1
Tónlistin í sýningunni er eftir Örvar Smárason, en einnig hljóma brot úr nokkrum öðrum lögum. Söngur á upptökum: Salka Gústafsdóttir.
Leikskrá Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Hönnun og uppsetning: Jorri. Ljósmyndir: Jorri. Prentun: Prentmet Oddi. Útgefandi: Þjóðleikhúsið. Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar. Sýningarlengd er um tvær klukkustundir og tíu mínútur. Eitt 25 mínútna hlé. Viðvörun: Blikkandi ljós eru notuð í sýningunni. Nýtt eldhús eftir máli var leiklesið sem verk í vinnslu á leikritahátíð Þjóðleikhússins, Gula dreglinum, vorið 2025. Titill verksins felur í sér tilvísun í þekkta smásögu eftir Svövu Jakobsdóttur sem birtist fyrst á prenti árið 1966. Boðið er upp á umræður með þátttöku listafólks eftir 6. sýningu.
Þjóðleikhúsið 78. leikár, 2026–2027. Frumsýning í Kassanum 17. september 2026. Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.
2
Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson
Þjóðleikhúsið 2026 - 2027 3
Leikarar Daníel Hilmar Guðjónsson
Ingó og einhver annar maður Ólafur Ásgeirsson
Soffía Ilmur Kristjánsdóttir
Búðarkona og einhver önnur kona Salka Gústafsdóttir
Listrænir stjórnendur Leikstjórn Björn Thors
Lýsing Jóhann Bjarni Pálmason
Leikmynd og búningar Elín Hansdóttir Filippía I. Elísdóttir
Tónskáld Örvar Smárason
Sviðshreyfingar Margrét Bjarnadóttir
Hljóðhönnun Þóroddur Ingvarsson
Framleiðslu- og sýningarstjórn Sýningarstjórn og umsjón Guðmundur Erlingsson
4
Framleiðslustjórn Máni Huginsson
Aðrir aðstandendur Aðstoðarmaður tónskálds Brynjar Daðason
Yfirumsjón með leikmyndarmálun Valur Hreggviðsson
Starfsnemi – LHÍ Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
Teymisstjórn leikmunadeildar Bjarni Þór Sigurbjörnsson Ásta S. Jónsdóttir
Starfsnemi hjá leikskáldi – LHÍ Grímur Smári Hallgrímsson Teymisstjórn sviðs- og ljósadeildar Kjartan Þórisson Teymisstjórn leikmyndagerðar Jasmina Luiza Wojtyla Yfirsmiður Arturs Zorģis
Yfirumsjón með leikmunum Mathilde Anne Morant Yfirumsjón búninga Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Yfirumsjón leikgerva Hildur Ingadóttir Dramatúrgísk ráðgjöf Melkorka Gunborg Briansdóttir Melkorka Tekla Ólafsdóttir Matthías Tryggvi Haraldsson
Starfsfólk á sýningum Sýningarstjórn Guðmundur Erlingsson Tæknistjórn Signý Rós Ólafsdóttir
Leikgervi Hildur Ingadóttir Silfá Auðunsdóttir Emilíanna Valdimarsdóttir Guðbjörg Guðjónsdóttir
Annað starfsfólk við sýninguna Búningadeild Berglind Einarsdóttir Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Sólveig Spilliaert Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Hljóðdeild Kristján Sigmundur Einarsson Brett Smith
Smiðir Matija Mihaljenovic Ingvar Guðni Brynjólfsson Málmsmíði Ævar Uggason
Aðstoð við leikmyndarmálun Þórunn Kolbeinsdóttir
5
6
7
Friðgeir Einarsson er sviðslistamaður og rithöfundur, búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2008 og hefur síðan tekið þátt í tugum leiksýninga sem höfundur og leikari, á vegum ýmissa leikhúsa og leikhópa og á sviðslistahátíðum erlendis. Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta leikrit Friðgeirs sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Verkið var leiklesið sem verk í vinnslu á leikritahátíð Þjóðleikhússins, Gula dreglinum, vorið 2025. Friðgeir samdi og lék leikverkið Club Romantica á vegum leikhópsins Abendshow í Borgarleikhúsinu. Einnig samdi hann og lék leikverkið Útlendinginn - morðgátu í Borgarleikhúsinu. Friðgeir er einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleirs sem hefur vakið mikla athygli fyrir útvarpsleikverk og leiksýninguna Innkaupapokann. Hann starfaði einnig meðal annars með leikhópunum Ég og vinir mínir og 16 elskendum. Friðgeir hefur komið talsvert að gerð leikins efnis fyrir sjónvarp og útvarp. Hann var einn af höfundum Áramótaskaups RÚV 2022 og 2024, og lék í þeim nokkur hlutverk. Friðgeir lék annað aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Hæst í Sjónvarpi Símans, og tók þátt í skrifum og þróun persóna verksins. Friðgeir hefur getið sér gott orð sem rithöfundur og sent frá sér fimm bækur, skáldsögur og smásagnasöfn. Nýjasta ritverk hans er Serótónínendurupptökuhemlar, en áður komu út Stórfiskur, Ég hef séð svona áður, Formaður húsfélagsins og Takk fyrir að láta mig vita. Friðgeir hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikrit ársins fyrir Club Romantica. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Innkaupapokanum. Friðgeir hefur ásamt leikhópum sem hann hefur starfað með hlotið ýmsar tilnefningar til Grímunnar fyrir leikrit, sýningu og útvarpsleikrit ársins, meðal annars ásamt Kriðpleiri fyrir Innkaupapokann, Crisis Meeting, Síðbúna rannsókn, Tiny Guy, Vorar skuldir og Litlu jólin, ásamt Abendshow fyrir Club Romantica, ásamt 16 elskendum fyrir sýninguna Sýningu ársins og ásamt leikhópnum Ég og vinir mínir fyrir Húmanimal.
