01. tbl. 02. árg. 8.- 14. janúar 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is
Komin heim frá Keníu
Þrettándagleðin í myndum
Brotið blað í sögu úteyinga
Við fórum til að byggja upp neyðarathvarf fyrir konur. Þetta athvarf er það eina í milljón manna borg.
Tígull mætti á Grímuball Eyverja og á Þrettándagleðina þann 3. janúar síðastliðinn og smellti af myndum.
Brotið var blað í sögu Úteyinga þegar kona gekk í félagið laugardaginn 4. janúar síðastliðinn.
Saltkristalslampar Birtan er einstaklega hlýleg og falleg og er sögð hafa ýmiskonar jákvæð áhrif á líðan okkar og heilsu. Verð frá 5.500 kr.
www.leturstofan.is
Leturstofan // Strandvegur 47 // 481-1161
Brotið var blað í sögu Úteyinga þegar kona gekk í Veiðifélag Bjarnareyinga - Kristín Bernharðsdóttir var tekin í félagið 4. janúar 2020 -
Brotið var blað í sögu Bjarnareyinga þegar kona gekk í félagið laugardaginn 4. janúar síðastliðinn. Bjarnarey hefur verið ansi mikið karlavígi mjög lengi eða síðan félagið var stofnað, lengi vel máttu konur ekki koma út í Bjarnarey líkt og aðrar úteyjar. Að okkar vitund þá eru Bjarnareyingar fyrstir til að vígja konu inn í félagið sem er virkilega vel gert og mættu hin félögin taka þá til fyrirmyndar. Það var hún Kristín Bernharðsdóttir sem braut þessa reglu með því að vera tekin inn í félagið 4. janúar 2020. Kristín er dóttir Bernhards Ingimundarsonar og Fjólu Sigurðardóttur (Dedda og Fjólu). Kristín er gift honum Sigurði Baldurssyni og eru þau nú bæði félagar og hafa mikið gaman af. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá eru þau virk í að koma og hjálpa til við viðhald í eynni. Kristín fór með félögunum til Grímseyjar fyrir síðasta lundaball til að veiða fyrir ballið, hún hafði aldrei veitt lunda áður og gekk það vel að hennar sögn. Þeir Ómar Krabbi og Pétur Steingríms veiddu og veiddu
og ég kippti (að kippa þýðir að binda saman lundana í búnt líkt og á myndinni sem fylgir með af Kristínu með kippu af lunda) Bjarnareyingar eru með lokaða facebooksíðu þar sem Pétur Steingrímsson óskar Kristínu til hamingju með að vera fyrsta konan sem samþykkt er inni í Veiðifélag Bjarnareyju. “Ég hef frábæra reynslu af dugnaði Kristínar frá því í Grímsey s.l. sumar þegar við Bjarnareyingar fórum þangað til veiði á lunda fyrir lundaballið. Skemmtileg, jákvæð og umfram allt harðduglegur kvenmaður og er ekkert að væla þó þurfi að taka til hendinni. Sama hvort það var að elda, smyrja brauð handa okkur, veiða lunda eða hamfletta, ekkert mál hjá minni. Fyrir nokkrum árum hefði þetta aldrei gerst en karlrembuvígin falla eitt af öðru og er það bara gleðiefni. “ segir Pétur.
TÍGULL Vikublað // Netmiðill
Í janúar munum við tileinka blöðunum okkar heilsunni. Ef þú hefur áhuga á að koma þinni þjónustu eða vörum á framfæri þá endilega hafðu samband við okkur í síma 481 - 1161 eða á netfangið tigull@tigull.is Skil í blöðin eru fyrir klukkan 13:00 á mánudögum: 13. janúar 20. janúar 27. janúar
Tígull er frétta- og viðburðablað Vestmannaeyinga sem kemur út vikulega og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Blaðið inniheldur fréttir, skemmtiefni og viðburði í Eyjum sem framundan eru ásamt auglýsingum.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Upplagið er 1750 eintök. Einnig er hægt að skoða blaðið á netinu: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir Auglýsingar: Katrín Laufey Rúnarsdóttir Ritstjórn & ábygðarmenn: Lind & Kata Laufey Hafa samband: tigull@tigull.is Prentun: Prentun.is
AUGLÝSINGASAMNINGUR:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Það borgar sig að skipuleggja vel, bókaðu auglýsingar fram í tímann og fáðu bestu kjörin með því að gera auglýsingasamning.
