02. tbl. 02. árg. 15. - 21. janúar 2020 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is
Eyjabítlarnir
Opið alla daga vikunnar
06:00 - 19:00
Strandvegur 30
481 1104
Eina hljómsveitin í heiminum sem spilar Bítlalög orginal - Eyjabítlarnir í spjalli -
Hverjir eru meiðlimir í Eyjabítlunum? Viðar Lennon Togga Sir Biggi Nielsen McCartney Grétar Ringó Starr Þröstur Harrison Heyrst hefur að þið verðið á þjóðhátið 2020, er það rétt? Engar viðræður við þjóhátíðarnefnd og ekkert í vinnslu þar, en við höfum verið beðnir að spila í Noregi í vor og það er í vinnslu. Hvað reiknið þið með að taka mörg lög? Það verða tekin 20 lög.
Árið 2007 héldum við tónleika á þjóðhátíðinni fengum þá tvo bikara fyrir að vinna búningakeppnina og Bítlasjóvið. Þarna eru Viðar Lennon Togga, Víðir McCartney, Gretar Ringo Starr, og Pálmi Harrison, Þess má get að Biggi Nielsen og Þröstur Jóhannsson komu í hljómsveitina 2014 í stað Víðirs og Pálma en þeir voru ekki ráðnir aftur að sögn Viðars.
Hvað er ykkar uppáhlads Bítlalag? Þau eru öll stórkostleg segir Viðar og ekkert hægt að velja úr.
Okkur skilst að þetta séu síðustu tónleikarnir, hvers vegna er það? Þetta er allt komið á netið og you-tube, hljómsvetir koma og fara og við erum búnir að starfa saman síðan 1986 en ef við fáum gott tilboð verður það skoðað.
Hvað eruð þið búnir að starfa lengi? Í upphafi var hljómsveitin stofnuð í Fesinu 1986 af Viðari Togga, Eyþóri Harðarsyni, Þorbirnir Númasyni og Runa á Hvanneyri.
Ef það verður uppselt, verður þá möguleiki á aukatónleikum? Ef það verður uppselt á tónleikana verður það skoðað og sett í vinnslu segir Viðar.
Eruð þið alltaf með Bítlahár á sviði? Já allir með Bítlahár en að sjálfsögðu er Viðar Lennon með þetta alltaf orginal Bítlahár, svartur tveir. Hvað þurfið þið að varast áður enn þið farið á svið? Við þurfum að borða klukkutíma áður en við förum á svið, vera búnir að pissa og kúka, drekka vatn og te en aldrei áfengi vegna þess að það versta sem getur komið fyrir okkur á sviði er að þurfa að hnerra, hósta eða geyspa segir Viðar Lennon Togga að lokum. í neysluhlé verður boðið upp á spurningarkeppni það er hann Halli Steini sem verður þulur þar. Það verða vegleg verðlaun í boði. Húsið opnar 20:30 og tónleikarnir byrja kl 21:00 Aðgangseyrir aðeins 3.500.- kr
Mannauðsstjóri Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir starf mannauðsstjóra bæjarins laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst á nýju ári. Mannauðsstjóri hefur umsjón með stefnumótun og stjórnun mannauðssmála í samvinnu við bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviðanna. Helstu verkefni: • Stefnumótun og markmiðssetning í mannauðsmálum • Umsjón með mannauðs- og vinnuverndarmálum • Umsjón með jafnlaunakerfi og jafnlaunagreiningum • Ábyrgð persónuverndarmála • Umsjón, gerð og eftirfylgni reglna, ákvarðana og ferla um starfsmannamál • Umsjón með skipulagi fræðslu og starfsmannasamtala • Gerð og eftirfylgni starfsmannahandbókar • Stuðningur og fræðsla til framkvæmdastjóra og forstöðumanna bæjarins um mannauðsmál og persónuverndarmál • Eftirlit með mannauðsupplýsingum og skráningu upplýsinga í mannauðskerfi • Umsjón með þjónustu á sviði mannauðsmála til stjórnenda og starfsmanna • Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a. um starfslíðan starfsmanna Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem í lögfræði, stjórnun eða mannauðsfræðum • Víðtæk reynsla og þekking á mannauðsmálum og stefnumótun • Reynsla og þekking af persónuvernd eða opinberri stjórnsýslu er æskileg • Stjórnunarreynsla eða reynsla af verkefnastjórnun er æskileg. • Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi er æskileg. • Góð málakunnátta og færni til að setja fram mál í ræðu og riti • Kunnátta og færni í Excel og Word • Samskiptahæfni, jákvæðni og lipurð í mannlegum samsktipum Nánari upplýsingar um starfið veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið: angantyr@vestmannaeyjar.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vestmannaeyjabær hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 3, 900 Vestmannaeyjum og merkja „mannauðsstjóri Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar nk.
