Skip to main content

Tígull 03. tbl 06. árg.

Page 1

03. tbl. 06. árg. 24. - 31. janúar 2024

EYJADREIFING TEKIN TIL STARFA VERTU PERLA BERÐU LÍFIÐ ER NÚNA BELUGA HVALIR SOFA EKKI


UPPSKRIFT VIKUNNAR

EYJADREIFING TEKIN TIL STARFA Þau tímamót urðu hjá Tígli núna um áramótin að Pósturinn hætti að dreifa fjölpósti. Leturstofan, útgefandi Tíguls, ákvað því að setja á laggirnar dreifingadeild innan fyrirtækisins og hlaut hún nafnið Eyjadreifing. Sá Tígull sem þú nú lest er sá þriðji sem Eyjadreifing sér um að dreifa og hefur þessi breyting reynst mjög vel.

Purusteik Hráefni: • Svínasíða reiknið 300350 gr af kjöti á mann með beini. • Eldunar leiðbiningar miðast við c.a. 2,5 kílóa stykki. • Gróft salt, pipar • Gætið þess að puran sé vel skorin Aðferð: Setjið vatn í ofnskúffu og setjið puruna niður í vatnið ( á hvolf) saltið aðeins og piprið. Stingið kjötinu inn í 180-200°c heitan ofn og eldið svona í c.a 30-40 mínútur. Takið nú kjötið út úr ofninum og hellið vatninu af.

TÍGULL

Búið til litla púða úr álpappír, takið kjötið af bakkanum, setjið álpappírinn á ofnskúffuna og kjötið síðan ofan á álpappírinn með puruna upp og reynið að glenna puruna. Takið næst haug af grófu salti og makið í puruna og nuddið inn á milli raufanna ásamt smá af pipar og setjið síðan aftur inn í ofninn á c.a. 220°c í c.a. 30-40 mínutur. Ef puran er ekki orðin stökk þá, setjið þá endilega yfirhitan á ofninum á þangað til hún poppar almennilega. Líka er gott að hafa lárviðarlauf og negulnagla til að krydda puruna með.

Duglegur hópur af krökkum hefur því tekið til starfa hjá okkur við þessa dreifingu og biðjum við ykkur að taka vel á móti þeim. Þið ættuð að þekkja þau á fjólubláa litnum en á forsíðu Tíguls vikunnar má einmitt sjá einn starfsmann Eyjadreifingar við störf. Eitthvað hefur borið á því hjá krökkunum að bréfalúgur eru stífar og illopnanlegar. Biðjum við ykkur endilega að skoða hjá ykkur lúgunu og bæta úr ef þurfa þykir. Þá hafa lúgurnar einnig verið torfundnar á einhverjum húsum. Má þá senda okkur skilaboð með leiðbeiningum um hvað gera eigi við póstinn. Við viljum einnig koma því á hér á framfæri að þeir sem ekki vilja þiggja fjölpóst, þar á meðal Tígul, eru beðnir um að láta okkur vita á eyjadreifing@eyjadreifing.is eða hringja í síma 481-1161. Eins biðjum við þá að hafa samband sem ekki hafa fengið til sín blaðið en vilja fá og við bætum úr því hið snarasta.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


NÚ ÞARF ENGINN AÐ FLJÚGA Á HAUSINN!

Í Miðstöðinni færðu allskyns hálkuvarnir. Komdu og kynntu þér málið! -í meistara höndum Strandvegi 30 | s. 481 1475 | www.midstodin.is |

/midstodin


Á annað þúsund manns komu saman og perluðu í Hörpu um helgina.

VERTU PERLA BERÐU LÍFIÐ ER NÚNA ARMBAND Fjáröflunar- og vitundarvakning Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hófst með pompi og prakt í Hörpu síðastliðinn sunnudag 21. janúar. Á annað þúsund manns komu saman og perluðu ný Lífið er núna armbönd og sáu perlupartýparið Eva Ruza og Hjálmar um að halda öllum í stuði ásamt fjölmörgum listamönnum sem komu fram. „Öll Lífið er núna armböndin eru perluð af sjálfboðaliðum og það tókst frábærlega vel til í Hörpu það var algjörlega metþátttaka og samkenndin á svæðinu var einstök. Við náðum að perla 3581 armbönd en við verðum einnig með viðburði á Akureyri, Neskaupstað, Höfn og víðar á meðan á átakinu okkar stendur en því lýkur 12. febrúar. Hægt verður að nálgast upplýsingar um aðra perluviðburði inn á vefnum okkar www. lifidernuna.is og auðvitað kaupa armbandið sem er ein helsta fjáröflun Krafts,“ sagði Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts eftir viðburðinn. Fjölmargir sjálfboðaliðar komu og aðstoðuðu Kraft við að standa að þessum veglega viðburði og vill Kraftur nota tækifærið og þakka þeim öllum fyrir ómetanlega stuðning sem og þeim listamönnum sem komu og auðvitað Guðna forseta sem sagði nokkur orð við þetta tilefni. „Arnar Sveinn, varaformaður Krafts, gaf líka Hildi