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í síðasta lagi kl. 13:00 á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega. Texti í auglýsingar þarf að vera á tölvutæku formi og myndefni í góðri upplausn, 300 dpi.
Auglýsingasími 481 1161 / tigull@tigull.is | www.tigull.is
Dugnaður 5 ára á þessu ári - Steina og Minna bjóða upp á 9 tíma í viku -
Dugnaður ehf hóf starfssemi haustið 2015 í Týsheimilinu. En það eru þær Minna Ágústsdóttir og Þórsteina Sigurbjörnsdóttir sem eru eigendur Dugnaðar ehf. Nú tæpum fimm árum seinna erum við komnar í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og erum með níu tíma á viku, Þetta eru markvissir, skemmtilegir og árangursríkir hópþrektímar fyrir alla sem vilja komast í frábært alhliða form í góðum félagsskap. Unnið er með teygjur, kraftbolta, ketilbjöllur, kaðla, handlóð, róðrarvélar, hjól, eigin líkamsþyngd og fleira spennandi og skemmtilegt. Þáttakendur stjórna álaginu sjálfir. Tímarnir eru fyrir bæði kynin og gaman hvað strákunum hefur fjölgað mikið. Við leggjum mikla áherslu á vellíðan og heilbrigði og það er það sem við erum sannarlega að sjá hjá hópnum. Margir koma til okkar og segja okkur frá breytingum sem þeir finna á sér og það finnst okkur ánægjulegt. Við hvetjum ykkur til þess að koma og prufa nokkra tíma. Það er mikil fjölbreytni í tímum vikunnar og því ekki marktækt að koma bara einu
sinni. Yfir vikuna eru þoltímar, styrktartímar og powertímar, auk Training for warriors og ketilbjöllutímar. Endilega sláist í okkar skemmtilega hóp, við tökum vel á móti nýjum iðkendum.
30% AFSLÁTTUR
U G N I N L Á AF INNIM
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
Þóranna og Steingrímur komin heim frá Kenía - Eina athvarfið í milljón manna borg -
Þóranna með konum sem hafa verið á kvennaathvarfinu.
Gleðilegt ár og þakkir fyrir góðan stuðning á árinu 2019. Flestum lesendum Tígulsins er kunnnugt um ferð okkar hjóna til Kenía í október til desember. Við fórum til að byggja upp neyðarathvarf fyrir konur. Verkið gekk í alla staði vel og viljum við þakka fyrirbænir, hvatningu og fjárhagslegan stuðing til verksins. Ykkar framlag skipti miklu máli. Við gátum sent peninga á undan okkur svo verkið var byrjað, við gátum svo fylgt því til enda og haldið gleðiteiti við verklok. Núna er húsnæðið gerbreytt og starfsfólkið og konurnar senda bestu þakkir til ykkar allra. Ein kvennanna sagði: ,,Eruð þið að gera þetta fyrir okkur? Þið breytið okkur úr engu í eitthvað!“ Við stefnum að því að styrkja kvennaathvarfið áfram á þessu ári. Teiknaður hefur verið skáli á lóðinni sem kemur til með að vera setustofa og innileik-
svæði fyrir börnin. Þetta athvarf er það eina í milljón manna borg. Leið okkar lá um Nairobi, höfuðborgina og kynntum við okkur starf ABC barnahjálpar og kenndum starfsfólki m.a. skyndihjálp og urðu John og Rose, starfsmenn þar, góðir vinir okkar. Konurnar í saumaskólanum í New Life og í Ronda og Kipanga fátæktarsvæðunum eru í huga okkar. Við dvöldum sex daga í þorpinu Gitare og þar kynntumst við fólki sem vinnur við akuryrkju og menning og siðir eru um margt ólíkt borgarlífi.
