvarðana og ferla um starfsmannamál • Umsjón með skipulagi fræðslu og starfsmannasamtala • Gerð og eftirfylgni starfsmannahandbókar • Stuðningur og fræðsla til framkvæmdastjóra og forstöðumanna bæjarins um mannauðsmál og persónuverndarmál • Eftirlit með mannauðsupplýsingum og skráningu upplýsinga í mannauðskerfi • Umsjón með þjónustu á sviði mannauðsmála til stjórnenda og starfsmanna • Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a. um starfslíðan starfsmanna Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem í lögfræði, stjórnun eða mannauðsfræðum • Víðtæk reynsla og þekking á mannauðsmálum og stefnumótun • Reynsla og þekking af persónuvernd eða opinberri stjórnsýslu er æskileg • Stjórnunarreynsla eða reynsla af verkefnastjórnun er æskileg. • Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi er æskileg. • Góð málakunnátta og færni til að setja fram mál í ræðu og riti • Kunnátta og færni í Excel og Word • Samskiptahæfni, jákvæðni og lipurð í mannlegum samsktipum Nánari upplýsingar um starfið veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið: angantyr@vestmannaeyjar.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vestmannaeyjabær hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 3, 900 Vestmannaeyjum og merkja „mannauðsstjóri Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar nk.


Grace og aðstaða hennar - aðsend grein -

Konurnar í kvennaathvarfiu í Nakuru eru mér ofarlega í huga bæði starfsfólk og þær sem dvelja þar. Ég styrkti kynni mín við Margareturnar tvær, forstöðukonu og félagsráðgjafa þar. Ég spjallaði mikið við þær og þær túlkuðu fyrir mig þegar ég þurfti á að halda. En við margar kvennanna var hægt að tala á ensku en þegar ég var með fræðslu og talaði við allan hópinn var betra að túlka á swahili. Það voru nýjar konur í athvarfinu, einnig voru konur sem ég hitti ári fyrr og er ein þeirra sérstakelga minnisstæð. Ég kalla hana Grace. Hún átti tvö börn og hún vissi ekki hvaðan hún kom eða af hverju hún fannst á vergangi með börnin sín tvö sem voru mjög illa haldin. En sá gleðilegi atburður áttti sér stað að hægt var að finna fjölskyldu hennar. Faðir hennar hafði leitað hennar í mörg ár og taldi að hún væri dáin. Hún kom á athvarfið því lögreglan fann hana á götum borgarinnar með börnin. Hún sagði aldrei hvaðan hún var eða hvað kom fyrir hana.

Henni leið mjög illa og var hún að gefast upp á lífinu. Það var hægt að ná sambandi við fjölskyldu hennar sem býr í þorpi langt í burtu, við landamæri Uganda. En þangað er um tveggja daga ferðalag með rútu. Faðir hennar hafði leitað hennar í mörg ár með hjálp lögreglunnar án árangurs. Í lok nóvember kom faðirinn ásamt systur sinni til Nakuru og var það mikil gleði þegar þau hittu stúlkuna og börnin tvö sem þau höfðu aldrei séð. Faðirinn var með hljóðfærið (harmoniku) sitt með sér og hann spilaði og söng af gleði. Að verða vitni að þessu minnti okkur á söguna sem Jesús sagði um týnda soninn og hinn elskandi föður sem beið eftir syni sínum og hélt veislu þegar sonurinn sneri heim. Við horfðum á föður sem lagði á sig langt ferðalag til að sækja dóttur sína og barnabörn. Hann hélt að dóttirin væri dáin eftir margra ára bið í óvissu. Faðirinn sagði að Grace hefði verið á öðru ári í framhaldsskóla þegar hún hætti óvænt og flutti til

eldri manns og giftist honum. Það var ekki með samþykki föðurins og því sleit hún allt samband við hann og fjölskylduna. En eitthvað það hefur gerst að Grace flúði frá manninum með börnin sín tvö, stúlkuna nýfædda og drenginn á öðru ári. Starfsfólk athvarfsins hefur verið í sambandi við fjölskylduna eftir að þau komu heim. Þorpsbúar glöddust og héldu veislu og Grace er ánægð og börnin una sér vel. Vonandi fær Grace og fjölskyldan góða aðstoð til að vinna úr tilfinningum sínum í framtíðinni. Kærleiki föðurins og fyrirgefning kemur vel fram í sögunni um týnda soninn en við horfðum á föðurinn og týndu dótturina. Í Lúk. 15.24 stendur: Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn. Tóku menn nú að gera sér glaðan dag. Þóranna M. Sigurbergsdóttir


ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS

Bókaðu flugið á ernir.is M Þ M F Frá RKV

l

F

L

Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli S

l l

l

7:15

7:40

l

11:30 11:55

l

17:30 17:55 8:00

l l

20 ára reynsla! Sími 692-3131

8:25

16:30 16:55

l l l l l l l

/crispus

Lent

15:45 16:10

l l l l l

Frá VEY

Brottf.

12:15 12:40 18:15 18:40

772-6766 Heiðarvegur 9

tigull@tigull.is 481 1161 www.tigull.is

Tannlæknar 5. - 7. febrúar - Hjalti Þórðarson

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

刀䄀䘀䜀䔀夀䴀䄀刀

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772

吀刀䄀唀匀吀 伀䜀 䘀䄀䜀䰀䔀䜀  䨀팀一唀匀吀䄀 䠀最愀 爀愀昀最攀礀洀愀爀  愀氀氀愀爀 最攀爀椀爀 戀氀愀Ⰰ 氀欀愀  洀攀 匀琀愀爀琀ⴀ匀琀漀瀀 戀切渀愀椀

一攀琀栀愀洀愀爀 攀栀昀 ∠ 䜀愀爀愀瘀攀最椀 ㄀㔀 ∠ 匀洀椀㨀 㐀㠀㄀ⴀ㄀㈀㄀㘀


Wood burning oven &

beer from local brewery

OPIÐ UM HELGAR

PIZZA FESTA Í HÁDEGINU 31. JANÚAR föstudag – sunnudags frá 17:30- 21:00

pantanir í síma: 551 0055 SunnudaGSTILBOÐ: Tvær Pítsur með 2 áleggjum val um hvítlauksbrauð, margarÍtU eða brauðstanGir og 2l gos á 4.590 kr.

PÍTSUGERÐIN // BÁRUSTÍGUR 1


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 04.tbl 02.árg by Leturstofan - Issuu