03. tbl. 05. árg. 1. - 7. febrúar 2023
Dagur leikskólans 6. febrúar
Mánudaginn 6. febrúar n.k. er Dagur leikskólans, en það var á þeim degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu sín fyrstu samtök. Þetta er merkisdagur í sögu leikskóla.
Viðar Togga sjötugur Skákin spyr ekki um aldur
Þann 3. febrúar næstkomandi verður Viðar Einarsson Togga sjötugur og verður blásið til mikillar tónlistarveislu á Háaloftinu þann sama dag.
Skákþing Vestmannaeyja á sér áratuga langa sögu á vormánuðum hvers árs. Telft er um titilinn skákmeistari Vestmannaeyja og í ár eru 10 þátttakendur á öllum aldri.
KYNNING Á STARFSMÖNNUM SEA LIFE
Jonphilip Regencia starfar hjá Sea Life Trust í dýravelferðarteyminu. Hann er frá Flórída í Bandaríkjunum en foreldrar hans koma frá Filippseyjum.
Hvað hefurðu starfað lengi á Beluga Whale Sanctuary: Síðan í mars 2022
Hvernig er venjulegur dagur hjá þér: Það fer eftir deginum, vinnan er fjölbreytt og fer frá því að hugsa um fiskabúrin með öllum fiskunum og hryggleysingjunum, í að fóðra og þrífa hjá lundunum og auðvitað að finna til mat og hugsa um mjaldrana okkar. Í frítímanum mínum finnst mér svo gaman að spila tölvuleiki, horfa á góðar bíómyndir og ég nýt þess að elda. Ef veðrið er gott þá finnst mér mjög gaman að labba um og taka myndir af fallegu náttúrunni okkar.
TÍGULL
DREIFING:
Hvað er skemmtilegasti parturinn af vinnunni: Uppáhaldsparturinn minn í starfinu er sennilega að vinna með öllum mismunandi dýrategundunum á griðarstaðnum okkar. Eins líka köfun, jafnvel þótt vatnið sé mjög kalt, þá er það heillandi og róandi að vera neðansjávar.
Hvert er uppáhalds dýrið sem þú hefur unnið með: Þessu er erfitt að svara því ég hef unnið með nokkrar dýrategundir og mér hefur þótt gaman að vinna með þær allar. Hér á griðarstaðnum elska ég að vinna með mjöldrunum og lundunum. En ég hef unnið með sæljónum í Kaliforníu áður, sem er mjög gaman að vera í kringum. Ég hef líka unnið á endurhæfingarstöð sjávarskjaldbaka og að vinna náið með skjaldbökum hefur verið ein besta lífsreynslan mín. Ég myndi
líka segja að hákarlar hafi verið eitt af mínum uppáhaldsdýrum til að vinna með. Uppáhaldsdýrið mitt er Peacock Mantis rækjan sem er að finna í Indó-Kyrrahafinu. Þær eru með útlimi eins kylfu sem þær nota til að veiða, sem getur farið hraðar en 22 kalibera byssukúla, og skilað yfir 1500 newton af krafti.
Kanntu einhver íslensk orð: Já, ég tala smá íslensku.
Sturluð staðreynd um mjaldra: Uppáhalds staðreyndin mín er sú að hvíthvalamelónur eru mjög mjóar, vegna þess að þær eru gerðar úr mismunandi fitu og þær geta breytt lögun melónunnar þegar þær gefa frá sér hljóð.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey
katalaufey@tigull.is
Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Fróðleikur um Beluga Whale Sanctuary:
Sea Life Trust eða Beluga
Whale Sanctuary eins og við köllum það, sinnir ótrúlega viðamiklu starfi og er með mikinn og fjölbreyttan hóp fólks í alls kyns stöðum. Allt frá dýraþjálfurum og yfir í markaðs- og samfélagsmiðlafulltrúa.
Vignir og Jonphilip starfa í dýravelferðarteyminu sem sinna ótrúlega mikilvægum störfum á griðarstaðnum okkar.
Á safninu búa margir skemmtilegir karakterar, eins og t.d. þeir Eelijah, Eelvis og Eely, evrópsku álarnir okkar. Við tókum við umönnun þessara ála frá gamla safninu okkar, Sæheimum, en þeir hafa verið í bráðri útrýmingarhættu og því fá þeir allra bestu umönnun sem hægt er. Vissir þú að evrópskir álar geta lifað í allt að 20 ár og á lífsleiðinni gengur líkami þeirra í gegnum margar breytingar? Þeir geta litið út eins og allt önnur dýr eftir því hvar þau eru í hringrásinni!