Kenía er land þar sem ætti ekki að vera mikil fátækt en vegna spillingar ráðamanna og græðgi líða margir. Við hittum aftur athafakonuna Madam Joyce og er hún með áætlun um að hjálpa hinum fátæku og vinna að bættri líðan fólks. Við eigum eftir að fara aftur til Kenía og höfum við fengið mörg boð um að heimsækja einstaklinga og kirkjur. Eftir góða hvíld um jól og áramót stefnum við að því að því að safna meiri fjármunum til að klára aðstöðuna í kvennaathvarfinu að utan. En börnin skríða og ganga í möl og mold.
Dvölin í Kenía fór vel með okkur, alltaf gott veður, hollur matur og vinalegt fólk. Við hittum marga sem búa við mikla fátækt en einnig kynntumst við fólki í áhrifastöðum. Þegar sumir heyrðu af því sem við vorum að gera þá sögðu þeir að auðvitað ættu þeir að hjálpa sínu fólki en ekki langt að komnir útlendingar.
Reikningurinn er hinn sami, 0185-26-3667, kt. 121155-5919. Það er ómetanlegt að finna stuðning bæjarbúa og margir í Kenía senda blessunarkveðjur til ykkar í Eyjum. Steingrímur og Þóranna
Með einum prestinum sem þau heimsóttu í Kipanga.
Konur í Kipanga.
Athvarfið tilbúið - teiti í verklok.
Nýr eldiviður.
Í Nairobi. Við minnisvarða Kenyatta fyrsta forseta Kenía
Í Nairobi skoðuðum við menningarsafn
Í Nairobi.
Kveðjustund með pastor Nancy og Madam Joyce
Börn í Gitare.
Sjá nwáwn.atrigull.is w
Viðburðir MIÐ
08 JAN
AGLOWFUNDUR
Rauðagerði
Safnaðarheimilið Landakirkju kl. 20:30
Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK
08
Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00
JAN
10
ÚTFÖR LEIFS MAGNÚS GRÉTARSSONAR THISLAND
Landakirkju kl. 15:00
JAN
LAU
18 LAU
18
09
Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30 OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK
13
Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00
JAN
ÞRI
OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK
14
EYJABÍTLARNIR
Háaloftið kl. 21:00
JAN
OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK
MÁN
Akóges 20:00
JAN
FIM
JAN
NORÐLENDINGAÞORRABLÓT
08 JAN
MIÐ
08 JAN
MIÐ
FÖS
MIÐ
Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30
JAN
MIÐ
08 JAN
MIÐ
08 JAN
FIM
09 JAN
FÖS
10 JAN
FÖSTUDAGUR 10
LAUGARDAGUR
LAUGARDAGUR
11
11
JAN
JAN
MÁN
13 JAN
JAN
MÁN
13 JAN
kl.21:00
SUNNUDAGUR 12
SUNNUDAGUR 12
JAN
kl. 21:00
kl. 18:00
SUNNUDAGUR 12
JAN
JAN
ÞRI
14 JAN
ÞRI
14 JAN
LEIKFIMI
Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50
HANDVERK & HITTINGUR
Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00
STÚLKNAKÓRINN
Vinaminni/Kviku kl. 16:00
SÖNGHÓPURINN
Vinaminni/Kviku kl. 17:00
SPILAVIST
Vinaminni/Kviku kl. 20:00
SÖNGHÓPURINN Á HRAUNBÚÐUM
kl. 14:45
BOCCIA
Vinaminni/Kviku kl. 16:00
PERLUSAUMUR
Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00
LÍNUDANS
Vinnaminni/Kviku kl. 15:00
VATNSLEIKFIMI
Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20
PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00
kl.18:00
kl.18:00
kl. 21:00
HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLL ALLA DAGA 08:00 - 12:00