og Ágústu HIlmarsdætrum einum af stofnendum Krafts sérstakt viðhafnararmband í tilefni þess að Kraftur fagnar í ár 25 ára afmæli. Móðir Arnar Sveins var ein af þeim sem kom að stofnun Krafts ásamt systrunum og því var þetta alveg einstakt augnablik en hún lést úr krabbameini þegar Arnar var einungis 11 ára. Yfirskrift fjáröflunarátaks og vitundarvakningu Krafts í ár er Vertu perla - Berðu Lífið er núna armbandið og vísar það til þess að með því að bera armbandið sé fólk að sýna stuðning með ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum en félagsmenn okkar taka alltaf eftir því þegar þau sjá fólk bera armbandið úti í samfélaginu. Eða eins og einn sem segir sögu sína í vitunarvakningunni segir „…að sjá einhvern með armbandið sýnir mikinn stuðning, skilning og samhug.“ Um 70 ungir einstaklingar greinast með krabbamein á ári hverju og hefur það bæði áhrif á þau greindu sem og fjölskyldu og ástvini þeirra. Nokkrir félagsmenn Krafts segja sögu sína í átakinu sem hægt er að sjá á www. lifidernuna.is og munu sögurnar birtast líka á samfélagsmiðlum og víðar á meðan á átakinu stendur. Markmið átaksins er að selja ný Lífið er núna armbönd og leyfa almenningi að öðlast innsýn inn í reynsluheima félagsmanna Krafts með því að deila sögum þeirra.

Armböndin verða seld í vefverslun Krafts á www.lifidernuna.is og völdum verslunum Krónunnar. Armbandið verður einnig til sölu í völdum verslunum Hagkaupa, Karakter í Smáralind, Companys í Kringlunni, Kúnígúnd á Akureyri og í Kringlunni ásamt Krabbameinsfélaginu í Reykjavík, í Árnessýslu og á Akureyri. Armböndin eru seld í takmörkuðu upplagi næstu þrjár vikurnar, kosta 2.900 krónur og rennur allur ágóði af þeim í starfsemi Krafts og styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum. Að auki verður Lífið er núna viðhafnarútgáfa af armbandinu kynnt til leiks. „Þetta er í fyrsta sinn sem við erum með viðhafnarútgáfu af Lífið er núna armbandinu en Vera Design á heiðurinn af armbandinu og verður það einnig til sölu í takmörkuðu upplagi,“ bætir Hulda við. En fyrstu eintökin af armbandinu hlutu einmitt HIldur og Ágústa.


„Kraftur var fyrsti staðurinn sem ég hugsaði um þegar ég greinist“

LIFIDERNUNA.IS

MELRÓS EIRÍKSDÓTTIR


BELUGA HVALIR ÞURFA ALLTAF AÐ VERA VAKANDI TIL AÐ ANDA Síðasta ár fórum við í að kynna starfsfólkið á bakvið Beluga Whale Sanctuary, heimili þeirra Litlu Grá og Litlu Hvít, og hér koma síðustu starfsmennirnir. Við kynnumst þeim Alejöndru, Línu og Andra í dag en þau sinna öll mikilvægum störfum á griðarstaðnum.