8
9
10
11
Þar sem hversdagsleikinn og eilífðin mætast Viðtal við Friðgeir Einarsson leikskáld Hver var kveikjan að þessu verki, hvar hófst þetta ferðalag? Mér var boðið að vera með vinnustofu hér í Þjóðleikhúsinu og taka síðan þátt í leikritahátíðinni Gula dreglinum. Það freistaði mín en mig vantaði hugmynd að verki. Ég hafði þá nokkru áður skrifað og gefið út smásögu um mann sem er með þráhyggju fyrir eldhúsinnréttingum og hugsaði með mér að hún gæti verið vísir að stærra verki. Smásagan heitir eins og leikritið Nýtt eldhús eftir máli og vísar þannig til smásögu Svövu Jakobsdóttur, Eldhús eftir máli, án þess að byggjast á henni að öðru leyti. Þar kynnir sig þessi persóna sem verður síðan aðalpersónan í leikverkinu. Margir munu koma til með að velta fyrir sér tengslum þessa verks við smásögu Svövu Jakobsdóttur. Þar er það konan sem verður eins konar fangi nýs eldhúss sem eiginmaður hennar sérsníður handa henni, en í leikritinu þínu er það Daníel sem er nokkurs konar fangi draumsins um nýtt eldhús. Hvernig myndir þú segja að þessi verk tengdust? Í sögu Svövu hannar karl eldhús fyrir konuna sína, sníður það til svo það sé alveg fullkomið fyrir hana, en á endanum skiptir hann líka út konunni og fær sér nýja sem passar betur inn í þessa draumsýn. Leikritið mitt fjallar um karl sem vill sníða eldhús fyrir sjálfan sig, og fer af því tilefni að setja spurningarmerki við eldhúshönnun yfirhöfuð. Í dag búum við við allt annan veruleika en Svava og hennar lesendur gerðu þegar sú saga kom út. Karlar eru í auknum mæli farnir að taka til hendinni í eldhúsinu og á heimilinu almennt, og hef ég auðvitað ekkert nema gott um það að segja, svo það komi fram. Í Daníel býr hins vegar ákveðin gremja gagnvart þessu hlutskipti sínu. Að einhverju leyti finnst honum hann vera orðinn bæði karlinn og konan á heimilinu, því eiginkona hans sinnir nánast engum heimilisstörfum, hvorki hinum hefðbundnu kvennastörfum né hinum hefðbundnu karlastörfum. Hversdagsraunir Daníels eru þannig allt aðrar en hjá persónunum í sögu Svövu, enda hefur mikið vatn runnið til sjávar á þeim sextíu árum sem liðin eru síðan sagan birtist fyrst á prenti og miklar breytingar orðið á þjóðfélaginu – allflestar jákvæðar að mínu mati. Er það helst þessi kynjavinkill sem vakir fyrir þér í tengslum við staðsetninguna eldhús? Eða var það eitthvað annað sem dró þig að eldhúsrýminu? Hlutskipti aðalpersónunnar samsvarar kannski að einhverju leyti minni upplifun, þó að ég vilji taka skýrt fram að ég og konan mín skiptum heimilisverkum nokkuð jafnt og að ég hef enga ástæðu til að bera mig illa. En eftir því sem ég verð eldri ver ég sífellt meiri tíma í eldhúsinu að stússa ýmislegt, hafa til mat og smyrja nesti. Það hefur eiginlega orðið mín helsta starfsstöð inni á heimilinu. Þegar við fjölskyldan fluttum inn í íbúð þar sem eldhúsinnréttingin var farin að láta verulega á sjá, orðin gömul og ljót, varð ég fljótt heltekinn af nánast óseðjandi hvöt til að skipta öllu út. Mér leið eins og það hefði ekkert að segja að taka til, þó að ég þrifi allt og þurrkaði innan úr öllum skápum og setti allt leirtauið í vélina þá væri innréttingin samt alltaf jafn óviðunandi. Kannski ekki hægt að segja að það hafi dregið verulega úr mínum lífsgæðum að eldhúsið væri svona, það virkaði allt, en á einhverjum tímapunkti hugsar maður: Á ég ekki meira skilið? Er ég ekki meira virði en þetta? Mér fannst synd að þurfa að verja drjúgum hluta jarðlífsins á ekki merkilegri stað og lét mig dreyma um eitthvað annað og meira. Það er kannski ekki háleitur draumur en draumur engu að síður. 12