Asískur kjúklinga-núðluréttur & naan brauð - Uppskrift vikunnar -
1 pakki hrísgrjónanúðlur (Thai rice noodles) 1 bakki af kjúklingabringum (3-4), skornar í strimla 2 msk grænmetisolía 1 msk púðursykur 1 msk bolli sojasósa 2 msk hrísgrjónaedik 1 msk ferskur limesafi 1 msk fiskisósa 1 rauð paprika, skorinn í strimla 2-3 gulrætur, skornar í strimla 2 hvítlauksrif 4 vorlaukar, smátt skorin 3 egg Meðlæti (fólk fær sér það sem það vill) 1/2 bolli salthnetur, hakkaðar gróflega (Til að strá yfir réttinn) 1/3 bolli kóriander, hakkað (Til að strá yfir réttinn) Lime sneiðar til að kreists yfir Einnig er afar gott að hafa Naan brauð með
Aðferð: Sjóðið núðlurnar eftir leiðbeiningum á pakka. Hrærið saman púðursykri, sojasósu, hrísgrjónaediki, limesafa og fiskisósu í skál og geymið. Steikið kjúklinginn á pönnu þar til hann er fulleldaður. Takið kjúklinginn af og setjið papriku og gulrætur á pönnuna og steikið í 1-2 mínútur, bætið þá hvítlauk og vorlauk á pönnuna og steikið aftur 1-2 mínútur. Næst búið þið til pláss á pönnunni og brjótið eggin í miðjuna, hrærið í eggjunum þar til þau eru tilbúin. Bætið kjúklingi, núðlum og sósu á pönnuna og blandið öllu vel saman. Steikið saman í 1-2 mínútur. Stráið fersku kóriander og salthnetum yfir og berið fram. _________________
Naan brauð
1 poki þurrger 2 msk sykur 200 ml mjólk, ylvolg 600 gr hveiti 1 tsk salt 2 tsk lyftiduft 4 msk ólífuolía 180 gr hrein Jógúrt 1 msk maldonsalt 1 msk Garam masala 25 gr smjör 1 hvítlauksrif, pressað Handfylli fersku kóríanderlaufi ger, sykur og volgri mjólk blandað saman. Hveiti, salt, lyftiduft, olía og jógúrt blandað saman við. Þetta er látið hefast í klst. ef tími gefst til, það sleppur alveg að hefa það ekki. Skerðu brauðið niður og flettu það út með höndunum, getur stjórnað stærð brauðanna sjálf/ur. Bræðið smjör og setjið hvítlauksrif saman við og smyrjið yfir og kóríanderlauf klippt yfir brauðin.
ÞÚ FÆRÐ VERKFÆRIN HJÁ OKKUR! Til að gera vinnuna við bygginguna auðveldari er nauðsynlegt að eiga góð verkfæri. Þar komum við sterkir inn með rafmagns- og batterýsverkfæri frá
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
Góð ráð gegn streitu
- Aðsend grein frá Ragnheiði Guðfinnu -
Streita tekur á okkur og langvarandi streita orsakar ótímabæra öldrun og styttir lífslíkur okkar. Mig grunar að það sé enginn sem vilji eldast hraðar en hann er að gera nú þegar. Ef þessi formáli vekur þig til umhugsunar þá eru hér góð ráð til að draga úr streitu þinni. - Slepptu daglegu samsviskubiti. Flest okkar eyðum allt of miklum tíma og orku í samviskubit varðandi það ójafnvægi sem einkennir líf okkar. Ástæðan er álagið og hraðinn sem einkennir okkar daglega líf, það er mikið að gera, fullt af verkefnum og mörg hlutverk. Jafnvægi fæst með því að tileinka sér tímastjórnun, setja sér raunhæf markmið og stefnu. Gefa sjálfum sér tíma til að sinna sjálfum sér og sínum þörfum er ekki synd, þú skuldar þér smá tíma og átt það skilið. - Áttaðu þig á að nóg er alveg meira en nóg. Fullkomnunaráráttan er búin að skila tilgangi í þínu lífi fram að þessu, ef þú sleppir ekki viðhorfinu að hafa allt fullkomið fer það að hamla þér og valda þér streitu. Hættu að eyða tíma í að gera allt 100%, sættu þig við 70% og færðu þig í næsta verkefni. Það mun enginn sjá muninn.