ALEJANDRA BLAY Starfsheiti: Ég er meðlimur dýraverndar. Hvaðan ertu: Ég er frá Alicante á Spáni. Hversu lengi hefur þú unnið með Beluga Whale Sanctuary: Ég byrjaði í mars 2023, rétt áður en við fluttum mjaldrana út. Svo það eru nú þegar liðnir 9 mánuðir og ég nýt þess í botn! Hvers vegna vildir þú vinna með Beluga Whale Sanctuary? Ég vissi af verkefninu og hafði mikinn áhuga á því. Ég hafði fyrri reynslu af dýralífsrannsóknum og vettvangsvinnu, sérstaklega með sjófuglum, en mig hefur alltaf langað til að vinna nánar við umönnun dýra og þá sérstaklega á svona dýrabjörgunarstað. Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér: Okkur er skipt niður á 3 mismunandi verkefni. Ég vinn mest

með lundunum. Og með lundunum okkar er það fyrsta sem ég geri er að athuga hvort öll dýrin séu í lagi og eftir það byrja ég að þrífa. Það tekur stundum mikinn tíma, 11 fuglar geta kúkað mikið! Eftir það vigta ég þá og gef þeim. Það sem eftir er dagsins hef ég nægan tíma til að setja mismunandi leikföng (auðgun) fyrir dýrin, ég gef þeim meira og hjálpa öðrum samstarfsmönnum mínum í öðrum verkefnum. Við bjóðum uppá leiðsöguferðir alla daga kl 14 og ég fer reglulega með þá gesti um staðinn okkar , mér finnst mjög gaman að tala um þessi sérstöku dýr okkar. Hver er uppáhaldsparturinn þinn í starfinu: Ég elska að læra eitthvað nýtt á hverjum degi, þar sem ég er að vinna með sjávardýr veit ég núna miklu meira um dýravelferð en áður og mér finnst alltaf gaman að hugsa um nýjar leiðir til að bæta líf þeirra. Mér finnst líka mjög gaman að geta hjálpað bænum yfir lundapysjutímabilið. Við leggjum mikið upp úr því að endurhæfa fugla og sleppa þeim og samvinna allra fjölskyldna eyjarinnar er nauðsynleg til þess. Hvert er uppáhaldsdýrið sem þú hefur unnið með: Ég hef mjög gaman af öllum dýrum í sjónum, jafnvel krossfiskarnir geta verið mjög áhugaverðir. Kanntu eitthvað íslenskt orð: Eftir að hafa búið hér í tvö ár og þurft að versla mikið í matvörubúð veit ég að ost er ostur og grænmeti grænmeti. Einnig takk fyrir og bless bless. Einhver skemmtileg staðreynd: Lundar eru traust dýr, þeir eru með sama maka alla ævi. Á Beluga Sanctuary erum við með tvö lundapör: Freyju og Þór, Týr og Óðinn (erum farin að halda að Týr sé jafnvel kvenkyns). Á varptímanum, á sumrin, eyða þau öllum deginum saman við að snerta gogginn og daðra!

ANDRI JÚLÍUSSON Starf: Aðstoðarmaður dýrateymissins Hvaðan ertu: Vestmannaeyjum Hvað ertu búin að starfa lengi hjá Beluga Whale Sanctuary: Í ca. 2-3 ár. Af hverju ákvaðstu að byrja hjá Beluga Sanctuary: Ég ólst upp með dýrum og hef alltaf elskað dýr og mér hefur alltaf langað að vinna með þeim. Svo fékk ég tækifæri til að vinna með þeim og þetta er skemmtilegasta starf sem ég hef haft. Hver er skemmtilegasti starfsfélaginn sem þú hefur haft: Harry er án efa sá allra skemmtilegasti starfsfélagi sem ég hef haft. Hann er fyndinn, alltaf í góðu skapi og varð strax eins og stóri bróðir minn. Hann er líka mjög klár að vinna með hvalina. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér: Ég mæti um kl: 9 og fer á fund þar sem er rætt um allt sem þarf að gera þann dag og annað hvort fer ég í afgreiðsluna til kl: 16 eða byrja að þrífa glerið hjá fiskunum. Þegar ég klára þrifin fer ég að aðstoða við að gefa lundunum að borða áður en ég fer í hádegismat. Eftir það aðstoða ég við allt sem þarf hjálp við sem er allt frá því að þrífa og uppí að hjálpa við leikstundir með dýrunum. Hvað er skemmtilegasti parturinn af starfinu: Það er að gefa Litlu Hvít og Litlu Grá að borða. Þær