Heilsuvera – fræðslusíða heilsugæslunnar - Aðsend grein frá HSU Kröfur samfélagsins um aukna nýtingu upplýsingatækni innan heilbrigðisþjónustu og stjórnsýslunnar almennt, verða sífellt meiri, en almennt er viðurkennt að aukin nýting upplýsingatækni innan heilbrigðisþjónustu auki öryggi sjúklinga, skilvirkni og gæði þjónustunnar. Á tímum tölvutæki og almennrar sítengingar við internetið er hægt með auðveldum hætti að leita sér upplýsinga um allt milli himins á jarðar. Þar eru upplýsingar um heilsu og heilbrigði ekki undanskildar. Upplýsingar koma úr ýmsum áttum og fólk oft hálf ringlað yfir öllum þessum upplýsingum. Til að tryggja það að fólk fái góðar upplýsingar um heilsu, sjúkdóma og einkenni þeirra hefur heilsugæslan og Embætti Landlæknis stofnað heimasíðu er kallast Heilsuvera.is. Á þessari síðu sem er í sífelldri endurskoðun eru gagnreyndar upplýsingar sem hægt er að treysta á. Það má segja að þjónusta síðunnar sé tvíþætt: Í fyrsta lagi er þar hægt að finna margvíslegan fróðleik um heilsueflingu eins og næringu, hreyfingu, líðan og svefn. Ýmsar upplýsingar eru um sjúkdóma, veikindi og einkenni þeirra. Ferðafólk getur fundið upplýsingar um bólusetningar
og ferðalög. Börn og ungmenni sem og eldri borgarar geta einnig leitað sér upplýsingar sem er sett inn með þarfir þessara aldurshópa í huga. Foreldrar ungbarna geta fundið allan þann fróðleik sem fram fer í ungbarnaverndinni. Þarna er hægt að fá aðstoð við að hætta að reykja sem og taka áfengispróf svo eitthvað sé nefnt. Þegar fólk tekur ábyrgð á eigin heilsu er mikilvægt að leita sér gagnreyndrar þekkingar svo fólk geti tekið góðar ákvarðanir fyrir sína heilsueflingu. Önnur þjónusta sem hægt er að finna á síðunni er Mínar síður þar sem fólk getur skráð sig inn með rafrænum skilríkjum. Með aðgangi að Heilsuveru geta einstaklingar nú fengið yfirsýn yfir lyfjanotkun sína, sótt rafrænt um endurnýjun lyfseðla, séð stöðu lyfseðla í lyfseðlagátt, séð ofnæmi sem hefur verið skráð í sjúkraskrá, séð framkvæmdar bólusetningar, átt örugg rafræn samskipti við heilbrigðisstarfsmenn og bókað tíma rafrænt á heilsugæslustöð. Auk þess er hægt að fá aðgang að upplýsingum eigin barna að 16. ára aldri. Embætti landlæknis og heilsugæslan munu halda áfram að þróa Heilsuveru og munu einstaklingar smám saman fá aukinn aðgang að eigin heilbrigðisupplýs-
ingum með hjálp Heilsuveru. Við hvetjum fólk til að skoða og nýta sér heilsuveru.is
Fh. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Bjarnheiður Böðvarsdóttir Hjúkrunarfræðingur, heilsugæslu Selfoss.
Við erum þjónustuaðilar fyrir eftirfarandi umboð
Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216
Þrettándinn í Eyjum Þrettándinn í Eyjum er einstakur og ætti enginn að láta það framhjá sér fara að upplifa hann að minnsta kosti einu sinni yfir ævina. En fyrir okkur vestmannaeyinga þá er þetta árlegur viðburður sem við viljum flest ekki missa af. Það eru margir sjálfboðaliðarnir sem að leggja mikið á sig til að gera Þrettándann sem skemmtilegastann og eftirminnilegastann, ungir sem aldnir.
Það er frábært að fylgjast með stemningunni sem myndast þegar tröllin, álfarnir, jólasveinarnir og hjálparfólk er komið saman í göngunni og á malarvellinum við Löngulág. Tígull mætti á svæðið og tók myndir af þrettándanum og einnig á Grímuballi Eyverja sem haldið var fyrr um daginn þann 3. janúar 2020.