Verkið hverfist um aðalpersónuna Daníel og Soffíu, eiginkonu hans. En í því eru aðrar raddir sem taka á sig ýmsar myndir, bæði realískar og súrrealískar. Hvaðan spretta þær? Þær urðu mjög snemma hluti af verkinu. Daníel, aðalpersónan, er gríðarlega hrifinn af marmara, hann upplifir að það stafi frá honum svo mikilli orku og útgeislun að hann heyrir söng þegar hann leggur eyrað upp að marmaraborðplötu. Þegar ég var búinn að skrifa þetta fannst mér eðlilegt að áhorfendur fengju að heyra þennan söng líka og skrifaði smá söngtexta fyrir borðplötuna. Marmari er stórmerkilegt fyrirbæri, sem hefði frá mörgu að segja ef hann gæti talað. Hann er í rauninni set sem var einhvern tímann á hafsbotni, samþjappaður lífmassi, bara rotnun og skítur og dauði og beinagrindur, milljónir milljóna lífa sem börðust fyrir því að halda áfram að lifa og að afkomendur þeirra myndu halda áfram að lifa, og svo deyja allir og þjappast saman í þennan lífmassa sem færist síðan með flekahreyfingum upp í fjöll á Ítalíu þar sem hann er skorinn niður í sneiðar og sendur síðan í einhverja búð í Síðumúla þar sem þú getur keypt hann og notað sem borðplötuefni. Mér fannst það eitthvað svo heillandi, þarna mætast hversdagsleikinn og eilífðin í einhverju sem blasir við þér á hverjum degi. Það er að segja ef þú vilt hafa marmaraborðplötu, sem er ekkert endilega víst að þú hafir efni á og er alls ekki praktískt eins og persónurnar í verkinu benda á.
„Ég hef ekki áhuga á morðsögum af því að það eru til hundrað milljón morðsögur, en aftur á móti er ekki líklegt að neinn annar fái áhuga á gati í vegg þar sem áður var hraðbanki. Þar sé ég sorg, nostalgíu og jafnvel fegurð.“
Þegar borðplatan var farin að tala vildu fleiri hlutar innréttingarinnar kveðja sér hljóðs. Ætli það megi ekki segja að þessar ólíku raddir tjái á einhvern hátt ólíka kima í hugarheimi Daníels. Til dæmis er orðræða sorptunnunnar lituð af eitraðri karlmennsku, hún segir hluti sem Daníel vill ekki taka undir en er engu að síður kannski einhver hluti af honum sjálfum. Uppþvottavélin lætur líka í sér heyra, hún á í tilfinningaríku samtali við Daníel. Ég á sjálfur það til að mynda tilfinningarík sambönd við svona tæki, sem er varla mjög heilbrigt af því að þetta eru bara tæki og hafa ekki meðvitund. Ég átti til dæmis í stormasömu sambandi við gömlu uppþvottavélina okkar. Hún gerði alltaf það sem ég bað hana um, en gerði það ekki vel. Framhliðin var brotin og ég var búinn að reyna að líma hana og það var ekki fallegt, þannig að á endanum fór ég með hana í Sorpu og henti henni. Og það var einhvern veginn svo sorglegt að sjá hana í gáminum þegar ég var búinn að fleygja henni. Hún lá þarna buguð og niðurlægð og án tilgangs, af því að hún hafði brugðist mér. Í mörgum verka þinna fjallar þú um hversdagsleikann, á hátt sem er fullur af þurrum húmor og glettni en gjarnan líka þunga, það býr í þeim undirliggjandi þunglyndi, einmanaleiki og leit að tilgangi. Hvað er það við hversdagslegar aðstæður sem dregur þig að þeim? Það er einhver framandleiki sem ég hef alltaf upplifað gagnvart hversdagsleikanum, mér finnst hann í senn ógnvænlegur og heillandi. Maður er kannski að skakklappast um Skeifuna að ná í eitthvert hakk þegar það rennur upp fyrir manni: Er þetta allt og sumt? Fyrir röð ótrúlegra tilviljana er ég hér, vitund í líkama sem fúnkerar, og hef valið mér að vera hér, í Skeifunni? Er þetta tilgangur minn? Mér finnst vera einhver spenna á milli þess að láta þetta yfir sig ganga á hverjum degi, þetta hversdagslega vafstur, og að vera síðan að hugsa um dauðann og lífið og eilífðina, eins og ég geri ráð fyrir að allir geri upp að vissu marki. Að vera bæði hugsandi vera, andi, sál, en líka fangi í þessu gangandi kjötstykki. Þetta veldur mér sífelldri undrun.