eru alltaf til í að fá að borða. Eftirlætis dýrið sem þú hefur unnið með: Það er mjög erfitt að gera uppá milli dýranna. Ég hef unnið með Beluga hvalastelpunum Litlu Grá og Litlu Hvít, lundunum okkar, selunum í Húsdýragarðinum, evrópskum álum, þorskum, ufsum, sænetlum, fýlsungum og ritum og þau hafa öll svo ólíka persónuleika og mismunandi þarfir að það er skemmtilegast að fá að kynnast þessu öllu. Sturluð staðreynd: Beluga hvalir sofa ekki eins og við sofum. Beluga hvalir þurfa alltaf að vera vakandi til að anda því þeir geta ekki andað sjálfkrafa eins og við. Þess vegna, þegar beluga hvalir verða þreyttir, sefur bara helmingurinn af heilanum þeirra á meðan hinn helminginn er vakandi, svo þegar hinn helmingur verður þreyttur þá sefur sá helmingur. Þannig ná beluga hvalir alltaf að vera vakandi til að anda.

LÍNA KATRÍN ÞÓRÐARDÓT TIR Starf: Markaðs- og samfélagsmiðlastjóri Hvaðan ertu: Vestmannaeyjum Hvað ertu búin að starfa lengi hjá Beluga Whale Sanctuary: síðan ágúst 2021 Hver er eftirminnilegasti starfsfélaginn sem þú hefur haft: Ómögulegt að velja bara einn, þetta er svo stór og fjölbreyttur

hópur sem hefur margt ólíkt uppá að bjóða en þó er mikil samheldni innan hópsins. Þetta er ótrúlega skemmtilegur vinnustaður og stór hluti þess er hve skemmtilegt starfsfólkið er Hvernig er venjulegur dagur hjá þér: Allir dagar byrja á kaffibolla og að fara yfir tölvupóstinn. Annars er mikið um fundi, bæði við fólk hérlendis og erlendis, ræða við samstarfsfólk og svara símtölum og senda tölvupósta. Flesta daga bý ég líka til efni fyrir samfélagsmiðlana okkar, við erum með Facebook, Instagram og TikTok þar sem við setjum út efni nokkrum sinnum í viku þannig það fer mikill tími í að finna hvað gæti verið skemmtilegt og fræðandi og svo auðvitað að taka upp efnið sjálft. Hvað er skemmtilegasti parturinn af starfinu: Persónulega finnst mér frelsið sem ég hef það besta við starfið. Það er tekið vel í alla sköpunargáfu og nýjar hugmyndir og mér gefið frelsi til að þróa þær eins og ég vill. Svo er það auðvitað að hitta alla samstarfsfélagana, dagurinn er ótrúlega fljótur að líða þegar maður vinnur með vinum sínum Eftirlætis dýrið sem þú hefur unnið með: Uppáhaldið mitt er hann Moli langvían okkar. Þegar ég var að vinna dýravaktir með lundunum vildi hann alltaf koma og kúra í hálsakotinu á mér og er mikið fyrir að fá klapp og klór Sturluð staðreynd um mjaldra: Þeir læra og herma eftir hljóðum í umhverfinu. JANÚAR Á BELUGA WHALE SANCTUARY Við höfum verið að auka úrvalið á gjafavöru hjá okkur og leggjum mikið uppúr fallegri og íslenskri hönnun á mjög góðu verði. Erum t.d. búin að vera með fiska-og hvala viskustykkin vinsælu í þónokkurn tíma og hafa þau vakið mikla lukku. Höfum líka verið með skartgripi frá Filjós sem finnur innblástur úr íslenskri náttúru og erum við eini söluaðilinn í heiminum með þær vörur, svo má ekki gleyma saltinu góða frá Saltey svo fátt eitt sé nefnt.

Við höfum ákveðið að vera með 15% afslátt af allri gjafavöru fyrir handhafa árskortanna þannig að það margborgar sig að versla sér árskort því við erum alltaf að auka úrvalið. Við viljum líka minna á að gæludýr eru hjartanlega velkomin með eigendum sínum til okkar og auðvitað eigum við til dót handa þeim líka.

