02. tbl. 04. árg. 26. janúar - 1. febrúar 2022
ALLIR GETA UNNIÐ Í AÐ BÆTA HEILSUNA
Anna Ólafsdóttir er að kenna námskeið sem kallast happy hips. Námskeiðið fer fram í Friðarbóli. Markmið Happy Hips er að kenna fólki sérstaka tækni, með boltum og hreyfiflæði, til að losa um spennu í bandvef, auka frammistöðu og bæta líðan í eigin líkama. Við fengum Önnu til að segja okkur aðeins frá tímunum. Fyrir hverja er Happy Hips? Happy hips er í raun fyrir alla, allir geta unnið í að bæta heilsuna, hvort sem þú ert með verki í líkamanum og vilt vinna í því, eða ert topp íþróttamaður sem vill ná betri árangri með því að vinna með veikleika eða verki/ meiðsli, sem dæmi er hægt að gera öndun skilvirkari með því að nudda öndunarvöðva sem getur nýst fólki í þolíþróttum vel.
TÍGULL
Hvað er þetta að gera fyrir okkur? Tímarnir byggjast upp á léttu hreyfiflæði, öndunaræfingum, bandvefsnuddi með boltum, teygjum og virkjun vöðva. Við losum um spennu og jafnvel samgróninga í vöðvum og bandvef (fasciu) með boltununum. Meðal áhrifa af reglulegu bandvefsnuddi með boltunum eru: aukin líkamsvitund, linar verki og óþægindi-verkjastillandi, bætir öndun, minnkar streitu, eykur hreyfigetu og orkustig, bætir líkamsstöðu og frammistöðu og bætir svefn. Hvernig er þátttakan á námskeiðunum? Þátttakan á námskeiðum hefur verið mjög góð, ég var með 3 hópa fullbókaða í haust, og er nú með 4 hópa því það bættist við námskeið sem heitir Streitustjórnun, en hóparnir eru aðeins minni núna vegna covid.
Er eitthvað sem fólk þarf að hafa með sér á námskeioðin? Ég skaffa allt sem þarf, dýnur, kubba og bolta en er líka að selja boltana og mjög margir vilja eiga sína eigin bolta, sérstaklega núna í covid ástandinu, en það er líka gott að eiga sína eigin bolta til að geta notað þá heima líka, eða fyrir/eftir æfingar eða á ferðalögum. Það er hún Sigrún Haraldsdóttir, jógakennari sem stofnaði vörumerkið Happy Hips. Ég lærði hjá Sigrúnu. Einnig fæ ég símenntun og fræðslu frá henni því hún er með þetta í sífelldri þróun. Þetta kerfi er byggt á Roll Model Method sem er hannað af Jill Milner (tuneupfitness.com). Ég tók námskeið frá henni og má því kalla mig Roll Model Method Practitioner, segir Anna að lokum.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Helga Jóhanna Harðardóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
NÝTTU GÓÐA VEÐRIÐ OG FÓRU Á STAKKÓ 5. Bekkur ákvað að halda í gleðina og fara út að renna síðastliðinn mánudag. Tilvalið að nýta snjóinn og góða veðrið.
ER FYRIR ALLA SEM VILJA HJÁLPA SÉR SJÁLFIR Yngsti viðskiptavinurinn er 8 ára og sá elsti er 97
Anna Hulda Ingadóttir rekur netverslunina allraheilsa.is en þar er hún að bjóða upp á hágæða æfingateygjur, nuddrúllur og fleira sem stuðlar að heilsubót. Anna Hulda er sjúkraþjálfari og finnst mikilvægt að fólk geti gert styrkjandi æfingar heima. Einnig veit hún að með því að með því að fræða skjólstæðinga sína og kenna þeim að hjálpa sér sjálf þá minnka stoðkerfisverkir þeirra og almenn lífsgæði aukast. Æfingateygjurnar okkar eru umhverfisvottaðar og ofnæmisprófaðar. Tígull fékk að forvitnast aðeins meira um verslunina og það sem er í boði. Af hverju opnaðir þú vefverslun? Í starfi mínu hef ég notað FLEXVIT æfingateygjur í 3 ár og að mínu mati eru þetta langbestu æfingateygjurnar m.t.t. fjölbreytileika, endingu og gæði. Mig langaði að finna vörur sem fólk getur notað á marga vegu og eru einfaldar í notkun. Einnig vildi ég bjóða upp á vörur sem sjúkraþjálfarar geta notað í meðferðum og þjálfun á skjólstæðingum sínum og þannig leiðbeint fólki að hjálpa sér sjálft heima.