Þeir t.d. draga inn magann til að láta æxlunarfærin vaxa. Álar eru ótrúlega skemmtileg dýr og hefur dýravelferðarteymið okkar útbúið heimili fyrir þá úr pípulagningarörum og steyptum hólkum. Þeim finnst fátt betra en að kúra í rörunum og horfa á gesti labba framhjá. Við hvetjum ykkur eindregið til að kíkja við og heilsa upp á þá félaga. Við minnum á að safnið er opið alla daga vikunnar. Á föstudögum er opið frá 13-16 og svo fá handhafar árskorta fría leiðsöguferðir með dýrateyminu okkar á hverjum degi kl 14. Ef þú hefur áhuga á að koma í ferð eða hreinlega bara að kíkja inn er hægt að mæta fyrir utan hurðina kl 14 alla daga eða senda okkur línu á Facebook. Það verður tekið vel á móti ykkur.
Nafn: Vignir Skæringsson
Starf: Yfirmaður dýravelferðarteymisins með árherslu á viðhald á aðstöðu, köfun og stjórnun báta.
Hvaðan ertu: Vestmannaeyjum
Hvað ertu búin að starfa lengi hjá Beluga Whale Sanctuary: 3 ár Hver er eftirminnilegasti starfsfélaginn sem þú hefur haft: Margir eftirminnilegir, Iker og Jay frà Kìna gaman að kynnast ólíkum menningarheimum. Jessica sem er nýfarin frá okkur og kenndi mér svo mikið. Audrey yfirmaður minn, hafði óbilandi trú á mér, mun sakna hennar mikið. Svo er Harry ofsalega litríkur karakter og klár og gaman að vinna með honum. Heilt yfir er þetta frábær hópur sem vinnur á Sea Life.
Hvernig er venjulegur dagur hjá þér: Vinnan er mjög fjölbreytt, undirbúa mat fyrir dýrin, þrif á búrum, köfun, og margt fleira
Hvað er skemmtilegasti parturinn af starfinu: Hugsa um dýrin og kafa.
Eftirlætis dýrið sem þú hefur unnið með: Litla Grá er í uppáhaldi.
Sturluð staðreynd um mjaldra: Þeir geta synt afturábak.
HVER VERÐUR SKÁKMEISTARI VESTMANNAEYJA
2023?
Skákþing Vestmannaeyja á sér áratuga langa sögu á vormánuðum hvers árs.Telft er um titilinn skákmeistari Vestmannaeyja og í ár eru 10 þátttakendur á öllum aldri. Yngsti keppandinn Sæþór Ingi fæddur árið 2008 og sá elsti Þórarinn Ingi er fæddur árið 1942. Sæmundur Einarsson er mótstjóri.
Arnar Sigurmundsson setti mótið en minntist um leið Einars B. Guðlaugssonar sem lést 17. desember 2022, 77 ára að aldri. Einar var Skákmeistari Vestmannaeyja 1965-1968 og tók þátt í fjölmörgum skákmótum á vegum Taflfélags Vestmannaeyja, síðast árið 2020.
Skákþingi Vm. 1973 lauk formlega 23. janúar 1993
nákvæmlega 20 árum síðar með síðustu umferð og biðskák Helga Ólafssonar og Andra Hrólfssonar sem hafði beðið í 20 ár. Helgi Ólafsson varð skákmeistari Vm. 1973 – en hann var þá löngu orðinn stórmeistari í skák.
Þátttakendur eru:
Sigurjón Þorkellsson
Hallgrímur Steinsson
Arnar Sigurmundsson
Þórarinn Ingi Ólafsson
Skákþing Vestmannaeyja hefur síðustu ár að jafnaði farið fram í janúar - mars og var þessi breyting tekin upp um 1970, en ýmislegt hefur raskað þessu.
Þann 22. janúar 1973 var næst síðasta umferð tefld að kvöldi 22. janúar – og þá eftir ein biðskák og heil umferð.
Guðgeir Jónsson
Sæþór Ingi Sæmundarson
Sæmundur Einarsson
Gísli Eiríksson
Ísak Elí Ívarsson
Hrafn Oddson
Arnar Sigmundsson teflir hér gegn Sæþóri Inga.
Sigurjón tefldi gegn Gísla í fyrstu umferð.
Fyrsta umferð Skákþings Vestmannaeyja, hér tefla Hrafn og Þórarinn Ingi.