- Mótefnið gegn streitu er svefn. Í svefni nær líkaminn og hugurinn að endurnýja sig og hlaða upp orku sem við töpum í álaginu. Undir álagi er mikilvægt að sofa meira, fara snemma að sofa, ekki vaka frameftir því þá viðheldur þú þreytunni. - Skipuleggðu hluti sem þú þarft að gera eins og læknisviðtöl, klipping og allt slíkt eins nálægt þér og þú mögulega getur, reyndu að minnka tímann sem fer í akstur á milli staða. Þannig stýrir þú betur tíma þínum, sparar tíma og bensín/olíu. - Samnýttu akstur fyrir tómstundir barnanna, það er í lagi að mæta ekki á allar æfingar. - Dragðu mörk og segðu „nei“ við aðra og „já“ við þér. Ef þú forgangsraðar verkefnum fyrir aðra á undan þínum ertu að skapa þér streitu. Þín verkefni er það sem er mikilvægt og liggur á að klára, verkefni fyrir aðra mega bíða og jafnvel getur þú hjálpað við þau þegar þú hefur klárað þín. Það er ekki eigingirni að sinna sjálfum sér og sínum þörfum. - Gefur þér stundum tíma til að skrúfa niður spennuna í taugakerfinu og lækka hávaðann í hausnum í einrúmi. Tími með sjálfum sér í þögninni er góð æfing til að slaka aðeins á og
hægja á sjálfum sér. Slökktu á símanum, tölvunni, sjónvarpinu og útiokaðu áreiti frá nærumhverfinu þínu af og til. Gríptu í bók eða dustaðu rykið af púsluspilinu. Heilahvíld er mikilvæg streituvörn. - Vertu æðrulaus gagnvart óreiðu sem skapast af og til, allir hlutir „þurfa“ ekki að vera á sínum stað hverju sinni og enginn hlutur „á“ sinn stað. Óreiða er ekki sama og óhreinindi, þó svo að púðarnir séu ekki allir á sínum stað og í réttri röð, það er ekki heimsendir. Óreiða gefur til kynna að þú ert önnum kafin við að lifa krefjandi ,raunhæfu og fullnægjandi lífi. Þegar þú upplifir yfirþyrmandi tilfinningu vegna óreiðunnar, dragðu djúpt andann, upplifðu núlíðandi stund og segðu við þig „þetta verður allt í lagi“. - Markviss hreyfing er annað mótefni fyrir streitu. Taugakerfið þarf á hreyfingu að halda til að ná að jafnvægisstylla sig annars safnast spennan bara upp. Aldrei sleppa hreyfingu, það er betra að hreyfa sig eitthvað smá frekar en ekki neitt. - Formúlan er einföld : „H-in fjögur“ Hreyfing, Hvíld, Hollusta, Hugarfar ! www.hugarheimur.is Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir
TÍGULL Vikublað // Netmiðill
Í janúar munum við tileinka blöðunum okkar heilsunni. Ef þú hefur áhuga á að koma þinni þjónustu eða vörum á framfæri þá endilega hafðu samband við okkur í síma 481 - 1161 eða á netfangið tigull@tigull.is Skil í blöðin eru fyrir klukkan 13:00 á mánudögum: 20. janúar 27. janúar
Tígull er frétta- og viðburðablað Vestmannaeyinga sem kemur út vikulega og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Blaðið inniheldur fréttir, skemmtiefni og viðburði í Eyjum sem framundan eru ásamt auglýsingum.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Upplagið er 1750 eintök. Einnig er hægt að skoða blaðið á netinu: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir Auglýsingar: Katrín Laufey Rúnarsdóttir Ritstjórn & ábygðarmenn: Lind & Kata Laufey Hafa samband: tigull@tigull.is Prentun: Prentun.is
AUGLÝSINGASAMNINGUR:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Það borgar sig að skipuleggja vel, bókaðu auglýsingar fram í tímann og fáðu bestu kjörin með því að gera auglýsingasamning.