Bjartey Ósk Sæþórsdóttir og Kolbrún Orradóttir unnu búningakeppnina í ár en þær mættu sem leigubíll.
Guðbjörg Karlsdóttir í 2. sæti sem Cindy Lou.
Sandra Dröfn Frostadóttir fanginn í fangelsinu varð í 3.ja sæti
Verðlaun fyrir frumlegasta búninginn hlaut Bjartey Dögg Frostadóttir sem ósýnilegi maðurinn.
Verðlaun fyrir líflegustu framkomuna hlaut Lilja Rut Brynjarsdóttir
Upphaf 2020 - Aðsend grein frá Ragnheiði Guðfinnu -
Jólastressið yfirstaðið og eflaust allir tilbúnir í að koma öllu aftur í rútínu á komandi ári. Árin líða svo hratt, allir að tala um hraðann og tímaleysið og svo er komið enn eitt árið og fullt af hlutum sem okkur tókst ekki að klára á síðasta ári og við byrjum nýtt ár með því að hafa áhyggjur af því.
Setja sér upp forvarnaráætlun á fyrsta stigi með því að fjarlægja eitthvað í nærumhverfi okkar sem veldur streitu, einfalda lífið og ekki vera alltaf grípa inn í þegar vandamálið er komið. Með því að koma auga á orsökina getum við komið í veg fyrir afleiðinguna.
Ég skora á þig að núllstilla og fara inn í 2020 með meiri meðvitund um streituna í þínu lífi. Gefðu þér tíma, sestu niður með sjálfum þér og spurðu þig „hvernig minnka ég streituna í lífi mínu þetta árið“ ?
Ef ákveðnar aðstæður, verkefni, hlutverk eða fólk veldur þér streitu þarftu að skoða hvort þú getur fjarlægt slíka streituvalda úr þínu daglega lífi. Lærðu að þekkja þín þolmörk, ekki fara yfir mörkin og lærðu að segja nei og ekki hafa áhyggjur af viðbrögðum annara.
Í krefjandi verkefnum og viðvarandi aðstæðum sem við komumst ekki hjá að takast á við þurfum við að taka ábyrgðina í okkar hendur, þekkja rótina af streitunni, horfa aðeins inn á við og koma auga á það afl innra með okkur sem keyrir upp stressið og kvíðann. Hvert er raunverulega vandamálið? Hvað get ég gert? Er til lausn?
Tímastjórnun er mikilvæg, settu þér upp plan til að skoða í hvað tíminn fer í og taktu út þættina sem er tímaeyðsla eða svokallaðir truflarar. Einblíndu á það sem er mikilvægt og því sem liggur á, settu annað til hliðar sem má bíða. Slæm tímastjórnun er formúla fyrir streitu. Gott er að skrifa niður hluti í stað þess að vera sífellt að hafa áhyggjur
af því að gleyma einhverju. Ræddu og viðurkenndu þolmörk þín, ekki velta þér bara upp úr í eigin hugarheim, óskaðu eftir aðstoð og sæktu í tengslanetið þitt. Sýndu sjálfum þér og aðstæðum meiri sveigjanleika og umburðarlyndi. Settu upp tímalínu og spurðu þig „Er það sem stressar mig núna jafn mikilvægt á morgun? “ Víkkaðu sjónarsviðið og einblíndu ekki of mikið á smáatriðin, horfðu á heildarmyndina. Jákvæðni skiptir máli, að sjá verkefni sem áskorun en ekki ógn, sjá tilganginn á bakvið hvert verkefni og hvernig hver áskorun færir manni tækifæri. Góðar leiðir til að verjast streitunni sem er út um allt er eftirfarandi: Settu þig og velferð þína í forgang. Passaðu upp á að hvíla þig, sofa vel, hreyfa þig og tileinka þér heilbrigðan lífsstíl. Mikilvægt að styrkja þolvarnir og þá tekst þér betur að ráða við álag.