Þess má geta að eftir eftir sumarið og lundapysjutímann þá enduðuðu 4 pysjur á að þurfa að búa hjá okkur á safninu. Við fengum inn 68 slasaðar pysjur og náðum að sleppa öllum nema þessum 4. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa augnmeiðsli og hefðu þær ekki náð að spjara sig sjálfar úti á hafi vegna þeirra. Við erum þakklát bæjarbúum að hafa komið með þær til okkar þar sem hægt var að koma í veg fyrir enn alvarlegri meiðsli með réttri umönnun og hafa þær aðlagast lífinu á lundaspítalanum vel. Við höfum verið að skoða nöfn á nýju íbúana og væntanlega er Messi kominn til að vera á einum þeirra. Af eldri fuglunum er það að frétta að við héldum uppboð núna í nóvember á alls kyns listaverkum, til styrktar athvarfinu okkar, og máluðu lundarnir okkar nokkur verk á það. Upprennandi listafuglar. Við viljum að lokum þakka öllum sem hafa styrkt okkur á einn eða annan hátt því fyrir svona góðgerðarfélag eins og Beluga Whale Sanctuary er það ómetanlegur stuðningur. Nýárskveðja frá öllum á Beluga sanctuary - Þóra Gísladóttir


ÞRETTÁNDU EYJATÓNLEIKARNIR FARA FRAM Í HÖRPU UM HELGINA Eyja­tón­leik­arn­ir verða haldn­ir í 13. sinn í Eld­borg­ar­sal Hörpu 27. janú­ ar. Í þetta sinn vera þeir yfirskriftina „Ljúft að vera til.“ Bjarni Ólafur Guðmundsson, Daddi, segir aldrei fleiri lista­menn stigið á svið áður og lofar góðri skemmt­un. „Þá verður hrein og klár rokk­ hljóm­ sveit, Molda, með í fyrsta skipti,“ sagði Daddi og vísar þar til Eyjahljómsveitarinnar Molda sem fram kemur á tónleikunum. „Okk­ ur fannst gráupp­lagt að fá sér­staka gesti á Eld­borg­ar­sviðið, en hljóm­sveit­ in Molda hef­ur ný­verið end­ur­gert lag eft­ir Árna heit­inn Johnsen, sem hann samdi í Eyjagos­inu 1973 og hver veit nema þeir galdri eitt­hvað meira fram.“

Auk Moldu munu að þessu sinni troða upp Jón Jóns­son, Salka Sól, Friðrik Dór, Ragga Gísla, Emm­ sjé Gauti, Vé­ dís Hervör, Bjart­ mar Guðlaugs, Þór­ar­inn Óla, Al­bert Tór­ zham­ar, ásamt Kvenna- og Karla­ kór­um Vest­manna­eyja. Daddi segist vera mjög spennt­ur fyr­ir þess­um hópi og lof­ar meðal annars óvænt­um dú­ett­um. „Ragga Gísla, tengda­dótt­ir Vest­manna­eyja, er að koma í fyrsta sinn og mun taka Þjóðhátíðarlagið sitt. Þá var hún með Grýl­ un­ um á Þjóðhátíð 1982 og hlýt­ur að vísa með ein­ hverj­um hætti í það gigg. Emm­sjé Gauti er líka að koma í fyrsta sinn en hann átti Þjóðhátíðarlagið í fyrra, Þúsund hjörtu. Jón og Friðrik Dór munu ábyggi­ lega taka Á sama tíma, á sama stað og svo á Ljúft að vera til tíu ára af­mæli á þessu ári og svo eru auðvitað 150 ár frá fyrstu Þjóðhátíðinni í sum­ar og við hljót­um að gefa því svo­lít­ inn gaum. Svo erum við alltaf með lista­menn úr Eyj­um í bland sem standa sig alltaf með prýði enda hafa þeir til­finn­ing­una fyr­ir tón­ list­inni.“

Aðspurður hvort það verði aftur tónleikar að ári sagði Daddi ekkert ákveðið í þeim efnum. „Við höf­ um ekki tímt að hætta þessu en því er samt ekki að neita að því fylg­ir áhætta fyr­ir miðaldra hjón í Vesta­manna­eyj­um að standa í þessu og allt velt­ur þetta á því að fólk láti sjá sig. Það hef­ur nán­ast verið upp­selt frá upp­hafi og fyr­ir það erum við óend­an­lega þakk­lát. Miðasala hef­ ur hins veg­ ar farið held­ur ró­lega af stað núna, hvort sem það er ár­ferðið eða eitt­hvað annað. Von­ andi tek­ ur hún kipp fram að tón­ leik­ um. Þrenn­ ir tón­ leik­ar hafa verið tekn­ir upp, tveir af RÚV og ein­ir af Sjón­varpi Sím­ ans, þannig að þetta er mjög góð kynn­ing fyr­ir tón­list­ar- og menn­ ing­ar­lífið í Eyj­um. Okk­ur hjón­um finnst mjög mik­ il­ vægt að halda þess­um dýr­mæta menn­ing­ar­arfi á lofti og því von­um við það allra besta, en sjá­um hvað set­ur.“ Ef þú átt eftir að prófa að mæta á Eyjatónleika í Hörpu er um að gera og skella sér því hver veit nema það verði og seint næst. Miðasala fer fram á tix.is.