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í síðasta lagi kl. 13:00 á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega. Texti í auglýsingar þarf að vera á tölvutæku formi og myndefni í góðri upplausn, 300 dpi.
Auglýsingasími 481 1161 / tigull@tigull.is | www.tigull.is
Viðburðir FIM
16 JAN
Sjá nwáwn.atrigull.is w
SPJALLFUNDUR ADHD EYJAR
Rauðagerði
Hamarsskóli kl. 20:00 - 22:00
Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK
15
Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00
JAN
EYJABÍTLARNIR TÓNLEIKAR
18
Háaloftið kl. 21:00
JAN
LAU
18
NORÐLENDINGAÞORRABLÓT
Akóges 20:00
JAN
MIÐ
22 JAN
FIM
16 JAN
MÁN
19 JAN
EINHUGUR AÐALFUNDUR
Sjóve, Heiðarvegur 7 kl. 20:00
ÞRI
20 JAN
15 JAN
MIÐ
15 JAN
MIÐ
LAU
MIÐ
OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK
Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30 OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK
Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00 OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK
Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30
MIÐ
15 JAN
MIÐ
15 JAN
FIM
16 JAN
FÖS
17 JAN
Fimmtudagur
FÖSTUDAGUR 17
16
a
17
JAN
JAN
FÖSTUDAGUR
LAU & SUN JAN
MÁN
19 JAN
Íslenskt tal
enskt tal
kl.21:00
LAUGARDAGUR
LAUGARDAGUR
18
19
JAN
kl. 21:00
kl. 15:00
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
kl. 18:00
19
JAN
JAN
19 JAN
18
JAN
MÁN
19 JAN
19 JAN
ÞRI
20 JAN
ÞRI
20 JAN
enskt tal
kl.18:00
LEIKFIMI
Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50
HANDVERK & HITTINGUR
Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00
STÚLKNAKÓRINN
Vinaminni/Kviku kl. 16:00
SÖNGHÓPURINN
Vinaminni/Kviku kl. 17:00
SPILAVIST
Hraunbúðum (sjálfstæðisf.) kl. 20:00
AÐALFUNDUR Vinaminni /Kviku
kl. 20:00
BOCCIA
Vinaminni/Kviku kl. 16:00
PERLUSAUMUR
Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00
LÍNUDANS
Vinnaminni/Kviku kl. 15:00
VATNSLEIKFIMI
Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20
PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00
kl.21:00
kl. 18:00
kl. 21:00
HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLL ALLA DAGA 08:00 - 12:00
Fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjabær auglýsir starf fjármálastjóra bæjarins laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst á nýju ári. Fjármálastjóri hefur umsjón með áætlanagerð og fjármálastjórnun í samvinnu við bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviðanna. Helstu verkefni: • Umsjón með árlegri fjárhagsáætlanagerð, langtímaáætlun og forsendum áætlana • Annast greiðslu á útgjöldum Vestmannaeyjabæjar í samráði við bæjarstjóra og framkvæmdarstjóra sviða • Útgreiðsla launa og launatengdra gjalda • Umsjón með ávöxtun fjármuna bæjarins ásamt framkvæmdastjóra stjórnsýsluog fjármálasviðs og samskipti við eignarstýringaraðila banka • Annast regluvörslu Vestmannaeyjabæjar. • Umsýsla og eftirlit með fjármálum stofnanna bæjarins. Gætir samræmis í vinnulagi um fjármálasýslu bæjarins. • Frágangur ársreiknings í samráði við bæjarstjóra, aðalbókara, endurskoðendur og framkvæmdarstjóra bæjarins. • Samráð og ráðgjöf til stjórnenda um fjármálastjórnun Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem viðskipta- eða hagfræðimenntun. • Viðbótarmenntun í reikningshaldi eða endurskoðun er kostur • Víðtæk reynsla af fjárhagsáætlanagerð og fjármálastjórnun • Þekking á reikningshaldi • Þekking og reynsla af opinberum fjármálum, sérstaklega sveitarfélaga • Góð þekking, færni og reynsla af fjárhagskerfum, (Navision, Oracle eða annarra sambærilegra kerfa). • Kunnátta og færni í Excel og Word • Samskiptahæfni, jákvæðni og lipurð í mannlegum samsktipum Nánari upplýsingar um starfið veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 488-2000 eða á netfangið: angantyr@vestmannaeyjar.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga. Vestmannaeyjabær hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Bárustíg 3, 900 Vestmannaeyjum og merkja „fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum á netfangið postur@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar nk.