Dragðu mörk, lærðu að segja nei og taktu ákvarðanir á þínum eigin forsendum en ekki annara. Þú getur bara haldið ákveðnum fjölda bolta á lofti í einu, ekki fjölga þeim ef þú hefur ekki tök á því. Sættu þig við ófullkomleikann og læru að draga úr óraunhæfum viðmiðum, frábært viðhorf er “good enough“ leiðin. Gefðu þér smá slaka, ekki alltaf vera á hlaupum. Staldraðu við, náðu huganum inn í núlíðandi stund og dragðu djúpt andann. Einbeittu þér að því sem þú hefur stjórn á, brettu upp ermar og gerðu eitthvað í því, ekki fresta því. Hættu að leyfa hlutum sem þú hefur enga stjórn á trufla þig, hausinn þinn þarf að læra að sleppa áhyggjum sem gagnast ekkert að hafa. Sættu þig við vanmáttinn, öll erum við mannleg og þolum eitthvað upp að vissu marki. Einblíndu á það sem þú hefur og styrkleika þína. Hugrekki þarf til að óska eftir aðstoð, sýndu hugrekki, felldu niður varnir
líklegt að þér fallist hendur og gefist upp að ná því markmiði. Gott er að brjóta vandamálið niður í viðráðanlegar einingar og komast hægt og rólega, skref fyrir skref að því markmiði sem þú hefur sett þér. Virkni þín er mikilvæg streituvörn. Markviss hreyfing losar um streitu og eflir þolvarnir þínar. Hvaða hreyfing virkar fyrir þig hverju sinni er mikilvægt viðhorf, best er að hreyfa sig eitthvað smá frekar en ekki neitt, annars byggist streitan upp í líkama þínum. og óskaðu eftir hjálp þegar þú finnur þörfina. Að upplifa yfirþyrmandi streitu er ekki góð tilfinning, maður sér ekki lausnir fyrir vandamálinu, en þá er gott að kalla á „hjálp“, afneitun er ekki góð. Settu þér raunhæf viðmið og markmið sem eru nógu nálægt raunverulegri stöðu þinni. Ef þú setur markmið of langt frá þinni stöðu í dag er
Að sýna þakklæti hefur áhrif á framleiðslu endorfíns í líkamanum, aukið endorfín eykur á gleði og vellíðan. Horfðu á það sem þú hefur en ekki það sem þig skortir, sýndu því þakklæti. Þín líðan á að vera á þinni ábyrgð, taktu þá ábyrgð á þessu ári! Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir www.hugarheimur.is
ORÐARUGL
BLAKFELAGIBV CROSSFITEYJAR HRESSO SPINNING
DUGNADUR STYRKUR
EYJASKOKK SUND YOGA
FRIDARBOL
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
Skrifstofa Heiðarvegi 9b 481-2700
20 ára reynsla! Sími 692-3131
formadur@sjomannafelag.is skrifstofa@sjomannafelag.is
www.straeto.is 540 -2700
Leið 52
STRÆTÓ
Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó Ferðir í Landeyjarhöfn!
Virkir dagar:
08:00 Herjólfsferð: 10:45 17:45 Herjólfsferð: 20:45
Frá Mjódd Frá Mjódd Helgar:
Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd
07:55 Herjólfsferð: 10:45 08:05 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15
Við viljum koma á framfæri kærum þökkum öllum þeim sem hafa stutt félagið á nýliðnu ári. Kvenfélagið Líkn
www.straeto.is | 540-2700
Síðasti séns að nýta sér nettilboðin! Fullt af nettilboðum á 8.900 kr. Öll barnafargjöld á 7.900 kr. Ferðatímabilið gildir til 15. jan
Bókaðu flugið á ernir.is
772-6766 Heiðarvegur 9
/crispus
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook
Tannlæknar 21 - 23. janúar - Hjalti Þórðarson 25. janúar - Hjalti Harðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40 Tímapantanir í síma 481-2772
Sjúkraliði og hjúkrunarfræðingur
óskastog í sumarafleysingar Sjúkraliði hjúkrunarfræðingur á sjúkradeildina í Vestmannaeyjum óskast í sumarafleysingar á sjúkradeildina í Vestmannaeyjum
Aðalfundur
Hæfniskröfur Barnalæknir Menntun frá viðurkenndri mennta-
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstandendafélags einhverfra í Vestmannaeyjum Verður haldin miðvikudaginn 22. janúar kl. 20.00 í sal Sjóve Heiðarvegi 7, gengið inn að aftan. Dagskrá: Ávarp fundarstjóra Ávarp formanns Ávarp gjaldkera Tillögur að starfinu framundan Stjórnarkjör Önnur mál
Félagar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.
• Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi Helstu verkefni og ábyrgð störf með skemmtilegu og metnaðarfullu Mikið er lagt upp úr erstarfsfólki. að ræða fjölbreytt, krefjandi • Um góðri þvegfaglegri samvinnu þar sem störf með skemmtilegu og metnaðarfagmennska, umhyggja virðing fyrir fullu starfsfólki. Mikið er og lagt upp úr skjólstæðingum og fjölskyldu er góðri þvegfaglegri samvinnu þeirra þar sem höfð að leiðarljósi.
•
Hæfniskröfur stofnun.
Menntunlandlæknis frá viðurkenndri mennta/ staðfesting ••Starfsleyfi stofnun. menntastofnunar á framvindu náms.
Tryggvi Helgason Starfsleyfi landlæknis staðfesting ••Frammúrskarandi hæfni í/mannlegum barnalæknir menntastofnunar á framvindu náms. samskiptum. fagmennska, umhyggja og virðing fyrir •Starfsreynsla Frammúrskarandi æskileg. og fjölskyldu þeirra •skjólstæðingum verður með móttöku á hæfni í mannlegum Deildin er blönduð 21 rúma deild semer • samskiptum. höfð nærað yfirleiðarljósi. hjúkrun flestra sjúklingahópa, • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. HSU-Vestmannaeyjum þar af eru 9 hjúkrunarrými. • Starfsreynsla æskileg. • Deildin er blönduð rúma deild sem Á sjúkradeildinni er21 einnig dagdeild nær yfir hjúkrun flestra sjúklingahópa, 13. mánudaginn janúarognk. lyfjagjafa. sjálfstæð vinnubrögð. • Frumkvæði þar af eru 9 hjúkrunarrými.
er á þrískiptum vöktum og aðra •ÁUnnið sjúkradeildinni er einnig dagdeild hvora helgi. lyfjagjafa.
er á þrískiptum vöktum og aðra • Unnið Frekari upplýsingar um starfið hvora helgi.
Tímabókarnir eru í síma
Um er að ræða sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Vestmannaeyjum. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum sem fjármálaráðherra, Félag íslenskra Frekari upplýsingar um starfið hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag íslands hafa gert. Um er að ræða sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands,
432-2500
Vestmannaeyjum. Sækja skal um rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður. Laun samkvæmt sem fjármálaráðherra, Félag og íslenskra Umsóknum þurfagildandi að fylgjakjarasamningum staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi fyrri störf. hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag íslands hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2019
Sækja skal um rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður. Nánari upplýsingar Umsóknum þurfa aðveitir: fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf. Arna Huld Sigurðardóttir arna.huld.sigurdardottir@hsu.is - 432-2600.
Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2019 Nánari upplýsingar veitir: Arna Huld Sigurðardóttir arna.huld.sigurdardottir@hsu.is - 432-2600.
SUDOKU
KLESST'ANN Ekki bílinn samt – en ef svo óheppilega fer, þá sjá Toyota tryggingar til þess að þú fáir aðeins viðurkennda varahluti frá Toyota. Þú færð afnotaf bílaleigubíl allan viðgerðartímann og að lokum skilum við þér bílnum
tandurhreinum
að
utan.*
Kynntu þér Toyota tryggingar nánar á toyotatryggingar.is eða tryggðu bílinn á staðnum um leið og þú kaupir hann.
*Á einungis við ef viðgerð fer fram í gegnum viðurkenndan þjónustuaðila Toyota á Íslandi og ef um kaskótjón er að ræða.