01. tbl. 06. árg. 10. - 17. janúar 2024
ÁRIÐ SEM LEIÐ Um áramót er við hæfi að líta bæði yfir farinn veg og fram á við. Við leituðum því til oddvitana í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Nokkur orð um hvað þeim fannst vera gott á árinu, hvað hefði mátt gera betur og eins um það sem framundan er á nýju ári. Bæði í persónulega lífi þeirra og hjá Vestmannaeyjabæ.
Fyrir mér var árið sem leið hvort í senn skemmtilegt og lærdómsríkt. Við fjölskyldan áttum margar góðar stundir saman og var einn hápunktanna ferð fjölskyldunnar ásamt mömmu og pabba, Vallý systur og strákanna hennar til Tene og það var í fyrsta skiptið sem ég fer þangað. Í haust var hinn hápunktur ársins þegar dótt-
TÍGULL
ir mín tók þátt í frábærri sýningu Leikfélags Vestmannaeyja um spýtustrákinn Gosa. Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með Leikfélaginu og því frábæra starfi sem þar er unnið. Í sumar dvaldi ég í þrjár vikur á Ródos í Grikklandi og lærði lögfræði, nánar tiltekið hafrétt. Námið var býsna strembið en hitastigið í Grikklandi í júlí, sem fór sjaldan niður fyrir 40 gráðurnar og sló 46 þegar verst lét, var á mörkum þess sem sá sem þetta skrifar réði við. Eftir þriggja vikna einveru í þessu frábæra landi var afar ljúft að koma aftur heim í faðm fjölskyldunnar. Af bæjarmálunum er það að segja að stór verkefni settu svip sinn á síðasta ár. Við vorum svo rækilega minnt á það hversu viðkvæmir innviðir okkar eru þegar algert óhapp og óheppni varð til þess að eina vatnslögnin til Eyja laskaðist í haust. Hættustigi almannavarna var lýst yfir og fjöldi fólks vann baki brotnu við að tryggja leiðsluna og vatnsflæði til Eyja. Leiðslan heldur og sérfræðingar vilja meina að hún muni gera það fram á sumarið. Þá er mikilvægt að farið verði í viðgerð en á sama tíma verði gengið frá pöntun á nýrri lögn sem hægt verði að leggja á næsta ári og þannig verði því tvær vatnsleiðslur til Eyja til frambúðar. Þá að samgöngumálunum. Fyrir það fyrsta vil ég segja að það jákvæða sem stendur upp úr er
að áætlunarflug hófst aftur í vetur. Yfir vetrartímann, sérstaklega þegar siglingar í Landeyjahöfn verða erfiðar, er gríðarlega mikilvægt að flogið sé til Vestmannaeyja. Það neikvæða er hins vegar hversu erfiðar aðstæður hafa verið í Landeyjahöfn í haust og í vetur. Ég hef að undanförnu orðið var við umræðu á samfélagsmiðlum þar sem ákveðnir spéfuglar halda því fram að meirihluti bæjarstjórnar hafi tekið ákvörðun um að hætta við ákveðnar umbætur í Landeyjahöfn. Þetta er náttúrulega helber þvættingur og bull - bæjarstjórn hefur aldrei tekið neinar ákvarðanir um framkvæmdir í Landeyjahöfn enda hafa bæjarfulltrúar engar forsendur til þess að meta hvað best sé að gera og hvað ekki. Svo einfalt er það. Saman þurfum við öll að þrýsta á að rannsóknum verði lokið um það hvernig hægt sé að bæta höfnina þannig að hún þjóni sínu hlutverki allt árið um kring og verði sú höfn sem Eyjamönnum var lofað á sínum tíma. Svo eru það við sem erum sannfærð um möguleikann á jarðgöngum á milli lands og Eyja en að mínu viti er alveg ljóst að það er eina varanlega lausnin í samgöngumálum okkar Eyjamanna. Mögulega verða kyndilboruð lagnagöng, sem áformað er að gera í lok þessa árs, einungis fyrsta skrefið að vegtengingu við fastalandið. Njáll Ragnarsson Formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