Árangur í mataræði - Sigurjón Ernir skrifar um mataræði Í dag eru margir lífstílskúrar í gangi sem allir eiga að hjálpa þér að grennast og líta vel út sem oftar en ekki virka mjög vel, en mataræði á ekki að vera kúr í X-langan tíma. Matur hefur ekki einungis þann tilgang að halda þér gangandi frá degi til dags. Mataræði tengist allri okkar líkamstarfsemi og er í raun einn mikilvægasti þátturinn í okkar daglegu rútínu. - Þetta þetta virkar í raun allt eins. Flestir vita hvernig á að ná árangri í lífinu hvað varðar vinnu, nám, íþróttir og svo mætti lengi telja. Það þarf aga, skipulagningu, markmið, réttan hugsunarhátt, þolinmæði og loks umbun/verðlaun. Þessir þættir virðast vera á hreinu hjá flestum en þegar kemur að mataræðinu virðist fólk standa á sama og láta eins og það skipti litlu máli. Allir þessir þættir er keðjuverkun sem byrjar ávallt með góðum svefni og næringu: 1. Svefn + rétt mataræði 2. Betri orka 3. Bætt líkamstarfsemi 4. Vellíða og einbeiting 5. Hámarks árangur = 6. Sigur !!! - Byrjaðu frá grunni. 1. Kynntu þér hvað hollt mataræði er. 2. Farðu eftir því sem þú tileinkar þér og slepptu því sem virkar ekki fyrir þig. 3. Ekki missa fókus/áhugann. 4. Ekki elta aðra og vertu ákveðin/n á þínu (þarft jafnvel að vera öðruvísi). 5. Settu þér árangurstengd markmið. 6. Taktu pásur verðlaunaðu þig (þarf ekki að vera sykurveisla) 7. Haltu áfram og náðu toppnum. Til að ná árangri þarft þú að gera þetta fyrir þig og setja þér plan sem þú verður að fara eftir.
- Orkuþörf líkamans: Ef borðað er undir grunnorkuþörf léttist þú en fitnar ef þú borðar yfir þinni orkuþörf. Hér kemstu því upp með að borða frekar óhollt en vera í ágætis holdafari svo lengi sem þú borðar nákvæmlega það magn sem þú þarft yfir daginn eða undir því. En áhrifin á líkamann gefa ekki sömu niðurstöðu og líkamlegt útlit. Innri fegurð hefur alltaf yfirhöndina þegar kemur að líkamanum. - Ekki borða út frá holdafari !!! Að því sögðu þá eru margir sem borða almennt óhollt (halda jafnvel að þeir borði frekar hollt) og líta jafnvel nokkuð vel út líkamlega. Vandamálið er hinsvegar það sem er að gerast innra með þér þ.e.a.s. Ónæmiskerfið, húð, vefir, liðir, bein og líffæri. Líkaminn þarf vítamín, steinefni og rétt orkuhlutfall hvað varðar prótein, kolvetni (trefjar) og fitu til að ná hámarksafköstun !!!
- Auðveldara líf og bætt lífsgæði. Ef líkaminn fær rétta næringu og rétt hlutföll úr flestum flokkum verður allt auðveldara og afköstin meiri. Ef beinin eru sterk, vöðvar í góðu standi, liðir sterkir og ónæmiskerfi vel virkt þarftu sjaldnar að kíkja á heilbrigðisstofnanir. Hugsaðu hvað þú lætur ofan í þig og líkaminn mun margfalt borga þér til baka. P.s. Þú veist í raun alveg hvað þú þarft að gera. Hættum að reyna að finna töfralausnir og stytta okkur leið. Þekking á mataræði er eitthvað sem allir þurfa að tileinka sér. Taktu skrefið og byrjaðu í næstu viku... HEY - en bara núna!! Settu þér markmið og keyrðu þetta í gang! - Instagram: sigurjonernir - Snapchat: sigurjon1352 Sigurjón Out
Andlátstilkynningar og minningargreinar Tígull bíður uppá að birta andlátstilkynningar og minningargreinar í blaðinu og á vefnum.