Hvenær fór vefverslunin af stað? Í mars 2021. Fyrir hverja eru vörurnar? Fyrir alla sem vilja hjálpa sér sjálfir, yngsti viðskiptavinurinn er 8 ára og sá elsti er 97 ára. Er t.a.m. með æfingateygjur sérhannaðar fyrir börn og unglinga. Hvað er vinsælast? Hjá almenningi er það PATrigger nuddrúllan og Revolve æfingateygjurnar. Hjá sjúkraþjálfurum er það þjálfunardýnan og fótaþjálfunarbrettið. Er einhver vara sem þú mælir sérstaklega með? PATrigger nuddrúllan er algjör töfrarúlla. Hún er mjög nett og létt, auðvelt að taka með hvert sem er. Hún er með nuddboltum á endunum sem hægt er að taka af og nota til að þrýsta á vöðvahnúta. Annar boltinn er einstakur og er í laginu eins og avókadó, með honum er hægt að þrýsta á vöðva sem oft er erfitt að ná til með venjulegum nuddboltum. Ætlar þú að bjóða upp á fleiri vörur í framtíðinni? Já, ég er alltaf að
skoða fleiri vörur en ég er vandfýsin og vil bara hafa gæðavörur til sölu. Við erum nú þegar búin að panta hjá þremur nýjum birgjum og hlökkum mikið til að fá þær vörur. Bara spennandi tímar framundan í að leiðbeina fólki að hjálpa sér sjálft í átt að betri heilsu.
SPURNING VIKUNNAR!
Hvað er uppáhalds spilið?
Ari Hafberg Friðfinnsson Það er mjög gaman að spila Partners og spurninga spil eins og t.d. Kviss.
Lilja G. Ólafsdóttir Mér finnst mjög gaman að spila. Uppáhaldsspilið er Kapp-kappall.
Sigþóra Guðmundsdóttir Catan er geggjað spil, Partners, Phase 10, Celestia, Colt Express, Codenames.
Gummi Kára vinur Birgis Reimars Hann spilar aðallega tölvuleiki og Þá er FIFA 22 skemmtilegastur.
Gunnar Ingi Gíslason Skemmtilegast í Parterns, ég er ósigrandi þar.
MANDARÍNA APPELSÍNA KIWI MELÓNA
EPLI BANANI JARÐARBER VÍNBER ANANAS
ÞRAUTIR
MYNDAVÉL SKANNI TÖLVA LYKLABORÐ MÚS SKJÁR PRENTARI SNÚRA FLAKKARI PAPPÍRSSKERI
Zone er hönnunarmerki sem á rætur sínar að rekja til Danmerkur. Hönnuðir Zone leggja áherslu á lausnir, naumhyggju og gæði.
Vörurnar frá Zone fást í Miðstöðinni
-í meistara höndum Strandvegi 30 | s. 481 1475 | www.midstodin.is |
/midstodin
UPPSKRIFT VIKUNNAR Hálfmáni - Calzone Hráefni: 1 poki þurrger 1 kg hveiti 1 tsk salt 6 dl volgt vatn 3 matskeiðar ólífuolíu Hugmyndir af fyllingu með eða án pasta/pizzusósu eftir smekk: Afgangar frá pastamáltíð og allskonar osta afgöngum. Afgangar af kjúklingaréttum, t.d.
tikka masala, eða afgang af lambapottrétti. Afgangar af steiktu grænmeti og mozzarella. Eða klassískt álegg sem er þá sveppir, skinka og ostur. Aðferð: Blandið fyrst saman þurrefnum og bætið við volgu vatni og olíunni. Hnoðið deigið saman í höndum eða hrærivélinni. Ef það verður of þurrt er bætt við meira vatni. Látið deigið hefast í 20 - 30 mín á eldhúsbekknum.
Þegar deigið hefur hefast er því slegið aðeins saman og skipti í 8 jafnstóra hluta. Hver hluti er flattur út í hring. Setjið fyllinguna á hálfan hringinn. Penslið kantana með vatni eða pískuðu eggi, leggið saman hálfmánana og klípið kantana vel saman til að loka. Penslið hvern hálfmána með ólífuolíu. Um að gera að nýta afganga sem þú átt í fyllingu.