13
Það sem er kunnuglegast og hversdagslegast verður einhvern veginn mest framandi? Já, einmitt. og þegar maður kippir því úr raunveruleikanum og setur inn á leiksvið, þá líður mér eins og það gerist einhver galdur. Mér finnst það alltaf jafn heillandi. og svo er eitthvað við fyrirbæri sem eru svo hversdagsleg og leiðinleg að enginn annar sýnir þeim áhuga; mér líður eins og ég eigi þau út af fyrir mig. Ég hef ekki áhuga á morðsögum af því að það eru til hundrað milljón morðsögur, en aftur á móti er ekki líklegt að neinn annar fái áhuga á gati í vegg þar sem áður var hraðbanki. Þar sé ég sorg, nostalgíu og jafnvel fegurð. Ef enginn annar hefur áhuga á tiltekinni hugmynd þá á ég hana alveg út af fyrir mig. Kannski er ég bara svona átakafælinn. Nú hefur þú líka skrifað skáldsögur og efni fyrir sjónvarp. Hvað er það við leikhúsið sem þér finnst heillandi? Tengist það kannski þessu hversdagslega á einhvern hátt, að leikhúsið geti leyst það upp eða opnað það, fengið mann til að sjá það upp á nýtt? Já, það gæti verið. Í mínum huga er leikhúsið nokkurs konar rannsóknarstofa þar sem hægt er að rannsaka samskipti, hvað það er sem knýr okkur áfram, daglegt líf andspænis háleitari markmiðum. Það er vettvangur til að skoða stórar hugmyndir en líka hið smáa og hversdagslega. Á einni kvöldstund fá áhorfendur og sviðslistafólk tækifæri til að skoða hluti í sameiningu, prófa alls konar pælingar, almennar og persónulegar. Það finnst mér mjög spennandi. Leikhúsið er nokkurs konar hraðall fyrir hugmyndir. Þú hefur verið meðlimur sviðslistahópa á borð við 16 elskendur, Ég og vinir mínir og Kriðpleir þar sem leikhópurinn vinnur sýningar í sameiningu og höfundarnir eru margir, og stundum leikstjórarnir líka. Nú stígur þú inn í hefðbundnara samhengi þar sem þú ert í hlutverki leikskálds og listræn sýn leikstjórans stýrir ferðinni. Hvernig upplifir þú þessar ólíku tegundir ferla? Þetta hefur allt sína kosti og galla. Það hljómar kannski þversagnakennt en í þessu ferli, sem hefur verið með hefðbundnara móti, hef ég upplifað ákveðið frelsi. Ég hef fengið frið til að einbeita mér að textanum og nýtt hann til að koma til skila hefðbundnari söguboga en oft áður í mínum verkum. Í samsköpunarferlunum er strúktúrinn yfirleitt meira collage, eða samsett mynd, sem býr til allt aðra niðurstöðu og það getur verið frábært að vinna þannig. Að sama skapi getur verið flókið að steypa saman heildstæðri sögu í samsköpunarferlum, því vinnuaðferðin takmarkar í raun valdsvið hvers og eins. Að þessu sögðu kem ég líka með einhvern farangur úr samsköpunarleikhúsinu inn í Nýtt eldhús eftir máli. Í verkinu eru atriði sem brjóta upp söguna, brjóta upp það sem áhorfandinn hélt að væri veruleiki verksins, þannig að hann getur ekki alltaf verið viss um hvað er að gerast hverju sinni. Sem sviðslistamaður hefur þú gjarnan fengist við sviðsetningar á sjálfum þér, eða einskonar hliðarsjálfi þínu, í sýningum þar sem þú kemur fram bæði sem höfundur og flytjandi. Nú hefur þú stigið af sviðinu og sest í leikskáldastólinn. Hvernig upplifir þú þetta nýja hlutverk? Mér hefur liðið frá upphafi eins og ég geti treyst hinu listafólkinu algjörlega. Bæði eru leikararnir frábærir og geta leikið þetta verk miklu betur en ég, og svo kveikti Björn leikstjóri strax á verkinu. Hann hefur sýnt því mikinn og einlægan áhuga frá því að hann kom að því fyrst á Gula dreglinum, og ég var mjög ánægður með að hann var valinn til að leikstýra því. Hann er mjög flinkur í að draga fram upplýsingar úr textanum fyrir leikarana og jafnvel höfundinn sjálfan. Mér hefur fundist þetta mjög eðlilegt samband, að höfundurinn sé í virku samtali við leikhópinn, og endurskoði textann út frá því sem gerist í æfingarýminu. Það held ég að hjálpi bæði leikskáldinu og leikhópnum.