SENDUM
T FRT ÍAT Ð 10KG
Heilsu og snjallúrin vinsælu í miklu úrvali
ALL
Verð frá
7.992
Heilsu og snjallúr
NÝTT
S TOLVUTEK.I
R Á U J GRÆ 10. janúar 2024 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl
Verð frá
69.990
7.990
Verð frá
2.994
mo Þráðlaus Trust Pri
6.791
Amazfit snjallvog
ti Snilldar göngubret
24.990
nartól
yr Þráðlaus Sony he
59.990
i
Switch íþróttapakk
ÁRAMÓTAPISTILL
Árið 2023 var annasamt en afar skemmtilegt hvort sem var í sveitarstjórn, öðrum störfum eða í fjölskyldulífinu. Árið einkenndist fyrst og fremst af stórafmælum, það byrjaði á hálfrar aldar afmæli Heimaeyjargossins strax í janúar, í mars átti ég sjálf fertugsafmæli, í maí varð einkasonurinn táningur og eiginmaðurinn fertugur. Í október fyllti eldri dóttir mín fyrsta tuginn sinn og í nóvember varð mamma sjötug þannig að það var mikið um stóra afmælisfögnuði og dýrðir þetta árið. Á sviði sveitarstjórnar gerðist ýmislegt sem vert er að nefna, ég sit í stjórn Eyglóar, fyrirtækis Vestmannaeyjabæjar um ljósleiðaravæðingu og komst það verkefni vel á veg á árinu sem er mikilvægt framfaraskref m.a. fyrir lífsgæði íbúa og atvinnustarfsemi. Mikil uppbygging er á fasteignamarkaði og í atvinnustarfsemi og vert að nefna hversu hratt og kröftug uppbygging landeldis á laxi hefur orðið sem nýrrar, spennandi og stórrar stoðar í atvinnulífi Vestmannaeyja. Verkefnið Kveikjum neistann hefur komið Vestmannaeyjum á kortið hvað menntamál varðar og þá nýsköpun, frumkvöðlahugsun,
áræðni og kraft sem Grunnskólinn í Vestmannaeyjum, þ.e. starfsfólk, foreldrar, nemendur og rannsakendur hafa sýnt svo að eftir er tekið.
væmni í flugsamgöngum til Vestmannaeyja, þar til það verður að veruleika þarf ríkið að styðja við þessa samgönguleið til að hún standi undir sér.
Það er þó ýmislegt sem betur mætti fara í rekstri sveitarfélagsins og þeirri þjónustu sem hér er veitt hvort sem það er af hálfu sveitarfélagsins eða ríkis. Sveitarfélagið fékk á árinu áminningu frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga vegna hallareksturs A hluta árið 2022, eitthvað sem við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins höfum varað við í fleiri ár. Ekki nægilegt aðhald hefur verið með útgjaldahlið rekstursins sem leiðir því miður þessa stöðu af sér að tekjur stóðu ekki undir rekstri A-hluta árið 2022. Samgöngumál hafa legið þungt á samfélaginu, skiljanlega. Á sama tíma og frátafir til Landeyjahafnar hafa verið verulegar á síðasta ári hafa flugsamgöngur verið óásættanlegar. Við þær aðstæður sem eru uppi er enn meira aðkallandi að hafa almennilegar flugsamgöngur sem hafa ekki verið við ásættanlegar í lengri tíma. Þar liggur það á okkur bæjarfulltrúum að vera rödd samfélagsins, að koma því vel á framfæri, bæði persónulega við þingmenn og opinberlega að við sættum okkur ekki við þær mylsnur sem okkur er útdeilt hvað flugið varðar og að huga þarf að langtímalausn í okkar samgöngumálum, ekki bara sífellt að slökkva elda frá ári til árs. Þar sé ég ýmsa möguleika fyrir mér þar til við fáum þá einu lausn sem mun bæta samgöngur til lengri tíma sem eru göng, en það væru m.a. bættar aðstæður í Landeyjahöfn með einum eða öðrum hætti, önnur ferja sem siglir til móts við Herjólf til að anna eftirspurn og auka ferðafrelsi íbúa og gesta og verulega bættar flugsamgöngur með tveimur ferðum á dag en ég bind miklar vonir við að rafvæðing i flugsamgöngum í framtíðinni muni koma til með að stórauka möguleika og hag-