Telfdar eru 9 umferðir þar sem allir tefla við alla. Skákirnar eru 60 mínútur á hvorn leikmann og svo bætast við klukkuna 30 sekúndur við hvern leik sem er leikinn.
Leikið er á fimmtudögum kl 19:30 og á sunnudögum kl 13:30 þar til öllum umferðum er lokið.
Vert er að benda á að áhorfendum er velkomið að kíkja á skákstað og fylgjast með en mótið fer fram í heimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.
Í fyrstu umferð sem fram fór fimmtudaginn 26. janúar voru úrslit þessi:
Hrafn vann Þórarinn Inga.
Sæmundur vann Ísak Elí.
Sæþór Ingi og Arnar gerðu jafntefli.
Sigurjón vann Gísla.
Hallgrímur vann Guðgeir.
Önnur umferð skákþings Vestmannaeyja fór fram sunnudaginn 29. janúar kl. 13:30 og voru úrslit þessi: Hrafn vann Guðgeir Jónsson.
Hallgrímur vann Gísla.
Ísak Elí vann Sæþór Inga.
Þórarinn vann Sæmund. Leikur Arnars og Sigurjóns frestast.
Hallgrímur Steinsson varð Skákmeistari Vestmannaeyja í fyrra en hann og Sigurjón Þorkellsson tefldu úrslitaskákina. Fyrir skákina var Hallgrímur kominn með fullt hús, 8 vinninga og Sigurjón með 7,5 vinning. Skákinni lauk með jafntefli eftir snarpa viðureign og varð því Hallgrímur Steinsson, Skákmeistari Vestmannaeyja 2022 með 8,5 vinninga. Sigurjón Þorkelsson varð í 2. sæti með 8 vinninga.
Fundir eru sem hér segir:
Sunnudaga kl. 11.00
Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur
Miðvikudaga kl 20.30
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30
Opnunartímar:
Mánudagur - lokað
Þriðjudagur - 13.00 til 17.30
Miðvikudagur - 13.00 til 17.30
Fimmtudagur - 13.00 til 17.30
Föstudagur - 13.00 til 17.30
Laugardagur - 12.00 til 15.00
Sunnudagur - lokað
Litla Skvísubúðin
Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.
Passamyndir
Fasteignaljósmyndun
NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI /skvisubudin
www.skvisubudin.is /skvisubudin
thoreyhh19@gmail.com
Skákin spyr ekki um aldur, en Sæþór er yngsti keppandi mótsins.
Sæmundur teflir á móti Ísak Elí.
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi
Guðsteinn tefldi fyrstu umferðina gegn Hallgrími.
VERKEFNI UM LÝÐRÆÐI OG HEIMSMARKMIÐIN
FRÉTTAHORN FÍV
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (FÍV) hélt upp á viðburðaríkan dag 23. janúar s.l. með umræðu um lýðræði og tengdi það við heimsmarkmiðin. Nemendur veltu fyrir sér hugtakinu lýðræði og hvernig það birtist í ýmsum myndum s.s. í friði og réttlæti, frelsi, menntun, sögunni og Íslandi. Einnig veltu nemendur fyrir sér ýmsum tímalínum tengdum efninu.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum varð UNESCO-skóli í lok síðasta árs og var ákveðið að hefja árið með þessu metnaðarfulla og flotta verkefni.
Hefðbundinn skóladagur var brotinn upp og því engar formlegar kennslustundir í gangi þennan dag. Allir kennarar/ starfsfólk og nemendur skólans tóku sig til og unnu að verkefnum dagsins um lýðræði. Nemendum var skipt í stöðvar, alls sex talsins, og hver stöð var með ákveðið málefni t.d. var ein stöðin teikni/
meme/kahoot stöð á meðan önnur hét Unesco stöð. Hinar stöðvarnar voru: Hvað er lýðræði?, Saga lýðræðis á Íslandi, Mannréttindi (og mismunandi upplifun á frelsi), Saga lýðræðiskosninga í Evrópu (tímalínur). Allir tóku vel í verkefnið og var unnið í stöðvunum fram að hádegi.
Skólinn bauð svo nemendum og starfsfólki upp á pizzur í hádeginu og fengu nemendur að keppa sín á milli í Kahoot en spurningarnar tengdust allar lýðræðishugtökum. Nemendur enduðu hádegið á að hengja upp plakötin sín og myndir um afrakstur dagsins.