14
Einmitt, þú hefur fengið að sitja æfingar og taka þátt í ferlinu, sem er ekki alltaf raunin fyrir höfunda. Ég hef ekki verið rekinn út ennþá. Ég er alltaf að stinga upp á að ég mæti minna, en það virðist ekki vera áríðandi fyrir leikhópinn að losna við mig. Mér finnst oft ágætt að halda mig til hlés og hlusta á hvernig þau túlka textann áður en ég segi hvernig ég sá þetta fyrir mér. Fyrst og fremst hef ég notið þess að fylgjast með og heyra textann minn fluttan af frábærum leikurum, ég hef hangið svona mikið í æfingarýminu af því að mér finnst svo gaman að vera þar. Þeir sem þekkja til verka þinna eru farnir að þekkja persónuna Friðgeir úr útvarpsleikritum þínum og leiksýningum Kriðpleirs. Innan sviðslistasamfélagsins heyrast gjarnan lýsingar á borð við að eitthvað sé ,,Friðgeirslegt.“ Nú er persónan Friðgeir ekki á sviðinu. En leynist hann einhvers staðar í verkinu? Já, alveg örugglega. Sem höfundur er maður alltaf á einhvern hátt að fjalla um sig sjálfan, þó að þetta sé auðvitað ekki verk um mig, mitt hjónaband eða mína kynóra. En ég sæki það sem gerist að einhverju leyti í eigin reynslu þó að sumt af því sem gerist í verkinu hafi aldrei komið fyrir mig. Það byggist á mínum hugsunum, mínum órum, því sem ég hræðist, þeirri persónu sem ég vil vera og þeirri persónu sem ég vil alls ekki vera. Við Daníel, aðalpersóna verksins, eigum það sameiginlegt að vera karlmenn á miðjum aldri sem hafa látið sig dreyma um að eignast nýtt eldhús. En að sama skapi er ég að nota þessa persónu og þennan heim til að prófa hluti sem koma mér í sjálfu sér ekkert við. Sem einhvers konar könnun á hugmyndum um þessa manngerð, um karlmennskuna á okkar tímum og um mennskuna yfirleitt, óháð kyni. Hvað er ,,hið friðgeirska“ í þínum huga, skilur þú hvað fólk á við þegar það talar um þetta? Já, það væri samt fróðlegt að gera einhverja samantekt á því hvað það er í raun og veru. En jú, það er þetta brútal hversdagslega, kaldhæðið en samt pínu existensíalískt, kvíðaþrungið og þunglyndislegt ástand. Eða hvað heldur þú? Ég myndi taka undir þetta. En það má ekki gleyma húmornum. Já, einmitt. Ég er oft að reyna að skrifa húmorinn út úr verkum en síðan sé ég að það gengur ekkert. Fólki finnst ég bara fyndinn og asnalegur sama hvað ég geri. Og það er allt í lagi, ég fagna því. Að lokum liggur vel við að spyrja: Getur draumaeldhúsið breytt lífi þínu? Já, það getur breytt lífi þínu, en maður verður að stilla væntingunum í hóf. Það er miklu betra að snerta borðplötu úr steini en einhverjum spón með filmu sem á að líta út eins og steinn. Stutta svarið er já, en nýtt eldhús eitt og sér gerir mann ekki hamingjusaman ef allt annað er í rugli. Maður þarf að kunna að taka á móti hamingjunni sjálfur. Melkorka Gunborg Briansdóttir tók viðtalið
15
Hilmar Guðjónsson
útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2010. Hann leikur í Hetjum hafsins í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann lék hér í Eltum veðrið, Heim, Múttu Courage, Nokkrum augnablikum um nótt, Hvað sem þið viljið, Ást og upplýsingum, Rómeó og Júlíu og Upphafi. Hann leikstýrði Rauðu kápunni og Verkinu í Hádegisleikhúsinu og var aðstoðarleikstjóri í Þetta er gjöf. Hann lék í fjölda sýninga í Borgarleikhúsinu, m.a. Helgi Þór rofnar, Ríkharði III, Sendingu, Mávinum, Sölku Völku, Rauðu, Músum og mönnum, Njálu, Fanný og Alexander og Ofviðrinu. Hann lék í kvikmyndunum Volaða landi, Villibráð og Á annan veg og sjónvarpsþáttaröðunum Dönsku konunni, Fjord, Elmu, Vigdísi, Verbúðinni, Fólkinu í blokkinni, Drekasvæðinu og Venjulegu fólki. Hann var valinn í hóp Shooting Stars árið 2011. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir Rautt og var tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir Á annan veg og Volaða land. Hann var tilnefndur til íslensku sjónvarpsverðlaunanna sem leikari ársins fyrir Venjulegt fólk.