Samstarf í bæjarstjórn hefur almennt gengið vel, enda vilja allir bæjarfulltrúar samfélaginu það besta og vilja hámarka þá þjónustu sem við getum veitt með skynsamlegum og ábyrgum hætti. Vestmannaeyjar eru frábært samfélag og einstaklega samheldið. Það eru einstaklingarnir sem hér búa sem skapa töfrana og kraftinn í sveitarfélaginu, hvort sem það er Þjóðhátíðin, Þrettándinn, Goslokin, íþróttatitlarnir eða hvað sem það er þá byggjast framfarirnar á mannauðnum sem við erum einstaklega rík af. Ég er full tilhlökkunar fyrir þessu nýja og spennandi ári, við fáum forsetakosningar í sumar sem verða eflaust spennandi. Ég er vongóð að þau stóru verkefni sem við stöndum frammi fyrir í dag á borð við nýja vatnslögn, ný viðbygging við Hamarskóla, viðbygging við Íþróttamiðstöðina, nýtt gervigras, áframhaldandi uppbygging ljósleiðarans og margt fleira komist vel á veg og mun fylgja því eftir. Persónulega þá mun margt spennandi gerast á árinu, það byrjar vel með heimsókn til Þýskalands til að hvetja landsliðið í handbolta til dáða, frumburðurinn verður fermdur í byrjun apríl og hefðbundin viðhaldsverkefni á stóru heimili liggja fyrir svo eitthvað sé nefnt. Ég tem mér það að horfa þakklát yfir síðasta ár um áramót en jafnframt huga að því hvað sé hægt að bæta og gera betur á hvaða vettvangi sem það er :) Ég óska lesendum Tíguls farsæls nýs árs með kærri þökk fyrir liðnar stundir. Hildur Sólveig Sigurðardóttir Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
HVER ER
EYJAMAÐUR ÁRSINS AÐ ÞÍNU MATI?
Þess sem vel er gert er vel þess virði að minnast. Tígull leitar því til lesenda sinna eftir tilnefningum á Eyjamanni ársins 2023. Sendu inn þína tilnefningu á Tigull.is eða með því að skanna kóðan hér til hliðar.
GOTT SEM VIÐ GERUM SJÁLF – HITT SÍÐRA!
Það var líklega meira áberandi á nýliðnu ári en oft áður hvað það skiptir algjörlega í tvö horn með málefni okkar Eyjamanna. Annars vegar eru öll þau mál sem eru undir okkur sjálfum komin – og hins vegar þau sem við eigum undir ákvörðunum annarra; aðallega ríkisins. Það er skemmst frá því að segja að í okkar eigin málum vorum við í afskaplega góðum málum á árinu. Athafna- og atvinnulíf var á blússandi siglingu og miklar framkvæmdir og fjárfestingar bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hæst ber auðvitað uppbygginguna hjá Laxey – landeldi á laxi – en þar er á ferðinni stærsta einstaka framkvæmd á vegum einstaklinga í sögu Vestmannaeyja. Það sem gerir þetta enn jákvæðara er að þarna á í hlut fjölskylda Sigurjóns Óskarssonar, sem eftir nokkrar kynslóðir í útgerð notar afraksturinn úr þeirri grein til fjárfestinga í nýrri atvinnugrein í sinni heimabyggð. Til fyrirmyndar! En árið var ekki bara athafnasamt heldur líka skemmtilegt. Hæst bar allskonar viðburði tengda því að 50 ár voru liðin frá gosi. Það var