Dagurinn endaði svo á heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar forseta, ásamt Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyja. Forsetinn var með erindi um lýðræði og fengu nemendur tækifæri til spurninga. Það sem brann hvað heitast á nemendum er kosningaaldurinn og hverjar skýringarnar eru á að einstaklingur sem ekki er með kosningarétt þurfi að greiða skatta af sínum tekjum. Dagurinn þótti takast framar vonum og gaman að fá sjálfan forsetann í heimsókn og ræða um lýðræði. Þennan dag voru einmitt 50 ár síðan gosið í Heimaey var og því tilvalið að hafa daginn öðruvísi og viðburðaríkan.
Háaloftið í febrúar
FÖSTUDAGUR
3. febrúar EYJABÍTLARNIR
LAUGARDAGUR
11. febrúar
PUB QUIZ með Andra Hugó og Jóni Helga
LAUGARDAGUR
18. febrúar
BEGGI & GUNNI ÚR SÓLDÖGG
LÉTTÖL 2.25%
Húsið opnar kl. 20, þeir byrja kl. 21. FRÍTT
INN í boði Gull Léttöl!
Fylgist með á Höllin í Vestmannaeyjum
DAGUR LEIKSKÓLANS 6. FEBRÚAR
Í LEIKSKÓLA ER GAMAN, ÞAR LEIKA ALLIR SAMAN…
Mánudaginn 6. febrúar n.k er Dagur leikskólans, en það var á þeim degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu sín fyrstu samtök. Þetta er merkisdagur í sögu leikskóla sem halda hátíðlega upp á daginn ár hvert.
Markmiðið með Degi leikskólans er margþætt, meðal annars að minna okkur á hversu mikilvægt það er að kynna starfsemi leikskólans fyrir samfélaginu og beina athygli þjóðarinnar að stöðu skólans, gildum hans og menningu.
Kennarastarfið er dásamlegt, það er líf og fjör alla daga og við vitum aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér. Hér er fullur skóli af litlum manneskjum sem treysta á okkur allan daginn.
Nemendur okkar eru eins og svampar, þeir taka á móti öllu því sem við höfum að kenna þeim og borga okkur kennsluna til baka með framförum í námi, faðmlögum og kossum. Það er ekkert eins dásamlegt og að sjá börn ná að leysa verkefni sem þau eru búin að glíma við í einhvern tíma, sjá gleðina og ánægjuna sem skín af þeim þegar þau „geta sjálf“. Leikurinn er hornsteinn leikskólasamfélagsins, gleðigjafi barnsins og lífstjáning þess. Leikurinn á að vera fjölbreyttur og með viðfangsefnum sem krefjast lausna af ýmsum gerðum. Þannig læra börn og byggja upp þroska sinn og færni. Foreldrar treysta okkur fyrir því mikilvægasta sem þau eiga, treysta því að við kennum börnunum þeirra gildi lífsins í upphafi skólagöngu þeirra, því leikskólinn er jú fyrsta skólastigið. Kennum þeim muninn á réttu og röngu, sýnum þeim kærleik, ást og umhyggju.
Leikskólarnir í Vestmannaeyjum eru mjög metnaðarfullir og faglega reknir, þar er leitast af fremsta megni við að efla hvern nemanda á hans eigin forsendum og ýta honum aðeins lengra svo hann byggi ofan á fyrri þekkingu og reynslu. Með þátttöku í hópnum tilheyrir barnið samfélagi leikskólans og það er mikilvægt fyrir barn að upplifa leikskólann sem hluta af tilveru sinni.
Við á Kirkjugerði höldum daginn hátíðlegan eins og aðrir skólar. Föstudaginn 3. febrúar opnar myndlistasýning í íþróttahúsinu, þar eru til sýnis verk frá hverri deild sem nemendur unnu í sameiningu. Með því móti stuðlum við að samvinnu og tillitssemi, sköpum vettvang til umræðna um verkið og eflum gagnrýna hugsun barnanna.
Seinna um daginn bjóða nemendur fjölskyldum sínum í kaffi þar sem foreldrar hafa tækifæri til þess að skoða skólann og þau verkefni sem nemendur hafa verði að vinna að undanfarnar vikur. Verkefnin eru mörg og fjölbreytt og útfærð á ýmsan hátt. Það eru verkefni tengd gosinu, bæði listaverk og skráningar í formi Floorbooks vinnu. Listaverk tengd þrettándanum, mömmu og pabba, myndir tengdar bónda- og konudegi ásamt ýmsu öðru sem börnin okkar hafa unnið að.