Saltkristalslampar Birtan er einstaklega hlýleg og falleg og er sögð hafa ýmiskonar jákvæð áhrif á líðan okkar og heilsu.
Sendu okkur póst á tigull@tigull.is og einnig er hægt að hringja í 481-1161 fyrir frekari upplýsingar.
Verð frá 5.500 kr.
www.leturstofan.is
Leturstofan // Strandvegur 47 // 481-1161
SMÁAUGLÝSINGAR Wood burning oven &
beer from local brewery
Opið um helgar
Tígull bíður upp á að birta smáauglýsingar, bæði í blaðinu og á vefnum.
föstudag – sunnudags frá 17:30- 21:00
Sendu okkur póst á tigull@tigull.is og einnig er hægt að hringja í 481-1161 fyrir frekari upplýsingar.
SMÁAUGLÝSINGAR
pantanir í síma: 551 0055
Einbýlishús til leigu Frá og með 20.janúar - 30. maí Áhugasamir hafið samband í síma 695-1807 661-7057 Jóhann Alfreðsson
Hvernig gengur Janus verkefnið? - Létt spjall við nokkra þáttakendur -
Tígull hafði samband við hana Ólu Heiðu og fengum við hana til að fara aðeins yfir verkefnið. En Óla Heiða hefur haldið utan um þetta verkefni ásamt þjálfurum sem eru Erlingur Richards, Magnús Karl Magnússon og Bjarný Þorvarðardóttir. Við fengum að kíkja á einn hópinn í Íþróttamiðstöðinni þegar þau voru á æfingu. Þar náðum við tali af fjórum þátttakendum verkefnisins. En það eru þau Ingibjörg Bernódusdóttir, Þyrí Ólafsdóttir, Ólafur Gíslason og Bjarni Valtýrsson sem við fengum til að svara nokkrum spurningum. Verkefnið stendur yfir í tvö ár, skiptist í fjögur sex mánaða tímabil. Markmiðið með þátttöku er að gera eldri einstaklinga hæfari til að takast á við breytingar sem fylgja hækkandi aldri og spyrna fótum gegn öldrunareinkennum með markvissri þátttöku í þol- og styrktaræfingum. Verkefnið hófst hér í Eyjum í ágúst 2019 með heilsufarsmælingum sem eru endurteknar á 6 mánaða fresti. Einnig eru teknar blóðprufur af
þátttakendum til að fylgjast meðal annars með kólesteróli, blóðsykri og þrígleseríði auk þess er skimað fyrir áhættuþáttum á sviði hjarta- og æðaskjúkdóma. Á hverju þrepi þjálfuninnar fá þátttakendur fræðslu. Í vetur hafa komið til okkar næringarfræðingur, öldrunarlæknir með fræðslu um lyf og þjálfun og sjúkraþjálfari með fræðslu um jafnvægi og jafnvægisþjálfun. Næst kemur til okkar hjartalæknir með erindi um hjarta- og æðakerfið. Fastir æfingadagar eru 3x í viku með þjálfara en aðra daga fylgja þátttakendur fyrirfram ákveðinni þjálfunaráætlun. Þolþjálfun er einu sinni í viku í Herjólfshöllinni og styrktarþjálfun í þreksal Íþróttahússins (Litla Hressó) tvisvar í viku Þátttakendur fá sérstaka styrktaráætlun sem byggir á doktorsverkfni Janusar Guðlaugssonar. Þátttaka fór fram úr björtustu von-
um. Þegar verkefnið var kynnt mættu vel yfir eitthundrað en til þátttöku skráðu sig rúmlega 90. Þjálfun hófst strax í byrjun september og eru þátttakendur núna 89. Þátttakendur eru einstaklega áhugasamir og duglegir í þjálfuninni. Ég veit ekki betur en að fólk sé almennt ánægt með verkefnið. Fyrir okkur þjálfarana er einstaklega gefandi og skemmtilegt að vinna með þessum hópi fólks. Það er ágætt að hafa í huga að þegar við hættum að vera í fastri vinnu þá er það okkar vinna að hugsa vel um heilsuna okkar.