sérstaklega ánægjulegt hversu vel þessir viðburðir allir voru sóttir, sem vonandi er vísbending um að við Eyjamenn ætlum ekki að gleyma; ætlum að halda á lofti minningu og afrekum þeirra sem með dugnaði, áræðni og ósérhlífni gengu þannig fram fyrir 50 árum að Vestmannaeyjar eru það sem þær eru í dag. Eyjamenn standa í ævarandi þakkarskuld við þetta fólk. Mennta- og menningarlíf var afar gróskumikið á nýliðnu ári. Nægir þar að nefna þann góða árangur sem þegar er kominn í ljós af hinu stórmerka rannsóknar- og þróunarverkefni Kveikjum neistann í Grunnskóla Vestmannaeyja. Verkefnið hefur hlotið mikla athygli um allt land – bæði meðal almennings og skólafólks. Ég vil heldur ekki láta hjá líða að nefna hina stórgóðu uppfærslu Leikfélags Vestmannaeyja á söngleiknum Rocky Horror. Sýningin hlaut þann dóm fagfólks að hún væri athyglisverðasta áhugamannaleiksýning á Íslandi 2022/2023 og Leikfélaginu var í framhaldinu boðið með sýninguna á svið Þjóðleikhússins. Æskulýðs- og íþróttastarf var öflugt eins og jafnan áður. Meistaraflokkur kvenna varð Bikarmeistari í handbolta og karlarnir Íslandsmeistarar. Ég verð hins vegar að játa að mér þótti þyngra en tárum tekur að horfa á eftir bæði körlunum og konunum okkar falla úr efstu deild í fótbolta. En nú dugir ekki annað en bíta í skjaldarendur og brjóta okkur leið upp í efstu deild strax aftur! Hér á undan hef ég stiklað á mjög stóru í öllu því jákvæða og góða sem er í gangi í samfélaginu okkar. Við þetta mætti svo bæta góðum og traustum rekstri Vestmannaeyjabæjar og könnunum sem sýna að ánægja Eyjamanna með bæinn sinn er sú
mesta sem mælist á Íslandi. Og fólkinu fjölgar jafnt og þétt. Bæjarbúar voru 4,631 í árslok og hafði fjölgað um 107 á árinu. Þar sem við ráðum ekki… Þegar við lítum til þeirra málaflokka og innviða sem við ráðum ekki sjálf heldur eigum undir öðrum – aðallega ríkinu en jafnvel líka einstaka fyrirtækjum á borð við HS Veitur – blasir við talsvert önnur mynd. Síðustu misseri höfum við verið óþyrmilega minnt á þá veikleika sem eru í flutningum á bæði raforku og vatni til Vestmannaeyja – og samgöngurnar hafa verið með versta móti það sem af er vetri. Þar verða Vegagerðin og ríkið að gera betur! HS Veitur virðast geta dúndrað á Eyjamenn ítrekuðum verðhækkunum á þjónustu í krafti þeirra sérleyfa sem fyrirtækið starfar eftir. Starfsemi HS Veitna í Vestmannaeyjum þyrfti að koma til endurskoðunar í heild sinni og væri nú ekki verra að njóta liðsinnis þingmanna kjördæmisins í þeim efnum. Í sinni einföldustu mynd er staðan sem sagt þessi: Þar sem við ráðum ferðinni sjálf gengur allt að óskum – þar sem við eigum undir aðra að sækja gengur ekki eins vel. Á nýju ári eins og þeim liðnu mun því stór hluti af tíma og þreki bæjaryfirvalda fara í hagsmunagæslu gagnvart þessum ‘’utanaðkomandi’’ aðilum. Og við munum ekki láta deigan síga í þeim efnum. Ég óska Eyjamönnum farsældar og gleði á nýju ári - og þakka samfylgdina á því liðna. Páll Magnússon
ÁRNÝ HELDUR ÁFRAM AÐ SETJA MET
Á hinu sameiginlega móti UMFS og Stökkmótaraðarinnar á Selfossi sem haldið var þann 28. desember s.l. voru sett nokkur Íslandsmet í aldursflokkum öldunga. Mótið er haldið árlega og er skipst á að halda það á Selfossi, Reykavík og Keflavík og eru allir velkomnir. Árný Heiðarsdóttir tók í fyrsta sinn þátt í mótinu og setti mörg met. Hún náði úr frábærum árangri en hún keppir í flokki 65 - 69 ára. Árný er enginn nýgræðingur í því að setja met en hún hafði fyrir þetta mótt sett á fjórða tug meta í hinum ýmsu aldursflokkum unglinga, fullorðinna og öldunga. Á þessu móti setti hún hún met í öllum þeim greinum sem hún tók þátt í. Hún kastaði kúlu 8,39 (3 kg), í hástökki án atrennu 1,05 m, í langstökki 2,04 m og í þrístökki 5,27. Til hamingju Árný.