Kæru Eyjamenn, til hamingju með Dag leikskólans.
Kær kveðja
Eyja Bryngeirsdóttir, skólastjóri Kirkjugerðis
Myndir frá Kirkjugerði
VIÐAR TOGGA BÝÐUR TIL VEISLU Á SJÖTUGSAFMÆLINU
Þann 3. febrúar næstkomandi verður Viðar Einarsson Togga sjötugur og verður blásið til mikillar tónlistarveislu á Háaloftinu þann sama dag. Upphitun fyrir þessa helgi fer fram á Brothers Brewery, fimmtudaginn 2. febrúar milli klukkan 20 - 21 þar sem Togga bjórinn verður kynntur til sögunnar og verður Viðar á staðnum til að opna fyrsta bjórinn. Á föstudaginn 3. febrúar langar Viðari að bjóða öllum þeim sem vilja fagna þessum tímamótum með honum í kaffi og tertur milli kl. 14-16 á Háaloftinu. Um kvöldið verður blásið til tónleika þar sem sjálfir Eyjabítlarnir koma fram með Viðar Lennon Togga fremstan í flokki. Heyrst hefur að Eyjabítlarnir séu eina hljómsveitin í heiminum sem flytur lög Bítlana „orginal“.
Það má segja að Viðar Togga sé goðsögn í lifanda lífi, með lífsgleði og hlátur að leiðarljósi, hann tekur sig ekki of alvarlega og finnst honum gaman að segja brandara og sérstaklega þegar hann er
sjálfur í aðalhlutverki, þá er hlegið það mikið að hann á sjálfur erfitt með að klára brandarann, eins og hann segir sjálfur: „Þetta er bara yndislegt líf.“ Viðar fer mjög vel með sig og hefur alla tíð gert það. Hann passar það að fara alltaf upp í rúm á sama tíma og sofa í 8 tíma. Hann hefur ekki eina einustu hrukku í andlitinu og í fljótu bragði lítur hann út fyrir að vera fimmtugur. Lífsgildin hjá Viðari eru svo sönn og aðdáunarverð að hver einasti maður ætti að hafa þau til hliðsjónar þegar kemur að heilsu og lífsstíl. Viðar segist hafa alltaf tekið fimm vikur í sumarfrí þegar hann var að vinna í FES.
„Það er nóg að nota tvær vikur í það sem þarf að gera á hverju ári, skrapa, mála og gera við, svo að nota restina til að slappa af, maður verður eins og nýr maður á eftir,“ segir hann. Aðeins að vinna til sex á kvöldin og ekkert um helgar, þá er farið í sund og spjalla við fólk í pottunum og einstöku sinnum í bakaríið á eftir. Þegar heim er komið eru spilaðar plötur
og lesnar bækur, einnig slakað á fyrir framan sjónvarpið og ferðast um heiminn, t.d. fór hann til Kína í síðustu viku og daginn þar á eftir fór hann til Japans, allt á YouTube, „þetta er allt þarna, maður þarf ekkert að fara til útlanda, þar eru líka bílar, hús og fjöll eins og hér, hvað heldur þú að þetta kosti?”
En hver er Viðar Einarsson Togga og hvað er það að vera Toggi?
Til að svara því var okkur boðið heim til hans á Hólagötuna. Þegar inn er komið prýða veggina myndir af Bítlunum ásamt gullplötu John Lennons Imagine. Okkur er boðið inn í eldhús og á borðinu er full skál af Lindu konfekti og tvær dósir af Pilsner. Viðar situr á stól við eldhúsinnréttinguna tilbúinn og segir: ”Jæja, nú byrjar viðtalið”.
Við erum bara vélar Þú ert að vera sjötugur?
Já 3. febrúar og ég vona að ég lifi svo lengi, það verða ekki allir sjötugir. Pabbi fór 57 ára og einn vinur minn fór 36 ára, maður getur
Eyjabítlarnir á Háaloftinu.
farið hvenær sem er, við erum bara vélar.
Hvers vegna er Togga í nafninu þínu?
Þetta er bara gælunafn eins og Siggi á Háeyri og Siggi Vídó, Einar Klink og Addi Yellow bara svona gælunafn. Bara fallegt og gaman að því bara, lífið á að vera gaman. Sumir halda að þetta eru uppnefni en það er ekki.
Hvenær hófst starfsferillinn?