16
Ilmur Kristjánsdóttir
útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2003. Hún hefur leikið í fjölda leiksýninga, sjónvarpsþátta og kvikmynda og samið leikið efni fyrir sjónvarp og leikhús. Hún leikur í Taktu lagið, Lóa og Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún lék hér m.a. í Eltum veðrið, Ekki málið, Sjö ævintýrum um skömm, Yermu, Jólaboðinu, Nashyrningunum, Kópavogskróniku þar sem hún var annar af höfundum leikgerðar, Englinum, Einræðisherranum, Íslandsklukkunni, Gerplu, Ívanov og Heddu Gabler. Hún lék m.a. í Línu langsokk, Svari við bréfi Helgu og Fólkinu í kjallaranum hjá LR, í kvikmyndunum Fullu húsi og Fúsa og sjónvarpsþáttunum Systraböndum, Ófærð og Stelpunum. Hún var höfundur og annar leikstjóri jóladagatalsins Randalín og Mundi: Dagar í desember. Hún leikstýrði Elskan, er ég heima? hjá LA. Hún hlaut Grímuna fyrir Ívanov og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Ekki málið, Kópavogskróniku, Engilinn, Fólkið í kjallaranum, Ausu Steinberg, Sölku Völku, Ófögru veröld og Íslandsklukkuna. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Stelpurnar.
Ólafur Ásgeirsson
útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2015. Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta verkefni hans í Þjóðleikhúsinu, en hann leikur hér einnig í Línu Langsokk í vetur. Ólafur lék í sýningunum Palli var einn í heiminum í Hörpu og Elskan, er ég heima? hjá LA. Hann skrifaði og lék í Tu jest za drogo í Borgarleikhúsinu og í samsköpunarverkinu Co za poriony pomysł í Tjarnarbíói. Þá lék hann í The last kvöldmáltíð, Hinu ósagða og Óbærilegum léttleika knattspyrnunnar í Tjarnarbíói. Ólafur skrifaði Óbærilegan léttleika knattspyrnunnar ásamt Sveini Ólafi Gunnarssyni en leikritið var tilnefnt til Grímuverðlaunanna sem leikrit ársins. Á yfirstandandi leikári er sýningin leikin í Borgarleikhúsinu og er það fimmta leikárið sem hún er sýnd. Ólafur er leikstjóri og yfirhandritshöfundur sjónvarpsþáttanna Dagbók lögreglu. Ólafur var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Óbærilegum léttleika knattspyrnunnar og Co za poriony pomysł og hlaut hvatningarverðlaun Grímunnar fyrir síðarnefndu sýninguna.
Salka Gústafsdóttir
útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2025. Hún lauk áður miðprófi í söng úr söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz. Salka þreytti frumraun sína í Þjóðleikhúsinu í söngleiknum Stormi. Hún lék meðal annars í söngleikjunum Með allt á hreinu, Þorskasögu og Vitfús Blú í Afturámóti. Frá og með haustinu 2026 situr Salka í ritstjórn Vikunnar með Gísla Marteini og er með regluleg innslög í þættinum.
17
18
19
Björn Thors
útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2003. Hann hefur m.a. leikið í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá Vesturporti, Frú Emilíu, Volksbühne, Burgtheater, Lyric Hammersmith og The Royal Alexandra. Fyrri leikstjórnarverkefni hans í Þjóðleikhúsinu eru Saknaðarilmur og Salka-Ástin og dauðinn, í samstarfi við Landnámssetrið. Í vetur leikur Björn í Taktu lagið, Lóa í Þjóðleikhúsinu. Hann hefur leikið hér meðal annars í Íbúð 10B, Yermu, Ekki málið, Vertu úlfur, Nokkur augnablik um nótt, Atómstöðinni, Íslandsklukkunni, Afmælisveislunni og Græna landinu. Meðal verkefna hans sem höfundur eru Kenneth Máni og heimildaverkið Flóð. Björn hefur leikið í ýmsum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, m.a. í Dönsku konunni, Kötlu, Brotum, Svari við bréfi Helgu, París norðursins, Djúpinu og Frosti. Björn hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir Vertu úlfur, Græna landið, Vestrið eina, Íslandsklukkuna og Afmælisveisluna. Hann hefur hlotið Stefaníustjakann og fékk Edduverðlaunin fyrir Svar við bréfi Helgu og Fangavaktina, og hefur hlotið þrjár tilnefningar til verðlaunanna að auki.
Elín Hansdóttir
er myndlistarmaður og hefur undanfarin ár unnið leikmyndir fyrir Þjóðleikhúsið, Burgtheater, Kampnagel og Borgarleikhúsið. Í vetur vinnur hún leikmynd fyrir Hetjur hafsins í Þjóðleikhúsinu. Elín lauk BA-prófi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2003 og Magisterprófi frá KHB-Weißensee í Berlín árið 2006. Elín hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Þverfagleg listsköpun Elínar sameinar skúlptúr, ljósmyndun og innsetningar til að skapa staðbundin verk þar sem áhersla er lögð á skynjun einstaklingsins á umhverfi sínu. Elín hlaut Bjartsýnisverðlaunin árið 2017 og árið 2022 var útilistaverk hennar Himinglæva afhjúpað við Hörpu tónlistarhús. Elín hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikmynd í Óresteiu og Vertu úlfur og var tilnefnd fyrir Saknaðarilm.