FYLGSTU MEÐ HEILSUNNI Nútímatækni leyfir mannig að fylgjast með nánast flestu hvað varðar heilsuna. Til eru forrit sem að mæla hjá þér púls, blóðsykur, er með æfingaráætlun eða þinn eigin einkaþjálfara, hægt er að skrá niður mataræðið og séð hversu margar kaloríur, macros, kolvetni, fitu eða prótein þú ert að borða. Hér eru dæmi um nokkur forrit sem eru vinsæl.
Myfitnesspal - getur skráð hvað þú ert að borða og getur þú þá fylgst með ýmsum útreikningum. Þæginlega við þetta er að flestar íslenskar vörur er hægt að finna í þessu forriti. Þetta er frítt.
Strava er frábært heilsuapp sem heldur utan um alla þína hreyfingu.
SEVEN - 7 Minute Workout Headspace - fyrir þau sem vilja hugleiða eða sofna við hljóð. Slaka á, eða hlusta á leiðbeinandi hugleiðslu. Hægt er að prófa forritið í nokkra daga áður en þarf að borga fyrir.
Sjö mínútna æfingarprógramm. Með þessu forriti getur þú æft hvar sem er, hvenær sem er án allra búnaðar. Yfir 200 æfingar eru í boði. Þetta er frítt.
Waterlogged - Með þessu getur þú skráð inn vatnsinntöku þína og einnig getur forritið þig minnt þig á að drekka vatn sem þú stillir inn eftir hentisemi.
Veri - Þú getur fylgst með blóðsykrinum þínum. En þú þarft að fjárfesta fyrst í mæli sem að þú setur á handlegginn og getur svo skannað blóðsykurinn þinn og séð hvernig hann er að sveiflast.
Ýmis fleiri heilsuforrit eru í boði og er um að gera að skoða og sjá hvað er til. 5K Runner er mjög gott til að byrja að æfa hlaup og auka þol. Þetta er plan til að ná að lokum að hlaupa 5 km. Calm en annað hugleiðsluforrit sem er vinsælt.
Afmæli vikunnar ÁRA ÁRA
27. 01 Ása Hrönn Ásmundsdóttir
ÁRA
25 40 50
28.01 Jóhann Ingi Óskarsson
24.01 Helgi Níelsson
Til hamingju með stórfmælið! Hvað gerðir þú í tilefni dagsins? Upphaflegu plönin var að vera erlendis en gekk ekki upp vegna ástandsins. Mætti í vinnuna og vinnufélagarnir mættu með köku og lúðrasveit!
ER TILEFNI? Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri?
Þú getur sent okkur grein og við birtum hana hjá okkur. tigull@tigull.is
Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina.
Elsku dóttir okkar, systir, mágkona og frænka,
ÞÓRÍNA BALDURSDÓTTIR var jarðsunginn 22. janúar sl. Við viljum koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem hafa sett sig í samband við okkur og stutt okkur á hvers kyns hátt. Sérstakar þakkir fá ÍBV handbolti og Björgunarfélag Vestmannaeyja fyrir þann mikla virðingarvott sem þeir sýndu við útförina. Baldur Aðalsteinsson Guðbjörg Hjálmarsdóttir Hjálmar Baldursson Aðalsteinn Baldursson Soffía Baldursdóttir Guðmundur Ingi Jóhannesson Sylvía Guðmundsdóttir Alexander Guðmundsson Gabríel Guðmundsson Guðbjörg Helgadóttir
Auglýst er eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands Menningarverkefni
Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni
Bætt menning, velferð og samstarf svo lífsgæði eflist og mannlíf á Suðurlandi blómstri
Öflugt atvinnulíf á Suðurlandi með aukinni nýsköpun, bættri framleiðni og fleiri fyrirtækjum
Kynnið ykkur áherslur og úthlutunarreglur sjóðsins á www.sass.is
UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT ÞRIÐJUDAGINN 1. MARS, KL. 16:00 RÁÐGJÖF UM ALLT SUÐURLAND
Ráðgjafar eru á starfsstöðvum um allt Suðurland. Umsækjendur eru hvattir til hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð við gerð umsókna.
STYRKIR@SASS.IS
S. 480-8200
WWW.SASS.IS
Uppbyggingarsjóður er hluti af
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
JEEP WRANGLER RUBICON ER ÞJÓNUSTUAÐILI JEEP OG RAM Í VESTMANNAEYJUM *Bjóðum upp á 35”-40” breytingapakka fyrir Wrangler.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16