Sko ég fór að vinna strax eftir Gagnfræðiskólann í Hraðfrystistöðinni 1968 til 73’ í gosinu. Þá þurftum við að flýja eins og allir aðrir, fluttum til Reykjavíkur og þar vann ég í bílaverkstæði í Skeifunni 11, að líma saman bremsuklossa og var þar í fjóra mánuði. Við fluttum til Keflavíkur í eitt ár og svo til Eyja aftur. Ég byrjaði á að hjálpa pabba að keyra vörubíl að hreinsa öskuna um allan bæinn á vöktum. Þetta var mikil vinna. Vinna sofa, vinna sofa og þetta gerði ég allt sumarið og haustið 74’. Síðan fór ég að vinna hjá Boga í FES sem sagði að ég ætti að mæta kl. 7 næsta dag, auðvitað, og var að vinna hjá honum alveg til 67 ára þá hætti ég að vinna. Þegar ég hætti að vinna var ég búinn að vinna lengst hjá fyrirtækinu. FES, Hraðfrystistöðinni, auðvitað, og Ísfélaginu, samtals í 53 ár. Þegar manni líkar vel í vinnu og svoleiðis, mikil vinna auðvitað og góða tekjur þá er maður ekkert að skipta um vinnu. Það er allt í lagi að skipta um vinnu ef menn vilja það en enginn er ómissandi. Menn eru bara misgóðir, þegar við föllum frá þá heldur lífið áfram.
Hvenær byrjaðir þú að búa? Þegar ég var 26 ára þá keypti ég mér
íbúð í blokkinni á Hásteisveginum og átti hana í 19 ár svo keypti ég
þessa íbúð af Bigga bróðir og er búinn að vera í henni í 25 ár og líkar bara vel.
Lífið er maður sjálfur
Hefur þú búið með konu?
Nei, nei, ég hef verið með mörgum konu og svona, þær voru allar fráskyldar og ég hefði það bara ekkert betra. Auðvitað vorum við að gera digga,digga dodo þegar
manni langar til þess, auðvitað, en sumar reyktu og svoleiðis auðvitað, og ég var ekkert ástfanginn af þeim. Svo ég hefði það ekkert betra, þá er maður ekkert að binda sig. Að vera einn og einhleypur er bara yndislegt, fólk bara velur sér, ég myndi ekki hafa það betra, lífið er maður sjálfur.
Ekki rekinn bara ekki ráðinn aftur Hvað eru Eyjabítlarnir búnir að starfa lengi?
Hvenær og hvar heyrðir þú fyrsta Bítlalagið?
Það var árið 63’ og við vorum í fótbolta nokkrir peyjar hér fyrir utan þegar Viktor Hjartar, vinur minn og Reynir Bakari koma labbandi upp götuna og eru að tala um hljómsveit sem er að gera allt vitlaust í Bretlandi. Við förum að spjalla um þetta og þeir segja að hljómsveitin heitir Bítlarnir, frá Liverpool og ég segi: „já, já” svo fara þeir sko. Þegar ég kem heim og kveiki á útvarpinu þá eru þeir í útvarpinu að spila Twist And Shout og ég kolféll fyrir þeim. Ég var bara Bítlaaðdáandi strax. Tónlistin var ný og fersk og síðan Bítlahárið, allir ungir karlmenn söfnuðu Bítlahári og fatatískan breyttist. Þetta var eins og nýr heimur bara, maður var bara Bítlaóður bara. Það hefur engin hljómsveit í heiminum náð eins miklum vinsældum og Bítlarnir. Svo upp úr 1970 komu platan Abbey Road sem var síðasta plata Bítlana og þá hætta þeir og fara í sóló feril. Ástæðan fyrir að Bítlarnir hættu sko var sú að þeir voru búnir að vinna alla bikara og titla sem hægt var að fá. Svo var allur töfraljóminn farinn af samstarfinu, hljómsveitir koma og fara.