Filippía I. Elísdóttir
hefur starfað við á annað hundrað sýninga sem búninga- og sviðsmyndahönnuður, listrænn ráðgjafi og höfundur gjörninga. Sem búninga- og sviðsmyndahönnuður hefur hún unnið við leiksýningar, óperur og kvikmyndir, jafnt á Íslandi sem erlendis, og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Í vetur gerir hún búninga fyrir Högg í Þjóðleikhúsinu. Meðal nýlegra verkefna hennar hér eru Óresteia, Salka-Ástin og dauðinn, Heim, Taktu flugið, beibí!, Ást Fedru, Mútta Courage, Saknaðarilmur, Aspas, Sem á himni, Vertu úlfur, Framúrskarandi vinkona, Nashyrningarnir, Súper og Húsið. Hún gerði nýlega leikmynd og búninga fyrir Hamlet og búninga fyrir Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu. Hún hlaut Grímuna fyrir Ungfrú Ísland, Ást Fedru, Ríkharð III, Töfraflautuna, Ofviðrið, Sweeney Todd, Virkjunina, Woyzeck, Engla alheimsins og Dúkkuheimili. Hún hlaut Stefaníustjakann árið 2010 og Fálkaorðuna árið 2016. 20
Margrét Bjarnadóttir
útskrifaðist úr danshöfundadeild ArtEZ listaháskólans í Arnhem í Hollandi árið 2006 og lauk MA-námi í ritlist frá Háskóla Íslands árið 2026. Hún vinnur innan ýmissa forma og ólíkra miðla, einkum á sviði dans, myndlistar og skrifa. Margrét sá um sviðshreyfingar í Saknaðarilmi í Þjóðleikhúsinu. Á meðal verka Margrétar er gítarballettinn No Tomorrow sem hún samdi í samstarfi við Ragnar Kjartansson, Bryce Dessner og Íslenska dansflokkinn, og hlaut Grímuverðlaunin sem sýning ársins. Margrét hefur einnig hlotið Grímuverðlaun sem dansari og danshöfundur. Margrét samdi sviðshreyfingar fyrir tónleikasýningar Bjarkar Utopia og Cornucopia. Fyrsta skáldverk hennar, Varkár, kemur út hjá Benedikt nú í haust.
Jóhann Bjarni Pálmason
nam ljósahönnun við Central School of Speech and Drama í London. Hann starfaði sem ljósameistari Íslensku óperunnar 1985-2008 og lýsti meðal annars La Chenerentola, Rakarann í Sevilla, Rigoletto og Carmina Burana. Hann hefur hannað lýsingu fyrir fjölmörg leikhús og leikhópa, meðal annars Íslenska dansflokkinn, Alþýðuleikhúsið, Pé leikhópinn, Frú Emilíu, Augnablik, Leikhópinn á Senunni og 10 fingur. Hann hannaði lýsingu í Hörpu m.a. fyrir Klassíkina okkar og 100 ára fullveldisafmæli. Meðal verkefna hans hér eru Eltum veðrið, Lára og Ljónsi, Hvað sem þið viljið, Nokkur augnablik um nótt, Ást og upplýsingar, Kópavogskrónika, Upphaf, Ör, Frida, Hart í bak og Leigjandinn og hjá Leikfélagi Akureyrar Hart í bak, Undir berum himni, Sek og Lísa í Undralandi.
Örvar Smárason
er ljóðskáld, rithöfundur, tónskáld, plötusnúður og tónlistarmaður. Hann lærði handritaskrif við kvikmyndaskólann FAMU í Prag, útskrifaðist úr Háskóla Íslands með BA próf í kvikmyndafræði árið 2013 og meistarapróf í ritlist árið 2021. Örvar er einn af stofnmeðlimum hljómsveitanna múm, FM Belfast og Team Dreams. Örvar hefur sent frá sér fjölmargar bækur, nú síðast smásagnasafnið Svefngrímuna, sem hann hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir.
Þóroddur Ingvarsson
hefur starfað sem hljóðmaður í leikhúsi í rúm fimmtán ár, þar af tvö ár sem tæknistjóri hjá Leikfélagi Akureyrar og tvö ár sem hljóðmaður hjá Menningarfélagi Akureyrar. Þóroddur bjó og starfaði í Berlín um tíma og hlaut þar BA-gráðu í hljóðvinnslu. Hann starfar nú í hljóðdeild Þjóðleikhússins og meðal sýninga sem hann hefur unnið við nýlega eru Ormstunga, Lína Langsokkur, Jólagjöf Skruggu, Stormur, Frost, Mútta Courage, Rómeó og Júlía, Framúrskarandi vinkona, Sem á himni, Draumaþjófurinn og Til hamingju með að vera mannleg. Þóroddur hefur undanfarin ár séð um hljóðstjórn fyrir Daða Frey og farið í tónleikaferðir með honum um Evrópu og Bandaríkin.