SÁLMASKRÁR / TILKYNNNINGAR / MINNINGARGREINAR Við bjóðum upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám. Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu í blaðið og tilkynningu á vef. Verð: 12.400 kr. Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 leturstofan
leturstofan
Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is
Vantar þig fyrirbæn?
Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is Viltu biðja með öðrum? Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum
Passamyndir Fasteignaljósmyndun Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com
Opnunartímar: Mánudagur - lokað Þriðjudagur - 13.00 til 17.30 Miðvikudagur - 13.00 til 17.30 Fimmtudagur - 13.00 til 17.30 Föstudagur - 13.00 til 17.30 Laugardagur - 11.00 til 14.00 Sunnudagur - lokað
Fundir eru sem hér segir:
Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI
NÝJA
Litla Skvísubúðin
Flötum 29
Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.
TANNLÆKNASTOFAN
Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012
LEKUR? Þak- og þakrennuskipti
A lm e n n t v ið h a ld & s m íð i!
www.skvisubudin.is
tannsi@eyjar.is
/skvisubudin
/skvisubudin s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com
ÞRAUTIR
GAGNAMAGN TÖLVUR LYKLABORÐ MÚS
SKJÁR SNÚRUR SKRIFBORÐ STÓLL
FORRIT INTERNET HEYRNATÓL MÚSAMOTTA
ÞRETTÁNDINN Þrettándagleði hefur verið haldin í Eyjum frá árinu 1948. Um 200 manns koma að hátíðinni þar sem Grýla, Leppalúði, jólasveinar, tröll, álfar og aðrar kynjaverur kveðja jólahátíðina með Eyjamönnum og gestum þeirra. Knattspyrnufélagið Týr tók við þrettándagleðinni í Eyjum árið 1948. Frá því að félögin Týr og Þór voru sameinuð undir merkjum ÍBV 1997 hefur íþróttafélagið haldið hátíðina. Kynslóð fram af kynslóð hafa Eyjamenn haldið Þréttándahátíðinni gangandi. Nokkrir hópar koma að skipulagi og framkvæmd hátíðarinnar, má þar nefna blysgöngu jólasveina, gerð trölla í tröllasmiðjunni, sprengjusveitin og flugeldasýningar. Hátíðin er magnað sjónarspil og hvílir yfir henni mikil dulúð. Komin er nokkurra ára hefð fyrir því að halda þrettándagleði ÍBV um helgi. Þetta hefur gefist vel og er hátíðin farin að lokka aukin fjölda gesta til Eyja til ánægju og hagsbóta fyrir hátíðina og samfélagið allt. Undanfarin ár hefur þessi hátíð verið nokkur konar bæjarhátíð sem stendur alla helgina og hafa margir komið að hátíðinni með ÍBV íþróttafélagi t.d. matsölustaðir, verslanir og Vestmannaeyjabær. Lengri opnun verslana og tilboð yfir helgina. Íþróttamiðstöðin opin fyrir fjölskyldur þar sem hægt er að leika sér í boltaleikjum og fleira. Þrettándagleðin hefur verið haldin á malarvellinum í Löngulág en það verður fróðlegt að vita hvernig og hvar næsta þrettándagleði verður haldin þar sem til stendur að byggja á malarvellinum.
Á að taka baðið í gegn? Þú færð allt fyrir baðherbergið á einum stað. Við bjóðum við upp á frábært úrval af blöndunartækjum, vöskum og klósettum. Gólefni ásamt úrvali af veggklæðningum.
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is /midstodin
@midstodin