Sko þetta byrjaði allt með loðnuslúttinu í FES 1986 þá fórum við að setja saman hljómsveit sem hét Bítlabandið, það var ég auðvitað og Runi á Hvanneyri svo voru líka Bjössi Núma og Eyþór Harðar á trommum. Þetta heppnaðist vel og virkilega gaman auðvitað. Svo spyr Þjóðhátíðarnefnd hvort við værum til í að setja saman hljómsveitina aftur og koma fram á Þjóðhátíð 2007. Ég set saman hljómsveitina saman aftur en með öðrum mannskap og skýri hana Eyjabítlarnir. Í henni voru ég, auðvitað og Ásgeir Aron sonur Ásgeirs Sigurvinssonar, Víðir Róberts og Pálmi Harðar. Á þjóðhátíðinni komum við fram og fengum tvo bikara, eina hljómsveitin sem hefur komið fram á Þjóðhátíð og fengið tvo bikara það eru Eyjabítlarnir, engin önnur hljómsveit, mikill heiður fyrir okkur. Síðan þá erum við búnir að fara í fimm tónleika upp á Háalofti, alltaf fullt hús. Bítlarnir hættu fyrir 60 árum og við erum alltaf með fullt hús, þetta er allt komið á netið og það er búið að læka síðuna okkar 570 manns og alltaf fullt hús, þetta er með ólíkindum. Ástæðan fyrir því að við fáum alltaf fullt hús er að við erum með þetta orginal. Þá mætir fólk frekar ef við erum með þetta orginal, við syngjum þeirra lög en notum þeirra rödd, það er númer eitt, við erum ekki danshljómsveit sem syngur með sínum haus, þær þurfa að vera til, auðvitað, sem vilja það en það er bara annað sætið, fólkið vill alltaf toppinn, auðvitað, það er best… orginal.
Hverjir eru í Eyjabítlunum núna?
Sko þeir sem voru í bandinu búa ekki í Vestmannaeyjum lengur, það er erfitt að koma saman til að æfa fyrir tónleika þegar þeir búa ekki hér, þetta er mikil vinna að syngja lögin eins og Bítlarnir. Þeir sem eru í bandinu núna er ég, auðvitað, Viðar Lennon Togga, Grétar Ringó, sir. Biggi McCartney og Þröstur Harrison.
Viðar Lennon Togga
Pálmi býr hér, var hann rekinn?
Nei, nei, Pálmi var ekki rekinn, varstu að heyra það? Sko Pálmi var bara ekki ráðinn aftur. Enn Pálmi er mjög góður vinur okkar og verður það alltaf.
Hvert er þitt uppáhalds Bítlalag?
Hljóðversplötur Bítlanna eru 13 og síðan smáskífur svo þetta er um 20 plötur sem er erfitt að velja úr. Þegar við förum í tónleika
sko þá erum við 18 lög auðvitað
þá veljum við lögin sem fóru á toppinn um allan heim, fólkið vill fá topplögin sem sigruðu heiminn
63’ til 70’. Frægasta lag Bítlana er að sjálfsögðu Yesterday. En það sem var vinsælast er Hey Jude og
það er ekki hægt að velja úr lögum
Bítlana, ef ég á að segja fyrir mig þá væri það Shooting On Better af plötunni A Hard Days Night en hin
eru, jú, stórglæsileg líka. Frægasta plata Bítlana er Sgt. Peppers og platan sem seldist mest er Abbey Road.
Hélt það væri þota að hrapa á húsið Hvert er skrítnasta lag Bítlana?
Back in the USSR! 1968 þá fer ég til Bibba á Skólaveg, þá er ég að kaupa nýja Bítlaplötu, Hvíta albúmið, tvær plötur í einu albúmi og þegar ég er kominn heim þá fór ég að spila hana, auðvitað, en þá verð ég smá hræddur. Þegar fyrsta lagið byrjar, þá byrjar það á þotuhljóði, þá helt ég að það væri þota að hrapa á húsið svo ég hljóp út úr húsinu bara. Ég hafði það svolítið hátt, auðvitað, en ég reiknaði ekki með þessu en svo fattaði ég það að lagið byrjaði svona. Það var miklu meiri hljómgæði í græjunum þarna, ég hafði aldrei spilað plötu með stereoi áður. Ég gleymi þessu aldrei svo lengi sem ég lifi.
Hefur þú farið á Bítlasafnið í Liverpool? Safnið úti í Liverpool er flottasta safnið, auðvitað og það er að þéna 17 milljarða á fjórum eða fimm árum og þeir hættu fyrir 60 árum, þetta er með ólíkindum. Síðan er Bítlasafn úti í Hollandi, Frakklandi og meira að segja á Kúpu líka, Mexicó og Noregi og það er flottast í Liverpool því þaðan komu þeir. Ég er búinn að sjá það í Liverpool og læt það duga bara, ég lifi ekki endalaust.
Ætti að skammta víni í Dalinn
Ætlar þú á Þjóðhátíð í ár?