21
22
23
24
Starfsfólk Þjóðleikhússins Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri Tinna Lind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri skipulags, framleiðslu og ferla Jón Þorgeir Kristjánsson, framkvæmdastjóri samskipta, markaðsmála og upplifunar Þóra Gréta Þórisdóttir, framkvæmdastjóri fjármála Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Melkorka Gunborg Briansdóttir, listrænn ráðunautur Sváfnir Sigurðarson, markaðsfulltrúi Sonja M. Scott, mannauðsstjóri Einar Aðalsteinsson, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála Vala Fannell, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála - í leyfi Aðalheiður Arna Rafnsdóttir, fjármálastjóri Hans Kragh, þjónustustjóri Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósahönnuður Ilmur Stefánsdóttir, leikmynda- og búningahöfundur
Leikarar Almar Blær Sigurjónsson Atli Rafn Sigurðarson Birta Sólveig Söring Þórisdóttir Björn Thors Ebba Katrín Finnsdóttir Edda Arnljótsdóttir Eygló Hilmarsdóttir Guðjón Davíð Karlsson Hallgrímur Ólafsson Hilmar Guðjónsson Ilmur Kristjánsdóttir Jakob van Oosterhout Jónmundur Grétarsson Kjartan Darri Kristjánsson Kristín Þóra Haraldsdóttir Kristinn ÓIi S. Haraldsson Oddur Júlíusson Ólafía Hrönn Jónsdóttir Pálmi Gestsson Selma Rán Lima Sigurbjartur Sturla Atlason Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, í leyfi Unnur Ösp Stefánsdóttir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, í leyfi Þröstur Leó Gunnarsson Örn Árnason Sýningarstjórn Elín Smáradóttir Elísa Sif Hermannsdóttir María Dís Cilia Máni Huginsson, framleiðslustjórn Hljóð Kristján Sigmundur Einarsson, deildarstjóri Aron Þór Arnarsson Þóroddur Ingvarsson Bragi Fannar Berglindarson Brett Smith Þóroddur Ingvarsson
Leikgervi Ingibjörg G. Huldarsdóttir, deildarstjóri Ása María Guðbrandsdóttir Hildur Ingadóttir Silfá Auðunsdóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Búningar Berglind Einarsdóttir, deildarstjóri Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Sólveig Spilliaert Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Ljós Kjartan Þórisson - deildarstjóri Haraldur Leví Jónsson Hermann Karl Björnsson Jóhann Bjarni Pálmason Ýmir Ólafsson Leikmyndaframleiðsla Jasmina Wojtyla, teymisstjóri Arturs Zorģis, yfirsmiður Matija Mihaljenovic Stefán Örn Stefánsson Leikmunaframleiðsla Bjarni Þór Sigurbjörnsson, teymisstjóri - í leyfi Valur Hreggviðsson, málari Ásta Sigríður Jónsdóttir Mathilde Anne Morant Upplifun, þjónusta, miðasala og móttaka Friðdóra Haukdal Magnúsdóttir, miðasölustjóri Fanney Edda Felixdóttir Halla Eide Kristínardóttir
Þjóðleikhúsið er sameign íslensku þjóðarinnar. Allt frá árinu 1950 hefur leikhúsið skapað ógleymanlega leikhústöfra. Árlega setur leikhúsið upp fjölda nýrra sýninga, stendur fyrir fræðslustarfi, nýsköpun og tilraunastarfsemi, heldur í leikferðir um landið og sinnir höfundastarfi.
Svið Kjartan Þórisson, deildarstjóri Ásdís Þórhallsdóttir, umsjón minni sviða Guðmundur Erlingsson, umsjón minni sviða Alex John George Hatfield , yfirmaður sviðstækni Eglé Sipaviciute Siobhán Antoinette Henry Jón Stefán Sigurðsson Kristmundur Elías Baldvinsson Sigurður Hólm Lárusson Tómas Sturluson Bókhald og laun Sigurveig Sólmundsdóttir, bókhaldari Tina Einarsson, launafulltrúi Christine Einarsson, launafulltrúi Steinunn Þorsteinsdóttir, launafulltrúi Eldhús Karolina Zielaskowska, matreiðslumaður Anna Powazka, aðstoðarmaður Umsjón fasteigna Sveinbjörn Helgason, húsvörður Ina Selevska, ræsting Jurate Zofija Gliaudeliene, ræsting Margarita Albina, ræsting Riina Kaunio, bakdyravörður Björn Jónsson, bakdyravörður Ofangreindir starfsmenn eru fastráðnir við Þjóðleikhúsið eða starfa þar samkvæmt árssamningi á yfirstandandi leikári, en auk þeirra vinna fjölmargir aðrir starfsmenn í leikhúsinu.
Þjóðleikhúsráð Halldór Guðmundsson, formaður Þóra Einarsdóttir, varaformaður Erling Jóhannesson Katrín Gunnarsdóttir Kristinn Sigmundsson Valgerður G. Halldórsdóttir Vigdís Jakobsdóttir
25
26
27
Þjóðleikhúsið Miðasölusími: 551 1200 Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is 28