Vantar þig fyrirbæn?

Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is Viltu biðja með öðrum? Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum

Íþróttamaður ársins 2023 Viðurkenningarhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja

Þriðjudaginn 6. febrúar kl. 20.00 í Akóges fer fram viðurkenningahátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2023.

ALLIR VELKOMNIR! Íþróttabandalag Vestmannaeyja

Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

Fundir eru sem hér segir:

Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI


8

3 4

#44665

5

ÞRAUTIR

Difficulty: easy

2

7

4

8

#8661

Difficulty: harder

9

8

6

1

3

3

2

6

4

7

8 5

#26506 Handbolti

M

Q

C

V

O

O

U

E

A

J

D

C

G

G

H

O

R

N

9

A

3

X

P

X

F

Y

R

I

R

L

I

Ð

I

R

K

T

J

V

E

U

S

M

S

7 Q 8 Y X

E

6 W G5 J 9 K U I F

L

H

7

K

4

P

2 K M

5

V

M

V

L

V

W

Ó

Y

U

M

A

I

C

W

D

Y

H

T

S

L

H

S

Z

O

1I 4J

T

B

G

2

3

Z

R

2Y

T

Í

T

K

N

8U

P

6T 7H 4N

I

M

R

P

A

A

K

C

Difficulty: moderate

W

J

W

U

A

N

Þ

D

W

Ð

A

T

V

V

U

D

P

F

O

R

N

A

P

N

C

ÍSLAND ÍSLAND MARKMAðUR HANDBOLTI VíTIHORNAMAÐUR FYRIRLIðI

T

Q

F

D

R

F

U1 Á2 K

B

U

4 D

Z6 H

B

Ð

Í

T

F

A

J

X9 R

Í

M

A

A

A

F

1D 3S

L

K

T

A

N

V

I

L

W8 A

K

J

M

I

#94052

G

J

I

N

U

F

D2 W5 L H

X

H

D

E

P

2 I D Y N 7 6 M N J B 5 1 O A U J

X

R

M

I

S

O

7W W E 6X 8 7 S B Y I Y M 4 5 H E R L G M

1 E

1 W3 L 7 9 N A L S Z

3

Difficulty: hard

Z

K

Name:

Difficulty: easy

3

4

1

Created with TheTeachersCorner.net Word S

X

D

9 1

1

G

P

7

8

N

8

6

5

2

4

3 6

3

#134886

Get new sudokus at https://sudoku.cba.si/

2

5 2

5

8

9

7

5

2

2

6 5

7

9 4

1

9

T

#214912

Y

A

F

Difficulty: hard

F

Ö

T

K

I

E

L

K

O

Y

K

N

L

C

B

P

J

W

S

O

E

N

O

S

O

Y

H

I

H

X

Z

G

G

I

K

U

I

S

K

E

P

G

Y

T

K

N

U

Z

Y

Q

O

U

H

P

HANDBOLTI MARKMAÐUR SKYTTA SKYTTA LEIKTöF PUNKTALÍNA ÞJáLFARI

HORNAMAðURFYRIRLIÐI VÍTI LEIKTÖFPUNKTALíNA ÞJÁLFARI DÓMARIDóMARI SIGUR SIGUR

Can't solve it? Check the solution at https://sudoku.cba.si/

1

5


Hægt er að kaupa miða og velja sæti á eyjabio.is FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR

KL. 20.00 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR

KL. 15.00 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR

KL. 15.00

KL. 20.00


Halló Eyjar!

Snjallar lausnir - gott úrval - lágt verð

Við höfum opnað fyrir heimsendingar í Snjallverslun

Þú finnur Snjallverslun Krónunar í App store/ Play store og á kronan.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 03. tbl 06. árg. by Leturstofan - Issuu