Sko ég er búinn að vera í 50-60 Þjóðhátíðum og mér þykir alltaf vænt um hana, en þetta er of mikið fyllerí finnst mér. Ég er búinn að segja við fólkið að það er allt í lagi að fá sér í 3 tíma og stoppa svo. Það þarf ekki að drekka í þrjá sólahringa, það þarf ekkert, en það eru ekki allir sem hlusta á þetta. Ef ég fengi að ráða öllu þá myndi ég vilja skammta vín inn í dal, hver maður fengi að taka með sér einn kassa af bjór og svo ekki meira, það er alveg nóg. Það er fullt af fólki sem kemur með kassa, kassa, kassa, bara fullt af kössum og síðan fer það á blinda fyllerí. Þetta er ekki lagi, þetta er allt í lagi í hófi, auðvitað og fyrir þá sem kunna með þetta að fara. Núna um daginn var fólk á fylleríi til að hlusta á Þjóðhátíðarlög í janúar og borga 15 þúsund inn, fyrir að hlusta í þjóðhátíðarlög í janúar. Það er lagi að borga svona 5-6 þúsund inn en ekki 15 þúsund, Diskóið er með þetta allt of dýrt, svo var ég að heyra það að hann væri ekki með þetta orginal.
Opið hús á Háaloftinu
Hvað ætlar þú að gera á afmælisdaginn þinn? Ég verð sjötugur þann 3. febrúar og þá ætla ég að taka á móti gestum upp á Háalofti milli kl.14 og 16. Þar verður kaffi og tertur í boði fyrir alla þá sem vilja koma í spjall og svona. Svo um kvöldið vera tónleikar með Eyjabítlunum á Háaloftinu, húsið opnar kl. 20 en við byrjum að spila kl. 21. Ágúst Halldórsson verður þulur og stjórnar spurningakeppninni í hléinu.
Viðar ásamt samstarfsfélögum í FES á slútti í Básum 1986.
Á fyrsta gigginu ásamt Runa í Bítlabandinu.
Viðar skenkar Sigurði Einarssyni sneið af afmælisköku.
Prentum sálmaskrár
Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár.
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.
SUDOKU ÞÚ GETUR FUNDIÐ NÆSTU BÍÓMYNDIR OG SÝNINGARTÍMA Á WWW.EYJABIO.IS ** MÖGULEGA BÆTAST BARNAMYNDIR VIÐ UM HELGINA** Sunnudagur 5. febrúar kl. 20:00 VILLIBRÁÐ Föstudagur 3. febrúar kl. 20:00 THE FABELMANS THE WHALE Fimmtudagur 2. febrúar kl. 20:00
HEILSUEFLINGARDAGUR
Í SAFNAHÚSI 5. FEBRÚAR 2023 KL. 13.00-16.30
ERINDI: HEILSA ER EKKI HEPPNI
- Már Þórarinsson frá Greenfit
ÞVERFAGLEG NÁLGUN Á HEILSUNA, ANDLEGUR STYRKUR OG GÓÐ NÆRING
- Elísa og Margrét Lára Viðarsdætur
JÓGA MEÐ JÓJÓ JÓHANNS
- Jóhanna Jóhannsdóttir
FORVARNASTARFI HSU FYRIR 60+
- Guðný Bogadóttir
HVERNIG VERÐUM VIÐ 200 ÁRA?
- Tryggvi Hjaltason
HÁMARKSHEILSA
- Sigurjón Ernir Sturluson
Eftirfarandi aðilar verða á staðnum og kynna starfsemi sína:
Hressó // Dugnaður // Eyjaskokk
Allra heilsa // Happy Hips
Janusarverkefnið // Bakskólinn
Sundleikfimi // Nálar og skálar
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Næringarráðgjöf // Heil heilsumiðstöð
Kynningar á starfsemi fyrir börn: ÍBV íþróttafélag // Sundfélag ÍBV // GV Fimleikafélagið Rán // Rafíþróttadeild ÍBV
Eftirfarandi aðilar bjóða upp á opna tíma vikuna 6.-10. febrúar: Hressó // Crossfit Eyjar // Dugnaður Rafíþróttadeild ÍBV // ÍBV íþróttafélag
Happy Hips // Fimleikafélagið Rán
Sundfélag ÍBV
Zone er hönnunarmerki sem á rætur sínar að rekja til Danmerkur. Hönnuðir Zone leggja áherslu á lausnir, naumhyggju og gæði. Vörurnar frá Zone fást í Miðstöðinni
Strandvegi 30 | s. 481 1475 | www.midstodin.is | /midstodin
-í meistara höndum