Nafn: Þyrí Ólafsdóttir Aldur: 70 ára Hefur þú stundað hreyfingu að staðaldri? Já fer í sund og hef gert lengi og svo Janus núna með Hefur Janus hreyfingin breytt þínu lífi og þá hvernig? Já mikið, finn fyrir miklu meiri styrk og þessi félasskapur geri mikið fyrir mig Hve oft ertu að æfa í viku? 2x í janus hreyfinguna og fer í sund 3x í viku kl. 6:00 á morgnana Ertu að huga að mataræðinu með? Já tók það líka í gegn með þessu. Nafn: Ingibjörg Bernódusdóttir Aldur: 67 ára Hefur þú stundað hreyfingu að staðaldri? Nei var byrja Hefur Janus hreyfingin breytt þínu lífi og þá hvernig? Já, finn mikin mun, bakið mun betra og öll styrkari Hve oft ertu að æfa í viku? 2x viku hérna og alltaf göngu 30 mín á dag alltaf þegar ég kemst Ertu að huga að mataræðinu með? Nei er með gott mataræði alltaf
Nafn: Ólafur Gíslason Aldur: 70 ára Hefur þú stundað hreyfingu að staðaldri? Nei bara í gegnum vinnuna Hefur Janus hreyfingin breytt þínu lífi og þá hvernig? Já, félasskapur og styrkur og koma sér af stað í meiri hreyfingu hefur gert mikið fyrir mig Hve oft ertu að æfa í viku? 2x hér með Janusverkefninu og svo fer ég 1-2 aukalega í viku að lyfta
Ertu að huga að mataræðinu með? Nei held bara mínu striki áfram með mitt mataræði
Nafn: Bjarni Valtýrsson Aldur: 68 ára Hefur þú stundað hreyfingu að staðaldri? Nei ekki nema síðastliðið rúmt ár Hefur Janus hreyfingin breytt þínu lífi og þá hvernig? Já töluvert, svo hef ég styrkst mikið og félagskapurinn hérna gerir mikið fyrir mig Hve oft ertu að æfa í viku? 4-5x í viku Ertu að huga að mataræðinu með? Nei held bara mínu striki þar
Við erum þjónustuaðilar fyrir eftirfarandi umboð
Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
Aðalfundur Aðstandendafélags einhverfra í Vestmannaeyjum Verður haldin miðvikudaginn 22. janúar kl. 20.00 í sal Sjóve Heiðarvegi 7, gengið inn að aftan. Dagskrá:
vörurnar fást nú í
Ávarp fundarstjóra Ávarp formanns Ávarp gjaldkera Tillögur að starfinu framundan Stjórnarkjör Önnur mál
Félagar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.
772-6766 Heiðarvegur 9
/crispus
Áætlunarflug árið um kring, leiguflug og skipulagðar ferðir til margra af fallegustu stöðum landsins
Bókaðu flugið á ernir.is
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook
Tannlæknar 21 - 23. janúar - Hjalti Þórðarson 25. janúar - Hjalti Harðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772
ORÐARUGL
AUDI
FIAT SAAB
HONDA SUZUKI
MITSUBISHI PEUGEOT TOYOTA VOLVO
Flokkstjóri í þrif óskast Leo Seafood ehf. óskar eftir flokkstjóra til vinnu við þrif og yfirumsjón í vinnslu fyrirtækisins. Æskilegir eiginleikar eru: Hæfni í mannlegum samskiptum, markviss vinnubrögð, stundvísi, áreiðanleiki, þarf að vera heilsuhraust/ur. Áhugasamir hafið samband við Þorstein í síma 823-8807 eða með tölvupósti steini@leoseafood.is Umsóknarfrestur er til 24. janúar
Við höfum ákveðið að hætta allri vörusölu á Leturstofunni. My letra verður því á 20% afslætti meðan birgðir endast. Við þökkum Heimilislíf fyrir samstarfið en hægt er versla vörurnar frá þeim inn á www.heimilislif.is
20% afsláttur
Strandvegur 47 / leturstofan@leturstofan.is